CFB4102V - Congélateur Elvita - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis CFB4102V Elvita á PDF sniði.
Spurningar notenda um CFB4102V Elvita
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Congélateur á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína CFB4102V - Elvita og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. CFB4102V vörumerkisins Elvita.
NOTENDAHANDBÓK CFB4102V Elvita
Lestu notkunarleiðbeiningarnar vandlega áður en varan er tekin í notkun. Geymdu notkunarleiðbeiningarnar til uppsláttar síðar.

Þetta tæki er ætlað til heimilisnota.
VIÐVÖRUN!
Umsjón skal höfð með ungum börnum til að þau leiki sér ekki að tækinu.
Þetta tæki verður að tengja við jarðtengda innstungu.
EFNISYFIRLIT
Endurvinnsla efnis 49
Tæknilýsing 49
Öryggisviðvaranir 50
Vörukynning
Hlutir 52
Staðsetning 53
Settu í gang 53
Viðhald frystis
Hreingerning 54
Afþíðing 54
Slökkva á 54
Algengar spurningar 55
ENDURVINNSLA EFNIS
Fargaðu öllu umbúðarefni samkvæmt reglugerðum á staðnum.
Ákveðið hrakvirði er á úr sér gengnum tækjum. Rétt og umhverfisvæn förgun tryggir að verðmæt hráefni geti verið endurunnin og notuð á ný.
Kæliefnið sem notað er í kælikerfi tækisins krefst sérstakrar meðhöndlunar. Slíkt hið sama gildir um einangrunarefnið. Fyrir förgun skaltu vera viss um að rörin á bakhliðinni séu ekki skemmd. Yfirvöld á staðnum geta gefið þér upplýsingar um hvar þú getur afhent úr sér gengin tæki og umbúðir.

VIÐVÖRUN! Tækið er ekki ætlað til notkunar börnum án umsjónar.
ALMENNT
Þessi tegund af frysti er oft notuð á stöðum eins og hótelum, skrifstofum, stúdentaíbúðum og einkaheimilum. Hann hæfir fyrst og fremst til frystingar og geymslu á matvælum eins og ávöxtum og drykkjum. Fyrirferðarlítill, lág þyngd, lág orkunotkun og einfaldleiki í notkun eru aðeins nokkrir kostir hans.
Þessi handbók inniheldur mikilvægar öryggisupplýsingar sem notendur verða að fylgja.
VIÐVARANIR VARÐANDI RAFMAGNSÖRYGGI
- Ekki toga í rafmagnssnúruna þegar þú aftengir klóna á frystinum frá vegginnstungunni. Taktu klóna traustu taki og togaðu beint í hana.
- Vertu viss um að skemma ekki rafmagnssnúruna. Ekki nota frystinn ef rafmagnssnúran er skemmd eða rafklóin slitin.
- Slitin eða skemmd rafmagnssnúra skal skipta um á viðurkenndu verkstæði.
- Tengdu frystinn við jarðtengda innstungu sem hefur að minnsta kosti 10 A málgildi. Ekki skal deila innstungunni með öðrum raftækjum.
- Klóin skal vera stungin að fullu í innstunguna. Annað getur leitt til eldsupptaka. Vertu viss um að innstungan sé almennilega jarðtengd.
- Frystirinn er hannaður til notkunar með 220–240 V AC/50 Hz. Spennusveiflur sem eru meiri en sem nemur 10% frá 220–240 V leiða til bilana eða skemmda.
- Ef eldfim gös skyldu leka út, skaltu skrúfa fyrir gaslokann og opna hurðir og glugga. Ekki draga út klóna á frystinum né aftengja nein önnur rafmagnstæki þar sem neisti getur leitt til eldsupptaka.
- Til að tryggja öryggi, mælum við ekki með því að önnur raftæki séu lögð ofan á frystinn.
NOTANDAÖRYGGI
- Að láta taka í sundur og láta gera við frystinn af viðurkenndum aðila er ekki bannað. Pað er bannað að skemma kælikerfisrörin. Eingöngu viðurkenndir aðilar mega sjá um viðgerðir og viðhald á frystinum.
- Skemmda rafmagnssnúru verður framleiðandinn að skipta um, eða viðurkennt verkstæði
eða álíka, til að forðast hættu.
- Til að tryggja góða loftræstingu skaltu skilja eftir nægilegt rými meðfram öllum hliðum frystisins.
- Bilið á milli húss frystisins og frystihurðar (loks) er þröngt. Farðu gætilega til að klemma þig ekki. Farðu gætilega þegar þú lokar frystihurðinni þannig að ekkert velti um koll.
- Farðu varlega þegar þú tekur mat eða ílát úr frysti þegar hann er í gangi. Sérstaklega geta málmílát valdið kali.
- Ekki leyfa börnum að klifra inn í frystinn né ofan á hann.
- Ekki úða né leyfa vatni að renna inn í frystinn. Forðastu að setja frystinn á raka staði þar sem hann getur fengið vatnsskvettur á sig. Slíkt getur veikt rafmagnseinangrun frystisins.
- Ekki setja þunga hluti ofan á frystinn. Þeir geta dottið og valdið skemmdum þegar frystihurðin er opnuð.
- Ef það er rafmagnslaust eða ef þú ert að hreinsa frystinn, skaltu ávallt aftengja klóna frá innstungunni. Áður en þú tengir frystinn aftur við rafmagn, skaltu bíða í fimm mínútur. Annars getur þjappan orðið fyrir skemmdum vegna tíðra gangsetninga.
VIÐVARANIR VEGNA STAÐSETNINGAR Á HLUTUM
- Ekki setja eldfim efni, sprengiefni, rokgjörn efni né tærandi hluti inn í frystinn. Slíkt getur valdið skemmdum á tækinu og/eða leitt til eldsvoða.
- Ekki setja eldfim efni ofan á frystinn. Slíkt getur leitt til eldsvoða.
- Þessi frystir er hannaður til heimilisnota og hæfir aðeins til geymslu matvæla. Samkvæmt landsreglum skulu heimilisfrystar ekki vera notaðir í öðrum tilgangi, svo sem að geyma blóð, lyf né lífræn efni.
- Ekki setja lokaðar flöskur né önnur vökvaílát (t.d. bjórflöskur) inn í frystinn. Þau geta sprungið og valdið skemmdum.
VIÐVARANIR VEGNA FÖRGUNAR
Frystikæliefnið R600a og froðuefnið syklópentan eru eldfim. Förguðum frystum skal halda fjarri eldgjöfum og skal ekki brenna. Til að koma í veg fyrir alla hættu á umhverfismengun skaltu afhenda aflagða frysti til viðurkenndrar fagmannlegrar endurvinnslustöðvar.
Til að koma í veg fyrir þá hættu að börn leiki sér að og festist í aflögðum frystum, skaltu fjarlægja hurð sem og hillur/körfur.
RÉTT NOTKUN Á FRYSTIHÓLFUM
HLUTIR

Það má vera að eiginleikar frystisins og meðfylgjandi aukabúnaður séu ekki nákvæmlega eins og hér er tilgreint. Skoðaðu pökkunarlistann.
VÖRUEIGINLEIKAR
- Áreiðanleiki: Frystirinn er útbúinn hagkvæmri þjöppu frá vel þekktum framleiðanda. Það tryggir framúrskarandi frammistöðu og mikinn áreiðanleika.
- Hurðin hefur að geyma hágæða froðu.
- Hurðin er útbúin innbyggðum þétilistum sem auðvelt er að fjarlægja til hreingerningar.
- R600a sem kæliefni frystisins og syklópentan sem panefni sem notað er í einangrunarfrauðið eru umhverfisvænir valkostir.
HITASTIGSSTÝRING
- Tengdu frystinn við innstungu sem er í lagi og gaumljósið „Power“ glóir. „Run“ gaumljósið glóir þegar frystirinn er í gangi. „Alarm“ gaumljósið glóir þegar hitastigið í frystinum er of hátt.
- Stilltu hitastigið í frystinum með hitastillisnerlinum. Tölustafirnir „1, 2, 3, 4, 5, 6“ standa ekki fyrir ákveðið hitastig, hins vegar því lægri sem tölustafurinn er því hærra hitastig í frystinum, og öfugt.
- Þegar hitastigssnerillinn er stilltur á OFF, þá er slökkt á frystinum.
STADSETNING
- Áður en þú notar frystinn, skaltu fjarlægja allar umbúðir, þar með talið höggvörn ásamt svampgúmmíi og límbandi innan úr frystinum. Fjarlægðu hlífðarfilmuna frá hurðinni og hliðum frystisins.
- Staðsettu frystinn innanhúss, á vel loftræstum stað. Yfirborðið verður að vera flatt og traust.
- Hlífðu frystinum frá hitagjöfum sem og beinu sólarljósi. Ekki setja frystinn á blautan né rakan stað. Annars getur myndast ryð og einangrunin veikst.
- Það verður að vera að minnsta kosti 70 cm laust rými fyrir ofan frystinn. Það verður að vera að minnsta kosti 20 cm laust rými meðfram hliðum og á bak við frystinn. Þetta er til að auðvelda opnun, lokun sem og dreifa hita.
- Notaðu heitan rakan klút til að þurrka af frystinum að innan sem að utan (blandaðu út í eilitlum uppþvottalegi við heitt vatn og þurrkaðu af að því loknu eingöngu með heitu vatni).
SETTU Í GANG
Leyfðu frystinum að vera í gangi í 2 til 3 klst. áður en þú setur fersk eða fryst matvæli í hann. Á sumrin eykst þessi tími í 4 klst., vegna þess að umhverfishitastig er þá hærra.
VIDHALD FRYSTIS
HREINGERNING
- Áður en þú byrjar að hreinsa frystinn skaltu aftengja klóna frá innstungunni.
- Hreinsaðu með volgu vatni og þurrkaðu síðan af með mjúkum klút.
- Þéttilistar hurðar verða auðveldlega óhreinir. Óhreinindalög geta safnast upp. Hreinsaðu oft.
Ekki skola af með vatni þar sem slíkt getur veikt einangrunina á rafmagninu. Notaðu þurran klút til að hreinsa hitastigssnerilinn og rafmagnshluti.
AFPÍÐING
Handvirk afþíðing frystisins. Aftengdu frystinn frá rafmagni. Áður en afþíðing fer fram skaltu opna frystihurðina og fjarlægja matvæli og ílát. Opnaðu fyrir útrennslisgöt/frárennslisgöt. Settu vatnsílát undir frárennslisgatið. Klakinn í frystinum mun smám saman þiðna. Notaðu þurran, mjúkan klút til að hreinsa upp leysingarvatnið. Þegar klakinn hefur þiðnað að hluta er hægt að nota íssköfu til að hreinsa út klakann fljótar. Áður en þú fjarlægir aukabúnað frystisins og meðan á afþíðingu stendur skaltu setja og geyma matvælin á köldum stað.
Ekki nota nein vélknúin tæki eða aðrar vörur til að flýta fyrir afþíðingu, annað en það sem framleiðandinn ráðleggur að nota. Skemmið ekki kælikerfið.
SLÖKKVA Á
Ef rafmagnslaust verður, geymast matvæli fryst áfram í nokkrar klukkustundir, jafnvel þó að sumarlagi sé. Ef rafmagnslaust verður skaltu opna frystihurðina eins sjaldan og mögulegt er og ekki bæta við neinum ófrystum matvælum í frystinn.
Fyrir hreinsun sem og í því tilfelli að ekki skal nota frystinn til lengri tíma skaltu aftengja klóna frá innstungunni. Þá skaltu skilja eftir hurðina eilítið opna til að koma í veg fyrir ólykt.
Ekki leggja frystinn á neinar hliðar sínar né hvolfa honum. Mesti leyfilegur halli við flutning er 45°. Frystirinn má ekki verða fyrir titringi. Gakktu tryggilega frá hurðum og hjörum þegar þú færir frystinn.
Við mælum með að leyfa frystinum að vera stöðugt í gangi þegar einu sinni hefur verið kveikt á honum. Meðan ástand er eðlilegt skaltu ekki hreyfa hann. Slíkt getur stytt endingartímann á frystinum.
ALGENGAR SPURNINGAR
Eftirfarandi einföld vandamál getur notandinn leyst sjálfur. Vinsamlegast hafðu samband við þjónustudeild okkar ef vandamál koma upp sem þú getur ekki leyst sjálfur.
| Pjappan er í gangi í óeðlilega langan tíma. | Pað er eðlilegt að þjappan á frystinum starfi í lengri tíma á sumrin pegar umhverfishitinn er hærri.Ekki geyma of mikið af matvælum í frystinum í einu.Ekki setja matvæli inn í frystinn áður en þau hafa náð að kólna niður fyrst.Frystihurðin er opnuð of oft.Pykkt klakalag (afþíðing er nauðsynleg). |
| Ljós að innan virkar ekki. Kannaðu hvort tækið sé tengt við virkan rafmagnsgjafa.Kannaðu hvort ljósið sé óskemmt. | |
| Frystihurðin lokast ekki að fullu. | Kannaðu hvort matvæli séu fyrir hurðinni.Kannaðu hvort of mikið sé af matvælum í frystinum.Kannaðu hvort halli sé á frystinum. |
| Starfsemi hávær. Kannaðu hvort matvælin séu frágengin á traustan hátt.Kannaðu hvort frystirinn standi traust og í jafnvægi.Kannaðu hvort allir hlutir frystisins séu á réttum stað. | |
| Erfitt að opna frystihurðina. Efir frystingu er þrýstimunur að innan og utan frystisins.Pað getur gert það tímabundið erfitt að opna hurðina.Slíkt er að öllu leyti eðlilegt og er eins og á að vera. | |
Hiti:
- Frystirinn getur gefið frá sér hita þegar hann er í gangi, sérstaklega á sumrin. Þessi hiti stafar frá þjöppunni og er að öllu leyti eðlilegt.
- Rakapétting: Raki getur myndast utan á frystinum sem og á þéttilistunum þegar rakastig er hátt. Slíkt er fullkomlega eðlilegt og þurrka má rakann af með þurru handklæði.
- Guthljóð: Rennsli í kælikerfisleiðslunum getur gefið frá sér guthljóð. Þetta hefur engin áhrif á notkun.
- Suð: Heyrst getur suð þegar þjappan er í gangi (sérstaklega þegar hún fer í gang og þegar hún stöðvast).
- Smellir: Smellur heyrist þegar segulloki (rafmagnslokurofi) starfar. Slíkt er fullkomlega eðlilegt og hefur engin áhrif á notkun frystisins.
ATHUGASEMDIR
Gæðaábyrgð gildir fyrir neytandann (nær ekki til slithluta)