CKF3143V - Réfrigérateur Elvita - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis CKF3143V Elvita á PDF sniði.

Elvita CKF3143V - Kælir
📄 86 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice Elvita CKF3143V - page 73
Skoða handbókina : Dansk DA English EN Suomi FI Íslenska IS Norsk NO Svenska SV
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um CKF3143V Elvita

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Netfangið þitt er áfram einkamál: það er aðeins notað til að láta þig vita ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Réfrigérateur á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína CKF3143V - Elvita og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. CKF3143V vörumerkisins Elvita.

NOTENDAHANDBÓK CKF3143V Elvita

Lestu notkunarleiðbeiningarnar vandlega áður en varan er tekin í notkun. Geymdu notkunarleiðbeiningarnar til uppflettinga síðar.

INNEHÅLL

Að nota ís-/frystiskápinn. 79

Hönnun og stjörnborð 82

Hreinsun og umhirða 83

Bilanagreining 84

Umhverfishitastig 85

Elvita CKF3143V - INNEHÅLL - 1

Öryggisviðvaranir

Elvita CKF3143V - Öryggisviðvaranir - 1

Viðvörun! Brunahætta/eldfim efni

Ráðleggingar:

Þetta tæki er ætlað til notkunar á heimilum og sambærilegum stöðum, til dæmis starfsmannaeldhúsum í verslunum, skrifstofum og öðrum vinnustöðum; á bóndabýlum; af gestum á hótelum, mótelum og íbúðum eða álíka umhverfi; á gistiheimilum; veislupjónustum og álíka stöðum sem ekki eru smásölustaðir.

Gakktu úr skugga um að börn leiki sér ekki með tækið.

Hafi rafmagnssnúran skemmst skal skipt um hana af framleiðanda, þjónustufulltrúa framleiðanda eða öðrum til þess bærum einstaklingum (skemmd rafmagnsleiðsla er hættuleg).

Ekki geyma efni í tækinu sem geta skapað sprengihættu, eins og úðabrúsa sem innihalda eldfiman aflgjafa.

Aftengdu tækið eftir notkun og áður en hvers konar notandaviðhald fer fram á tækinu.

VIÐVÖRUN! Brunahætta/eldfim efni.

VIÐVÖRUN! Gakktu úr skugga um að engin fyrirstaða sé fyrir loftopum

tækisins, hvort sem er að innan eða utan.

VIÐVÖRUN! Ekki nota nein verkfæri eða aðrar leiðir til að flýta fyrir afþíðingu, nema það sem framleiðandinn mælir með.

VIÐVÖRUN! Ekki skemma kælirásina.

VIÐVÖRUN! Ekki nota nein raftæki inni í matgeymsluhólfum tækisins, nema þau séu af þeirri gerð sem framleiðandi tækisins mælir með.

VIÐVÖRUN! Fargaðu tækinu samkvæmt staðbundnum reglum um förgun eldfimrar einangrunarfroðu og kælimiðla.

VIÐVÖRUN! Þegar þú kemur tækinu fyrir skaltu ganga úr skugga um að rafmagnssnúran sé hvorki föst né klemmd.

VIÐVÖRUN! Ekki setja fjöltengi eða færanlegan orkugjafa aftan við tækið.

Ekki nota framlengingarsnúrur eða ójarðtengd millistykki (tveggja pinna).

HÆTTA! Hætta er á að börn festist í tækinu. Áður en þú fargar gömlu tækinu þínu skaltu:

  • Taka hurðina af.
  • Skilja hillurnar eftir inni í tækinu til að koma í veg fyrir að börn klifri inn í það.

Ísskápurinn verður að vera aftengdur innstungunni áður en þú kemur fyrir aukabúnaði.

Kælimiðillinn og syklópentan froðueinangrunarefnið sem notuð eru í ísskápnum eru eldfim. Þegar ísskápnum er fargað verður því að halda honum frá öllum eldgjöfum og skila honum til endurvinnslu hjá viðurkenndum endurvinnsluaðila. Til að koma í veg fyrir umhverfismengun eða annan skaða má ekki brenna tækið.

Börn frá 8 ára aldri og fólk með skerta líkamlega getu, skerta heyrn/sjón, skerta andlega getu eða án reynslu mega eingöngu nota tækið undir eftirliti til þess bærs einstaklings eða sé þeim kennd örugg notkun tækisins og að því tilskildu að viðkomandi átti sig á öllum þeim hættum sem fylgja notkuninni. Börn mega aldrei leika sér með tækið. Börn mega ekki hreinsa eða viðhalda tækinu án eftirlits.

Þýðing tákna með öryggisviðvörunum

Elvita CKF3143V - Þýðing tákna með öryggisviðvörunum - 1

Þetta er lögboðið tákn um ráðstafanir.

Fylgja verður leiðbeiningum sem fylgja þessu tákni. Ef þú virðir ekki þessar leiðbeiningar þá getur slíkt leitt til skemmda á vörunni eða líkamsskaða.

Elvita CKF3143V - Þýðing tákna með öryggisviðvörunum - 2

Þetta er viðvörunartákn.

Nota skal tækið í samræmi við leiðbeiningar sem merktar eru með þessu tákni. Ef þú virðir ekki þessar leiðbeiningar þá getur slíkt leitt til skemmda á vörunni eða líkamsskaða.

Elvita CKF3143V - Þýðing tákna með öryggisviðvörunum - 3

Hafa skal sérstaka varúð með leiðbeiningum þessa tákns. Ónægileg varúð getur leitt til lítillegra eða nokkurra áverka eða skemmda á tækinu.

Þessar notkunarleiðbeiningar innihalda mikið af mikilvægum öryggisupplýsingum sem notendur skulu lesa og skilja.

Elvita CKF3143V - Þýðing tákna með öryggisviðvörunum - 4

Elvita CKF3143V - Þýðing tákna með öryggisviðvörunum - 5

• Togaðu ekki í rafmagnssnúruna þegar þú aftengir tækið. Vinsamlegast haltu þétt í klóna og togaðu hana út úr innstungunni.

- Til að tryggja örugga notkun skaltu ekki skemma rafmagnssnúruna né nota rafmagnssnúruna ef hún er skemmd eða úr sér gengin.

Elvita CKF3143V - Þýðing tákna með öryggisviðvörunum - 6

• Tengdu tækið við aðgreinda innstungu sem ekki má vera samnýtt með öðrum tækjum. Klóna verður að setja tryggilega inn í innstunguna til að forðast brunahættu.

• Vinsamlegast vertu viss um að jarðtengið í innstungunni sé tengt við áreiðanlegan jarðsambandstengi.

Elvita CKF3143V - Þýðing tákna með öryggisviðvörunum - 7

- Ef gasleki á sér stað skaltu skrúfa fyrir lokann til að stöðva lekann og opna síðan hurðir og glugga til að dreifa eldfimum gösum. Ekki aftengja ísskápinn né önnur rafmagnstæki þar sem slíkt getur valdið neista sem gæti tendrað eld.

Elvita CKF3143V - Þýðing tákna með öryggisviðvörunum - 8

- Ekki setja nein rafmagnstæki ofan á ísskápinn, nema framleiðandinn mæli með því.

Notkunarviðvaranir

Elvita CKF3143V - Notkunarviðvaranir - 1

- Ekki skal taka í sundur eða endurhanna ísskápinn, né skemma kælikerfið. Viðhald á raftækjum skal ávallt vera í höndum fagaðila.

- Hafi rafmagnssnúran skemmst skal framleiðandinn skipta um hana, eða þjónustuaðili framleiðandans eða viðeigandi viðurkenndur fagmaður (skemmd rafmagnsleiðsla er hættuleg).

Elvita CKF3143V - Notkunarviðvaranir - 2

- Farðu varlega þannig að þú klemmir ekki fingurna milli ísskápshurðanna né á milli ísskápshurðar og ísskáps. Lokaðu ísskápshurðinni varlega þannig að engin matvæli velti um koll.

- Ekki setja mat eða ílát í frystihólfið með blautum höndum þegar ísskápurinn er í gangi, sérstaklega ekki málma, til að komast hjá kali.

Elvita CKF3143V - Notkunarviðvaranir - 3

- Fall- og köfnunarhætta! Ekki leyfa börnum að fara inn í né klifra í ísskápnum, þar sem hætta er á að þau kafni eða detti.

- Ekki setja þunga hluti ofan á ísskápinn. Hætta er á að þeir falli niður þegar hurðin er opnuð eða lokuð og slíkt gæti valdið líkamsskaða.

• Vinsamlegast aftengdu tækið frá innstungunni ef rafmagnslaust verður eða áður en þú hreinsar tækið. Bíddu í að minnsta kosti 5 mínútur áður en þú tengir aftur ísskápinn við rafmagn, til að koma í veg fyrir skemmdir á þjöppunni vegna endurtekinnar gangsetningar.

Elvita CKF3143V - Notkunarviðvaranir - 4

Viðvaranir vegna staðsetningar

- Ekki setja eldfim efni, sprengiefni, rokgjörn eða mjög tærandi efni í ísskápinn (til að komast hjá skemmdum á tækinu og eldhættu).

Elvita CKF3143V - Viðvaranir vegna staðsetningar - 1

Elvita CKF3143V - Viðvaranir vegna staðsetningar - 2

- Ekki setja eldfim efni nálægt ísskápnum (til að komast hjá eldhættu).

- Ísskápurinn er eingöngu ætlaður til heimilisnota (eins og geymslu á mat). Ekki skal nota hann í öðrum tilgangi, t.d. geymslu á blóði, lyfjum eða lífrænum efnum.

Elvita CKF3143V - Viðvaranir vegna staðsetningar - 3

- Ekki geyma bjór, drykki eða annan vökva sem geymd eru í flöskum eða lokuðum ílátum í frystihólfi ísskápsins, þar sem flöskurnar og lokuðu ílátin gætu sprungið út af frystingunni og leitt til skemmda.

Elvita CKF3143V - Viðvaranir vegna staðsetningar - 4

Viðvaranir varðandi rafmagn

1) Það getur verið að kælitæki starfi ekki rétt (möguleiki á að innihald þiðni eða hitastig inni í frystihólfinu geti orðið of hátt) ef það er útsett í lengri tíma fyrir hitastigi sem er neðarlega á hitastigssviði því sem tækið er hannað fyrir. 2) Gosdrykki skal ekki geyma í frystihólfinu né í lághitahólfum. Afurðir eins og frosnir drykkir eða íspinnar skal ekki neyta í of köldu ástandi. 3) Ekki fara fram yfir hámarksgeymslutímann sem ráðlagður er af matvælaframleiðendum fyrir hvers konar mat og þá sérstaklega djúpfrystan mat. 4) Gerðu viðeigandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir að frosinn matur þiðni, meðan þú afþíðir tækið, eins og að vefja matvælin í nokkur dagblaðalög.

5) Ef hitastigið í matvælunum hækkar mikið meðan á handvirkri afþíðingu, viðhaldi eða þrifum stendur, þá getur slíkt stytt endingartímann. 6) Ef hurðir eða lok eru útbúin lásum og lyklum, þá þarf að geyma lyklana úr seilingarfjarlægð barna og ekki nálægt kælitækinu. Ef börn komast í lyklana þá er hætta á því að þau læsi sig inni í tækinu.

Kæliefnið og syklópentan froðueinangrunarefnið sem notuð eru í ísskápinn eru eldfim. Þegar ísskápnum er fargað verður þess vegna að halda honum frá öllum eldgjöfum og setja í endurvinnslu hjá viðurkenndum endurvinnsluaðila. Til að koma í veg fyrir umhverfismengun eða annan skaða má ekki brenna tækið til ösku.

Elvita CKF3143V - Viðvaranir varðandi rafmagn - 1

Fjarlægðu hurðirnar og þéttilista hurðanna áður en þú fargar tækinu. Ef þú ferð ekki eftir þessum leiðbeiningum er hætta á að börn festist inni í tækinu.

Elvita CKF3143V - Viðvaranir varðandi rafmagn - 2

Elvita CKF3143V - Viðvaranir varðandi rafmagn - 3

Rétt förgun þessarar vöru

Þetta tákn gefur til kynna að tækinu skuli ekki fargað með venjulegu heimilissorpi innan ESB. Til að koma í veg fyrir neikvæðar afleiðingar í umhverfinu eða á heilsu manna sem hlýst af eftirlitslausri sorplosun, vinsamlegast endurvinnið þessa vöru á ábyrgan hátt til að efla sjálfbæra endurnotkun á hráefnum. Til að skila notuðu tæki vinsamlegast notaðu söfnunar- og skilakerfið eða hafðu samband við smásöluaðilann þar sem þú keyptir tækið. Smásöluaðilinn getur tryggt að varan sé endurunnin á umhverfisvænan hátt.

Að nota ís-/frystiskápinn

Staðsetning

• Fjarlægðu allar umbúðir (þar með talið neðripúða, froðuhlífar og límband innan úr ísskápnum, rífðu hlífðarfilmuna af hurðum og ísskápshúsinu) áður en þú notar ísskápinn.

Elvita CKF3143V - Staðsetning - 1

  • Settu tækið á stað þar sem það kemst ekki í snertingu við hitagjafa né beint sólarljós. Ekki setja tækið í rakt eða blautt umhverfi (hætta er á ryði og rýrnun í einangrunargildi).
  • Ekki úða né þvo ísskápinn, ekki setja tækið á rakan stað þar sem það getur auðveldlega orðið fyrir vatnsskvettum, sem gæti haft skaðleg áhrif á rafmagnseinangrun ísskápsins.

Elvita CKF3143V - Staðsetning - 2

- Settu tækið á vel loftræstan stað innanhúss á traust og jafnt gólf. Snúðu fótum til vinstri eða hægri til að stilla hæðina.

Elvita CKF3143V - Staðsetning - 3

- Vertu viss um að nægilegt rými sé fyrir ofan tækið (að lágmarki 30 cm) og á milli tækisins og vegg að baki þess (að lágmarki 10 cm) til að tryggja að heitt loft dreifist nægilega vel.

Elvita CKF3143V - Staðsetning - 4

Undirbúningur fyrir uppsetningu:

Vertu viss um að ísskápurinn sé aftengdur frá innstungunni áður en þú setur hann upp eða stillir aukabúnað. Farðu varlega þegar þú meðhöndlar ísskápinn þannig að þú getir verið viss um að hann falli ekki og valdi líkamsskaða.

Stillifætur

Yfirlit yfir stillingu fóta

L H

Stillingaraðferð:

a. Skrúfaðu fæturna réttsælis til að hækka ísskápinn. b. Skrúfaðu fæturna rangsælis til að lækka ísskápinn. c. Stilltu hægri og vinstri fót þar til ísskápurinn stendur rétt.

Elvita CKF3143V - Stillingaraðferð: - 1

Nota skal teikningu að ofan eingöngu til leiðbeiningar. Hin raunverulega uppsetning veltur á raunvörunni eða vörulýsingu dreifingaraðilans.

Snúa hurðinni við

Nauðsynleg verkfæri: StjörnuskrúfjárnElvita CKF3143V - Snúa hurðinni við - 1

Kíttisspaði og skrúfjárn með þunnu blaði.Elvita CKF3143V - Snúa hurðinni við - 2

MálningarlímbandElvita CKF3143V - Snúa hurðinni við - 3

  1. Aftengdu ísskápinn frá rafmagnsgjöf og fjarlægðu alla hluti úr hurðarskúffunum.
  2. Fjarlægðu hlíf á efri hjör, efri hjör og tappana.

Tappi, holutappi, hlif efri hjarar, efri hjör

  1. Fjarlægðu ísskápshurðina, hjör fyrir miðju og skrúfugatstappana.

Tappi, mið hjararhlutur

  1. Fjarlægðu frystiskápshurðina, hjör að neðanverðu og stillifótinn.
  2. Settu upp hjör að neðanverðu og stillifótinn á hina hliðina. Settu síðan stopparann og hlífina af frystiskápshurðinni á hina hliðina.

Stillfætur, neðri hjararhluti, stoppari, slif

  1. Hengdu upp frystiskápshurðina á neðra hjör, settu miðhjörina á og skrúfutappana. Fjarlægðu stopparann frá neðri hægri hlið ísskápshurðarinnar (geymdu til framtíðarnota). Taktu auka stopparann fyrir ísskápshurðina úr aukabúnaðspokanum og settu hann á hina hliðina.

Mið hjaramhlutur, tappi, stoppari

  1. Hengdu upp ísskápshurðina á hjörina fyrir miðju, komdu efri hjörinni fyrir sem og hlíf efri hjarar og tappanum.

Tappi, holutappi, hlif efri hjarar, efri hjör

Elvita CKF3143V - Snúa hurðinni við - 9

Teikning að ofan er eingöngu til leiðbeiningar. Raunveruleg uppsetning veltur á vörugerð eða vörulýsingu dreifingaraðilans.

Elvita CKF3143V - Snúa hurðinni við - 10

Skipta um LED-peru

Að skipta um eða viðhald LED-peru skal sinnt af framleiðandanum, þjónustuaðila framleiðandans eða af öðrum hæfum aðila.

Fyrir fyrstu notkun ísskápsins

  • Láttu ísskápinn standa í 30 mínútur áður en þú tengir hann við rafmagn í fyrsta skipti.
  • Leyfðu tækinu að vera í gangi í 2-3 klst. (að minnsta kosti 4 klst. að sumarlagi) áður en þú setur fersk eða fryst matvæli í hann.

Elvita CKF3143V - Fyrir fyrstu notkun ísskápsins - 1

Skildu eftir nægilegt pláss til að hægt sé að opna hurðir og skúffur á auðveldan hátt (eða fylgdu ráðleggingum framleiðandans).

495, 470, 0, 135°, 892, 843

Ráðleggingar til að spara orku

  • Settu tækið í kaldasta stað herbergisins fjarri tækjum sem gefa frá sér hita eða heitum lögnum, og fjarri beinu sólarljósi.
  • Leyfðu heitum matvælum að kólna niður í stofuhita áður en þú setur þau inn í tækið. Ofhleðsla tækisins neyðir þjöppuna til að starfa í lengri tíma. Matvæli sem frystast of hægt geta rýrnað í gæðum eða farið til spillis.
  • Vertu viss um að pakka matvælunum rétt og þurrkaðu áf ílátum áður en þú setur þau inn í tækið. Þetta dregur úr klakamyndun inni í tækinu.
  • Geymslurými tækisins skal ekki fóðra með álpappír, vaxpappír né rúllupappír. Slík fóðrun hindrar streymi kalds lofts sem leiðir til þess að tækið er ekki eins hagkvæmt.
  • Skipulagðu og merktu matvælin til að stytta tímann sem hurð er opin og langdregna leit. Fjarlægðu eins margar vörur í einu eins og nauðsyn krefur og lokaðu hurðinni eins fljótt og auðið er.

Hönnun og stjórnborð

LykilpættirElvita CKF3143V - Hönnun og stjórnborð - 1

Teikning að ofan er eingöngu til leiðbeiningar. Raunveruleg uppsetning veltur á vörugerð eða vörulýsingu dreifingaraðilans.

Elvita CKF3143V - Hönnun og stjórnborð - 2

Teikning að ofan er eingöngu til leiðbeiningar. Raunveruleg uppsetning veltur á vörugerð eða vörulýsingu dreifingaraðilans.

Ísskápur

  • Ísskápshólfið hentar vel til geymslu ýmissa ávaxta, grænmetis, drykkja og annarra matvæla sem fara til neyslu innan skamms tíma.
  • Heitan mat skal ekki setja í ísskápshólfið fyrr en hann hefur kólnað niður í stofuhita.
  • Við mælum með að pakka öllum matvælum eða innsigla þau áður en þau eru sett í ísskápinn.
  • Glerhillurnar er hægt að hagræða upp eða niður til að búa til nauðsynlegt geymslurými og gera notkun þægilega.

Frystiskápur

  • Frystiskápurinn gerir kleift að geyma matvæli í langan tíma og gerir ísmolagerð mögulega.
  • Frystiskápurinn er hentugur til geymslu kjöts, fisks og annarra matvæla sem ekki eru til neyslu innan skamms tíma.
  • Við mælum með því að skipta stórum kjötstykkjum niður í minni hluta til þægilegri notkunar. Vinsamlegast athugaðu að matvæla skal neyta fyrir ráðlagða best fyrir dagsetningu.

Ath! Ekki setja of mikið af matvælum í tækið í beinu framhaldi af því að setja það í gang (kælivirkni tækisins verður líklegast minni).

  • Snúðu hitastigsstýringunni á MAX til að lækka hitastigið í ísskápnum.
  • Snúðu hitastigsstýringunni á MIN til að hækka hitastigið í ísskápnum.
  • Merkingar á stýringunni sýna eingöngu hitastigsprep, ekki ákveðið hitastig. Þegar hún er stillt á OFF er slökkt á tækinu.

ATH! Stilltu stýringuna milli MAX og MIN.

Hreinsun og umhirða

Almenn hreinsun

  • Hreinsaðu reglulega ryk að baki ísskápsins og af gólfinu til að bæta kælivirknina og spara þannig orku. Hreinsaðu ísskápinn að innan reglubundið til að koma í veg fyrir ólykt. Við mælum með að þú notir mjúkan klút eða svamp og dýfir honum í vatn og óætandi hlutlaust hreinsiefni til hreingerningar. Frystihólfið skal þrífa með hreinu vatni og þurrum klút. Opnaðu hurðina til að leyfa því að loftþorna áður en tækið er sett í gang á ný.
  • Ekki nota harða

bursta, stálull, stálbursta, hrjúf efni eins og tannkrem, lífræn hreinsiefni (alkóhól, aseton, bananaolíu o.fl.), sjóðandi vatn, sýru eða basísk hreinsiefni til að þrífa ísskápinn (slíkt getur skemmt tækið að utan sem innan).

Elvita CKF3143V - Almenn hreinsun - 1

- Ekki skola með vatni (slíkt getur haft áhrif á rafmagns einangrunareiginleikana).

Elvita CKF3143V - Almenn hreinsun - 2

Aftengdu tækið frá rafmagni til að afþíða og hreinsa það.

Afþíðing

  • Slökktu á ísskápnum.
  • Taktu öll matvæli út úr ísskápnum og settu þau á kaldan stað.
  • Hreinsaðu frárennslisrörið (notaðu mjúkt efni til að koma í veg fyrir skemmdir á slífinni). Undirbúðu vatnshólfin fyrir afþíðingu. Ekki gleyma að þrífa vatnshólf þjöppunnar, til að koma í veg fyrir leka niður á gólf.
  • Þú getur leyft tækinu að þiðna af sjálfu sér og notað klakaskóflu til að taka klakann burt (notaðu plast eða tré skóflu, til að skemma ekki klæðninguna eða rörin).
  • Þú getur líka notað viðeigandi magn af heitu vatni til að flýta fyrir afþíðingu og notað þurran klút til að þurrka leysingavatnið.
  • Pegar afþíðingu er lokið skaltu setja matvælin aftur í ísskápinn og setja hann í gang.

Óvirkur

  • Rafmagnsleysi: Við tilfallandi rafmagnsleysi er hægt að geyma matvælin örugg í nokkrar klukkustundir inni í tækinu, jafnvel þó að sumri sé. Meðan á þessu stendur, skal opna hurðina í eins stuttan tíma og mögulegt er og ekki skal bæta við neinum matvælum í tækið.
  • Ef ekki skal nota tækið í lengri tíma: Aftengdu tækið frá rafmagni og hreinsaðu það. Skildu hurðirnar eftir opnar til að koma í veg fyrir að ólykt myndist.
  • Flutningar: Áður en ísskápurinn er fluttur, skaltu fjarlægja alla hluti úr honum, ganga tryggilega frá glerskilrúmum, grænmetisskúffu, frystiskúffum o.fl. með límbandi. Hertu stillifæturnar, lokaðu hurðunum og innsiglaðu þær með límbandi. Meðan á flutningi stendur, má ekki hvolfa tækinu né leggja það lárétt né útsetja það titringi. Ekki má halla tækinu meira en 45°.

Elvita CKF3143V - Óvirkur - 1

Leyfa ætti tækinu að vera stöðugt í gangi þegar einu sinni er búið að setja það í gang (endingartími þess getur styst ef stöðugt er kveikt og slökkt á því).

Bilanagreining

Eftirfarandi vandamál geturðu reynt að leysa sjálfur. Ef vandamálið leysist ekki þá geturðu haft samband við þjónustudeild seldrar vöru.

Vandamál Möguleg orsök og lausn
Tækið virkar ekkiVertu viss um að tækið sé tengt við rafmagn og að klóin sé rétt tengd í vegginnstungunni.
Kannaðu hvort spennan sé rétt.
Kannaðu hvort rafmagnslaust sé eða hvort öryggi hafi slegið út.
ÓlyktPéttpakkaðu sterklyktandi matvælum.
Kannaðu hvort skemmd matvæli leynist í tækinu.
Hreinsaðu ísskápinn að innan.
Pjappan starfar í langan tímaPað er eðililegt að pjappan í ísskápnum starfi í lengri tíma að sumri til pegar umhverfishitinn er hár.
Forðastu að setja of mikið af matvælum inn í tækið í einu lagi.
Leyfðu öllum matvælum að kólna áður en pú setur pau inn í tækið.
Hurðirnar opnast of oft.
Lýsingin fer ekki í gangKannaðu hvort að ísskápurinn sé tengdur rafmagni og hvort peran sé skemmd.
Fáðu viðgerðarmann til að skipta um peruna ef hún er skemmd.
Hurðin lokast ekki réttMatvæli hindra að hurðin lokist rétt.
Ísskápnum hallar.
Hávært hljóð.Kannaðu hvort gólfíð sé jafnt og að ísskápurinn sé stöðugur.
Kannaðu hvort aukabúnaður sé á sínum stað.
Péttingalistar hurðar eru ekki loftpéttirFjarlægðu óhreinindi frá péttingalistunum.
Hitaðu péttingalistana og leyfðu peim síðan að kólna niður til að peir nái sinni upprunalegu lögun (notaðu hárblásara eða heitt handklæði til að hita upp péttingalistana).
Vatnshólfíð yfirfyllistOf mikið af matvælum í hólfinu eða matvælin innihalda of mikið vatn, sem leiðir til óhóflegrar afpíðingar.
Hurðirnar lokast ekki almennilega, sem leiðir til hríms vegna meira innstreymis lofts. Petta leiðir til meira vatns vegna afpíðingar pessa hríms.
Péttishús er heitt Hitaorkutap frá innbyggðum pétti gegnum húsið er eðlilegt.Húsið getur orðið heitt vegna hás umhverfishita eða vegna geymslu á of miklu matvælamagni. Vertu viss um að loftflæði sé gott til að dreifa hitanum.
Rakapétting á yfirborðiRakapétting á ytri flötum og á péttilistum ísskápsins er eðlilegt pegar umhverfishitastig er of hátt.Purrkaðu rakapéttinguna af með hreinum klút.
Óeðlilegt hljóð Suð:Pjappan getur suðað af og til meðan hún starfar, sérstaklega pegar hún fer í gang og stoppar.Petta er eðlilegt.
Marr: Kæliefni sem streymir inni í tækinu getur gefið frá sér marr hljóð, slíkt er eðlilegt.

Umhverfishitastig

Tafla 1: Veðurflokkar

Flokkur Tákn Umhverfishitastig
Víkkað temprað SN 10-32°C
Temprað N 16–32°C
Heittempraður ST 16–38°C
Hitabelti T 16–43°C

Elvita CKF3143V - Umhverfishitastig - 1

Gæðaábyrgð gildir fyrir neytandann

Elvita CKF3143V - Umhverfishitastig - 2

ELVITA

Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : Elvita

Líkan : CKF3143V

Flokkur : Kælir