BEKANT 402.783.07 - Bureau IKEA - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis BEKANT 402.783.07 IKEA á PDF sniði.
Spurningar notenda um BEKANT 402.783.07 IKEA
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Bureau á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína BEKANT 402.783.07 - IKEA og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. BEKANT 402.783.07 vörumerkisins IKEA.
NOTENDAHANDBÓK BEKANT 402.783.07 IKEA
Börn frá 8 ára aldri og fólk með skerta skynjun eða skerta líkamlega eða andlega getu geta notað þetta tæki ef þau eru undir eftirliti eða hafa fengið leiðbeiningar um hvernig á að nota tækið á öruggan hátt og skilja hætturnar sem því fylgja. Börn eiga ekki að leika sér með tækið. Börn eiga ekki að sjá um þrif og viðhald nema undir eftirliti.
Þýtt úr upprunalegum leiðbeiningum.
Ráð og leiðbeiningar fyrir BEKANT skrifborð
Hljóðstyrkur: minni en 55 dB(A)
Hæðarstilling:
ESB-útgáfa: 64-125 cm
Bandarísk útgáfa: 57,4-122,4 cm
Burðarþol: 70 kg
Kjörhitastig við notkun: +5 til +40°C
Kjörhitastig við geymslu: -10 til +50°C
Rakastig: 20 til 80% við +30°C.
Aflgjafi: DC 29V, 200W / 220W (JP)
Framleiðandi: ROL ERGO
Módel:
ASW0579-2902002W /
Notið tækið aðeins með meðfylgjandi aflgjafaeiningunni.
Sá sem ber ábyrgð á uppsetningu og notkun þessa borðs eða viðhaldi og viðgerð ætti að lesa þessar leiðbeiningar vandlega. Geymið leiðbeiningarnar nærri borðinu.
Uppsetningarleiðbeiningar
Setjið borðið saman samkvæmt meðfylgjandi samsetningarleiðbeiningum.
Tengið snúruna úr einum fæti yfir í þann næsta. Tengið fjarstýringuna við annan fótinn og rafmagnssnúru við hinn. Snúrurnar sem liggja í fæturna, stjórnbúnaðinn og í rafmagn ætti svo að setja í meðfylgjandi net. Komið þeim þannig fyrir að þær skemmist ekki, sjá samsetningarleiðbeiningar.
Tengið rafmagnssnúruna í vegginnstungu. ATH! Rafmagnssnúran verður að liggja þannig að hún geti færst til.
Setjið öryggislykilinn í innstunguna á stjórnbúnaðinum.
Borðið er nú tilbúið til notkunar. Mótorinn stöðvast sjálfkrafa þegar borðið hefur náð lægstu eða hæstu mögulegu stillingu.
Notkun borðsins
Borðið er aðeins ætlað til notkunar sem vinnuborð með möguleika á að stilla vinnuhæðina milli standandi og sitjandi stöðu. Borðið má aðeins nota innandyra og í þurru umhverfi (á skrifstofu o.þ.h.).
Ekki má ofhlaða borðið, burðarþol er 70 kg/145 lbs. Mótorinn má ganga viðstöðulaust í eina mínútu að hámarki. Eftir það þarf að hvíla mótorinn í u.þ.b. 9 mínútur áður en má nota hann aftur.
Fylgdu eftirfarandi leiðbeiningum þegar hæðin á borðinu er stillt:
- Stingdu öryggislyklinum í innstunguna á stjórnbúnaðinum.
- Gættu þess að ekkert sé fyrir borðinu áður en hæðin er stillt.
- Til að hækka eða lækka borðið þarf að þrýsta á hnappinn með örvunum.
Öryggisleiðbeiningar
- Þegar borðið er hækkað og lækkað þarf að gæta þess að vera í nægilegri fjarlægð til að forðast að klemmast á milli borðplötunnar og nærliggjandi hluta.
- Sú/sá sem hækkar og lækkar borðið þarf að vera vel á verði þannig að enginn slasist og ekkert skemmist. Borðplatan má ekki rekast utan í þannig að borðið velti um. Fjarlægðu alltaf skrifborðsstól áður en borðið er hækkað/lækkað.
- Þegar borðið er skilið eftir eftirlitslaust þarf að fjarlægja öryggislykilinn úr stjórnbúnaðinum og hann geymdur þar sem börn ná ekki til.
- Borðfótum má ekki breyta á nokkurn hátt. Gættu þess að taka borðið alltaf úr sambandi við rafmagn þegar þarf að sinna viðhaldi eða viðgerðum.
- Breytingar á stjórnbúnaði eru stranglega bannaðar.
- Borðið má ekki nota sem lyftu fyrir fólk.
Viðhald og viðgerðir
- Eftir u.þ.b. vikunotkun, athugaðu hvort skrúfur séu vel hertar.
- Athugaðu tengingu milli stjórnbúnaðar og vegginnstungu ef ekki er hægt að lækka eða hækka borðið.
- Ef skipta þarf um einhvern hluta rafbúnaðarins þarf fyrst að taka rafmagnssnúruna úr sambandi. Sinntu viðhaldinu og settu svo aftur í samband. Borðið er þá tilbúið til notkunar á ný.
Ef borðið virkar ekki sem skyldi þrátt fyrir þessar aðgerðir, hafðu þá vinsamlega samband við IKEA verslunina. Síminn í þjónustuveri er 520 2500.
Samræmisyfirlýsing ESB fylgir með pakkningunum í aðskildum skjölum.
Táknið með mynd af ruslatunnu með krossi yfir þýðir að ekki má farga vörunni með venjulegu heimilissorpi. Vörunni þarf að skila í endurvinnslu eins og lög gera ráð fyrir á hverjum stað fyrir sig. Með því að henda slíkum vörum ekki með venjulegu heimilissorpi hjálpar þú til við að draga úr því magni af úrgangi sem þarf að brenna eða nota sem landfyllingu og lágmarkar möguleg neikvæð áhrif á heilsu fólks og umhverfið. Þú færð nánari upplýsingar í IKEA versluninni.

Endurræstu með því að ýta samtímis á upp og niður hnappana í að minnsta kosti 8 sekúndur

Ýttu og haltu inni niður-hnappinum og þá fer borðið í lægstu stöðu.

Borðið er nú tilbúið til notkunar.
| Möguleg vandamál og lausnirIKEA BEKANT - iDrive | ||
| Vandamál Athugaðu Prófaðu | ||
| Grindin hreyfist ekki 1. Gættu | pess að allar snúrur séu heilar og tengdar.2. Gættu pess að öryggislykillinn sé í réttri stöðu í stjórnbúnaðinum.3. Taktu skrifborðið úr sambandi við vegginnstungu í u.þ.b. eina mínútu og settu það svo aftur í samband. | Tengdu snúrurnar og stingdu öryggislyklinum inn.Fylgdu leiðbeiningum um uppsetningu.Hafðu samband við þjónustuborð IKEA ef vandamálið leysist ekki. |
| Aðeins einn fótur hreyfist. Endurræstu. Hafðu samband við | þjónustuborð IKEA ef aðeins einn fótur hreyfist. | |
| Fæturnir hreyfast á ólíkum hraða. | Endurræstu. Hafðu samband við þjónustuborð IKEA ef fæturnir hreyfast enn á ólíkum hraða. | |
| Grindin færist aðeins stutta lengd. | Gættu pess að það sé ekki of mikil þyngd á borðinu og að öryggislykillinn sé í réttri stöðu í stjórnbúnaðinum. | Fjarlægðu þyngd af borðinu og stingdu öryggislyklinum inn.Endurræstu. Hafðu samband við þjónustuborð IKEA ef vandamálið leysist ekki. |
| Grindin stöðvast og fer í andstæða átt. | Gættu pess að ekkert sé fyrir borðinu. Fjarlægðu fyrirstöðuna. Endurræstu. Hafðu samband við þjónustuborð IKEA ef vandamálið leysist ekki. | |
| Grindin fer aðeins í eina átt (upp eða niður). | Endurræstu. Hafðu samband við þjónustuborð IKEA ef vandamálið leysist ekki. | |
| Borðið er ekki lárétt. | ||