FINMAT 805.781.15 - Casserole IKEA - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis FINMAT 805.781.15 IKEA á PDF sniði.
Spurningar notenda um FINMAT 805.781.15 IKEA
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Casserole á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína FINMAT 805.781.15 - IKEA og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. FINMAT 805.781.15 vörumerkisins IKEA.
NOTENDAHANDBÓK FINMAT 805.781.15 IKEA
Þvoðu, skolaðu og þurrkaðu eldunarílátið vel áður en þú notar það í fyrsta skipti. - Eldunarílátið þarf að þvo í höndunum. Notaðu uppþvottalög og mjúkan bursta/svamp. Ekki nota klór eða önnur sterk efni sem geta skemmt koparinn. - Þurrkaðu eldunarílátið strax eftir þvott svo að koparinn verði ekki mattur. Ekki láta eldunarílátið þorna sjálft því þá getur koparinn mislitast og vatnsblettir myndast. - Með tímanum dökknar koparinn og veðrast þar sem hann er útsettur fyrir vatni og súrefni. Þetta eru efnahvörf sem gera það að verkum að koparinn fær á sig náttúrulega spanskgrænu en þýðir ekki að koparinn sé slitinn eða að eitthvað sé að. Þú getur losnað við spanskgrænuna ef þú kýst. - Besta leiðin til að losna við spanskgrænu er að þrífa koparinn vel og pússa hann, vinsamlega fylgdu eftirfarandi skrefum:
- Til að þrífa koparinn skaltu byrja á að blanda saman salti og ediki og hræra saman þar til saltið hefur allt verið leyst upp. Vættu mjúkan skrúbb í lausninni og skrúbaðu yfirborðið þar til blettirnir hverfa. Þú getur notað svamp með skrúbbi til að ná blettunum af.
- Til að fægja yfirborðið skaltu nota sérstakt fægiefni fyrir kopar og fylgja leiðbeiningunum.
Til að koma í veg fyrir rispur þegar þú fægir koparinn skaltu nota diskþurrku eða mjúkan svamp án skrúbbs.
- Notaðu ekki stálull því hún getur skemmt yfirborð koparsins.
- Ef eldunarílátið er sett inn í ofn eða á gashellur getur það orðið mislitað. Til að fá aftur upprunalegan lit á koparinn skaltu þrífa og fægja yfirborðið samkvæmt leiðbeiningunum hér fyrir ofan.
- Botninn er aðeins íhvolfur þegar hann er kaldur en þenst út og verður flatur þegar hann hitnar. Leyfðu eldunarílátinu alltaf að kólna áður en það er þrifið. Þá fer botninn í sína upprunalegu lögun og það kemur í veg fyrir að hann verði ójafn við notkun.
- Til að koma í veg fyrir saltbletti í látinu ætti ekki að salta matinn fyrr en eftir að suðan hefur komið upp.
Gott að vita
- Eldunarílátið hentar til notkunar á öllum gerðum af helluborðum, þar með talið spanhelluborðum.
- Þú getur sparað orku með því að nota alltaf hellu sem er jafnstór eða minni en botn pottsins/pönnunnar að þvermáli. Lyftið ílátinu alltaf þegar það er fært til á keramikhelluborði til að yfirborðið rispist ekki.
- Hafðu í huga að ílátið verður heitt við notkun. Notaðu alltaf ofnhanska.
- Ef einhver vandamál koma upp varðandi vöruna, hafðu þá samband við þjónustudeild IKEA eða leitaðu upplýsinga á IKEA.is.