FAMMARP 804.959.88 - Chaise IKEA - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis FAMMARP 804.959.88 IKEA á PDF sniði.

IKEA FAMMARP 804.959.88 - Stóll
📄 120 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice IKEA FAMMARP 804.959.88 - page 24
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um FAMMARP 804.959.88 IKEA

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Netfangið þitt er áfram einkamál: það er aðeins notað til að láta þig vita ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Chaise á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína FAMMARP 804.959.88 - IKEA og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. FAMMARP 804.959.88 vörumerkisins IKEA.

NOTENDAHANDBÓK FAMMARP 804.959.88 IKEA

Börn frá 8 ára aldri og fólk með skert skynbragð, líkamlega eða andlega getu, geta notað þetta tæki ef þau eru undir eftirliti eða hafa fengið leiðbeiningar frá einstaklingi, sem er ábyrgur fyrir öryggi þeirra, um hvernig á að nota tækið á öruggan hátt og að það skilji hætturnar sem því fylgir. Börn eiga ekki að leika sér með tækið.

Börn eiga ekki að sjá um hreinsun og viðhald nema undir eftirliti.

Upprunalegar leiðbeiningar fyrir FAMMARP

Hægindastóll með takkastýrðu rafknúnu baki og skemli.

Einungis má nota vöruna með aflgjafanum sem fylgir.

Hver sem ber ábyrgð á uppsetningu og notkun þessa hægindastóls eða viðhaldi og viðgerð, ætti að lesa þessar leiðbeiningar vandlega.

Geymdu leiðbeiningarnar nálægt FAMMARP sófasamstæðunum.

Uppsetningarleiðbeiningar

  • Hægindastóllinn og aðrar FAMMARP sófasamstæður á að setja saman samkvæmt aðskildum samsetningarleiðbeiningum. Fjarlægðu aflgjafann og settu hann á gólfið. Stilltu upp rafmagnssnúrunum þannig að þær skemmist ekki.
  • Stjórnhnappar eru staðsettir hægra megin á sætinu.
  • Stingdu rafmagnssnúrunni í samband við vegginnstungu.

ATHUGADU! Rafmagnssnúran verður að liggja þannig að hún geti færst til.

Hægindastólaeiningin er tilbúin til notkunar. MÓTORINN stöðvast sjálfkrafa þegar stóllinn hefur náð lægstu eða hæstu stöðu.

Hægindastólaeiningin í notkun

Aðeins má nota hægindastólaeininguna innandyra og á þurrum svæðum og sem almennt húsgagn með stillanlegum eiginleikum.

Bæði má ekki ofhlaða sófann - hámarksþyngd er 136 kg/300 lbs. Hægt er að láta mótorinn ganga í mest 2 mínútur samfleytt. Eftir það þarf að hvíla hann í u.þ.b. 18 mínútur.

LEIÐBEININGAR

Fylgdu leiðbeiningunum þegar þú stillir stöðu sætis: Stjórnhnapparnir eru staðsettir hægra megin við þig þegar þú situr.

  1. Gættu þess að það sé engin fyrirstaða þannig að hægt sé að stilla stöðu einingarinnar.
  2. Ýttu á annan stjórnhnappinn til að stilla stöðu einingarinnar. Fremri hnappinn til að lækka hann og aftari hnappinn til að færa bakið í upprétta stöðu.

VIÐVÖRUN

  • Ekki leyfa börnunum að leika sér á eða nota hnappana á rafknúna húsgagninu.
  • Skemillinn leggst saman þegar hægindastóllinn fer í upprétta stöðu, og gæti því skaðað barn. Skildu hægindastólinn alltaf eftir í uppréttri stöðu. Haltu höndum og fótum frá búnaðinum. Aðeins einstaklingurinn sem situr í hægindastólnum á að stjórna honum.

Öryggisleiðbeiningar

  • Þegar þú stillir stöðu hægindastólsins - haltu öruggri fjarlægð til að festast ekki á milli stólsins og annarra nálægra gólf- eða veggfestra hluta, og til að koma í veg fyrir sjálfheldu í vélbúnaðinum og hættuleg meiðsl.
  • Þegar hægindastóllinn færist á aðra stöðu þarf notandinn að gæta þess að enginn og ekkert verði fyrir skaða. Til að koma í veg fyrir að húsgögnin velti þarf að gæta þess að einingin rekist ekki í aðra gólf- eða veggfesta hluti.
  • Gættu þess að það sé nóg pláss fyrir aftan bakið svo það geti lagst aftur.
  • Þegar hægindastóllinn er í neðstu stöðu má ekki setja aukapyngd á skemilinn og ekki má sitja eða standa á honum. Grind sófans/einingarinnar má ekki breyta á nokkurn hátt. Gættu þess að taka hægindastólinn alltaf úr sambandi við rafmagn þegar þarf að sinna viðhaldi eða viðgerðum.
  • Ekki misnota hægindastólinn sem lyftu fyrir fólk eða hluti.
  • Þegar einingin er ekki í notkun á hún ávallt að vera í uppréttri stöðu. Aldrei skilja hægindastólinn eftir í lægri stöðu þar sem barn eða gæludýr gæti skriðið undir sófann.
  • Ef hægindastólaeingin virkar ekki - athugaðu allar tengingar á milli aflgjafa einingarinnar og vegginnstungu og að auki tenginguna á milli aflgjafa og tengisins á einingunni.
  • Ef skipta þarf um einhvern hluta rafbúnaðarins þarf fyrst að taka rafmagnssnúruna úr sambandi.
  • Ef skipta þarf um einhverja einingu FAMMARP sófans þarf fyrst að taka rafmagnssnúruna úr sambandi.
  • Athugaðu reglulega að allar festingar séu nægilega hertar og hertu eftir þörfum.

Ef hægindastóllinn virkar ekki sem skyldi þrátt fyrir þessar aðgerðir, hafðu þá samband við þjónustuborð IKEA.

ATHUGADU! Ekki reyna að gera við hægindastólaeinguna sjálf/ur, þar sem það gæti stuðlað að hættu sem fylgir því að opna eða taka hana í sundur.

Samræmisyfirlýsing ESB fylgir með pakkningunum í aðskildum skjölum.

Framleiðandi: IKEA of Sweden AB

(skráningarnúmer verslunar: 556074-7551)

Heimilisfang: Box 702, SE-343 81 Älmhult, SWEDEN

Símanúmer: +46(0)476-648500

GEYMDU LEIÐBEININGARNAR

IKEA FAMMARP 804.959.88 - GEYMDU LEIÐBEININGARNAR - 1

Táknið með mynd af ruslatunnu með krossi yfir þýðir að ekki má farga vörunni með venjulegu heimilissorpi. Vörunni þarf að skila í endurvinnslu eins og lög gera ráð fyrir á hverjum stað fyrir sig. Með því að henda slíkum vörum ekki með venjulegu heimilissorpi hjálpar þú til við að draga úr því magni af úrgangi sem þarf að brenna eða nota sem landfyllingu og lágmarkar möguleg neikvæð áhrif á heilsu fólks og umhverfið. Nánari upplýsingar í IKEA versluninni.

Tæknilegar upplýsingar

Módel: FAMMARP hægindastóll
Númer tegundar: KDM0516-7
Inngangsaf! 100-240V 50/60Hz, 2.4 A
Orkunotkun i biöstöü: 0,21 W
Hallahorn baks i uppréttri stöü: 105°
Lengd i neöstu stöü: Gættu bess að bað sé nóg pláss fyir aftan bakið (fjarlægð fra vegg eða hlut) og fyir framan skemilinn.1275 mm
Hallahorn baks i neöstu stöü: 105°
Hæð skemils i lægstu stöü: 1275 mm
Breidd: 1275 mm
Burðarþol: 136 kg/300 lb
Keyrslutími: 9 sekündur
Hitastig við notkun +10 til +40 °C/+50 til +104 °F
Rakastig: 45% to 75%
Hljóðstyrkur: <50dB(A)

Vandamál og lausnir

ATHUGADU!

Taktu alla rafmagnssnúruna úr sambandi fyrir viðhald og viðgerðir!

Vandamál Athugaðu Prófaðu
Hægindastólaeingin virkar ekki.Er sófinn tengdur við rafmagn?Tengdu lampa eða álíka raftæki við rafmagnið til að athuga hvort að innstungan virki.
Er rafmagnssnúran i samband við vegginnstungu?Athugaðu allar tengigar.
Eru sýnilegar skemmdir á snúrum eða afgjafa?Skiptu ut skemmdum hlutum - Hafðu sambandi við bjónustuborð IKEA.
Hægindastólaeingin nemur staðar og fer aðeins i gagnstæða átt.Er einingin i lægstu stöðu?Pegar hægindastólaeingin hefur náð lægstu stöðu getur hún aðeins farið i efri stöðu.
Er einingin i efstu stöðu?Pegar hægindastólaeingin hefur náð efstu stöðu getur hún aðeins farið i neðri stöðu.
Hægindastólaeingin fer sjálfkrafa i efstu/neðstu stöðu.Er eithvað sem brýstir á stýrihnappana?Fjarlægðu hlutinn og reyndu aftur.
Er einhver hlutur i rifunni milli hnappanna sem heldur ðeim inni?Fjarlægðu hlutinn og reyndu aftur.
Hægindastólaeingin færist hægara en vanalega.Er of mikilþyngd á einingunni?Léttu á einingunni og reyndu aftur.
Hægindastólaeingin fer ekki i hæstu stöðu.Er einhver fyrirstaða undir skemlinum?Fjarlægðu fyrirstöðuna og reyndu aftur.
pað kemur hljóð ñegar hægindastólaeingin færist niður eða upp.Kemur hljóðið frá motornum?Skiptu ut skemmdum mátor - Hafðu sambandi við bjónustuborð IKEA.
Kemur hljóðið frá vélbúnaðinum?Hafðu samband við bjónustuborð IKEA til að gera við vélbúnaðinn.
Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : IKEA

Líkan : FAMMARP 804.959.88

Flokkur : Stóll