CKF4200X - Réfrigérateur Elvita - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis CKF4200X Elvita á PDF sniði.
Spurningar notenda um CKF4200X Elvita
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Réfrigérateur á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína CKF4200X - Elvita og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. CKF4200X vörumerkisins Elvita.
NOTENDAHANDBÓK CKF4200X Elvita
Öryggi við uppsetningu.... 310
Öryggi við notkun.... 310
Öryggi við viðhald 311
Förgun 312
FLÝTIBYRJUN 313
HEFJAST HANDA 314
Lærið um kæli- og frystiskápinn 314
Stýringar og skjár 314
Aukahlutir.... 314
Kæliskápshólf 315
Frystihólf 315
Finndu gerðarkóðann 316
Fyrir fyrstu notkun.... 316
NOTKUN KÆLI- OG FRYSTISKÅPSINS 318
Stillingar og aðferðir.... 318
Breyta hitastiginu í kæliskápnum 318
Breyta hitastiginu í frystinum 319
Kveikt og slökkt á Super Freeze stillingu 319
Hitastigi breytt í boxinu fyrir fersk matvæli 322
Rakastigi í ávaxta- og grænmetisboxi breytt 323
HREINSUN OG VIDHALD 324
Hreinsaðu ytra byrði 324
Innra byrði hreinsað 325
Hreinsaðu hurðarpéttin 329
Frystiskápurinn afpíddur 331
Undirbúningur ef ekki á að nota tækið í langan tíma 332
Lykt kemur úr hólfunum 335
Hávaði úr kæli- og frystiskápnum 335
Ísingarlag í hólfinu 336
Mótorinn er stöðugt í gangi 336
Hitastigið að innan er of hátt 336
Hitastigið að innan er of lágt 336
Ekki hægt að loka hurðum auðveldlega.... 336
Vatn á gólfinu 337
Ljósið virkar ekki 337
UPPSETNING 338
Uppsetningarsvæði 338
Taktu kæli- og frystiskápinn úr umbúðunum.... 340
Hurðir fjarlægðar og settar upp.... 343
Hurðum snúið við 346
TÆKNILÝSINGAR 352
Tæknilýsing.... 352
Stærðir.... 353
Lesið þessar leiðbeiningar vandlega áður tækið er sett upp og notað. Geymið leiðbeiningarnar nálægt tækinu til síðari nota. Margskonar ábyrgðir munu falla úr gildi ef þessum leiðbeiningum er ekki fylgt.
Viðvaranir

HÆTTA!
Notaðar þegar hætta er á líkamstjóni eða dauða.

VIÐVÖRUN!
Notaðar þegar hætta er á líkamstjóni.

VARÚÐ!
Notaðar þegar hætta er á því að varan verði fyrir tjóni.

ATHUGADU!
Almennar upplýsingar sem þú ættir að vita um.

Hjálpleg ráð sem þér kunna að þykja gagnleg.
Ætluð notkun
Tækið er einungis ætlað fyrir:
- Notkun innandyra á heimili eða svipuðu umhverfi eins og:
– eldhúsum starfsfólks í verslunum, á skrifstofum og öðrum starfsumhverfum; - bóndabýli; - af viðskiptavinum á hótelum, mótelum og öðrum íbúðaumhverfum; – gistiheimilisumhverfum; – veislþjónustu og svipaða notkun sem fellur ekki undir smásölu.
- Heimilisnotkun, eins og geymsla matvæla og drykkjarvara.
Þessi kæliskápur er ekki ætlaður til notkunar sem innbyggt tæki.
Öryggi fyrir börn og fólk með fötlun

VIÐVÖRUN!
Látið eftirfarandi hópa aðeins nota tækið undir umsjón eða ef þeim hafa verið veittar leiðbeiningar um örugga notkun þess. Þau verða að skilja hætturnar sem eru til staðar.
- Börn 8 ára og eldri. (Börn undir 8 ára verða að vera undir stöðugu eftirliti, eða haldið fjarri vörunni.)
- Börn á aldrinum 3 til 8 ára mega setja í og taka úr tækinu.
- Fólk með minnkaða líkamlega, skynjunarlega eða andlega getu.
- Fólk sem skortir reynslu og þekkingu.

VIÐVÖRUN!
- Leyfið börnum eða gæludýrum ekki að leika sér með tækið.
- Leyfið börnum ekki að þrífa tækið án eftirlits.
- Leyfið ekki börnum eða gæludýrum að fara eða klifra inn í tækið, þau gætu kafnað eða dottið.

VIÐVÖRUN!
Haldið öllum umbúðum fjarri börnum þar sem hætta er á köfnun.
Almennt öryggi

VIÐVÖRUN!
Ekki setja hendur, fætur eða málmhluti undir eða fyrir aftan tækið. Hætta er á að klemmast og beittar brúnir geta valdið meiðslum.

VIÐVÖRUN!
- Farið gætilega þegar tækið er fært. Tækið er þungt.
- Standið ekki á neinum hluta tækisins né notið neinn hluta tækisins sem stuðning.

VIÐVÖRUN!
Hætta á rafstuði!
- Ef rafmagnssnúran er skemmd verður henni að vera skipt út af framleiðandanum, þjónustuaðila hans eða sambærilega hæfum einstaklingum til að forðast hættu.
- Ekki stinga rafmagnstenglinum í samband ef rafmagnsinnstungan er laus. Hætta er á rafstuði og eldsvoða.
- Togið ekki í rafmagnssnúruna þegar tækið er tekið úr sambandi. Grípið ákveðið í rafmagnstengilinn og togið hann út úr rafmagnsinnstungunni.
- Ekki skemma eða kremja rafmagnssnúruna og notið hana ekki ef hún er skemmd eða slitin. Allar skemmdir sem verða á snúrunni geta valdið skammhlaupi, eldsvoða og rafstuði.

VIÐVÖRUN!
Hætta á eldsvoða!
- Finna má eftirfarandi tákn á tækinu. Það er viðvörun og gefur til kynna að kælimiðillinn og einangrunarpanefið séu eldfim.

- Tryggið að engir íhlutir kælimiðilsrásarinnar skemmist við flutning og uppsetningu á tækinu. Kælimiðillinn, ísóbútan (R600a), sem kælimiðilsrásin inniheldur er eldfimur.
- Ef kælimiðilsrásin er skemmd skal forðast opin eld og hita- og neistagjafa og loftræsta vandlega svæðið í kringum tækið.
- Breytið ekki tæknilýsingunum né gerið breytingar á tækinu á neinn hátt.
- Ekki stinga rafmagnstenglinum í samband ef rafmagnsinnstungan er laus. Hætta er á rafstuði eða eldsvoða.
- Ekki skemma eða kremja rafmagnssnúruna og notið hana ekki ef hún er skemmd eða slitin. Allar skemmdir sem verða á snúrunni geta valdið skammhlaupi, eldsvoða og rafstuði.
Öryggi við uppsetningu

VIDVÖRUN!
- Notið ávallt persónuhlífar (hanska o.s.frv.) við uppsetningu, viðhald og viðgerðir. Pað er hætta á meiðslum. • Gætið þess að kælimiðilsrásin skemmist ekki.
- Þegar tækið er staðsett skal tryggja að ekki sé þrengt að rafmagnssnúrunni og rafmagnstenglinum eða að þau verði fyrir skemmdum. Skemmdur rafmagnstengill getur ofhitnað og valdið eldsvoða.
- Þegar verið er að staðsetja tækið skal tryggja að hægt sé að komast að rafmagnstenglinum.
- Setjið tækið ekki upp á stað þar sem það er í beinu sólarljósi.
- Haldið loftræstiopum utan á tækinu lausum við hindranir.
- Setjið tækið ekki upp nema nægilegt pláss og loftræsting sé í kringum tækið. Það myndi valda ofhitnun.
- Setjið tækið ekki nálægt ofnum eða eldavélum.
- Yfirborðið sem tækið er uppsett á verður að vera nægilega sterkt til að standa undir fullhlöðnu tæki.
- Stillið fæturna þar til allir fæturnir snerta gólfið og tækið er lárétt. Það kemur í veg fyrir að tækið hreyfist, velti og það sé hætta á meiðslum.
- Setjið bakhlið tækisins ekki of nálægt vegg. Hætta er á eldsvoða ef þjappan ofhitnar.

VIDVÖRUN!
- Tengið ekki tækið við rafmagnsinnstungu ef tækið er skemmt. Hafið samband við smásöluaðilann þar sem tækið var keypt.
- Notið sérúthlutaða rafmagnsinnstungu, sem þýðir að ekki skal deila rafmagnsinnstungunni með öðrum tækjum.
- Staðsetjið ekki fjöltengi eða færanlega aflgjafa fyrir aftan tækið.
- Verið viss um að rafmagnstengillinn sé tengdur við jarðtengda innstungu. Athugaðu vandlega að innstungan sé jarðtengd á réttan og áreiðanlegan hátt.
- Notið ekki framlengingarsnúru og lengið ekki rafmagnssnúruna.
- Þegar tækið hefur verið staðsett er ráðlagt að bíða í a.m.k. 4 klukkustundir áður en það er tengt við rafveitu. Með því er olíunni gert kleift að flæða til baka í þjöppuna.
- Ef spennusveiflur á uppsetningarsvæðinu eru meiri en einfasa riðstraumur sem nemur 220\~240 V / 50 Hz skal nota sjálfvirkan AC spennustilli sem er yfir 350 W.

ATHUGADU!
Hafið samband við Elvita þjónustu ef hjálpar er þörf við uppsetningu tækisins.
Öryggi við notkun

VIDVÖRUN!
- Geymið ekki sprengifim efni í þessu tæki, eins og úðabrúsa sem innihalda eldfimt drifefni.
- Geymið ekki eldfimt gas eða vökva í tækinu, hætta er á sprengingu.

VIDVÖRUN!
Haldið logandi kertum, lömpum og öðrum hlutum með opnum eldi fjarri tækinu til að forðast eldhættu.

VIDVÖRUN!
- Setjið ekki matvæli eða ílát í frystihólfið með blautar hendur þegar kæli- og frystiskápurinn er í gangi, sérstaklega ekki málmílát, til að forðast skrámur á húð og frostbruna.
- Neytið ekki frosinna matvæla, eins og íspinna eða ísmola, beint úr frystiskápnum. Það gæti valdið frostbruna.

VIDVÖRUN!
- Haldið loftræstiopum innan í tækinu lausum við hindranir.
- Notið ekki raftæki innan í geymsluhólfum tækisins fyrir matvæli, nema þau sem framleiðandinn mælir með.
- Til að koma í veg fyrir að hlutir detti og valdi meiðslum eða skemmdum á tækinu skal ekki hlaða of miklu í hillurnar og hurðagrindurnar eða setja of mikið í ávaxta- og grænmetisskúffurnar.

VIDVÖRUN!
Notið tækið ekki án ljósaperuhlífarinnar inni í því.

VARÚÐ!
- Setjið ekki heita hluti nálægt plastíhlutum tækisins.
- Setjið ekki matvæli beint við loftúttakið á afturveggnum.

VARÚÐ!
Viðvaranir vegna matvælaöryggis!
Til að forðast mengun matvæla skal fylgja þessum leiðbeiningum:
- Forðist langvarandi hurðaropnanir: Ef hurðin er haldin opinni í langan tíma getur það valdið verulegri hækkun á hitastigi inni í hólfunum.
- Regluleg þrif: Hreinsið yfirborð sem komast í snertingu við matvæli og aðgengileg frárennsliskerfi reglulega.
- Viðhald vatnsskammtara: Fyrir gerðir með vatnsskammtara: Ef vatnsskammtarinn hefur ekki verið notaður í 48 klukkustundir skal hreinsa hann fyrir notkun. Ef vatnskerfið er tengt við vatnsveitu og hefur ekki verið notað í 5 daga skal skola það fyrir neyslu.
- Rétt geymsla á hráu kjöti og fiski: Geymið hrátt kjöt og fisk í viðeigandi ílátum í hólfunum til að koma í veg fyrir snertingu við eða leka á annan mat.
- Stjörnuflokkuð hólf:
– Tveggja stjörnu hólf fyrir frosin matvæli henta fyrir geymslu forfrystra matvæla, til að geyma rjómaís og búa til klaka. - Einnar stjörnu, tveggja stjörnu og þriggja stjörnu hólfin henta ekki til að frysta fersk matvæli.
- Varúðarráðstafanir við langtimageymslu: Ef kælitækið er skilið eftir tómt í langan tíma skal slökkva á því, afþíða, þrífa, þurrka og skilja hurðina eftir opna til að koma í veg fyrir að mygla myndist inni.
- Fara ætti nákvæmlega eftir ráðleggingum varðandi geymslu.
- Geymið forpökkuð fryst matvæli í samræmi við leiðbeiningar framleiðanda frystu matvælanna.
- Eftir að fryst matvæli hafa verið þídd niður skal ekki frysta þau aftur. Þegar matvæli hafa þiðnað geta gæðin versnað smám saman eða þau skemmst.
- Setjið ekki kolsýrða eða freyðandi drykki í frystihólfið þar sem það skapar þrýsting í ílátinu, sem getur valdið því að það springi og skemmi tækið.
Öryggi við viðhald

VIÐVÖRUN!
- Öll vinna við rafmagn verður að vera framkvæmd af viðurkenndum rafvirkja eða einstaklingi með sambærilega hæfni.
- Pjónusta fyrir þetta tæki má aðeins vera framkvæmd af viðurkenndri þjónustumiðstöð og aðeins má nota upprunalega varahluti.
- Ekki reyna að gera við, taka í sundur eða breyta tækinu sjálf.

VIÐVÖRUN!
Áður en hreinsun eða viðhald af öllu tagi er framkvæmt á tækinu skal taka það úr sambandi frá rafmagnsinnstungunni.

VIÐVÖRUN!
Notið ekki verkfæri eða aðrar aðferðir til að flýta fyrir afþíðingarferlinu, nema framleiðandinn mæli með því.

VIÐVÖRUN!
Skiptið ekki sjálf um ljósaperurnar í tækinu. Ef ljósaperurnar eru sprungnar skal hafa samband við þjónustu.

VARÚÐ!
- Notið ekki málmhluti, gufuhreinsi, þynni, bílahreinsiefni, klór, léttolíu, svarfandi hreinsiefni eða lífræn leysiefni eins og bensen til að þrífa. Það gæti skemmt yfirborð tækisins og gæti valdið eldsvoða.
- Notið ekki beitta hluti til að fjarlægja ísingu úr tækinu. Notið plastsköfu.
- Ekki nota svampa og grófa hreinsiklúta. Þeir geta valdið rispum.
- Hreinsið reglulega yfirborð sem geta komist í snertingu við matvæli og aðgengilegan frárennslisbúnað.
- Tryggið að hitastig frosinna matvæla hækki ekki við meðan verið er að framkvæma afþíðingu, viðhald eða þrif. Þetta getur leitt til minnkaðs geymsluþols.
Förgun

VIDVÖRUN!
- Til að hindra að börn lokist inni skal fjarlægja hurðirnar áður en vörunni er fargað.
- Ef tækið er með læsingu á hurðinni skal gera hana óvirka áður en tækinu er fargað.
- Til að hindra að börn geti orðið fyrir rafstuði skal taka rafmagnssnúruna úr sambandi og skera hana áður en tækinu er fargað.

VIDVÖRUN!
- Tryggið að rör kælimiðilsrásarinnar séu ekki skemmd áður en förgun á sér stað.
- Tækið inniheldur kælimiðil og gas í einangruninni. Fagaðilar verða að sjá um förgun kælimiðils og gass á viðurkenndri förgunarstöð í samræmi við staðbundnar reglur því þau geta valdið augnskaða eða íkveikju. Kælimiðillinn og einangrunarpanefnið eru eldfim. Útsetjið ekki fyrir eldslogum.

Fargið umbúðum á umhverfisvænan hátt. Með því að setja umbúðir í endurvinnslu, samkvæmt reglum lands og staðar, er hægt að draga úr notkun hráefna og magni úrgangs í landfyllingum.
Þetta tæki er merkt í samræmi við Evróputilskipun 2012/19/ESB, rafmagns- og rafeindatækjaúrgangur (WEEE). Táknið á tækinu eða á umbúðum þess gefur til kynna að ekki skuli meðhöndla það sem heimilisúrgang. Í staðinn skal afhenda það til viðeigandi söfnunarstöðvar fyrir endurvinnslu rafmagns- og rafeindatækjaúrgangs.
Með því að tryggja rétta förgun tækisins hjálpar þú við að koma í veg fyrir mögulega neikvæðar afleiðingar fyrir umhverfið og heilsu manna, sem að öðrum kosti gætu orðið vegna óviðeigandi meðhöndlunar úrgangs vegna þessa tækis. Til að fá nánari upplýsingar um endurvinnslu þessa tækis skaltu hafa samband við viðkomandi bæjaryfirvöld sem sjá um sorphirðu, heimilissorpþjónustu eða verslunina þar sem þú keyptir tækið.
FLÝTIBYRJUN
Hitastigi í kæliskáp breytt
1
2
Lærið um kæli- og frystiskápinn
Stýringar og skjár

A. Eco stilling B. Super Freeze stilling C. Stilling hitastigs D. Svæðisveljari E. Kveikja/slökkva, 3 sek.
Aukahlutir

Eggjahaldari: Til að geyma egg í kæliskápnum.
Ísmolabakki: Til að búa til ísmola í frystiskápnum.
Hlíf skrúfugats: Til að hylja skrúfugötin hægra megin efst í kæli- og frystiskápnum.
Hurðastopparar
Til að stoppa hurðirnar þegar þær eru settar vinstra megin, kemur í veg fyrir að þær rekist í nálæga hluti.
Kæliskápshólf

Kæliskápshólfið hentar til að geyma margs konar ávexti, grænmeti, drykkjarföng og önnur matvæli sem neytt er innan skamms tíma.
Hólfið samanstendur af hurðagrindum, hillum, vínrekka og tveimur skúffum.

ATHUGIÐ!
Orkunýting tækisins er best þegar allar hillur og skúffur eru í upphaflegum staðsetningum sínum. Hins vegar er hægt að fjarlægja hillurnar til að þrífa þær eða til að skapa meira pláss í kæliskápnum.

ATHUGIÐ!
Þetta tæki inniheldur ljósgjafa í orkunýtniflokki F.
Frystihólf

Frystihólfið getur haldið matvælum ferskum í langan tíma og hentar fyrir geymslu kjöts, fisks, rjómaíss og annarra matvæla sem ekki verður neytt innan skamms tíma.
Hólfið samanstendur af þremur skúffum.

ATHUGIÐ!
Orkunýting tækisins er best þegar allar hillur og skúffur eru í upphaflegum staðsetningum sínum. Hins vegar er hægt að fjarlægja efstu skúffurnar tvær til að fá meira pláss í frystiskápnum.
Finndu gerðarkóðann

Gerðarkóðinn er prentaður á merkimiða á tækinu. Þú þarft kóðann til að finna allar og nýjustu upplýsingarnar, þjónustuna og aðstoðina fyrir þína gerð af tæki.

ATHUGIÐ!
Þetta tæki og textamerking eru dæmi. Tækið þitt og texti gætu haft annað útlit og innihald.
Fyrir fyrstu notkun
Undirbúið kæli- og frystiskápinn fyrir fyrstu notkun áður en honum er stungið í samband og matvæli sett í geymslu.
- Gangið úr skugga um að allar umbúðir hafi verið fjarlægðar af kæli- og frystiskápnum og hann staðsettur á réttan hátt.

- Látið kæli- og frystiskápinn standa í að minnsta kosti 4 klukkustundir áður en honum er stungið í samband.

- Settu rafmagnssnúruna í samband.

- Látið kæli- og frystiskápinn vera tóman í gangi í a.m.k. 2 klukkustundir með lágri hitastigsstillingu. Kæli- og frystiskápurinn er nú tilbúinn til notkunar.
ATHUGADU! Sjálfgefið hitastig fyrir kæliskápinn er 4 °C. Þetta er ráðlögð stilling fyrir hitastig þegar kveikt er á kæliskápnum í upphafi.

Það getur haft neikvæð áhrif á afköst kæli- og frystiskápsins við kælingu ef of mikið af matvælum er sett í hann þegar kveikt er á honum í fyrsta sinn.
NOTKUN KÆLI- OG FRYSTISKÁPSINS
- Ýttu og haltu sekúndur til að slökkva á kæli- og frystiskápnum. Hljóðmerki heyrist og OF er sýnt. Slökkt er á kæli- og frystiskápnum.
- Ýttu og haltu 3 sekúndur til að kveikja á kæli- og frystiskápnum. Hljóðmerki heyrist. Kveikt er á kæli- og frystiskápnum.
Hurðarbjalla

ATHUGADU!
Forðastu að hafa hurðina opna í langan tíma til að spara orku.
Þegar kæliskápshurðin hefur verið opin í meira en 2 mínútur heyrist hljóðviðvörun. Slökktu á viðvöruninni með því að loka hurðinni. Ef hurðin er skilin eftir opin heyrist viðvörunin 3 sinnum á mínútu og það slokknar á henni eftir 8 mínútur.
Stillingar og aðferðir

ECO MODE
Sparar orku með því að draga úr orkunotkun. Sjá hluti "Kveikt og slökkt á Eco orkustillingu", síða 319.

SUPER
Frystir matvæli hraðar en venjulega. Sjá hluti "Kveikt og slökkt á Super Freeze stillingu", síða 319.
SET TEMP.
Stillir hitastigið. Sjá hluti "Breyta hitastiginu í kæliskápnum", síða 318 og hluti "Breyta hitastiginu í frystinum", síða 319.
Breyta hitastiginu í kæliskápnum
Stillið meðalhitastigið fyrir allt kæliskápshólfið.
- Ýtið á ZONE CHOICE og veljið B.
- Ýtið á SET TEMP. til að fara í gegnum öll möguleg hitastig: (8 °C, 7 °C, 6 °C, 5 °C, 4 °C, 3 °C, 2 °C) Hitastigið er nú stillt.

ATHUGIÐ!
Sjálfgefið hitastig er 4 °C. Þetta er ráðlögð stilling fyrir hitastig þegar kveikt er á kæliskápnum í upphafi.

ATHUGIÐ!
Hitastigið innan í hverju hólfi getur verið frábrugðið gildinu sem birt er á stjórnborðinu, eftir því hversu mikið af matvælum er geymt og hvar matvælin eru sett. Hár eða lágur herbergishiti getur einnig haft áhrif á raunverulegt hitastig innan í kæliskápnum.

VARÚÐ!
- Ef hitastigið er stillt hátt mun það auka matarsóun.
- Ef hitastigið er stillt lægra en nauðsynlegt er þá sóar það orku.
Breyta hitastiginu í frystinum
- Ýtið á ZONE CHOICE og veljið
- Ýtið á SET TEMP. til að fara í gegnum öll möguleg hitastig: (á bilinu -14 °C til -24 °C) Hitastigið er nú stillt.

VARÚD!
- Ef hitastigið er stillt hátt mun það auka matarsóun.
- Ef hitastigið er stillt lægra en nauðsynlegt er þá sóar það orku.
Kveikt og slökkt á Super Freeze stillingu
Notið Super Freeze stillingu til að lækka hitastigið hratt. Með þessu eru matvæli fryst hraðar en venjulega. Þetta heldur matvælunum ferskum lengur og varðveitir vítamín og næringarefni betur.
- Ýttu á SUPER til að kveikja á Super Freeze stillingu.
er sýnt og hitastigið er stillt á -24 °C.
- Bíðið í um það bil 24 klukkustundir.
ATHUGIÐ! Tíminn þar til áhrif Super Freeze stillingar koma fram að fullu fer eftir magni matvælanna. Ráðlagður tími fyrir frystingu hámarksmagns matvæla er 24 klukkustundir.
- Ýttu á SUPER til að slökkva á Super Freeze stillingu.
* er ekki lengur sýnt og hitastigið fer til baka í fyrri stillingu.
Það slokknar sjálfkrafa á Super Freeze stillingu eftir 52 klukkustundir og stilling hitastigsins í frystinum fer til baka í fyrri stillingu.
Notaðu Eco orkustillingu til að minnka orkunotkun.
- Ýttu á ECO MODE til að kveikja á Eco orkustillingu.
er sýnt, hitastigið í frystiskápnum er stillt á -17 °C, og hitastigið í kæliskápnum er stillt á 6 °C.
- Ýttu á ECO MODE aftur til að slökkva á Eco orkustillingu.
er ekki lengur sýnt og hitastigið fer til baka í fyrri stillingar.
Slökkva þarf handvirkt á Eco orkustillingu.
Geymsla matvæla
Geymsla matvæla í kæliskápnum

VIÐVÖRUN!
Til að koma í veg fyrir að hlutir falli og valdi meiðslum eða skemmdum á kæli- og frystiskápnum skal ekki hlaða of miklu í hillurnar og hurðagrindurnar eða setja of mikið í skúffurnar.

VARÚÐ!
- Farðu alltaf eftir þeim geymslutíma og fyrningardagsetningum sem framleiðendur leggja til.
- Ef hurðin er höfð opin í langan tíma getur það valdið verulegri hækkun á hitastigi í hólfunum.
- Geymdu hrátt kjöt og fisk í hentugum ílátum í kæliskápnum þannig að þau komist ekki í snertingu við eða valdi leka á önnur matvæli.

VARÚÐ!
Ekki loka hurðinni meðan einhverjar hillur eru útdregnar eða skúffur opnar. Það gæti skemmt hillurnar, skúffurnar og hurðina.

ATHUGADU!
Til að forðast óþarfa orkunotkun:
- Ekki geyma heitan mat eða vökva sem gufar í kæli- og frystiskápnum. Ef heit matvæli eru sett beint í kæli- eða frystiskápinn veldur það hækkun á innra hitastigi sem leiðir til þess að þjappan þarf að vinna meira og nota meiri orku. Kæla verður heitan mat og drykki að stofuhita áður en þau eru geymd.
- Ekki hafa hurðirnar opnar í langan tíma.
Notaðu eftirfarandi ábendingar og ráðleggingar við geymslu matvæla í kæliskápnum.
Þegar fersk matvæli eru sett í kæliskáp:
- Þekjið eða vefjið matvælin, sérstaklega ef þau eru bragðsterk.
- Settu matvælin þannig að loft geti leikið óhindrað um þau.
Aðrar ráðleggingar varðandi kæliskáp:
| Matvæli Råðlegging | |
| Kjöt (allar gerðir) Vefðu inn í pólýpen (plast) og settu á glerhilluna fyrir ofanskúffuna fyrir ávexti og grænmeti eða í boxið fyrir fersk matvæli með lágri stillingu hitastigs | |
| Eldaður matur, kaldir réttir o.s.frv. Breiddu yfir og settu í einhverja hillu | |
| Ávextir og grænmeti Geymdu í skúffunni fyrir ávexti og grænmeti | |
| Smjör og ostur Vefðu inn í loftþétta filmu eða plastfilmu | |
| Mjólkurflöskur, aðrir drykkir í flöskum og vökvar í dósum Vertu viss um að flöskurnar séu með loki og geymdu þær í hurðargrindunum eða á sveigjanlega vínrekkanum | |
| Egg og pökkuð matvæli | Geymdu í hurðargrindunum, settu eggin í eggjahaldarana |
Matvæli geymd í frystiskápnum

VIÐVÖRUN!
- Setjið ekki matvæli eða ílát í frystihólfið með blautum höndum þegar kæli- og frystiskápurinn er í gangi, sérstaklega ekki málmílát, til að forðast skrámu á húð og frostbruna.
- Neytið ekki frosinna matvæla, eins og íspinna eða ísmola, beint úr frystiskápnum. Það gæti valdið frostbruna.

VARÚÐ!
- Farið alltaf eftir þeim geymslutíma og fyrningardagsetningum sem framleiðendur leggja til.
- Ef hurðin er höfð opin í langan tíma getur það valdið verulegri hækkun á hitastigi í hólfunum.
- Geymið hrátt kjöt og fisk í hentugum ílátum í frystiskápnum þannig að þau komist ekki í snertingu við eða valdi leka á önnur matvæli.
- Setjið ekki kolsýrða eða freyðandi drykki í frystihólfið þar sem það skapar þrýsting í ílátinu, sem getur valdið því að það springi og skemmi tækið.
- Vertu viss um að flöskur séu ekki skildar eftir í frystiskápnum lengur en þess er þörf. Flöskurnar geta sprungið ef innihaldið frýs.

VARÚÐ!
Ekki loka hurðinni meðan skúffur eru opnar. Það gæti skemmt skúffurnar og hurðina.
Notaðu eftirfarandi ábendingar og ráðleggingar við geymslu matvæla í frystiskápnum.
- Undirbúðu matvælin í smáum skömmtum til að þau frjósi hratt og fullkomlega, sem gerir það aftur á móti mögulegt að þíða einungis niður það magn sem þarf í hvert skipti. Þegar matvæli hafa verið þídd niður þá spillast þau fljótt og ekki má frysta þau aftur.
- Þegar matvæli frjósa of hægt geta þau tapað gæðum sínum eða spillst.
- Pakkaðu matvælunum inn í álbynnu eða pólýetýlen (plast) matarfilmu sem er loftþétt. Þurrkaðu af ílátum áður en þau eru sett í frystiskápinn.
- Merktu og dagsettu hverja pakkningu sem á að frysta til að geta fylgst með geymslutímanum. Taktu út eins marga hluti og þarf í einu.
- Ekki láta fersk ófrosin matvæli komast í snertingu við matvæli sem eru þegar frosin til að forðast að hitastig þeirra síðarnefndu hækki.
- Vertu viss um að smásöluaðilinn hafi geymt matvælin á réttan hátt.
Klakar búnir til
Notaðu klakaformið til að búa til klaka.
- Fylltu klakaformið með vatni.
ATHUGIÐ! Vatnshæðin má ekki fara yfir línuna efst (helst ætti áttatíu prósent af rúmmáli klakaformsins að vera fyllt með vatni).

- Settu klakaformið í skúffu í frystiskápnum og bíddu í a.m.k. tvær klukkustundir eftir því að vatnið frjósi og verði að klökum.

- Snúðu varlega upp á bakkann til að aðskilja klakana frá bakkanum.

Hitastigi breytt í boxinu fyrir fersk matvæli
Stilltu hitastigið í boxinu svo það henti fyrir hinar mismunandi gerðir matvæla. Sjá dæmi um ráðlagðar stillingar og geymsluvalkosti í eftirfarandi töflu. Meðalhitastigið sem stillt er fyrir allt kæliskápshólfið hefur áhrif á hitastigið í boxinu. Hitastigið í boxinu er venjulega 2 °C lægra en í öðrum hlutum hólfsins.

ATHUGIÐ!
Eðlilegt er að vökvi frjósi í boxinu þar sem hitastigið gæti verið lægra en 0 °C.
| Hitastigsstilling, kæliskåpur Hitastigsstilling, box (sleði) Matvæli Geymslutímabil(°C) | |||
| 2 °C Lengst til hægri Fiskur og kjöt <3 dagar | |||
| 5 °C Lengst til hægri Ávextir <2 vikur | |||
| 8 °C Lengst til hægri Grænmeti <5 dagar | |||
- Færðu sleðann til hægri til að lækka hitastigið. Færðu sleðann til vinstri til að hækka hitastigið.

Stilltu rakastigið í boxinu svo það henti fyrir hinar mismunandi gerðir matvæla. Lokið fyrir boxið gerir kleift að stjórna betur hitastigi og koma í veg fyrir að ávextirnir og grænmetið missi raka.

Með hærra rakastigi er hægt að halda ávöxtum og grænmeti fersku í lengri tíma.
- Færðu sleðann til hægri til að lækka rakastigið. Færðu sleðann til vinstri til að hækka rakastigið.

Hreinsaðu ytra byrði
Hreinsaðu ytra byrði á tveggja mánaða fresti. Það hjálpar til við að viðhalda góðu útliti uppþvottavélarinnar.

VIÐVÖRUN!
- Taktu uppþvottavélina úr sambandi við rafmagn áður en hreinsað er. Hætta er á rafstuði. - Notaðu ekki málmhluti, beitta hluti, gufuhreinsi, þynni, bílahreinsiefni, klór, léttolíu, svarfandi hreinsiefni eða lífræn leysiefni eins og bensen til að þrífa. Það gæti skemmt yfirborð tækisins og gæti valdið eldsvoða.

VARÚÐ!
- Hreinsaðu reglulega yfirborð sem geta komist í snertingu við matvæli og aðgengilegan frárennslisbúnað.
- Ýttu og haltu sekúndur til að slökkva á uppþvottavélinni. Hljóðmerki heyrist og OF er sýnt. Slökkt er á uppþvottavélinni.

- Taktu uppþvottavélina úr sambandi við rafmagn.

- Þurrkaðu af stjórnborðinu með hreinum og mjúkum klút.

- Hreinsaðu hurðina, handfangið og yfirborðið með mjúkum klút sem t.d. hefur verið vættur með mildu hreinsiefni.

Úðaðu vatni á hreinsiklútinn frekar en að úða beint á yfirborð uppþvottavélarinnar. Það hjálpar til við að tryggja jafna dreifingu raka á yfirborðinu.

- Þurrkaðu hurðina, handfangið og yfirborðið með mjúkum klút.

Innra byrði hreinsað
Hreinsaðu innra byrði á tveggja mánaða fresti. Það er auðveldara að þrífa þegar lítið er af mat í skápnum.

VIÐVÖRUN!
- Taktu kæli- og frystiskápinn úr sambandi við rafmagn áður en hreinsað er. Hætta er á rafstuði. - Notaðu ekki málmhluti, beitta hluti, gufuhreinsi, þynni, bílahreinsiefni, klór, léttolíu, svarfandi hreinsiefni eða lífræn leysiefni eins og bensen til að þrífa. Það gæti skemmt yfirborð tækisins og gæti valdið eldsvoða.

VARÚD!
Hreinsaðu reglulega yfirborð sem geta komist í snertingu við matvæli og aðgengilegan frárennslisbúnað.
- Ýttu og haltu 3 sekúndur til að slökkva á kæli- og frystiskápnum. Hljóðmerki heyrist og OF er sýnt. Slökkt er á kæli- og frystiskápnum.

- Taktu kæli- og frystiskápinn úr sambandi við rafmagn.

- Notaðu mjúkan klút eða svamp til að þurrka af innan úr kæli- og frystiskápnum með veikri blöndu af matarsóda.

- Þurrkaðu af innra byrðinu og láttu standa með opnar hurðir til að þorna.

- Hreinsaðu hillurnar og skúffurnar með mjúkum klút vættum með sápuvatni eða blönduðu hreinsiefni.

- Þurrkaðu hillurnar og skúffurnar.

- Settu kæli- og frystiskápinn í samband við rafmagn.

Hreinsaðu hurðarpéttin
Athugaðu og hreinsaðu hurðarþéttin reglulega til að tryggja að engin óhreinindi séu á þeim. Klístraður matur og drykkir geta valdið því að þéttin festist við skápinn og rifni þegar hurðin er opnuð.

VIÐVÖRUN!
- Taktu kæli- og frystiskápinn úr sambandi við rafmagn áður en hreinsað er. Hætta er á rafstuði.
- Notaðu ekki málmhluti, beitta hluti, gufuhreinsi, þynni, bílahreinsiefni, klór, léttolíu, svarfandi hreinsiefni eða lífræn leysiefni eins og bensen til að þrífa. Það gæti skemmt yfirborð tækisins og gæti valdið eldsvoða.
- Ekki setja kæli- og frystiskápinn aftur í samband við rafmagn nema hurðarþéttin séu alveg þurr.
- Ýttu og haltu 3 sekúndur til að slökkva á kæli- og frystiskápnum. Hljóðmerki heyrist og OF er sýnt. Slökkt er á kæli- og frystiskápnum.

- Taktu kæli- og frystiskápinn úr sambandi við rafmagn.

- Þvoðu þéttin með mildu hreinsiefni og heitu vatni.

- Skolaðu og þurrkaðu þéttin vandlega eftir hreinsun.

- Settu kæli- og frystiskápinn í samband við rafmagn.

Þótt þessi kæli- og frystiskápur sé með sjálfvirka afþíðingu gæti ísingarlag myndast á innri veggjum frystihólfsins ef hurð frystiskápsins er opnuð oft eða höfð opin of lengi. Afþíða þarf frystiskápinn ef ísingin er orðin of þykk. Reyndu að afþíða þegar frystiskápurinn er næstum því tómur.

VIÐVÖRUN!
- Taktu kæli- og frystiskápinn úr sambandi við rafmagn áður en afþítt er. Hætta er á rafstuði.
- Ekki setja kæli- og frystiskápinn aftur í samband við rafmagn nema hann sé alveg þurr að innan.

VARÚÐ!
- Ekki nota málmhluti eða beitta hluti til að fjarlægja ísingu innan úr frystiskápnum. Það gæti skemmt yfirborð tækisins.
- Hreinsaðu reglulega yfirborð sem geta komist í snertingu við matvæli og aðgengilegan frárennslisbúnað.

- Fjarlægðu skúffurnar úr frystiskápnum.
ATHUGADU! Til að koma í veg fyrir að fryst matvæli verði of heit þegar frystirinn er afþíddur skal grípa til varúðarráðstafana eins og að vefja matvælin í mörg lög af fréttablöðum.
- Taktu kæli- og frystiskápinn úr sambandi við rafmagn.
- Staðsettu vatnsílát til að safna vatni.
- Láttu kæli- og frystiskápinn afþíðast af sjálfu sér. ATHUGADU! Loftræstu herbergið vel til að flýta fyrir ferlinu.
- Hreinsaðu frystiskápinn að innan. Sjá hluti "Innra byrði hreinsað", síða 325.
- Settu kæli- og frystiskápinn í samband við rafmagn.
- Settu skúffurnar aftur í frystiskápinn þegar hann er orðinn nægilega kaldur.
Undirbúningur ef ekki á nota tækið í langan tíma
Nokkurs undirbúnings er þörf ef slökkva skal á kæli- og frystiskápnum í langan tíma til að halda honum í góðu ástandi og koma í veg fyrir myglu.
- Taktu kæli- og frystiskápinn úr sambandi við rafmagn.

- Afþíddu frystiskápinn ef þarf. Sjá hluti "Frystiskápurinn afþíddur", síða 331.

- Hreinsaðu kæli- og frystiskápinn. Sjá hluti "Hreinsaðu ytra byrði", síða 324 og sjá hluti "Innra byrði hreinsað", síða 325.

- Skildu hurðirnar eftir opnar til að hindra að lykt myndist.

Þegar kæli- og frystiskápurinn er ræstur eftir tímabil án notkunar skal láta hann vera í gangi í a.m.k. 2 klukkustundir með lágt stillt hitastig áður en matvæli eru sett í hólfin.
Ef skipta þarf um LED-ljós

VIDVÖRUN!
Notendur eiga ekki að skipta um LED-ljós sjálfir. Hafðu samband við þjónustu Elvita ef LED-ljósið er skemmt.

VIDVÖRUN!
- Öll rafmagnsþjónusta fyrir tækið skal vera framkvæmd af viðurkenndum rafvirkja eða hæfum einstaklingi.
- Þjónusta fyrir þetta tæki skal vera framkvæmd af viðurkenndri þjónustumiðstöð og aðeins má nota upprunalega varahluti.
BILANAGREINING
Kæli- og frystiskápurinn virkar ekki rétt

VIDVÖRUN!
- Aðeins viðurkenndir tæknimenn mega framkvæma viðgerðir.
- Ef vandamál koma upp varðandi tækið athugaðu þá hvort notendaleiðbeiningar og bilanagreiningarupplýsingar geta hjálpað þér við að leysa þau. Ef vandamálið er viðvarandi skaltu hafa samband við viðurkenndan tæknimann, viðurkenndan rafvirkja eða smásöluaðilann þar sem varan var keypt.
Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.
Raftenging virkar ekki
- Athugaðu öryggi og/eða raftengingu.
- Ef þau eru ekki í nothæfu ástandi skaltu hafa samband við viðurkenndan rafvirkja.
Rafmagnskló hefur ekki verið sett í
Tengdu rafmagnskló við rafmagnsinnstungu.
Afpíðingarkerfi er í gangi eða stutt síðan kveikt var á kæli- og frystiskáp
Það er eðlilegt að frystiskápurinn sé ekki í gangi meðan afpíðingarferlið stendur yfir, eða í stuttan tíma eftir að kveikt er á kæli- og frystiskápnum til að vernda þjöppuna.
Lykt kemur úr hólfunum
Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.
Innra byrði er ekki hreint
Hreinsaðu innra byrði. Sjá hluti "Innra byrði hreinsað", síða 325.
Matvæli, umbúðir eða pakkningar valda lykt
Notaðu önnur ílát, pakkaðu matvælum rétt eða fjarlægðu matvæli úr kæli- og frystiskápnum.
Hávaði úr kæli- og frystiskápnum
Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.
Hávaði er eðlilegur meðan tækið er í gangi
Eftirfarandi hávaði er eðlilegur meðan tækið er í gangi:
- Smellhljóð áður en þjappan fer í gang.
- Hávaði frá þjöppunni meðan hún er í gangi.
- Hávaði vegna hreyfinga lofts sem kemur frá litla viftumótornum í frystihólfinu eða öðrum hólfum.
- Guthljóð sambærilegt við vatn sem er að sjóða.
- Hvellir á meðan sjálfvirk afþíðing stendur yfir.
Skápurinn er ekki jafnvægisstilltur
Jafnvægisstilltu kæli- og frystiskápinn. Sjá hluti "Jafnvægisstilling kæli- og frystiskáps", síða 342.
Bak kæli- og frystiskápsins snertir vegginn
Færðu kæli- og frystiskápinn þannig að það sé nægilegt pláss í kringum hann. Sjá hluti "Uppsetningarsvæði", síða 338.
Flöskur eða ílát falla eða rúlla
Athugaðu hvort einhverjar flöskur eða ílát hafi fallið eða rúllað.
Ísingarlag í hólfinu
Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.
Loftúttak er hindrað eða loftræsting er ekki nægileg
Athugaðu að loftúttökin séu ekki hindruð af matvælum og tryggðu að matvæli séu þannig staðsett innan í frystiskápnum að loftræsting verði nægilega mikil. Fjarlægðu ísinguna. Sjá hluti "Frystiskápurinn afþíddur", síða 331.
Hurðin er ekki almennilega lokuð
Gakktu úr skugga um að hurðin sé alveg lokuð. Fjarlægðu ísinguna. Sjá hluti "Frystiskápurinn afþíddur", síða 331.
Mótorinn er stöðugt í gangi
Eðlilegt er að heyra hljóðið í mótornum
Það er eðlilegt að heyra oft hljóð í mótornum. Mótorinn þarf oftar að vera í gangi þegar:
- hitastigið er stillt lægra en nauðsynlegt er;
- mikið magn af heitum matvælum var nýlega sett í skápinn;
- hitastigið fyrir utan kæli- og frystiskápinn er of hátt;
- hurðirnar eru hafðar opnar of lengi eða of oft;
- kæli- og frystiskápurinn var nýlega uppsettur eða það hefur verið slökkt á honum í langan tíma.
Hitastigið að innan er of hátt
Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.
Hurðirnar hafa verið skildar eftir opnar of lengi eða of oft
Gakktu úr skugga um að hurðin sé alveg lokuð. Athugaðu að hurðunum sé ekki haldið opnum af einhverri hindrun.
Kæli- og frystiskápurinn er ekki með nægilegt pláss í kringum sig
Færðu kæli- og frystiskápinn þannig að það sé nægilegt pláss í kringum hann. Sjá hluti "Uppsetningarsvæði", síða 338.
Hitastigið að innan er of lágt
Hitastigið er stillt of lágt.
Auktu hitastigið. Sjá hluti "Breyta hitastiginu í kæliskápnum", síða 318 og hluti "Breyta hitastiginu í frystinum", síða 319.
Ekki er hægt að loka hurðum auðveldlega.
Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.
Eitthvað innan í er að hindra lokun hurðanna.
Fjarlægðu hlutinn sem hindrar að hurðirnar lokist.
Kæli- og frystiskápur er ekki hallað örlítið afturábak.
Með því að halla kæli- og frystiskápnum afturábak geta hurðirnar lokast hægt af sjálfu sér. Sjá hluti "Jafnvægisstilling kæli- og frystiskáps", síða 342.
Vatn á gólfinu.
Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.
Vatnspannan (staðsett í afturbotni skápsins) er ekki rétt jafnvægisstillt.
Þetta getur valdið því að vatnið beinist ekki í pönnuna eins og ætlast er til og leki á gólfið í staðinn. Dragðu kæli- og frystiskápinn frá veggnum til að athuga pönnuna og stútinn. Fjarlægðu óhreinindi og rusl.
Frárennslisstúturinn (staðsettur undir efsta hluta geymslustaðs þjöppu) er ekki rétt staðsettur eða er hindraður.
Þetta getur valdið því að vatnið beinist ekki í pönnuna eins og ætlast er til og leki á gólfið í staðinn. Dragðu kæli- og frystiskápinn frá veggnum til að athuga pönnuna og stútinn. Fjarlægðu óhreinindi og rusl.
Slökkt er á kæli- og frystiskápnum í langan tíma.
Þetta getur valdið því að klaki eða ísing í hólfinu bráðni og vatnið leki á gólfið.
Ljósið virkar ekki

VIÐVÖRUN!
- Aðeins viðurkenndir tæknimenn mega framkvæma viðgerðir.
- Ef vandamál koma upp varðandi tækið, athugaðu þá hvort notendaleiðbeiningar og bilanagreiningarupplýsingar geti hjálpað þér við að leysa þau. Ef vandamálið er viðvarandi skaltu hafa samband við viðurkenndan tæknimann, viðurkenndan rafvirkja eða smásöluaðilann þar sem varan var keypt.
Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.
LED-ljósið er skemmt
Skiptu ekki um LED-ljósið. Ef LED-ljósið er skemmt skal hafa samband við þjónustu. Hafðu samband við Elvita þjónustu ef þú þarft hjálp með tækið þitt.
LED-ljós hefur verið gert óvirkt af stýrikerfinu vegna þess að hurðin hefur verið höfð opin of lengi
Lokaðu og opnaðu hurðina til að ljósið kvikni aftur.
UPPSETNING
Fylgdu leiðbeiningunum í þessum hluta til að setja upp tækið.

HÆTTA!
Vertu viss um að tækið hafi verið tekið úr sambandi við rafmagn áður en uppsetning fer fram eða aukahlutir stilltir.

VIÐVÖRUN!
Lestu öryggisupplýsingarnar og leiðbeiningarnar í heild sinni áður en þú setur þetta tæki upp eða notar það.

VIÐVÖRUN!
- Þessi vara er ekki ætluð til notkunar sem innbyggt tæki. • Gætið þess að kælimiðilsrásin skemmist ekki.
- Þegar tækið er staðsett skal tryggja að ekki sé þrengt að rafmagnssnúrunni eða hún verði fyrir skemmdum. Skemmdur rafmagnstengill getur ofhitnað og valdið eldsvoða.
- Staðsetjið ekki fjöltengi eða færanlega aflgjafa fyrir aftan tækið.
- Tengið ekki tækið við rafmagnsinnstungu ef tækið er skemmt. Hafið sambandi við smásöluaðilann þar sem tækið var keypt.
- Notið sérúthlutaða rafmagnsinnstungu, sem þýðir að ekki skal deila rafmagnsinnstungunni með öðrum tækjum.
- Stinga verður klónni í viðeigandi rafmagnsinnstungu sem er sett upp og jarðtengd samkvæmt öllum staðbundnum lögum og reglugerðum.
- Gangið úr skugga um að tengistærðir tækisins séu samsvarandi við rafveitu. Þessar upplýsingar (stærð öryggja, spenna og tíðni) má finna á merkingu tækisins. Ef vafi leikur á skal ráðfæra sig við viðurkenndan rafvirkja.
- Notið ekki framlengingarsnúru og lengið ekki rafmagnssnúruna.

VARÚÐ!
Farðu varlega þegar tækið er meðhöndlað til að tryggja að það falli ekki og valdi meiðslum.

ATHUGIÐ!
Hafið samband við þjónustudeild ef það eru einhver áhyggjuefni varðandi uppsetninguna. Hafðu samband við Elvita þjónustu ef þú þarft hjálp með tækið þitt.
Uppsetningarsvæði

VIDVÖRUN!
Lestu öryggisupplýsingarnar og leiðbeiningarnar í heild sinni áður en þú setur þetta tæki upp eða notar það.

VIDVÖRUN!
- Þegar tækið er staðsett skal tryggja að ekki sé þrengt að rafmagnssnúrunni og rafmagnstenglinum eða að þau verði fyrir skemmdum. Skemmdur rafmagnstengill getur ofhitnað og valdið eldsvoða.
- Þegar verið er að staðsetja tækið skal tryggja að hægt sé að komast að rafmagnstenglinum.
- Haldið loftræstiopum utan á tækinu lausum við hindranir.
- Setjið tækið ekki upp nema nægilegt pláss og loftræsting sé í kringum tækið. Það myndi valda ofhitnun.
- Setjið bakhlið tækisins ekki of nálægt vegg. Hætta er á eldsvoða ef þjappan ofhitnar.

VARÚÐ!
Þessi vara virkar vel innan loftslagsflokka frá SN til T. Sjá hluti "Loftslagsflokkun", síða 353. Tækið gæti ekki virkað rétt ef það er útsett í langan tíma fyrir hitastigi sem er fyrir ofan eða neðan hitastigssviðið sem nær frá 10 °C til 43 °C.
Hafðu eftirfarandi í huga þegar þú velur stað til að setja kæli- og frystiskápinn upp á:
- Forðastu beint sólarljós, rigningu eða frost.
- Haltu frá hitagjöfum, eins og eldavélum, ofnum, eldum, hiturum eða ofnum.
- Staðsettu á vel loftræstum stað innandyra. Haldið loftræstiopum utan á tækinu lausum við hindranir.
- Ekki setja upp kæli- og frystiskápinn á stað þar sem er raki eða bleyta.
- Yfirborðið á að vera hart, þurrt og lárétt.
- Hafðu nægilegt pláss til að hurðirnar og skúffurnar geti auðveldlega opnast, í samræmi við mælivíddirnar.
Til að jafnvægisstilla kæli- og frystiskápinn rétt og leyfa hringrás lofts í neðri afturhluta kæli- og frystiskápsins gæti þurft að stilla fæturna. Sjá hluti "Jafnvægisstilling kæli- og frystiskáps", síða 342.

Hægt er að spara orku og bæta skilvirkni kælikerfisins með því að setja kæli- og frystiskápinn upp þannig að pláss sé nægilegt í kring. Það tryggir góða loftræstingu.

- Athugaðu hvort einhverjar skemmdir eru á pakkningunum. Ef pakkningarnar eru skemmdar skal ekki fjarlægja umbúðirnar og hafa samband við smásöluaðilann þar sem varan var keypt.

- Fjarlægðu pappakassann og frauðplastumbúðirnar.

- Snúðu kæli- og frystiskápnum til að taka hann úr grunnpakkningunni.

- Fjarlægðu plastumbúðirnar.

- Fjarlægðu límbandið sem heldur hurðunum lokuðum.

- Fjarlægðu hlífðarfilmuna á hillunum og á skúffunum.

- Athugaðu hvort einhverjar skemmdir eru á tækinu. Ef tækið er skemmt skal ekki tengja það við rafmagn, láta það vera áfram í pakkningunum og hafa samband við smásöluaðilann þar sem varan var keypt.

- Athugaðu hvort einhver af fótunum snerti ekki gólfið.

- Ef einhver af fótunum snertir ekki gólfið: Skrúfaðu fótinn út með hendi eða viðeigandi skrúflykli þar til hann snertir gólfið.
ATHUGIÐ!
- Snúðu fætinum rangsælis til að hækka kæli- og frystiskápinn.
- Snúðu fætinum réttsælis til að lækka kæli- og frystiskápinn.

Til að láta hurðirnar lokast hægt að sjálfu sér skal halla efsta hluta kæli- og frystiskápsins aftur á bak um 10 mm eða 0,5°.

- Notaðu hallamæli til að athuga hvort kæli- og frystiskápurinn sé alveg láréttur og stilltu fæturna aftur ef þarf.

Hurðir fjarlægðar og settar upp

VIÐVÖRUN!
Ekki hafa tækið tengt við rafmagn meðan verið er að fjarlægja og setja upp hurðir. Gakktu úr skugga um að rafmagnstengillinn hafi verið tekinn úr sambandi við rafmagnsinnstunguna.
- Taktu kæli- og frystiskápinn úr sambandi við rafmagn.

- Fjarlægðu skrúfuna og hlíf efri hjara.

- Fjarlægðu skrúfurnar og aftengdu tengið.

- Lyftu efri hjörinni upp á við og settu tengið í gegnum gatið.

- Lyftu efri hurðinni upp á við til að fjarlægja hana frá miðhjörinni. Settu hurðina á mjúkt yfirborð með framhliðina upp.

- Fjarlægðu skrúfurnar og miðhjörina.

- Lyftu neðri hurðinni upp á við til að fjarlægja hana frá neðri hjörinni. Settu hurðina á mjúkt yfirborð með framhliðina upp. Til að setja upp hurðirnar skal endurtaka skrefin í öfugri röð.

Hægt er að breyta því hvaða hlið hurðarinnar opnast ef uppsetningin krefst þess.
- Fjarlægðu hurðirnar af hjörunum. Sjá hluti "Hurðir fjarlægðar og settar upp", síða 343.

- Efst á frystiskápnum, fjarlægðu skrúfugatshlífina og settu hina skrúfugatshlífina á gagnstæða hlið frystiskápsins. ATHUGADU! Skrúfugatshlífin fyrir hægri hliðina fylgir með tækinu. Sjá hluti "Aukahlutir", síða 314.

- Fjarlægðu hornhlífina á efri hurðinni og taktu tengikapalinn út.

- Á gagnstæðri hlið frystiskápsins, feldu tengikapalinn og settu hornhlífina yfir hann.

- Fyrir báðar hurðir, fjarlægðu skrúfuna, stoppblokk og hurðarstoppara.
ATHUGADU! Geymdu stopparann á öruggum stað, þú þarft hann ef þú vilt snúa hurðunum aftur.

- Fyrir báðar hurðir, settu upp hinn hurðarstopparann, með því að nota sömu stoppblokkina og skrúfu, á gagnstæða hlið frystiskápsins.
ATHUGADU! Hurðarstopparinn fyrir vinstri hliðina fylgir með tækinu. Sjá hluti "Aukahlutir", síða 314.

- Á hlífðarplötunni í miðju, fjarlægðu skrúfugatshlífina og settu hana upp á gagnstæða hlið frystiskápsins.

- Hallaðu kæliskápnum örlítið aftur á bak til að fá aðgang að framfótunum og neðri hjörum.
VARÚD! Látu kæli- og frystiskápinn hvila á mjúkum frauðpakkningum eða sambærilegu efni til að forðast að skemma bakhlutann.

- Skrúfaðu framfæturna tvo alveg út.

- Fjarlægðu skrúfurnar og notaðu skrúflykil til að losa rónna og fjarlægja hjarasamstæðuna.

- Skiptu um staðsetningu fyrir rónna og hjarapinnann.

- Settu upp hjarasamstæðuna á gagnstæða hlið kæli- og frystiskápsins, festu rónna og festu samstæðuna með skrúfunum.

- Settu í framfæturna tvo.

- Settu hurðirnar á hjarirnar. Sjá hluti "Hurðir fjarlægðar og settar upp", síða 343.
ATHUGADU! Snúa þarf miðhjörinni 180° þegar hurðirnar eru settar upp á gagnstæða hliða.

| Gerðarkóði tækis Sjá hluti "Finndu gerðarkóðann", síða 316 | |
| Hæð 2004 mm | |
| Breidd 595 mm | |
| Dýpt 590 mm | |
| Heildarrúmtak 336 l | |
| Rúmtak kæliskáps 238 l | |
| Rúmtak frystiskáps 98 l | |
| Ráðlögð stilling hitastigs fyrir bestu geymslu á matvælum, fersk matvæli | 4 °C |
| Ráðlögð stilling hitastigs fyrir bestu geymslu á matvælum, 4 stjörnur | -18 °C |
| Frystigeta 6 kg / 24 klst. | |
| Tegund afpíðingar Sjálfvirkt | |
| Lægsta umhverfishitastig, sem kælitækið hentar fyrir | 10 °C |
| Hæsta umhverfishitastig, sem kælitækið hentar fyrir | 43 °C |
| Aflgjafi | 220-240 V, 50 Hz |
| Hámarksstraumur 0,6 A | |
| Málafí | 100 W |
Orkunýtni
Þú getur fundið upplýsingar um orkusparnað þessa tækis í EPREL, evrópsku vöruskránni fyrir orkumerkingar. Farðu á vefsíðu EPREL og notaðu gerðarauðkennið til að finna upplýsingarnar. Gerðarauðkennið má finna á orkumerkingunni sem fylgir tækinu.
EPREL vefsíða: https://eprel.ec.europa.eu/

ENERG

SUPPLIER'S NAME
MODEL IDENTIFIER
Stærðir


Þetta tæki uppfyllir viðeigandi ESB tilskipanir og reglugerðir og ber á sér CE-merkið. Ef hún fylgir ekki tækinu er hægt að fá samræmisyfirlýsingu ESB samkvæmt beiðni.
Nothæfi tækisins hefur verið prófað í samræmi við staðal EN 60335 fyrir kælitæki.
Loftslagsflokkun
| Flokkur Tákn Umhverfishitastigssvið | ||
| Aukið temprað SN +10 °C til +32 °C | ||
| Temprað N +16 °C til +32 °C | ||
| Heittemprað ST +16 °C til +38 °C | ||
| Hitabelti T +16 °C til +43 °C | ||
- Aukið temprað: Kælitækið er ætlað til notkunar við umhverfishitastig á bilinu 10 °C til 32 °C.
- Temprað: Kælitækið er ætlað til notkunar við umhverfishitastig á bilinu 16 °C til 32 °C.
- Heittemprað: Kælitækið er ætlað til notkunar við umhverfishitastig á bilinu 16 °C til 38 °C.
- Hitabelti: Tækið er ætlað til notkunar við umhverfishitastig á bilinu 16 °C til 43 °C.
Geymdu hin mismunandi matvæli í þeim hólfum sem ráðlagt er og við markhitastigið fyrir geymslu matvælanna. Gerðu þetta til að tryggja bestu varðveisluna í sem lengstan tíma og til að koma í veg fyrir matarsóun.

VARÚÐ!
- Tveggja stjörnu (**) hólf fyrir frosin matvæli henta fyrir geymslu forfrystra matvæla, til að geyma eða búa til rjómaís og búa til klaka.
- Einnar stjörnu (*), tveggja stjörnu (**) og þriggja stjörnu (***) hólfin henta ekki til að frysta fersk matvæli.

ATHUGADU!
Sumir kæli- og frystiskápar hafa ekki allar þær gerðir hólfa sem taldar eru upp í töflunni að neðan.
| Gerð hólfs Markhitastig fyrir geymslu (°C) Viðeigandi matvæli | ||
| Kæliskåpur +2 ~ +8 Egg, eldaður matur, innpakkaður | matur, ávextir og grænmeti,mjólkurvörur, kökur, drykkir og önnurmatvæli sem henta ekki til frystingar. | |
| (***)*-Frystiskåpur ≤ -18 Sjávarafurðir (fiskur, rækja, skelfiskur), | ferskvatnsafurðir og kjötvara(ráðlagður geymslutími 3 mánuðir,bragð versnar og næringarinnihaldminnkar eftir því sem geymslutíminn erlengri), hentar til að frysta ferskmatvæli. | |
| ***-Frystiskåpur ≤ -18 Sjávarafurðir (fiskur, rækja, skelfiskur), | ferskvatnsafurðir og kjötvara(ráðlagður geymslutími 3 mánuðir,bragð versnar og næringarinnihaldminnkar eftir því sem geymslutíminn erlengri), hentar ekki til að frysta ferskmatvæli. | |
| **-Frystiskåpur | ≤ -12 Sjávarafurðir (fiskur, rækja, skelfiskur), | ferskvatnsafurðir og kjötvara(ráðlagður geymslutími 2 mánuðir,bragð versnar og næringarinnihaldminnkar eftir því sem geymslutíminn erlengri), hentar ekki til að frysta ferskmatvæli. |
| *-Frystiskåpur | ≤ -6 | Sjávarafurðir (fiskur, rækja, skelfiskur),ferskvatnsafurðir og kjötvara(ráðlagður geymslutími 1 mánuður,bragð versnar og næringarinnihaldminnkar eftir því sem geymslutíminn erlengri), hentar ekki til að frysta ferskmatvæli. |
| 0 stjörnur | -6 ~ 0 | Ferskt svínakjöt, nautakjöt, fiskur,kjúklingur, sum innpökkuð unninmatvæli o.s.frv. (Ráðlagt að borðainnan sama dags, helst ekki síðar eneftir 3 daga). Unnin matvæli hjúpuð aðhluta til (matvæli sem ekki má frysta). |
| Kæling -2 ~ +3 Ferskt/frosið svínakjöt, nautakjöt, | kjúklingur, ferskvatnsafurðir o.s.frv.(7 dagar undir 0 °C og yfir 0 °C, mælt með að sé neytt innan þess dags, helst ekki síðar en eftir 2 daga).Sjávarafurðir (undir 0 °C í 15 daga, ekki mælt með að geyma við yfir 0 °C) | |
| Fersk matvæli 0 ~ +4 Ferskt svínakjöt, nautakjöt, fiskur, | kjúklingur, eldaður matur o.s.frv.(Ráðlagt að borða innan sama dags, helst ekki síðar en eftir 3 daga) | |
| Vín +5 ~ +20 Rauðvín, hvítvín, freyðivín o.s.frv. | ||