NATTBAD 406.194.10 - Haut-parleur IKEA - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis NATTBAD 406.194.10 IKEA á PDF sniði.
Spurningar notenda um NATTBAD 406.194.10 IKEA
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Haut-parleur á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína NATTBAD 406.194.10 - IKEA og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. NATTBAD 406.194.10 vörumerkisins IKEA.
NOTENDAHANDBÓK NATTBAD 406.194.10 IKEA
Blikkar hvítu: Bluetooth leitar að tæki (pörunarhamur).
Stöðugt hvítt: Kveikt er á
Blikkar rauðu: Endurstilling stendur yfir.

Geymdu þessar leiðbeiningar til að nota síðar.
Fyrstu skref
- Settu rafmagnssnúru í samband í (5) AC rafmagnstengið og hinn endann í vegginnstungu.
- Ýttu á stillingahnappinn (4) til að kveikja á hátalaranum. LED stöðuljós blikkar hvítu ljósi á meðan hátalarinn er í pörunarham. Ef hátalarinn fer ekki sjálfkrafa í pörunarham skaltu ýta á og halda inni stillingahnappinum (4).
- Kveiktu á Bluetooth á tækinu og paraðu það við NATTBAD. Þegar þú hefur parað símann við hátalarann heyrist staðfestingarhljóð og LED ljós blikkar tvisvar.
Hljóðstyrkur stilltur
Snúðu hljóðhnappinum (5) til vinstri til að lækka eða til hægri til að hækka. Þú getur einnig hækkað og lækkað með tækinu sem er tengt við hátalarann.
Skipt um lag
Ýttu á hljóðhnapp (2) til að pása/spila lag. Ýttu tvisvar til að spila næsta lag. Ýttu þrisvar til að spila fyrra lag.
Spotify Tap™
Spotify Tap™ gerir þér kleift að stjórna tónlistinni beint úr Bluetooth-hátalaranum með því að smella á hnapp (3).
Fyrstu skref (Spotify Tap™)
- Sæktu Spotify appið í App Store (fyrir iOS) eða Google Play Store (fyrir Android).
- Fullvissaðu þig um að tækið þitt sé parað við NATTBAD hátalarann með Bluetooth.
- Athugaðu hvort Spotify-appið sé ekki örugglega opið. Það þarf bara að vera opið í fyrstu notkun.
- Smelltu á Spotify Tap™ hnappinn (3) til að spila tónlist.
Nú þegar þú smellir á Spotify Tap™ hnappinn (3) ætti hann að spila tónlist, svo lengi sem tækið þitt er parað og í nálægð við hátalarann.
Stjórna tónlist (SpotifyTap™)
Ýttu aftur á hnappinn (3) á meðan tónlistin er enn í gangi til að spila lag sem mælt er með fyrir þig.
Hátalarinn er með fjölhátalarakerfi sem þýðir að þú getur tengt aðra hátalara með sama kerfi og hlustað á sömu tónlistina í nokkrum hátölurum.
- Tengdu tækið þitt við einn hátalarann með Bluetooth.
- Ýttu og haltu inni hljóðhnappinum (2) á hinum hátalaranum sem þú vilt tengja. LED stöðuljósið (1) blikkar tvisvar hvítu ljósi og staðfestingarhljóð heyrist frá hátalaranum. Farðu eftir sömu skrefum fyrir hvern hátalara sem þú vilt tengja fjölhátalarakerfinu.
Aftengja hátalara frá fjölhátalarakerfi
Ýttu og haltu inni stillingahnappinum (4) í meira en 1,5 sekúndu á hátalaranum sem þú vilt aftengja til að hann fari í pörunarham.
Afpara Bluetooth-tæki:
Til að tengja annað tæki við hátalarann: Slökktu á Bluetooth á tækinu sem er þegar parað. Hátalarinn ætti að fara sjálfkrafa í pörunarham. Ef ekki, þarftu að ýta og halda inni stillingahnappinum (4) til að fara í pörunarham.
Endurstilla á grunnstillingu
Ef hátalarinn virkar ekki eins og hann á að gera skaltu endurstilla hann. Ýttu og haltu inni stillingahnappinum (4) í 8 sekúndur þar til LED stöðuljósið hættir að blikka rauðu. Nú þarf að para hann aftur við tækið.
Öryggi og mikilvægar upplýsingar
VIÐVÖRUN!
- Hætta á ofhitnun! Aldrei setja vöruna upp í lokuðu rými. Hafðu ávallt að minnsta kosti 5 mm af opnu rými í kringum vöruna þannig að loftið geti flætt um hana. Athugaðu að gardínur og aðrir hlutir hylji ekki loftræstiraufar á vörunni.
- Varan og rafhlöður mega ekki vera nálægt opnum eldi eða öðrum hitagjöfum eins og sólarljósi.
- Aðeins til notkunar innandyra. Hátalarinn má ekki komast í snertingu við leka eða skvettur, aldrei setja hluti með vatni, eins og blómavasa, ofan á hátalarann.
- Ekki setja hátalarann ofan á önnur raftæki.
- Ef snúran er skemmd skaltu skipta henni út fyrir nýja snúru sem samþykkt er til notkunar í landinu.
- Logandi kerti og annar eldgjafi má ekki vera ofan á tækinu.
- Rafmagnsklóna eða tengið skal nota sem tengingarbúnað og hafa ávallt aðgengilegt og tilbúið til notkunar.
Mikilvægt
- Ekki skilja hátalarann eftir þar sem hann kemst í snertingu við beint sólarljós eða nálægt hitagjöfum, þar sem hann gæti ofhitnað.
- Hátalarinn ætti ekki að komast í snertingu við blautt, rakt eða óhóflega rykugt umhverfi, þar sem það gæti valdið skemmdum.
- Drægnin á milli hátalarans og móttökutækisins er mæld á opnu svæði.
- Mismunandi byggingarefni og staðsetning tækja geta haft áhrif á drægni þráðlausrar tengingar.
- Of hár hljóðstyrkur getur skemmt heyrn.
- Snertu ekki bassakeiluna.
- Ekki nota vöruna sem hillu eða stand.
- Leitaðu að mikilvægum merkingum undir vörunni.
Umhirðuleiðbeiningar
Fyrir þrif þarf að taka hátalarann úr sambandi. Þurrkaðu yfirborðið með rökum klút. Gættu þess að bleyta hátalarann ekki mikið. Þerraðu hátalarann vel með mjúkum klút áður en þú setur hann aftur í samband.
Athugaðu!
Aldrei nota hrjúf áhöld eða sterk efni þar sem það gæti skemmt vöruna.
Vöruþjónusta viðhald
Ekki gera tilraun til að gera við þessa vöru upp á eigin spýtur, því ef þú opnar eða fjarlægir lokin gætir þú orðið fyrir rafstraumi eða öðrum hættum.
Bluetooth® orðmerki og myndmerki eru skrásett vörumerki í eigu Bluetooth SIG, Inc. og öll notkun IKEA á slíkum merkjum er samkvæmt leyfum. Önnur vörumerki og vöruheiti eru í eigu viðkomandi eigenda.


Spotify Tap™
Spotify Tap™ er vörumerki í eigu Spotify og öll notkun IKEA á merkinu er samningsbundin. Önnur Spotify vörumerki, þjónustumerki, vöruheiti, nafnmerki, lénsheiti og annað undir Spotify merkinu eru í eigu Spotify eða leyfishafa Spotify.
„Made for Apple“ merking þýðir að varan hefur verið hönnuð sérstaklega fyrir Apple vörur sem bera þá merkingu og hefur fengið vottun frá framleiðanda um að hún standist staðla Apple um afköst. Apple ber ekki ábyrgð á virkni tækisins eða að það uppfylli kröfur öryggisstaðla og reglugerða.
Tæknilegar upplýsingar
Módel: NATTBAD
Tegund: E2405
Inntak: 100-240VAC 50-60Hz
Orkunotkun í biðstöðu: 0.3 W
Orkunotkun þegar slökkt
er á vörunni: 0.1 W
Málaflsnotkun: 12.6 W
Sjálfvirk biðstaða: 1 mínútur
Hitastig við notkun: 0° C til 40° C
Rakastig við notkun: 0 til 95 % RH
Mál (mm): 123 x 92 x 179 mm
Bluetooth-útgáfa: V 5.3
Drægni þráðlausrar tengingar
(ótrufluð): 10 m
Vinnslutíðni: 2.400 - 2.483.5 MHz
Aflsafköst útvarps:
Táknið með mynd af ruslatunnu með krossi yfir þýðir að ekki má farga vörunni með venjulegu heimilissorpi. Vörunni þarf að skila í endurvinnslu eins og lög gera ráð fyrir á hverjum stað fyrir sig. Með því að henda slíkum vörum ekki með venjulegu heimilissorpi hjálpar þú til við að draga úr því magni af úrgangi sem þarf að brenna eða nota sem landfyllingu og lágmarkar möguleg neikvæð áhrif á heilsu fólks og umhverfið. Þú færð nánari upplýsingar í IKEA versluninni.
![graph TD A["Top Circle"] --> B["Bottom Left Circle"] B --> C["Bottom Right Circle"] C --> D["Bottom Left Circle"] D --> E["Bottom Right Circle"] E --> F["Bottom Left Circle"] style A fill:#fff,stroke:#000 style B fill:#fff,stroke:#000 style C fill:#fff,stroke:#000 style D fill:#fff,stroke:#000 style…](/content/2026/05/756797/images/72876ea89b8e9f76b75bfcbb4a720502e1493fbc4bbded1446ec8a6c304c1c2f.jpg)
