VAPPEBY 905.174.14 - Haut-parleur IKEA - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis VAPPEBY 905.174.14 IKEA á PDF sniði.
Spurningar notenda um VAPPEBY 905.174.14 IKEA
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Haut-parleur á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína VAPPEBY 905.174.14 - IKEA og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. VAPPEBY 905.174.14 vörumerkisins IKEA.
NOTENDAHANDBÓK VAPPEBY 905.174.14 IKEA
- Hleðslubryggja.
- Spila/Hlé/Hljóðstyrkur
- Hnappur til að kveikja á hátalara og sleppa lagi.
- Ljósrofi.
- LED stöðuljós.
Staða LED ljóss
Blikkandi hvítt: Bluetooth er að para saman.
Stöðugt hvítt: Parað við tæki.
Blikkandi rautt: Lítið eftir af rafhlöðu.
Stöðugt rautt: Í hleðslu (þegar slökkt er á hátalara).
Hafist handa
Tengdu hleðslubryggjuna (1) við vegginnstungu og settu hátalarann í hleðslubryggjuna til að hlaða vöruna fyrir fyrstu notkun og hvenær sem LED ljósið blikkar rautt til að gefa til kynna litla rafhlöðu. Við hleðslu helst LED ljósið stöðugt rautt ef slökkt er á hátalaranum og það slöknar þegar rafhlaðan er fullhlaðin.
Aðgerðir lampa

Til að kveikja/slökkva. Ýttu á rofann (4) á lampanum einu sinni til að kveikja á diskóljósum. Ljósið mun blikka í ólíkum litum þegar tónlist er spiluð úr hátalaranum. Ýttu aftur á rofann til að stilla ljósið á næturljós og ýttu á rofann í þriðja skipti til að slökkva á ljósinu.
Aðgerðir hátalara

Til að kveikja/slökkva.
Ýttu á og haltu inni aflrofanum (3) til að kveikja og slökkva á hátalarannum.
Slepptu. Ef ýtt er stutt á aflrofann er skipt yfir í næsta lag.

Spila/Hlé. Ýttu á hnappinn (2) til að spila tónlist eða gera hlé á henni.
Hljóðstyrkur. Snúðu hnappinum (2) réttsælis til að hækka hljóðstyrkinn og rangsælis til að lækka.
Sjálfvirk slökknun. Ef hátalarinn er ekki paraður við neitt tæki slekkur hann sjálfkrafa á sér eftir 5 mínútur. Ef hátalarinn er paraður en engin tónlist er í spilun slekkur hann sjálfkrafa á sér eftir 20 mínútur.
Pörun við Bluetooth
Til að para hátalarann þinn við upprunatæki verður hátalarinn að vera í Bluetooth-pörunarham. Til að para skaltu opna Bluetooth-stillingu á upprunatækinu þínu og tengja við "VAPPEBY Peanut".
Hátalarinn mun fara í Bluetooth-pörunarstillingu sjálfkrafa í fyrsta skipti sem kveikt er á honum og þegar ekki er hægt að finna tæki sem var áður parað við hann.
Til að fjarlægja fyrri Bluetooth pörun skaltu endurstilla hátalarann með því að ýta á og halda hljóðstyrkstakkanum í meira en 5 sekúndur. Verksmiðjustilling er staðfest þegar rautt LED ljós blikkar og hljóðmerki heyrist.
Einnig geturðu farið í Bluetooth valmyndina á upprunatækinu og afparað.
Gott að vita
- Hátalarinn er varinn gegn ryki og vatni samkvæmt IP54.
- Tæki og rafhlaðan geta hitnað við hleðslu. Þetta er fullkomlega eðlilegt og tækin munu kólna smám saman aftur eftir að þau eru fullhlaðin.
- Hleðslutími getur verið breytilegur eftir rafhlöðugetu tækisins, hleðslu þess, aldri rafhlöðunnar og umhverfishita. Geymsluhitastig 20° C til 25° C (-4° F til 77° F). Taktu tækið úr sambandi áður en það er þrifið og þegar það er ekki í notkun.
- Ekki ætti að láta rafhlöðuna vera tóma í lengri tíma.
- Ekki ætti að hlaða rafhlöðuna á meðan hún er í snertingu við eldfim efni, svo sem vefnaðarvöru.
VIÐVÖRUN:
- Of hár hljóðstyrkur getur skaðað heyrn.
- Notaðu eingöngu meðfylgjandi 24V straumbreytinn til að hlaða.
- Ekki hlaða vöruna þegar hún er blaut. Vöruna má eingöngu hlaða innandyra.
- Ekki nota bilaðan aflgjafa til að hlaða vöruna.
- Aldrei setja vöruna upp í lokuðu rými.
- Hafðu alltaf a.m.k. 5 mm pláss í kringum vöruna svo lofti um hana.
- Hafa ætti eftirlit með börnum til að tryggja að þau noti ekki tækið rangt.
- Ekki breyta, taka sundur, opna, missa, kremja, gata eða rífa rafhlöðuna.
- Ekki láta rafhlöðuna komast í snertingu við regn eða vatn.
- Hætta á eldsvoða og bruna. Ekki hita yfir 60° C (140° F) og ekki brenna rafhlöðuna.
- Haltu rafhlöðunni fjarri opnum loga eða sólarljósi til að koma í veg fyrir hitamyndun.
- Haltu rafhlöðunni fjarri háspennubúnaði.
- Þessi vara er ekki leikfang, gættu þess að allir sem nota þessa vöru lesi og fylgi þessum viðvörunum og leiðbeiningum.
- Ekki tengja framhjá rafhlöðunni eða hlöðum hennar.
- Ef lekur úr rafhlöðunni skal ekki láta vökvann komast í snertingu við húð eða augu.
Geymið þessar leiðbeiningar til notkunar síðar.
Leiðbeiningar um umhirðu
Strjúkið af tækinu með mjúkum og rökum klút. Notið annan mjúkan og þurran klút til að þurrka.
Athugið!
Notið aldrei slípiefni eða leysiefni þar sem slíkt getur skemmt vöruna.
Viðhald vörunnar
Reynið aldrei sjálf að gera við tækið þar sem það getur útsett ykkur fyrir hættulega rafspennu og aðra hættu.
Eingöngu hæfur fagmaður má taka vöruna í sundur og fjarlægja rafhlöðuna og það má eingöngu gera þegar endingartími vörunnar er lokið.
Tæknilýsing
Gerðarheit: VAPPEBY peanut
Tegundarnúmer: E2125
Afkastageta rafhlaða: 3,6V DC, 3300 mAh, 12 Wh, Li-ion
Aætluð ending rafhlöðu við
50% hljóðstyrk: 11-13 klst.
Hitastig við notkun: 0°C til 40°C (32°F til 104°F)
Rakastig við notkun: 0 til 95% RH
Vinnslutíðni: 2400-2483,5 MHz
Framlagsafl útvarps: 3 dBm (EIRP)
Ljós: 2 lm, 2600 K
IP-flokkur: IP54
Rafmagnseining:
Tegund: ICPSW24-7-3
Inntak: 100-240 VAC, 50/60 Hz, 0.11A
Úttaksafl: 24.0V DC, 0.29 A, Ham.7.0W
Meðalskilvirkni þegar tækið er í gangi: 80.0%
Aflþörf í hvild: 0.05W
Aðeins til notkunar innanhúss
Framleiðandi: IKEA of Sweden AB
(skráningarnúmer í fyrirtækjaskrá: 556074-7551)
Heimilisfang: Box 702, SE-343 81 Älmhult, SVÍÞJÓÐ

Bluetooth
Bluetooth® orðmerki og myndmerki eru skrásett vörumerki í eigu Bluetooth SIG, Inc. og öll notkun IKEA á slíkum merkjum er samkvæmt leyfum. Önnur vörumerki og vöruheiti eru í eigu viðkomandi eigenda.

Táknið með mynd af ruslatunnu með krossi yfir þýðir að ekki má farga vörunni með venjulegu heimilissorpi. Vörunni þarf að skila í endurvinnslu eins og lög gera ráð fyrir á hverjum stað fyrir sig. Með því að henda slíkum vörum ekki með venjulegu heimilissorpi hjálpar þú til við að draga úr því magni af úrgangi sem þarf að brenna eða nota sem landfyllingu og lágmarkar möguleg neikvæð áhrif á heilsu fólks og umhverfið. Þú færð nánari upplýsingar í IKEA versluninni.

