IKEA PARASOLL 805.043.08 - Système d'alarme

PARASOLL 805.043.08 - Système d'alarme IKEA - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis PARASOLL 805.043.08 IKEA á PDF sniði.

📄 68 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice IKEA PARASOLL 805.043.08 - page 17
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um PARASOLL 805.043.08 IKEA

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Tölvupósturinn er áfram einkamál: hann er aðeins notaður til að tilkynna þér ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Système d'alarme á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína PARASOLL 805.043.08 - IKEA og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. PARASOLL 805.043.08 vörumerkisins IKEA.

NOTENDAHANDBÓK PARASOLL 805.043.08 IKEA

PARASOLL hurða/gluggaskynjari er með segulrönd sem nemur pegar hurð, gluggi eða skápur er opnaður.

Pú getur tengt hann við snjalllýsingu til að lýsa upp rými pegar hurð/gluggi/skápur er opnaður eða notað DIRIGERA gátt og IKEA Home smart app til að fá tilkynningar ef hurð eða gluggi opnast pegar pú ert ekki heima.

  1. Opnaðu bakhliðina á skynjaranum, komdu fyrir 1 x AAA rafhlöðu og finndu pörunarhnappinn.
  2. Gættu pess að snjallljósaperan sem þú vilt tengja sé uppsett og að kveikt sé á henni.
  3. Haltu skynjaranum innan 5 cm frá ljósaperunni sem pú vilt tengjast.

IKEA PARASOLL 805.043.08 - 1

  1. Ýttu og haltu niðri pörunarhnappinum á skynjaranum í minnst 10 sekúndur. Rautt LED ljós á skynjaranum leiftrar og snjallljósaperan blikkar tvisvar pegar pörun er lokið.
  2. Notaðu samsetningarleiðbeiningar til að setja skynjarann upp á æskilegan stað og prófaðu hann með því að opna og loka.

Fyrstu skref með DIRIGERA gátt

Opnaðu bakhliðina á skynjaranum, komdu fyrir 1 x AAA rafhlöðu og lokaðu henni aftur. Notaðu samsetningarleiðbeiningar pegar pú setur upp skynjarann og sæktu síðan IKEA Home smart appið og fylgdu leiðbeiningum í appinu.

IKEA Home smart app

Fyrir Apple tæki: Náðu í appið í App Store Fyrir Android tæki: Náðu í appið í Google Play store

Athugaðu: Náðu í Home smart 1 appið ef þú ert með TRÅDFRI gátt.

Lærðu inn á tækið pitt

Pú getur tengt skynjarann við snjalllýsingu til að lýsa upp rými ßegar segulröndin á skynaranum nemur hurð eða glugga opnast. Fullkomið til að lýsa upp svæði með slæmu aðgegni á borð við kjallara og geymslur.

Tengja fleiri snjallljósaperur

  1. Opnaðu bakhliðina á skynjaranum og finndu pörunarhnappinn.
  2. Gættu pess að snjallljósaperan sem þú vilt tengja sé uppsett og að kveikt sé á henni.
  3. Haltu fjarstýringunni innan 5 cm frá snjallperunni og ýttu á pörunarhnappinn í minnst 10 sekúndur. Rautt ljós á skynjaranum leiftrar og snjallperan blikkar hægt begar pörun er lokið.

Gott að vita

  • Pú getur tengt allt að tíu snjallperur við einn skynjara.
  • Skynjarinn er með segla á hvorum enda og því má hann snúa á báða vegu. Gættu þess að skynjarinn og segulröndin séu í minnst 5 mm fjarlægð frá hvort öðru.
  • LED Ijós blikkar tvisvar pegar skynjarinn nemur að hurð eða gluggi opnast og blikkar einu sinni pegar hurð eða glugga er lokað aftur.
  • Skynjarinn getur verið utandyra ef umhverfið er í skjóli fyrir mikilli rigningu.

Umhirða rafhlöðu

Pegar ßað er lítið eftir af rafhlöðunni blikkar rautt LED ljós prisvar. Ef þú ert með DIRIGERA gátt og IKEA Home smart appið getur þú séð stöðu rafhlöðu og fengið tilkynningu begar rafhlaðan er að tæmast.

Skipt um rafhlöðu

Opnaðu rafhlöðulokið og skiptu rafhlöðunni út með nýrri HR03 AAA rafhlöðu.

Ráðlagðar rafhlöður:

1 x IKEA LADDA 750 (AAA/HR03, 1.2V, 750mAh, Ni-MH) (Fylgir ekki með)

Endurstilla á grunnstillingu

Yttu snöggt á pörunarhnappinn 4 sinnum innan 5 mínútna til að endurstilla og fjarlægja allar tengdar vörur. LED ljós á skynjaranum blikkar og lýsir stöðugt begar endurstillingu er lokið.

VIDVÖRUN!

Hætta á sprengingu ef einni eða báðum rafhlöðum er skipt út fyrir ranga tegund. Fargaðu notuðum rafhlöðum samkvæmt leiðbeiningum.

MIKILVÆGT!

  • Skynjarinn er einungis ætlaður til notkunar innandyra við hitastig á bilinu 0°C til 45°C.
  • Ekki skilja skynjarann eftir par sem hann kemst í snertingu við beint sólarljós eða nálægt hitagjöfum, par sem hann gæti ofhitnað.
  • Drægni á milli skynjara og móttökubúnaðar er mælt í opnu rými.
  • Mismunandi byggingarefni og staðsetning tækja geta haft áhrif á drægni práðlausrar tengingar.
  • Skynjarinn virkar ekki ef hann er settur á segulmagnað málmyfirborð.

MEĐHÖNDLUN

Til að þrífa vöruna skaltu nota mjúkan, rakan klút og annan mjúkan, þurran klút til að þurrka. Ekki nota hrjúf hreinsiefni eða leysiefni við þrif þar sem þau gætu skemmt vöruna.

Tæknilegar upplýsingar

Módel: PARASOLL hurða-/gluggaskynjari

Tegund: E2013

Inntak: 1.2V, 1 x AAA/HR03 LADDA rafhlađa

Táknið með mynd af ruslatunnu með krossi yfir þýðir að ekki má farga vörunni með venjulegu heimilissorpi. Vörunni þarf að skila í endurvinnslu eins og lög gera ráð fyrir á hverjum stað fyrir sig. Með því að henda slíkum vörum ekki með venjulegu heimilissorpi hjálpar þú til við að draga úr því magni af úrgangi sem þarf að brenna eða nota sem landfyllingu og lágmarkar möguleg neikvæð áhrif á heilsu fólks og umhverfið. Pú færð nánari upplýsingar í IKEA versluninni.

Norsk

Kom i gang

PARASOLL dør-/vindussensor har en magnetstripe som registrerer når ei dør, et vindu eller et skap åpnes.

Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : IKEA

Líkan : PARASOLL 805.043.08

Flokkur : Système d'alarme