Girl - Poupée BABY born - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis Girl BABY born á PDF sniði.
Spurningar notenda um Girl BABY born
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Poupée á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína Girl - BABY born og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. Girl vörumerkisins BABY born.
NOTENDAHANDBÓK Girl BABY born
Hjartanlega til hamingju með kaupin á leikfangi frá Zapf Creation AG!Við mælum með pví að lesa leiðbeiningarnar vandlega yfir áður en leikfangið er tekið í notkun og geyma umbúðirnar til að geta flett upp síðar.
EIGINLEIKAR
Hún getur hreyft sig
BABY born ^® er öll liðskipt vegna pess að hún er með liðamót á handleggjum, fótleggjum og hálsi.
Mynd 1

Hún borðar og fer á koppinn
BABY born® getur borðað hafragraut í alvörunni. Fyllið grautarskálina með vatni upp að merkinu (12 ml); blandið svo innihaldí pokans út í og hrærið í þangað til allir kekkir eru horfnir og grauturinn hefur sogað upp vatnið. Eftir stutta stund er hafragrauturinn orðinn hæfilega þykkur og hægt er að gefa BABY born® að borða. Til þess er best að leggja BABY born® á annan handlegginn og mata hana með lausu hendinni. Aðeins má nota upprunalega BABY born® næringu, því að slöngur og hylki inni í brúðunni geta að öðrum kosti stíflast. Setjið aldrei graut í pelann því grauturinn lendir þá í hylki í maga brúðunnar sem ekki er til þess gert og getur því stíflast. Ef brúðunæringin notast upp er hægt að kaupa meiri graut hjá seljanda brúðunnar. Hafragrauturinn er úr blöndu af hveiti og sterkju og er algjörlega hættulaus þótt fyrir komi að óvart sé borðað af honum. Athugið og virðið lágmarksgeymslupolið sem er uppgefið á pokanum.
Pegar BABY born® er búin að borða getur hún farið á koppinn. Til pess parf að klæða BABY born® úr, beygja á henni hnén, láta hana setjast á koppinn og ýta svo á naflann á henni í smátíma (mynd 1). Ef hnén á brúðunni eru ekki nægilega beygð er ekki hægt að ýta niður naflanum.
Athugið:
Pað er alveg nauðsynlegt að hreinsa slöngukerfið innan í BABY born® strax eftir að hún er búin á koppnum. Flettið líka upp í kaflanum „Hvernig BABY born® er hreinsuð“.
Hún drekkur og vætir bleyjuna
BABY born® getur drukkið í alvörunni. Fyllið pelann sem fylgir brúðunni með hreinu kranavatni. Alltaf ætti að halda brúðunni uppréttri á meðan henni er gefið að drekka svo að hún pissi ekki strax í bleyjuna. Ekki má gefa henni annað að drekka en hreint vatn. Allir aðrir vökvar geta stíflað slöngur og hylki inni í brúðunni. Munið að skrúfa túttuna þéttingsfast á pelann á eftir. Til að gefa brúðunni að drekka þarf að stinga pelanum djúpt inn í munninn á henni og þrýsta á hliðarnar á pelanum. BABY born® getur drukkið um það bil þriðjung úr pelanum áður en hún þarf að pissa. Um leið og BABY born® er lögð niður vætir hún bleyjuna. Pá er hægt að skipta á henni. Brúðan er seld með einni bleyju. Önnur bleyja fylgir með, en hægt er að kaupa fleiri passandi bleyjur fyrir BABY born® hjá seljanda brúðunnar. (Pegar BABY born® fær pelann sinn getur komið fyrir að hún væti bleyjuna áður en hún er lögð til svefns.)
Hún getur grátið
Ef prýst er nokkrum sinnum á hægri handlegginn á BABY born® grætur hún raunverulegum tárum. (BABY born® parf að fá vatn að drekka áður en hún getur grátið.)
Paǒ má baða hana
Hægt er að baða BABY born® í baðkerinu eða fara með hana í sundlaugina. Pó ætti ekki að kaffæra hana í vatninu. Aldrei á að láta Baby born vera lengi óvarða í beinu sólarljósi (hámark 1 klst.).
Áður en BABY born® er böðuð þarf að ganga úr skugga um að ventillinn á bakinu á henni sé lokaður (skoran á snúanlega lokinu á að vera lóðrétt). Til að baða hana má eingöngu nota kalt eða volgt vatn og venjuleg baðefni fyrir börn. BABY born® ætti ekki að vera lengur en 3 tíma í baðvatni né heldur í klórblönduðu eða söltu vatni, því þá er ekki hægt að útiloka kemísk áhrif eða upplitun á efni brúðunnar. Eftir baðið á að hreinsa BABY born® með hreinu kranavatni.
Ef vatn kemst inn í BABY born® í baðinu má Þurrka hana aftur á eftirfarandi hátt: Opnið ventilinn á bakinu á BABY born® með því að snúa lokinu gætilega rangsælis með skrúfjárni eða smápeningi og síðan toga í það út. Það er ekki hægt að taka lokið alveg af! Vatninu má ná út með því að hrista brúðuna gætilega fram og aftur (látið bakið snúa niður). Endurtakið petta nokkrum sinnum. Ef þarf má Þurrka brúðuna í 2-3 klukkustundir með ventilinn opinn til að losna við allan raka. Eftir Þurrkun á að snúa lokinu aftur réttsælis.
Athugið:
- Við leiki í baðkerinu getur vatn komist inn í slöngur og hylki. Pess vegna er nauðsynlegt að hreinsa slöngukerfið innan í BABY born® strax eftir baðið. Flettið líka upp í kaflanum „Hvernig BABY born® er hreinsuð“.
- BABY born® á ekki að nota sem flotbúnað.
- Notið hvorki fegrunarefni né húðverndarvörur fyrir BABY born®.
- Ef vatn kemst inn í BABY born® brúðuna verður að purrka hana áður en stillt er yfir í gagnvirka haminn.
Svefnaugu
BABY born® er með töfrandi falleg svefnaugu. Um leið og þú leggur BABY born® til hvílu lokar hún augunum og sofnar.
Hvernig BABY born® er hreinsuð
Ef BABY born ^ verður óhrein má þvo hana að utan með votum klút. Pað er alveg nauðsynlegt að hreinsa slöngukerfið innan í BABY born ^ strax eftir að hún er búin í baði. Ef hún er ekki hreinsuð geta leifar af baðvatni, klórvatni eða söltu vatni stíflað slöngukerfið og hylkin inni í brúðunni. Sé hún notuð til lengdar án þess að hreinsa hana getur hún myglað. Til þess að hreinsa BABY born ^ á réttan hátt skal fylla pelann með volgu vatni blönduðu ögn af mildum uppþvottalegi, stinga síðan stútnum á pelanum til hálfs inn í munninn og beina honum niður á við um leið (ef pelanum er stungið alveg inn fer þvottavatnið í rangan geymi). Um leið og pelinn er tómur þarf að hrista BABY born ^ duglega til að losa allar leifar innan úr henni. Síðan er BABY born ^ látin setjast á koppinn og ýtt á naflann á henni svo að hún tæmist algjörlega. Endurtakið þetta nokkrum sinnum og hreinsið síðan að minnsta kosti tvisvar sinnum innan úr henni með hreinu vatni. Í síðustu skolun eiga engar sýnilegar leifar að vera eftir í hreinsivatninu. Að lokum þarf að láta BABY born ^ sitja um 15 mínútur á koppnum til að tryggja að hún tæmi sig fullkomlega.
BABY born® interactive
Hún BABY born® er gagnvirk og hægt er að fá sérstaka fylgihluti sem bregðast við hljóði, ljósi og hreyfingu. Nánari upplýsingar eru á umbúðum fylgihlutanna og á www.baby-born.com.
Fæðingarvottorð
Í viðbót við BABY born® sjálfa og fylgihlutina tíu færðu fæðingarvottorð í kreditkortaformi. Á þetta fæðingarvottorð geturðu skrifað nafnið hennar BABY born®, þyngd, fæðingardag og stærð. Auk þess sérðu 8 talna kóða á framhlið kortsins. Með þessum kóða geturðu skráð þig inn á nýju BABY born® vefsíðuna www.baby-born.com (ef þú ert með internettengingu). Pá geturðu skráð brúðuna pína, tekið þátt í skemmtilegum leikjum og orðið meðlimur í alþjóðlega BABY born® samfélaginu. Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni.
AE
