FASTNÄS 105.680.06 - Réfrigérateur IKEA - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis FASTNÄS 105.680.06 IKEA á PDF sniði.

IKEA FASTNÄS 105.680.06 - Kælir
📄 481 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice IKEA FASTNÄS 105.680.06 - page 463
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um FASTNÄS 105.680.06 IKEA

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Netfangið þitt er áfram einkamál: það er aðeins notað til að láta þig vita ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Réfrigérateur á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína FASTNÄS 105.680.06 - IKEA og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. FASTNÄS 105.680.06 vörumerkisins IKEA.

NOTENDAHANDBÓK FASTNÄS 105.680.06 IKEA

Þessi hluti inniheldur öryggisleiðbeiningar sem

nauðsynlegar eru til að koma í veg fyrir hættu á líkamstjóni eða efnislegum skemmdum.

Framleiðandinn hafnar allri ábyrgð ef þessum öryggisleiðbeiningum er ekki fylgt, vegna óviðeigandi notkunar tækisins eða rangrar stillingar á stjórntækjum.

Ekki gera við eða skipta um neinn hluta vörunnar nema annað sé tekið fram í notendahandbókinni. Ekki gera neinar breytingar á vörunni.

TILGANGUR NOTKUNAR

⚠ Þessi vara er ekki ætluð til notkunar í viðskiptalegum tilgangi og hana skal ekki nota nema í tilætluðum tilgangi.

Þessi vara er ætluð til notkunar innandyra, svo sem á heimilum eða álíka.

Til dæmis í:

- starfsmannaeldhúsum í verslunum, skrifstofum og öðru vinnuumhverfi

- bóndabæjum

- hótelum/mótelum eða annarri hvíldaraðstöðu sem viðskiptavinir nota

- farfuglaheimilum eða svipuðu umhverfi

- veitingaþjónustu eða svipaðri þjónustu sem ekki er greitt fyrir.

Þessa vöru skal ekki nota í opnu eða afgirtu ytra umhverfi eins og skipum, svölum eða veröndum. Ef varan er berskjölduð gegn rigningu, snjó, sólarljósi og vindi getur það valdið eldhættu.

ÖRYGGI BARNA, VIÐKVÆMRA EINSTAKLINGA OG GÆLUDÝRA

- Þessa vöru geta börn 8 ára og eldri notað og einstaklingar með vanþróaða líkamlega, skynræna eða andlega getu eða skort á reynslu og þekkingu ef þeir eru

undir eftirliti eða hafa fengið leiðbeiningar varðandi örugga notkun tækisins og hætturnar sem því fylgja.

- Börn á aldrinum 3 til 8 ára mega setja mat í og taka mat úr kælivörunni.

⚠️ Rafmagnsvörur eru hættulegar börnum og gæludýrum. Börn og gæludýr mega ekki leika sér með vöruna, klifra upp á hana eða fara inn í hana.

⚠️ Þrif og viðhald af hálfu notenda ætti ekki að vera framkvæmt af börnum nema einhver hafi umsjón með þeim.

⚠️ Geyma skal umbúðirnar fjarri börnum. Hætta á meiðslum og köfnun.

Áður en gömlum vörum er fargað:

  1. Taktu rafmagnssnúruna úr sambandi.
  2. Skerðu rafmagnssnúruna af og fjarlægðu hana úr tækinu ásamt klónni. 3. Ekki fjarlægja rekka og skúffur úr vörunni til að koma í veg fyrir að börn komist inn í tækið. 4. Fjarlægðu hurðirnar.
  3. Geymdu vöruna þannig að henni verði ekki velt.
  4. Leyfðu börnum ekki að leika sér með úrelta vöruna.

- Ekki farga vörunni með því að henda henni í eld. Sprengihætta.

- Ef lás er í hurð vörunnar skaltu geyma lykilinn þar sem börn ná ekki til.

RAFMAGNSÖRYGGI

  • Varan skal ekki vera tengd við innstungu meðan á uppsetningu, viðhaldi, hreinsun, viðgerð og flutningi stendur.
  • Ef rafmagnssnúran er skemmd skal henni aðeins skipt út af

viðurkenndum þjónustuaðila til að koma í veg fyrir hættu sem kann að eiga sér stað.

  • Ekki setja rafmagnssnúruna undir vöruna eða aftan við vöruna. Ekki setja þunga hluti á rafmagnssnúruna. Ekki skal beygja eða kremja rafmagnssnúruna og ekki skal láta hana komast í snertingu við neina hitagjafa.
  • Ekki nota framlengingarsnúru, fjöltengi eða millistykki við notkun á vörunni.
  • Færanlegir fjöltenglar eða aflgjafar geta ofhitnað og valdið eldsvoða. Því skal ekki hafa fjöltengi fyrir aftan eða nálægt vörunni.
  • Auðvelt skal vera að komast að klónni. Ef þetta er ekki mögulegt skal búnaður sem uppfyllir raforkulöggjöfina og aftengir allar tengingar frá rafmagninu (öryggi, rofi, aðalrofi o.s.frv.) vera tiltækur á raflögninni.
  • Ekki skal snerta klóna með blautum höndum.
  • Þegar tækið er tekið úr sambandi skal ekki halda í rafmagnssnúruna heldur klóna.

MEDHÖNDLUNARÖRYGGI

  • Þessi vara er þung, ekki handleika hana á eigin spýtur.
  • Ekki færa vöruna með því að halda í hurðina.
  • Gættu þess að skemma ekki kælikerfið og rörin við meðhöndlun vörunnar. Ekki nota vöruna ef rörin eru skemmd og hafðu samband við viðurkennda þjónustu.

UPPSETNINGARÖRYGGI

- Til að undirbúa vöruna fyrir uppsetningu skaltu skoða upplýsingarnar í notendahandbókinni og ganga úr skugga um að rafmagns- og vatnsveitur séu eins og krafist er. Ef uppsetningin hentar ekki skaltu hringja í viðurkenndan rafvirkja og pípulagningamann til að fá þá til að gera nauðsynlegar ráðstafanir. Annars er hætta á raflosti, eldi, vandamálum með vöruna eða

meiðslum.

  • Athugaðu hvort skemmdir séu á vörunni áður en hún er sett upp. Ekki hafa vöruna uppsetta ef hún er skemmd.
  • Komdu vörunni fyrir á sléttu og hörðu yfirborði og komdu jafnvægi á hana með stillanlegu fótunum. Annars getur kæliskápurinn oltið og valdið meiðslum.
  • Varan skal sett upp í þurru og loftræstu umhverfi. Ekki hafa teppi, mottur eða svipuð gólfefni undir vörunni nema birgirinn mæli með því. Þetta getur valdið eldhættu vegna ófullnægjandi loftræstingar!
  • Ekki loka fyrir eða hylja loftræstiholur. Annars getur orkunotkun aukist og skemmdir orðið á vörunni.
  • Ekki tengja vöruna við veitukerfi eins og sólarorkugjafa. Annars geta skemmdir orðið á vörunni vegna skyndilegra spennusveiflna!
  • Því meiri kælimiðill sem kæliskápur inniheldur, því stærra skal uppsetningarrými hans vera. Í mjög litlum herbergjum getur myndast eldfim lofttegundablanda ef gasleki verður í kælikerfinu. Að minnsta kosti 1 m³ af rúmmáli þarf fyrir hver 8 grömm af kælimiðli. Magn kælimiðilsins sem er tiltækt í vörunni er tilgreint í tegundamerkingunni.
  • Uppsetningarstaður vörunnar skal ekki verða fyrir beinu sólarljósi og hann skal ekki vera nálægt hitagjafa eins og eldavélum, ofnum o.s.frv.

⚠ Ef þú getur ekki komið í veg fyrir uppsetningu vörunnar í nágrenni við hitagjafa skaltu nota viðeigandi einangrunarplötu og lágmarksfjarlægð frá hitagjafanum skal vera eins og tilgreint er hér að neðan.

- Að minnsta kosti 30 cm fjarlægð frá hitagjöfum eins og ofnum, hitaeiningum og hiturum o.s.frv., - Og að minnsta kosti 5 cm fjarlægð frá rafmagnsofnum.

- Varan er í verndarflokki I. Settu vöruna í jarðtengda innstungu sem er í samræmi við gildi spennu, straums og tíðni sem tilgreind eru á tegundarmerkinu. Innstungan skal búin öryggi með einkunnina 10 A – 16 A. IKEA í Svíþjóð ber ekki ábyrgð á tjóni sem verður vegna þess að varan var notuð án þess að gengið væri úr skugga um að jarðtenging væri tryggð og að raftengingar væru samkvæmt staðbundnum eða innlendum reglum.

- Rafmagnssnúra vörunnar má ekki vera í sambandi við uppsetningu. Annars getur verið hætta á raflosti og meiðslum!

- Ekki stinga vörunni í lausar, brotnar, óhreinar, fitugar innstungur eða innstungur sem hafa losnað úr sætum sínum eða innstungur sem geta komist í snertingu við vatn.

- Staðsetja skal rafmagnssnúruna og slöngur (ef þær eru til) vörunnar þannig að þær valdi ekki hættu á að dottið sé um þær.

- Raki sem kemst í lífandi hluta eða í rafmagnssnúruna getur valdið skammhlaupi. Því má ekki nota vöruna í röku umhverfi eða á svæðum þar sem vatn getur skvettst (t.d. í bílskúr eða þvottahúsi). Ef kæliskápurinn er blautur af vatni skaltu taka hann úr sambandi og hafa samband við viðurkennda þjónustu.

- Ekki tengja ísskápinn við orkusparandi tæki. Þessi kerfi eru skaðleg fyrir vöruna.

REKSTRARÖRYGGI

- Ekki nota efnafræðileg leysiefni á vöruna. Þessi efni innihalda sprengihættu.

- Ef varan bilar skal taka hana úr sambandi og ekki nota fyrr en gert hefur verið við hana af viðurkenndri þjónustu. Hætta er á raflosti!

- Ekki setja eldgjafa (t.d. kerti eða sigarettur) á vöruna eða nálægt henni.

- Ekki fara upp á vöruna. Hætta á falli og meiðslum!

- Ekki nota beitt eða oddhvöss verkfæri sem geta valdið skemmdum á rörum kælikerfisins. Kælimiðillinn sem úðast út ef stungið er í gasrörin, pípuframlengingarnar eða efra yfirborðsmeðferðarefni getur valdið húðertingu eða meiðslum á augum.

- Ekki setja rafmagnstæki inn í kæliskápa/djúpfrysti nema framleiðandi ráðleggi það.

- Ekki festa neina hluta af höndum þínum eða líkama við hreyfanlega hluta inni í vörunni. Gættu þess að koma í veg fyrir að fingurnir festist á milli kæliskápsins og hurðarinnar. Farðu varlega þegar þú opnar eða lokar hurðinni ef það eru börn í kringum þig.

- Ekki setja ís, ísmola eða frosinn mat upp í munninn um leið og þú tekur hann úr frystinum. Hætta á kali!

- Ekki snerta innri veggi, málmhluta frystisins eða mat sem geymdur er inni í ísskápnum með blautum höndum. Hætta á kali!

- Ekki setja gosdósir eða dósir eða flöskur sem innihalda vökva sem gæti frosið í frystihólfið. Dósir eða flöskur geta sprungið. Hætta á meiðslum og efnisskemmdum!

- Ekki nota eða setja efni sem eru viðkvæm gegn hitastigi eins og eldfima úða, eldfima hluti, þurrís eða önnur kemísk efni nálægt ísskápnum. Hætta á eldsvoða og sprengingu!

- Ekki geyma sprengifim efni eins og úðabrúsa með eldfimum efnum í vörunni.

- Ekki setja dósir sem innihalda vökva ofan á vöruna. Vatnsskvetta á rafmagnshluta getur valdið hættu á raflosti eða eldsvoða.

- Þessi vara er ekki ætluð til geymslu og kælingar á lyfjum, blóðvökva, rannsóknarstofublöndum eða svipuðum efnum og vörum sem falla undir tilskipun um lækningavörur.

  • Ef varan er notuð gegn tilætluðum tilgangi getur það valdið skemmdum á eða hnignun á vörunum sem geymdar eru inni.
  • Ef ísskápurinn er búinn bláu ljósi skaltu ekki horfa á þetta ljós með sjónrænum tækjum. Ekki stara beint á UV LED ljós í langan tíma. Útfjólubláir geislar geta valdið álagi á augu.
  • Ekki fylla vöruna með meiri matvælum en rúmtak hennar segir til um. Áverkar eða skemmdir geta orðið ef innihald kæliskápsins fellur þegar hurðin er opnuð. Svipuð vandamál geta komið upp þegar hlutur er settur ofan á vöruna.
  • Gakktu úr skugga um að þú hafir fjarlægt ís eða vatn sem gæti hafa fallið í gólfið til að koma í veg fyrir meiðsli.
  • Breyttu aðeins staðsetningu rekka/flöskurekkanna á hurð ísskápsins á meðan rekkarnir eru tómir. Hætta á líkamlegum meiðslum!
  • Ekki setja hluti sem gætu dottið/oltið ofan á vöruna. Þessir hlutir geta dottið við opnun eða lokun hurðarinnar og valdið meiðslum og/eða efnislegum skemmdum.
  • Ekki slá eða beita of miklum þrýstingi á glerfleti. Glerbrot geta valdið meiðslum og/eða efnisskemmdum.

IKEA FASTNÄS 105.680.06 - REKSTRARÖRYGGI - 1

- Kælikerfið í vörunni inniheldur R600a kælimiðil. Tegund kælimiðils sem notaður er í vöruna er tilgreind í tegundamerkingunni. Þessi lofttegund er eldfim. Þess vegna skaltu gæta þess að skemma ekki kælikerfið og rörin meðan á notkun vörunnar stendur. Ef skemmdir verða á lögnum:

- Ekki snerta vöruna eða rafmagnssnúruna.

- Geymdu vöruna fjarri hugsanlegum eldsupptökum sem geta valdið því að kvikni í vörunni.

  • Loftræstu svæðið þar sem vörunni er komið fyrir. Ekki nota viftu.
  • Ef varan er skemmd og þú sérð gasleka skaltu halda þig frá gasinu. Gas getur valdið kali ef það kemst í snertingu við húðina.

ÖRYGGI VIÐ VIDHALD OG ÞRIF

  • Ekki toga í hurðarhúninn ef þú ert að færa vöruna til í þrifum. Handfang getur valdið meiðslum ef það er togað of fast.
  • Ekki hreinsa vöruna með því að úða eða hella vatni á vöruna og innan í vöruna. Hætta á raflosti og eldsvoða.
  • Ekki nota beitt eða slípandi áhöld til að hreinsa vöruna.
  • Ekki nota efni eins og hreinsiefni fyrir heimilið, þvottaefni, gas, bensín, áfengi eða vax.
  • Notaðu aðeins hreinsiefni sem eru ekki skaðleg fyrir mat inni í vörunni.
  • Ekki nota gufu eða gufuhreinsiefni til að hreinsa vöruna og þíða ísinn inni í henni. Gufa kemst í snertingu við virk svæði í ísskápnum þínum og veldur skammhlaupi eða raflosti!
  • Gættu þess að halda vatni frá rafeindarásum eða lýsingu vörunnar.
  • Notaðu hreinan, þurran klút til að þurrka rykið eða aðskotaefnið á endum klónna. Ekki nota blautt eða rakt klútstykki til að hreinsa klóna. Annars getur eldhætta eða raflost komið upp.

Uppsetning

Til að gera vöruna tilbúna til notkunar skal gæta þess að raflagnir og pípulagnir séu viðeigandi með því að vísa til upplýsinga í notendahandbókinni. Ef ekki, hringdu þá í viðurkenndan rafvirkja og pípara og gerðu nauðsynlegar ráðstafanir.

VIÐVÖRUN: Framleiðandinn er ekki ábyrgur fyrir tjóni af völdum aðgerða óviðkomandi aðila. Til að koma í veg fyrir hristing skaltu setja vöruna á sléttan flöt.

VIÐVÖRUN: Meðan á uppsetningu stendur ætti rafmagnstengi vörunnar ekki að vera tengt. Annars er hætta á dauðsföllum eða alvarlegum meiðslum!

⚠VIÐVÖRUN: Ef dyragátt herbergisins þar sem varan verður staðsett er svo þröng að varan kemst ekki í gegn,

skaltu fara framhjá vörunni með því að snúa henni til hliðar; annars skaltu hringja í viðurkennda þjónustu.

  • Varast skal beint sólarljós á vörunni og geyma hana ekki á rökum stað.
  • Ekki setja upp vöruna þar sem hitastigið fer niður fyrir 10 °C.

Áður en þú kveikir á ísskápnum,

Athugaðu eftirfarandi áður en þú byrjar að nota ísskápinn:

  1. Þrífðu ísskápinn að innan eins og mælt er með í hlutanum „Viðhald og þrif“.
  2. Tengdu innstungu kæliskápsins við vegginnstunguna. Þegar ísskápshurðin er opnuð kviknar á innri lampi ísskápsins.
  3. Þegar þjappan byrjar að starfa heyrist hljóð. Vökvinn og lofttegundirnar sem eru innsigluð í kælikerfinu geta einnig valdið hávaða, jafnvel þótt þjappan sé ekki í gangi og það er alveg eðlilegt.
  4. Frambrúnir kæliskápsins geta verið hlýjar. Þetta er eðlilegt. Þessi svæði eru hönnuð til að vera hlý til að koma í veg fyrir þéttingu.

RAFMAGNSTENGING

⚠VIÐVÖRUN: Ekki mynda tengingar við framlengingarsnúrurnar eða marga tengla.

⚠VIÐVÖRUN: Viðurkennd þjónusta verður að skipta út rafmagnssnúru sem hefur orðið fyrir skemmdum.

⚠VIÐVÖRUN: Þegar tækið er staðsett skal ganga úr skugga um að rafmagnssnúran sé ekki föst eða skemmd

- IKEA í Svíþjóð ber ekki ábyrgð á tjóni sem verður þegar varan er notuð án jarðtengingar og rafmagnstenginga sem eru í samræmi við innlendar reglur.

- Auðvelt verður að vera að komast að rafmagnssnúrutenginu eftir uppsetningu.

- Tengdu ísskápinn við innstungu með jarðlínu með 220-240V/50 Hz spennu. Innstungur ættu að vera með 10-16 A öryggi.

LOFTSLAGSFLOKKUR OG SKILGREININGAR

Vinsamlegast skoðaðu loftslagsflokkinn á merkispjaldi tækisins þíns. Ein af eftirfarandi upplýsingum á við um tækið þitt samkvæmt loftslagsflokknum.

SN: Frekara temprað loftslag: Þessi kælibúnaður er hannaður til notkunar við umhverfishita á bilinu 10°C til 32°C.

N: Temprað loftslag: Þessi kælibúnaður er hannaður til notkunar við umhverfishita á bilinu 16°C til 32°C.

ST: Heittemprað loftslag: Þessi kælibúnaður er hannaður til notkunar við umhverfishita á bilinu 16°C til 38°C.

T: Hitabeltisloftslag: Þessi kælibúnaður er hannaður til notkunar við umhverfishita á bilinu 16°C til 43°C.

Vörulýsing

1 2 3 4 5 6 7 8

1 Hurðarhilla 2 Flöskuhilla 3 Stillanlegir fætur 4 Merkispjald 5 Aðalhillur 6 Hitastillis- og ljósaperueining 7 Loftræstikerfi 8 Grænmetishólf 9* Hreinsiáhald fyrir frárennslisop * (inni í pokanum)

2010-11-XX YYYY-MM-DD

Fyrsta notkun

Áður en þú notar ísskápinn skaltu ganga úr skugga um að nauðsynlegur undirbúningur sé í samræmi við leiðbeiningarnar í hlutunum „öryggisupplýsingar“ og „uppsetning“.

Ef varan er flutt lárétt skal ekki tengja vöruna við aflgjafa fyrstu 4 klukkustundirnar.

Haltu vörunni gangandi án þess að setja mat inn í 12 klukkustundir og ekki opna hurðina nema brýna nauðsyn beri til.

IKEA FASTNÄS 105.680.06 - Fyrsta notkun - 1

Mikilvægt! Þetta tæki er selt í Frakklandi. Í samræmi við reglugerðir sem gilda hér á landi verður það að vera með sérstökum búnaði (sjá mynd) sem komið er fyrir í neðra hólfi ísskápsins til að gefa til kynna kaldasta svæði þess.

IKEA FASTNÄS 105.680.06 - Fyrsta notkun - 2

Dagleg notkun

IKEA FASTNÄS 105.680.06 - Dagleg notkun - 1

Vinnsluhitastiginu er stjórnað af hitastýringunni.

IKEA FASTNÄS 105.680.06 - Dagleg notkun - 2

Meðalhiti inni í ísskápnum ætti að vera í kringum +5 °C. Vinsamlegast veldu stillinguna í samræmi við viðeigandi hitastig.

Athugaðu að mismunandi hitastig verða í kælisvæðinu.

Kaldasta svæðið er beint fyrir ofan grænmetishólfið. Hitastig innanhúss fer einnig eftir umhverfishita, hversu oft hurðin er opnuð og hversu mikið af matvælum er geymt inni.

Ef stöðugt er verið að opna hurðina hækkar hitastigið inni.

Af þessum sökum er mælt með því að loka hurðinni aftur eins fljótt og auðið er eftir notkun.

Til að slökkva á tækinu skaltu snúa hnappnum.

Þegar kveikt er á tækinu í fyrsta skipti ætti hitastillirinn að vera stilltur þannig að eftir 24 klukkustundir sé meðalhiti ísskápsins ekki hærri en +5 °C (+41 °F).

Við mælum með að þú stillir hitastillinn hálfa leið á milli 1 og 5 stillinganna og fylgist með til að ná tilætluðu hitastigi, þ.e. nær 5 færðu kaldari ísskápshita og öfugt. Sumir hlutar ísskápsins geta verið kaldari eða hlýrri (svo sem salathólfið og efsti hluti skápsins) sem er eðlilegt.

Þegar umhverfishiti fer yfir 25 °C (77 °F), sérstaklega á sumrin, skaltu snúa hitastillishnappnum í átt að 5. Þegar umhverfishiti er undir 25 °C (77 °F) skaltu snúa hitastillishnappnum í hálfa stöðu.

Affrysting

Ísskápurinn affrystist sjálfkrafa. Affrystingarvatnið rennur í frárennslisrörið um safnrás og er látið gufa upp í sérstöku íláti (1) aftan á tækinu (sjá mynd).

Við affrystingu geta vatnsdropar myndast á bakhlið ísskápsins þar sem hulda uppgufunartækið er staðsett. Einhverjir dropar geta orðið eftir á klæðningunni og frosnað aftur þegar affrystingu er lokið. Ekki nota oddhvassa eða beitta hluti eins og hnífa, gaffla til að fjarlægja dropana sem hafa frosnað aftur.

Ef affrystingarvatnið rennur ekki úr safnrásinni skal ganga úr skugga um að engar mataragnir hafi stíflað frárennslisrörið. Hægt er að hreinsa frárennslisrörið með því að ýta sérstökum plasthólki sem fylgir með niður í frárennslisrörið (2).

IKEA FASTNÄS 105.680.06 - Affrysting - 1

Hringdu í viðurkennda þjónustu þegar skipta þarf um peruna/ljósdíóðuna sem notuð er til lýsingar í ísskápnum.

Ekki er hægt að nota lampann eða lampana sem eru notaðir í þessu tæki til að lýsa upp hús. Fyrirhuguð notkun þessa lampa er til að hjálpa notandanum að setja mat inn í kæli / frysti á öruggan og þægilegan hátt.

Þessi vara inniheldur ljósgjafa í „G“ orkuflokki. Ljósgjafanum í þessari vöru verður að vera skipt út af hæfum fagaðila.

Kæliskápurinn er settur undir afgreiðsluborð og fæturnir stilltir

Ekki má loka fyrir loftræstirásir svo afköst kæliskápsins minnki ekki. (140 cm2)

Ef ísskápurinn pinn er óstöðugur;

Þú getur snúið framfótum kæliskápsins til að koma jafnvægi á hann. Horn fótarins lækkar þegar fætinum er snúið í átt að svörtu örinni; hann rís upp þegar fætinum er snúið í gagnstæða átt. Það verður auðveldara fyrir þig ef þú færð aðstoð frá einhverjum til að lyfta einingunni aðeins í þessu ferli.

Þegar varan er lögð niður til að stilla fæturna skaltu nota leguhliðina sem sýnd er á merkimiðanum á öskjunni.

Fyrir fyrstu notkun

  • Umhverfishiti herbergisins þar sem þú setur ísskápinn upp ætti að vera að minnsta kosti 10 °C. Ekki er mælt með notkun kæliskápsins við svalari skilyrði með tilliti til skilvirkni hans. • Passaðu að ísskápurinn sé þrifinn vel.
  • Ef setja á tvo kæliskápa hlið við hlið ætti að vera að minnsta kosti 2 cm á milli þeirra.
  • Þegar þú stjórnar kæliskápnum í fyrsta skipti skaltu fylgja eftirfarandi leiðbeiningum (1, 2, 3) fyrstu sex klukkustundirnar:
  • Dyrnar ætti ekki að opna oft.
  • Kæliskápurinn verður að vera tómur og án matvæla.
  • Ekki taka ísskápinn úr sambandi. Ef rafmagnsbilun kemur upp sem þú hefur enga stjórn á skaltu skoða viðvaranir í hlutanum „Ráðlagðar lausnir á vandamálum“.
  • Upprunalegar umbúðir og froðuefni ætti að geyma til flutninga eða flutninga í framtíðinni.
  • Körfurnar/skúffurnar sem fylgja kælihólfinu verða alltaf að vera í notkun fyrir litla orkunotkun og fyrir betri geymsluaðstæður.
  • Snerting matvæla við hitaskynjarann í frystihólfinu getur aukið orkunotkun tækisins. Þannig verður að forðast snertingu við skynjarann/skynjarana.
  • Í sumum gerðum verður slökkt sjálfkrafa á mælaborðinu 5 mínútum eftir að hurðinni hefur verið lokað. Það verður virkjað aftur þegar hurðin hefur opnast eða ýtt á einhvern takka.
  • Vegna hitabreytinga vegna opnunar/lokunar vörudyranna meðan á notkun stendur er þétting á hillum hurðarinnar/bolsins og glerílátunum eðlileg.

Villuleit

Vinsamlegast yfirfarðu þennan lista áður en þú hringir í þjónustuna. Það sparar þér tíma og peninga. Þessi listi inniheldur tíðar kvartanir sem stafa ekki af gölluðum vinnubrögðum eða efnisnotkun. Sumir eiginleikanna sem hér er lýst eru hugsanlega ekki til í vörunni þinni.

VandamálLausnir
Kæliskápurinn virkar ekki.Klóin er ekki rétt sett í innstunguna.Settu klóna í innstunguna á öruggan hátt.
Öryggið á innstungunni sem ísskápurinn er tengdur við eða aðalöryggið hefur sprungið.Athugaðu öryggið.
Pétting á hliðarvegg ísskápshólfsins (FJÖLSVÆDI, KÖLD STÝRING og FLEX SVÆDI).Dyr hafa oft verið opnaðar. Ekki opna og loka hurðinni á ísskápnum oft.
Umhverfið er mjög rakt. Ekki setja ísskápinn á mjög rakadræga staði.
Matur sem inniheldur vökva er geymdur í opnum ílátum.Ekki geyma mat með vökvainnihaldi í opnum ílátum.
Hurð kæliskápsins er skilin eftir opin.Lokaðu hurðinni á ísskápnum.
Hitastigið er stillt á mjög kalt stig.Stilltu hitastigið á viðeigandi stig.
Pjappa er ekki í gangiHlífðarhiti þjöppunnar blæs út við skyndilegar rafmagnsbilanir.Kæliskápurinn byrjar að ganga eftir u.þ.b. 6 mínútur.
Tengingarrof þar sem þrýstingur kælimiðils í kælikerfi kæliskápsins hefur ekki verið í jafnvægi enn sem komið er.Vinsamlegast hringdu í þjónustuna ef ísskápurinn fer ekki í gang í lok þessa tímabils.
Ísskápurinn er í þíðingarlotu.Petta er eðlilegt fyrir kæliskáp með sjálfvirkri afísingu. Afísingarhringrás á sér stað reglulega.
Hitastillingar eru ekki gerðar á réttan hátt.Veldu viðeigandi hitastigsgildi.
Rafmagnsleysi er til staðar.Kæliskápurinn fer aftur í eðlilega notkun þegar rafmagnið kemst aftur á.
Hávaði í rekstri eykst pegar kæliskápurinn er í gangi.Rekstrarafköst kæliskápsins geta breyst vegna breytinga á umhverfishita. Pað er eðlilegt og ekki galli.Kaflinn „Vinsamlegast athugaðu hugsanlega ástæðu hávaða“.
Kæliskápurinn er í gangi oft eða lengi.Herbergishiti getur verið hár.Eðlilegt er að varan starfi í lengri tíma í heitu umhverfi.
Kæliskápurinn gæti verið tengdur nýlega eða verið hlaðinn mat.Pegar kæliskápurinn er tengdur eða hlaðinn mat nýlega mun pað taka lengri tíma fyrir hann að ná stilltu hitastigi. Petta er eðlilegt.
Mikið magn af heitum mat gæti hafa verið sett í kælinn nýlega.Ekki setja heitan mat í kæli.
Hurðir gætu hafa verið opnaðar oft eða staðið opnar í langan tíma.>Hlýja loftið sem hefur komist inn í kæliskápinn veldur pví að kæliskápurinn gengur í lengri tíma. Ekki opna hurðirnar oft.
Hurð í frysti- eða ísskápshólfí gæti verið skilin eftír opin.Athugaðu hvort dyrnar séu alveg lokaðar.
Kæliskápurinn er stilltur á mjög lágt hitastig.Stilltu hitastig kæliskápsins á hærra hitastig og bíddu þar til hitastiginu er náð.
Hurðarinnsigli ísskápsins eða frystisins getur verið óhreint, slitið, brotið eða ekki setið rétt.Hreinsaðu eða skiptu um innsiglið. Skemmt/rofið innsigli veldur pví að ísskápurinn gengur í lengri tíma til að viðhalda núverandi hitastigi.
Hitastig ísskápsins er mjög lágt á meðan hitastig frystisins er nægjanlegt.Hitastig ísskápsins er stillt á mjög lágt gildi.Stilltu hitastig ísskápsins að hlýrra stigi og athugaðu.
Matur sem geymdur er í skúffum ísskápsins er frosinn.Hitastig ísskápsins er stillt á mjög hátt gildi.Stilltu hitastig ísskápsins á lægra gildi og athugaðu.
Hitastigið í ísskápnum eða frystinum er of heitt.Hitastig ísskápsins er stillt á mjög hátt gildi.Hitastilling frystihólfs hefur áhrif á hitastig frystisins. Breyttu hitastigi ísskápsins eða frystisins og bíddu þar til viðeigandi hólf ná nægilegu hitastigi.
Hurðir eru opnaðar oft eða látnar standa opnar í langan tíma.Ekki opna hurðirnar oft.
Hurðin er opin. • Lokaðu hurðinni alveg.
Kæliskápurinn er tengdur eða hlaðinn mat nýlega.Petta er eðlilegt. Þegar kæliskápurinn er tengdur eða hlaðinn mat nýlega mun það taka lengri tíma fyrir hann að ná stilltu hitastigi.
Mikið magn af heitum mat gæti hafa verið sett í kælinn nýlega.Ekki setja heitan mat í kæli.
Titringur eða hávaði.Gólfíð er hvorki slétt né stöðugt.Ef kæliskápurinn rokkar Þegar hann er hreyfður hægt skaltu koma honum í jafnvægi með því að stilla fæturna. Gakktu einnig úr skugga um að gólfíð sé nógu sterkt til að bera ísskápinn og jafna.Kaflinn „Vinsamlegast athugaðu hugsanlega ástæðu hávaða“.
Hlutirnir sem settir eru á ísskápinn geta valdið hávaða.Kaflinn „Vinsamlegast athugaðu hugsanlega ástæðu hávaða“.Fjarlægðu hlutina ofan á ísskápnum.
Pað kemur hávaði frá kæliskápnum eins og vökvaflæði, úðun o.s.frv.Vökva- og gasflæði á sér stað í samræmi við notkunarreglur kæliskápsins. Pað er eðlilegt og ekki galli.
Flaut heyrist frá kæliskápnum.Viftur eru notaðar til að kæla ísskápinn. Pað er eðlilegt og ekki galli.
Pétting á innri veggjum kæliskápsins.Heitt og rakt veður eykur ísingu og péttingu. Pað er eðlilegt og ekki galli.
Hurðir eru opnaðar oft eða látnar standa opnar í langan tíma.Ekki opna hurðirnar oft. Lokaðu þeim ef þær eru opnar.
Hurðin er opin. • Lokaðu hurðinni alveg.
Raki kemur fram utan á ísskápnum eða á milli hurða.Raki gæti verið í loftinu; þetta er alveg eðlilegt í röku veðri. Þegar rakastigið er minna hverfur þéttingin.
Slæm lykt inni í ísskápnum.Engin regluleg Þrif fara fram.Hreinsaðu ísskápinn reglulega með svampi, volgu vatni eða karbónati sem leyst er upp í vatni.
Sum ílát eða pakkningarefni geta valdið lyktinni.Notaðu annað ílát eða annað vörumerkjaumbúðaefni.
Matur er settur í kæli í óvörðum ílátum.Geymið matinn í lokuðum ílátum. Örverur sem dreifa sér úr óhjúpuðum ílátum geta valdið ópægilegri lykt.
Fjarlægðu matvæli sem hafa runnið best út fyrir dagsetningar og skemmst úr kæli.
Hurðin er ekki að lokast.Matarpakkar koma í veg fyrir að hurðin lokist.Skiptu um pakkana sem hindra dyrnar.
Ísskápurinn er ekki jafn á gólfínu.Stilltu fæturna til að koma jafnvægi á ísskápinn.
Gólfíð er hvorki slétt né sterkt.Gakktu úr skugga um að varan sé jöfnuð og geti borið ísskápinn.
Grænmetisskúffur eru fastar.Maturinn snertir loft skúffunnar.Raðaðu matnum aftur í skúffuna.
Ef yfirborð vörunnar er heitt.Hægt er að fylgjast með háu hitastigi á milli hurðanna tveggja, á hliðarspjöldum og við grillið að aftan á meðan varan er í notkun. Petta er eðlilegt og krefst ekki þjónustuviðhalds!

Tæknilegar upplýsingar

Mál (mm) FASTNÅS
Hæð(lágmark-hámark)820
Breidd595
Dýpt545
Nettórúmmál (l)
Ísskápur130
Frystir-
Affrystingarkerfi
ÍsskápurSjálfvirkt
Frystir-
Stjörnugjöf-
Hækkunartími ( klst)-
Frystigeta (kp/24klst)-
Orkunotkun( kwst/ár)92
Hljóðstyrkur (dba)35dBA
OrkuflokkurE

Áhyggjur af umhverfinu

Samræmi við WEEE tilskipunina og förgun ónýtu vörunnar

Þessi vara er í samræmi við tilskipun ESB um raf- og rafeindabúnaðarúrgang (2012/19/ESB). Þessi vara ber flokkunartákn fyrir raf- og rafeindabúnaðarúrgang (WEEE).

IKEA FASTNÄS 105.680.06 - Samræmi við WEEE tilskipunina og förgun ónýtu vörunnar - 1

Þetta tákn gefur til kynna að þessari vöru skuli ekki fargað með öðrum heimilisúrgangi í lok endingartíma hennar. Notuðu tæki verður að skila á söfnunarstað til endurvinnslu raf- og rafeindatækja. Til að finna þessi söfnunarkerfi skaltu hafa samband við staðaryfirvöld eða smásala þar sem varan var keypt. Hvert heimili gegnir mikilvægu hlutverki í endurheimt og endurvinnslu gamalla tækja. Viðeigandi förgun notaðra tækja hjálpar til við að koma í veg fyrir hugsanlegar neikvæðar afleiðingar fyrir umhverfið og heilsu manna.

Fylgni við RoHS-tilskipun

Varan sem þú keyptir er í samræmi við RoHS tilskipun ESB (2011/65/ESB). Hún inniheldur ekki skaðleg og bönnuð efni sem tilgreind eru í tilskipuninni.

Umbúðaupplýsingar

IKEA FASTNÄS 105.680.06 - Umbúðaupplýsingar - 1

Umbúðaefni vörunnar eru framleidd úr endurvinnanlegum efnum í samræmi við innlenda umhverfisreglugerð okkar. Ekki farga umbúðunum með heimilisúrgangi eða öðrum

úrgangi. Farðu með þær á söfnunarstaði fyrir umbúðaefni sem staðaryfirvöld tilgreina.

Viðhald og þrif

⚠️Aldrei nota bensín, bensen eða svipuð efni til hreinsunar.

⚠️Við mælum með því að þú takir tækið úr sambandi áður en þú þrífur það.

⚠️Notaðu aldrei beitt slípiefni, sápu, hreinsiefni, þvottaefni og vaxlakk til hreinsunar.

△ Fyrir vörur sem ekki eru búnar No-Frost eiga vatnsdropar og ísing upp að fingurbreidd sér stað á afturvegg ísskápshólfsins. Ekki þrífa; aldrei bera olíu eða svipuð efni á.

⚠️ Notaðu aðeins örlítið raka örtrefjaklúta til að hreinsa ytra yfirborð vörunnar. Svampar og aðrar tegundir af hreinsiklútum gætu rispað yfirborðið.

⚠️ Notaðu volgt vatn til að þrífa ísskápinn og þurrkaðu síðan.

⚠️ Notaðu rakan klút sem er undinn upp úr lausn með einni teskeið af natriumbíkarbónati í einn lítra af vatni til að hreinsa innra rýmið og þurrkaðu síðan.

△ Gakktu úr skugga um að ekkert vatn komist inn í lampahúsið og aðra rafmagnshluti.

Ef ekki á að nota ísskápinn í langan tíma skaltu taka rafmagnssnúruna úr sambandi, fjarlægja allan mat, þrífa hann og hafa hurðina opna.

△ Athugaðu hurðarþéttingar reglulega til að tryggja að

þær séu hreinar og lausar við mataragnir.

△ Til að fjarlægja hurðarekka, fjarlægðu allt innihald og ýttu síðan einfaldlega hurðarekkanum upp frá grunninum.

△ Aldrei skal nota hreinsiefni eða vatn sem inniheldur klór til að hreinsa ytri yfirborð og krómhúðaða hluta vörunnar. Klór veldur tæringu á slíkum málmflötum.

△ Ekki nota beitt, oddhvöss tól, sápu, hreinsiefni til heimilisnota, hreinsiefni, steinolíu, brennsluolíu, lakk o.s.frv. til að koma í veg fyrir að prentanir á plasthlutanum séu fjarlægðar og aflagaðar. Notaðu volgt vatn og mjúkan klút til að þrífa og þurrkaðu það síðan af.

Verndun plastflata

△ Ekki setja fljótandi olíur eða máltíðir eldaðar með olíu í kæliskápinn í óinnsigluð ílát þar sem þær skemma plastflöt kæliskápsins. Ef olíu er hellt niður eða smurt á plastflötinn skal hreinsa og skola viðkomandi hluta yfirborðsins í einu með volgu vatni.

IKEA ÁBYRGD

Þessi ábyrgð gildir í fimm ár frá upphaflegum kaupdegi tækisins í IKEA. Krafist er upphaflegu sölunótunnar sem sönnun fyrir kaupunum. Sé viðhald framkvæmt samkvæmt ábyrgðinni framlengir það ekki ábyrgðartímabil tækisins.

Hver framkvæmir viðhaldið?

Þjónustuaðili IKEA sér um viðhaldið í gegnum eigið þjónustufyrirtæki eða viðurkennt þjónustunet samstarfsaðila.

Hvað nær þessi ábyrgð yfir?

Þessi ábyrgð nær yfir bilanir á tækinu sem verða vegna framleiðslu- eða efnisgalla frá kaupdegi í IKEA. Þessi ábyrgð gildir aðeins um heimilisnotkun. Undantekningarnar eru tilgreindar undir fyrirsögninni „Hvað fellur ekki undir þessa ábyrgð?” Innan ábyrgðartímabilsins verður kostnaður vegna lagfæringar á biluninni bættur t.d. vegna viðgerða, varahluta, vinnu og ferða, svo framarlega sem tækið er aðgengilegt til viðgerða án sérstakra útgjalda. Um þessi skilyrði gilda viðmiðunarreglur ESB (Nr. 99/44/EG) og viðkomandi staðbundnar reglur. Hlutir sem skipt er út verða eign IKEA.

Hvað mun IKEA gera til að laga vandamálið?

Þjónustuaðili sem tilgreindur er af IKEA mun skoða vöruna og ákveða, að eigin undirlagi, hvort hún falli undir þessa ábyrgð. Ef hún fellur undir ábyrgð þá mun þjónustuaðili IKEA eða viðurkenndur samstarfsaðili, í gegnum eigin þjónustustarfsemi, að eigin undirlagi, annað hvort gera við gallaða vöru eða skipta henni út með eins eða sambærilegri vöru.

Hvað fellur ekki undir þessa ábyrgð?

• Eðlilegt slit. - Skemmdir sem verða vegna ásetnings eða vanrækslu, skemmdir vegna þess að ekki var farið eftir notkunarleiðbeiningum, rangrar uppsetningar eða vegna þess að tengt var við ranga rafspennu, skemmdir vegna efna- eða rafefnahvarfa, ryðs, tæringar eða vatns, þ.m.t. en ekki takmarkað við skemmdir vegna óhóflegs kalkmagns í vatnsinntaki, skemmdir vegna óeðlilegra umhverfisaðstæðna. - Rekstrarvörur, þ.m.t. rafhlöður og perur. - Óvirkum og útlitslegum hlutum sem hafa ekki áhrif á venjulega notkun tækisins, þ.m.t. allar rispur og hugsanlegur litamunur. - Slysaskemmdir af völdum utanaðkomandi hluta eða efna og hreinsunar eða losunar stíflu í síum, afrennslisbúnaði eða sápuskúffum. - Skemmdir á eftirfarandi hlutum: Keramikgler, aukabúnaður, körfur fyrir leirtau og hnifapör, inntaks- og frárennslispípur, þéttingar, perur og peruhlífar, síur, hnappar, hylki og hlutar af hylkjum. Nema sannað hafi verið að slíkar skemmdir séu af völdum framleiðslugalla. - Tilfelli þar sem enginn galli fannst við heimsókn tæknimanns. - Viðgerðir sem ekki eru framkvæmdar af þeim þjónustuaðilum sem við tilgreinum og/eða viðurkenndum samstarfsaðilum með þjónustusamning eða þegar notaðir eru varahlutir sem eru ekki af upprunalegri gerð. - Viðgerðir vegna uppsetningar sem er gölluð eða ekki samkvæmt lýsingu. - Notkun tækisins í óheimilislegu umhverfi, þ.e. notkun í atvinnuskyni. - Skemmdir í flutningi. Ef viðskiptavinur flytur vöruna heim til sín eða annars heimilisfangs þá er IKEA ekki ábyrgt fyrir neinum skemmdum sem gætu orðið við flutning. Hins vegar ef IKEA afhendir vöruna til heimilisfangs viðskiptavinar fyrir afhendingu, þá eru skemmdir sem verða á vörunni við þessa afhendingu bættar af IKEA. - Kostnaður við að framkvæma upphaflega uppsetningu IKEA tækisins. - Hins vegar ef þjónustuaðili tilgreindur af IKEA eða viðurkenndur samstarfsaðili gerir við eða skiptir út tæki samkvæmt þessari ábyrgð þá skal tilgreindur þjónustuaðili eða viðurkenndur samstarfsaðili enduruppsetja viðgert tæki eða setja upp annað í staðinn ef þarf. - Þetta á ekki við um Írland, viðskiptavinur ætti að hafa samband við þar til gerða þjónustudeild IKEA á staðnum eða tilgreindan söluaðila fyrir frekari upplýsingar. (aðeins fyrir Bretland)

Þessar takmarkanir eiga ekki við gallalausa vinnu sem framkvæmd er af hæfum sérfræðingi með upprunalegum varahlutum til að aðlaga tækið að tæknilegri öryggislýsingu annars ESB lands.

Hvernig landslög gilda

Ábyrgð IKEA veitir þér ákveðin lagaleg réttindi umfram eða lengra en allar staðbundnar lagalegar kröfur. Þessi skilyrði takmarka hins vegar ekki á neinn hátt réttindi neytandans samkvæmt staðbundinni löggjöf.

Gildissvæði

Fyrir tæki sem eru keypt í ESB landi og flutt til annars ESB lands verður þjónustan veitt innan ramma ábyrgðarskilyrða sem teljast venjuleg í hinu nýja landi.

Skylda til að framkvæma þjónustu innan ramma ábyrgðarinnar er aðeins til staðar ef tækið er í samræmi við og uppsett samkvæmt:

  • tækniforskrift sem gildir í landinu þar sem ábyrgðarkrafan er gerð;
  • samsetningarleiðbeiningum og öryggisupplýsingum notendahandbókar.

Sérstök VIÐHALDÞJÓNUSTA fyrir IKEA tæki

Hikaðu ekki við að hafa samband við viðurkennda þjónustumiðstöð tilgreinda af IKEA til að:

• gera þjónustubeiðni samkvæmt þessari ábyrgð;

  • biðja um útskýringar á uppsetningu IKEA tækis í sérstakri IKEA eldhúsinnréttingu;
  • biðja um skýringar á virkni IKEA tækja. Lesið vandlega leiðbeiningarnar um samsetningu og/eða notendahandbókina áður en haft er samband við okkur svo tryggt sé að við veitum sem besta þjónustu.

Hvernig ná skal í okkur þegar vantar þjónustu

IKEA FASTNÄS 105.680.06 - Hvernig ná skal í okkur þegar vantar þjónustu - 1

Fulltækan lista yfir vottaðar þjónustumiðstöðvar IKEA má finna á síðustu síðu handbókarinnar ásamt viðeigandi símanúmerum.

Til að geta veitt þér hraðari þjónustu mælum við með að notað sé sérstakt símanúmer sem skráð er á þessa handbók. Notið alltaf númerin sem skráð eru í bækling viðkomandi tækis sem aðstoðar er þörf vegna. Vinsamlegast vísið alltaf til IKEA vörunúmersins (8 tölustafa kóði).

i GEYMDU ÞESSA SÖLUNÓTU!

Hún er sönnun þín fyrir kaupunum og er nauðsynleg til að hægt sé að nota ábyrgðina. Sölunótan tilgreinir einnig IKEA nafn og vörunúmer (8 tölustafa kóði) fyrir hvert tæki sem þú hefur keypt.

Þarftu aukalega hjálp?

Fyrir viðbótarspurningar sem tengjast ekki viðhaldsþjónustu fyrir tæki þitt skaltu hafa samband við þjónustuver næstu IKEA verslunar. Við ráðleggjum að þú lesir gögnin með tækinu vandlega áður en þú hefur samband við okkur.

  • Eftirfarandi varahlutir: hitastillar, hitaskynjarar, prentrásaspjöld og ljósgjafar, verða fáanlegir fyrir fagaðila í viðgerðum yfir tímabil sem er að lágmarki sjö ár, frá því að síðasta eining gerðarinnar er sett á markað.
  • Eftirfarandi varahlutir: hurðahandföng, hurðalamir, bakkar og körfur, verða fáanlegir fyrir fagaðila í viðgerðum og endanlega notendur yfir tímabil sem er að lágmarki tíu ár, frá því að síðasta eining gerðarinnar er sett á markað.

Finna má varahlutina: https://parts-selfservice.whirlpool.com/en/landing

Þessi kæliskápur inniheldur sæfivörur í eftirfarandi hlutum til að koma í veg fyrir sveppavöxt í þurrfilmu og óæskilega lykt.

Virkt efni: silfur (CAS: 7440-22-4) inniheldur (nanó) silfur fyrir hurðarhandfang og kolefnissíu Virkt efni: Títantvíoxíð (CAS: 13463-67-7) inniheldur (nanó) títandíoxíð fyrir kolefnissíu Virkt efni: IPBC (Cas: 55406-53-6) fyrir innsigli

Styrkur sæfivara er mjög lágur og því ættu þær ekki að valda óásættanlegri heilsufarsáhættu.

IKEA FASTNÄS 105.680.06 - Þarftu aukalega hjálp? - 1

Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : IKEA

Líkan : FASTNÄS 105.680.06

Flokkur : Kælir