UTRUSTA 702.272.36 - Poubelle IKEA - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis UTRUSTA 702.272.36 IKEA á PDF sniði.
Spurningar notenda um UTRUSTA 702.272.36 IKEA
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Poubelle á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína UTRUSTA 702.272.36 - IKEA og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. UTRUSTA 702.272.36 vörumerkisins IKEA.
NOTENDAHANDBÓK UTRUSTA 702.272.36 IKEA
„VIDVÖRUN“ táknar hættu sem gæti valdið dauða eða alvarlegum meiðslum ef varúðarráðstöfunum er ekki fylgt eftir.

„ATHUGADU“ táknar að um ræðir upplýsingar sem þarf að fylgja.
Öryggi
UTRUSTA er í samræmi við gildandi öryggisstaðla. Engu að síður er viss notkunarhætta fólgin í því að fylgja ekki leiðbeiningunum í þessum fylgiseðli. Vinsamlega hafðu í huga að IKEA er ekki ábyrgt fyrir tilfallandi tjóni eða tjóni sem kemur í kjölfar þess að leiðbeiningum er ekki fylgt.
Almennt

VIDVÖRUN
- Tækið má aðeins vera tengt við aflgjafa sem samsvarar tegund og vinnslutíðni sem er á skráningablaðinu (sjá afgjafi).
- Innstungan og aflgjafinn þurfa að vera aðgengileg.
- Hvorki aflgjafinn né snúrur mega komast í snertingu við færanlega hluta.
- Það þarf að lofta vel um vöruna svo aflgjafinn ofhitni ekki, minnst 30 mm bil.
- Ekki hylja aflgjafann með handklæði eða öðru þar sem það getur valdið ofhitun.
- Börn frá 8 ára aldri og fólk með skert skyn eða skerta líkamlega- eða andlega getu eða vanþekkingu og -reynslu getur notað þetta tæki ef það er undir eftirliti eða hefur fengið leiðbeiningar um hvernig á að nota tækið á öruggan hátt og að það skilji hætturnar sem því fylgir.
- Börn mega ekki leika sér með tækið.
- Börn eiga ekki að sjá um þrif og viðhald nema undir eftirliti.
- Japan: Fólk sem þarfnast aðstoðar (þar með talin börn) ættu ekki að nota þetta tæki nema það hafi fengið leiðsögn um notkun þess hjá einstaklingi sem tekur ábyrgð á öryggi viðkomandi.
Fyrirhuguð notkun
UTRUSTA styður við opnun skúffa og má aðeins nota í eftirfarandi aðstæðum:
- í þurrum, lokuðum herbergjum.
- Með útdraganlegum búnaði innan leyfilegra tækniforskrifta.
- Húsgagnið þarf að vera veggfest þannig að það velti ekki.
IKEA ber ekki ábyrgð á neinni annarri notkun.
Notkun

ATHUGIÐ
Ótímabært slit á UTRUSTA vegna rangrar notkunar.
- Ekki ýta/toga með afli gegn hreyfistefnu þegar þú opnar skúffuna.
- Gakktu úr skugga um að fjarlægðardemparinn sé á framhliðinni.
- Til að tryggja að skúffurnar opnist ekki óvart mælum við með að tengja aflgjafann við tengil með rofa.
Breytingar á vöru og varahlutir

VIÐVÖRUN
- Breytingar á vöru og varahlutir sem ekki eru samþykktir af framleiðanda hafa áhrif á öryggi og virkni UTRUSTA og eru því ekki leyfðir.
- Ekki er heimilt að breyta vöru sem viðskiptavinur fær í hendurnar.
- Notaðu aðeins upprunalega varahluti.
Börn

VIÐVÖRUN
Opnun skúffa getur valdið börnum skaða.
Börn þurfa að vera undir ströngu eftirliti í herberginu svo þau leiki sér ekki með búnaðinn.
Til að tryggja að UTRUSTA fari ekki óvart í gang þarf að slökkva á aflgjafa.
Umhirða og þrif á skáp

VIÐVÖRUN
Hætta á raflosti ef vökvi berst í aflgjafann.
- Slökktu á innstungunni sem er tengd við aflgjafann áður en þú þrífur framhliðina.
- Taktu aflgjafann úr sambandi áður en þú þrífur drifbúnaðinn og/eða aflgjafann. • Gættu þess að ekkert vatn eða sterkt hreinsiefni komist í snertingu við drifbúnaðinn eða aflgjafann - notaðu rakan klút.
- Opnaðu aldrei aflgjafa eða drifbúnað. Allar skemmdir á snúrum þarf að koma í hendur fagmanna og láta laga.
- Leitaðu reglulega eftir skemmdum eða sliti á tækinu.
- Ef einhver merki eru um að tækið hafi verið notað á rangan hátt eða að það virki ekki skaltu hafa samband við seljanda/birgi fyrir nánari upplýsingar.
BÚNAÐUR
Vöruyfirlit

- Festing
- Drifbúnaður
- Ferðavörn
- Vörn gegn vatnsleka
- Aflgjafi ásamt snúru
- Samsetningarbúnaður
- Fjarlægðardempari
Rafknúin opnun

Þegar togað er í eða ýtt á framhliðina og/eða hölduna á skúffunni (A) skýst útspyrnandi handfang á drifbúnaðinum fram og opnar skúffuna örlítið.
Hallavörn

Rafknúin opnun virkjast aðeins með snertingu eða togi. Skúffan opnast til dæmis ekki ef einhver hallar sér að henni.
LED ljós gefur til kynna hvort aflgjafinn sé í notkunarham.

- LED 1 fyrir notkunarham.
UTRUSTA drifbúnaður fjarlægður

| Vandamál Líklegar skýringar Lausn | ||
| UTRUSTA virkar ekki pegar ég toga út eða ïti inn. | Aflgjafi er ekki tengdur rafmagni. Stingdu aflgjafanum í samband. | |
| Truflun hjá aflgjafa Athugaðu aflrofa/rafmagnskassa. | ||
| Aflgjafi í ólagi.Snúrur í ólagi. | Skiptu út aflgjafa. | |
| Skúffa er yfirfull. Opnaðu skúffuna handvirkt. | ||
| Drifbúnaður er í ólagi. Skiptu um drifbúnað. | ||
| UTRUSTA virkar aðeins pegar ég toga, ekki pegar ég ïti. | Fyrirstaða á braut. Fjarlægðu fyrirstoðuna. | |
| Fjarlægðardempara vantar eða í ólagi. | Festu eða skiptu um fjarlægðardempara. | |
Tæknilegar upplýsingar
Má aðeins nota í þurrum, aflokuðum rýmum.
Málspenna: 100-240 V AC / 50-60 Hz
Málstraumur: 2,0 A
Orkunotkun í biðstöðu: ≤ 0,15 W (lokuð framhlið)
Virkni: S3 5% (hámark 10 hreyfingar/10 mín.)
Prýstingur hljóðstyrks: ≤ 70 dB(A)
Flutningar/geymsla: -30 til +70 °C / 0 til 90 % RH
Notkun: 0 til +40°C / 5 til 80%
RH óþjappað Hámarkshæð yfir sjávarmáli: 2000 m (við 25°C umhverfishita)
Verndarflokkur: IP20
Förgun raftækja og rafeindatækja:
Ekki má farga raftækjum og rafeindatækjum með heimilisrusli að endingartíma loknum. Leitaðu til yfirvalda til að nálgast upplýsingar um hvert þú átt að snúa þér. UTRUSTA uppfyllir kröfur WEEE tilskipunar 2012/19/EU. Rafmagns- og rafeindatæki eru aðskilin til að hægt sé að nota aftur gömul tæki eða endurvinna þau, og endurnýta hráefnið. Það er gert til að koma í veg fyrir að skaðleg efni sem eru hugsanlega í tækinu skaði umhverfi og heilsu þegar því er fargað. Í flestum tilfellum þarf ekki að farga öllu tækinu samkvæmt WEEE viðmiðunum, en aðeins þeim hluta sem er búinn rafmagnsíhlutum. Vinsamlegast lestu leiðbeiningarnar fyrir nánari upplýsingar. Þú finnur viðurkennda móttökuaðila raftækja á þínu svæði. Nánari upplýsingar á IKEA vefsíðunni.
EINFÖLDUÐ SAMRÆMISYFIRLÝSING EU Hér með lýsir IKEA yfir að UTRUSTA er í samræmi við tilskipanir 2006/42/EC, 2014/30/EU og 2011/65/EU.
Allur textinn sem varðar EU samræmisyfirlýsingu er tiltækur á IKEA vefsíðunni.
Reglufylgni
ATHUGADU: Þetta tæki hefur verið prófað og reynst innan marka fyrir stafræn tæki í flokki B, í samræmi við lið 15 í reglum FCC (eftirlitsnefnd alríkisfjarskipta í Bandaríkjunum).
Þessar kröfur eru gerðar til þess að koma í veg fyrir skaðlegar truflanir við uppsetningu í heimahúsum. Þetta tæki býr til, notar og getur gefið frá sér fjarskiptatíðniorku og ef það hefur ekki verið sett upp eða notað samkvæmt leiðbeiningum gæti það valdið skaðlegri truflun í þráðlausum fjarskiptakerfum.
Hins vegar er ekki hægt að tryggja að truflanir verði ekki við einstaka uppsetningu. Ef tækið hefur truflandi áhrif á útvarps- eða sjónvarpsmóttöku, sem hægt er að sannreyna með því að slökkva og kveikja á tækinu, er notandinn hvattur til að reyna að koma í veg fyrir frekari truflanir með því að prófa eina eða fleiri eftirfarandi aðgerða:
Snúa eða færa móttökuloftnetið.
Auka bilið milli tækisins og móttökubúnaðarins.
Tengja tækið við úttak á annarri rás en þeirri sem móttökubúnaðurinn er tengdur við.
Hafðu samband við söluaðila eða reyndan útvarps- eða sjónvarpstæknimann til að fá hjálp.
EAC
Samræmisyfirlýsing birgja
47 CFR § 2.1077 Samræmisupplýsingar
Einkvæmt auðkenni
Vörutegund: Vaskur
Ábyrgðaraðili – tengiliður í Bandaríkjunum
Þetta tæki er í samræmi við 15. hluta FCC reglna (Eftirlitsnefnd alríkisfjarskipta í Bandaríkjunum). Notkun er háð eftirfarandi tveimur skilyrðum:
(1) Þetta tæki má ekki valda skaðlegri truflun og
(2) þetta tæki verður að taka við öllum truflunum sem því gæti borist, m.a. truflunum sem gætu valdið óæskilegri virkni.
