IKEA STARKVIND 805.019.51 - Table

STARKVIND 805.019.51 - Table IKEA - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis STARKVIND 805.019.51 IKEA á PDF sniði.

📄 92 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice IKEA STARKVIND 805.019.51 - page 19

Spurningar notenda um STARKVIND 805.019.51 IKEA

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Tölvupósturinn er áfram einkamál: hann er aðeins notaður til að tilkynna þér ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Table á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína STARKVIND 805.019.51 - IKEA og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. STARKVIND 805.019.51 vörumerkisins IKEA.

NOTENDAHANDBÓK STARKVIND 805.019.51 IKEA

Börn frá 8 ára aldri og fólk með skert skynbragð, líkamlega eða andlega getu, geta notað þetta tæki ef þau eru undir eftirliti eða hafa fengið leiðbeiningar frá einstaklingi, sem er ábyrgur fyrir öryggi þeirra, um hvernig á að nota tækið á öruggan hátt og að það skilji hætturnar sem því fylgir. Börn eiga ekki að leika sér með tækið.

Börn eiga ekki að sjá um Þrif og viðhald nema undir eftirliti.

Rafmagnsöryggi

  • Notið ekki skemmda rafmagnskló eða lausa innstungu.
  • Færið ekki vöruna með því að toga í rafmagnssnúruna.
  • Til að koma í veg fyrir að rafmagnssnúran skemmist eða afmyndist skal ekki þvinga hana eða setja hana undir þungan hlut.
  • Ef rafmagnsinnstungan er blaut skal taka vöruna varlega úr sambandi og leyfa innstungunni að þorna alveg áður en hún er notuð aftur.
  • Meðhöndlið ekki rafmagnsklóna með blautum höndum.
  • Stingið ekki klónni ítrekað í og úr sambandi.
  • Takið tækið úr sambandi áður en gert er við það, það skoðað eða skipt er um íhluti í því.
  • Fjarlægið ryk og vatn af rafmagnsklónni.
  • Takið tækið úr sambandi ef ekki á að nota það í langan tíma.
  • Ef rafmagnssnúran er skemmd verður framleiðandinn, þjónustufulltrúi á vegum hans eða annar viðeigandi og hæfur einstaklingur að skipta um hana til að forðast hættu.
  • Reynið ekki að gera við eða breyta rafmagnssnúrunni.
  • Pessa vöru skal aðeins nota með rafmagnseiningunni sem fylgir með.
  • Ef einhver hluti er skemmdur skal ekki nota vöruna..

Uppsetningaröryggi

  • Varan er eingöngu ætluð til heimilisnota við eðlileg notkunarskilyrði.
    • Staðsetjið lofthreinsitækið ekki nálægt hitataeki.
  • Notið ekki vöruna í blautu umhverfi eða í rakamiklu umhverfi, svo sem baðherbergi eða í herbergi með miklum frávikum í hitastigi.
  • Pessi vara kemur ekki í staðinn fyrir almennilega loftræstingu, reglulega ryksugun eða notkun á háfi eða viftu við matreiðslu.

  • Staðsetjið alltaf og notið vöruna á Þurru, stöðugu, jöfnu og láréttu yfirborði.

  • Hafið að minnsta kosti 30 cm af lausu rými í kringum vöruna.
  • Ekki skal nota vöruna á svæðum þar sem eldfimar gastegundir eða eldfim efni eru notuð eða geymd.
  • Beitið ekki óhóflegu afli eða útsetið vöruna fyrir höggum eða skellum.
  • Setjið vöruna upp pannig að engar hindranir í kringum vöruna loki fyrir hringrás lofts.

Notkunaröryggi

  • Setjið vöruna aldrei í vatn.
  • Ekki má taka vöruna í sundur, gera við hana eða breyta henni.
  • Takið vöruna úr sambandi áður en hún er þrifin.
  • Ef lofthreinsitækið gefur frá sér undarleg hljóð, brunalykt eða reyk skal taka tækið strax úr sambandi og hringja í þjónustuverið okkar.
  • Úðið ekki eldfimum efnum inn í loftinntakið.
  • Stingið ekki fingrum eða aðskotahlutum inn í loftinntak eða loftúttak.
  • Skiptið um síur samkvæmt síuskiptitímabilum. Annars getur frammistaða vörunnar versnað.
  • Ytið ekkí vörunni eða hallið ykkur upp við hana par sem hún getur dottið og valdið líkamlegu tjóni eða bilun í vörunni.
  • Varan fjarlægir ekki kolsýring (CO) eða radon (Rn). Ekki er hægt að nota vöruna sem öryggisbúnað gegn brennsluferli og hættulegum efnum.

MIKILVÆGT:

STARKVIND lofthreinsitæki er hægt að nota sem sjálfstætt tæki, en virkar einnig með TRÅDFRI-gáttinni og IKEA Home snjallforritinu.

FLÝTILEIĐBEININGAR

Ef pú ert með IOS-tæki:

Farið í App Store og sækið IKEA Home snjallforritið. Forritið mun leiðbeina þér hvernig eigi að bæta STARKVIND lofthreinsitækinu við TRÅDFRI-gáttina.

Ef pú ert með Android-tæki:

Farið í Google Play og sækið IKEA Home snjallforritið. Forritið mun leiðbeina þér hvernig eigi að bæta STARKVIND lofthreinsitækinu við TRÅDFRI-gáttina.

IKEA STARKVIND 805.019.51 - Ef pú ert með Android-tæki: - 1

Pörun:Bætir STARKVIND lofthreinsitækinu við TRÅDFRI-gáttina pína.

STARKVIND lofthreinsitæki fyrir borð:

Pú finnur pörunarhnappinn með því að fjarlægja lokið af tækinu.

  • Styrkbil á milli gáttarinnar og móttökubúnaðar er mælt í opnu rými.
  • Mismunandi byggingarefni og staðsetningar einingarinnar geta haft áhrif á svið práðlausrar tengingar.
  • Ef forritið getur ekki tengt lofthreinsitækið pitt við gáttina skaltu reyna að færa lofthreinsitækið nær gáttinni pinni.

Hraðastýring viftunnar

Hægt er að stjórna viftuhraða á bilinu 1 til 5 og sjálfvirkrar stillingar.

Sjálfvirk stilling

Í sjálfvirkri stillingu velur varan viftuhraða í samræmi við loftgæði. Loftgæðaskynjarinn er virkur og mælir PM 2,5 agnir pegar lofthreinsitækið er í gangi.

Aðeins í IKEA Home snjallforritinu.

Vísar fyrir loftgæði (PM 2,5):

Grænt: 0-35 / Gott

Gult: 36-85 / Allt í lagi

Rautt: 86- / Ekki gott

  • Hitastig við notkun: 0°C til 40°C.
    • Raki við notkun: 10 til 60% RH
    (Ráðlagður raki við notkun: 40-60% RH)

Pegar STARKVIND lofthreinsitæki er tengt við rafmagn í fyrsta skipti lýsast LED-ljósin á stjórnborðinu upp í röð. Pegar LED-ljósin hætta að lýsast er varan tilbúin til notkunar. Ytið á stjórnhnappinn til að setja vöruna í sjálfvirkan stillingu eða snúið á æskilegt stig. Ytið aftur á

hnappinn til að slökkva á vörunni.

Til að virkja stjórnlæsinguna skal ýta lengi á hnappinn. Einnig er hægt að stjórna því í snjallforritinu IKEA Home.

Leiðbeiningar um umhirðu

Takið vöruna úr sambandi áður en hún er þrifin. Strjúkið af tækinu með mjúkum og rökum klút. Notið annan mjúkan og þurran klút til að þurrka. Ryksugið forsíuna reglulega.

Athugið!

Notið aldrei slípiefni eða leysiefni par sem slíkt getur skemmt vöruna.

Loftgæðaskynjarinn prifinn

Ryksugið loftgæðaskynjarann reglulega.

IKEA STARKVIND 805.019.51 - Loftgæðaskynjarinn prifinn - 1

Pegar skipt er um síu er nauðsynlegt að notandinn geri pað á eftirfarandi hátt:

Eitt lýsandi LED-ljós á stjórnborðinu gefur til kynna að athuga Þurfi síurnar.

IKEA STARKVIND 805.019.51 - Loftgæðaskynjarinn prifinn - 2

text_image AUTO 1 2 3 4 5

Viðvörun!

Aftengja verður rafmagnssnúruna áður en skipt er um síu!

  1. Aftengið rafmagnið og bíðið par til viftan hefur stöðvast.
  2. Fjarlægið forsiuna og ryksugið hana eða hreinsið með vatni eftir því hversu óhrein hún er.
  3. Fjarlægið síur og meðhöndlið notaðar síur með gát. Fargið síunum í samræmi við staðbundnar umhverfisreglur um förgun úrgangs.
  4. Hreinsið að innan, fjarlægið allt ryk og óhreinindi.
  5. Setjið nýju síurnar í. (Snertið aðeins rammagassíunnar).
  6. Tengið rafmagnssnúruna aftur.

  7. Pegar búið er að skipta um síu skal ýta á RESEThnappinn í 3 sekúndur. Endurstillingin frumstillir tímabilsteljarann fyrir síuskipti.

  8. Setjið forsiuna á sinn stað.

- Pvoið hendurnar vandlega eftir að skipt hefur verið um síur.

IKEA STARKVIND 805.019.51 - Viðvörun! - 1

text_image 3 sec.

Tæknilýsingar

Gerð: STARKVIND lofthreinsitæki

Tegund: E2006

Mál: Pvermál: 54cm H: 55cm

Pyngd: u.b.b. 7,9 kg

Sía til að fjarlægja agnir.

Valfrjálst: Sía fyrir gashreinsun.

Rafmagnseining

Tegund: KA4802A-2402000P

Inntak: 100-240 VAC, 50/60 Hz, 1,2A

Útgangsafl: 24,0V DC, hám. 2,0A, hám. 48,0W

Meðalskilvirkni pegar tækið er í gangi: 87,7%

Skilvirkni við lítið álag (10%): 78,7%

Aflpörf í lausagangi: 0,1 W

Aðeins til notkunar innanhúss.

(skráningarnúmer í fyrirtækjaskrá: 556074-7551)

Heimilisfang:

Box 702, SE-343 81 Älmhult, SWEDEN

STARKVIND lofthreinsitæki E2006:

Rekstrarstillingar með agnasíu (með gassíu)

Stig HávaðiTíðni flutnings á hreinu loftiAfl
124dB(A)(24dB(A)) 50m^3/h (45m^3/h) 2.0W(1.9W)
231dB(A)(31dB(A)) 110m^3/h (95m^3/h) 5.0W(4.0W)
342dB(A)(41dB(A)) 180m^3/h (145m^3/h) 11.5W(9.5W)
450dB(A)(48dB(A)) 240 m^3/h (205m^3/h) 24.5W(19.0W)
553dB(A)(51dB(A)) 260 m^3/h (240m^3/h) 33.0W(25.0W)

Ráðlagður tími á milli síuskipta kann að vera mismunandi eftir notkunarumhverfi.

Sía Tímabil Aðgerð
Forsía Á 2~4 vikna fresti Hreinsun
Loftgæðaskynjari Á 6 mánaða frestiHreinsun
Agnasía Á 6 mánaða frestiSkipt um síu
Gassía Á 6 mánaða frestiSkipt um síu

Geymdu leiðbeiningarnar.

IKEA STARKVIND 805.019.51 - STARKVIND lofthreinsitæki E2006: - 1

Táknið með mynd af ruslatunnu með krossi yfir þýðir að ekki má farga vörunni með venjulegu heimilissorpi. Vörunni þarf að skila í endurvinnslu eins og lög gera ráð fyrir á hverjum stað fyrir sig. Með því að henda slíkum vörum ekki með venjulegu heimilissorpi hjálpar þú til við að draga úr því magni af úrgangi sem þarf að brenna eða nota sem landfyllingu og lágmarkar möguleg neikvæð áhrif á heilsu fólks og umhverfið. Pú færð nánari upplýsingar í IKEA versluninni.

Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : IKEA

Líkan : STARKVIND 805.019.51

Flokkur : Table