CKF3146V - Réfrigérateur Elvita - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis CKF3146V Elvita á PDF sniði.

Elvita CKF3146V - Kælir
📄 423 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice Elvita CKF3146V - page 366
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um CKF3146V Elvita

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Netfangið þitt er áfram einkamál: það er aðeins notað til að láta þig vita ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Réfrigérateur á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína CKF3146V - Elvita og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. CKF3146V vörumerkisins Elvita.

NOTENDAHANDBÓK CKF3146V Elvita

Öryggi við uppsetningu.... 368

Öryggi við notkun.... 368

Öryggi við viðhald 369

Förgun 370

FLÝTIBYRJUN 371

HEFJAST HANDA 372

Lærið um kæli- og frystiskápinn 372

Aukahlutir 372

Kæliskápshólf 372

Frystihólf 373

Finndu gerðarkóðann 373

Fyrir fyrstu notkun.... 373

NOTKUN KÆLI- OG FRYSTISKÁPSINS 376

Kveikt og slökkt kæli- og frystiskápnum.... 376

Stillingar og aðferðir.... 378

Hitastigi breytt 378

Geymsla matvæla 379

Geymsla matvæla í kæliskápnum 379

Matvæli geymd í frystiskápnum 380

HREINSUN OG VIDHALD 382

Ytra byrði hreinsað 382

Innra byrði hreinsað 384

Hreinsaðu hurðarpéttin.... 389

Undirbúningur ef ekki á nota tækið í langan tíma 394

Kæli- og frystiskápurinn virkar ekki rétt.... 400

Lykt kemur úr hólfunum 400

Hávaði úr kæli- og frystiskápnum 400

Mótorinn er stöðugt í gangi 401

Ísingarlag í hólfinu.... 401

Hitastigið að innan er of hátt 401

Hitastigið að innan er of lágt 401

Ekki hægt að loka hurðum auðveldlega.... 401

Vatn á gólfinu.... 402

Ljósið virkar ekki 402

UPPSETNING 403

Uppsetningarsvæði 403

Taktu kæli- og frystiskápinn úr umbúðunum.... 405

Hurðir fjarlægðar og settar upp.... 408

Hurðum snúið við 414

TÆKNILÝSINGAR 420

Tæknilýsing.... 420

Stærðir.... 421

Lesið þessar leiðbeiningar vandlega áður en tækið er sett upp og notað. Geymið leiðbeiningarnar nálægt tækinu til síðari nota. Margskonar ábyrgðir munu falla úr gildi ef þessum leiðbeiningum er ekki fylgt.

Viðvaranir

Elvita CKF3146V - Viðvaranir - 1

HÆTTA!

Notaðar þegar hætta er á líkamstjóni eða dauða.

Elvita CKF3146V - Viðvaranir - 2

VIÐVÖRUN!

Notaðar þegar hætta er á líkamstjóni.

Elvita CKF3146V - Viðvaranir - 3

VARÚÐ!

Notaðar þegar hætta er á því að varan verði fyrir tjóni.

Elvita CKF3146V - Viðvaranir - 4

ATHUGIÐ!

Almennar upplýsingar sem þú ættir að vita um.

Elvita CKF3146V - Viðvaranir - 5

Hjálpleg ráð sem þér kunna að þykja gagnleg.

Ætluð notkun

Tækið er einungis ætlað fyrir:

- Notkun innandyra á heimili eða svipuðu umhverfi eins og:

  • eldhúsum starfsfólks í verslunum, á skrifstofum og öðrum starfsumhverfum;
  • bóndabýli;
  • af viðskiptavinum á hótelum, mótelum og öðrum íbúðaumhverfum; – gistiheimilisumhverfum;
  • veislupjónustu og svipaða notkun sem fellur ekki undir smásölu.

- Heimilisnotkun, eins og geymsla matvæla og drykkjarfanga.

Þessi kæliskápur er ekki ætlaður til notkunar sem innbyggt tæki.

Öryggi fyrir börn og fólk með fötlun

Elvita CKF3146V - Öryggi fyrir börn og fólk með fötlun - 1

VIÐVÖRUN!

Látið eftirfarandi hópa aðeins nota tækið undir umsjón eða ef þeim hafa verið veittar leiðbeiningar um örugga notkun þess. Þau verða að skilja hætturnar sem eru til staðar.

  • Börn 8 ára og eldri. (Börn undir 8 ára verða að vera undir stöðugu eftirliti, eða haldið fjarri vörunni.)
  • Börn á aldrinum 3 til 8 ára mega setja í og taka úr tækinu.
  • Fólk með minnkaða líkamlega, skynjunarlega eða andlega getu.
  • Fólk sem skortir reynslu og þekkingu.

Elvita CKF3146V - Öryggi fyrir börn og fólk með fötlun - 2

VIÐVÖRUN!

  • Leyfið börnum eða gæludýrum ekki að leika sér með tækið.
  • Leyfið börnum ekki að þrífa tækið án eftirlits.
  • Leyfið ekki börnum eða gæludýrum að fara eða klifra inn í tækið, þau gætu kafnað eða dottið.

Elvita CKF3146V - VIÐVÖRUN! - 1

VIÐVÖRUN!

Haldið öllum umbúðum fjarri börnum þar sem hætta er á köfnun.

Almennt öryggi

Elvita CKF3146V - Almennt öryggi - 1

VIÐVÖRUN!

Ekki setja hendur, fætur eða málmhluti undir eða fyrir aftan tækið. Hætta er á að klemmast og beittar brúnir geta valdið meiðslum.

Elvita CKF3146V - VIÐVÖRUN! - 1

VIÐVÖRUN!

  • Farið gætilega þegar tækið er fært. Tækið er þungt.
  • Standið ekki á neinum hluta tækisins né notið neinn hluta tækisins sem stuðning.

Elvita CKF3146V - VIÐVÖRUN! - 1

VIÐVÖRUN!

Hætta á rafstuði!

  • Ef rafmagnssnúran er skemmd verður henni að vera skipt út af framleiðandanum, þjónustuaðila hans eða sambærilega hæfum einstaklingum til að forðast hættu.
  • Ekki stinga rafmagnstenglinum í samband ef rafmagnsinnstungan er laus. Hætta er á rafstuði og eldsvoða.
  • Togið ekki í rafmagnssnúruna þegar tækið er tekið úr sambandi. Grípið ákveðið í rafmagnstengilinn og togið hann út úr rafmagnsinnstungunni.
  • Ekki skemma eða kremja rafmagnssnúruna og notið hana ekki ef hún er skemmd eða slitin. Allar skemmdir sem verða á snúrunni geta valdið skammhlaupi, eldsvoða og rafstuði.

Elvita CKF3146V - VIÐVÖRUN! - 1

VIÐVÖRUN!

Hætta á eldsvoða!

- Finna má eftirfarandi tákn á tækinu. Það er viðvörun og gefur til kynna að kælimiðillinn og einangrunarefnið séu eldfim.

Elvita CKF3146V - VIÐVÖRUN! - 1

  • Tryggið að engir íhlutir kælimiðilsrásarinnar skemmist við flutning og uppsetningu á tækinu. Kælimiðillinn, ísóbútan (R600a), sem kælimiðilsrásin inniheldur er eldfimur.
  • Ef kælimiðilsrásin er skemmd skal forðast opin eld og hita- og neistagjafa og loftræsta vandlega svæðið í kringum tækið.
  • Breytið ekki tæknilýsingunum né gerið breytingar á tækinu á neinn hátt.
  • Ekki stinga rafmagnstenglinum í samband ef rafmagnsinnstungan er laus. Hætta er á rafstuði eða eldsvoða.
  • Ekki skemma eða kremja rafmagnssnúruna og notið hana ekki ef hún er skemmd eða slitin. Allar skemmdir sem verða á snúrunni geta valdið skammhlaupi, eldsvoða og rafstuði.

Öryggi við uppsetningu

Elvita CKF3146V - Öryggi við uppsetningu - 1

VIDVÖRUN!

  • Notið ávallt persónuhlífar (hanska o.s.frv.) við uppsetningu, viðhald og viðgerðir. Það er hætta á meiðslum.
  • Gætið þess að kælimiðilsrásin skemmist ekki.
  • Þegar tækið er staðsett skal tryggja að ekki sé þrengt að rafmagnssnúrunni og rafmagnstenglinum eða að þau verði fyrir skemmdum. Skemmdur rafmagnstengill getur ofhitnað og valdið eldsvoða.
  • Þegar verið er að staðsetja tækið skal tryggja að hægt sé að komast að rafmagnstenglinum.
  • Setjið tækið ekki upp á stað þar sem það er í beinu sólarljósi.
  • Ekki setja tækið upp á svæði þar sem er raki eða þar sem það getur orðið fyrir vatnsskvettum því það gæti skaðað rafeinangrunareiginleikana.
  • Haldið loftræstiopum utan á tækinu lausum við hindranir.
  • Setjið tækið ekki upp nema nægilegt pláss og loftræsting sé í kringum tækið. Það myndi valda ofhitnun.
  • Setjið tækið ekki nálægt ofnum eða eldavélum.
  • Yfirborðið sem tækið er uppsett á verður að vera nægilega sterkt til að standa undir fullhlöðnu tæki.
  • Stillið fæturna þar til allir fæturnir snerta gólfið og tækið er lárétt. Það kemur í veg fyrir að tækið hreyfist, velti og það sé hætta á meiðslum.
  • Setjið bakhlið tækisins ekki of nálægt vegg. Hætta er á eldsvoða ef þjappan ofhitnar.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 1

VIÐVÖRUN!

  • Tengið ekki tækið við rafmagnsinnstungu ef tækið er skemmt. Hafið samband við smásöluaðilann þar sem tækið var keypt.
  • Notið sérúthlutaða rafmagnsinnstungu, sem þýðir að ekki skal deila rafmagnsinnstungunni með öðrum tækjum.
  • Staðsetjið ekki fjöltengi eða færanlega aflgjafa fyrir aftan tækið.
  • Verið viss um að rafmagnstengillinn sé tengdur við jarðtengda innstungu. Athugaðu vandlega að innstungan sé jarðtengd á réttan og áreiðanlegan hátt.
  • Notið ekki framlengingarsnúru og lengið ekki rafmagnssnúruna.
  • Þegar tækið hefur verið staðsett er ráðlagt að bíða í a.m.k. 4 klukkustundir áður en það er tengt við rafveitu. Með því er olíunni gert kleift að flæða til baka í þjöppuna.
  • Ef spennusveiflur á uppsetningarsvæðinu eru meiri en einfasa riðstraumur sem nemur 220\~240 V / 50 Hz skal nota sjálfvirkan AC spennustilli sem er yfir 350 W.

Elvita CKF3146V - VIÐVÖRUN! - 1

ATHUGIÐ!

Hafið samband við Elvita þjónustu ef hjálpar er þörf við uppsetningu tækisins.

Öryggi við notkun

Elvita CKF3146V - Öryggi við notkun - 1

VIDVÖRUN!

  • Geymið ekki sprengifim efni í þessu tæki, eins og úðabrúsa sem innihalda eldfimt drifefni.
  • Geymið ekki eldfimt gas eða vökva í tækinu, hætta er á sprengingu.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

Haldið logandi kertum, lömpum og öðrum hlutum með opnum eldi fjarrí tækinu til að forðast eldhættu.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

  • Ekki fjarlægja eða setja matvæli eða ílát í frystihólfið með blautar hendur þegar kæli- og frystiskápurinn er í gangi, sérstaklega ekki málmílát, til að forðast skrámur á húð og frostbruna.
  • Neytið ekki frosinna matvæla, eins og íspinna eða ísmola, beint úr frystiskápnum. Það gæti valdið frostbruna.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

  • Haldið loftræstiopum innan í tækinu lausum við hindranir.
  • Notið ekki raftæki innan í geymsluhólfum tækisins fyrir matvæli, nema þau sem framleiðandinn mælir með.
  • Til að koma í veg fyrir að hlutir detti og valdi meiðslum eða skemmdum á tækinu skal ekki hlaða of miklu í hillurnar og hurðagrindurnar eða setja of mikið í ávaxta- og grænmetisskúffurnar.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

Notið tækið ekki án ljósaperuhlífarinnar inni í því.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 1

VARÚÐ!

  • Setjið ekki heita hluti nálægt plastíhlutum tækisins.
  • Setjið ekki matvæli beint við loftúttakið á afturveggnum.

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 1

VARÚÐ!

Viðvaranir vegna matvælaöryggis!

Til að forðast mengun matvæla skal fylgja þessum leiðbeiningum:

  • Forðist langvarandi hurðaropnanir: Ef hurðin er haldið opinni í langan tíma getur það valdið verulegri hækkun á hitastigi innan í hólfunum.
  • Regluleg þrif: Hreinsið yfirborð sem komast í snertingu við matvæli og aðgengileg frárennsliskerfi reglulega.
  • Viðhald vatnsskammtara: Fyrir gerðir með vatnsskammtara: Ef vatnsskammtarinn hefur ekki verið notaður í 48 klukkustundir skal hreinsa hann fyrir notkun. Ef vatnskerfið er tengt við vatnsveitu og hefur ekki verið notað í 5 daga skal skola það fyrir neyslu.
  • Rétt geymsla á hráu kjöti og fiski: Geymið hrátt kjöt og fisk í viðeigandi ílátum í hólfunum til að koma í veg fyrir snertingu við eða leka á annan mat.

- Stjörnuflokkuð hólf:

  • Tveggja stjörnu hólf fyrir frosin matvæli henta fyrir geymslu forfrystra matvæla, til að geyma rjómaís og búa til klaka.
  • Einnar stjörnu, tveggja stjörnu og þriggja stjörnu hólfin henta ekki til að frysta fersk matvæli.

- Varúðarráðstafanir við langtimageymslu: Ef kælitækið er skilið eftir tómt í langan tíma skal slökkva á því, afþíða, þrífa, þurrka og skilja hurðina eftir opna til að koma í veg fyrir að mygla myndist inni.

- Fara ætti nákvæmlega eftir ráðleggingum varðandi geymslu.

- Pakka þarf matvælum í poka áður en þau eru sett í kæliskápinn. Vökvar verða að vera geymdir í flöskum eða ílátum með loki til að hindra leka þar sem uppbygging tækisins gerir að verkum að ekki er auðvelt að þrífa það.

- Geymið forpökkuð fryst matvæli í samræmi við leiðbeiningar framleiðanda frystu matvælanna.

- Eftir að fryst matvæli hafa verið þídd niður skal ekki frysta þau aftur. Þegar matvæli hafa þiðnað geta gæðin versnað smám saman eða þau skemmst.

- Setjið ekki kolsýrða eða freyðandi drykki í frystihólfið þar sem það skapar þrýsting í ílátinu, sem getur valdið því að það springi og skemmi tækið.

Öryggi við viðhald

Elvita CKF3146V - Öryggi við viðhald - 1

VIDVÖRUN!

  • Öll vinna við rafmagn verður að vera framkvæmd af viðurkenndum rafvirkja eða einstaklingi með sambærilega hæfni.
  • Þjónusta fyrir þetta tæki má aðeins vera framkvæmd af viðurkenndri þjónustumiðstöð og aðeins má nota upprunalega varahluti.
  • Ekki reyna að gera við, taka í sundur eða breyta tækinu sjálf.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

Áður en hreinsun eða viðhald af öllu tagi er framkvæmt á tækinu skal taka það úr sambandi frá rafmagnsinnstungunni.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

Notið ekki verkfæri eða aðrar aðferðir til að flýta fyrir afþíðingarferlinu, nema framleiðandinn mæli með því.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

Skiptið ekki sjálf um ljósaperurnar í tækinu. Ef ljósaperurnar eru sprungnar skal hafa samband við þjónustu.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 1

VARÚÐ!

  • Notið ekki málmhluti, gufuhreinsi, bynni, bílahreinsiefni, klór, léttolíu, svarfandi hreinsiefni eða lífræn leysiefni eins og bensen til að þrífa. Það gæti skemmt yfirborð tækisins og gæti valdið eldsvoða.
  • Notið ekki beitta hluti til að fjarlægja ísingu úr tækinu. Notið plastsköfu.
  • Ekki nota svampa og grófa hreinsiklúta. Þeir geta valdið rispum.
  • Hreinsið reglulega yfirborð sem geta komist í snertingu við matvæli og aðgengilegan frárennslisbúnað.
  • Tryggið að hitastig frosinna matvæla hækki ekki við meðan verið er að framkvæma afþíðingu, viðhald eða þrif. Þetta getur leitt til minnkaðs geymsluþols.

Förgun

Elvita CKF3146V - Förgun - 1

VIÐVÖRUN!

  • Til að hindra að börn lokist inni skal fjarlægja hurðirnar áður en vörunni er fargað.
  • Sumar eldri gerðir eru með fjaðurlás á hurðinni. Gerið fjaðurlásinn ónothæfan áður tækinu er fargað.
  • Takið rafmagnssnúruna úr sambandi og skerið hana eins nálægt tækinu og hægt er áður en tækinu er fargað til að hindra að börn geti fengið raflost.

Elvita CKF3146V - VIÐVÖRUN! - 1

VIÐVÖRUN!

  • Tryggið að rör kælimiðilsrásarinnar séu ekki skemmd áður förgun á sér stað.
  • Kæliskápar innihalda kælimiðil og gas í einangruninni. Fagaðilar verða að sjá um förgun kælimiðils og gass á viðurkenndri förgunarstöð því þau geta valdið augnskaða eða íkveikju. Kælimiðillinn og einangrunarþanefnið eru eldfim. Útsetjið ekki fyrir eldslogum.

Elvita CKF3146V - VIÐVÖRUN! - 1

Fargið umbúðum á umhverfisvænan hátt. Með því að setja umbúðir í endurvinnslu, samkvæmt reglum lands og staðar, er hægt að draga úr notkun hráefna og magni úrgangs í landfyllingum.

Þetta tæki er merkt í samræmi við Evróputilskipun 2012/19/ESB, rafmagns- og rafeindatækjaúrgangur (WEEE). Táknið á tækinu eða á umbúðum þess gefur til kynna að ekki skuli meðhöndla það sem heimilisúrgang. Í staðinn skal afhenda það til viðeigandi söfnunarstöðvar fyrir endurvinnslu rafmagns- og rafeindatækjaúrgangs.

Með því að tryggja rétta förgun tækisins hjálpar þú við að koma í veg fyrir mögulega neikvæðar afleiðingar fyrir umhverfið og heilsu manna, sem að öðrum kosti gætu orðið vegna óviðeigandi meðhöndlunar úrgangs vegna þessa tækis. Til að fá nánari upplýsingar um endurvinnslu þessa tækis skaltu hafa samband við viðkomandi bæjaryfirvöld sem sjá um sorphirðu, heimilissorþjónustu eða verslunina þar sem þú keyptir tækið.

FLÝTIBYRJUN

Hitastigi í kæli- og frystiskáp breytt

1Elvita CKF3146V - FLÝTIBYRJUN - 1

Lærið um kæli- og frystiskápinn

Aukahlutir

Elvita CKF3146V - Aukahlutir - 1

Eggjahaldari: Til að geyma egg í kæliskápnum.

Ísmolabakki: Til að búa til ísmola í frystiskápnum.

Efri hjarahlíf: Til að hylja hjörina á vinstra megin að ofan á kæliskápnum.

Kæliskápshólf

A B C

A. Hillur B. Grænmetisskúffa C. Hurðahillur

Kæliskápshólfið hentar til að geyma margskonar ávexti, grænmeti, drykkjarföng og önnur matvæli sem neytt er innan skamms tíma.

Hillur: Til að geyma og skipuleggja matvæli og drykkjarvörur.

Hurðahillur: Til að geyma og skipuleggja matvæli og drykkjarvörur.

Grænmetisskúffa: Til að geyma og flokka mismunandi tegundir af matvælum eins og ávexti og grænmeti.

Elvita CKF3146V - Kæliskápshólf - 2

ATHUGADU!

Orkunýting tækisins er best þegar allar hillur og skúffur eru í upphaflegum staðsetningum sínum.

Elvita CKF3146V - ATHUGADU! - 1

ATHUGADU!

Þetta tæki inniheldur LED-ljósgjafa í orkunýtniflokki G.

Frystihólf

Elvita CKF3146V - Frystihólf - 1

Frystihólfið getur haldið matvælum ferskum í langan tíma og hentar fyrir geymslu kjöts, fisks, rjómaíss og annarra matvæla sem ekki verður neytt innan skamms tíma.

Hólfið samanstendur af einni hillu.

Elvita CKF3146V - Frystihólf - 2

ATHUGADU!

Orkunýting tækisins er best þegar allar hillur og skúffur eru í upphaflegum staðsetningum sínum.

Finndu gerðarkóðann

Elvita CKF3146V - Finndu gerðarkóðann - 1

Gerðarkóðinn er prentaður á merkimiða á tækinu. Þú þarft kóðann til að finna allar og nýjustu upplýsingarnar, þjónustuna og aðstoðina fyrir þína gerð af tæki.

Elvita CKF3146V - Finndu gerðarkóðann - 2

ATHUGADU!

Þetta tæki og textamerking eru dæmi. Tækið þitt og texti gætu haft annað útlit og innihald.

Fyrir fyrstu notkun

Undirbúið kæli- og frystiskápinn fyrir fyrstu notkun áður en honum er stungið í samband og matvæli sett í geymslu.

Elvita CKF3146V - Fyrir fyrstu notkun - 1

VIDVÖRUN!

  • Tengið ekki tækið við rafmagnsinnstungu ef tækið er skemmt. Hafið sambandi við smásöluaðilann þar sem tækið var keypt.
  • Ekki stinga rafmagnstenglinum í samband ef rafmagnsinnstungan er laus. Hætta er á rafstuði eða eldsvoða.
  • Gætið þess að skemma ekki rafmagnssnúruna og notið hana ekki ef hún er skemmd eða slitin. Allar skemmdir sem verða á snúrunni geta valdið skammhlaupi, eldsvoða og rafstuði.
  • Gangið úr skugga um að allar umbúðir hafi verið fjarlægðar af kæli- og frystiskápnum og hann staðsettur á réttan hátt.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 1

  1. Látið kæli- og frystiskápinn standa í að minnsta kosti 4 klukkustundir áður en honum er stungið í samband.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 2

  1. Látið kæliskápinn vera tóman í gangi í 1-2 klukkustundir.

ATHUGIÐ! Ekki geyma neitt í kæli- eða frystiskápnum fyrr en þeir eru orðnir kaldir.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 3

  • Ráðlagt hitastig er 4 °C í kæliskápnum og -18 °C í frystiskápnum. Vertu viss um að ráðlögð stilling hitastigs 5,5-5,9 sé valin.
  • Það getur haft neikvæð áhrif á afköst kæli- og frystiskápsins við kælingu ef of mikið af matvælum er sett í hann þegar kveikt er á honum í fyrsta sinn.

NOTKUN KÆLI- OG FRYSTISKÁPSINS

  • Tengið ekki tækið við rafmagnsinnstungu ef tækið er skemmt. Hafið sambandi við smásöluaðilann þar sem tækið var keypt.
  • Ekki stinga rafmagnstenglinum í samband ef rafmagnsinnstungan er laus. Hætta er á rafstuði eða eldsvoða.
  • Gætið þess að skemma ekki rafmagnssnúruna og notið hana ekki ef hún er skemmd eða slitin. Allar skemmdir sem verða á snúrunni geta valdið skammhlaupi, eldsvoða og rafstuði.
  1. Settu kæli- og frystiskápinn í samband við rafmagn.

Elvita CKF3146V - NOTKUN KÆLI- OG FRYSTISKÁPSINS - 1

  1. Opnaðu hurð kæliskápsins.

ATHUGIÐ! Þegar hurð kæliskápsins er opin er kveikt á ljósinu að innan.

Elvita CKF3146V - NOTKUN KÆLI- OG FRYSTISKÁPSINS - 2

  1. Snúðu hitastillihnappi kæliskápsins til óskaðs hitastigs og lokaðu hurðinni.

ATHUGIÐ! Ráðlagt hitastig er 4 °C í kæliskápnum og -18 °C í frystiskápnum. Ráðlögð stilling hitastigs er 5,5-5,9.

Elvita CKF3146V - NOTKUN KÆLI- OG FRYSTISKÁPSINS - 3

  1. Snúðu hitastigsveljaranum á 0.

Elvita CKF3146V - NOTKUN KÆLI- OG FRYSTISKÁPSINS - 4

  1. Taktu kæli- og frystiskápinn úr sambandi við rafmagn.

Elvita CKF3146V - NOTKUN KÆLI- OG FRYSTISKÁPSINS - 5

Stillingar og aðferðir

Hitastigi breytt

Stilltu hitastigið fyrir bæði kæliskápinn og frystihólfið.

Elvita CKF3146V - Hitastigi breytt - 1

VARÚÐ!

  • Ef hitastigið er stillt hátt mun það auka matarsóun.
  • Ef hitastigið er stillt lægra en nauðsynlegt er þá sóar það orku.
  • Miðlungsstilling hentar best til að ná sem bestri varðveislu matvæla.
  • Opnaðu hurð kæliskápsins.

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 1

  1. Snúðu hitastigsveljaranum til að velja hitastig (1, 2, 3, 4, 5, 6, 7 - því hærri sem talan er, því lægra er hitastigið). ATHUGADU!
  2. Ráðlögð stilling hitastigs er 5,5-5,9, sem leiðir til 4,0 °C í kæliskápnum og -18,0 °C í frystiskápnum.
  3. Notaðu hitastigsstillingar 6 til 7 í mesta lagi í 1 klukkustund þegar þú hefur nýlega hlaðið í kæliskápinn og ætlar að kæla hann hratt. Ef hitastillingar 6 til 7 eru notaðar í langan tíma getur það valdið frosti í kæliskápnum.

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 2

Hitastigið í hverju hólfi getur verið breytilegt eftir því hversu mikið af matvælum er geymt og hvar þau eru sett. Herbergishitinn getur einnig haft áhrif á hitastigið innan í kæli- og frystiskápnum.

Geymsla matvæla

Geymsla matvæla í kæliskápnum

Elvita CKF3146V - Geymsla matvæla í kæliskápnum - 1

VIÐVÖRUN!

Til að koma í veg fyrir að hlutir falli og valdi meiðslum eða skemmdum á kæli- og frystiskápnum skal ekki hlaða of miklu í hillurnar og hurðagrindurnar eða setja of mikið í skúffurnar.

Elvita CKF3146V - VIÐVÖRUN! - 1

VARÚÐ!

- Farðu alltaf eftir þeim geymslutíma og fyrningardagsetningum sem framleiðendur leggja til.

- Ef hurðin er höfð opin í langan tíma getur það valdið verulegri hækkun á hitastigi í hólfunum.

- Geymdu hrátt kjöt og fisk í hentugum ílátum í kæliskápnum þannig að þau komist ekki í snertingu við eða valdi leka á önnur matvæli.

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 1

VARÚÐ!

Ekki loka hurðinni meðan einhverjar hillur eru útdregnar eða skúffur opnar. Það gæti skemmt hillurnar, skúffurnar og hurðina.

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 1

ATHUGADU!

Til að forðast óþarfa orkueyðslu:

  • Ekki geyma heitan mat eða vökva sem gufa kemur úr í kæli- og frystiskápnum. Ef heit matvæli eru sett beint í kæli- eða frystiskápinn veldur það hækkun á innra hitastigi sem leiðir til þess að þjappan þarf að vinna meira og nota meiri orku. Kæla verður heitan mat og drykki að stofuhita áður en þau eru geymd.
  • Ekki hafa hurðirnar opnar í lengri tíma.

Notaðu eftirfarandi ábendingar og ráðleggingar við geymslu matvæla í kæliskápnum.

Þegar fersk matvæli eru sett í kæliskáp:

  • Breiddu yfir eða vefðu inn matvælin, sérstaklega ef þau eru bragðsterk.
  • Settu matvælin þannig að loft geti leikið óhindrað um þau.

Aðrar ráðleggingar varðandi kæliskáp:

Matvæli Råðlegging
Kjöt (allar gerðir) Vefðu inn í pólýben (plast) og settu áglerhilluna fyrir ofanskúffuna fyrir ávexti og grænmeti
Eldaður matur, kaldir réttir o.s.frv. Breiddu yfir og settuí einhverja hillu
Ávextir og grænmeti Geymdu í skúffunni fyrir ávexti oggrænmeti
Smjör og ostur Vefðu inn í loftpétta filmu eða plastfilmu
Mjólkurflöskur, aðrir drykkir í flöskum og vökvar í dósumGakktu úr skugga um að flöskur séu með loki og geymduþær í hurðargrindunum
Egg og pökkuð matvæliGeymdu í hurðargrindunum, settu eggin í eggjahaldarana

Matvæli geymd í frystiskápnum

Elvita CKF3146V - Matvæli geymd í frystiskápnum - 1

VIÐVÖRUN!

  • Setjið ekki matvæli eða ílát í frystihólfið með blautum höndum þegar kæli- og frystiskápurinn er í gangi, sérstaklega ekki málmílát, til að forðast skrámur á húð og frostbruna.
  • Neytið ekki frosinna matvæla, eins og íspinna eða ísmola, beint úr frystiskápnum. Það gæti valdið frostbruna.

Elvita CKF3146V - VIÐVÖRUN! - 1

VARÚÐ!

  • Farið alltaf eftir þeim geymslutíma og fyrningardagsetningum sem framleiðendur leggja til.
  • Ef hurðin er höfð opin í langan tíma getur það valdið verulegri hækkun á hitastigi í hólfunum.
  • Geymið hrátt kjöt og fisk í hentugum ílátum í kæliskápnum þannig að þau komist ekki í snertingu við eða valdi leka á önnur matvæli.
  • Setjið ekki kolsýrða eða freyðandi drykki í frystihólfið þar sem það skapar þrýsting í ílátinu, sem getur valdið því að það springi og skemmi tækið.
  • Vertu viss um að flöskur séu ekki skildar eftir í frystiskápnum lengur en þess er þörf. Flöskurnar geta sprungið ef innihaldið frýs.

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 1

VARÚÐ!

Ekki loka hurðinni meðan skúffur eru opnar. Það gæti skemmt skúffurnar og hurðina.

Notaðu eftirfarandi ábendingar og ráðleggingar við geymslu matvæla í frystiskápnum.

  • Undirbúðu matvælin í smáum skömmtum til að þau frjósi hratt og fullkomlega, sem gerir það aftur á móti mögulegt að þíða einungis niður það magn sem þarf í hvert skipti. Þegar matvæli hafa verið þídd niður þá spillast þau fljótt og ekki má frysta þau aftur. Þegar matvæli frjósa of hægt geta þau tapað gæðum sínum eða spillst.
  • Pakkaðu matvælunum inn í álpappír eða pólýetýlen (plast) matarfilmu sem er loftþétt. Þurrkaðu af ílátum áður en þau eru sett í frystiskápinn.
  • Merktu og dagsettu hverja pakkningu sem á að frysta til að geta fylgst með geymslutímanum.
  • Taktu út eins marga hluti og þarf í einu. Ef hólfið er opnað oft getur það leitt til hækkunar hitastigs, orkueyðslu og skemmda á matvælum.
  • Ekki láta fersk ófrosin matvæli komast í snertingu við matvæli sem eru þegar frosin til að forðast að hitastig þeirra síðarnefndu hækki.
  • Vertu viss um að smásöluaðilinn hafi geymt matvælin á réttan hátt.

HREINSUN OG VIÐHALD

Ytra byrði hreinsað

Hreinsaðu ytra byrði á tveggja mánaða fresti. Það hjálpar til við að viðhalda góðu útliti kæli- og frystiskápsins.

Elvita CKF3146V - Ytra byrði hreinsað - 1

VIÐVÖRUN!

- Taktu kæli- og frystiskápinn úr sambandi við rafmagn áður en hreinsað er. Hætta er á rafstuði. - Notaðu ekki málmhluti, beitta hluti, gufuhreinsi, þynni, bílahreinsiefni, klór, léttolíu, svarfandi hreinsiefni eða lífræn leysiefni eins og bensen til að þrífa. Það gæti skemmt yfirborð tækisins og gæti valdið eldsvoða.

Elvita CKF3146V - VIÐVÖRUN! - 1

VARÚÐ!

Hreinsaðu reglulega yfirborð sem geta komist í snertingu við matvæli og aðgengilegan frárennslisbúnað.

  1. Snúðu hitastigsveljaranum á 0.

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 1

  1. Taktu kæli- og frystiskápinn úr sambandi við rafmagn.

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 2

  1. Hreinsaðu hurðirnar, handföngin og yfirborð skápsins með mjúkum klút sem t.d. hefur verið vættur með mildu hreinsiefni.

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 3

Úðaðu vatni á hreinsiklútinn frekar en að úða beint á yfirborð frystiskápsins. Það hjálpar til við að tryggja jafna dreifingu raka á yfirborðinu.

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 4

  1. Þurrkaðu hurðirnar, handföngin og yfirborð skápsins með mjúkum klút.

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 5

  1. Settu kæli- og frystiskápinn í samband við rafmagn.

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 6

  1. Snúðu hitastillihnappi kæliskápsins til óskaðs hitastigs og lokaðu hurðinni.

ATHUGADU! Ráðlagt hitastig er 4 °C í kæliskápnum og -18 °C í frystiskápnum. Ráðlögð stilling hitastigs er 5,5-5,9.

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 7

Hreinsaðu innra byrði á tveggja mánaða fresti. Það er auðveldara að þrífa þegar lítið er af mat í skápnum.

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 8

VIDVÖRUN!

  • Taktu kæli- og frystiskápinn úr sambandi við rafmagn áður en hreinsað er. Hætta er á rafstuði.
  • Notaðu ekki málmhluti, beitta hluti, gufuhreinsi, þynni, bílahreinsiefni, klór, léttolíu, svarfandi hreinsiefni eða lífræn leysiefni eins og bensen til að þrífa. Það gæti skemmt yfirborð tækisins og gæti valdið eldsvoða.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 1

VARÚD!

  • Hreinsaðu reglulega yfirborð sem geta komist í snertingu við matvæli og aðgengilegan frárennslisbúnað.
  • Ekki skola beint með vatni eða öðrum vökvum til að forðast skemmdir á tækinu, skammhlaup eða áhrif á rafmagnseinangrun.
  • Ekki nota hreinsiefni (eins og sápu, þvottaefni, skrúbbduft, úðahreinsi o.s.frv.) til að hreinsa innanrýmið. Þau geta valdið lykt og mengað matvæli.
  • Snúðu hitastigsveljaranum á 0.

Elvita CKF3146V - VARÚD! - 1

  1. Taktu kæli- og frystiskápinn úr sambandi við rafmagn.

Elvita CKF3146V - VARÚD! - 2

ATHUGADU! Til að fjarlægja hurðarhillu, lyftu hægri hlið hurðarhillunnar meðan vinstri hlið er haldið. Þegar hak hillunnar hefur losnað frá kæliskápshurðinni, lyftu hillunni alveg af hurðinni.

Elvita CKF3146V - VARÚD! - 3

  1. Þurrkaðu af stjórnborðinu með hreinum og mjúkum klút.

Elvita CKF3146V - VARÚD! - 4

  1. Notaðu mjúkan klút eða svamp til að þurrka af innan úr kæli- og frystiskápnum með veikri blöndu af matarsóda.

Elvita CKF3146V - VARÚD! - 5

  1. Þurrkaðu af innra byrðinu og láttu standa með opnar hurðir til að þorna.

Elvita CKF3146V - VARÚD! - 6

  1. Hreinsaðu hillurnar og skúffurnar með mjúkum klút vættum með sápuvatni eða blönduðu hreinsiefni.

Elvita CKF3146V - VARÚD! - 7

  1. Þurrkaðu hillurnar og skúffurnar.

Elvita CKF3146V - VARÚD! - 8

ATHUGIÐ! Til að setja hurðarhillu í, endurtaktu skrefin til að fjarlægja í öfugri röð.

Elvita CKF3146V - VARÚD! - 9

  1. Settu kæli- og frystiskápinn í samband við rafmagn.

Elvita CKF3146V - VARÚD! - 10

  1. Snúðu hitastillihnappi kæliskápsins til óskaðs hitastigs og lokaðu hurðinni.

ATHUGIÐ! Ráðlagt hitastig er 4 °C í kæliskápnum og -18 °C í frystiskápnum. Ráðlögð stilling hitastigs er 5,5-5,9.

Elvita CKF3146V - VARÚD! - 11

Hreinsaðu hurðarþéttin.

Athugaðu og hreinsaðu hurðarþéttin reglulega til að tryggja að engin óhreinindi séu á þeim. Klístraður matur og drykkir geta valdið því að þéttin festist við skápinn og rifni þegar hurðin er opnuð.

Elvita CKF3146V - Hreinsaðu hurðarþéttin. - 1

VIÐVÖRUN!

  • Taktu kæli- og frystiskápinn úr sambandi við rafmagn áður en hreinsað er. Hætta er á rafstuði.
  • Notaðu ekki málmhluti, beitta hluti, gufuhreinsi, þynni, bílahreinsiefni, klór, léttolíu, slípiefni eða lífræn leysiefni eins og bensen til að þrífa. Það gæti skemmt yfirborð tækisins og gæti valdið eldsvoða.
  • Ekki setja kæli- og frystiskápinn aftur í samband við rafmagn nema hurðarþéttin séu alveg þurr.
  • Taktu kæli- og frystiskápinn úr sambandi við rafmagn.

Elvita CKF3146V - VIÐVÖRUN! - 1

  1. Þvoðu þéttingarnar með mildu hreinsiefni og heitu vatni.

Elvita CKF3146V - VIÐVÖRUN! - 2

  1. Skolaðu og þurrkaðu þéttingarnar vandlega eftir hreinsun.

Elvita CKF3146V - VIÐVÖRUN! - 3

  1. Settu kæli- og frystiskápinn í samband við rafmagn.

Elvita CKF3146V - VIÐVÖRUN! - 4

Afþíðing kælihólfsins fer sjálfkrafa fram. Vatn sem myndast við afþíðingu rennur í dropabakka í gegnum frárennslisrör aftan á kæliskápnum.

Afþíða þarf frystiskápinn ef ísingin er orðin of þykk (meira en 10 mm). Afþíddu frystiskápinn einu sinni í mánuði. Ef hurð frystiskápsins er oft opnuð eða hann er notaður þar sem mikill raki er skal afþíða á tveggja vikna fresti. Reyndu að afþíða þegar frystiskápurinn er næstum því tómur.

Elvita CKF3146V - VIÐVÖRUN! - 5

VIÐVÖRUN!

  • Taktu kæli- og frystiskápinn úr sambandi við rafmagn áður en frystiskápurinn er afþíddur. Hætta er á rafstuði.
  • Ekki setja kæli- og frystiskápinn aftur í samband við rafmagn nema hann sé alveg þurr að innan.
  • Notið ekki verkfæri eða aðrar aðferðir til að flýta fyrir afþíðingarferlinu, nema framleiðandinn mæli með því.

Elvita CKF3146V - VIÐVÖRUN! - 1

VARÚÐ!

  • Ekki nota málmhluti eða beitta hluti til að fjarlægja ísingu innan úr frystiskápnum. Það gæti skemmt yfirborð tækisins.
  • Hreinsaðu reglulega yfirborð sem geta komist í snertingu við matvæli og aðgengilegan frárennslisbúnað.
  • Ekki hita frystihólfið beint með heitu vatni eða hárþurrku meðan afþíðing stendur yfir. Það getur valdið aflögun á innra hlífðarlaginu.
  • Ekki nota beitt verkfæri eða tréstykki til að skafa burt ísingu/frost eða aðskilja matvæli sem eru frosin föst við geymsluhólfin. Það getur skemmt innra hlífðarlagið eða yfirborð eimisins.

Frystiskápurinn afþíddur

  1. Snúðu hitastigsveljaranum á 0 til að slökkva á kæli- og frystiskápnum.

VARÚÐ! Kæliskápurinn gæti hitnað meðan verið er að afþíða frystiskápinn. Ráðlagt er að fjarlægja matvæli og drykkjarvörur úr kæliskápnum.

Elvita CKF3146V - Frystiskápurinn afþíddur - 1

  1. Fjarlægðu matvælin úr frystiskápnum og taktu tækið úr sambandi.

Elvita CKF3146V - Frystiskápurinn afþíddur - 2

  1. Opnaðu frystiskápshurðina og skildu hana eftir opna.

Elvita CKF3146V - Frystiskápurinn afþíddur - 3

  1. Fjarlægðu hilluna úr frystiskápnum.

Elvita CKF3146V - Frystiskápurinn afþíddur - 4

- Loftræstu herbergið vel til að flýta fyrir ferlinu.

- Til að hraða afþíðingarferlinu skal setja skál með heitu vatni (um 50 °C) í frystihólfið. Skafðu burt ísinguna með afþíðingarspaða. Stilltu hitastigsvalhnappinn í upphaflega stöðu sína.

Elvita CKF3146V - Frystiskápurinn afþíddur - 5

  1. Þurrkaðu af frystihólfinu.

Elvita CKF3146V - Frystiskápurinn afþíddur - 6

  1. Hreinsaðu frystiskápinn að innan. Sjá kaflann "Innra byrði hreinsuð", síða 384.

Elvita CKF3146V - Frystiskápurinn afþíddur - 7

  1. Settu kæli- og frystiskápinn í samband við rafmagn.

Elvita CKF3146V - Frystiskápurinn afþíddur - 8

  1. Snúðu hitastillingarhnappinum í kæliskápnum á óskað hitastig og lokaðu hurðinni.

ATHUGIÐ! Ráðlagt hitastig er 4 °C í kæliskápnum og -18 °C í frystiskápnum. Ráðlögð stilling hitastigs er 5,5-5,9.

Elvita CKF3146V - Frystiskápurinn afþíddur - 9

  1. Settu hilluna aftur í frystiskápinn þegar hann er orðinn nægilega kaldur.

Elvita CKF3146V - Frystiskápurinn afþíddur - 10

Undirbúningur ef ekki á að nota tækið í langan tíma

Nokkurs undirbúnings er þörf ef slökkva skal á kæli- og frystiskápnum í langan tíma til að halda honum í góðu ástandi og koma í veg fyrir myglu.

  1. Snúðu hitastigsveljaranum á 0.

Elvita CKF3146V - Undirbúningur ef ekki á að nota tækið í langan tíma - 1

  1. Taktu kæli- og frystiskápinn úr sambandi við rafmagn.

Elvita CKF3146V - Undirbúningur ef ekki á að nota tækið í langan tíma - 2

  1. Hreinsaðu kæli- og frystiskápinn. Sjá hluti "Ytra byrði hreinsað", síða 382 og sjá hluti "Innra byrði hreinsað", síða 384.

Elvita CKF3146V - Undirbúningur ef ekki á að nota tækið í langan tíma - 3

  1. Skildu hurðirnar eftir opnar til að hindra að lykt myndist.

Elvita CKF3146V - Undirbúningur ef ekki á að nota tækið í langan tíma - 4

Þegar kæli- og frystiskápurinn er ræstur eftir tímabil án notkunar skal láta hann vera í gangi í a.m.k. 2 klukkustundir með lágt stillt hitastig áður en matvæli eru sett í hólfin.

Ef skipta þarf um LED-ljós

Elvita CKF3146V - Ef skipta þarf um LED-ljós - 1

VARÚÐ!

Notandinn á ekki að skipta um LED-ljós sjálfur. Ef LED-ljósið er skemmt skal hafa samband við Elvita þjónustu.

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 1

VIÐVÖRUN!

  • Öll rafmagnsþjónusta fyrir tækið skal vera framkvæmd af viðurkenndum rafvirkja eða hæfum einstaklingi.
  • Þjónusta fyrir þetta tæki verður að vera framkvæmd af viðurkenndri þjónustumiðstöð og aðeins má nota upprunalega varahluti.

Elvita CKF3146V - VIÐVÖRUN! - 1

ATHUGAÐU!

Aflgjafi borðs LED-ljóss á að vera 220-240 V, HÁMARK 2 W

  1. Snúðu hitastigsveljaranum á 0.

Elvita CKF3146V - ATHUGAÐU! - 1

  1. Taktu kæli- og frystiskápinn úr sambandi við rafmagn.

Elvita CKF3146V - ATHUGAÐU! - 2

  1. Togaðu peruhlífina út.

Elvita CKF3146V - ATHUGAÐU! - 3

  1. Taktu ljósborðið úr sambandi frá ljóshlífinni. Til að setja í, settu nýja ljósborðið í.

Elvita CKF3146V - ATHUGAÐU! - 4

  1. Settu hlifina í með skrúfunni.

Elvita CKF3146V - ATHUGAÐU! - 5

  1. Settu kæli- og frystiskápinn í samband við rafmagn.

Elvita CKF3146V - ATHUGAÐU! - 6

  1. Snúðu hitastillihnappi kæliskápsins til óskaðs hitastigs og lokaðu hurðinni.

ATHUGADU! Ráðlagt hitastig er 4 °C í kæliskápnum og -18 °C í frystiskápnum. Ráðlögð stilling hitastigs er 5,5-5,9.

Elvita CKF3146V - ATHUGAÐU! - 7

  • Aðeins viðurkenndir tæknimenn mega framkvæma viðgerðir.
  • Ef vandamál koma upp varðandi tækið athugaðu þá hvort notendaleiðbeiningar og bilanagreiningarupplýsingar geta hjálpað þér við að leysa þau. Ef vandamálið er viðvarandi skaltu hafa samband við viðurkenndan tæknimann, viðurkenndan rafvirkja eða smásöluaðilann þar sem varan var keypt.

Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.

Raftenging virkar ekki

  1. Athugaðu öryggi og raftengingu.
  2. Ef þau eru ekki í nothæfu ástandi skaltu hafa samband við viðurkenndan rafvirkja.

Rafmagnskló hefur ekki verið sett í

Tengdu rafmagnskló við rafmagnsinnstungu.

Lækkaðu hitastigið í kæli- og frystiskápnum. Sjá hluti "Hitastigi breytt", síða 378.

Rafspenna er of lág

Rafveituspennan verður að samsvara spennunni sem tilgreind er á upplýsingaplötunni.

Lykt kemur úr hólfunum

Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.

Innra byrði er ekki hreint

Hreinsaðu innra byrði. Sjá hluti "Innra byrði hreinsað", síða 384.

Matvæli, umbúðir eða pakkningar valda lykt

Notaðu önnur ílát, pakkaðu matvælum rétt eða fjarlægðu matvæli úr kæli- og frystiskápnum.

Hávaði úr kæli- og frystiskápnum

Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.

Hávaði er eðlilegur meðan tækið er í gangi

Eftirfarandi hávaði er eðlilegur meðan tækið er í gangi:

  • Smellhljóð áður en þjappan fer í gang.
  • Hávaði frá þjöppunni meðan hún er í gangi.
  • Gutlhljóð sambærilegt við vatn sem er að sjóða.
  • Hvellir á meðan sjálfvirk afþíðing stendur yfir.

Skápurinn er ekki jafnvægisstilltur.

Jafnvægisstilltu kæli- og frystiskápinn. Sjá hluti "Jafnvægisstilling kæli- og frystiskáps", síða 407.

Bak kæli- og frystiskápsins snertir vegginn.

Færðu kæli- og frystiskápinn þannig að það sé nægilegt pláss í kringum hann. Sjá hluti "Uppsetningarsvæði", síða 403.

Flöskur eða ílát falla eða rúlla.

Athugaðu hvort einhverjar flöskur eða ílát hafi fallið eða rúllað.

Mótorinn er stöðugt í gangi.

Eðlilegt er að heyra hljóðið í mótornum.

Það er eðlilegt að heyra oft hljóð í mótornum. Mótorinn þarf oftar að vera í gangi þegar:

  • hitastigið er stillt lægra en nauðsynlegt er;
  • mikið magn af heitum matvælum var nýlega sett í skápinn;
  • hitastigið fyrir utan kæli- og frystiskápinn er of hátt;
  • hurðirnar eru hafðar opnar of lengi eða of oft;
  • kæli- og frystiskápurinn var nýlega uppsettur eða það hefur verið slökkt á honum í langan tíma.

Ísingarlag í hólfinu

Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.

Loftúttak er hindrað eða loftræsting er ekki nægileg

Athugaðu að loftúttökin séu ekki hindruð af matvælum og tryggðu að matvæli séu þannig staðsett að loftræsting verði nægilega mikil. Fjarlægðu ísinguna. Sjá hluti "Kæli- og frystiskápur afþíddur", síða 390.

Hurðin er ekki almennilega lokuð

Gakktu úr skugga um að hurðin sé alveg lokuð. Fjarlægðu ísinguna. Sjá hluti "Kæli- og frystiskápur afþíddur", síða 390.

Hitastigið að innan er of hátt

Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.

Hurðirnar hafa verið skildar eftir opnar of lengi eða of oft

Gakktu úr skugga um að hurðin sé alveg lokuð. Athugaðu að hurðunum sé ekki haldið opnum af einhverri hindrun.

Kæli- og frystiskápurinn er ekki með nægilegt pláss í kringum sig

Færðu kæli- og frystiskápinn þannig að það sé nægilegt pláss í kringum hann. Sjá hluti "Uppsetningarsvæði", síða 403.

Hitastigið að innan er of lágt

Hitastigið er stillt of lágt

Auktu hitastigið. Sjá hluti "Hitastigi breytt", síða 378.

Ekki hægt að loka hurðum auðveldlega

Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.

Eitthvað innan í er að hindra lokun hurðanna

Fjarlægðu hlutinn sem hindrar að hurðirnar lokist.

Kæli- og frystiskáp er ekki hallað örlítið afturábak

Með því að halla kæli- og frystiskápnum afturábak geta hurðirnar lokast hægt að sjálfu sér. Sjá hluti "Jafnvægisstilling kæli- og frystiskáps", síða 407.

Vatn á gólfinu

Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.

Vatnspannan (staðsett í afturbotni skápsins) er ekki rétt jafnvægisstillt

Þetta getur valdið því að vatnið beinist ekki í pönnuna eins og ætlast er til og leki á gólfið í staðinn. Dragðu kæli- og frystiskápinn frá veggnum til að athuga pönnuna og stútinn. Fjarlægðu óhreinindi og rusl.

Frárennslisstúturinn (staðsettur undir efsta hluta geymslustaðs pjöppu) er ekki rétt staðsettur eða er hindraður

Þetta getur valdið því að vatnið beinist ekki í pönnuna eins og ætlast er til og leki á gólfið í staðinn. Dragðu kæli- og frystiskápinn frá veggnum til að athuga pönnuna og stútinn. Fjarlægðu óhreinindi og rusl.

Slökkt er á kæli- og frystiskápnum í langan tíma

Þetta getur valdið því að klaki eða ísing í hólfinu bráðni og vatnið leki á gólfið.

Ljósið virkar ekki

Elvita CKF3146V - Ljósið virkar ekki - 1

VIÐVÖRUN!

  • Aðeins viðurkenndir tæknimenn mega framkvæma viðgerðir.
  • Ef vandamál koma upp varðandi tækið, athugaðu þá hvort notendaleiðbeiningar og bilanagreiningarupplýsingar geti hjálpað þér við að leysa þau. Ef vandamálið er viðvarandi skaltu hafa samband við viðurkenndan tæknimann, viðurkenndan rafvirkja eða smásöluaðilann þar sem varan var keypt.

Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.

LED-ljósið er skemmt

Skiptu ekki um LED-ljósið. Ef LED-ljósið er skemmt skal hafa samband við þjónustu. Hafðu samband við Elvita þjónustu ef þú þarft hjálp með tækið þitt.

LED-ljós hefur verið gert óvirkt af stýrikerfinu vegna þess að hurðin hefur verið höfð opin of lengi

Lokaðu og opnaðu hurðina til að ljósið kvikni aftur.

UPPSETNING

Fylgdu leiðbeiningunum í þessum hluta til að setja upp tækið.

Elvita CKF3146V - UPPSETNING - 1

HÆTTA!

Vertu viss um að tækið hafi verið tekið úr sambandi við rafmagn áður en uppsetning fer fram eða aukahlutir stilltir.

Elvita CKF3146V - HÆTTA! - 1

VIDVÖRUN!

Lestu öryggisupplýsingarnar og leiðbeiningarnar í heild sinni áður en þú setur þetta tæki upp eða notar það.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

  • Þessi vara er ekki ætluð til notkunar sem innbyggt tæki. • Gætið þess að kælimiðilsrásin skemmist ekki.
  • Þegar tækið er staðsett skal tryggja að ekki sé brengt að rafmagnssnúrunni eða hún verði fyrir skemmdum. Skemmdur rafmagnstengill getur ofhitnað og valdið eldsvoða.
  • Staðsetjið ekki fjöltengi eða færanlega aflgjafa fyrir aftan tækið.
  • Tengið ekki tækið við rafmagnsinnstungu ef tækið er skemmt. Hafið samband við smásöluaðilann þar sem tækið var keypt.
  • Notið sérúthlutaða rafmagnsinnstungu, sem þýðir að ekki skal deila rafmagnsinnstungunni með öðrum tækjum.
  • Stinga verður klónni í viðeigandi rafmagnsinnstungu sem er sett upp og jarðtengd samkvæmt öllum staðbundnum lögum og reglugerðum.
  • Gangið úr skugga um að tengistærðir tækisins séu samsvarandi við rafveitu. Þessar upplýsingar (stærð öryggja, spenna og tíðni) má finna á merkingu tækisins. Ef vafi leikur á skal ráðfæra sig við viðurkenndan rafvirkja.
  • Notið ekki framlengingarsnúru og lengið ekki rafmagnssnúruna.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 1

VARÚÐ!

Farðu varlega þegar tækið er meðhöndlað til að tryggja að það falli ekki og valdi meiðslum.

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 1

ATHUGADU!

Hafið samband við þjónustudeild ef það eru einhver áhyggjuefni varðandi uppsetninguna. Hafðu samband við Elvita þjónustu ef þú þarft hjálp með tækið þitt.

Uppsetningarsvæði

Elvita CKF3146V - Uppsetningarsvæði - 1

VIDVÖRUN!

  • Þegar tækið er staðsett skal tryggja að ekki sé brengt að rafmagnssnúrunni og rafmagnstenglinum eða að þau verði fyrir skemmdum. Skemmdur rafmagnstengill getur ofhitnað og valdið eldsvoða.
  • Þegar verið er að staðsetja tækið skal tryggja að hægt sé að komast að rafmagnstenglinum.
  • Haldið loftræstiopum utan á tækinu lausum við hindranir.
  • Setjið tækið ekki upp nema það sé nægilegt pláss og loftræsting í kringum tækið. Það myndi valda ofhitnun.
  • Setjið bakhlið tækisins ekki of nálægt vegg. Hætta er á eldsvoða ef þjappan ofhitnar.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 1

VARÚÐ!

Þessi vara virkar vel innan loftslagsflokksins frá N til ST. Sjá hluti "Loftslagsflokkun", síða 421. Tækið gæti ekki virkað rétt ef það er útsett í langan tíma fyrir hitastigi sem er fyrir ofan eða neðan hitastigssviðið sem nær frá 16 °C til 38 °C.

Hafðu eftirfarandi í huga þegar þú velur stað til að setja kæli- og frystiskápinn upp á:

  • Forðastu beint sólarljós, rigningu eða frost.
  • Haltu frá hitagjöfum, eins og eldavélum, ofnum, eldum, hiturum eða ofnum.
  • Staðsettu á vel loftræstum stað innandyra.
  • Ekki setja upp kæli- og frystiskápinn á stað þar sem er raki eða bleyta.
  • Yfirborðið á að vera hart, þurrt og lárétt.
  • Hafðu nægilegt pláss til að hurðirnar og skúffurnar geti auðveldlega opnast, í samræmi við mælivíddirnar.

Til að jafnvægisstilla kæli- og frystiskápinn rétt og leyfa hringrás lofts í neðri afturhluta kæli- og frystiskápsins gæti þurft að stilla fæturna. Sjá hluti "Jafnvægisstilling kæli- og frystiskáps", síða 407

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 1

Hægt er að spara orku og bæta skilvirkni kælikerfisins með því að setja kæli- og frystiskápinn upp þannig að pláss sé nægilegt í kring. Það tryggir góða loftræstingu.

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 2

  1. Athugaðu hvort einhverjar skemmdir eru á pakkningunum. Ef pakkningarnar eru skemmdar skal ekki fjarlægja umbúðirnar og hafa samband við smásöluaðilann þar sem varan var keypt.

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 3

  1. Fjarlægðu pappakassann og frauðplastumbúðirnar.

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 4

  1. Snúðu kæli- og frystiskápnum til að taka hann úr grunnpakkningunni.

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 5

  1. Fjarlægðu plastumbúðirnar.

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 6

  1. Fjarlægðu límbandið sem heldur hurðunum lokuðum.

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 7

  1. Fjarlægðu hlífðarfilmuna á hillunum og á skúffunum.

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 8

  1. Athugaðu hvort einhverjar skemmdir eru á tækinu. Ef tækið er skemmt skal ekki tengja það við rafmagn, láta það vera áfram í pakkningunum og hafa samband við smásöluaðilann þar sem varan var keypt.

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 9

Stillið botnfæturna þegar þarf til að fá nægilega hallastillingu og lofthringrás á neðri afturhluta kæli- og frystiskápsins.

  1. Athugaðu hvort einhver af fótunum snerti ekki gólfið.

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 10

  1. Ef einhver af fótunum snertir ekki gólfið: Skrúfaðu fótinn út með hendi eða viðeigandi skrúflykli þar til hann snerti gólfið.

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 11

Til að láta hurðirnar lokast hægt að sjálfu sér skal halla efsta hluta kæli- og frystiskápsins aftur á bak um 10-15 mm.

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 12

  1. Notaðu hallamæli til að athuga hvort kæli- og frystiskápurinn sé alveg láréttur og stilltu fæturna aftur ef þarf.

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 13

Hurðir fjarlægðar og settar upp

Elvita CKF3146V - Hurðir fjarlægðar og settar upp - 1

VIÐVÖRUN!

Ekki hafa tækið tengt við rafmagn meðan verið er að fjarlægja og setja upp hurðir.

Fjarlægðu hurðirnar

  1. Snúðu hitastigsveljaranum á 0.

Elvita CKF3146V - Fjarlægðu hurðirnar - 1

  1. Taktu kæli- og frystiskápinn úr sambandi við rafmagn.

Elvita CKF3146V - Fjarlægðu hurðirnar - 2

  1. Fjarlægðu hurðargrindurnar.

ATHUGIÐ! Til að fjarlægja hurðarhillu, lyftu hægri hlið hurðarhillunnar meðan vinstri hlið er haldið. Þegar hak hillunnar hefur losnað frá kæliskápshurðinni, lyftu hillunni alveg af hurðinni.

Elvita CKF3146V - Fjarlægðu hurðirnar - 3

  1. Fjarlægðu skrúfurnar með 8 mm topplykli. Fjarlægðu efri hjörina. VARÚÐ! Haltu við efri hurðina með hendi svo hún falli ekki.

3x

  1. Lyftu efri hurðinni varlega upp á við til að fjarlægja hana. Settu hurðina á mjúkt yfirborð með framhliðina upp. ATHUGIÐ! Þegar hurðin er fjarlægð, athugaðu þá með skinnur staðsettar milli miðhjarar og neðsta hluta efri hurðar þar sem þessar skinnur geta fests við yfirborð hurðarinnar.

Elvita CKF3146V - Fjarlægðu hurðirnar - 5

  1. Fjarlægðu skrúfurnar og miðhjörina.

Elvita CKF3146V - Fjarlægðu hurðirnar - 6

  1. Lyftu neðri hurðinni upp á við til að fjarlægja hana frá neðri hjörinni. Settu hurðina á mjúkt yfirborð með framhliðina upp.

ATHUGIÐ! Þegar hurðin er fjarlægð, athugaðu þá með skinnur staðsettar milli neðstu hjarar og neðsta hluta neðri hurðar þar sem þessar skinnur geta fests við yfirborð hurðarinnar.

Elvita CKF3146V - Fjarlægðu hurðirnar - 7

  1. Til að setja hurðirnar í, settu neðri hurðina á neðstu hjörina.

Elvita CKF3146V - Fjarlægðu hurðirnar - 8

  1. Settu efri hurðina á miðhjörina.

Elvita CKF3146V - Fjarlægðu hurðirnar - 9

ATHUGADU! Til að setja hurðarhillu í, endurtaktu skrefin til að fjarlægja í öfugri röð.

Elvita CKF3146V - Fjarlægðu hurðirnar - 10

  1. Settu kæli- og frystiskápinn í samband við rafmagn.

Elvita CKF3146V - Fjarlægðu hurðirnar - 11

  1. Snúðu hitastillihnappi kæliskápsins til óskaðs hitastigs og lokaðu hurðinni.

ATHUGADU! Ráðlagt hitastig er 4 °C í kæliskápnum og -18 °C í frystiskápnum. Ráðlögð stilling hitastigs er 5,5-5,9.

Elvita CKF3146V - Fjarlægðu hurðirnar - 12

Hægt er að breyta því hvaða hlið hurðarinnar opnast ef uppsetningin krefst þess.

Elvita CKF3146V - Fjarlægðu hurðirnar - 13

VIDVÖRUN!

Ekki hafa tækið tengt við rafmagn meðan verið er að snúa hurðum við.

  1. Fjarlægðu hurðirnar af hjörunum. Sjá hluti "Hurðir fjarlægðar og settar upp", síða 408.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 1

  1. Fjarlægðu skrúfugatshlífina og settu hana upp á gagnstæða hlið kæli- og frystiskápsins.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 2

  1. Fyrir báðar hurðir, fjarlægðu skrúfuna og stoppstykkið og settu þau sömu á hina hliðina.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 3

  1. Á hlífðarplötunni í miðju, fjarlægðu skrúfugatshlífina og settu hana upp á gagnstæða hlið frystiskápsins.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 4

  1. Hallaðu kæli- og frystiskápnum örlítið aftur á bak til að fá aðgang að framfótunum og neðri hjörum.

VARÚD! Látu kæli- og frystiskápinn hvila á mjúkum frauðpakkningum eða sambærilegu efni til að forðast að skemma bakhlutann.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 5

  1. Skrúfaðu framfæturna tvo alveg út.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 6

  1. Fjarlægðu skrúfurnar og hjarasamstæðuna.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 7

  1. Settu hjarasamstæðuna á gagnstæða hlið kæli- og frystiskápsins, festu samstæðuna með skrúfunum.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 8

  1. Settu í framfæturna tvo.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 9

  1. Settu neðri hurðina á neðstu hjörina og hertu síðan skrúfurnar.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 10

  1. Settu miðhjörina á gagnstæða hlið kæli- og frystiskápsins.

ATHUGADU! Snúa þarf miðhjörinni 180° þegar hurðirnar eru settar upp á gagnstæða hlið.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 11

  1. Settu efri hurðina á miðhjörina.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 12

  1. Settu efri hjörina á gagnstæða hlið kæli- og frystiskápsins.

VARÚÐ! Haltu við efri hurðina með hendi svo hún falli ekki.

ATHUGADU! Snúa þarf efri hjörinni 180° þegar hurðirnar eru settar upp á gagnstæða hlið.

3x

  1. Settu efri hjararhlífina á gagnstæða hlið kæli- og frystiskápsins.

ATHUGADU! Geymdu hina hjararhlífina á öruggum stað.

Elvita CKF3146V - VIDVÖRUN! - 14

Gerðarkóði tækis Sjá hluti "Finndu gerðarkóðann", síða373
Hæð 1434 mm
Breidd 550 mm
Dýpt 542 mm
Heildarrúmtak 206 l
Rúmtak kæliskáps 165 l
Rúmtak frystiskáps 41 l
Ráðlögð stilling hitastigs fyrir bestu geymslu á matvælum,°Cfersk matvæli
Ráðlögð stilling hitastigs fyrir bestu geymslu á matvælum,8 °C4 stjörnur
Frystigeta 2,0 kg / 24 klst.
Tegund afpíðingar Handvirk
Lægsta umhverfishitastig, sem kælitækið hentar fyrir+16 °C
Hæsta umhverfishitastig, sem kælitækið hentar fyrir+38 °C
Aflgjafi220~240 V, 50 Hz

Orkunýtni

Þú getur fundið upplýsingar um orkusparnað þessa tækis í EPREL, evrópsku vöruskránni fyrir orkumerkingar. Farðu á vefsíðu EPREL og notaðu gerðarauðkennið til að finna upplýsingarnar. Gerðarauðkennið má finna á orkumerkingunni sem fylgir tækinu.

EPREL vefsíða: https://eprel.ec.europa.eu/

Elvita CKF3146V - Orkunýtni - 1

ORKA

Elvita CKF3146V - Orkunýtni - 2

NAFN BIRGJA

AUÐKENNI LÍKANS

Stærðir

Elvita CKF3146V - Stærðir - 1

Þetta tæki uppfyllir viðeigandi ESB tilskipanir og reglugerðir og ber á sér CE-merkið. Ef það fylgir ekki tækinu er hægt að fá samræmisyfirlýsingu ESB samkvæmt beiðni.

Nothæfi tækisins hefur verið prófað í samræmi við staðal EN 60335 fyrir kælitæki.

Loftslagsflokkun

Flokkur Tákn Umhverfishitastigssvið
Temprað N +16 °C til +32 °C
Heittemprað ST +16 °C til +38 °C
  • Temprað: Kælitækið er ætlað til notkunar við umhverfishitastig á bilinu 16 °C til 32 °C.
  • Heittemprað: Kælitækið er ætlað til notkunar við umhverfishitastig á bilinu 16 °C til 38 °C.

Geymdu hin mismunandi matvæli í þeim hólfum sem ráðlagt er og við markhitastigið fyrir geymslu matvælanna. Gerðu þetta til að tryggja bestu varðveisluna í sem lengstan tíma og til að koma í veg fyrir matarsóun.

Elvita CKF3146V - Loftslagsflokkun - 1

VARÚÐ!

  • Tveggja stjörnu (**) hólf fyrir frosin matvæli henta fyrir geymslu forfrystra matvæla, til að geyma eða búa til rjómaís og búa til klaka.
  • Einnar stjörnu (*), tveggja stjörnu (**) og þriggja stjörnu (***) hólfin henta ekki til að frysta fersk matvæli.

Elvita CKF3146V - VARÚÐ! - 1

ATHUGADU!

Sumir kæli- og frystiskápar hafa ekki allar þær gerðir hólfa sem taldar eru upp í töflunni að neðan.

Gerð hólfs Markhitastig fyrir geymslu (°C) Viděigandi matvæli
Kæliskápur +2 ~ +8 Egg, eldaður matur, innpakkaðurmatur, ávextir og grænmeti,mjólkurvörur, kökur, drykkir og önnurmatvæli sem henta ekki til frystingar.
(***)*-Frystiskápur ≤ -18 Sjávarafurðir (fiskur, rækja, skelfiskur),ferskvatnsafurðir og kjötvara(ráðlagður geymslutími 3 mánuðir,bragð versnar og næringarinnihaldminnkar eftir pví sem geymslutíminn er lengri), hentar til að frysta fersk matvæli.
***-Frystiskápur ≤ -18 Sjávarafurðir (fiskur, rækja, skelfiskur),ferskvatnsafurðir og kjötvara(ráðlagður geymslutími 3 mánuðir,bragð versnar og næringarinnihaldminnkar eftir pví sem geymslutíminn er lengri), hentar ekki til að frysta fersk matvæli.
**-Frystiskápur ≤ -12 Sjávarafurðir (fiskur, rækja, skelfiskur),ferskvatnsafurðir og kjötvara(ráðlagður geymslutími 2 mánuðir,bragð versnar og næringarinnihaldminnkar eftir pví sem geymslutíminn er lengri), hentar ekki til að frysta fersk matvæli.
*-Frystiskápur≤ -6Sjávarafurðir (fiskur, rækja, skelfiskur),ferskvatnsafurðir og kjötvara(ráðlagður geymslutími 1 mánuður,bragð versnar og næringarinnihaldminnkar eftir pví sem geymslutíminn er lengri), hentar ekki til að frysta fersk matvæli.
0 stjörnur-6 ~ 0Ferskt svínakjöt, nautakjöt, fiskur,kjúklingur, sum innpökkuð unnin matvæli o.s.frv. (Ráðlagt að borðainnan sama dags, helst ekki síðar eneftir 3 daga). Unnin matvæli hjúpuð aðhluta til (matvæli sem ekki má frysta).
Gerð hólfs Markhitastig fyrir geymslu (°C) Viðeigandi matvæli
Kæling -2 ~ +3 Ferskt/frosið svínakjöt, nautakjöt,kjúklingur, ferskvatnsafurðir o.s.frv.(7 dagar undir 0 °C og yfir 0 °C, mælt með að sé neytt innan pess dags, helst ekki síðar en eftir 2 daga).Sjávarafurðir (undir 0 °C í 15 daga, ekki mælt með að geyma við yfir 0 °C)
Fersk matvæli 0 ~ +4 Ferskt svínakjöt, nautakjöt, fiskur,kjúklingur, eldaður matur o.s.frv.(Ráðlagt að borða innan sama dags, helst ekki síðar en eftir 3 daga)
Vín +5 ~ +20 Rauðvín, hvítvín, freyðivín o.s.frv.
Efnisyfirlit Smelltu á titil til að fá aðgang að honum
Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : Elvita

Líkan : CKF3146V

Flokkur : Kælir