CTT7100V - Lave-linge Elvita - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis CTT7100V Elvita á PDF sniði.
Spurningar notenda um CTT7100V Elvita
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Lave-linge á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína CTT7100V - Elvita og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. CTT7100V vörumerkisins Elvita.
NOTENDAHANDBÓK CTT7100V Elvita
Öryggi við uppsetningu.... 224
Öryggi við notkun.... 225
Öryggi við viðhald 226
Förgun 227
FLÝTIBYRJUN 228
Flytibyrjun 228
HEFJAST HANDA 232
Lærðu á þurrkarann þinn.... 232
Stýringar 232
Tákn á skjánum 232
Aukahlutir 232
Notið barnalæsinguna 233
Finndu gerðarkóðann 233
Fyrir fyrstu notkun.... 233
Keyrðu þurrkunarlotu með lágmarksmagni 233
PURRKUN 234
Fyrir hverja þurrkunarlotu.... 234
Keyrðu þurrkunarlotu 236
Eftir hverja þurrkunarlotu 237
Þvottamerkingar fyrir þurrkun í þurrkara.... 237
Viðmiðunarþyngd fyrir mismunandi gerðir af fötum 237
Valkostir, stillingar og aðgerðir.... 238
Breyta fínstillingum.... 238
Notaðu krumpuvarnarvalkostinn.... 238
Notaðu seinkunarvalkostinn 238
Notaðu hreinlætisvalkostinn 239
Notaðu þagnarvalkostinn 239
Breyttu þurrkstiginu 239
Notaðu aðgerðina „Mitt þvottakerfi” 239
Slökkt/kveikt á hljóðmerki 239
Kveikt og slökkt á ljósinu 239
Þurrkunarkerfi 239
Rúmföt 239
Kalt 240
Baðmull skraufþurrt 240
Baðmull strauþurrt 240
Baðmull venjulegt þurrkstig 240
Gallaefni 241
Blandað efni 241
Miðlungs þvottakerfi 241
Skyrtur 241
Friskun 242
Gerviefni skraufþurrt 242
Gerviefni venjulegt þurrkstig 242
Heitt 242
Ull 242
HREINSUN OG VIDHALD 244
Hreinsaðu ytra byrði.... 244
Hreinsaðu þurrkarann 244
Hreinsaðu hurðarsíuna 245
Tæmdu vatnsílátið 247
Hreinsaðu grunnsíuna.... 248
Hreinsaðu varmaskiptinn.... 250
BILANAGREINING 253
Vélin ræsist ekki 253
Ekki kviknar á skjánum.... 253
Táknið fyrir að tæma vatnsílát er sýnt.... 253
Táknið fyrir að hreinsa síurnar er sýnt.... 254
Tauið er ekki nægilega þurrt eða þurrkun tók of langan tíma.... 254
Þurrkarinn slekkur á sér í lok kerfisins 254
Óeðlilegur hávaði 255
E32 villukóðinn er sýndur 255
E33 villukóðinn er sýndur 255
E64 villukóðinn er sýndur 255
E82 villukóðinn er sýndur 255
Táknið fyrir að tæma vatnsílát er sýnt.... 255
EXX villukóðinn er sýndur.... 256
UPPSETNING 257
Taktu þurrkarann úr umbúðunum 257
Uppsetningarsvæði 258
Hallastilltu þurrkarann 260
Settu frárennslisslönguna í vask 260
VIDAUKI 262
Tæknilýsing.... 262
Stærðir 263
Orkusparnaður 263
Lesið þessar leiðbeiningar vandlega áður en tækið er sett upp og notað. Geymið leiðbeiningarnar nálægt tækinu til síðari nota. Margskonar ábyrgðir munu falla úr gildi ef þessum leiðbeiningum er ekki fylgt.
Viðvaranir

VIÐVÖRUN!
Notaðar þegar hætta er á líkamstjóni.

VARÚÐ!
Notaðar þegar hætta er á því að varan verði fyrir tjóni.

ATHUGIÐ!
Almennar upplýsingar sem þú ættir að vita um.

Hjálpleg ráð sem þér kunna að þykja gagnleg.
Ætluð notkun
Þetta tæki er
- ætlað fyrir þurrkun á dæmigerðu magni af heimilisþvotti, sem þveginn hefur verið með vatni.
- hannað fyrir einkanotkun eingöngu. Það hentar ekki til notkunar í atvinnurekstri eða til samnýtingar (t.d. af nokkrum fjölskyldum í fjölbýlishúsi).
- Ætlað til notkunar innandyra eingöngu.
Notið þetta tæki einungis eins og lýst er í notendahandbókinni. Öll önnur notkun telst óviðeigandi og gæti leitt til skemmda á eigum eða jafnvel líkamstjóns.
Framleiðandinn tekur ekki á sig neina ábyrgð vegna skaða af völdum óviðeigandi notkunar.
Öryggi fyrir börn og fólk með fötlun

VIÐVÖRUN!
Látið eftirfarandi hópa aðeins nota tækið undir umsjón eða ef þeim hafa verið veittar leiðbeiningar um örugga notkun þess. Þau verða að skilja hætturnar sem eru til staðar.
- Börn. (Börn yngri en 8 ára verða að vera undir stöðugu eftirliti.)
- Fólk með minnkaða líkamlega, skynjunarlega eða andlega getu.
- Fólk sem skortir reynslu og þekkingu.

VIÐVÖRUN!
- Leyfið börnum ekki að leika sér með tækið.
- Leyfið börnum ekki að þrífa tækið án eftirlits.

VIÐVÖRUN!
Lokið hurðinni alltaf eftir notkun, og skoðið alltaf innan í tækið fyrir hverja notkun, þar sem hætta er á að:
- Dýr eða börn gætu klifrað inn í tækið.
- Börn gætu falið hluti innan í tækinu.
Almennt öryggi

VIDVÖRUN!
Hætta á rafstuði!
- Ef rafmagnssnúran er skemmd verður henni að vera skipt út af framleiðandanum, þjónustuaðila hans eða sambærilega hæfum einstaklingum til að forðast hættu.
- Beitið ekki afli þegar togað er í rafmagnssnúruna. Togið frekar í rafmagnstengilinn.
- Ekki beygja, klemma eða skemma rafmagnssnúruna og rafmagnstengilinn.
- Meðhöndlið ekki rafmagnstengilinn með blautum höndum.

VIDVÖRUN!
Hætta á sprengingu og eldsvoða!
- Ekki stafla eða geyma olíumengaða hluti í tækinu. Það getur óvænt kviknað í olíumenguðum hlutum, sérstaklega þegar þeir eru útsettir fyrir hitagjöfum eins og í þurrkara: Hlutirnir verða heitir sem veldur oxunarefnahvörfum í olíunni. Oxun myndar hita. Ef það er engin útgönguleið fyrir hitann geta hlutirnir orðið nógu heitir til að kvikni í þeim.
- Tækið inniheldur umhverfisvæna en eldfima kæliefnið R290. Haldið fjarri opnum eldi og öðrum íkveikivöldum.
- Hreinsið þetta tæki ekki með íðefnum til iðnaðarnota.

VIDVÖRUN!
Þéttivatn er ekki drykkjarvatn. Ef þess er neytt getur það valdið heilsufarsvandamálum hjá bæði fólki og dýrum.

VARÚÐ!
- Styðjið ykkur ekki við opna hurð þurrkarans.
- Ekki snúa tækinu á hvolf við viðhald eða venjulega notkun.
- Sprautið ekki vatni beint á tækið.

VARÚÐ!
Færið tækið varlega. Óviðeigandi meðhöndlun tækisins getur leitt til meiðsla. Þegar tækið er fært:
- Ekki lyfta, bera eða á annan hátt flytja tækið án aðstoðar. Tækið er þungt.
- Notið ekki útstæða hluta tækisins til að lyfta því.
- Notið ekki hurð tækisins sem handfang þegar tækinu er lyft eða beint.
- Æskilegt er að hafa þurrkarann í uppréttri stöðu þegar hann er færður. Hallið ekki þurrkaranum meira en 30°.
Öryggi við uppsetningu
Fylgja verður staðbundnum lögum og reglugerðum um raflagnir.

VIÐVÖRUN!
Haldið öllu umbúðaefni vel fjarri börnum. Það er hætta á köfnun!

VIÐVÖRUN!
- Fjarlægið allt umbúðaefni áður en tækið er notað.

VIDVÖRUN!
- Athugið hvort einhverjar skemmdir séu sjáanlegar á tækinu áður en það er sett upp. Setjið ekki upp né notið skemmt tæki.
- Takið ekki í sundur né setjið upp tækið án leiðbeininga eða leiðsagnar.

VIDVÖRUN!
Loftræsting þarf að vera nægileg til að hindra bakflæði lofttegunda inn í herbergið frá tækjum sem brenna önnur eldsneyti, þ.m.t. opnum eldum.

VIDVÖRUN!
- Setjið tækið ekki upp fyrir aftan læsanlega hurð, rennihurð eða hurð á hjörum gagnstætt tækinu á þann hátt að ekki sé hægt að opna það.
- Ef stafla á tækinu ofan á þvottavél verður að nota stöflunarbúnað (sérpantaður). Til að forðast hættur má aðeins framleiðandinn, þjónustuaðili hans eða sambærilega hæfur tæknimaður stafla tækjunum.

VIDVÖRUN!
Hætta á rafstuði!
- Þetta tæki samsvarar verndarflokki I og verður að vera tengt við tengil með rétt uppsettum varnarleiðara.
- Rafmagnssnúra tækisins verður að vera tengd við jarðtengda innstungu. Ef vafi leikur á skal láta hæfan rafvirkja prófa lagnakerfi heimilisins. Ekki verður hægt að gera framleiðandann ábyrgan fyrir afleiðingum ófullkomins jarðtengibúnaðar (t.d. rafstuði).
- Áður en tækið er sett í samband skal ganga úr skugga um að tengigildi tækisins séu í samræmi við rafveituna. Þessar upplýsingar (styrkur öryggja, spenna og tíðni) má finna á merkiplötunni. Ef þú ert í vafa skaltu ráðfæra þig við viðurkenndan rafvirkja.
- Tengið tækið ekki við rafmagn með framlengingarsnúru, fjöltengi eða svipuðu.
- Verið viss um að rafmagnstengillinn sé alltaf aðgengilegur þannig að hægt sé að aftengja tækið frá rafveitunni.

VIDVÖRUN!
Hætta á rafstuði!
- Notið ekki ytri tímastilla eða aðskilinn fjarstýribúnað til að stjórna tækinu.

VARÚÐ!
- Fjarlægið allar hindranir á flutningsleiðinni til uppsetningarstaðarins.
- Setjið tækið ekki upp í herbergi þar sem hætta er á að frost verði. Tækið gæti ekki virkað rétt við hitastig undir frostmarki og það er hætta á skemmdum á tækinu ef þéttivatninu er leyft að frjósa í dælunni og slöngunum.
- Hafið tækið ekki í beinu sólarljósi.
- Setjið tækið ekki upp í umhverfi þar sem er raki eða mikil bleyta.
Öryggi við notkun

VIDVÖRUN!
Gangið úr skugga um að tækið sé rétt uppsett áður en það er notað.

VIDVÖRUN!
Hætta á sprengingu og eldsvoða!
- Fjarlægið alla hluti úr vösunum, sérstaklega kveikjara, eldspýtur og svipaða hluti áður en föt eru þurrkuð.
- Ef ekki verður hjá því komist að þurrka hluti sem hafa óhreinkast með efnum eins og matreiðsluolíu, hársnyrtivörum, asetoni, alkóhóli, jarðolíu, steinolíu, blettahreinsum, terpentínu, bóni og bónleysum, þá verður að þvo slíka hluti í heitu vatni með aukamagni af þvottaefni áður en þurrkað er. Þetta minnkar hættuna en kemur ekki í veg fyrir hana.
- Notið ekki tækið ef það hefur verið hreinsað með iðnaðarefnum.
- Ekki skal stöðva þurrkarann áður en þurrkunarlotunni er lokið nema allir hlutir séu teknir fljótt út og breitt úr þeim þannig að hitinn dreifist.
- Gangið úr skugga um að ekkert hindri opnun tækisins.
- Minnkið ekki bilið frá gólfi með djúpum loðnum teppum eða viðarræmum. Það gæti valdið því að hiti safnaðist upp sem gæti haft áhrif á virkni tækisins.
- Ekki má leyfa ló að safnast upp í kringum tækið.

VIÐVÖRUN!
Hætta á sprengingu og eldsvoða! Þurrkið ekki eftirfarandi í tækinu.
- Óþvegna hluti.
- Hluti eins og
- frauðgúmmí (latexkvoða),
- baðhettur
- vatnsþétt textílefni,
- gúmmístyrkta hluti og
- fatnað eða kodda með froðugúmmípúðum.
- Hluti sem hafa verið þrifnir með, þvegnir í, gegnbleyttir með eða lauslega borið á með eldfimum eða sprengifimum efnum eins og
- bóni,
- olíu,
- málningu,
- bensíni,
- fituhreinsi,
- leysiefnum fyrir þurrhreinsun,
- steinolíu.

VIÐVÖRUN!
- Ef tækið virðist vera óeðlilega heitt skal taka það tafarlaust úr sambandi frá rafmagni.

VIÐVÖRUN!
- Notið ekki þurrkarann án vatnsílátsins.
- Notið ekki þurrkarann án hurðarsíunnar og grunnsíunnar.

VARÚÐ!
- Setjið ekki meira tau í tækið en hámarkshleðsluna sem tilgreind er í notendaleiðbeiningunum. Sjá viðkomandi kafla í leiðbeiningunum. Athugið að hámarkshleðsla er mismunandi fyrir mismunandi þurrkunarkerfi.
- Setjið fötin alltaf á vindingu áður en þau eru þurrkuð. Þurrkið ekki þvott sem er rennblautur.
Öryggi við viðhald

VIÐVÖRUN!
Hætta á meiðslum! Snertið ekki varmaskiptinn sjálfan.

VARÚÐ!
- Notið ekki leysiefni, svarfandi hreinsiefni, glerhreinsa eða alhliða hreinsiefni til að hreinsa þetta tæki. Það gæti skemmt plastyfirborð og önnur yfirborð.
- Verið með hanska þegar tækið er þrifið.
- Setjið síurnar alltaf aftur í eftir hreinsun. Notið ekki tækið án neinnar af síunum.
Förgun

Fargið umbúðum á umhverfisvænan hátt. Með því að setja umbúðir í endurvinnslu, samkvæmt reglum lands og staðar, er hægt að draga úr notkun hráefna og magni úrgangs í landfyllingum.
Þetta tæki er merkt í samræmi við Evróputilskipun 2012/19/ESB, rafmagns- og rafeindatækjaúrgangur (WEEE). Táknið á tækinu eða á umbúðum þess gefur til kynna að ekki skuli meðhöndla það sem heimilisúrgang. Í staðinn skal afhenda það til viðeigandi söfnunarstöðvar fyrir endurvinnslu rafmagns- og rafeindatækjaúrgangs.
Með því að tryggja rétta förgun tækisins hjálpar þú við að koma í veg fyrir mögulega neikvæðar afleiðingar fyrir umhverfið og heilsu manna, sem að öðrum kosti gætu orðið vegna óviðeigandi meðhöndlunar úrgangs vegna þessa tækis. Til að fá nánari upplýsingar um endurvinnslu þessa tækis skaltu hafa samband við viðkomandi bæjaryfirvöld sem sjá um sorphirðu, heimilissorpþjónustu eða verslunina þar sem þú keyptir tækið.
FLÝTIBYRJUN
Flýtibyrjun
Fyrir þurrkun
Þurrkun
Lærðu á þurrkarann þinn
Stýringar
A. Kerfisval B. Skjár C. ON/OFF D. Start/Hlé E. Valkostir, stillingar og aðgerðir
Tákn á skjánum



Þurrkstig: Skraufþurrt Barnalæsing Hreinsa síurnar Tæmdu vatnsílátið





A. Frárennslisslönguhaldari B. Framlenging frárennslisslöngu með tengi
Framlenging frárennslisslöngu með tengi til að framlengja slönguna.
Notið barnalæsinguna
Virkjaðu barnalæsinguna til að hindra að börn opni óvart.
Aðeins er hægt að virkja barnalæsinguna þegar þurrkunarkerfi er virkt.
- Snertu og haltu í 2 og 3 sekúndur til að virkja barnalæsinguna. Allir hnappar verða læstir.
- Snertu og haltu í 2 og 3 sekúndur til að gera barnalæsinguna óvirka. Slökkt er á barnalæsingunni og hún hverfur.
Finndu gerðarkóðann

Gerðarkóðinn er prentaður á merkimiða á tækinu. Þú þarft kóðann til að finna allar og nýjustu upplýsingarnar, þjónustuna og aðstoðina fyrir þína gerð af tæki.

ATHUGADU!
Þetta tæki og textamerking eru dæmi. Tækið þitt og texti gætu haft annað útlit og innihald.
Fyrir fyrstu notkun
Keyrðu þurrkunarlotu með lágmarksmagni
Áður en þú notar þurrkarann í fyrsta sinn skaltu láta hann standa í a.m.k. tvær klukkustundir eftir flutning.
- Þrifðu innan úr tromlunni með mjúkum klút.
- Settu nokkrar hreinar tuskur inn í tromluna.
- Stingdu þurrkaranum í samband við rafmagn og kveiktu á.
- Veldu Frískun kerfið og ýttu á .
- Fjarlægðu tuskurnar þegar kerfið er búið.
- Hreinsaðu hurðarsíuna. Sjá hluti "Hreinsaðu hurðarsíuna", síða 245.
- Tæmdu vatnsílátið. Sjá hluti "Tæmdu vatnsílátið", síða 247.
Þurrkarinn þinn er tilbúinn til notkunar.
ÞURRKUN
Fyrir hverja þurrkunarlotu
- Athugaðu þvottamerkingarnar, sjá hluti "Þvottamerkingar fyrir þurrkun í þurrkara", síða 237.

- Flokkaðu tauið eftir gerð efnis og þurrkunarkerfi. Vertu viss um að fara ekki yfir hámarksmagn fyrir þurrkunarkerfið sem þú ætlar að nota, sjá hluti "Viðmiðunarþyngd fyrir mismunandi gerðir af fötum", síða 237 og hluti "Þurrkunarkerfi", síða 239.
ATHUGIÐ! Hámarksmagn vísar til þyngdar á þurru taui.

- Fjarlægðu alla hluti úr vösunum.
VIÐVÖRUN! Hlutir eins og eldspýtur og kveikjarar geta valdið eldhættu.

Hár vinduhraði styttir þurrktímann og sparar orku.

- Lokaðu sængurverum og koddaverum til að koma í veg fyrir að smáir hlutir vefjist inn í þau.

- Hafðu jakka opna og opnaðu alla langa rennilása svo efnið þorni jafnt.

- Settu öll brjóstahöld með vírahöldum í þvottapoka.

Þurrkaðu ekki þvott sem er rennblautur.
- Settu rafmagnstengilinn í innstunguna.

Ef rofi er notaður með innstungunni skaltu nota hann til að kveikja á raftengingunni.
- Settu í þurrkarann.
VARÚÐ! Hámarksmagn fer eftir kerfinu.
- Ýttu á C til að kveikja á rafmagninu.
Skjárinn lýsist upp.
- Snúðu kerfisvalinu til að velja kerfi.
ATHUGADU! Þegar verið er að þurrka venjulegt bómullartau þá er „Bómull venjulegt” það kerfi sem er mest orkusparandi.
ATHUGADU! Ofþurrkuð föt hafa tilhneigingu til að krumpast. Gættu að því hvaða stillingar þú velur.
- Veldu aðgerðir og valkosti ef þarf.
- Ýttu á til að ræsa þurrkarann.
Tromlan byrjar að snúast. Sýndur er fasi lotunnar og tíminn sem eftir er. Þjappan og vatnið munu mynda nokkurn hávaða. Þetta er alveg eðlilegt.
- Þegar þurrkunarkerfinu er lokið skaltu taka úr þurrkaranum.
VIÐVÖRUN! Opnaðu hurðina einungis eftir að þurrkunarkerfinu er lokið til að forðast að brenna þig á heitri gufu eða þurrkaranum ef hann hefur ofhitnað.

Það getur verið erfitt að þurrka þykk og marglaga föt. Ef þér finnst að þvotturinn sé ennþá of rakur skaltu velja tímastillt kerfi fyrir frekari þurrkun.
Krumpuvarnaraðgerðin byrjar ef ekki er tekið úr þurrkaranum. Hægt er að taka úr þurrkaranum hvenær sem er í krumpuvarnarlotunni.
- Ýttu á C til að slökkva á rafmagninu.
- Fjarlægðu tengilinn úr innstungunni.

Ef rofi er notaður með innstungunni skaltu nota hann til að slökkva á raftengingunni.
Eftir hverja þurrkunarlotu
Fylgdu þessum skrefum til að viðhalda réttri virkni og halda þurrktímanum sem stystum og orkunotkun sem minnstri.
- Hreinsaðu hurðarsíuna, sjá hluti "Hreinsaðu hurðarsíuna", síða 245.
- Tæmdu vatnsílátið, sjá hluti "Tæmdu vatnsílátið", síða 247. Á ekki við ef frárennslisslangan er tengd beint við ytra frárennsli.
Þvottamerkingar fyrir þurrkun í þurrkara
Athugaðu þvottamerkingarnar á tauinu til hjálpar við val á hentugu þurrkunarkerfi.

Hentar fyrir þurrkun í þurrkara.

Þurrkið við venjulegt hitastig.

Þurrkið við lágt hitastig.

Þurrkið ekki í þurrkara.
Viðmiðunarþyngd fyrir mismunandi gerðir af fötum
Viðmiðunarþyngd fyrir þurr föt (þyngd hvers hlutar).

Peysa, blandað efni (800 g)

Stuttermabolur, baðmull (180 g)

Náttföt (200 g)

Einfalt lak, baðmull (600 g)

Jakki, baðmull (800 g)

Skyrta, baðmull (300 g)

Baðhandklæði, baðmull (900 g)

Gallaefni (800 g)

Vinnuföt (1120 g)

Sokkar, blandað efni (50 g)
Valkostir, stillingar og aðgerðir

Krumpuvörn, Mitt þvottakerfi
- Krumpuvörn: Kemur í veg fyrir að tauið verði krumpað. Sjá hluti "Notaðu krumpuvarnarvalkostinn", síða 238.
- Mitt þvottakerfi: Vistar uppáhalds samsetningu þína af þvottakerfum og valkostum. Sjá hluti.

Barnalæsing
Kemur í veg fyrir að vélin sé notuð fyrir slysni. Sjá hluti "Notið barnalæsinguna", síða 233.

Seinkun
Seinkar byrjun þurrkunarferlisins um ákveðinn tíma. Sjá hluti "Notaðu seinkunarvalkostinn", síða 238.

Þurrkstig
Stillir þurrkstig. Tíminn sem þarf til að ná tilgreindu þurrkstigi er mismunandi eftir kerfum. Sjá hluti "Breyttu þurrkstiginu", síða 239.

Hreinlæti, Ljós
- Hreinlæti: Eykur hitunartímann til að fjarlægja skaðlegar bakteríur. Sjá hluti "Notaðu hreinlætisvalkostinn", síða 239.
- Ljós: Kveikir og slekkur á ljósinu. Sjá hluti "Kveikt og slökkt á ljósinu", síða 239.

Þögn
Minnkar hávaða vélarinnar. Sjá hluti "Notaðu þagnarvalkostinn", síða 239.

Tími, Hljóð af/á
- Tími: Stillir þurrkunartímann. Sjá hluti "Breyta tímastillingum", síða 238.
- Hljóð af/á: Slekkur og kveikir á hljóðmerkinu. Sjá hluti "Slökkt/kveikt á hljóðmerki", síða 239.
Breyta tímastillingum
Þessi stilling er tiltæk með kerfunum Kalt, Friskun og Heitt.
- Snúðu kerfisvalinu til að velja kerfi.
- Snertu C til að fara í gegnum mögulega þurrkunartíma (frá 10 mínútum upp í 3 klukkustundir).
- Ýttu á
Notaðu krumpuvarnarvalkostinn
- Snúðu kerfisvalinu til að velja kerfi.
- Snertu E til að fara í gegnum mögulega tíma fyrir krumpuvörn (30 mín, 60 mín, 90 mín). Sjálfgefinn tími er 60 mín.
- Ýttu á

Hægt er að taka tau úr þurrkaranum hvenær sem er í krumpuvarnarfasanum.
Notaðu seinkunarvalkostinn
- Snúðu kerfisvalinu til að velja kerfi.
- Breyttu stillingum og veldu valkosti ef þarf.
- Snertu G til að fara í gegnum alla mögulega seinkunartíma.
- Snertu
Þurrkunarlotan hefst eftir að seinkunartíminn er liðinn.

ATHUGADU!
Ýttu á til að gera hlé á niðurtalningu seinkunartímans. Ýttu á til að hætta við seinkunarvalkostinn.
Notaðu hreinlætisvalkostinn

ATHUGADU!
Notaðu þennan valkost af varúð fyrir létt, þunnt eða viðkvæmt tau.
- Snúðu kerfisvalinu til að velja kerfi.
- Snertu
ATHUGADU! Snertu til að hætta við.
Notaðu þagnarvalkostinn
- Snúðu kerfisvalinu til að velja kerfi.
- Snertu
- Ýttu á
Breyttu þurrkstiginu
Hægt er að stilla þurrkstigið fyrir öll kerfi nema Baðmull straupurrt, Ull, Kalt, Friskun og Heitt.
- Snúðu kerfisvalinu til að velja kerfi.
- Snertu til að fara í gegnum möguleg þurrkstig (straupurrt, venjulegt þurrkstig, skraufþurrt).
Notaðu aðgerðina „Mitt þvottakerfi“
Hægt er að vista kerfi sem er oft notað fyrir flýtiaðgang.
- Veldu kerfi og stillingarnar og valkostina sem þú vilt nota.
- Snertu og haltu í 3 sekúndur til að bæta núverandi kerfi og stillingum við minnið.
Kerfið og stillingar eru nú geymd og hægt að nota með því að snúa kerfisvalinu til Mitt þvottakerfi
Slökkt/kveikt á hljóðmerki

ATHUGADU!
Hljóðmerkið heyrist ekki ef slökkt hefur verið á því.
- Snertu og haltu í 3 sekúndur til að slökkva á hljóðmerkinu.
- Snertu og haltu í 3 sekúndur til að kveikja á hljóðmerkinu.
- Snertu og haltu í 3 sekúndur til að kveikja á ljósinu.
ATHUGADU! Ljósið mun lýsa í 3 mínútur. Ljósið mun lýsa í 1 mínútu ef hurðin er opin.
- Snertu og haltu í 3 sekúndur til að slökkva á ljósinu.
Þurrkunarkerfi
Rúmföt
Fyrir rúmföt, lök eða aðra stóra hluti.
| Själfgefinn tími 2:50 | |
| Hámarksmagn 5,0 kg | |
| Valkostir • Krumpuvörn | SeinkunPurrkstigHreinlætiPögn |
Kalt
Til að lofta einstaka hluti án hitunar.
| Själfgefinn tími 0:10 | |
| Hámarksmagn - | |
| Valkostir • Seinkun | • Tími |
Baðmull skraufpurrt
Fyrir baðmullartau sem þurrka skal alveg og ganga frá án tafar. Mælt með fyrir þykka hluti og hluti með mörgum lögum, t.d. jakka.
| Själfgefinn tími 4:48 | |
| Hámarksmagn 10,0 kg | |
| Valkostir • Krumpuvörn | SeinkunPurrkstigHreinlætiPögn |
Baðmull straupurrt
Fyrir baðmullartau með einföldu lagi sem á að strauja. Skilur tauið eftir örlítið rakt til að árangur við straujun verði betri.
| Själfgefinn tími 2:20 | |
| Hámarksmagn 10,0 kg | |
| Valkostir • Krumpuvörn | SeinkunPurrkstig (Strauburrt, Venjulegt burrkstig) |
Baðmull venjulegt þurrkstig
Fyrir ein- og marglaga baðmullartau sem þurrka skal alveg og ganga frá í beinu framhaldi.

ATHUGADU!
Sparið orku! Baðmull venjulegt þurrkstig er það kerfi sem er mest orkusparandi fyrir þurrkun á blautu baðmullartaui.
| Själfgefinn tími 2:55 | |
| Hámarksmagn 10,0 kg | |
| Valkostir • Krumpuvörn | SeinkunPurrkstigHreinlætiPögn |
Gallaefni
Fyrir gallaefni eða frístundaföt. Mikill vinduhraði.
| Själfgefinn tími 2:40 | |
| Hámarksmagn 5,0 kg | |
| Valkostir • Krumpuvörn | SeinkunPurrkstigHreinlætiPögn |
Blandað efni
Fyrir efni sem eru blanda af baðmull og gerviefnum.
| Själfgefinn tími 1:40 | |
| Hámarksmagn 4,0 kg | |
| Valkostir • Krumpuvörn | SeinkunPurrkstigHreinlætiPögn |
Mitt þvottakerfi
Skilgreindu og vistaðu uppáhalds samsetningu þína af þvottakerfum og valkostum. Sjá hluti "Notaðu aðgerðina „Mitt þvottakerfi”", síða 239
Skyrtur
Fyrir föt með auðvelda umhirðu, t.d. straufríar skyrtur og blússur.

Gætið að því að krumpa ekki eða brjóta fötin þegar þau eru sett í þurrkarann. Þegar þurrkun er lokið skal taka fötin fljótt úr þurrkaranum og hengja þau upp.
| Själfgefinn tími 1:00 | |
| Hámarksmagn 1,0 kg | |
| Valkostir • Krumpuvörn | SeinkunPurrkstigHreinlætiPögn |
Friskun
Til að fríska föt, til dæmis föt sem eru geymd í lokuðu umhverfi í langan tíma, eða til að fjarlægja lykt.
| Själfgefinn tími 0:20 | |
| Hámarksmagn 1,0 kg | |
| Valkostir • Seinkun | • Tími |
Gerviefni skraufpurrt
Fyrir þykk eða marglaga klæði úr gerviefnum. Hefur það markmið að þurrka efnið fullkomlega.
| Själfgefinn tími 1:30 | |
| Hámarksmagn 4,0 kg | |
| Valkostir • Krumpuvörn | SeinkunPurrkstigHreinlætiPögn |
Gerviefni venjulegt þurrkstig
Fyrir þunn gerviefni sem ekki verða straujuð. Til dæmis straufríar skyrtur, barnaföt eða sokkar.
| Själfgefinn tími 1:20 | |
| Hámarksmagn 4,0 kg | |
| Valkostir • Krumpuvörn | SeinkunPurrkstigHreinlætiPögn |
Heitt
Til að þurrka einstaka hluti eða ljúka þurrkunarferli fyrirferðarmikilla hluta, til dæmis kodda, eða hluta sem gerðir eru úr efni sem hafa öðruvísi hegðun við þurrkun, til dæmis jakkar.
| Själfgefinn tími 0:10 | |
| Hámarksmagn - | |
| Valkostir • Krumpuvörn | SeinkunPögnTími |
Ull
Fyrir ullarvörur sem setja má í þurrkara.
| Sjálfgefinn tími 2:05 | |
| Hámarksmagn 1,0 kg | |
| Valkostir • Seinkun | • Tími |
HREINSUN OG VIÐHALD
Rétt viðhald tækis þíns getur lengt endingartíma þess.

VIÐVÖRUN!
Taktu vélina úr sambandi áður en viðhald er hafið.

VARÚD!
Notaðu ekki alkóhól, leysiefni eða kemísk efni til að hreinsa tækið.
Hreinsaðu ytra byrði
- Þegar þarf skal hreinsa yfirborðið með útbynntu ósvarfandi hlutlausu hreinsiefni.
- Ef vatn hefur flætt skal þurrka það tafarlaust með klút.

VARÚD!
- Notaðu ekki beitt hreinsunaráhöld.
- Notaðu ekki maurasýru eða leysiefni, eins og alkóhól og kemísk efni, o.s.frv.
Hreinsaðu þurrkarann
Notaðu rakan klút.
- Hreinsaðu hurðina, sérstaklega innan á glugganum.

- Hreinsaðu þéttinguna í kringum hurðaropið.

- Hreinsaðu rakaskynjarann innan í tromlunni.

- Fjarlægðu og hreinsaðu grunnsíuna.

- Fjarlægðu og hreinsaðu hurðarsíuna.

Þurrkaðu alla hluta þurrkarans með mjúkum klút áður en hann er ræstur aftur.
Hreinsaðu hurðarsíuna
Gerið þetta eftir hverja þurrkunarlotu.
- Opnaðu hurðina.

- Opnaðu síuna og fjarlægðu kuskið. Ef þess þarf skaltu hreinsa síuna með vatni og þurrka hana vandlega.

VARÚÐ! Vertu viss um að setja síuna í rétta stefnu.

Gerið þetta eftir hverja þurrkunarlotu.
- Togaðu út og haltu vatnsílátinu láréttu með báðum höndum.

- Hallaðu vatnsílatinu og helltu þéttivatninu í vaskinn. VIÐVÖRUN! Drekktu ekki þéttivatnið.

- Settu vatnsilátið í.

Hreinsaðu grunnsíuna
Gerðu þetta eftir fimmtu hverja þurrkunarlotu.
- Opnaðu hlífina.

- Opnaðu læsihandföngin þrjú.

- Griptu í handfang síunnar og fjarlægðu síuna.

- Hreinsaðu síuna. Ef þörf er á skaltu skola síuna með vatni og þurrka vandlega á eftir.

- Hreinsaðu gúmmíþéttinguna, bæði hjá síunni og handfanginu.

- Lokaðu hlífinni þar til þú heyrir smell.

Hreinsaðu varmaskiptinn
Framkvæmist þegar þörf er á, venjulega á 6 mánaða fresti.

ATHUGADU!
Hreinsaðu varmaskiptinn reglulega til að viðhalda styttri þurrkunartíma og minni orkunotkun.
- Opnaðu hlífina.

- Opnaðu læsihandföngin þrjú.

- Griptu í handfang síunnar og fjarlægðu grunnsíuna.

- Fjarlægðu kusk frá varmaskiptinum með ryksugu með áfestum bursta.
VARÚÐ! Ekki beita þrýstingi. Beiting þrýstings getur skemmt kæliuggana og valdið verri árangri við þurrkun.

Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.
Hurðin er ekki rétt lokuð
Lokaðu hurðinni.
Vélin er ekki tengd við rafmagn.
Tengdu rafmagnssnúruna við rafmagnsinnstunguna.
Ekkert kerfi hefur verið valið.
Veldu kerfi.
Þú gleymdir að ýta á Start/Hlé hnappinn.

Ýttu á hnappinn.
Ekki er kveikt á vélinni.
Kveiktu á vélinni.
Ekki kviknar á skjánum.
Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.
Raftenging virkar ekki.
- Athugaðu hvort raftengingin virkar.
- Ef hún virkar ekki skaltu hafa samband við rafvirkja á staðnum.
Rafmagnskló hefur ekki verið sett í.
Tengdu rafmagnskló við rafmagnsinnstungu.
Ekkert kerfi hefur verið valið
Veldu kerfi.
Ekki er kveikt á vélinni

Ýttu á ON/OFF hnappinn.
Táknið fyrir að tæma vatnsílát er sýnt

Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.
Vatnsílát er fullt
- Helltu þéttivatninu úr.
- Endurræstu þurrkarann. Sjá hluti "Tæmdu vatnsílátið", síða 247.
Vatnsílát er fullt
- Endurræstu þurrkarann ef ílátið er ekki fullt.
- Ef táknið fyrir að tæma vatnsílátið er ennþá sýnt eftir að þurrkarinn hefur verið endurræstur, hafðu samband við þjónustu. Hafðu samband við Elvita þjónustu ef þú þarft hjálp með tækið þitt.
Táknið fyrir að hreinsa síurnar er sýnt

Hurðarsían er full eða þarfnast hreinsunar
Hreinsaðu hurðarsíuna, sjá hluti "Hreinsaðu hurðarsíuna", síða 245.
Tauið er ekki nægilega þurrt eða þurrkun tók of langan tíma.
Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.
Hurðarsía og varmaskiptir þarfnast hreinsunar.
Hreinsaðu hurðarsíuna, sjá hluti "Hreinsaðu hurðarsíuna", síða 245 og varmaskiptinn, sjá hluti "Hreinsaðu varmaskiptinn", síða 250.
Uppsetningarsvæðið uppfyllir ekki kröfurnar.
Aðlagaðu uppsetningarsvæðið eða færðu þurrkarann.
Loftinntak er ekki hreint.
Haltu loftinntakinu hreinu.
Þurrkunarkerfið og stillingarnar sem valin voru eru ekki viðeigandi.
Ef mögulegt er skaltu aðlaga Þurrkstigið og/eða Þurrkunartímann. Hugleiddu að velja annað Þurrkunarkerfi.
Frárennslisslanga þarfnast hreinsunar.
Hreinsaðu frárennslisslönguna.
Vatnsílát er fullt.
Helltu þéttivatninu úr.
Purrkarinn slekkur á sér í lok kerfisins
Purrkarinn slekkur sjálfkrafa á sér til að spara orku
Þetta er ekki villa heldur eðlileg aðgerð.
Óeðlilegur hávaði
Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.
Pjappan er í notkun
Þessi hávaði er eðlilegur og þýðir ekki að neitt sé að.
Vélin er ekki hallastillt
Hallastilltu vélina. Sjá hluti "Hallastilltu purrkarann", síða 260.
E32 villukóðinn er sýndur
Rakaskynjaravilla
Hafðu samband við þjónustuaðila á staðnum ef þetta vandamál kemur upp.
E33 villukóðinn er sýndur
Hitastigsskynjaravilla
Hafðu samband við þjónustuaðila á staðnum ef þetta vandamál kemur upp.
E64 villukóðinn er sýndur
Samskiptavilla í BLDC-mótor
Hafðu samband við þjónustuaðila á staðnum ef þetta vandamál kemur upp.
E82 villukóðinn er sýndur
Samskiptavilla í PCB
Hafðu samband við þjónustuaðila á staðnum ef þetta vandamál kemur upp.
Táknið fyrir að tæma vatnsílát er sýnt

Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.
Bilun í vatnsdælu eða vatnshæðarskynjara
Hafðu samband við þjónustuaðila á staðnum ef þetta vandamál kemur upp.
Ílát er fullt
Tæmdu ílát.
EXX villukóðinn er sýndur
Önnur vandamál
Reyndu aftur. Hafðu samband ef vandamálið er viðvarandi. Hafðu samband við Elvita þjónustu ef þú þarft hjálp með tækið.
UPPSETNING
Fylgdu leiðbeiningunum í þessum hluta til að setja upp þurrkarann.

VIÐVÖRUN!
- Ef stafla á þurrkaranum ofan á þvottavél verður að nota stöflunarbúnað (sérpantaður). Til að forðast hættur má aðeins framleiðandinn, þjónustuaðili hans eða sambærilega hæfur tæknimaður stafla vélunum.
- Gakktu úr skugga um að loft geti flætt óhindrað í kringum þurrkarann. Hindraðu ekki loftinntakið að framan eða loftinntaksristirnar aftan á þurrkaranum.
- Ef rafmagnssnúran er skemmd verður henni að vera skipt út af framleiðandanum, þjónustuaðila hans eða sambærilega hæfum einstaklingum til að forðast hættu.
- Til að tryggja öryggi þitt skaltu tengja tengilinn í jarðtengda innstungu. Athugaðu vandlega að innstungan þín sé jarðtengd á réttan og áreiðanlegan hátt. Ef þú ert í vafa skaltu hafa samband við viðurkenndan rafvirkja. • Tengdu þurrkarann ekki við rafmagn með framlengingarsnúru, fjöltengi eða svipuðu.
- Áður en þurrkarinn er settur í samband skal ganga úr skugga um að tengigildi þurrkarans séu í samræmi við rafveituna. Sjá tæknilýsingarnar í þessari handbók. Upplýsingarnar má einnig finna á merkingu á þurrkaranum. Ef þú ert í vafa skaltu ráðfæra þig við viðurkenndan rafvirkja.
- Tryggðu að rafmagnstengillinn sé alltaf aðgengilegur þannig að hægt sé að aftengja þurrkarann frá rafveitunni.
Taktu þurrkarann úr umbúðunum
- Fjarlægðu pappakassann og froðuplastumbúðirnar.

- Lyftu tækinu og fjarlægðu grunnumbúðirnar.

- Fjarlægðu aukahlutina úr tromlunni.

Haldið öllu umbúðaefni vel fjarri börnum. Það er hætta á köfnun!
Uppsetningarsvæði
Hafðu eftirfarandi í huga þegar þú velur stað til að setja þurrkarann upp á:
- Yfirborðið á að vera hart, þurrt og lárétt. Stöðugleiki er mikilvægur til að koma í veg fyrir að vélin hreyfist úr stað og heldur titringi og hávaða í lágmarki.

- Staðsetningin verður að vera hrein og ekki má leyfa óhreinindum að safnast upp.
- Forðist beint sólarljós.
- Loftræsting sé nægileg. • Herbergishitastig sé yfir 0 °C.
- Haldið fjarlægð frá hitagjöfum eins og kol- eða gastækjum.
- Við mælum með að tækið sé staðsett nálægt þvottavélinni til hægðarauka fyrir þig.

VIÐVÖRUN!
• Gakktu úr skugga um að þurrkarinn standi ekki ofan á rafmagnssnúrunni. - Tengillinn verður að vera aðgengilegur eftir uppsetningu.

VIÐVÖRUN!
Ekki má nota tækið í herbergjum þar sem mikil bleyta er eða í herbergjum þar sem hætta er á myndun sprengifims eða ætandi gaslofts.

VARÚÐ!
- Þurrkarinn er einungis til nota innandyra.
- Þurrkarinn er ekki ætlaður til að vera innbyggður í skáp.
Hallastilltu þurrkarann
- Notaðu hallamæli til að athuga hvort þurrkarinn sé fullkomlega láréttur.

- Ef þess þarf skaltu stilla framfæturna með höndunum eða verkfæri. Ekki er hægt að stilla afturfæturna.

Fjarlægið ekki fætur þurrkarans.
Settu frárennslisslönguna í vask.
Notaðu frárennslisslönguhaldarann til að halda slöngunni þannig að hún beinist niður í vaskinn án þess að brot komi á hana.

- Settu frárennslisslönguna inn í slönguhaldarann.

- Festu frárennslisslönguna við vaskinn með snæri, klemmu eða kapalbindi.

| Gerðarkóði Sjá hluti "Finndu gerðarkóðann", síða 233 | |
| Breidd 595 mm | |
| Dýpt 640 mm | |
| Hæð 845 mm | |
| Pyngd 53 kg | |
| Uppgefið magn (hámarksmagn sem Þurrka má í einu lagi) 10,0 kg | |
| Umhverfishitastig +5 °C til +35 °C | |
| Raftenging 220-240 V riðstraumur, ~ 50 Hz | |
| Uppgefið inngangsafl 750 W | |
| Kæliefni R290 | |
| Magn kæliefnis 120 g | |
| Koltvísýringsjafngildi | 0,00 T |
| Gildi hnatthlýnunarmátts | 3 |
Þessi vara inniheldur flúoraðar gróðurhúsalofttegundir, sem falla undir Kyoto-bókunina, innan í loftþéttum búnaði.
Stærðir
(mm)



Upplýsingarnar í þessum kafla eru byggðar á Baðmull venjulegt þurrkstig kerfinu, nema annað sé tekið fram, sama gildir um upplýsingarnar á orkumerkingu tækisins.
Baðmull venjulegt þurrkstig kerfið hentar til að þurrka venjulegan blautan bómullarþvott og er skilvirkasta kerfið hvað varðar orkunotkun fyrir baðmull.
| Gerðarkóði Sjá | hluti "Finndu gerðarkóðann", síða 233 |
| Tegund Þurrkara Gufuþéttir | |
| Orkunýtniflokkur A+++ | |
| Vegin árleg orkunotkun (Æ)Orkunotkun á ári, byggt á 160 Þurrkunarlotum venjulegs bómullarkerfis með magn og hlutamagn, og notkun lágorkustillinga. Raunveruleg orkunotkun á fer eftir hvernig tækið er notað | 211,3 kWh/ár fullt lotu |
| Sjálfvirkt eða ekki sjálfvirkt Sjálfvirkt | |
| ESB Ecolabel verðlaun E/V | |
| Vegin orkunotkun með fullt magn og hlutamagn 1,31 kWh | |
| Orkunotkun með fullt magn 1,77 kWh | |
| Orkunotkun með hlutamagn 0,97 kWh | |
| Orkunotkun í slökkt-stillingu dP 0,2 W | |
| Orkunotkun í kveikt-áfram stillingu oIP0,8 W | |
| Tímalengd kveikt-áfram stillingar 10 mín | |
| Vegin kerfistími með fullt magn og hlutamagn 145 mín | |
| Kerfistími með fullt magn 190 mín | |
| Kerfistími með hlutamagn 112 mín | |
| Péttiafkastaflokkur á mælikvarða frá G (minnst afköst) til A (mest afköst) B | |
| Vegin péttiafköst með fullt magn og hlutamagn 81 % | |
| Meðalpéttiafköst með fullt magn 81 % | |
| Meðalpéttiafköst með hlutamagn | 81 % |
| Hljóðstyrkur við fulla hleðslu | 66 dB |
Orkunotkun
Öll gildi voru ákvörðuð í samræmi við EN 61121. Raunveruleg notkun gæti verið önnur en gildin í töflunni, eftir magni þvottar, tegund efnis, afgangsraka og viðbótaraðgerða sem valdar eru.
| Kerfi | Magn | Vinduhraði notaður til að forpurrka þvottinn | Afgangsraki fyrir þurrkun | Þurrktími | Orkunotkun |
| Baðmull venjulegt þurrkstig | 10 kg (fullt) | 1000 rpm | 60 % | 190 mín | 1,77 kWh |
| Baðmull venjulegt þurrkstig | 5 kg (hálft) | 1000 rpm | 60 % | 112 mín | 0,97 kWh |
| Gerviefni venjulegt þurrkstig | 4 kg | 800 rpm | 40 % | 60 mín | 0,61 kWh |
Þetta tæki uppfyllir viðeigandi ESB-tilskipanir og reglugerðir og ber á sér CE-merkið. Ef það fylgir ekki tækinu er hægt að fá samræmisyfirlýsingu ESB samkvæmt beiðni.
Nothæfi tækisins hefur verið prófað í samræmi við staðal EN 61121 fyrir þurrkara, ESB reglugerð 392/2012 og ESB reglugerð 932/2012.