VAPPEBY 905.173.67 - Haut-parleur IKEA - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis VAPPEBY 905.173.67 IKEA á PDF sniði.

IKEA VAPPEBY 905.173.67 - Hátalarar
📄 156 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice IKEA VAPPEBY 905.173.67 - page 35
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um VAPPEBY 905.173.67 IKEA

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Netfangið þitt er áfram einkamál: það er aðeins notað til að láta þig vita ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Haut-parleur á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína VAPPEBY 905.173.67 - IKEA og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. VAPPEBY 905.173.67 vörumerkisins IKEA.

NOTENDAHANDBÓK VAPPEBY 905.173.67 IKEA

  1. AC IN-tengi.
  2. Hnappur til að virkja/afvirkja sjálfvirkan slökkvara.
  3. Aflhnappur og Spotify Tap.
  4. Hnappur fyrir Bluetooth-tengingu.
  5. Stilling hljóðstyrks og LED stöðuljós.
  6. Lok á rafhlöðuhólfi (rafhlöður seldar sér).
  7. AUDIO IN-hljóðtengi.

LED stöðuvísir (5)

Blikkandi hvítt: Bluetooth-tenging í vinnslu.

Hvítt ljós: tengt við tæki.

Blikkandi rautt: lítil rafhlaða eftir.

Rautt ljós: í hleðslu (slökkt á hátalara).

Uppsetning:

  1. Tengdu rafmagnssnúru við AC IN-tengið (1).
  2. Haltu niðri takkanum (3) til að kveikja á hátalaranum. VAPPEBY 20 byrjar að leita að pöruðum tækjum. Ef parað tæki finnst fer LED ljósið að lýsa án þess að blikka og þú getur notað hátalarann.
  3. Ef ekkert tæki finnst heldur LED ljósið áfram að blikka og tækið fer sjálfkrafa í pörunarham. Farðu í Bluetooth-stillingarnar í snjalltækinu þínu til að tengjast VAPPEBY 20 gen3. LED ljósið ætti þá að hætta að blikka og hátalarinn er tilbúinn til notkunar.

Hljóðstyrkur stilltur

Snúðu takkanum (5) til vinstri til að lækka eða til hægri til að hækka.

Að nota Spotify Tap™

Spotify Tap™ gerir þér kleift að stjórna tónlistinni beint úr Bluetooth-hátalaranum með því að smella á einn hnapp.

Ef þú ert með iOS-stýrikerfi:

Farðu í App Store og náðu í Spotify-appið. Þar getur þú búið til aðgang eða skráð þig inn ef þú ert nú þegar með aðgang.

Ef þú ert með Android stýrikerfi:

Farðu í Google Play Store og náðu í Spotify-appið. Þar getur þú búið til aðgang eða skráð þig inn ef þú ert nú þegar með aðgang.

Fyrsta notkun

  1. Fullvissaðu þig um að tækið þitt sé parað við VAPPEBY hátalarana með Bluetooth.
  2. Athugaðu hvort Spotify-appið sé ekki örugglega opið. Það þarf bara að vera opið fyrst þegar þetta er notað.
  3. Smelltu á aflhnappinn (3) til að byrja að spila tónlist. LED ljósið ætti að blikka tvisvar.

Héðan í frá þegar þú smellir létt á aflhnappinn (3) ætti tónlistin að spilast áfram, svo lengi sem tækið þitt er parað og í nálægð við hátalarann.

Skipt um lag

Smelltu aftur á aflhnappinn (3) til að skipta um lag og spila lag sem mælt er með fyrir þig.

Spila tónlist frá öðrum tækjum:

Tengdu tæki í AUDIO IN-tengið (7) aftan á hátalaranum. Hátalarinn skynjar sjálfkrafa utanaðkomandi tæki og slekkur á Bluetooth-stillingunni. Notaðu þriggja póla 3,5 mm hljóðsnúru.

Nota hátalarann um allt heimilið:

VAPPEBY 20 getur verið færanlegur. ENEBY rafhlaðan er seld sér.

  • Til að bæta við rafhlöðu opnar þú hólfið (6), setur rafhlöðuna í og passar að hún snúi rétt.
  • Rafhlaðan hleðst í vörunni á meðan hún er tengd við rafmagn og kveikt er á hátalaranum.
  • Þegar rafhlaðan er að tæmast blikkar rautt LED ljós í takkanum (5). Á meðan rafhlaðan hleðst lýsir rauða LED ljósið.

VARÚD:

Sprengihætta getur stafað af því að skipta út rafhlöðu fyrir aðra af rangri tegund.

Skiptu ávallt út fyrir sömu eða sambærilega tegund rafhlaðna.

Aðrar stillingar
Afpara Bluetooth-tæki: Haltu Bluetooth-takkanum (4)niðri í a.m.k. 1,5 sek.Hátalarinn aftengist pá símanum og leitar að nýju tækitil að para sig við. LED ljósið fer pá að blikka.
Tengdu tvo hátalara saman fyrir víðóma hljómPú getur parað tvo eins VAPPEBY 20 gen3 hátalara tilað skapa víðóma hljóm. Pegar petta er gert er einnhátalarinn vinstri hljóðrás og hinn pjónar hlutverkihægri hljóðrásar.1. Endurstilltu báða hátalara á grunnstillingar (e.factory reset)2. Báðir hátalarar fara pá sjálfkrafa í Bluetooth-pörunarham (LED ljós blikkar hratt)3. Ýttu tvisvar á Bluetooth-hnappinn (4) á öðrum hátalaranna (aðalhátalarinn) til að hefja víðóma pörun(LED ljós blikkar hægt)4. Hlustaðu eftir hljóði til staðfestingar.5. Paraðu aðalhátalarann við tækið pitt.Til að aftengjast hátölurunum skaltu endurstilla pábáða aftur á grunnstillingar (e. factory reset).
Virkja/afvirkja sjálfvirkan slökkvara Færðu rofann (2)í stöðu 20 til að virkja sjálfvirkaslökkvarann. Hátalarinn slekkur sjálfvirkt á sér eftir 20mínútur ef engin tónlist er í spilun. Færðu rofann (2) ístöðu ∞ til að afvirkja sjálfvirka slökkvarann.
Endurstilla á grunnstilingu Haltu niðri hljóðstyrkshnappnum (5) í fimm sekúndur.Hlustaðu eftir hljóðmerki til staðfestingar.

Öryggi og mikilvægar upplýsingar

VIÐVÖRUN!

  • Hætta á ofhitnun! Aldrei setja vöruna upp í lokuðu rými. Hafðu ávallt að minnsta kosti 5 mm af opnu rými í kringum vöruna þannig að það lofti um hana. Athugaðu að gardínur og aðrir hlutir hylji ekki loftræstiraufar á vörunni.
  • Varan og rafhlöður mega ekki vera nálægt opnum eldi eða öðrum hitagjöfum eins og sólarljósi.
  • Aðeins til notkunar innandyra. Hátalarinn má ekki komast í snertingu við leka eða skvettur, aldrei setja hluti með vatni, eins og blómavasa, ofan á hátalarann.
  • Ekki setja hátalarann ofan á önnur raftæki.
  • Rafmagnsklóna eða tengið skal nota sem tengingarbúnað og hafa ávallt aðgengilegt og tilbúið til notkunar.
  • Ef snúran er skemmd skaltu skipta henni út fyrir nýja snúru sem sambykkt er til notkunar í landinu.
  • Logandi kerti og annar eldgjafi má ekki vera ofan á tækinu.
  • Rafhlöður (rafhlöðupakki eða rafhlöður í búnaðinum) mega ekki vera nálægt miklum hita eins og sólarljósi, eldi eða álíka.

MIKILVÆGT!

  • Hátalarinn er eingöngu ætlaður til notkunar innandyra í 0°C til 40°C stiga hita.
  • Ekki skilja hátalarann eftir þar sem hann kemst í snertingu við beint sólarljós eða nálægt hitagjöfum, þar sem hann gæti ofhitnað.
  • Hátalarinn ætti ekki að komast í snertingu við blautt, rakt eða óhóflega rykugt umhverfi, þar sem það gæti valdið skemmdum.
  • Drægnin á milli hátalarans og móttökutækisins er mæld á opnu svæði.
  • Mismunandi byggingarefni og staðsetning tækja geta haft áhrif á drægni þráðlausrar tengingar.
  • Of hár hljóðstyrkur getur skemmt heyrn þína.
  • Snertu ekki bassakeiluna.
  • Ekki nota vöruna sem hillu eða stand.

Umhirðuleiðbeiningar

Strjúktu af hátalaranum með rökum klút. Gættu þess að bleyta hann ekki.

Athugaðu!

Aldrei nota hrjúf áhöld eða sterk efni þar sem það gæti skemmt vöruna.

Möguleg vandamál og lausnir

Vandamál Ráðleggingar
Bluetooth virkar ekki: Fullvissaðupig um að 3,5 mm hljóðtengið sé ekki tengt í AUDIO IN á bakhliðinni.
Athugaðu hvort síminn eða tækið sé örugglega með Bluetooth-stillingu.
Athugaðu hvort tækið sé tengt IKEA tæki sem heitir VAPPEBY 20 gen3.
Fullvissaðu pig um að síminn eða tækið sé parað og að kveikt sé á Bluetooth.
Passaðu að engin önnur Bluetooth-tæki í nágrenni séu pöruð við tækið. Ef svo er skaltu slökkva á Bluetooth í því tæki.
Léleg hljómgæði pegar tæki er tengt með Bluetooth.Ef Bluetooth-tengingin er slæm skaltu færa snjalltækið nær hátalaranum eða fjarlægja hluti sem eru á milli tækisins og hátalarans.Athugaðu: Bluetooth-tenging virkar yfirleitt í allt að 6 - 8 m fjarlægð ef engir hlutir trufla. Ef hlutir, húsgögn eða veggir eru á milli paraða tækisins og hátalarans minnka gæði tengingarinnar. Ef tækið er í buxnavasa eða tösku getur tengingin einnig verið verri.
Léleg hljómgæði pegar tæki er tengt með AUDIO IN-tengi.Fullvissaðu pig um að síminn, spjaldtölvan eða annað tæki sé ekki í fullum hljóðstyrk, og ef svo er skaltu lækka í tækinu.

Viðgerð á vöru

Ekki gera tilraun til að laga vöruna upp á eigin spýtur, ef þú opnar eða fjarlægir lokin getur þú orðið fyrir rafstraumi eða öðrum skaða.

Geymdu þessar leiðbeiningar til að nota síðar.

Bluetooth® orðmerki og myndmerki eru skrásett vörumerki í eigu Bluetooth SIG, Inc. og öll notkun IKEA á slíkum merkjum eru samkvæmt leyfum. Önnur vörumerki og vöruheiti eru í eigu viðkomandi eigenda.

IKEA VAPPEBY 905.173.67 - Viðgerð á vöru - 1

Spotify Tap™ er vörumerki í eigu Spotify og öll notkun slíkra merkja hjá IKEA er með leyfi. Öll önnur vörumerki Spotify, þjónustumerki, viðskiptanöfn, lógó, lén og aðrir eiginleikar Spotify vörumerkisins eru eign Spotify eða leyfisveitenda þess.

IKEA VAPPEBY 905.173.67 - Viðgerð á vöru - 2

Táknið með mynd af ruslatunnu með krossi yfir þýðir að ekki má farga vörunni með venjulegu heimilissorpi. Vörunni þarf að skila í endurvinnslu eins og lög gera ráð fyrir á hverjum stað fyrir sig. Með því að henda slíkum vörum ekki með venjulegu heimilissorpi hjálpar þú til við að draga úr því magni af úrgangi sem þarf að brenna eða nota sem landfyllingu og lágmarkar möguleg neikvæð áhrif á heilsu fólks og umhverfið. Þú færð nánari upplýsingar í IKEA versluninni.

Tæknilegar upplýsingar

Módel: VAPPEBY 20 Þriðja kynslóð
Tegund: E2036
Inntak: 100-240 VAC 50/60 Hz
Orkunotkun í biðstöðu: <0,2 W
Málaflsnotkun: 36,0 W
Hitastig við notkun: 0 °C til 40 °C
Rakastig við notkun: 0 til 95% RH
Mál (mm): 199x199x80 (án handfangs)
Pyngd: 1,5 kg (án rafhlöðu)
Endingartími rafhlaðna ef spilað er á 50% hljóðstyrk:u.p.b. 25 klst.(fer eftir efni)
Sjálfvirkt slökkt: eftir 20 mínútur
Bluetooth-útgáfa: V 5,0
Drægni Þráðlausrar tengingar (ótrufluð): u.p.b. 10 m
Vinnslutíðni: 2.400-2.483,5 MHz
Aflsafköst útvarps: 8 dBm

Svona notar þú ENEBY rafhlöðupakka (rafhlaða seld sér)

  • Það er eðlilegt fyrir rafhlöðuna að hitna á meðan hleðslu stendur, hún kólnar aftur eftir hleðslu.
  • Hleðslutími getur verið misjafn eftir afkastagetu, aldri rafhlöðunnar og hitastigi umhverfisins.
  • Hitastig við geymslu: -20°C til 25°C.
  • Hitastig við hleðslu: 0°C til 45°C.
  • Taktu rafhlöðuna úr fyrir prif og þegar hún er ekki í notkun.
  • Rafhlaðan má ekki vera án hleðslu í langan tíma.
  • Hlaðið rafhlöðuna á yfirborði sem ekki er eldfimt.
  • Aðeins er hægt að nota rafhlöðuna með IKEA vörum.

VIÐVÖRUN

  • Ekki breyta, taka í sundur, opna, stinga eða skera í rafhlöðuna. • Gættu þess að rafhlaðan brotni ekki.
  • Eldhætta getur skapast ef hún er opnuð, brotin eða fer í yfir 60°C hita.
  • Haltu rafhlöðunni frá opnum eldi og beinu sólarljósi til að koma í veg fyrir ofhitnun.
  • Haltu rafhlöðunni frá tækjum með hárri spennu.
  • Varan er ekki leikfang, ekki leyfa börnum að leika sér að henni. Gakktu úr skugga um að notendur vörunnar lesi og fylgi varúðarráðstöfunum og leiðbeiningum.
  • Ekki tengja saman pólana á rafhlöðunni.
  • Ef rafhlaðan lekur, passaðu að vökvinn komi ekki í snertingu við húð eða augu.

UMHIRÐULEIÐBEININGAR

Strjúktu yfir fjarstýringuna með mjúkum klút vættum með mildum sápulegi til að þrífa hana. Notaðu þurran klút til að þurrka hana.

ATHUGIÐ!

Aldrei nota hrjúf hreinsiefni eða uppleysanleg efni, þar sem það gæti skemmt vöruna.

Viðhald

Ekki reyna að gera við þessa vöru upp á eigin spýtur, því ef þú opnar eða fjarlægir lokin gætir þú orðið fyrir rafstraumi eða öðrum hættum.

TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR

Tegund: ICBL14.4-36-A1

Rúmtak: 2600 mAh/37.4 Wh

Inntak: DC 16.8V, 2.0A

Úttak: DC 14.4V, 3.1A

Aðeins til notkunar innandyra

Endurhlaðanlegar lithíumrafhlöður innan í.

Þessi vara stenst UL STD 2054

IKEA VAPPEBY 905.173.67 - Aðeins til notkunar innandyra - 1

Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : IKEA

Líkan : VAPPEBY 905.173.67

Flokkur : Hátalarar