CKF2145V - Congélateur Elvita - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis CKF2145V Elvita á PDF sniði.
Spurningar notenda um CKF2145V Elvita
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Congélateur á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína CKF2145V - Elvita og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. CKF2145V vörumerkisins Elvita.
NOTENDAHANDBÓK CKF2145V Elvita
Lestu notkunarleiðbeiningarnar vandlega áður en varan er tekin í notkun. Geymdu notandaleiðbeiningarnar til uppflettinga síðar.

Mikilvægt við notkun....34
Eftirfarandi ástand er ekki galli 35
Bilanagreining....36
Langt hlé milli notkunar....36
Endurvinnsla efnis ....37
Tæknilegar upplýsingar....37
TIL HAMINGJU MÉÐ NÝJA ELVITA ÍS-/FRYSTISKÁPINN!
Lestu notkunarleiðbeiningarnar vandlega.
Þetta tæki er hannað til heimilisnotkunar.
VIÐVÖRUN!
Umsjón skal höfð með börnum til að þau leiki sér ekki að tækinu.
Þetta tæki verður að tengja við jarðtengda innstungu.
Öryggisleiðbeiningar
- Áður en þú tengir ís-/frystiskápinn við rafmagnsnetið, skaltu kanna hvort upplýsingar á málgildi passi við rafmagnsnetið. Það á að vera hægt að tengja klóna beint í innstunguna. Millistykki gæti leitt til ofhitnunar.
- Komdu í veg fyrir að vatn skvettist á ís-/frystiskápinn. Slíkt getur leitt til truflana eða rafstuðs.
- Ef gas lekur út úr geymi skaltu ekki setja klóna í né úr innstungu. Slíkt getur valdið neista eða eldsupptökum.
- Umsjón skal höfð með börnum til að þau leiki sér ekki að tækinu.
- Í þágu öryggis skal skipta um rafmagnssnúru ef hún er skemmd og skal fulltrúi framleiðandans eða álíka viðurkenndur aðili sjá um það.
- Haltu loftræstiopum í húsi tækisins ávallt opnum og lausum við fyrirstöður.
- Ekki nota nein vélknúin tæki eða aðrar leiðir til að hraða fyrir afþíðingu, annað en það sem framleiðandinn ráðleggur að nota.
- Skemmið ekki kælikerfið.
- Ekki nota rafmagnsverkfæri innan í tækinu, nema þar sem mælt er með því af framleiðanda.
Mikilvægt
- Forðastu að opna hurðina of oft, sérstaklega þegar rakt og hlýtt er í veðri. Skildu hurðina eftir opna í eins stuttan tíma og mögulegt er.
- Kannaðu reglulega hvort tækið fái nægilegt loftflæði (þ.e.a.s. hvort nægilegt loftflæði sé á bak við tækið).
- Fyrir ísskápa og frystiskápa í venjulegu hitastigi, skaltu stilla hitastigsstýringuna á miðjustöðu.
- Áður en þú fyllir tækið af matvælum, skaltu vera viss um að þau hafi kólnað niður í stofuhita.
- Ís- og hrímlög auka við orkunotkun. Afþíddu tækið ef klakalag er orðið 3–5 mm að þykkt.
- Ef tækið er með ytri þétti á bakhlið, skal ávallt halda þéttinum lausum við ryk og önnur óhreinindi.
- Fylgdu ávallt leiðbeiningum í köflum um staðsetningu á tækinu og leiðir til orkusparnaðar. Ef þú gerir það ekki mun orkunotkunin verða mun hærri en nauðsynlegt er.
Uppsetning
- Þegar þú færir tækið skaltu ekki halla því meira en 45° frá uppréttri stöðu. Ekki taka af krafti á íhlutum eins og þétti og hurð. Slíkt gæti aflagað íhlutina og haft neikvæð áhrif á afköst ís-/frystiskápsins.
- Til að ís-/frystiskápurinn geti starfað rétt, skaltu tryggja að nægilegt rými sé með öllum hliðum þess.
- Ekki setja ís-/frystiskápinn á staði með háu rakastigi. Slíkt getur skemmt tækið, orðið rakt og ryðgað.
Viðvörun: Þetta tæki verður að tengja við jarðtengda innstungu.
Notkun
- Þegar þú notar tækið í fyrsta skiptið skaltu leyfa því að vera í gangi tómu þangað til lágmarkshitastiginu er náð og þjappan hættir að vinna af sjálfu sér. Venjulega tekur slíkt 2 til 3 klst. Næst skaltu stilla hitastigsstýringuna á óskað hitastig og setja matvæli í ísskápinn.
- Hitastigið í ís-/frystiskápnum er hægt að stilla með hitastigsstýringunni. Venjulega er hæfilegt að miðjustilla hitastigsstýringuna.
- Afpíddu frystihólfið um leið og hrímlagið í því er orðið 3–4 mm þykkt. Við afpíðingu skaltu fjarlægja allan mat og stilla hitastigsstýringuna á „OFF“. Til að safna leysingavatninu skaltu setja vatnsskúffuna á botn ís-/frystiskápsins. Þegar klakinn er þiðinn, skaltu hella niður leysingavatninu og þurrkaðu frystihólfið að innan. Settu ís-/frystiskápinn í gang aftur með því að snúa hitastigsstýringunni á óskaða stöðu.
Mikilvægt við notkun
- Því fleiri matvæli sem sett eru inn í og því lengur sem hurðin er skilin eftir opin, því meiri verður orkunotkun ís-/frystiskápsins. Mikil hleðsla getur leitt til bilana.
- Ekki setja bunga, hvassa né hluti sem hættir til að ryðga, á hillurnar.
- Ef klóin er tekin úr sambandi skaltu bíða í að minnsta kosti 10 mínútur áður en þú setur hana aftur í samband.
- Ekki setja flöskur sem innihalda vökva í frystihólfið. Þær geta sprungið við frystingu og vökvinn getur skemmt frystihólfið.
- Opnaðu hurðina eins lítið og mögulegt er ef rafmagnslaust verður.
- Við afþíðingu skaltu aldrei nota hvassa né málmhluti til að fjarlægja klaka frá flötum frystihólfsins. Slíkt getur skemmt kælikerfið.
- Ekki snerta matvæli né ílát í frystihólfinu með berum höndum. Þú gætir orðið fyrir frostbruna.
- Áður en þú byrjar að hreinsa ísskápinn, skaltu aftengja klóna frá innstungunni.
- Notaðu volgt vatn og þurrkaðu síðan af með mjúkum klút.
- Þéttingalistarnir verða auðveldlega óhreinir og safna á sig lögum. Þrífðu oft.
Eftirfarandi ástand er ekki galli
• Hljóð sem líkist rennandi vatni. Þetta hljóð er eðlilegt í venjulegri notkun. • Rakabétting að utan. Rakabétting að utan er eðlileg þegar rakastig er hátt. Þurrkaðu einfaldlega rakann af. - Þegar ís-/frystiskápurinn hefur verið settur í gang tekur það ákveðinn tíma fyrir ísskápshlutann og frystihólfið að ná settu hitastigi. Ef ísskápshólfið og frystihólfið voru heit þegar ís-/frystiskápurinn var settur í gang, þá taka þau lengri tíma til að ná settu hitastigi. Ef umhverfishitastigið er hátt þá tekur það lengri tíma fyrir ísskápshólfið og frystihólfið að ná settu hitastigi. • Yfirborð bjöppunnar verður heitt: Yfirborð bjöppunnar verður heitt við venjulega notkun. Ekki snerta hana.
Bilanagreining
Ef þú verður var við galla skaltu kanna og laga samkvæmt meðfylgjandi töflu.
| Einkenni Kanna | |
| Engin kæling/frysting | Er rafmagnsgjafi til ís-/frystiskápsins virkur?Er rafmagnsgjafi eðlilegur?Hefur innstungan ofhitnað?Hefur klóin verið rétt tengd? |
| Ófullnægjandi kæling/frysting | Er hitastigsstýring rétt stillt?Er nægilegt laust rými kringum ís-/frystiskápinn?Hefur hurðin verið opnuð of oft eða skilin of lengi eftir opin?Fær ís-/frystiskápurinn beint á sig sólargeisla eða er hann staðsettur nálægt hitagjöfum?Er of mikill matur í ís-/frystiskápnum?Er maturinn of heitur? |
| Matur frýs íísskápshlutanum | Er hitastigsstýring rétt stillt?Er maturinn of þettpakkaður? |
| Óvenjuleg hljóð | Stendur ís-/frystiskápurinn rétt á traustum grunni?Hefur ís-/frystiskápurinn fengið á sig högg frá öðrum hlutum? |
| Þjappan stöðvast ekki af sjálfu sér | Er of mikill matur í ís-/frystiskápnum?Hefur hurðin verið opnuð of oft eða skilin of lengi eftir opin? |
Ef engin ofangreindra þátta virðist vera orsökin að vandamálinu, skaltu hafa samband við þjónustuver okkar til að fá tafarlausa hjálp.
Langt hlé milli notkunar
Ef ekki á að nota ís-/frystiskápinn í lengri tíma, skaltu gera eftirfarandi:
• Taktu rafklóna úr innstungunni. - Þrífðu og þurrkaðu að innan samkvæmt leiðbeiningunum í kaflanum „Þrif á ís-/frystiskápnum“. - Skildu hurðina eftir opna til að koma í veg fyrir að ólykt myndist meðan að ísskápurinn er ekki í notkun.
Endurvinnsla efnis
Fargaðu umbúðum í samræmi við staðbundnar reglugerðir.
Ákveðið hrakvirði er á eldri tækjum. Rétt og umhverfisvæn förgun tryggir að verðmæt hráefni geti verið endurunnin og notuð á ný.
Kæliefnið sem er notað í kælikerfi tækisins þarfnast sérstakrar meðhöndlunar sem og einnig einangrunarefnin. Áður en tækinu er fargað skaltu vera viss um að engar pípur á bakhlið tækisins séu skemmdar. Yfirvöld á staðnum geta gefið upp gildandi upplýsingar um valkosti á förgun á úr sér gengnum tækjum og umbúðum.

Gæðatrygging gildir fyrir neytandann