CKD6910X - Réfrigérateur Elvita - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis CKD6910X Elvita á PDF sniði.

Elvita CKD6910X - Kælir
📄 247 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice Elvita CKD6910X - page 216
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um CKD6910X Elvita

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Netfangið þitt er áfram einkamál: það er aðeins notað til að láta þig vita ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Réfrigérateur á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína CKD6910X - Elvita og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. CKD6910X vörumerkisins Elvita.

NOTENDAHANDBÓK CKD6910X Elvita

Öryggi við uppsetningu.... 218

Öryggi við notkun.... 219

Öryggi við viðhald 220

Förgun 221

FLÝTIBYRJUN 222

HEFJAST HANDA 224

Lærið um kæli- og frystiskápinn 224

Stjörnborð 224

Aukahlutir 224

Kæli- og frystihólf 224

Hurðarbjalla 226

Finndu gerðarkóðann 226

Fyrir fyrstu notkun.... 226

NOTKUN KÆLI- OG FRYSTISKÅPSINS 228

Stillingar og aðferðir.... 228

Hitastigi í kælihólfi breytt 228

Hitastigi í frystihólfi breytt.... 229

Hitastigi í breytanlega hólfinu breytt.... 229

Hreinsaðu kæli- og frystiskápinn 233

Undirbúningur ef ekki á nota tækið í langan tíma 234

Hitastigið að innan er of hátt 236

Hitastigið að innan er of lágt 237

Hávaði úr kæli- og frystiskápnum 237

Hliðarpilið er heitt.... 237

Ekki hægt að opna skúffu auðveldlega 237

Uppsetningarsvæði 239

Taktu kæli- og frystiskápinn úr umbúðunum.... 240

Settu upp skinnurnar.... 241

Lesið þessar leiðbeiningar vandlega áður en tækið er sett upp og notað. Geymið leiðbeiningarnar nálægt tækinu til síðari nota. Margskonar ábyrgðir munu falla úr gildi ef þessum leiðbeiningum er ekki fylgt.

Viðvaranir

Elvita CKD6910X - Viðvaranir - 1

HÆTTA!

Notaðar þegar hætta er á líkamstjóni eða dauða.

Elvita CKD6910X - Viðvaranir - 2

VIÐVÖRUN!

Notaðar þegar hætta er á líkamstjóni.

Elvita CKD6910X - Viðvaranir - 3

VARÚÐ!

Notaðar þegar hætta er á því að varan verði fyrir tjóni.

Elvita CKD6910X - Viðvaranir - 4

ATHUGADU!

Almennar upplýsingar sem þú ættir að vita um.

Elvita CKD6910X - Viðvaranir - 5

Hjálpleg ráð sem þér kunna að þykja gagnleg.

Ætluð notkun

Tækið er einungis ætlað fyrir:

- Notkun innandyra á heimili eða svipuðu umhverfi eins og:

– eldhúsum starfsfólks í verslunum, á skrifstofum og öðrum starfsumhverfum; - bóndabýli; - af viðskiptavinum á hótelum, mótelum og öðrum íbúðaumhverfum; - gistiheimilisumhverfum; - veislupjónustu og svipaða notkun sem fellur ekki undir smásölu.

- Heimilisnotkun, eins og geymsla matvæla og drykkjarfanga.

Öryggi fyrir börn og fólk með fötlun

Elvita CKD6910X - Öryggi fyrir börn og fólk með fötlun - 1

VIDVÖRUN!

Látið eftirfarandi hópa aðeins nota tækið undir umsjón eða ef þeim hafa verið veittar leiðbeiningar um örugga notkun þess. Þau verða að skilja hætturnar sem eru til staðar.

  • Börn 8 ára og eldri. (Börn undir 8 ára verða að vera undir stöðugu eftirliti, eða haldið fjarri vörunni.)
  • Börn á aldrinum 3 til 8 ára mega setja í og taka úr tækinu.
  • Fólk með minnkaða líkamlega, skynjunarlega eða andlega getu.
  • Fólk sem skortir reynslu og þekkingu.

Elvita CKD6910X - Öryggi fyrir börn og fólk með fötlun - 2

VIDVÖRUN!

  • Leyfið börnum eða gæludýrum ekki að leika sér með tækið.
  • Leyfið börnum ekki að þrífa tækið án eftirlits.
  • Leyfið ekki börnum eða gæludýrum að fara eða klifra inn í tækið, þau gætu kafnað eða dottið.

Elvita CKD6910X - Öryggi fyrir börn og fólk með fötlun - 3

VIDVÖRUN!

Börn mega ekki framkvæma þrif og viðhald nema þau séu 8 ára eða eldri og séu undir eftirliti.

Elvita CKD6910X - Öryggi fyrir börn og fólk með fötlun - 4

VIDVÖRUN!

Haldið öllum umbúðum fjarri börnum þar sem hætta er á köfnun.

Elvita CKD6910X - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

Til að hindra að börn lokist inni skal fjarlægja hurðirnar áður en vörunni er fargað.

Almennt öryggi

Elvita CKD6910X - Almennt öryggi - 1

VIDVÖRUN!

Ekki setja hendur, fætur eða málmhluti undir eða fyrir aftan tækið. Hætta er á að klemmast og beittar brúnir geta valdið meiðslum.

Elvita CKD6910X - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

  • Farið gætilega þegar tækið er fært. Tækið er þungt. • Takið tækið úr sambandi fyrir flutning.
  • Standið ekki á neinum hluta tækisins né notið neinn hluta tækisins sem stuðning.
  • Ekki nota tækið ef það er skemmt, hafið samband við þjónustu.

Elvita CKD6910X - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

Hætta á rafstuði!

  • Ef rafmagnssnúran er skemmd verður henni að vera skipt út af framleiðandanum, þjónustuaðila hans eða sambærilega hæfum einstaklingum til að forðast hættu.
  • Ekki stinga rafmagnstenglinum í samband ef rafmagnsinnstungan er laus. Hætta er á rafstuði og eldsvoða.
  • Togið ekki í rafmagnssnúruna þegar tækið er tekið úr sambandi. Grípið ákveðið í rafmagnstengilinn og togið hann út úr rafmagnsinnstungunni.
  • Snertið ekki rafmagnstengilinn með blautum höndum.
  • Ekki skemma eða kremja rafmagnssnúruna og notið hana ekki ef hún er skemmd eða slitin. Allar skemmdir sem verða á snúrunni geta valdið skammhlaupi, eldsvoða og rafstuði.

Elvita CKD6910X - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

Hætta á eldsvoða!

- Finna má eftirfarandi tákn á tækinu. Það er viðvörun og gefur til kynna að kælimiðillinn og einangrunarefnið séu eldfim.

Elvita CKD6910X - VIDVÖRUN! - 1

  • Tryggið að engir íhlutir kælimiðilsrásarinnar skemmist við flutning og uppsetningu á tækinu. Kælimiðillinn, ísóbútan (R600a), sem kælimiðilsrásin inniheldur er eldfimur.
  • Ef kælimiðilsrásin er skemmd skal forðast opin eld og hita- og neistagjafa og loftræsta vandlega svæðið í kringum tækið.
  • Breytið ekki tæknilýsingunum né gerið breytingar á tækinu á neinn hátt.
  • Ekki stinga rafmagnstenglinum í samband ef rafmagnsinnstungan er laus. Hætta er á rafstuði eða eldsvoða.
  • Ekki skemma eða kremja rafmagnssnúruna og notið hana ekki ef hún er skemmd eða slitin. Allar skemmdir sem verða á snúrunni geta valdið skammhlaupi, eldsvoða og rafstuði.

Öryggi við uppsetningu

Elvita CKD6910X - Öryggi við uppsetningu - 1

VIDVÖRUN!

  • Notið ávallt persónuhlífar (hanska o.s.frv.) við uppsetningu, viðhald og viðgerðir. Það er hætta á meiðslum. • Gætið þess að kælimiðilsrásin skemmist ekki.
  • Ekki setja tækið í samband ef það er skemmt.
  • Þegar tækið er staðsett skal tryggja að ekki sé þrengt að rafmagnssnúrunni og rafmagnstenglinum eða að þau verði fyrir skemmdum. Skemmdur rafmagnstengill getur ofhitnað og valdið eldsvoða.
  • Þegar verið er að staðsetja tækið skal tryggja að hægt sé að komast að rafmagnstenglinum.
  • Setjið tækið ekki upp á stað þar sem það er í beinu sólarljósi.
  • Tækið verður að vera jarðtengt. Framleiðandinn er ekki ábyrgur fyrir skemmdum sem geta átt sér stað vegna notkunar án jarðtengingar.
  • Haldið loftræstiopum utan á tækinu lausum við hindranir.
  • Setjið tækið ekki upp nema nægilegt pláss og loftræsting sé í kringum tækið. Það myndi valda ofhitnun.
  • Setjið tækið ekki nálægt ofnum eða eldavélum.
  • Yfirborðið sem tækið er uppsett á verður að vera nægilega sterkt til að standa undir fullhlöðnu tæki.
  • Stillið fæturna þar til allir fæturnir snerta gólfið og tækið er lárétt. Það kemur í veg fyrir að tækið hreyfist, velti og það sé hætta á meiðslum.
  • Setjið bakhlið tækisins ekki of nálægt vegg. Hætta er á eldsvoða ef þjappan ofhitnar.
  • Þegar kæli- og frystiskápurinn er staðsettur verður rýmið fyrir ofan hann að vera lágmark 50 mm, og setja verður kæli- og frystiskápinn upp að vegg með fríbili sem er a.m.k. 50 mm svo lofthringrás sé möguleg til að hindra ofhitnun. Ráðlagt er að hafa 50 mm frá bakinu að veggnum til að forðast snertingu eða nálægð við heita hluti (þjöppu, eimsvala) og koma í veg fyrir eldhættu.

Elvita CKD6910X - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

  • Tengið ekki tækið við rafmagnsinnstungu ef tækið er skemmt. Hafið sambandi við smásöluaðilann þar sem tækið var keypt.
  • Notið sérúthlutaða rafmagnsinnstungu, sem þýðir að ekki skal deila rafmagnsinnstungunni með öðrum tækjum.
  • Staðsetjið ekki fjöltengi eða færanlega aflgjafa fyrir aftan tækið.
  • Verið viss um að rafmagnstengillinn sé tengdur við jarðtengda innstungu. Athugaðu vandlega að innstungan sé jarðtengd á réttan og áreiðanlegan hátt.
  • Gangið úr skugga um að tengistærðir tækisins séu samsvarandi við rafveitu. Þessar upplýsingar (stærð öryggja, spenna og tíðni) má finna á merkingu tækisins. Ef vafi leikur á skal ráðfæra sig við viðurkenndan rafvirkja. Annars er hætta á raflosti, eldsvoða, meiðslum eða vandamálum með tækið.
  • Notið ekki framlengingarsnúru og lengið ekki rafmagnssnúruna.
  • Pegar tækið hefur verið staðsett er ráðlagt að bíða í a.m.k. 4 klukkustundir áður en það er tengt við rafveitu. Með því er olíunni gert kleift að flæða til baka í þjöppuna.

Elvita CKD6910X - VIDVÖRUN! - 1

VARÚÐ!

  • Gangið úr skugga um að nægilegt rými sé í kringum tækið svo auðveldlega sé hægt að opna hurðirnar og skúffurnar.
  • Takið tækið úr sambandi við rafmagn áður en aukahlutir eru settir upp.

Elvita CKD6910X - VARÚÐ! - 1

ATHUGAÐU!

Hafið samband við Elvita þjónustu ef hjálpar er þörf með uppsetningu tækisins.

Öryggi við notkun

Elvita CKD6910X - Öryggi við notkun - 1

VIÐVÖRUN!

  • Geymið ekki sprengifim efni í þessu tæki, eins og úðabrúsa sem innihalda eldfimt drifefni.
  • Geymið ekki eldfimt gas eða vökva í tækinu, hætta er á sprengingu.
  • Ekki geyma eldfima, sprengifima, óstöðuga eða mjög tærandi hluti í tækinu til að hindra skemmdir á því eða eldsvoða af slysni.
  • Ekki geyma ílát fyllt með vökva ofan á tækið til að hindra að það geti hellst niður. Þurrkið upp allan vökva sem hellist niður. Vökvi sem hellst hefur niður getur valdið raflosti, eldsvoða eða meiðslum.

Elvita CKD6910X - VIÐVÖRUN! - 1

VIÐVÖRUN!

Haldið logandi kertum, lömpum og öðrum hlutum með opnum eldi fjarri tækinu til að forðast eldhættu.

Elvita CKD6910X - VIÐVÖRUN! - 1

VIÐVÖRUN!

  • Ekki fjarlægja eða setja matvæli eða ílát í frystihólfið með blautum höndum þegar kæli- og frystiskápurinn er í gangi, sérstaklega ekki málmílát, til að forðast skrámu á húð og frostbruna.
  • Neytið ekki frosinna matvæla, eins og íspinna eða ísmola, beint úr frystiskápnum. Það gæti valdið frostbruna.

Elvita CKD6910X - VIÐVÖRUN! - 1

VIÐVÖRUN!

  • Haldið loftræstiopum innan í tækinu lausum við hindranir.
  • Notið ekki raftæki innan í geymsluhólfum tækisins fyrir matvæli, nema þau sem framleiðandinn mælir með.

Elvita CKD6910X - VIÐVÖRUN! - 1

VIÐVÖRUN!

Notið tækið ekki án lýsingar í innanrými.

Elvita CKD6910X - VIÐVÖRUN! - 1

VARÚÐ!

  • Setjið ekki heita hluti nálægt plastíhlutum tækisins.
  • Ekki setja matvæli beint við afturhliðina.
  • Gangið úr skugga um að öllum hillum og skúffum hafi verið ýtt alveg inn í tækið áður en hurðinni er lokað til að forðast skemmdir.

Elvita CKD6910X - VARÚÐ! - 1

VARÚÐ!

Viðvaranir vegna matvælaöryggis!

Til að forðast mengun matvæla skal fylgja þessum leiðbeiningum:

  • Forðist langvarandi hurðaropnanir: Ef hurðin er höfð opin í langan tíma getur það valdið verulegri hækkun á hitastigi innan í hólfunum.
  • Regluleg þrif: Hreinsið yfirborð sem komast í snertingu við matvæli og aðgengileg frárennsliskerfi reglulega.
  • Viðhald vatnsskammtara: Fyrir gerðir með vatnsskammtara: Ef vatnsskammtarinn hefur ekki verið notaður í 48 klukkustundir skal hreinsa hann fyrir notkun. Ef vatnskerfið er tengt við vatnsveitu og hefur ekki verið notað í 5 daga skal skola það fyrir neyslu.
  • Rétt geymsla á hráu kjöti og fiski: Geymið hrátt kjöt og fisk í viðeigandi ílátum í hólfunum til að koma í veg fyrir snertingu við eða leka á annan mat.

- Stjörnuflokkuð hólf:

- Tveggja stjörnu hólf fyrir frosin matvæli henta fyrir geymslu forfrystra matvæla, til að geyma rjómaís og búa til klaka.

- Einnar stjörnu, tveggja stjörnu og þriggja stjörnu hólfin henta ekki til að frysta fersk matvæli.

- Varúðarráðstafanir við langtímageymslu: Ef kælitækið er skilið eftir tómt í langan tíma skal slökkva á því, afþíða, þrífa, þurrka og skilja hurðina eftir opna til að koma í veg fyrir að mygla myndist inni.

- Fara ætti nákvæmlega eftir ráðleggingum varðandi geymslu.

- Geymið forpökkuð fryst matvæli í samræmi við leiðbeiningar framleiðanda frystu matvælanna.

- Setjið matvælin þannig að loft geti leikið óhindrað um þau.

- Eftir að fryst matvæli hafa verið þídd niður skal ekki frysta þau aftur. Þegar matvæli hafa þiðnað geta gæðin versnað smám saman eða þau skemmst.

- Hyljið eða vefjið inn matvælunum, sérstaklega ef þau eru bragðsterk til að hindra að lykt berist.

- Setjið ekki kolsýrða eða freyðandi drykki í frystihólfið þar sem það skapar þrýsting í ílátinu, sem getur valdið því að það springi og skemmi tækið.

- Ekki opna hurðina oft.

- Lokið hurðinni gætilega til að hindra að hlutir falli um koll.

Öryggi við viðhald

Elvita CKD6910X - Öryggi við viðhald - 1

VIDVÖRUN!

  • Öll vinna við rafmagn verður að vera framkvæmd af viðurkenndum rafvirkja eða einstaklingi með sambærilega hæfni.
  • Þjónusta fyrir þetta tæki má aðeins vera framkvæmd af viðurkenndri þjónustumiðstöð og aðeins má nota upprunalega varahluti.
  • Ekki reyna að gera við, taka í sundur eða breyta tækinu sjálf. • Takið tækið úr sambandi fyrir afþíðingu.
  • Ekki framkvæma neitt viðhald nálægt uppsprettu elds.

Elvita CKD6910X - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

Áður en hreinsun eða viðhald af öllu tagi er framkvæmt á tækinu skal taka það úr sambandi frá rafmagnsinnstungunni.

Elvita CKD6910X - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

Notið ekki verkfæri eða aðrar aðferðir til að flýta fyrir afþíðingarferlinu, nema framleiðandinn mæli með því.

Elvita CKD6910X - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

Skiptið ekki sjálf um ljósaperurnar í tækinu. Ef ljósaperurnar eru sprungnar skal hafa samband við þjónustu.

Elvita CKD6910X - VIDVÖRUN! - 1

VARÚÐ!

  • Notið ekki málmhluti, gufuhreinsi, þynni, bílahreinsiefni, klór, léttolíu, svarfandi hreinsiefni eða lífræn leysiefni eins og bensen til að þrífa. Það gæti skemmt yfirborð tækisins og gæti valdið eldsvoða.
  • Notið ekki beitta hluti til að fjarlægja ísingu úr tækinu. Notið plastsköfu.
  • Ekki nota svampa og grófa hreinsiklúta. Þeir geta valdið rispum.
  • Hreinsið reglulega yfirborð sem geta komist í snertingu við matvæli og aðgengilegan frárennslisbúnað.
  • Ekki nota harða bursta, stálull, vírabursta, svarfandi efni (eins og tannkrem), lífræn leysiefni (eins og alkóhól, aseton, bananaolíu o.s.frv.), sjóðandi vatn, sýru eða alkalísk efni, sem gætu skaðað yfirborð og innra byrði tækisins. Sjóðandi vatn og lífræn leysiefni eins og bensen geta aflagað eða skemmt plasthluta.

Förgun

Elvita CKD6910X - Förgun - 1

VIÐVÖRUN!

  • Til að hindra að börn lokist inni skal fjarlægja hurðirnar áður en vörunni er fargað.
  • Til að hindra að börn klifri inn í tækið skal ekki fjarlægja hillur og skúffur.
  • Haldið öllum umbúðum fjarri börnum þar sem hætta er á köfnun.
  • Ef tækið er með læsingu á hurðinni skal gera hana óvirka áður en tækinu er fargað.
  • Til að hindra að börn geti orðið fyrir rafstuði skal taka rafmagnssnúruna úr sambandi og skera hana áður en tækinu er fargað.
  • Leyfið börnum ekki að leika sér með tækið.

Elvita CKD6910X - VIÐVÖRUN! - 1

VIÐVÖRUN!

  • Tryggið að rör kælimiðilsrásarinnar séu ekki skemmd áður en förgun á sér stað.
  • Ekki farga tækinu með því að kasta því á eld. Það er hætta á sprengingu.
  • Tækið inniheldur kælimiðil og gas í einangruninni. Fagaðilar verða að sjá um förgun kælimiðils og gass á viðurkenndri förgunarstöð í samræmi við staðbundnar reglur því þau geta valdið augnskaða eða íkveikju. Kælimiðillinn og einangrunarþanefnið eru eldfim. Útsetjið ekki fyrir eldslogum.

Elvita CKD6910X - VIÐVÖRUN! - 1

Fargið umbúðum á umhverfisvænan hátt. Með því að setja umbúðir í endurvinnslu, samkvæmt reglum lands og staðar, er hægt að draga úr notkun hráefna og magni úrgangs í landfyllingum.

Þetta tæki er merkt í samræmi við Evróputilskipun 2012/19/ESB, rafmagns- og rafeindatækjaúrgangur (WEEE). Táknið á tækinu eða á umbúðum þess gefur til kynna að ekki skuli meðhöndla það sem heimilisúrgang. Í staðinn skal afhenda það til viðeigandi söfnunarstöðvar fyrir endurvinnslu rafmagns- og rafeindatækjaúrgangs.

Með því að tryggja rétta förgun tækisins hjálpar þú við að koma í veg fyrir mögulega neikvæðar afleiðingar fyrir umhverfið og heilsu manna, sem að öðrum kosti gætu orðið vegna óviðeigandi meðhöndlunar úrgangs vegna þessa tækis. Til að fá nánari upplýsingar um endurvinnslu þessa tækis skaltu hafa samband við viðkomandi bæjaryfirvöld sem sjá um sorphirðu, heimilissorpbjónustu eða verslunina þar sem þú keyptir tækið.

FLÝTIBYRJUN

Hitastigi kæliskáps breytt

1Elvita CKD6910X - FLÝTIBYRJUN - 1

Hitastigi í frystiskáp breytt

1Elvita CKD6910X - FLÝTIBYRJUN - 2

Lærið um kæli- og frystiskápinn

Stjórnborð

Elvita CKD6910X - Stjórnborð - 1

A. Skinnur B. Höggdeyfir fyrir hurð

Skinnur: Til að stilla kæliskápshurðirnar saman.

Höggdeyfir fyrir hurð: Til að draga úr höggi þegar hurðin lokast.

Kæli- og frystihólf

Kæliskápshólf

Kæliskápshólfið hentar til að geyma margskonar ávexti, grænmeti, drykkjarföng og önnur matvæli sem neytt er innan skamms tíma. Kæliskápshólfið samanstendur af hurðagrindum, hillum og skúffum.

Elvita CKD6910X - Kæliskápshólf - 1

Hurðahillur: Til að geyma og skipuleggja matvæli og drykkjarvörur.

Grænmetisskúffur

Til að geyma og flokka mismunandi tegundir af matvælum eins og ávexti, grænmeti og snarl.

Hillur: Til að geyma og skipuleggja matvæli og drykkjarvörur.

Elvita CKD6910X - Grænmetisskúffur - 1

ATHUGADU!

  • Orkunýting tækisins er best þegar allar hillur og skúffur eru í upphaflegum staðsetningum sínum.
  • Þetta tæki inniheldur LED ljósgjafa í orkunýtniflokki F.

Frystihólf

Frystihólfið getur haldið matvælum ferskum í langan tíma og hentar fyrir geymslu kjöts, fisks, rjómaíss og annarra matvæla sem ekki verður neytt innan skamms tíma. Frystihólfið samanstendur af skúffum og rennibakka.

Elvita CKD6910X - Frystihólf - 1

Frystiskúffur: Til að geyma og flokka mismunandi tegundir af matvælum.

Breytanlegt hólf

Breytanlega hólfið getur virkað annað hvort sem kæli- eða frystihólf. Breytanlega hólfið samanstendur af skúffum og rennibakka.

Elvita CKD6910X - Breytanlegt hólf - 1

VIÐVÖRUN!

  • Ekki setja flöskur eða lokuð ílát með vökvum í frystiskápinn eða breytanlega hólfið þegar stillt er á hitastig undir frostmarki. Ílátin geta sprungið þegar vökvinn frýs.
  • Ekki setja kolsýrða eða freyðandi drykki í frystiskápinn eða breytanlega hólfið þegar stillt er á hitastig undir frostmarki því það skapar þrýsting í ílátinu, sem getur valdið því að það springi og valdi skemmdum á tækinu.

Elvita CKD6910X - VIÐVÖRUN! - 1

ATHUGADU!

Breytanlega hólfið getur virkað annað hvort sem kæli- eða frystihólf.

Elvita CKD6910X - ATHUGADU! - 1

Til að geyma og flokka mismunandi tegundir matvæla eftir hitastiginu í skúffunni.

Hurðarbjalla

Elvita CKD6910X - Hurðarbjalla - 1

ATHUGADU!

Forðastu að hafa hurðina opna í langan tíma til að spara orku.

Þegar hurðin hefur verið opin í meira en 1 mínútu heyrist hljóðviðvörun. Slökktu á viðvöruninni með því að loka hurðinni.

Finndu gerðarkóðann

ELVITA CKDXXXXX ELOH Group A8 S-702 03 Övbre: 3M/2016

Gerðarkóðinn er prentaður á merkimiða á tækinu. Þú þarft kóðann til að finna allar og nýlegustu upplýsingarnar, þjónustuna og aðstoðina fyrir þína gerð af tæki.

Elvita CKD6910X - Finndu gerðarkóðann - 2

ATHUGADU!

Þetta tæki og textamerking eru dæmi. Tækið þitt og texti gætu haft annað útlit og innihald.

Fyrir fyrstu notkun

Undirbúið kæli- og frystiskápinn fyrir fyrstu notkun áður en honum er stungið í samband og matvæli sett í geymslu.

Elvita CKD6910X - Fyrir fyrstu notkun - 1

VIÐVÖRUN!

Lestu öryggisupplýsingarnar og leiðbeiningarnar í heild áður en þú setur upp eða notar þessa vöru.

Elvita CKD6910X - VIÐVÖRUN! - 1

VIÐVÖRUN!

  • Ef rafmagnssnúran er skemmd verður henni að vera skipt út af framleiðandanum, þjónustuaðila hans eða sambærilega hæfum einstaklingum til að forðast hættu.
  • Tengið ekki tækið við rafmagnsinnstungu ef tækið er skemmt. Hafið sambandi við smásöluaðilann þar sem tækið var keypt.
  • Stinga verður klónni í viðeigandi rafmagnsinnstungu sem er sett upp og jarðtengd samkvæmt öllum staðbundnum lögum og reglugerðum.
  • Ekki stinga rafmagnstenglinum í samband ef rafmagnsinnstungan er laus. Hætta er á rafstuði eða eldsvoða.
  • Gætið þess að skemma ekki rafmagnssnúruna og notið hana ekki ef hún er skemmd eða slitin. Allar skemmdir sem verða á snúrunni geta valdið skammhlaupi, eldsvoða og rafstuði.
  • Notið ekki framlengingarsnúru og lengið ekki rafmagnssnúruna.
  • Taktu klónna úr sambandi ef rafmagnsleysi verður.

1Elvita CKD6910X - VIÐVÖRUN! - 1

  1. Gangið úr skugga um að allar umbúðir hafi verið fjarlægðar af kæli- og frystiskápnum og hann staðsettur á réttan hátt.

ATHUGIÐ! Gangið úr skugga um að það sé nægt pláss og lofthringrás í kringum kæli- og frystiskápinn samkvæmt mælingum uppsetningarsvæðis.

  1. Látið kæli- og frystiskápinn standa í að minnsta kosti 4 klukkustundir áður en honum er stungið í samband.
  2. Notaðu mjúkan klút eða svamp til að þurrka af innan úr kæli- og frystiskápnum með veikri blöndu af matarsóda. Skolið af með heitu vatni og þurrkið af innanrými eða látið þorna með hurðirnar opnar.

VARÚÐ! Verið viss um að nota hlutlausa sápu. Ekki nota hreinsiefni eða svarfefni.

  1. Settu rafmagnssnúruna í samband.

Eftir nokkra stund fer þjappan í gang og myndar hljóð. Innilokaður vökvi og gas geta einnig myndað hljóð, jafnvel þegar þjappan er ekki í gangi. Frambrúnir tækisins gætu verið heitar, sem hindrar rakapéttingu. Þetta er allt eðlilegt meðan tækið er í gangi.

  1. Látið kæli- og frystiskápinn vera tóman í gangi í 2 klukkustundir, án þess að opna hurðina.
  • Ráðlagt hitastig er 4 °C í kæliskápnum og -18 °C í frystiskápnum. Athugið reglulega með hitamæli til að tryggja að þessu hitastigi sé viðhaldið í skápnum.
  • Það getur haft neikvæð áhrif á afköst kæli- og frystiskápsins við kælingu ef of mikið af matvælum eru sett í hann þegar kveikt er á honum í fyrsta sinn.

NOTKUN KÆLI- OG FRYSTISKÁPSINS

Stillingar og aðferðir

Elvita CKD6910X - Stillingar og aðferðir - 1

ECO

Sparar orku með því að draga úr orkunotkun. Sjá hluti "Kveikt og slökkt á ECO stillingu", síða 229.

Elvita CKD6910X - ECO - 1

Holiday

Stillir hitastigið til langs tíma án notkunar. Sjá hluti "Kveikt og slökkt á Holiday stillingu", síða 230.

Elvita CKD6910X - Holiday - 1

Super Freeze

Frystir matvæli hraðar en venjulega. Sjá hluti "Kveikt og slökkt á Super Freeze stillingu", síða 230.

Kveikt og slökkt á kæli- og frystiskápnum

Elvita CKD6910X - Kveikt og slökkt á kæli- og frystiskápnum - 1

VIÐVÖRUN!

  • Stinga verður klónni í viðeigandi rafmagnsinnstungu sem er sett upp og jarðtengd samkvæmt öllum staðbundnum lögum og reglugerðum.
  • Gætið þess að skemma ekki rafmagnssnúruna og notið hana ekki ef hún er skemmd eða slitin. Allar skemmdir sem verða á snúrunni geta valdið skammhlaupi, eldsvoða og rafstuði.
  • Notið ekki framlengingarsnúru og lengið ekki rafmagnssnúruna.
  • Ekki stinga rafmagnstenglinum í samband ef rafmagnsinnstungan er laus. Hætta er á rafstuði og eldsvoða.
  • Snertið ekki rafmagnstengilinn með blautum höndum.

Elvita CKD6910X - VIÐVÖRUN! - 1

ATHUGIÐ!

Það kviknar á LED-ljósinu innan í kæli- og frystiskápnum þegar hurðin er opin.

  1. Stingið rafmagnssnúrunni í samband til að kveikja á kæli- og frystiskápnum.
  2. Takið rafmagnssnúruna úr sambandi til að slökkva á kæli- og frystiskápnum.

VIÐVÖRUN! Togið ekki í rafmagnssnúruna þegar tækið er tekið úr sambandi. Grípið ákveðið í rafmagnstengilinn og togið hann út úr rafmagnsinnstungunni.

  1. Snertið FRIDGE þangað til -- birtist til að slökkva á kæliskápnum.
  2. Snertið FRIDGE til að stilla hitastigið og kveikja á kæliskápnum.

Kveikt og slökkt á breytanlega svæðinu

  1. Snertið CONVERTIBLE ZONE þangað til -- birtist.
  2. Snertið CONVERTIBLE ZONE til að stilla hitastigið og kveikja á breytanlega svæðinu.

Hitastigi í kælihólfi breytt

Elvita CKD6910X - Hitastigi í kælihólfi breytt - 1

ATHUGADU!

Hægt er að stilla kælihólfið á -- til að slökkva á því. Þetta er ekki stilling hitastigs.

Stilltu meðalhitastigið fyrir kæliskápshólfið.

  1. Snertið FRIDGE til að fara í gegnum tiltæk hitastig (2 °C til 8 °C).

Elvita CKD6910X - ATHUGADU! - 1

VARÚD!

  • Ef hitastigið er stillt hátt mun það auka matarsóun.
  • Ef hitastigið er stillt lægra en nauðsynlegt er þá sóar það orku.
  • Miðlungs stilling hentar best til að ná sem bestri varðveislu matvæla

Elvita CKD6910X - VARÚD! - 1

ATHUGADU!

  • Ráðlagt hitastig fyrir kæliskápshólfið er 4 °C.
  • Hitastigið innan í hverju hólfi getur verið frábrugðið gildinu sem birt er á stjórnborðinu, eftir því hversu mikið af matvælum er geymt og hvar matvælin eru sett. Hár eða lágur herbergishiti getur einnig haft áhrif á raunverulegt hitastig innan í tækinu.

Hitastigi í frystihólfi breytt

Stillið meðalhitastigið fyrir frystihólfið.

  1. Snertið FREEZER til að fara í gegnum tiltæk hitastig (-14 °C til -22 °C).

Elvita CKD6910X - Hitastigi í frystihólfi breytt - 1

VARÚD!

  • Ef hitastigið er stillt hátt mun það auka matarsóun.
  • Ef hitastigið er stillt lægra en nauðsynlegt er þá sóar það orku.
  • Miðlungsstilling hentar best til að ná sem bestri varðveislu matvæla.

Elvita CKD6910X - VARÚD! - 1

ATHUGIÐ!

  • Ráðlagt hitastig fyrir frystihólfið er -18 °C.
  • Hitastigið innan í hverju hólfi getur verið frábrugðið gildinu sem birt er á stjórnborðinu, eftir því hversu mikið af matvælum er geymt og hvar matvælin eru sett. Hár eða lágur herbergishiti getur einnig haft áhrif á raunverulegt hitastig innan í tækinu.

Hitastigi í breytanlega hólfinu breytt

Elvita CKD6910X - Hitastigi í breytanlega hólfinu breytt - 1

ATHUGIÐ!

Hægt er að stilla breytanlega hólfið á -- til að slökkva á því. Þetta er ekki stilling hitastigs.

Stillið meðalhitastigið fyrir breytanlega hólfið.

  1. Snertið CONVERTIBLE ZONE til að fara í gegnum tiltæk hitastig (5 °C til -20 °C).

Elvita CKD6910X - ATHUGIÐ! - 1

VARÚD!

  • Ef hitastigið er stillt hátt mun það auka matarsóun.
  • Ef hitastigið er stillt lægra en nauðsynlegt er þá sóar það orku.
  • Miðlungs stilling hentar best til að ná sem bestri varðveislu matvæla.

Elvita CKD6910X - VARÚD! - 1

ATHUGADU!

Hitastigið innan í hverju hólfi getur verið frábrugðið gildinu sem birt er á stjórnborðinu, eftir því hversu mikið af matvælum er geymt og hvar matvælin eru sett. Hár eða lágur herbergishiti getur einnig haft áhrif á raunverulegt hitastig innan í tækinu.

Notið ECO stillingu til að minnka orkunotkun.

  1. Snertið MODE til að fara í gegnum mögulegar stillingar þar til [ECO stilling] lýsir. Kveikt er á ECO stillingu. Hitastigið í kæliskápnum er stillt á 5 °C og hitastigið í frystiskápnum er stillt á -18 °C.

Slökkt á ECO stillingu

  1. Snertið MODE þar til enginn af stillingavísunum lýsir.

Kveikt og slökkt á Holiday stillingu

Notið Holiday stillingu til að aðlaga hitastigið fyrir lengri tíma án notkunar.

Elvita CKD6910X - Kveikt og slökkt á Holiday stillingu - 1

VARÚD!

Geymið ekki nein matvæli í kæliskápnum þegar þessi stilling er notuð.

Kveikt á Holiday stillingu

  1. Snertið MODE til að fara í gegnum tiltækar stillingar þar til [Holiday stilling] lýsir til að kveikja á Holiday stillingu. Kveikt er á Holiday stillingu og hitastigið í kæliskápnum stillt á 17°C.

Slökkt á Holiday stillingu

  1. Snertið MODE þar til enginn af stillingavísunum lýsir.

Kveikt og slökkt á Super Freeze stillingu

Notið Super Freeze stillingu til að lækka hitastigið hratt. Með þessu eru matvæli fryst hraðar en venjulega. Þetta heldur matvælunum ferskum lengur og varðveitir vítamín og næringarefni betur.

Kveikt á Super Freeze stillingu

  1. Snertið MODE til að fara í gegnum möguleg svæði þar til [Super Freeze stilling] lýsir. Kveikt er á Super Freeze stillingu og hitastig frystiskápsins er stillt á -25 °C. Super Freeze stilling slekkur sjálfkrafa á sér eftir 50 klukkustundir.

Slökkt á Super Freeze stillingu

  1. Snertið MODE þar til enginn af stillingavísunum lýsir.

Geymsla matvæla

Geymsla matvæla í kæliskápnum

Elvita CKD6910X - Geymsla matvæla í kæliskápnum - 1

VIÐVÖRUN!

Til að koma í veg fyrir að hlutir falli og valdi meiðslum eða skemmdum á kæli- og frystiskápnum skal ekki hlaða of miklu í hillurnar og hurðagrindurnar eða setja of mikið í skúffurnar.

  • Til að koma í veg fyrir að hlutir falli og valdi meiðslum eða skemmdum á kæli- og frystiskápnum skal ekki hlaða of miklu í hillurnar og hurðagrindurnar eða setja of mikið í skúffurnar.
  • Ekki yfirhlaða tækið þannig að lofthringrás verði ekki næg.

Elvita CKD6910X - VIÐVÖRUN! - 1

VARÚÐ!

  • Farðu alltaf eftir þeim geymslutíma og fyrningardagsetningum sem framleiðendur leggja til.
  • Ef hurðin er höfð opin í langan tíma getur það valdið verulegri hækkun á hitastigi í hólfunum.
  • Geymdu hrátt kjöt og fisk í hentugum ílátum í kæliskápnum þannig að þau komist ekki í snertingu við eða valdi leka á önnur matvæli.
  • Ekki setja fljótandi olíur eða máltíðir eldaðar í olíu í kæliskápinn í óþéttum ílátum. Það skemmir plastyfirborð tækisins. Hreinsið og skolið alla olíu sem hefur lekið með heitu vatni þegar í stað.

Elvita CKD6910X - VARÚÐ! - 1

VARÚÐ!

Ekki loka hurðinni meðan einhverjar hillur eru útdregnar eða skúffur opnar. Það gæti skemmt hillurnar, skúffurnar og hurðina.

Elvita CKD6910X - VARÚÐ! - 1

ATHUGADU!

Til að forðast óþarfa orkueyðslu:

  • Ekki geyma heitan mat eða vökva sem gufa kemur úr í kæli- og frystiskápnum. Ef heit matvæli eru sett beint í kæli- eða frystiskápinn veldur það hækkun á innra hitastigi sem leiðir til þess að þjappan þarf að vinna meira og nota meiri orku. Kæla verður heitan mat og drykki að stofuhita áður en þau eru geymd.
  • Ekki hafa hurðirnar opnar í lengri tíma.

Notaðu eftirfarandi ábendingar og ráðleggingar við geymslu matvæla í kæliskápnum.

Þegar fersk matvæli eru sett í kæliskáp:

  • Breiddu yfir eða vefðu inn matvælin, sérstaklega ef þau eru bragðsterk.
  • Settu matvælin þannig að loft geti leikið óhindrað um þau.
  • Ef rafmagnsbilun verður er hægt að geyma matvælin í nokkrar klukkustundir. Ekki opna hurðina meðan rafmagnsbilun stendur yfir og ekki setja meira af ferskum matvælum í kæliskápinn.

Aðrar ráðleggingar varðandi kæliskáp:

Matvæli Råðlegging
Kjöt (allar gerðir) Vefðu inn í pólýben (plast) og settu áglerhilluna fyrir ofanskúffuna fyrir ávexti og grænmeti
Eldaður matur, kaldir réttir o.s.frv. Breiddu yfir og settu íeinhverja hillu
Ávextir og grænmeti Geymdu í skúffunni fyrir ávexti oggrænmeti
Smjör og ostur Vefðu inn í loftþétta filmu eða plastfilmu
Mjólkurflöskur, aðrir drykkir í flöskum og vökvar í dósumGakktu úr skugga um að flöskur séu með loki og geyrþær í hurðargrindunum
Egg og pökkuð matvæli Geymdu í hurðargrindunum, settu eggin í eggjahaldarana

Elvita CKD6910X - ATHUGADU! - 1

ATHUGADU!

Orkunýting tækisins er best þegar allar hillur og skúffur eru í upphaflegum staðsetningum sínum. Hins vegar er hægt að fjarlægja hillurnar til að þrífa þær eða setja þær í aðra hæð til að skapa meira pláss í kæliskápnum. Sjá hluti "Hreinsaðu kæli- og frystiskápinn", síða 233.

Matvæli geymd í frystiskápnum

Elvita CKD6910X - Matvæli geymd í frystiskápnum - 1

VIÐVÖRUN!

  • Setjið ekki matvæli eða ílát í frystihólfið með blautum höndum þegar kæli- og frystiskápurinn er í gangi, sérstaklega ekki málmílát, til að forðast skrámu á húð og frostbruna.
  • Neytið ekki frosinna matvæla, eins og íspinna eða ísmola, beint úr frystiskápnum. Það gæti valdið frostbruna.
  • Ekki yfirhlaða tækið þannig að loftrás verði ekki næg.

Elvita CKD6910X - VIÐVÖRUN! - 1

VARÚÐ!

  • Farðu alltaf eftir þeim geymslutíma og fyrningardagsetningum sem framleiðendur leggja til.
  • Ef hurðin er höfð opin í langan tíma getur það valdið verulegri hækkun á hitastigi í hólfunum.
  • Geymið hrátt kjöt og fisk í hentugum ílátum í frystiskápnum þannig að þau komist ekki í snertingu við eða valdi leka á önnur matvæli.
  • Setjið ekki kolsýrða eða freyðandi drykki í frystihólfið þar sem það skapar þrýsting í ílátinu, sem getur valdið því að það springi og skemmi tækið.
  • Vertu viss um að flöskur séu ekki skildar eftir í frystiskápnum lengur en þess er þörf. Flöskurnar geta sprungið ef innihaldið frýs.

Elvita CKD6910X - VARÚÐ! - 1

VARÚÐ!

Ekki loka hurðinni meðan skúffur eru opnar. Það gæti skemmt skúffurnar og hurðina.

Elvita CKD6910X - VARÚÐ! - 1

ATHUGADU!

Til að forðast orkusóun, ekki geyma heitan mat eða vökva sem gufa kemur úr í kæli- og frystiskápnum. Ef heit matvæli eru sett beint í kæli- eða frystiskápinn veldur það hækkun á innra hitastigi sem leiðir til þess að þjappan þarf að vinna meira og nota meiri orku. Kæla verður heitan mat og drykki að stofuhita áður en þau eru geymd.

Notaðu eftirfarandi ábendingar og ráðleggingar við geymslu matvæla í frystiskápnum.

  • Undirbúðu matvælin í smáum skömmtum til að þau frjósi hratt og fullkomlega, sem gerir það aftur á móti mögulegt að þíða einungis niður það magn sem þarf í hvert skipti. Þegar matvæli hafa verið þídd niður þá spillast þau fljótt og ekki má frysta þau aftur.
  • Þegar matvæli frjósa of hægt geta þau tapað gæðum sínum eða spillst.
  • Pakkaðu matvælunum inn í álbynnu eða pólýetýlen (plast) matarfilmu sem er loftþétt. Þurrkaðu af ílátum áður en þau eru sett í frystiskápinn.
  • Merktu og dagsettu hverja pakkningu sem á að frysta til að geta fylgst með geymslutímanum. Taktu út eins marga hluti og þarf í einu.
  • Ekki láta fersk ófrosin matvæli komast í snertingu við matvæli sem eru þegar frosin til að forðast að hitastig þeirra síðarnefndu hækki.
  • Vertu viss um að smásöluaðilinn hafi geymt matvælin á réttan hátt.
  • Setjið pakkningar í frystiskápinn eins fljótt og auðið er eftir kaup.
  • Ef það verður rafmagnslaust er hægt að geyma matvæli í frystiskápnum í nokkrar klukkustundir. Ekki opna hurðina meðan rafmagnsbilun stendur yfir og ekki setja meira af ferskum matvælum í frystiskápinn. Ef bilunin varir lengur verður að athuga matinn og, ef nauðsyn krefur, neyta hans strax eða frysta hann eftir að hann er eldaður.

Elvita CKD6910X - ATHUGADU! - 1

ATHUGADU!

Orkunýting tækisins er best þegar allar hillur og skúffur eru í upphaflegum staðsetningum sínum. Hins vegar er hægt að fjarlægja hillurnar til að þífa þær eða setja þær í aðra hæð til að skapa meira pláss í frystiskápnum. Sjá hluti "Hreinsaðu kæli- og frystiskápinn", síða 233.

HREINSUN OG VIDHALD

Hreinsaðu kæli- og frystiskápinn

Hreinsaðu kæli- og frystiskápinn að utan á tveggja mánaða fresti og að innan á 15 daga fresti til að koma í veg fyrir lykt. Athugaðu og hreinsaðu hurðarþéttingarnar reglulega til að fjarlægja rusl. Klístraður matur eða drykkjarvörur geta valdið því að þéttin festist við skápinn og mögulega rifni þegar hurðin er opnuð. Auðveldara er að þrífa þegar litlar matarbirgðir eru í tækinu.

Elvita CKD6910X - Hreinsaðu kæli- og frystiskápinn - 1

VIDVÖRUN!

Lesið öryggisupplýsingarnar og leiðbeiningarnar í heild áður en þrif eða viðhald á þessari vöru eru framkvæmd.

Elvita CKD6910X - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

- Slökkvið alltaf á vörunni og takið hana úr sambandi við rafmagnsinnstunguna áður en hún er hreinsuð. Eða, slökkvið á útsláttarrofanum eða fjarlægið öryggið. Sé það ekki gert getur það leitt til raflosts.

- Ekki nota hreinsiefni eða vatn sem innihalda klór til að hreinsa ytra yfirborðið og krómhúðaða hluta tækisins. Klór veldur tæringu á slíkum málmyfirborðum.

- Ekki nota málmhluti, beitta hluti, gufuhreinsiefni, þynni, bílahreinsiefni, Clorox, ilmkjarnaolíur (t.d. sítrónusafa eða appelsínubarkarsafa), slípiefni eða lífræn leysiefni (t.d. bensen, smjörsýru eða hreinsiefni sem innihalda ediksýru) til að þrífa. Þessi efni geta skemmt plasthluta, skaðað yfirborð vörunnar og valdið eldi.

- Hreinsið aldrei vöruna með gufuhreinsi. Raki getur safnast fyrir í rafmagnsíhlutum og valdið hættu á raflosti. Heitar gufur geta einnig skemmt plasthluta.

- Ekki nota gufu eða uppgufuð hreinsiefni. Gufa getur komist í snertingu við rafmagnshluta og valdið skammhlaupi eða raflosti.

- Úðið ekki vatni beint á tækið.

- Gangið úr skugga um að varan sé alveg þurr áður en henni er stungið aftur í samband við rafmagnsinnstunguna.

Elvita CKD6910X - VIDVÖRUN! - 1

VARÚÐ!

- Hreinsaðu reglulega yfirborð sem geta komist í snertingu við matvæli og aðgengilegan frárennslisbúnað.

- Hreinsaðu afrennslisopið fyrir vatn reglulega með sérstöku verkfæri til þess. Gættu þess að valda ekki skemmdum á skápnum með beittum hlutum.

- Ekki nota hreinsiefni (eins og sápu, þvottaefni, skrúbbduft, úðahreinsi o.s.frv.) til að hreinsa innanrýmið. Þau geta valdið lykt og mengað matvæli.

- Ekki setja fljótandi olíur eða máltíðir eldaðar í olíu í kæliskápinn í óþéttum ílátum. Það skemmir plastyfirborð tækisins. Hreinsið og skolið alla olíu sem hefur lekið með heitu vatni þegar í stað.

Elvita CKD6910X - VARÚÐ! - 1

Elvita CKD6910X - VARÚÐ! - 2

  1. Takið kæli- og frystiskápinn úr sambandi til að slökkva á honum.
  2. Fjarlægið matvæli, drykkjarvörur, hillur og skúffur. Hendið mat og drykkjarvörum sem hafa spillst.
  3. Þrýfið hurðirnar og yfirborð skápsins með mjúkum klút vættum með volgu vatni, þurrkið þau síðan með mjúkum klút. Notið mjúkan klút eða svamp með mildri matarsódalausn til að þurrka af kæli- og frystiskápnum að innan. Eftir hreinsun skal skola yfirborðin með volgu vatni með vel undnum svampi eða klút. Að lokum skal þurrka innanrýmið með hreinum klút eða skilja hurðirnar eftir opnar til að leyfa því að loftborna. Þvoið þéttingarnar með mildu þvottaefni og volgu vatni, skolið síðan og þurrkið þær vandlega eftir hreinsun.

VARÚÐ! Haldið vatni fjarri ljóshlífinni og öðrum rafmagnsíhlutum.

ATHUGIÐ! Þurrkið ljósið og hitastigsvalhnappinn með mjúkum þurrum klút.

Elvita CKD6910X - VARÚÐ! - 3

Úðaðu vatni á hreinsiklútinn frekar en að úða beint á yfirborð kæli- og frystiskápsins. Það hjálpar til við að tryggja jafna dreifingu raka á yfirborðinu.

  1. Hreinsaðu hillurnar og skúffurnar með mjúkum klút vættum með sápuvatni eða blönduðu hreinsiefni. Skolaðu og þurrkaðu alveg af þeim.
  2. Þrýfið rafmagnstengilinn með þurrum klút.
  3. Settu hillur og skúffur innanrýmis aftur í kæli- og frystiskápinn.

ATHUGIÐ! Gangið úr skugga um að öll yfirborð séu alveg þurr, sérstaklega hurðarpéttin, áður en hillurnar og skúffurnar eru settar aftur í.

  1. Stingið kæli- og frystiskápnum í samband til að kveikja á honum.

VIÐVÖRUN!

  • Gangið úr skugga um að rafmagnssnúran sé ekki með sprungur eða skemmdir. Ef rafmagnssnúran er skemmd hafið þá samband við söluaðilann þar sem varan var keypt eða hafið samband við Elvita þjónustu.
  • Ekki setja kæli- og frystiskápinn aftur í samband við rafmagn nema hann sé alveg þurr að innan.

Gangið úr skugga um að kæli- og frystiskápurinn sé nægilega kaldur áður en matvælin og drykkjarvörurnar eru sett aftur í hann.

Undirbúningur ef ekki á að nota tækið í langan tíma

Nokkurs undirbúnings er þörf ef slökkva skal á kæli- og frystiskápnum í langan tíma til að halda honum í góðu ástandi og koma í veg fyrir myglu.

1Elvita CKD6910X - Undirbúningur ef ekki á að nota tækið í langan tíma - 1

  1. Taktu kæli- og frystiskápinn úr sambandi við rafmagn.
  2. Fjarlægðu matvæli úr kæli- og frystiskápnum. Afþíddu frystiskápinn ef þarf.
  3. Hreinsaðu kæli- og frystiskápinn. Sjá hluti "Hreinsaðu kæli- og frystiskápinn", síða 233.

Skildu hurðirnar eftir opnar til að hindra að lykt myndist.

Þegar kæli- og frystiskápurinn er ræstur eftir tímabil án notkunar skal láta hann vera í gangi í a.m.k. 2 klukkustundir með lágt stillt hitastig áður en matvæli eru sett í hólfin.

Ef skipta þarf um LED-ljós

Elvita CKD6910X - Ef skipta þarf um LED-ljós - 1

VIÐVÖRUN!

Notendur eiga ekki að skipta um LED-ljós sjálfir. Hafðu samband við þjónustu Elvita ef LED-ljósið er skemmt.

Elvita CKD6910X - VIÐVÖRUN! - 1

VIÐVÖRUN!

  • Öll rafmagnsþjónusta fyrir tækið skal vera framkvæmd af viðurkenndum rafvirkja eða hæfum einstaklingi.
  • Pjónusta fyrir þetta tæki skal vera framkvæmd af viðurkenndri þjónustumiðstöð og aðeins má nota upprunalega varahluti.

Elvita CKD6910X - VIÐVÖRUN! - 1

ATHUGADU!

  • Perurnar sem notaðar eru í þessu tæki henta ekki til lýsingar í herbergjum heimilis.
  • Tilgangur ljóssins sem notað er í tækinu er að auðvelt sé að taka matvæli úr tækinu og setja þau í það.

Elvita CKD6910X - ATHUGADU! - 1

  • Aðeins viðurkenndir tæknimenn mega framkvæma viðgerðir.
  • Ef vandamál koma upp varðandi tækið, athugaðu þá hvort notendaleiðbeiningar og bilanagreiningarupplýsingar geta hjálpað þér við að leysa þau. Ef vandamálið er viðvarandi skaltu hafa samband við viðurkenndan tæknimann, viðurkenndan rafvirkja eða smásöluaðilann þar sem varan var keypt.

Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.

Rafmagnskló er ekki í sambandi eða er laus

Tengdu rafmagnskló við rafmagnsinnstungu.

Öryggi hefur sprungið eða er gallað

  1. Athugaðu öryggi og raftengingu.
  2. Ef þau eru ekki í nothæfu ástandi skaltu hafa samband við viðurkenndan rafvirkja.

Biluð innstunga eða rafmagnsbilun

Ef vandamál eru með rafmagnið ætti viðurkenndur rafvirki að leiðrétta það.

Lykt kemur úr hólfunum

Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.

Innra byrði er ekki hreint

Hreinsaðu innra byrði. Sjá hluti "Hreinsaðu kæli- og frystiskápinn", síða 233.

Matvæli, umbúðir eða pakkningar valda lykt

Notið önnur ílát, pakkið matvælum á réttan hátt eða fjarlægið skemmd matvæli úr kæli- og frystiskápnum.

Hitastigið að innan er of hátt

Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.

Stilling hitastigs er stillt á of mikinn hita

Lækkaðu hitastigið. Sjá hluti "Hitastigi í kælihólfi breytt", síða 228, hluti "Hitastigi í frystihólfi breytt", síða 229 og hluti "Hitastigi í breytanlega hólfinu breytt", síða 229.

Hurðirnar hafa verið skildar eftir opnar of lengi eða of oft

Gakktu úr skugga um að hurðin sé alveg lokuð. Athugaðu að hurðunum sé ekki haldið opnum af einhverri hindrun.

Miklu magni af heitum mat var komið fyrir á síðustu 24 klukkustundum

Snúið hitavalshnappinum tímabundið í kaldari stillingu.

Nálægð við hitagjafa

Ef kæli- og frystiskápurinn er settur nálægt hugsanlegum hitagjafa, sjá hluti "Uppsetningarsvæði", síða 239 til að fá aðstoð við rétta staðsetningu.

Hitastigið að innan er of lágt

Hitastigið er stillt of lágt

Auktu hitastigið. Sjá hluti "Hitastigi í kælihólfi breytt", síða 228, hluti "Hitastigi í frystihólfi breytt", síða 229 og hluti "Hitastigi í breytanlega hólfinu breytt", síða 229.

Hávaði úr kæli- og frystiskápnum

Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.

Hávaði er eðlilegur meðan tækið er í gangi

Við venjulega notkun geta nokkur dæmigerð hljóð heyrst frá tækinu. Þetta getur falið í sér:

  • Virkni bjöppu
  • Hringrás kælimiðils

Kæli- og frystiskápur snertir vegg eða aðra hluti

Færið kæli- og frystiskápinn örlítið þannig að það sé nægilegt pláss í kringum hann. Sjá hluti "Uppsetningarsvæði", síða 239.

Hindranir á aftari íhlutum

Ef íhlutur sem staðsettur er aftan á kæli- og frystiskápnum (svo sem rör) er í snertingu við annan hluta kæli- og frystiskápsins eða nærliggjandi yfirborð, ætti að stilla hann varlega af til að tryggja rétt bil.

Hliðarpilið er heitt

Gufuþéttirinn er innan í pilinu

Þegar gufupéttirinn er staðsettur innan í pili er eðlilegt að ytra byrðið sé volgt eða heitt vegna virkni hans.

Ekki hægt að opna skúffu auðveldlega

Endurraðið hlutunum sem hindra að skúffan lokist.

Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.

Umhverfisrakastig er of hátt

Ekki setja kæli- og frystiskápinn upp á stað þar sem mikill raki er. Þurrkið rakapéttinguna af með hreinni þurrku.

Elvita CKD6910X - Umhverfisrakastig er of hátt - 1

ATHUGADU!

Heitt og rakt veðurfar eykur rakapéttingu og hrím. Þetta er eðlilegt og ekki merki um bilun.

Hurðin hefur verið skilin eftir opin of lengi eða opnuð of oft

Gakktu úr skugga um að hurðin sé alveg lokuð. Athugaðu að hurðinni sé ekki haldið opinni af einhverri hindrun.

Vökvi í opnu íláti í kæliskápnum

Ekki geyma vökva í opnu íláti í kæliskápnum. Hyljið eða lokið ílátinu.

Ekki koma kæli- og frystiskápnum fyrir á stöðum þar sem hitastigið fer niður fyrir 10 °C.

Hitastigið er stillt of lágt

Auktu hitastigið. Sjá hluti "Hitastigi í kælihólfi breytt", síða 228, hluti "Hitastigi í frystihólfi breytt", síða 229 og hluti "Hitastigi í breytanlega hólfinu breytt", síða 229.

Rakapétting á ytra byrði kæli- og frystiskápsins

Heitt og rakt veðurfar eykur rakapéttingu. Þetta er eðlilegt og ekki merki um bilun. Þegar rakastigið lækkar hverfur rakapéttingin.

UPPSETNING

Fylgdu leiðbeiningunum í þessum hluta til að setja upp tækið.

Elvita CKD6910X - UPPSETNING - 1

HÆTTA!

Vertu viss um að tækið hafi verið tekið úr sambandi við rafmagn áður en uppsetning fer fram eða aukahlutir stilltir.

Elvita CKD6910X - HÆTTA! - 1

VIÐVÖRUN!

Lestu öryggisupplýsingarnar og leiðbeiningarnar í heild sinni áður en þú setur þetta tæki upp eða notar það.

Elvita CKD6910X - VIÐVÖRUN! - 1

VIÐVÖRUN!

  • Þessi vara er ekki ætluð til notkunar sem innbyggt tæki. • Gætið þess að kælimiðilsrásin skemmist ekki.
  • Þegar tækið er staðsett skal tryggja að ekki sé brengt að rafmagnssnúrunni eða hún verði fyrir skemmdum. Skemmdur rafmagnstengill getur ofhitnað og valdið eldsvoða.
  • Staðsetjið ekki fjöltengi eða færanlega aflgjafa fyrir aftan tækið.
  • Tengið ekki tækið við rafmagnsinnstungu ef tækið er skemmt. Hafið sambandi við smásöluaðilann þar sem tækið var keypt.
  • Notið sérúthlutaða rafmagnsinnstungu, sem þýðir að ekki skal deila rafmagnsinnstungunni með öðrum tækjum.
  • Stinga verður klónni í viðeigandi rafmagnsinnstungu sem er sett upp og jarðtengd samkvæmt öllum staðbundnum lögum og reglugerðum.
  • Ekki nota rafmagnsinnstungu sem hægt er að slökkva á með rofa eða öðrum rafmagnssparnaðarbúnaði.
  • Gangið úr skugga um að tengistærðir tækisins séu samsvarandi við rafveitu. Þessar upplýsingar (stærð öryggja, spenna og tíðni) má finna á merkingu tækisins. Ef vafi leikur á skal ráðfæra sig við viðurkenndan rafvirkja.
  • Notið ekki framlengingarsnúru og lengið ekki rafmagnssnúruna.

Elvita CKD6910X - VIÐVÖRUN! - 1

VARÚÐ!

Farðu varlega þegar tækið er meðhöndlað til að tryggja að það falli ekki og valdi meiðslum.

Elvita CKD6910X - VARÚÐ! - 1

ATHUGIÐ!

Hafið samband við þjónustudeild ef það eru einhver áhyggjuefni varðandi uppsetninguna. Hafðu samband við Elvita þjónustu ef þú þarft hjálp með tækið þitt.

Uppsetningarsvæði

Elvita CKD6910X - Uppsetningarsvæði - 1

VIÐVÖRUN!

  • Þegar tækið er staðsett skal tryggja að ekki sé þrengt að rafmagnssnúrunni og rafmagnstenglinum eða að þau verði fyrir skemmdum. Skemmdur rafmagnstengill getur ofhitnað og valdið eldsvoða.
  • Setja verður þetta tæki á slétt yfirborð úr hörðu efni sem er í sömu hæð og gólfið í kring.
  • Þetta yfirborð á að vera nægilega sterkt til að standa undir tækinu fullhlöðnu.
  • Þegar verið er að staðsetja tækið skal tryggja að hægt sé að komast að rafmagnstenglinum.
  • Setjið bakhlið tækisins ekki of nálægt vegg. Hætta er á eldsvoða ef þjappan ofhitnar.

Elvita CKD6910X - VIÐVÖRUN! - 1

VARÚÐ!

Þessi vara virkar vel innan loftslagsflokka frá SN til T. Sjá hluti "Loftslagsflokkun", síða 245. Tækið gæti ekki virkað rétt ef það er útsett í langan tíma fyrir hitastigi sem er fyrir ofan eða neðan hitastigssviðið sem nær frá 10 °C til 43 °C.

Hafðu eftirfarandi í huga þegar valinn er staður til að setja tækið upp á:

- Forðastu beint sólarljós, rigningu eða frost.

- Haltu frá hitagjöfum, eins og eldavélum, ofnum, eldum, hiturum eða ofnum.

- Forðastu beint sólarljós, rigningu eða frost. - Haltu frá hitagjöfum, eins og eldavélum, ofnum, eldum, hiturum eða ofnum.

• Staðsettu á vel loftræstum stað innandyra. - Ekki setja tækið upp á rökum eða blautum stað. - Yfirborðið á að vera hart, þurrt og lárétt. - Hafðu nægilegt pláss til að hurðirnar og skúffurnar geti auðveldlega opnast, í samræmi við mælivíddirnar.

Til að hallastilla tækið rétt og leyfa hringrás lofts að neðan aftan á tækinu gæti þurft að stilla fæturna. Sjá hluti "Jafnvægisstilling kæli- og frystiskáps", síða 242.

Elvita CKD6910X - VARÚÐ! - 1

Haldið öllum umbúðum fjarri börnum þar sem hætta er á köfnun.

Elvita CKD6910X - VARÚÐ! - 2

ATHUGADU!

Geymið umbúðirnar fyrir hugsanlega flutninga á tækinu í framtíðinni.

1Elvita CKD6910X - ATHUGADU! - 1

  1. Athugaðu hvort einhverjar skemmdir eru á pakkningunum. Ef umbúðirnar eru skemmdar skal ekki taka kæli- og frystiskápinn úr þeim. Hafið samband við smásöluaðilann þar sem varan var keypt.
  2. Fjarlægið pappakassann, plastfilmuna og frauðpakkningarnar.
  3. Fjarlægið pappa og límbönd sem verja hillur og skúffur. Takið aukahlutina og uppsetningarhlutina innan úr kæli- og frystiskápnum.
  4. Athugið hvort einhverjar skemmdir eru á kæli- og frystiskápnum. Ef kæli- og frystiskápurinn er skemmdur skal ekki tengja hann við raftengingu. Geymið umbúðirnar og hafið samband við smásöluaðilann þar sem varan var keypt.

Settu upp skinnurnar

Kæliskápshurðirnar haldast hugsanlega ekki samstilltar ef þær eru mikið hlaðnar matvælum. Settu skinnurnar á til að stilla hurðarstöðuna.

  1. Lyftu kæliskápshurðinni örlítið. Settu skinnuna á miðju lömina. Gerðu þetta fyrir báðar kæliskápshurðirnar.

Elvita CKD6910X - Settu upp skinnurnar - 1

Kæli- og frystiskápurinn er búinn tveimur hallastillingarfótum að framan. Engir stillanlegir íhlutir eru til staðar að aftan. Til að hallastilla eininguna skal stilla hallastillingarfæturna tvo að framan eftir þörfum.

Stillið fæturna þar til allir fæturnir snerta gólfið og kæli- og frystiskápurinn er láréttur. Það kemur í veg fyrir að kæli- og frystiskápurinn hreyfist og hindrar titring.

Elvita CKD6910X - Settu upp skinnurnar - 2

VIÐVÖRUN!

- Gætið þess að klemma ekki hendurnar milli tækisins og undirlagsins eða milli tækisins og fótarins sem verið er að stilla. Hætta á meiðslum! - Yfirborðið sem tækið er uppsett á verður að vera nægilega sterkt til að standa undir fullhlöðnu tæki.

1

Elvita CKD6910X - VIÐVÖRUN! - 2

  1. Athugið hvort einhver af fótunum snerti ekki gólfið, og ef þarf, stillið framfæturna með því að skrúfa fótinn út með hendi eða viðeigandi skrúflykli þar til hann snertir gólfið.

ATHUGIÐ!

  • Snúið fætinum réttsælis til að hækka.
  • Snúið fætinum rangsælis til að lækka.

Elvita CKD6910X - ATHUGIÐ! - 1

Auðveldara er að stilla fæturna ef einhver hallar kæli- og frystiskápnum örlítið.

  1. Notaðu hallamæli til að athuga hvort kæli- og frystiskápurinn sé alveg láréttur og stilltu fæturna aftur ef þarf.

Tveir eða fleiri einstaklingar skulu vera til staðar þegar tækið er flutt eða sett upp til að forðast hættu á meiðslum.

Elvita CKD6910X - ATHUGIÐ! - 2

VARÚÐ!

Ekki halda í hurðina, hurðarhandfangið eða lömina þegar tækið er fært.

Elvita CKD6910X - VARÚÐ! - 1

Elvita CKD6910X - VARÚÐ! - 2

  1. Fjarlægið matvæli og drykkjarföng úr kæli- og frystiskápnum og geymið þau á köldum stað.
  2. Taktu tækið úr sambandi við rafmagn.
  3. Hreinsaðu kæli- og frystiskápinn. Sjá hluti "Hreinsaðu kæli- og frystiskápinn", síða 233.
  4. Festið hillurnar, skúffurnar og fjarlægjanlega hluta með límbandi til að hindra hreyfingar við flutning. Kæli- og frystiskápurinn er tilbúinn fyrir flutning.

ATHUGIÐ! Fylgdu flutningsleiðbeiningunum á umbúðunum.

TÆKNILÝSINGAR

Tæknilýsing

Gerðarkóði tækis Sjá hluti "Finndu gerðarkóðann", síða 226
Hæð 1905 mm
Breidd 910 mm
Dýpt 690 mm
Heildarrúmtak 600 l
Rúmtak kæliskáps 429 l
Rúmtak frystiskáps 81 l
Rúmmál breytanlegs hólfs 90 l
Ráðlögð stilling hitastigs fyrir bestu geymslu á matvælum,4 °Cfersk matvæli
Ráðlögð stilling hitastigs fyrir bestu geymslu á matvælum,18 °C4 stjörnur
Frystigeta 10,4 kg / 24 klst.
Tegund afpíðingar (kæliskápshólf)Sjálfvirkt
Tegund afpíðingar (frystihólf)Sjálfvirkt
Lægsta umhverfishitastig, sem kælitækið hentar fyrir+10°C
Hæsta umhverfishitastig, sem kælitækið hentar fyrir+43°C
Målstraumur1,5 A
Aflgjafi220~240 V, 50 Hz

Orkunýtni

Þú getur fundið upplýsingar um orkusparnað þessa tækis í EPREL, evrópsku vöruskránni fyrir orkumerkingar. Farðu til vefsíðu EPREL og notaðu gerðarauðkennið til að finna upplýsingarnar. Gerðarauðkennið má finna á orkumerkingunni sem fylgir tækinu.

EPREL vefsíða: https://eprel.ec.europa.eu/

Elvita CKD6910X - Orkunýtni - 1

ENERG

Elvita CKD6910X - Orkunýtni - 2

SUPPLIER'S NAME

MODEL IDENTIFIER

Stærðir

910 690 1905

min.50 min.50 min.50

1062 130° 1515

(mm)

Þetta tæki uppfyllir viðeigandi ESB tilskipanir og reglugerðir og ber á sér CE-merkið. Ef það fylgir ekki tækinu er hægt að fá samræmisyfirlýsingu ESB samkvæmt beiðni.

Nothæfi tækisins hefur verið prófað í samræmi við staðal EN 60335 fyrir kælitæki.

Loftslagsflokkun

Flokkur Tákn Umhverfishitastigssvið
Aukið temprað SN +10 °C til +32 °C
Temprað N +16 °C til +32 °C
Heittemprað ST +16 °C til +38 °C
Hitabelti T +16 °C til +43 °C
  • Aukið temprað: Tækið er ætlað til notkunar við umhverfishitastig á bilinu 10 °C til 32 °C.
  • Temprað: Tækið er ætlað til notkunar við umhverfishitastig á bilinu 16 °C til 32 °C.
  • Heittemprað: Tækið er ætlað til notkunar við umhverfishitastig á bilinu 16 °C til 38 °C.
  • Hitabelti: Tækið er ætlað til notkunar við umhverfishitastig á bilinu 16 °C til 43 °C.

Geymdu hin mismunandi matvæli í þeim hólfum sem ráðlagt er og við markhitastigið fyrir geymslu matvælanna. Gerðu þetta til að tryggja bestu varðveisluna í sem lengstan tíma og til að koma í veg fyrir matarsóun.

Elvita CKD6910X - Loftslagsflokkun - 1

VARÚÐ!

  • Tveggja stjörnu (**) hólf fyrir frosin matvæli henta fyrir geymslu forfrystra matvæla, til að geyma eða búa til rjómaís og búa til klaka.
  • Einnar stjörnu (*), tveggja stjörnu (**) og þriggja stjörnu (***) hólfin henta ekki til að frysta fersk matvæli.

Elvita CKD6910X - VARÚÐ! - 1

ATHUGIÐ!

Sumir kæli- og frystiskápar hafa ekki allar þær gerðir hólfa sem taldar eru upp í töflunni að neðan.

Gerð hólfs Markhitastig fyrir geymslu (°C) Viðeigandi matvæli
Kæliskápur +2 ~ +8 Egg, eldaður matur, innpakkaðurmatur, ávextir og grænmeti,mjólkurvörur, kökur, drykkir og önnurmatvæli sem henta ekki til frystingar.
(***)*-Frystiskápur ≤ -18 Sjávarafurðir (fiskur, rækja, skelfiskur),ferskvatnsafurðir og kjötvara(ráðlagður geymslutími 3 mánuðir,bragð versnar og næringarinnihaldminnkar eftir því sem geymslutíminn erlengri), hentar til að frysta ferskmatvæli.
***-Frystiskápur ≤ -18 Sjávarafurðir (fiskur, rækja, skelfiskur),ferskvatnsafurðir og kjötvara(ráðlagður geymslutími 3 mánuðir,bragð versnar og næringarinnihaldminnkar eftir því sem geymslutíminn erlengri), hentar ekki til að frysta ferskmatvæli.
**-Frystiskápur≤ -12 Sjávarafurðir (fiskur, rækja, skelfiskur),ferskvatnsafurðir og kjötvara(ráðlagður geymslutími 2 mánuðir,bragð versnar og næringarinnihaldminnkar eftir því sem geymslutíminn erlengri), hentar ekki til að frysta ferskmatvæli.
*-Frystiskápur≤ -6Sjávarafurðir (fiskur, rækja, skelfiskur),ferskvatnsafurðir og kjötvara(ráðlagður geymslutími 1 mánuður,bragð versnar og næringarinnihaldminnkar eftir því sem geymslutíminn erlengri), hentar ekki til að frysta ferskmatvæli.
0 stjörnur-6 ~ 0Ferskt svínakjöt, nautakjöt, fiskur,kjúklingur, sum innpökkuð unninmatvæli o.s.frv. (Ráðlagt að borðainnan sama dags, helst ekki síðar eneftir 3 daga). Unnin matvæli hjúpuð aðhluta til (matvæli sem ekki má frysta).
Kæling -2 ~ +3 Ferskt/frosið svínakjöt, nautakjöt,kjúklingur, ferskvatnsafurðir o.s.frv.(7 dagar undir 0 °C og yfir 0 °C, mælt með að sé neytt innan bess dags, helst ekki síðar en eftir 2 daga).Sjávarafurðir (undir 0 °C í 15 daga, ekki mælt með að geyma við yfir 0 °C)
Fersk matvæli 0 ~ +4 Ferskt svínakjöt, nautakjöt, fiskur,kjúklingur, eldaður matur o.s.frv.(Ráðlagt að borða innan sama dags, helst ekki síðar en eftir 3 daga)
Vín +5 ~ +20 Rauðvín, hvítvín, freyðivín o.s.frv.
Efnisyfirlit Smelltu á titil til að fá aðgang að honum
Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : Elvita

Líkan : CKD6910X

Flokkur : Kælir