FINMAT 405.175.72 - Casserole IKEA - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis FINMAT 405.175.72 IKEA á PDF sniði.
Spurningar notenda um FINMAT 405.175.72 IKEA
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Casserole á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína FINMAT 405.175.72 - IKEA og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. FINMAT 405.175.72 vörumerkisins IKEA.
NOTENDAHANDBÓK FINMAT 405.175.72 IKEA
• Þvoðu, skolaðu og þurrkaðu eldunarílátið vel áður en þú notar það í fyrsta skipti.
- Eldunarílátið þarf að þvo í höndunum. Notaðu uppþvottalög og mjúkan bursta/svamp. Ekki nota klór eða önnur sterk efni sem geta skemmt koparinn.
- Þurrkaðu eldunarílátið strax eftir þvott svo að koparinn verði ekki mattur. Ekki láta eldunarílátið þorna sjálft því þá getur koparinn mislitast og vatnsblettir myndast.
- Með tímanum dökknar koparinn og veðrast þar sem hann er útsettur fyrir vatni og súrefni. Þetta eru efnahvörf sem gera það að verkum að koparinn fær á sig náttúrulega spanskgrænu en þýðir ekki að koparinn sé slitinn eða að eitthvað sé að. Þú getur losnað við spanskgrænuna ef þú kýst.
- Besta leiðin til að losna við spanskgrænu er að þrífa koparinn vel og pússa hann, vinsamlega fylgdu eftirfarandi skrefum:
- Til að þrífa koparinn skaltu byrja á að blanda saman salti og ediki og hræra saman þar til saltið hefur allt verið leyst upp. Vættu mjúkan skrúbb í lausninni og skrúbbaðu yfirborðið þar til blettirnir hverfa. Þú getur notað svamp með skrúbbi til að ná blettunum af.
- Til að fægja yfirborðið skaltu nota sérstakt fægiefni fyrir kopar og fylgja leiðbeiningunum.
Til að koma í veg fyrir rispur þegar þú fægir koparinn skaltu nota diskþurrku eða mjúkan svamp án skrúbbs.
- Notaðu ekki stálull því hún getur skemmt yfirborð koparsins.
- Ef eldunarílátið er sett inn í ofn eða á gashellur getur það orðið mislitað. Til að fá aftur upprunalegan lit á koparinn skaltu þrífa og fægja yfirborðið samkvæmt leiðbeiningunum hér fyrir ofan.
- Botninn er aðeins íhvolfur þegar hann er kaldur en þenst út og verður flatur þegar hann hitnar. Leyfðu eldunarílátinu alltaf að kólna áður en það er þrifið. Þá fer botninn í sína upprunalegu lögun og það kemur í veg fyrir að hann verði ójafn við notkun.
- Til að koma í veg fyrir saltbletti í ílátinu ætti ekki að salta matinn fyrr en eftir að suðan hefur komið upp.
Gott að vita
- Eldunarílátið hentar til notkunar á öllum gerðum af helluborðum, þar með talið spanhelluborðum.
- Þú getur sparað orku með því að nota alltaf hellu sem er jafnstór eða minni en botn pottsins/pönnunnar að þvermáli.
- Lyftið ílátinu alltaf þegar það er fært til á keramikhelluborði til að yfirborðið rispist síður.
- Hafðu í huga að ílátið verður heitt við notkun. Notaðu alltaf ofnhanska.
- Ef einhver vandamál koma upp varðandi vöruna, hafðu þá samband við þjónustudeild IKEA eða leitaðu upplýsinga á IKEA.is.