Styling Head 836033 - Jouet BABY born - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis Styling Head 836033 BABY born á PDF sniði.
Spurningar notenda um Styling Head 836033 BABY born
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Jouet á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína Styling Head 836033 - BABY born og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. Styling Head 836033 vörumerkisins BABY born.
NOTENDAHANDBÓK Styling Head 836033 BABY born
Pennalokin uppfylla prófaðar öryggisstaðlakröfur BS 7272-1 og BS 7272-2 fyrir rit- og merkingartæki sem eru hönnuð til notkunar fyrir börn yngri en 14 ára til að lágmarka hættuna sem fylgir því að anda að sér lokinu fyrir slysni.
Áður en varan er tekin í notkun mælum við með því að þið lesið notkunarleiðbeiningarnar vandlega og geymið þær, ásamt umbúðunum, til síðari nota.
Athugio:
- Verið meðvituð um að leiðbeina barni ykkar.
Hár
Hárið á BABY born Styling Head er hægt að bursta og greiða með hárklemmum og hárböndum. Notið meðfylgjandi hárbandið til að halda hárinu frá andlitinu ßegar bið mótið hárið með tússpennunum.

Hárið á BABY born Styling Head er gert úr hágæða nælontrefjum og verður því að halda í burtu frá hitagjöfum, t.d. heitu vatni, heitu lofti úr hárþurrku eða krullutöngum. Litið ekki hárið á vörunni. Ekki bera hárlakk, hársprey, froðu eða gel í hárið.
Hárið þvegið
BABY born Styling Head er með mjúkt, hágæða hár sem hægt er að þvo í volgu vatni (allt að 30°C). Skolun með venjulegri hárnaeringu gerir hárið auðveldara að greiða og kemur í veg fyrir að það losni. Blautt hárið má láta þorna.
AĐVÖRUN! Til að þvo hárið, látið höfuðið vera upprétt og skolið að ofan (ekki þvo á hvolfí). Ekki nudda hárið, þar sem það eyðileggur rótina sem fléttast saman í skiptingunni og hárið mun ekki lengur dreifast jafnt yfir höfuðið. Fylgið einnig þessum leiðbeiningum þegar hárið er þurrkað. Besta leiðin til að fjarlægja vatnið er að kreista hárið varlega ofan frá og niður og láta það síðan þorna. Einnig er hægt að klappa hárinu með því að nota handklæði til að þurrka það.
Ábendingar: Skiptið hárinu í þræði og byrjið neðst, greiðið/burstið smám saman í gegnum þar til rótum er náð. Petta kemur í veg fyrir að hárið flækist og verði matt.
Hægt er að nota tússpennana til að skreyta bæði höfuð og brjóst með litríkri hönnun. Ekki er mælt með að hárið sé litað.
AĐVÖRUN!
Við mælum ekki með að teiknaðar skreytingar séu lengi á til að koma í veg fyrir varanlega upplitun á höfði, bol og hári. Pví lengur sem blekið er á vörunni, því meiri líkur/hætta á að ekki sé lengur hægt að fjarlægja blekið alveg!
Sú staða gæti komið upp að ekki sé hægt að fjarlægja allt blekið eftir 12 klukkustundir!
Einnig er mikilvægt að nota hentugt undirlag til að tryggja að tússpennarnir séu ekki notaðir á aðra hluti (svo sem borð, sófa, fatnað o.s.frv.). Mælt er eindregið með eftirliti foreldra. Zapf Creation veitir enga ábyrgð á tjóni sem stafar af óviðeigandi notkun pennanna.
Hægt er að nota augnlínupennann til að bæta samhverfum skreytingum við á svæðin í kringum augun.

Hægt er að stinga meðfylgjandi pinnum í tilgreind göt á brjóstinu. Hægt er að fjarlægja þá aftur með því að toga fast (aðstoð foreldra krafist).

Geymið tússpennana á öruggan hátt eftir skreytingu með því að festa þá við botn brjóstmyndarinnar.

Við mælum með því að fjarlægja pinnana til að auðvelda þrif á höfði og brjóstmynd. Auðveldast er að fjarlægja blek úr tússpennunum strax eftir leik/skreytingu með því að nota volgt sápuvatn (allt að 30°C) og klút og ætti það ekki að vera á leikfanginu yfir nótt.
Til að þrífa skal einfaldlega nudda yfir blekskreytingarnar þar til blekið er horfið. Einnig er hægt að fjarlægja blekið með því að nota blautþurrku sem fæst í almennum verslunum (með olíu- og vatni) eða með klút og smá volgu vatni og olíu. Gætið þess að höfuðið sé alveg þurrt og laust við olíuleifar áður en það er skreytt að nýju.
ADVÖRUN!
Tússpennarnir eru EKKI ætlaðir til notkunar á húð barna! Ekki er hægt að útiloka ofnæmisviðbrögð. Ef tússpennarnir hafa verið notaðir á húðina skal fjarlægja blekið af húðinni eins fljótt og auðið er með því að nota volgt sápuvatn (30°C). Blautþurrkur má einnig nota.
Ef ofnæmisviðbrögð koma fram skal fylgjast vel með þeim og leita tafarlaust til læknis ef þörf krefur. Vinsamlegast sýnið lækniun tússpennana og þessar notkunarleiðbeiningar.
Viðvaranir
Tússpennarnir sem fylgja eru aðeins til notkunar á Styling Head.
Ekki nota tússpennana á húð manna og forðist beina snertingu við húð!
Setjið ekki tússpennana í munninn!
Pennar geta litað fatnað, ómeðhöndlaðan við, málningu og lakk, veggfóður, vínyl og önnur efni sem ekki má þvo. Fylgið sérstökum þvottaleiðbeiningum fyrir vefnaðarvöru til að fjarlægja blekbletti af vefnaðarvöru. Munið að ykkur ber að hafa eftirlit með leik barnanna ykkar.
Leiðbeiningar til að lengja endingartíma tússpennanna
Til að tryggja að blekið haldist í oddinum ætti alltaf að geyma tússpennana lárétt eða lóðrétt með oddinn niður.
Forðist að þrýsta á oddinn til að forðast að þrýsta honum inn í pennahlífina. Eftir skreytingu skal gæta þess að setja lokin á tússpennana vel til að koma í veg fyrir að blekið þorni.
TÜSSPENNAR – INCI LISTI: Vatn, VP/VA Samfjölliða, Própýlenglykól, Fenoxýetanól, Kaprýlglykól, Tríetanólamín, gæti innihaldið: CI 42090, CI 19140, CI 16035, CI 45410
NETTÓ INNIHALD: 0,4 ml PER MARKER