CKF3154V - Réfrigérateur Elvita - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis CKF3154V Elvita á PDF sniði.
Spurningar notenda um CKF3154V Elvita
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Réfrigérateur á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína CKF3154V - Elvita og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. CKF3154V vörumerkisins Elvita.
NOTENDAHANDBÓK CKF3154V Elvita
Lestu notkunarleiðbeiningarnar vandlega áður en varan er tekin í notkun. Geymdu notkunarleiðbeiningarnar til uppflettinga síðar.

Hreinsun og umhirða 69
Bilanagreining 70
Lýsing á vörunni....71
Snúa hurðinni við 71
Förgun tækisins 73
CE
Þetta tæki uppfyllir eftirfarandi ESB viðmiðunarreglur og reglugerðir: 2014/35/EU, 2014/30/EU, 2009/125/EC, EC 643/2009 og 2002/96/EC

Til eigin öryggis og til að tryggja rétta notkun, skaltu lesa þessar leiðbeiningar, þar með talið ábendingar og varúðarupplýsingar, áður en þú setur upp og notar tækið í fyrsta skipti. Til að koma í veg fyrir ónauðsynleg mistök og slys, er mikilvægt að allir notendur tækisins þekki til hlítar hvernig það starfar og öryggisbúnað. Geymdu þessar notkunarleiðbeiningar og gakktu úr skugga um að þær fylgi tækinu ef það er fært til eða selt, þannig að hver sem notar tækið á endingartíma þess er upplýstur um rétta notkun tækisins og hvaða varúðarráðstafanir eru nauðsynlegar. Vinsamlegast fylgdu öryggisleiðbeiningunum í notandahandbók þessari til að tryggja öryggi mannslífa og eigna. Framleiðandinn tekur enga ábyrgð vegna skemmda sem hljótast af vanrækslu.
Öryggi fyrir börn og aðra berskjaldaða hópa
Börn frá 8 ára aldri og fólk með skerta líkamlega getu, skerta heyrn/sjón, skerta andlega getu eða án reynslu mega eingöngu nota tækið undir eftirliti ábyrgs einstaklings eða sé þeim kennd örugg notkun tækisins og þau geri sér grein fyrir öllum þeim hættum sem fylgja notkuninni. Börn mega aldrei leika sér með tækið. Börn mega
ekki hreinsa eða viðhalda tækinu án eftirlits.
Geymdu allt umbúðaefni þar sem börn ná ekki til (köfnunarhætta).
Ef þú ætlar að farga tækinu, skaltu taka aftengja það frá vegginnstungunni, skera síðan á snúruna eins nálægt tækinu og hægt er og taka af því hurðina þannig að börn að leik eigi ekki hættu á rafstuði eða verði innlyksa í tækinu.
Ef þetta tæki kemur í stað eldra tækis sem útbúið er krækjulás á hurð eða loki, vertu þá viss um að gera læsinguna ónothæfa áður en þú fargar tækinu. Þetta kemur í veg fyrir að það verði að dauðagildru fyrir barn.
Almennt öryggi
VIDVÖRUN! Þetta tæki er ætlað til notkunar á heimilum og sambærilegum stöðum, til dæmis: í eldhúsum fyrir starfsfólk í verslunum, skrifstofum og öðrum vinnustöðum; á bóndabýlum; af gestum á hótelum, mótelum og í öðrum íbúðum; á gistiheimilum; veislþjónustum og álíka, ekki smásölustöðum.
VIDVÖRUN! Ekki geyma efni í tækinu sem geta skapað sprengihættu, eins og úðabrúsa sem innihalda eldfiman aflgjafa.
Viðvörun! Hafi rafmagnssnúran skemmst skal skipt um hana af framleiðanda, þjónustufulltrúa framleiðanda eða öðrum til þess bærum einstaklingum (skemmd rafmagnsleiðsla er hættuleg).
VIDVÖRUN! Sjáðu til þess að engin fyrirstaða sé fyrir loftopum tækisins, hvort sem um er að ræða loftop inni í eða á utanverðu tækinu.
VIDVÖRUN! Ekki nota nein verkfæri eða aðrar leiðir til að hraða fyrir afþíðingu, annað en það sem framleiðandinn ráðleggur að nota.
VIDVÖRUN! Ekki skemma kælirásina.
VIDVÖRUN! Ekki nota nein raftæki inni í matgeymsluhólfum tækisins, nema þau séu af gerð sem framleiðandi tækisins mælir með.
VIDVÖRUN! Kæliefni og einangrunarfroða eru eldfim. Þegar tækinu er fargað skal það eingöngu gert á viðurkenndri sorpstöð. Ekki staðsetja tækið nálægt eldi.
Kæliefni
Ísóbútan kæliefni (R600a) er notað í kælikerfi tækisins. Það er náttúrulegt gas sem er tiltölulega umhverfisvænt en er engu að síður eldfimt. Meðan á flutningi og uppsetningu stendur skaltu ganga úr skugga um að engir hlutir kælikerfisins verði fyrir skemmdum. Kæliefnið (R600a) er eldfimt.
Varúð! Eldhætta!

Ef kælikerfið er skaddað: Forðastu opinn eld og hita og neistagjafa. - Loftræstu kyrfilega herbergið sem tækið er staðsett í. Það er hættulegt að breyta hönnun eða breyta tækinu á nokkurn hátt. Allar skemmdir á rafmagnssnúrunni geta leitt til skammhlaups, elds og/eða rafstuðs.
Öruggt rafmagn

- Ekki nota framlengingu með rafmagnssnúrunni.
- Gakktu úr skugga um að klóin sé ekki brotin eða skemmd. Brotin eða skemmd kló getur ofhitnað og valdið eldi.
- Vertu viss um að þú hafir aðgang að kló tækisins.
- Togið ekki í rafmagnssnúruna.
- Ef innstungan er laus í sér, skaltu ekki tengja tækið við hana. Hætta væri á rafstuði eða eldsupptökum.
- Ekki nota tækið án innan ljósaperuhlífar.
- Tækið er hannað til notkunar með 220–240 V AC/50 Hz, 1-fasa. Ef staðbundnar spennusveiflur verða til þess að spennan getur sveiflast utan þessara marka, þá skal tengja sjálfvirkan spennustilli milli vegginnstungunnar og tækisins og skal hann vera gildur fyrir að lágmarki 350 W. Ekki tengja önnur tæki við sömu innstungu og tækið er tengt við. Vegginnstungan og klóin skulu vera jarðtengd. Vegginnstungan og klóin skulu vera jarðtengd.
Dagleg notkun
Ekki geyma eldfim gös eða vökva í tækinu, slíkt leiðir til hættu á sprengingu.
Ekki nota nein raftæki inni í tækinu (t.d. rafknúinn rjómaísbúnað, blandara ofl).
Aftengdu tækið ætíð með því að taka í klónna, ekki með því að toga í snúruna.
Ekki setja heita hluti nálægt plasthlutum tækisins.
Geymdu forpakkaðan frosinn mat í samræmi við leiðbeiningar framleiðandans.
Fara skal stranglega eftir geymsluráðleggingum framleiðanda tækisins. Skoðaðu viðkomandi geymsluleiðbeiningar.
Ekki setja freyðidrykki eða drykki sem innihalda koltvísýring í frystihólfið, þar sem innri yfirþrýstingur myndast í flöskunni og getur hún þá splundrast og leitt til skemmda á tækinu.
Frosin matvæli geta valdið frostbruna ef þeirra er neytt beint úr frystinum.
Ekki staðsetja tækið þannig að sólargeislar skíni á það.
Haltu kertum, lömpum og öðrum óvörðum eldgjöfum fjarri tækinu til að forðast eldhættu.
Tækið er ætlað til að geyma mat og drykki við venjulegar heimilisþarfir eins og þær eru skilgreindar í handbók þessari. Tækið er þungt. Farðu varlega þegar það er flutt.
Ekki fjarlægja eða snerta hluti í frystihólfinu ef hendur þínar eru blautar
eða rakar þar sem slíkt getur leitt til frostbruna eða áverka.
Aldrei má nota undirstöðu, skúffur, hurðir og svo framvegis til að standa á eða til stuðnings.
Frosin matvæli má ekki frysta á ný eftir að þau hafa verið afþídd.
Ekki neyta íspinna eða ísmola beint úr frystinum þar sem slíkt getur valdið frostbruna á munn og vörum.
Ekki setja of mikið í hurðarhillurnar né of mikinn mat í grænmetisskúffurnar þar sem slíkt gæti leitt til þess að hlutir detti og valdi líkamstjóni eða skemmdum á tækinu.
Varúð! Hreinsun og umhirða
Áður en þú sinnir viðhaldi á tækinu, skaltu slökkva á tækinu og aftengja það frá vegginnstungunni.
Ekki hreinsa tækið með málmhlutum, gufutæki, ilmkjarnaolíu, lífrænum leysiefnum, eða hrjúfum hreinsiefnum.
Ekki nota hvassa hluti til að losa hrím frá tækinu. Notaðu plastsköfu.
Mikilvægt meðan á uppsetningu stendur!
Þegar þú tengir tækið skaltu fylgja vandlega leiðbeiningum í þessari notandahandbók.
Taktu umbúðirnar af tækinu og gakktu úr skugga um að engar skemmdir séu fyrir hendi.
Ekki tengja tækið ef það er skemmt. Láttu smásöluaðilann vita strax um skemmdir. Geymdu umbúðirnar ef skemmdir eru á tækinu.
Við ráðleggjum að þú leyfir tækinu að standa í að minnsta kosti 4 klukkustundir áður en þú tengir það, til að olían geti runnið aftur inn í þjöppuna.
Vertu viss um að nóg loftflæði sé kringum tækið, annars gæti það ofhitnað. Fylgdu leiðbeiningum um uppsetningu tækisins til að tryggja nægilegt loftflæði.
Ekki skal staðsetja afturhlið tækisins of nálægt vegg (svo framarlega sem það er hægt), til að koma í veg fyrir snertingu við heita hluti (þjappa, þéttir). Fylgdu leiðbeiningum um uppsetningu tækisins til að forðast hættu á eldsupptökum.
Ekki staðsetja tækið nálægt ofni eða hitaveituofni.
Vertu viss um að þú hafir aðgang að kló tækisins.
Þjónusta
Öll rafmagnsvinna sem fer fram meðan á þjónustu stendur skal unnin af viðurkenndum rafvirkja eða fagaðila.
Þessa vöru má aðeins þjónusta af viðurkenndu þjónustuveri og eingöngu má nota upprunalega varahluti.
Stjórnborð
- Settu klónna í jarðtengda innstungu. Þegar ísskápshurðin er opnuð þá kviknar ljósið að innan.
- Hitastigstakkinn er staðsettur efst í kælihólfi og má stilla á eftirfarandi hátt:
0:
Slökkt.
Snúðu hnappnum réttsælis til að setja það í gang.
1:
Hæsta hitastig (hlýjasta stillingin).
7 (endastaða):
Lægsta hitastig (kaldast).
Við ráðleggjum að þú notir venjulega stillingar 3 eða 4. Stilltu hitastigið eftir þörf.
Mikilvægt! Hár umhverfishiti (heitir sumardagar) og köld hitastilling (6 eða 7) geta leitt til þess að þjappan starfi viðstöðulaust.
Ástæða: Þegar hitastig í umhverfinu er hátt þá verður þjappan að starfa sleitulaust til að viðhalda lágu hitastigi í tækinu.

Notkun í fyrsta skipti og uppsetning.
Þrif fyrir notkun
Áður en þú notar tækið í fyrsta skiptið, skaltu þvo það að innan og allan innri aukabúnað með volgu vatni og hlutlausu sápuefni, til að fjarlægja dæmigerða lykt af glænýju tæki og þurrkaðu síðan vandlega.
Mikilvægt! Ekki nota þvottaefni eða hrjúf púðurefni, þar sem þau skemma áferð.
Staðsetning
Viðvörun!

Áður en tækið er sett upp, skaltu lesa leiðbeiningar vandlega í þágu eigin öryggis og til réttrar notkunar á tækinu. Staðsettu tækið fjarri hitagjöfum svo sem eldavélum, hitaveituofnum, beinu sólarljósi o.s.frv.
Besti árangur og mesta öryggi eru tryggð með því að viðhalda stöðugu kjörhitastigi innanhúss fyrir hlutaðeigandi gerð tækis, eins og lýst er á merkiplötu.
Þetta tæki gefur góða raun í veðurfarsflokki SN til T. Möguleiki er á að tækið virki ekki sem skyldi ef það er skilið eftir í lengri tíma við hitastig hærra eða lægra en uppgefið bil.
Mikilvægt! Góð loftræsting kringum ísskápinn er nauðsynleg til að tryggja að heitu lofti sé vel dreift og tryggja þannig hagkvæma starfsemi og lága orkunotkun. Gakktu því úr skugga um að nóg laust rými sé kringum tækið.
Við mælum með að minnsta kosti: 75 mm frjálst rými á afturhlið, að lágmarki 100 mm fyrir ofan tækið og á báðum hliðum þess og nóg rými fyrir framan til að hægt sé að opna hurðina allt að 160°.
| Loftslagsflokkur Umhverfishitastig | |
| SN 10–32°C | |
| N 16–32°C | |
| ST 16–38°C | |
| T 16–43°C |
Ekki má rigna á tækið. Vertu viss um að það sé góð loftræsting á neðri aftari hlið tækisins, þar sem slæm loftræsting getur haft áhrif á virkni. Innbyggð tæki skulu vera staðsett fjarri hitagjöfum eins og hitatækjum og beinu sólarljósi.
Rétt staða tækis
Það er mikilvægt að tækið standi rétt (til að komast hjá titringi). Vertu viss um að tækið standi upprétt og báðir stillifætur snerti tryggilega gólfið. Stilltu (eftir þörf) hæðarstöðu tækisins með því að snúa stillifótum undir framhlið (notaðu fingurna eða skrúflykil).
Rafmagnstenging
Varúð! Öll rafmagnsvinna sem fer fram við uppsetningu tækis skal unnin af viðurkenndum rafvirkja eða fagaðila. Viðvörun! Gakktu úr skugga um að tækið sé jarötengt á réttan hátt. Framleiðandinn hafnar allri ábyrgð ef þessar öryggiskröfur eru ekki virtar. Ekki má rigna á tækið.
Dagleg notkun
Fylgihlutir
Færanlegar hillur/bakkar
Ýmsar gler- eða plastgeymsluhillur eða vírbakkar fylgja með tækinu – ólíkar gerðir hafa mismunandi samsetningu og mismunandi eiginleika.
Hliðar ísskápsins eru útbúnar röð af rennum þannig að hægt er að staðsetja hillurnar eftir þörf.
Staðsetning á hurðarhillum
Til að hægt sé að geyma matarpakka af mismunandi stærðum, er hægt að staðsetja hurðarhillurnar í mismunandi hæð.
Til að hagræða skaltu smátt og smátt toga hilluna í þá átt sem örvarnar benda þangað til hún losnar og hagræddu henni á ný eftir þörf.
Grænmetisskúffa
Þessi skúffa hæfir til að geyma ávexti og grænmeti.
Frystiskúffa
Þessi skúffa hæfir til geymslu á frystum afurðum.
Frysting á ísmolum
Þessu tæki fylgja einn eða fleiri bakkar til ísmolagerðar.
Frysting á ferskum mat
Frystihólfið hentar til frystingar á ferskum mat og til að geyma frosinn og djúpfrystan mat í langan tíma.
Mesta magn af mat sem má frysta á 24 klst. er tilgreint á
merkiplötu, það er merki sem má finna inni í tækinu.
Frystiferlið tekur 24 klst: meðan á því stendur skal ekki bæta við neinum mat til frystingar.
Geymsla á frystum mat
Við fyrstu notkun eða ef tækið hefur staðið ónotað: áður en matur er settur í frystihólfið, leyfðu tækinu að vera í gangi í að minnsta kosti 2 klst á köldustu stillingu.
Mikilvægt!
Ef ófyrirséð afþíðing á sér stað, ef til dæmis rafmagnslaust hefur verið lengur en 16 klst, þá verður að neyta afþýdds matar fljótlega eða elda matinn strax og frysta síðan (eftir eldun).
Afþíðing á mat
Áður en djúpfrystur eða frosinn matur er notaður, má afþíða hann í ísskápnum eða við stofuhita, allt eftir því hve mikill tími er til stefnu.
Jafnvel má elda minni matarbita meðan þeir eru ennþá frosnir, beint úr frystinum. Í því tilfelli tekur eldun meiri tíma.
Mikilvægt!
Til að fá sem mest notagildi úr rýminu fyrir ferskan mat og frystan mat, getur notandinn tekið eina eða fleiri hillur eða skúffur úr tækinu, eftir því sem hentar í daglegri notkun.
Hentugar ábendingar
Hljóðmerki frá tækinu
Hljóðmerkin að neðan eru algjörlega eðlileg fyrir ísskápa/ frystiskápa:
Smell hljóð: Þegar þjappan fer í gang eða slökkt er á henni, heyrist smellur.
Suð: Þegar þjappan er í gangi heyrist suð.
Sjóðandi: Þegar kæliefni flæðir inn í mjó rör, þá heyrist sjóðandi hljóð eða skvettuhljóð.
Skvettuhljóð: Jafnvel eftir að slökkt er á þjöppunni er hægt að heyra skvettuhljóð í stuttan tíma.
Orkusparandi ábendingar
Ekki setja upp tækið nálægt eldavélum, hitaveituofnum eða öðrum hitagjöfum.
Ekki opna hurðina of oft eða skilja eftir hurðina opna lengur
en nauðsynlegt er.
Ekki stilla hitastigið lægra en nauðsynlegt er.
Vertu viss um að laust rými sé á milli hliða og afturenda tækisins og veggsins og fylgdu viðeigandi leiðbeiningum til uppsetningar.
Ef teikning sýnir ráðlagða staðsetningu á skúffum, grænmetisskúffu og hillum, þá skal ekki breyta staðsetningum þeirra þar sem slíkt getur leitt til hærri orkunotkunar.
Ábendingar varðandi kælingu á ferskum mat
Til að ná sem bestum árangri:
Ekki geyma heitan mat eða drykki sem gufa upp af inn í tækið.
Breiddu yfir mat eða settu umbúðir um hann, sérstaklega ef
Staðsettu mat þannig að loft geti leikið frjálst um hann.
Ábendingar varðandi kælingu
Kjöt (allar tegundir): Pakkaðu í pólýetýlen plastpoka og staðsettu á glerhilluna fyrir ofan grænmetisskúffuna. Til öryggis skaltu geyma mat á þennan hátt í mesta lagi til tveggja daga.
Eldaður matur, kaldir réttir o.fl.: Þessa skal breiða yfir og má geyma á hvaða hillu sem er.
Ávextir og grænmeti: Þau skal hreinsa vandlega og sett í sérstöku skúffurnar sem til þess eru ætlaðar.
Smjör og ostur: Þau skal setja í álpappír eða pólýetýlen plastpoka og lofttæma eins mikið og hægt er.
Mjólkurflöskur: Þær ættu að hafa tappa og skal geyma þær í flöskugrindinni á hurð.
Ábendingar vegna frystingar
Til að ná sem bestum frystiárangri skaltu fylgja þessum ábendingum:
Mesta magn af mat sem má frysta á 24 klst. er tilgreint á merkiplötu.
Frystitíminn er 24 klst. (ekki bæta við meiri mat til frystingar á þessum tíma).
Frystu aðeins gæðaafurðir, fersk og vel hreinsuð matvæli.
Tilreiddu mat í smáum skömmtum þannig að hægt sé að frysta hann hratt og algjörlega og þá þarftu aðeins að afþíða það magn sem þú vilt.
Pakkaðu mat í álpappír eða pólýetílen (plast) og vertu viss um að pokarnir séu loftþéttir.
Ekki leyfa ferskum, ófrosnum mat að komast í snertingu við mat sem þegar er frosinn, til að koma í veg fyrir að hækka hitastig hins síðarnefnda.
Fitusnauður matur geymist betur og lengur en fituríkur matur; salt dregur úr geymslutíma mats.
Ef þú neytir frosins matar strax og hann er tekinn úr frystinum, þá getur slíkt leitt til frostbruna á húð.
Það er ráðlegt að merkja frystidag á hvern frystan pakka, þannig að þú getir fylgst með frystitímanum.
Ábendingar varðandi geymslu á frosnum mat
Til að ná sem bestum árangri:
Vertu viss um að aðkeypt fryst matvæli séu geymd samkvæmt leiðbeiningum framleiðandans.
Gakktu úr skugga um að frosinn matur sé fluttur úr verslun yfir í heimilisfrystinn svo fljótt sem auðið er.
Ekki opna hurðina of oft eða skilja eftir hurðina opna lengur en nauðsynlegt er.
Þegar matvæli eru afþídd þá tapa þau eiginleikum sínum mjög hratt og ekki má frysta þau aftur.
Ekki fara framyfir geymslutímann sem gefinn er af framleiðandanum.
Hreinsun og umhirða
Hreinsun og umhirða
Af hreinlætisástæðum skal hreinsa ísskápinn ásamt innri aukabúnaði og sinna viðhaldi að minnsta kosti annan hvern mánuð.
Viðvörun! Hætta á rafhöggi!

Aftengdu tækið áður en hreingerning hefst. Áður en þú hreinsar tækið, skaltu slökkva á tækinu og aftengja það frá vegginnstungunni, eða slökkva á rafmagnsrofanum eða fjarlægja öryggið.
Mikilvægt!
Fjarlægðu allan mat úr tækinu fyrir hreinsun. Geymdu á köldum stað og breiddu vel yfir hann.
Ekki hreinsa tækið með gufutæki. Raki gæti safnast upp í rafmagnsbúnaði og
heit gufan getur skemmt plasthluti. Ilmkjarnaolía og liffræn hreinsiefni geta skemmt plasthluti, til dæmis sitrónusafi eða safi úr appelsínuberki, smjörsýra eða hreinsiefni sem innihalda ediksyru. Vertu viss um að slík efni komist ekki í snertingu við hluta tækisins.
Ekki nota nein hrjúf hreinsiefni.
Hreinsaðu tækið og innri aukabúnaðinn með klút og volgu vatni. Uppbvottalögur sem fæst í verslunum má einnig nota.
Ryk sem fellur til á péttinn eykur orkunotkun; hreinsaðu péttinn á bak við tækið einu sinni á ári með mjúkum bursta eða ryksugu.
Athugaðu vatnsrennslisgatið á afturhlið ísskápsins.
Ef frárennslisgatið er stíflað skaltu hreinsa það með hjálp einhvers sem líkist mjúkum fleyg og fara varlega til að skemma ekki tækið með hvössum hlutum.
Pegar allt er orðið þurrt aftur, má tengja tækið aftur og setja í gang.
Afpíðing
Af hverju er mikilvægt að afpíða ísskápinn?
Vatn sem er inni í mat eða kemur úr loftinu inni í ísskápnum getur myndað þykkt hrím. Ef það verður þykkt þá hindrar það frystingu. Ef það er þykkara en 10 mm þá ættirðu að aflpíða tækið.
Afþíðing ísskáps
Það er engin þörf á sérstakri handvirkri afþíðingu (afþíðing stýrist sjálfvirkt þegar kveikt er eða slökkt er á hitastigstakkanum). Vatnið sem safnast við afþíðingu rennur af sjálfu sér niður í vatnshólf gegnum frárennsislöngu á bakhlið tækisins.
Afþíðing frystihólfs
Frystihólfið afþíðist handvirkt. Taktu út öll matvæli áður en þú hefur afþíðingu.
Taktu út ísbakkann og skúffur eða leggðu þau til bráðabirgða inn í ísskápinn.
Stilltu hitastigið á 0 (til að stöðva þjöppuna) og skildu hurðina á ísskápnum eftir opna þangað til allur ís og hrím þiðnar að fullu og safnast saman í botni frystihólfs. Þurrkaðu upp allt vatn með mjúkum klút.
Til að flýta fyrir afþíðingarferlinu getur þú sett skál með um það bil 50°C heitu vatni inn í frystihólfið. Þar eftir má skrapa burt ís og hrím með afþíðingarspaða. Þegar þú ert búinn að afþíða, vertu viss um að stilla hitastigstakkann á upprunalegan stað.
Það er ekki ráðlegt að hita upp frystihólfið beint með heitu vatni né hárblásara meðan afþíðing á sér stað, því slíkt gæti breytt lögun hólfsins.
Það er heldur ekki ráðlegt að nota hvöss verkfæri eða álíka til að skrapa burt ís og hrím eða til að aðskilja mat sem er samfrystur eða frystur við frystihólfið, þar sem slíkt gæti skemmt innra hólfið eða yfirborðið á eiminum.
Viðvörun! Slökktu á tækinu fyrir afþíðingu og snúðu hitastillinum á „0“.
Mikilvægt! Afþíða ætti ísskápinn að minnsta kosti einu sinni í mánuði. Ef hurðin er opnuð oft eða ef tækið er notað í mjög röku umhverfi þá ráðleggjum við að afþíða á tveggja vikna fresti.
Ef ekki á að nota tækið í lengri tíma
Taktu allt innihald úr ísskápnum. Slökktu á tækinu, snúðu hitastillinum á „0“
Aftengdu tækið eða slökktu á því eða rjúfðu rafmagnsstrauminn.
Hreinsa vandlega (sjá Hreinsun og umhirða).
Skildu hurðina eftir opna til að koma í veg fyrir myndun ólyktar.
Ath! Ef tækið hefur frystihólf.
Spurningar og svör
Viðvörun! Taktu tækið úr sambandi við rafmagn áður en bilanagreining hefst. Aðeins viðurkenndur rafvirki eða fagaðili má sinna bilanagreiningu sem ekki er getið í þessum leiðbeiningum.
Mikilvægt! Hljóð meðan á venjulegri notkun stendur eru
Mikilvægt! Viðgerðir á ísskápum/frystiskápum mega aðeins viðurkenndir þjónustutæknimenn sjá um. Gölluð viðgerð getur leitt til töluverðrar hættu fyrir notandann. Ef tækið þarfnast lagfæringar þá skaltu hafa samband við sérverslun eða næsta þjónustuver.
| Vandamál Möguleg orsök Vlõbrögð | ||
| Tækiõ virkar ekki. Ekki er kveikt á tækinu. | Kveiktu á tækinu. | |
| Klóin er ekki tengd eõa situr laus. Settu rafmagnsklóna í innstunguna. | ||
| Öryggi hefur slegiõ út eõa er gallaõ. Kannaõüöryggiõ, skiptu um ef nauðsynlegt. | ||
| Galli í vegginnstungu. Einungis viðurkenndurrafvirki má annast viðgerõirá raforkugjafa. | ||
| Hitastigiõ inni í tækinu er of lágt. Hitastigio er stillt of lágt. Snúõu hitastigstakkanum á hærra hitastig til bráðabirgõa. | ||
| Matvælin eru of heit. Hitastigiõ er ekki rétt stillt. Sjá kaflann um „Ræsing og hitastilling". | ||
| Hurõin var opin í lengri tíma. Opnaõu hurõina | aðeins eins lengi og nauðsynlegter. | |
| Mikiõ magn af heitum matvælum voru sett í ïsskápinn á síõustu 24 klst. | Snúõu hitastigstakkanum á lægra hitastig til bráðabirgõa. | |
| Tækiõ er nálægt hitagjafa. | Sjá kaflann um staðsetningu tækis. | |
| Innri lýsing virkar ekki. | Ljósapera er biluõ. | Sjá kafla um skiptinu ljósaperu. |
| Mikil uppsöfnun á ís (mögulega einnig á péttilistum). | Hurðarpétillistar eru ekki loftþéttir (mögulega eftir aõ hafa snúiõ hurõinni). | Hitaõu varlega svæðin á hurðarpétilistunum sem leka meõ hárblásara á kaldri stillingu. Á sama tíma lagaõu til þéttilistann meõ höndunum pannig aõ hann sitji rétt. |
| Óvenjuleg hljóõ. | Tækiõ stendur ekki rétt. | Hagræddu því meõ stillifótunum. |
| Tækiõ snertir vegg eõa aõra hluti. | Færõu tækiõ aðeins til. | |
| Hluti, til dæmis rör, á bakhliõ tækisins snertir annan hlut tækisins eõa vegginn. | Ef nauðsynlegt, beygõu þá hlutinn varlega til. | |
| Þjappan fer ekki strax í gang eftir aõ hitastigi er breytt. | Petta er eðlilegt, engin bilun hefur átt sér staõ. | Þjappan fer í gang eftir stutta stund. |
| Vatn á gólfí eõa geymsluhillum. | Frárennslisgat er stíflaõ. | Sjá kafla um hreinsun og umhirõu. |
Skipta um ljósaperuna.
Viðvörun! Rafvirki eða annar fagaðili skal skipta um ljósaperuna.
Ef óhæfur aðili skiptir um ljósaperuna þá getur slíkt leitt til áverka eða alvarlegrar truflunar. Viðurkenndur aðili verður að skipta um hana til að forðast hættu. Hafðu samband við næsta þjónustuver til að fá aðstoð. Áður en þú skiptir um ljósaperuna, skaltu slökkva á tækinu og aftengja það frá vegginnstungunni, eða slökkva á rafmagnsrofanum eða
fjarlægja öryggið.
Ljósaperugerð (LED): 220–240 V. Slökktu á tækinu, (snúðu hitastillinum á O).
Aftengdu tækið frá vegginnstungunni.
Ýttu á miðja peruna með einum fingri.
Fjarlægðu sködduðu ljósaperuna (notaðu skrúfjárn), skiptu um ljósaperuna og settu síðan hlífina aftur á sinn stað.
Tengdu tækið aftur og settu það í gang.
Lýsing á vörunni
Teikning af tækinu
- Hitastillitakki og lýsing
- Geymsluhillur
- Grænmetislok
- Grænmetisskúffa
- Efri skúffa í frysti
- Neðri skúffa í frysti
- Stillifætur
- Eggjabakki
- Hurðarhillur
Ath! Þar sem við erum stöðugt að þróa vörur okkar, getur verið að ísskápurinn þinn líti örlítið öðruvísi út en á teikningum í þessari handbók, en hann starfar á óbreyttan hátt.

Hliðin sem hurðin opnast frá er hægt að breyta úr hægri hlið (eins og afhent) yfir í vinstri hlið ef þörf er á því þegar honum er komið fyrir.
Verkfæri sem þú þarfnast:
- Topplykill (8 mm)

- Stjörnuskrúfjárn

- Kíttisspaði eða skrúfjárn með þunnu blaði

Leggðu ísskápinn niður á bakið til að eiga greiðan aðgang að undirstöðu hans (áður skaltu leggja frauðplast eða pappa úr umbúðunum á gólfið til að afturhlið ísskápsins skaðist ekki).
- Réttu við ísskápinn og opnaðu efri hurðina. Fjarlægðu hurðarhillurnar og lokaðu hurðinni til að vernda hinar hillurnar fyrir skemmdum.

- Lyftu upp efri hurðinni og leggðu hana á flöt sem rispar hana ekki og láttu úthliðina vísa upp.
ATH! Þegar þú fjarlægir hurðina skaltu fylgjast með skífu(m) milli miðhjarar og botni frystihólfshurðar sem gætu verið fastar við hurðina. Ekki týna þeim.
- Skrúfaðu burt hinar tvær sérstöku sjálftengjandi hjólkragaskrúfurnar sem halda miðhjörinni, fjarlægðu síðan miðhjörina sem heldur neðri hurðinni á sínum stað.

- Lyftu burt neðri hurðinni og settu hana á flöt sem rispar hana ekki og láttu úthliðina vísa upp.
ATH! Þegar þú fjarlægir hurðina skaltu fylgjast með skífu(m) milli miðhjarar og botni frystihólfshurðar sem gætu verið fastar við hurðina. Ekki týna þeim.
- Fjarlægðu skrúfugatshlífarnar frá vinstri götunum eins og lýst er á teikningu og færðu þær á opnu götin hægra megin.

- Skrúfaðu burt neðri hjararpinnann, færðu hann á gatið hinum megin við hjörina og skrúfaðu hann fastan.

- Settu hjörina til baka vinstra megin og festu hana með hinum sérstöku sjálftengjandi hjólkragaskrúfum. Færðu stuðningsplötu framfóta yfir á andstæða hlið og festu hana með hinum sérstöku sjálftengjandi hjólkragaskrúfum. Settu stillifæturnar á sinn stað.

- Lyftu neðri hurðinni í sína nýju stöðu, hagræddu neðri hjör, settu hjararpinnann í botngatið á neðri hurðinni, festu síðan skrúfurnar.

- Snúðu miðhjörinni á hvolf, færðu hana og hagræddu staðsetningunni. Settu miðhjararpinnann í efra gatið á neðri hurðinni. Skrúfaðu síðan fast að.

- Lyftu upp efri hurðinni í sína viðeigandi stöðu. Vertu viss um að hurðin standi rétt, settu miðhjararpinnann inn í neðra gatið á efri hurðinni.

- Færðu efri hjörina og settu efri hjararpinnann inn í efra gatið á efri hurðinni. Hagræddu staðsetningu efri hurðarinnar (studdu við efri hurðina meðan þú ert að þessu) og festu efri hjörina með hinum sérstöku sjálftengjandi hjólkragaskrúfum.

- Settu skrúfugatshlífina á efra hægra horn ísskápsins. Settu efri hjararhlífina (sem er í plastpokanum) á vinstra hornið og skrúfaðu hana fasta. Settu hina efri hjararhlífina inn í plastpokann.

- Opnaðu efri hurðina og settu hillurnar í, lokaðu síðan hurðinni að því búnu.
Viðvörun! Vertu viss um að tækið sé aftengt frá vegginnstungunni þegar þú snýrð við hurðinni. Aftengdu fyrst tækið frá vegginnstungunni.
- Notaðu oddhvasst verkfæri til að ná upp handfangartöppunum og skrúfugatstöppunum, skrúfaðu síðan úr hinar sérstöku sjálftengjandi skrúfur sem halda handföngunum. Fluttu handfangið á hægri hlið og skrúfaðu það fast. Settu þar eftir skrúfugatstappana á hina hliðina. Skrúfaðu úr sjálftengjandi skrúfurnar sem halda hurðarstoppinu og settu hurðarstoppið á vinstri hina hliðina.

Förgun tækis
Tækið má ekki farga með heimilissorpi.
Umbúðir
Umbúðir með endurvinnslumerkinu má endurvinna. Losaðu umbúðirnar í viðeigandi söfnunargám til að endurvinna þær.
Fylgdu neðangreindum leiðbeiningum til að farga tækinu.
- Aftengdu tækið frá vegginnstungunni.
- Skerðu rafmagnssnúruna af og fargaðu henni.
Þetta tákn gefur til kynna að tækinu skuli ekki fargað með venjulegu heimilissorpi innan ESB. Til að koma í veg fyrir neikvæðar afleiðingar í umhverfinu eða á heilsu manna sem hlýst af eftirlitslausri sorplosun, vinsamlegast endurvinnið þessa vöru á ábyrgan hátt til að efla sjálfbæra endurnotkun á hráefnum. Til að skila notuðu tæki vinsamlegast notaðu söfnunar- og skilakerfið eða hafðu samband við smásöluaðilann þar sem þú keyptir tækið. Smásöluaðilinn getur tryggt að varan sé endurunnin á umhverfisvænan hátt.


Gæðaábyrgð gildir fyrir neytandann

ELVITA