KSU 8GF2E - Congélateur BAUKNECHT - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis KSU 8GF2E BAUKNECHT á PDF sniði.
Spurningar notenda um KSU 8GF2E BAUKNECHT
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Congélateur á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína KSU 8GF2E - BAUKNECHT og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. KSU 8GF2E vörumerkisins BAUKNECHT.
NOTENDAHANDBÓK KSU 8GF2E BAUKNECHT
Leiðbeiningar um notkun og umhirðu
Kæliskápsljós
LED-ljósaperan fjarlægð (eftir gerð)
Hillur
Lúga
Hvernig nota á búnaðinn
FYRSTA NOTKUN
Geymsla matvæla í frystihólfi (eftir gerð)
Geymslupol matvæla við mismunandi hitastig
Hvernig afpíða skal frystihólfið (eftir gerð)
Vinnsluhljóð
Ráðleggingar þegar tækið er ekki í notkun
Prif og viðhald
Ljósabúnaðurinn innan í kæliskápsrýminu notar LED-ljós sem veita betri lýsingu en hefðbundnar perur auk þess að nota mjög litla orku. Hafið samband við tæknþjónustu ef skipta þarf um.
Mikilvægt: Það kviknar á ljósi kæliskápsrýmisins þegar hurð kæliskápsins er opnuð.
LED-ljósaperan fjarlægð (eftir gerð)
Takið tækið alltaf úr sambandi frá rafmagni áður en skipt er um ljósaperuna. Fylgið síðan leiðbeiningunum fyrir þá tegund ljósaperu sem tækið notar. Skiptið um ljósaperuna með peru af sömu eiginleikum sem fæst hjá tæknipjónustunni og viðurkenndum söluaðilum.
Ljósagerð 1)
Til að fjarlægja ljósaperuna skal losa hana með því að snúa rangsælis eins og sýnt er á myndinni. Bíðið í 5 mínútur áður en tækið er tengt.
LED-ljósapera (hámark 25 W)


Ljósagerð 2)
Ef tækið er með LED-ljós, eins og sýnd eru á myndunum að neðan, hafið þá samband við tæknipjónustu ef skipta þarf. LED-ljós endast lengur en hefðbundnar ljósaperur, auka sýnileika að innan og eru umhverfisvæn.

Hægt er að fjarlægja allar skúffur, hillur og hurðarhillur.
Lúga
Viðsnúanleiki hurðar
Til athugunar: Hægt er að breyta því í hvaða stefnu hurðin opnast. Ef þessi aðgerð er framkvæmd af viðgerðarþjónustu þá fellur hún ekki undir ábyrgð. Fylgdu leiðbeiningunum í uppsetningarleiðbeiningar.
Hvernig nota á búnaðinn
FYRSTA NOTKUN
Bíðið í a.m.k. tvær klukkustundir eftir uppsetningu áður en tækið er tengt við rafmagn. Tækið fer sjálfkrafa í gang þegar það er tengt við rafmagn. Tilvalið geymsluhitastig fyrir matvælin er forstillt í verksmiðjunni.
Þegar kveikt hefur verið á tækinu verður að bíða í 4-6 klukkustundir til að náð sé réttu geymsluhitastigi fyrir tæki sem sett hefur verið venjulegt magn í. Staðsetjið bakteríuvarnar og lykteyðandi síuna í viftuna eins og sýnt er á pakkningu síunnar (ef við á). Ef hljóðmerkið heyrist þýðir það inngrip hitastigsviðvörunarinnar: Ýtið á hnappinn til að slökkva á hljóðviðvöruninni.
Kæliskápsrýmið er til að geyma fersk matvæli og drykki. Kæliskápsrýmið afísar sig á fullkomlega sjálfvirkan hátt. Tilfallandi vatnsdropar innan á afturvegg rýmisins eru merki um sjálfvirka afísingarfasann. Leysingavatnið er leitt með rás í niðurfall og síðan safnað í ílát, þar sem það gufar upp.
Til athugunar: Umhverfishiti, hversu oft hurðirnar eru opnaðar og staðsetning tækisins geta haft áhrif á innra hitastigið í báðum rýmunum. Stillið hitastigið eftir þessum þáttum. Við aðstæður þegar raki er mikill getur rakapétting myndast í kæliskápsrýminu, sérstaklega á glerhillunum. Í þessu tilfelli er mælt með að loka ílátum með vökva (t.d. pottur með soði), pakka matvælum sem hafa mikið vatnsinnihald (t.d. grænmeti) og kveikja á viftunni, ef hún er til staðar. Hægt er að fjarlægja allar skúffur, hurðarhillur og aðrar hillur.
Loftræsting
Loftræsting gerir mögulega betri dreifingu hitastigsins innan í rýminu og, þar af leiðandi, betri varðveislu matvælanna og dregur úr umframraka. Hindrið ekki loftræstisvæðið.
Hvernig geyma á fersk matvæli og drykki
Matvæli sem gefa af sér mikið magn af etýlengasi (epli, apríkósur, perur, ferskjur, lárperur, fíkjur, sveskjur, bláber, melónur, baunir) ættu alltaf að vera aðskilin frá þeim sem eru viðkvæm fyrir þessu gasi, eins og ávextir, grænmeti og salat, eða pakka þeim inn til að minnka ekki geymsluþolið; til dæmis skal ekki geyma tómata með kívíávöxtum eða káli. Geymið ekki matvæli of þétt saman svo nægileg hringrás lofts verði möguleg. Notið endurvinnanleg ílát úr plasti, málmi, áli og gleri og matarfilmur til að pakka inn matvælum.
Ef verið er með lítið magn af matvælum til geymslu í kæliskáp er ráðlagt að nota hillurnar fyrir ofan ávaxta- og grænmetisskúffuna þar sem þetta er kaldasta svæðið í rýminu. Notið alltaf lokuð ílát fyrir vökva og fyrir matvæli sem geta gefið frá sér lykt eða mengast af flutningi lyktar og bragðefna eða hyljið þau. Til að hindra að flöskur velti um koll skal nota flöskuhaldarann (fáanlegur á völdum gerðum).

Tilvalið til geymslu á suðrænum ávöxtum, dósum, drykkjum, eggjum, sósum, súrsuðu grænmeti, smjöri, sultu
KALT SVÆÐI
Tilvalið fyrir geymslu osta, mjólkur, daglegs matar, sælkeravara, jógúrts
KALDASTA SVÆÐI
Tilvalið fyrir geymslu á áleggi, eftirréttum, kjöti og fiski
ÁVAXTA- OG GRÆNMETISSKÚFFA
Í gerðum með „0 ° SVÆÐI“ HÓLF er „kaldasta svæðið“ það sem er áherslumerkt í skýringunni
* Geymsla matvæla í frystihólfi (eftir gerð)
Í frystigeymsluhólfinu er mögulegt að geyma matvæli til langs tíma. Aðeins er hægt að nota „geymsluhólfið“ til að viðhalda frystingu frosinna matvæla, en það er ekki gert til að frysta ný fersk matvæli.
Í frystihólfinu er hægt að geyma matvæli til langs tíma og frysta fersk matvæli. Hversu mikið magn af ferskum matvælum er hægt að frysta á 24 klukkustundum stendur skrifað á merkiplötuna. Raðið ferskum matvælum á frystisvæðið innan í frystihólfinu og skiljið eftir nægilegt pláss í kringum matarpakkningarnar til að hringrás lofts sé óhindruð. Ráðlagt er að frysta ekki aftur matvæli sem hafa verið þídd niður að hluta. Mikilvægt er að pakka matvælunum inn á þann hátt að innkoma vatns, raka eða rakapéttingar sé hindruð.
Ísmolar
Fyllið 2/3 af klakabakkanum með vatni og setjið hann aftur í frystihólfið. Notið ekki undir neinum kringumstæðum beitta eða oddhvassa hluti til að fjarlægja klakana.
Skúffurnar fjarlægðar
Togið skúffurnar út eins langt og hægt er, lyftið þeim upp og fjarlægið þær. Til að fá meira pláss er hægt að nota frystihólfið án skúffanna. Verið viss um að hurðin lokist almennilega eftir að matvælin eru sett aftur á grindurnar/hillurnar.

Geymsluþol matvæla við mismunandi hitastig
| FRYSTIGEYMSLUHÓLF | |||
| Vara Geymslutími (-12 °C) | Ráðlagður geymslutími (-18 °C) | 18 °C) | Geymslutími (-24 °C) |
| Smjör eða smjörlíki 1 mánuður 6 mánuðir 9 mánuðir | |||
| Fiskur 1 mánuður 1-3 mánuðir 6 mánuðir | |||
| Ávextir (fyrir utan sítrus) & grænmeti | 1 mánuður 8-12 mánuðir | 12 mánuðir | |
| Kjöt - skinka - pylsa Steikur (naut-svin-lamb) Steikur eða kótilettur (naut-lamb-svín) | 1 mánuður 2 mánuðir | 8 -12 mánuðir 4 mánuðir | 12 mánuðir |
| Mjólk, ferskur vökvi, ostur, rjómaís eða frauðís | 1 mánuður 1 -3 mánuðir | 5 mánuðir (ekki ráðlagt fyrir rjómaís) | |
| Fuglakjöt (kjúklingur-kalkúnn) | 1 mánuður 5-7 mánuðir | 9 mánuðir | |
Geymsluþol matvæla við mismunandi hitastig
| RÝMI FYRIR ÓFROSIN MATVÆLI | |||
| Vara | Geymslutími (0-3 °C) | Geymslutími (3-6 °C) | Geymslutími (6-8 °C) |
| Dósir, drykkir, egg, sósur, súrsað grænmeti, smjör, sulta | 3-4 vikur | 3-4 vikur | 3-4 vikur |
| Suðrænir ávextir | Ekki ráðlagt | 2-4 vikur | 3-4 vikur |
| Ostur, mjólk, mjólkurvörur, tilbúinn matur, jógúrt | 2-5 dagar | 2-5 dagar | 2-5 dagar |
| Álegg, eftirréttir, kjöt og fiskur og heimalagaður matur | 3-5 dagar | 1-2 dagar | Ekki ráðlagt |
| Geymið grænmeti og ávexti (fyrir utan suðræna ávexti og sítrus) | 15 dagar | 10-12 dagar | 4-7 dagar |
Hvernig afþíða skal frystihólfið (eftir gerð)
- Ráðlagt er að stilla á lægra hitastig eða kveikja á hraðfrystingu/hraðkælingu a.m.k. fjórum klukkustundum áður en matvælin eru fjarlægð úr frystihólfinu, til að matvælin varðveitist lengur í afísingarfasanum.
- Til að afísa skal slökkva á tækinu og fjarlægja skúffurnar. Setjið frosnu matvælin á kaldan stað. Hafið hurðina opna til að ísingin bráðni. Til að hindra að vatn leki meðan á afísingunni stendur er ráðlagt að setja íseygan klút í botn frystihólfsins og vinda hann reglulega.
- Þrífið innan úr frystihólfinu og þurrkið það vandlega.
- Kveikið aftur á tækinu og setjið matvælin aftur inn.
Vinnsluhljóð
- Suð sem þjappan myndar er eðlilegt þegar tækið er að vinna.
- Þegar kælimiðilsgasið fer í gegnum kælirásina myndast gutl- og snarkhljóð, þetta eru því eðlileg hljóð.
- Mögulegt er að „heyra” marr þegar þjappan er virk og óvirk: Þetta er eðlilegt hljóð sem stafar af því hvernig tækið er byggt upp.
- Athugið að hillurnar innan á kæliskápshurðinni, hillurnar og skúffurnar í kæliskápsrýminu séu festar og staðsettar á réttan hátt, til að koma í veg fyrir mögulegan titring.
- Setjið ekki glerílát (flöskur, krukkur o.s.frv.) í beina snertingu hvert við annað, til að hindra titring.
- Þetta tæki er búið þjöppu sem vinnur við besta hraða til að lágmarka orkunotkun. Í sumum tilfellum getur það gerst (á sumrin eða ef mikið magn matvæla er sett inn) að þjappan eykur hraðann og er þess vegna háværari en venjulega.
Ráðleggingar þegar tækið er ekki í notkun
Í því tilfelli sem tækið er ekki notað
Aftengið tækið frá rafveitu, tæmið það (ef þarf) og þrífið.
Haldið hurðunum opnum í hálfa gátt til að leyfa hringrás lofts innan í rýmunum. Með því er komið í veg fyrir að mygla og slæm lykt myndist.
Í tilfelli rafmagnstruflunar
Haldið hurðunum lokuðum þannig að matvælin haldist köld eins lengi og mögulegt er. Frystið ekki aftur matvæli sem hafa verið þídd niður að hluta. Ef það er langvarandi rafmagnsleysi gæti rafmagnsleysisviðvörunin einnig virkjast (í tækjum með rafeindabúnaði).

Áður en þrif- eða viðhaldsaðgerðir eru hafnar skal taka tækið úr sambandi frá rafveitu eða aftengja frá rafmagni. Notið aldrei slípiefni. Þrífið aldrei kæliskápshluta með eldfimum vökvum.
Notið ekki gufuhreinsitæki.
Ekki skal þrífa hnappana og skjá stjórnborðsins með alkóhóli eða efnum sem leidd eru af alkóhóli, heldur með klút.
Þrífið tækið af og til með klút og lausn af heitu vatni og hlutlausu hreinsiefni, sérstaklega fyrir þrif á innri hluta kæliskápsins.
Til að tryggja stöðugt og rétt flæði leysingavatnsins skal þrífa reglulega innan úr niðurfallinu sem staðsett er á afturvegg kæliskápsrýmisins nálægt ávaxta- og grænmetisskúffunni með því að nota áhaldið sem fylgir með.

Skipt um þéttingar


