VINDSTYRKA 004.982.31 - Purificateur d'air IKEA - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis VINDSTYRKA 004.982.31 IKEA á PDF sniði.
Spurningar notenda um VINDSTYRKA 004.982.31 IKEA
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Purificateur d'air á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína VINDSTYRKA 004.982.31 - IKEA og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. VINDSTYRKA 004.982.31 vörumerkisins IKEA.
NOTENDAHANDBÓK VINDSTYRKA 004.982.31 IKEA
Frístandandi eða parað við annað tæki
VINDSTYRKA-loftgæðaskynjara er hægt að nota frístandandi en einnig er hægt að tengja hann við STARKVIND-lofthreinsitæki og/eða DIRIGERA-miðstöð fyrir snjallvörur.

VINDSTYRKA tengt við STARKVIND-lofthreinsitæki
Haltu pörunartökkunum á VINDSTYRKA og STARKVIND lengi inni á sama tíma til að tengja tækin. Sjá blaðsíður 6-7.
Pegar tenging er komin á ætti pörunartáknið að hætta að blikka á skjánum.
Ráðlagður aflgjafi:
5.0 VDC, 1.0 A (fylgir ekki)

VINDSTYRKA tengt við DIRIGERA-miðstöð
pví að tengja VINDSTYRKA við DIRIGERA-miðstöð geturðu séð loftgæði herbergisins í IKEA Home-snjallforritinu.
Ef pú ert með IOS-tæki:
Farðu í App Store og sæktu IKEA Home-snjallforritið. Forritið sýnir pér hvernig á að tengja VINDSTYRKA við DIRIGERA-miðstöð.
Ef pú ert með Android-tæki:
Farðu í Google Play og sæktu IKEA Home-snjallforritið. Forritið sýnir þér hvernig á að tengja VINDSTYRKA við DIRIGERA-miðstöð.

Pörun: Tengir VINDSTYRKA-loftgæðaskynjara við DIRIGERA-miðstöð og STARKVIND-lofthreinsitæki.
- Pegar pörunarstillingin er virkjuð ætti pörunartáknið á skjánum að blikka par til VINDSTYRKA er tengt við lofthreinsitækið eða miðstöðina.
- Pegar VINDSTYRKA er tengt við eitt lofthreinsitæki ætti eftirfarandi tákn Þð vera virkt á skjánum.
- Pegar VINDSTYRKA er tengt við fleiri en eitt lofthreinsitæki ætti eftirfarandi tákn ðð vera virkt á skjánum.
- Pegar VINDSTYRKA er tengt við DIRIGERA-miðstöð ætti aðeins pörunartáknið að vera sýnilegt á skjánum.
Skjár á VINDSTYRKA


Sýnir tengd lofthreinsitæki.
PM2.5 Sýnir stig PM2.5 agna. 27. PM2.5 eru litlar agnir sem hægt er að anda að sér, agnir sem eru 2,5 míkrómetrar að hámarki. Grænt: 0-35 μg/m³, Gult: 35-120 μg/m³, Rautt: >120 μg/m³.
- c—Hitastig í herbergi
32%—Hlutfallslegt rakastig í herbergi
Hitastig og raki getur haft áhrif á pægindi og vellíðan innanhúss.

Gefur til kynna vaxandi, stöðugt eða minnkandi stig TVOC.
TVOC stendur fyrir „samtala rokgjarnra, lífrænna efnasambanda“ (VOC).
Stillingarhamur
Að ýta lengi á hamhnappinn kemur honum í stillingarham.
Birtustig

Blikkandi tákn þýðir að hægt er að stilla birtustigið. Ýttu á hamhnappinn til að velja á milli stigs 1, 2 og 3.
Að ýta lengi á hamhnappinn staðfestir stillinguna og þú kemst í stillingar fyrir hitastig.
Slekkur sjálfvirkt á sér: Eftir eina mínútu fer birtustig skjásins aftur í sjálfgefna stillingu (stig 2).
Hitastig

Blikkandi tákn þýðir að hægt er að stilla hitastigið. Ýttu á hamhnappinn til að skipta á milli Celsíus og Fahrenheit.
Að ýta lengi á hamhnappinn staðfestir stillinguna og pú kemst aftur í stillingarhaminn.
Mikilvægt!
- Varan er eingöngu ætluð til heimilisnota við eðlileg notkunarskilyrði.
- Ekki loka fyrir loftinntök og úttak að aftan.
- Ekki skilja vöruna eftir undir beinu sólarljósi eða nálægt hitagjöfum par sem pað getur valdið ofhitnun.
- Veggúttakið skal vera nálægt búnaðinum og vel aðgengilegt.
- Ekki geyma vöruna nálægt bleytu, raka eða miklu ryki þar sem það getur valdið skemmdum.
- Hafa ætti eftirlit með börnum til að tryggja að þau leiki sér ekki með tækið.
- Tækið mælir ekki kolsýring (CO) eða radon (Rn). Ekki er hægt að nota vöruna sem öryggisbúnað gegn brennsluferli og hættulegum efnum.
- Gættu pess að fara ekki yfir þá hámarks USB-snúrulengd sem mælt er með fyrir tækið.
- Notaðu aldrei skemmda eða gallaða USB snúru par sem það getur skemmt eða skaðað straumbreytinn eða vöruna þína.
- Taktu tækið úr sambandi áður en það er þrifið og þegar það er ekki í notkun.
Geymdu pessar leiðbeiningar til síðari nota.
Verksmiðjustilling
Yttu fljótt á pörunarhnappinn fjórum sinnum til að framkvæma endurstillingu frá verksmiðju.
Leiðbeiningar um umhirðu
Purrkaðu af með rökum klút og litlu magni af mildu hreinsiefni. Notaðu annan mjúkan og Þurran klút til að Þurrka.
Athugið!
Notaðu aldrei slípiefni eða leysiefni par sem slíkt getur skemmt vöruna.
Viðhald vörunnar
Reynið aldrei sjálf að gera við tækið þar sem það getur útsett ykkur fyrir hættulega rafspennu og aðra hættu.
Tæknilýsing
Gerð: VINDSTYRKA-loftgæðaskynjari
Tegund: E2112
Inntak: 5.0 VDC, 1.0 Á, 0,5 W, USB-C
Greiningarsvið agna: 0\~1000 μg/m³
Sendisvið: 10 m í opnu rými
Vinnslutíðni: 2400\~2483,5 MHz
Útgangsafl: 8 dBm
Hitastig við notkun: 0 °C til 40 °C.
Rakastig við notkun: 0 til 95% RH
Hámarks USB-snúrulengd: 3,0 m/9'8"
Aðeins til notkunar innanhúss
Táknið með mynd af ruslatunnu með krossi yfir þýðir að ekki má farga vörunni með venjulegu heimilissorpi. Vörunni þarf að skila í endurvinnslu eins og lög gera ráð fyrir á hverjum stað fyrir sig. Með því að henda slíkum vörum ekki með venjulegu heimilissorpi hjálpar þú til við að draga úr því magni af úrgangi sem þarf að brenna eða nota sem landfyllingu og lágmarkar möguleg neikvæð áhrif á heilsu fólks og umhverfið. þú færð nánari upplýsingar í IKEA versluninni.