LM100 - Porte de garage LiftMaster - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis LM100 LiftMaster á PDF sniði.
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Porte de garage á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína LM100 - LiftMaster og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. LM100 vörumerkisins LiftMaster.
NOTENDAHANDBÓK LM100 LiftMaster
- 31 Ljós hurðaopnara p. 9
- 32 Förgun p. 9
- 33 Algengar spurningar p. 9
- -10 Tafla fyrir bilanagreiningu p. 11
- -12 34 Aukabúnaður p. 12
- 35 Tæknilýsing p. 13
- 36 Varahlutir/ábyrgð p. 13
- 37 Samræmisyfirlýsing is 01/13 Almennar öryggisleiðbeiningar Áður en þú hefst handa við uppsetningu: Vinsamlegast lestu notkunarleiðbeiningarnar og sérstaklega varúðarráðstafanirnar. Geymdu handbókina svo hægt sé að fletta upp í henni síðar og til að koma henni áfram til seinni eiganda. Eftirfarandi tákn er að finna fyrir framan leiðbeiningarnar til að forða líkamstjóni eða eignatjóni. Lesið þessar leiðbeiningar gaumgæfilega. Mikilvægar öryggisupplýsingar Sjálfvirka hurðaopnunarkerfið hefur verið prófað og hannað fyrir örugga notkun, en öryggi er aðeins tryggt ef farið er nákvæmlega eftir öryggisleiðbeinin- gunum við uppsetningu og notkun. p. 13
Líkamstjón eða eignatjón
Hætta vegna rafstraums eða spennu
Byrjið á að lesa þessar mikilvægu öryggisupplýsingar VARÚÐ! - Dyrnar skulu vera jafnvægisstilltar. Það verður að gera við hurðir sem ekki hreyfast eða eru fastar. Án jafnvægisstillingar eru bílskúrshurðir, hurðafjaðrir, strengir, diskar, festingar og brautir undir miklu álagi, sem getur orsakað alvarleg meiðsli. Reynið ekki að losa, hreyfa eða lagfæra hurðina, heldur hafið samband við þjónustumiðstöð eða hurðasérfræðing.- Gætið þess að vera ekki með skartgripi, úr eða klæðast víðum fötum við uppsetningu eða viðhald á hurðaopnara.- Fjarlægið alla strengi og keðjur sem tengjast hurðinni áður en hurðaop-narinn er settur upp, til að flækjast ekki í þeim því það getur orsakað alvarlegt líkamstjón.- Við uppsetningu og rafmagnstengingar skulu bygginga- og rafmagn-sreglugerðir virtar. Þessi búnaður uppfyllir verndarflokk 2 og krefst ekki jarðtengingar.- Viðeigandi styrkingar skulu notaðar til að forðast skemmdir á mjög léttum hurðum (eins og úr trefjagleri, áli eða stáli). Til að gera það skal haft samband við framleiðanda hurðarinnar.- Sjálfvirka öryggisbakkkerfið ætti að undirgangast prófun. Bílskúrshurðin VERÐUR að fara til baka við snertingu við 50mm háa hindrun á jörðu. Sé hurðaopnarinn ekki rétt stilltur getur það leitt af sér alvarlegt líkamstjón þegar bílskúrshurð lokast. Endurtakið prófið mánaðarlega og gerið allar nauðsynlegar breytingar.- Ekki má setja þetta kerfi upp á rökum eða blautum svæðum.- Við notkun ætti hliðið aldrei, undir nokkrum kringumstæðum, að stífla almenningsganga.- Til áminningar fyrir alla notendur um örugga notkun, ætti að festa upp varúðarmerkingu til verndar börnum, auk upplýsta veggrofans.Varúðarmer-kingarnar sem vara við hættunni á að festast skulu staðsettar á vel sýnilegum stöðum.- Eftirlit skal haft með börnum til að tryggja að þau leiki sér ekki að búnaðinum.- Ekki er ætlast til að búnaðurinn sé notaður af einstaklingum (þar á meðal börnum) með skerta líkamsgetu, skynfæragetu eða andlega getu eða sem hafa ekki til þess reynslu og/eða þekkingu, nema að þeir séu undir eftirliti einstaklinga sem bera ábyrgð á öryggi þeirra eða hafa hlotið leiðbeiningar um hvernig búnaðurinn skuli notaður.- Allar hindranir / læsingar eru afvirkjaðar til að forðast skemmdir á hurðinni.- Ef nauðsyn krefur, SKAL stjórnbúnaður settur upp þannig að hann sjáist frá hurðinni og þar sem börn ná ekki til. Börnum ætti ekki að leyfast að nota hnappana eða fjarstýringar. Misnotkun á hurðaopnaranum getur leitt til alvarlegra meiðsla.- Hurðaopnarinn skal AÐEINS notaður ef notandinn getur séð allt svæðið umhverfis hurðina og sé þess fullviss að engar hindranir séu til staðar og hurðaopnarinn sé rétt stilltur. Enginn má fara um hurðina á meðan hún hreyfist. Börnum skal ekki leyft að leika sér nálægt hurðinni.- Notið handvirkan sleppibúnað aðeins til að skilja sleðann frá drifinu og – sé það mögulegt – AÐEINS á meðan dyrnar eru lokaðar. Notið rauða handfangið ekki til að ýta hurðinni upp eða draga hana niður.- Áður en nokkrar viðgerðir eru framkvæmdar eða hlífar fjarlægðar, skal taka hurðaopnarann úr sambandi við rafmagnsaflgjafa.- Þessari vöru fylgir straumbreytir með sérstakri snúru. Komi til skemmda VERÐUR að endurnýja hann með upphaflegum straumbreyti og það verður þar til bær tæknimaður að gera.- Notkun neyðarsleppibúnaðar getur leitt til stjórnlausra hreyfinga hurðarin-nar, ef fjaðrirnar eru lélegar eða brotnar eða ef hurðin er ekki í jafnvægi.- Festið sleppihandfang neyðarsleppibúnaðarins í a.m.k. 1,80m hæð. Geymið þessar leiðbeiningar án undantekninga.Tilætluð notkun Búnaðurinn er ætlaður til að opna og loka bílskúrshurðum sem hallast upp á við, eru einingaskiptar og notaðar í einkageiranum. Búnaðurinn er ekki ætlaður til notkunar í atvinnuskyni, heldur einvörðungu til nota fyrir bílskúr- shurðir í einkaeign sem hæfa einu heimili. Öll óviðeigandi notkun á drifinu gæti aukið líkurnar á slysum. Framleiðandinn tekur enga ábyrgð á slíkri notkun. Fylgihlutir Vinsamlegast gakktu úr skugga um að þeir íhlutir sem fylgja séu heilir áður en hafist er handa við uppsetninguna. Athugið: Númeraröðin á aðeins við um samsvarandi liði. Yfirlitsmynd Þessi mynd gefur þér stöðugt heildaryfirlit yfir samsettan búnaðinn á meðan á uppsetningu hans stendur, skref fyrir skref. Yfirlit yfir hluta (drifhaus):
3. Festingar fyrir brautir 2x
4. Poki með fylgihlutum 1x
Yfirlit yfir hluta (braut):
5. Festing fyrir þverbita
Athugið: Myndin sýnir það sem er innifalið í grunngerðinni. Innihald kassans fer eftir gerð vörunnar.
Áður en þú byrjar MIKILVÆGT Hafi bílskúr þinn ekki hliðarinngang, skal neyðarsleppibúnaður settur upp. Þetta gerir handvirka notkun bílskúrshurðarinnar mögulega utan frá þegar rafmagnsleysi verður. Tegundir hurða A. Hurð í einu lagi með láréttri rás einungis. B. Hurð í einu lagi með láréttri og lóðréttri rás – Sérstaks hurðararms (E, Chamberlain Arm™) og Protector System™ er krafist. Hafðu samband við söluaðila þinn. C. Einingaskipt hurð með boginni rás – Sjá 20B – tengið hurðararm. D. Hurð með tjaldþaki – Sérstaks hurðararms (E, Chamberlain Arm™) og Protector System™ krafist. Hafðu samband við söluaðila þinn. E. Chamberlain Arm™ til notkunar með hurðategundum B og D.
is 02/13 Undirbúningur Fyrst skaltu ganga úr skugga um að hurðin sé jafnvægisstillt og ekki sé misvægi á henni. Opnaðu hurðina þína til hálfs og slepptu henni. Hurðin getur nú naumast breytt um stöðu af sjálfsdáðum, heldur verður hún að vera í sömu stöðu þar sem fjaðrirnar halda henni einar og sér.
1. Braut bílskúrshurðarinnar VERÐUR að vera örugglega og tryggilega
tengd við burðarvegginn eða loftið yfir bílskúrshurðinni.
2. Það gæti þurft viðbótarfestingar eða brautir (fylgja ekki með), sé
klæðning, plötur eða álíka á bílskúrsloftinu.
3. Hafi bílskúr þinn ekki hliðarinngang, ætti að setja upp ytri
neyðarsleppibúnað. Verkfæri sem krafist er
6. Öryggisteinn með splitti 1x
Samsetning hurðaopnarans Mikilvægar leiðbeiningar fyrir örugga uppsetningu. Fara skal eftir öllum leiðbeiningum um samsetnin-gu. Röng uppsetning getur valdið alvarlegum meiðslum. Samsetning brautarinnar Brautin er að miklu leyti forsamsett og samanstendur af 1, 2 eða 3 hlu- tum.Sleðinn, átaksstöngin, sleppihandfang, stýrivindan og gluggatrésfestin- gin með tannreimstrekkjaranum eru á framhlutanum (A). Sætið fyrir drif- skaftið og keðjuhjólið eru á afturhlutanum (B). Leggðu fram- og aftur- brautarhlutana saman hvorn af öðrum.
1. Fjarlægðu kapalböndin sem festa reimina.
2. Dragðu í sundur brautarhlutana tvo að fullu svo að það myndist bil fyrir
miðhlutann (C). Brautin er hönnuð þannig að auðvelt sé að bæta við miðhlutanum. Renndu tengistykkjunum þremur (D) yfir samskeytin á brautarhlutunum, upp að merkingunum. Til að festa tengistykkin, skaltu beygja málmþynnueyrun út á við með viðeigandi verkfæri. Samsetningu brautarinnar er lokið. Að herða reimina Reim brautarinnar þar til fjöðrin (1) er þrýstist saman að hálfu. Hún verður að geta gefið eftir við notkun.
Að festa brautina við drifið
1. Gangið úr skugga um hvort tannreimin situr á tannhjólinu.
Ef reimin hefur losnað af við samsetninguna skal slaka á henni, setja hana á og spenna á ný.
2. Snúðu brautinni (1) við og settu opnarann (3) á að fullu með
tannhjólshliðinni (2).
3. Festu brautina á opnarann með festingunum tveimur (4) og og
skrúfunum (5). Valfrjálst: Til að stytta heildarlengdina um 140 mm má snúa opnaranum um 90° og setja hann upp eins og sýnt er á mynd 11. Þetta greiðir fyrir aðgengi og gefur möguleika á stillingum frá hlið. Fjarlægið rofann og setjið hann upp á hina þar til ætluðu festinguna. Fjarlægið gúmmítappann til að þétta úttak fyrir kapal. Haldið svo áfram með skref 3. Þar með er samsetningu hurðaopnarans lokið.
Uppsetning opnarans Miðja bílskúrshurðarinnar Hlífðargleraugu skulu notuð þegar unnið er upp fyrir sig. Allar tiltækar hindranir / læsingar skulu afvirkjaðar til að forðast skemmdir á hurðinni. Til að forðast alvarleg meiðsli, skaltu fjarlægja alla kapla og keðjur sem tengjast hurðinni áður en uppsetning hurðaopnarans fer fram. Hurðaopnarinn skal settur upp í a.m.k. 2,10m hæð yfir jörðu. Fyrst skaltu merkja fyrir miðjulínu hurðarinnar (1). Dragðu línu upp að loft- inu sem byrjar frá þessum punkti. Til að setja upp í lofti, skaltu draga aðra línu að miðju loftsins (2) hornrétt að hurðinni frá þessari línu. Lengd u.þ.b. 2,80m. Burðarbitafestingu komið fyrir Athugið: Festu brautina 50mm að hámarki fyrir ofan efstu brún hurðarinnar. Það fer eftir tegund hurðarinnar, en efstu brún hurðarinnar er lyft um nokkra sentímetra þegar opnað er. A. Veggfesting: Komdu burðarbitafestingu (1) fyrir á miðju lóðréttu miðlínunnar (2); þannig að neðri brún hennar liggi á láréttu línunni. Merktu fyrir öllum götum fyrir burðarbitafestinguna. Boraðu göt sem eru 4,5mm að þvermáli og festu burðarbitafestinguna með tréskrúfum (3). ATHUGIÐ: Sé verið að festa á steypuhellu / burðarbita úr steypu, skal nota meðfylgjandi múrtappa (4) og skrúfur (3). Boraðu göt í múrinn sem eru: 8mm. B. Upphenging í loft: Dragðu lóðrétta línu (2) lengra upp að loftinu og u.þ.b. 200mm eftir loftinu. Festu burðarbitafestinguna (1) á miðju lóðréttu merkingarinnar allt að 150mm frá veggnum. Merktu fyrir öllum götum fyrir burðarbitafestinguna. Boraðu göt sem eru 4,5mm að þvermáli og festu burðarbitafestinguna með tréskrúfum (3). Drifið fest við burðarbitann Það getur verið nauðsynlegt að setja drifið tímabundið hærra, þannig að brautin rekist ekki í fjaðrirnar í einingaskiptum hurðum. Það verður annaðhvort að vera góður stuðningur undir drifinu (stigi) eða því haldið kyrfilega af öðrum einstaklingi. Settu drifhausinn á bílskúrsgólfið undir gluggatrésfestinguna. Lyftu brautin- ni upp þar til götin á festihlutanum og götin á gluggatrésfestingunni liggja saman. Settu skrúfu (1) í götin og festu með ró (2).
1. Opnaðu dyrnar að fullu, settu hurðaopnarann á gólfið (Mynd A).
Leggðu viðarbút / pappa á merkta blettinn (X). Opnarinn verður að vera kyrfilega festur við burðarstoð bílskúrsins. Þrjár dæmigerðar uppsetningar eru sýndar (Mynd B). Þín gæti verið frábrugðin. Hangandi festingar (1) ættu að snúa þannig að þær veiti traus- tan stuðning. Á fínpússuðum loftum, skal festa burðuga málmfestingu (fylgir ekki ) við burðarstoð áður en opnarinn er settur upp.Fyrir steypt loft, skal nota steypufestingar (3) sem fylgja. Á hvorri hlið opnarans skaltu mæla fjarlægðina frá opnaranum að burðarstoðinni (eða loftinu). Sagaðu báða hluta hangandi festingarinnar í þá lengd sem þarf. Næst skaltu fletja út annan enda hvorrar festingar og beygðu eða snúðu þeim þannig að þeir passi við festingahornin. Beygðu ekki við festingagötin. Boraðu 5mm prufugöt í burðarstoðirnar (eða loftið). Festu festingarnar við stoðirnar með tréskrúfum (4). Lyftu opnaranum og festu hann við hangandi festingarnar með skrúfum og róm (5). Gakktu úr skugga um að brautin sé mitt yfir hurðinni. FJARLÆGÐU plötu. Settu hurðina af stað handvirkt. Rekist hurðin í brautina, skal lyfta burðar- bitafestingunni. Taktu eftir láréttu ferli brautarinnar eftir loftinu. Það má stilla fjarlægðina með bilinu milli gatanna. Það má taka af þeim af endum loftafestingarinnar sem skaga fram, ef þörf krefur. Hurðarfestingu komið fyrir Uppsetning á einingaskiptum hurðum eða hurðum í einu lagi: Hurðafestingin (1) hefur mörg festingagöt. Festu hurðafestingu efst á miðju innan á hurðina eins og sýnt er. Merktu fyrir götum og skrúfaðu hurðarfestinguna fasta. Festingarhæðir:
1. Hurð í einu lagi eða einingaskipt hurð með stýribraut:
fjarlægð að efstu brún hurðar 0-100mm.
2. Einingaskipt hurð með tveimur stýribrautum:
fjarlægð að efstu brún hurðar 100-130mm. ATHUGIÐ: Festipunkturinn á hurðinni verður að vera á grindinni eða á stöðugum stað á hurðarplötunni. Gerist þess þörf skal bora í gegn og skrúfa (fylgir ekki) saman eins og sýnt er á Mynd B.
Hurðararmur festur við sleða Beini hurðararmurinn er þegar forsamsettur. Með því að toga í rauða handfangið má losa sleðann frá tannreiminni og þá er hægt að hreyfa hann með handafli. TEKIÐ ÚR LÁS:
1. Þegar þess er kostur ætti hurðin að vera alveg lokuð.
2. Dragið rauða handfangið fyrir neyðaropnun niður á við.
LÆST: Opnunarbúnaðurinn kemur í veg fyrir að sleðinn læsist aftur sjálfkrafa. Ýtið á græna hnappinn á sleðanum og við næstu hurðarhreyfingu mun kerfið læsast á ný. Festu sleppihandfang neyðarsleppibúnaðarins í a.m.k. 1,80 m hæð. Festu gula miðann er varðar sleppibú nað bílskúrshurðaop- narans (límmiði) á snúru hurðarhandfangsins.
Rafmagnstengingar Til að forðast líkamstjón og skemmdir á búnaðinum, skal hurðaop narinn aðeins notaður ef beinar leiðbeiningar um slíkt fyrirfinnast í þessari handbók. Rafmagnstengið verður ávallt að vera vel aðgengilegt svo hægt sé að aftengja við aflgjafa. Uppsetning upplýsta hnappsins eða fjölvirka hurðarstjórntækisins Staðsettu hurðarstjórntækið þar sem bílskúrshurðin er sýnileg, fjarri hurðinni og hurðarvélbúnaði og þar sem börn ná ekki til. Festu a.m.k. 1,5 m yfir gólfinu. Festu til frambúðar aðvörunarlímmiðann á vegginn nærri hurðarstjórntækinu, sem áminning um örugga notkun. Það eru 2 skaut aftan á hurðarstjórntækinu. Losaðu u.þ.b. 6mm af einan- grun af rafmagnsvírnum. Aðskildu vírana nægilega mikið til að tengja hvíta/rauða vírinn við skrúfu á skautunum (RED) og hvíta vírinn við skrúfu á skautunum (WHT). Festu hurðarstjórntækið á bílskúrsvegg innandyra með málmþynnuskrúfum (3) sem fylgja. Boraðu 5mm göt og notaðu gifsfestingar (6) sé uppsett á gifsvegg. Hentugur staður er við hliðina á gönguhurðinni og þar sem börn ná ekki til. Leiddu rafmagnsvírinn upp vegginn og yfir loftið að bílskúrshurðaopnara- num. Notið einangruð hefti (5) til að festa vírinn. Tengdu rafmagnsvírinn við skautin sem. Notkun hurðarstjórntækisins Þrýstu á til að opna eða loka hurðinni. Þrýstu aftur á til að stöðva hurðina á meðan hún hreyfist. Fjölvirkt hurðarstjórntæki: Þrýstu á hvíta ferninginn til að opna eða loka hurðinni. Þrýstu aftur á til að stöðva hurðina á meðan hún hreyfist. Ljósavirkni: Þrýstu á ljóshnappinn til að kveikja eða slökkva á ljósi opnarans. Ef þú kveikir á því og virkjar svo opnarann, er áfram kveikt á ljósinu í 2-1/2 mínútu. Þrýstu aftur á til að slökkva á því fyrr. Ljóshnap- purinn stjórnar ekki opnaraljósunum þegar hurðin er á hreyfingu.
18is 05/13 Uppsetning ljósnema (Valkvæmur aukabúnaður) Eftir uppsetningu og stillingu hurðaopnarans, má setja upp ljósnema. Uppsetningarleiðbeiningarnar fylgja með ljósnemunum. Hinir valkvæmu ljósnemar tryggja að hurðin sé opin, eða haldist opin, ef fólk, sérstaklega ung börn, eru nálægt hurðinni. Ljósnemarnir gera það að verkum að hurð sem er að lokast opnast, eða að opin hurð lokast ekki, ef einstaklingur sem er nálægt hurðinni sker geislann frá skynjaranum. Sérstaklega er mælt með ljósnemunum fyrir fjölskyldur með ung börn.
Að tengja opnarann Tengdu opnarann samkvæmt staðarreglum og reglugerðum við rétt uppsetta jarðtengda vegginnstungu. ATHUGIÐ: Þegar kveikt er á opnaranum, er einnig kveikt á opnaraljósinu í stuttan tíma. Forritun og prófun opnarans Hurðaopnarinn ætti einungis að vera notaður ef notandinn getur séð allt svæðið umhverfis hurðina og sé þess fullviss að engar hindranir séu fyrir og að hurðaopnarinn sé rétt stilltur. Enginn má fara um hurðina á meðan hún hreyfist. Áður en hurðin er fyrst opnuð, skaltu ganga úr skugga um að slökkt sé á allri virkni sem er óþörf. Fjarlægðu öll festingaráhöld og verkfæri frá snúningssvæði hurðarinnar.
Stilling á endastöðum Endastöður eru þær stöður sem hurðin stöðvast í þegar hún er hreyfð upp eða niður. Fylgið eftirfarandi skrefum til að stilla endastöðurnar. Hurðaopnarinn er með tveimur hraðastillingum. Hugbúnaður hurðaop- narans velur sjálfkrafa hentugan hraða þegar kerfið er stillt. Lyftihurðir og heilar hurðir hreyfast sjálfkrafa á litlum hraða, eins og reglur mæla fyrir um. Hurðir sem hafa styttri brautarlengd en 190 cm hreyfast einnig hægt. INNGANGUR: Bílskúrshurðaopnarinn er hannaður með það í huga að allar rafrænar still- ingar séu sem einfaldastar í notkun, til dæmis OPNA/LOKA-stillingin á endastöðunum. Stjórntækin greina sjálfkrafa það afl sem nauðsynlegt er fyrir hurðaopnarann til að fara í endastöður. ATHUGIÐ: Ef einhver hindrun stendur í vegi fyrir opnun hurðarinnar stöðvast hún. Ef einhver hindrun stendur í vegi fyrir lokun hurðarinnar skiptir hún um stefnu og lyftist á ný. Til að fá frekari upplýsingar um bílskúrshurðaopnarann má finna stutt leiðbeiningamyndband á www.liftmaster.eu eða með því að skanna kóðann á bakhlið handbókarinnar með snjallsíma.
1. Fjarlægið lokið, haldið rétthyrnda stillingarhnappinum inni (á milli hnap-
panna UPP og NIÐUR ) þar til UPP-hnappurinn byrjar að blikka.
2. Haldið því næst UPP-hnappinum inni þar til hurðin er komin upp í rétta
endastöðu. ATHUGIÐ: Hægt er að stilla eða leiðrétta endastöðuna mjög nákvæmle- ga með UPP- og NIÐUR-hnöppunum.
3. Þegar hurðin er komin í rétta opna endastöðu skal ýta aftur á rétthyrnda
stillingarhnappinn. Ljósið á hurðaopnaranum blikkar í stutta stund og NIÐUR-hnappurinn byrjar að blikka.
4. Haldið því næst NIÐUR-hnappinum inni þar til hurðin er komin í rétta
lokaða endastöðu. Gætið þess að ekki sé farið of langt og að brautin beygist ekki upp á við. ATHUGIÐ: Hægt er að stilla eða leiðrétta endastöðuna mjög nákvæmle- ga með UPP- og NIÐUR-hnöppunum.
5. Þegar hurðin er komin í rétta lokaða endastöðu skal ýta aftur á rétthyrn-
da stillingarhnappinn. Ljósið á hurðaopnaranum blikkar í stutta stund og UPP-hnappurinn byr jar að blikka á ný.
6. Ýtið á UPP-hnappinn. Þegar hurðin er komin í innstillta opna endastöðu
byrjar NIÐUR-hnappurinn að blikka. ATHUGIÐ: Ef hurðin fer ekki í opnu endastöðuna hefur stillingin mistek- ist. Framkvæmið þá stillinguna upp á nýtt frá 1. skrefi. Ef hurðin fer ekki nógu langt skal lesa „Algengar spurningar“ í 33. hluta.
7. Ýtið á NIÐUR-hnappinn. Hurðin fer þá í innstilltu lokuðu stöðuna.
Stillingunni er þá lokið.Sérútbúnaður (valfrjáls) A. Tengi fyrir dyr í hurð Opnið lokið. Undir því eru hraðtengiklemmur. Tengið bjölluvír við hraðtengiklemmur 4 og 5. B. Tengi fyrir blikkljós Hægt er að setja blikkljósið upp hvar sem er. Tengið viðeigandi kapla við hraðtengiklemmur 6 og 7. D. Aukahurðarstöðvun Lýsing á virkni: Aukastöðvunarstaða hurðarinnar fer eftir gerð hennar og getur hentað til að opna fyrir gangandi fólki, auka loftræstingu eða til að opna fyrir gæludýrum. Hægt er að stilla aukastöðvun inn í hvaða hurðarstöðu sem er innan beggja endastaða bílskúrshurðarinnar. Aukastöðvun gerð virk: ATHUGIÐ: Við allar stillingar þar sem ýta á samtímis á fleiri en einn hnapp verður að gæta þess að ýta hnöppunum vel inn. Ef ýtt hefur verið samtímis á hnappa og aðrir hnappar blikka en leiðbeiningarnar segja til um skal taka opnarann úr sambandi við rafmagn í nokkrar sekúndur. Að því loknu skal byrja aftur á stillingunni frá byrjun.
1. Færið hurðina með fjarstýringunni eða veggeiningunni í þá stöðu
sem óskað er að verði aukastöðvunarstaðan.
2. Veljið hnapp á fjarstýringunni sem ekki er í notkun.
3. Ýtið samtímis á rétthyrnda stillingarhnappinn og UPP-hnappinn í 3
sekúndur og bíðið þar til ljósið á hurðaopnaranum byrjar að blikka. Ýtið síðan á valinn hnapp á fjarstýringunni. Til að samstilla fleiri fjarstýringar skal endurtaka ferlið frá 1. skrefi. Aukastöðvun gerð óvirk:
1. Færið hurðina í lokaða stöðu.
2. Ýtið samtímis á rétthyrnda stillingarhnappinn og UPP-hnappinn í 3
sekúndur og bíðið þar til ljósið á hurðaopnaranum byrjar að blikka. D. Sjálfvirk lokun Lýsing á virkni: Öryggisljóshliðið frá Chamberlain skal setja upp samkvæmt EN60335-1-95. Sjálfvirk lokun gerð virk: Ýtið samtímis á rétthyrnda stillingarhnappinn og NIÐUR-hnappinn þar til ljósið á hurðaopnaranum blikkar. Ýtið 1x á UPP-hnappinn = 10 sekúndur, talningartími. Hægt er að velja allt að 180 sek. (ýtið 18x). Til að ljúka við stillinguna skal ýta á rétthyrnda stillingarhnappinn. Á meðan beðið er eftir að hurðin lokist sjálfkrafa blikkar NIÐUR-hnap purinn. Aukastöðvun gerð óvirk: Ýtið samtímis á rétthyrnda stillingarhnappinn og NIÐUR-hnappinn þar til ljósið á hurðaopnaranum blikkar. Ýtið 1x á NIÐUR-hnappinn = 10 sekúndur, styttri talningartími. Ef talningartíminn er óljós skal einfaldle- ga ýta 18x á NIÐUR-hnappinn. Til að ljúka við stillinguna skal ýta á rétthyrnda stillingarhnappinn. is 06/13 Að prófa öryggisbakkbúnað Prófun öryggisbakkbúnaðar er mikilvæg. Bílskúrshurð in verður að fara til baka, komist hún í snertingu við 50mm hindrun sem liggur flöt á gólfinu. Sé opnarinn ekki rétt still- tur getur það leitt til alvarlegs líkamstjóns vegna bílskúrshurðar sem lokast. Endurtaktu prófið mánaðarlega og stilltu eftir þörfum. HINDRUNARPRÓF: Settu 50mm háa hindrun (1) undir bílskúrshurðina á gólfið. Hreyfðu hurðina niður á við. Hurðin verður að fara til baka þegar hún kemst í snertingu við hindrunina. Komi til þess að hurðin stöðvist við snertingu og hún fer ekki nógu langt niður, skal stilling endamarkanna endurtekin. Ef hurðin fer til baka eftir snertingu við 50mm háa hindrun, skaltu fjarlægja hindrunina og opna og loka hurðinni að fullu einu sinni. Hurðin ætti ekki að fara til baka, ef hún nær stöðunni "Lokuð". Ef hún fer enn til baka, verður að forrita bæði endamörkin. OPNUNARPRÓF: Settu 20 kg fyrir framan miðju hurðarinnar. Hurðin ætti ekki að opnast. Forritaðu og fjarstýringuna / Þráðlausa hnappinn (valkvæmur) Virkjaðu opnarann aðeins þegar þú sérð alla hurðina, hún er laus við hin- dranir og rétt stillt. Enginn ætti að fara inn í eða yfirgefa bílskúrinn þegar hurðin er á hreyfingu. Leyfið börnum ekki að nota hnapp(a) eða fjarstýringu/fjarstýringar. Leyfið börnum ekki að leika sér nálægt hurðinni. Móttakari og fjarstýring bílskúrshurðaopnarans eru stillt með sama kóða. Þegar keyptar eru fleiri fjarstýringar þarf að stilla bílskúrshurðaopnarann til samræmis við nýja kóðann á fjarstýringunni. Kóði nýrrar fjarstýringar stilltur inn í móttakarann með gula, kringlótta samstillingarhnappinum.
1. Ýtið á gula samstillingarhnappinn á opnaranum og sleppið honum.
Samstillingarljósið logar stöðugt í 30 sekúndur (1).
2. Haldið inni þeim hnappi á fjarstýringunni sem nota á fyrir
bílskúrshurðina (2).
3. Sleppið hnappinum þegar ljósið á opnaranum blikkar. Kóðinn hefur verið
stilltur inn. Núna virkar hurðaopnarinn um leið og ýtt er á hnappinn á fjarstýringunni. Ef hnappinum á fjarstýringunni er sleppt áður en ljósið á opnaranum blikkar nemur opnarinn ekki kóðann. Öllum fjarstýringarkóðum eytt Til að gera óæskilega kóða óvirka verður að eyða öllum kóðum út fyrst: Haldið gula hnappinum á opnaranum inni þar til logandi samstillingarljósið slokknar (eftir u.þ.b. 10 sek.). Með því eyðast út allir kóðar sem hafa verið stilltir inn. Stilla þarf inn allar fjarstýringar og öll lyklalaus aðgangskerfi upp á nýtt.
25is 07/13 J. Þráðlaust, lyklalaust aðgangskerfi (aðeins með 747EV þráðlausri kóðalæsingu): Veljið persónulegan 4 stafa talnakóða fyrir notkun hurðarinnar. K. Tímabundinn aðgangur (aðeins með 747EV þráðlausri kóðalæsingu): Hægt er að stilla inn tímabundinn kóða fyrir takmarkaðan aðgang að bílskúrnum (annaðhvort með tímatakmörkun eða takmörkuðum fjölda opnunaraðgerða). L. Lokun með einum hnappi (aðeins með 747EV þráðlausri kóðalæsingu): Hægt er að loka hurðinni án aðgangskóða í hvaða stöðu sem er (ekki hægt að opna). M. Rafhlöður CM475EV og CM475SOL (24 V tengi): Ef rafmagnið fer af getur rafhlaðan séð fyrir orku í allt að 24 tíma. Ef rafmagnið fer af getur sólarorkurafhlaðan séð fyrir orku í allt að 24 tíma (áætlað frá og með 2014). N. myQ ( aðeins með 828EV netgáttinni (Gateway): Gerir kleift að stjórna bílskúrshurðinni í gegnum internetið eða samhæfða farsíma. O. Bílskúrshurðaskynjari (aðeins með 829EV bílskúrshurðaskynjara): Getur gefið frá sér sýnileg merki (með LED-ljósum) og hljóðmerki þegar fylgst er með stöðu hurðar. Einnig er hægt að nota tækið til að loka hurðinni. P. Hreyfiskynjari með geisla sem aðstoðar við að leggja í bílskúr (Ljóshlið og skynjari með geisla nauðsynleg) Hraðtengiklemmur 2 og 3 (fáanlegt u.þ.b. frá og með júlí 2013) Q. Straumur til ytri tækja (24 volta klemma) 24 V DC/hám. 50 mA Athugið: Fyrir ytri (fjölnota) móttakara verður að stilla af biðstöðu fyrir minna en 1 W. R. Stillt af/á biðstöðu fyrir minna en 1 W Þegar búnaðurinn kemur frá verksmiðju er alltaf stillt á biðstöðu fyrir minna en 1 W. (Eftir að slokknar á ljósi og bílskúrshurð hefur verið lokað.) Stillt af biðstöðu fyrir minna en 1 W:
1. Takið tækið úr sambandi við rafmagn.
2. Haldið UPP- og NIÐUR-hnöppunum á bakhlið stilliborðsins báðum
3. Tengið tækið aftur við rafmagn á meðan hnöppunum er haldið inni.
4. Eftir u.þ.b. 5 sekúndur blikkar ljós hurðaopnarans 10x til staðfestin-
gar. Athugið: Í hvert sinn sem hurðaopnarinn er settur aftur í sam- band við rafmagn blikkar ljósið á honum 10x til að gefa til kynna að stillt hafi verið af biðstöðu fyrir minna en 1 W. Stillt á biðstöðu fyrir minna en 1 W: Sjá „Sett á“ Ábendingar: - Ef ljóshliðið var rofið verður biðtíminn færður aftur til baka (hefst frá byrjun). - Sjálfvirk lokun virkar ekki í stöðunni fyrir aukastöðvun. - Til þess að hægt sé að gera sjálfvirka lokun virka þarf bílskúrshurð- aopnarinn að vera kominn í opnu endastöðuna. Úrræðaleit: Vandamál: Hurðaopnarinn virkar ekki án ljóshliðs. Lausn: Engin bilun. Rétt. Hjá þessu verður ekki komist um leið og ljóshliðið hefur verið tengt. E. Skipt á milli hraðrar og hægrar hraðastillingar Lýsing á virkni: Hurðaopnarinn velur sjálfkrafa nauðsynlegan hraða. Skipt um hraða:
1. Færið hurðina í lokuðu endastöðuna.
2. Ýtið samtímis á UPP- og NIÐUR-hnappana þar til ljósið á hurðaop-
naranum blikkar. Varúð: Af öryggisástæðum er hraðastillingin hægari á hurðum með styttri brautarlengd en 190 cm. Heilar hurðir, lyftihurðir og allar gerðir hurða sem opnast út á við má aðeins hreyfa í hægri hraðastillingu. F. Hnappar á fjarstýringu tengdir við OPNA, STÖÐVA eða LOKA Lýsing á virkni: Hægt er að nota hvaða hnapp sem er á fjarstýringunni fyrir aðger- ðirnar OPNA, STÖÐVA eða LOKA. OPNA: Ýtið samtímis á gula samstillingarhnappinn og OPNA-hnappinn þar til LED-ljósið kviknar. Ýtið því næst á hnappinn sem óskað er eftir að stýri aðgerðinni OPNA og bíðið eftir að ljósið á opnaranum blikki. STÖÐVA: Ýtið samtímis á gula samstillingarhnappinn og rétthyrnda stillingar- hnappinn þar til LED-ljósið kviknar. Ýtið því næst á hnappinn á fjarstýringunni sem óskað er eftir að stýri aðgerðinni STÖÐVA og bíðið eftir að ljósið á opnaranum blikki. LOKA: Ýtið samtímis á gula samstillingarhnappinn og NIÐUR-hnappinn þar til LED-ljósið kviknar. Ýtið því næst á hnappinn á fjarstýringunni sem óskað er eftir að stýri aðgerðinni LOKA og bíðið eftir að ljósið á opnaranum blikki. G. Stilling fyrir fríið (aðeins með 78EV veggeiningu): Þegar þessi stilling er virk er ekki hægt að hreyfa hurðina með fjarstýringu. H. Stilling á fjarstýringu með veggeiningu (aðeins með 78EV veggeiningu).
I. Kveikt og slökkt á ljósi hurðaopnarans
(aðeins með 78EV veggeiningu): Hægt er að kveikja og slökkva á ljósi hurðaopnarans hvenær sem er. Sjálfvirk lýsing (aðeins með ljóshliði og veggeiningu) Ef hurðin er opin og farið er fyrir ljósgeislann kviknar sjálfkrafa á ljósinu. Sett á: Haldið „LIGHT“-hnappinum á veggeiningunni inni í 10 sekúndur. Tekið af: Sjá „Sett á“Notkun hurðaopnarans Sjálfvirk opnun / lokun hurðarinnar: Nota má hurðaopnarann með eftirtöldum búnaði:
- Lófasenditæki: Þrýstu á hnappinn þar til hurðin byrjar að hreyfast.
- Veggrofi (ef þessi aukabúnaður er uppsettur): Þrýstu á hnappinn þar til hurðin byrjar að hreyfast. Handvirk opnun hurðarinnar (framkvæmd með höndum): Ef það er mögulegt verður hurðin að vera lokuð að fullu. Slitnar eða gallaðar fjaðrir geta valdið snögglegri lokun opinnar hurðar, sem getur leitt af sér eignatjón eða alvarlegt líkamstjón. LOSUN: Snúðu rauða handfanginu stuttlega niður. Opnaðu síðan hurðina handvirkt. Opnaðu/lokaðu hurðinni án þess að toga í kapalinn! LÆST: Opnunarbúnaðurinn kemur í veg fyrir að sleðinn læsist aftur sjálfkrafa. Ýtið á græna hnappinn á sleðanum og við næstu hurðarhreyfin- gu mun kerfið læsast á ný. Virkniröð: Þegar hurðaopnarinn er notaður með fjarstýringu eða veggrofa: - hurðin lokast þegar hún er að fullu opin, - hurðin opnast þegar hún er að fullu lokuð, - hurðin stöðvast ef hún er að opnast eða lokast, - hurðin hreyfist í gagnstæða átt við síðustu fullkláruðu hreyfingu, sé hún opin til hálfs, - knýr hurðina aftur opna stöðu, ef hún rekst í hindrun á meðan hún er að lokast. - hurðin stöðvast ef hún kemst í snertingu við hindrun þegar hún er að opnast. - Létt hindrun (valkvæm): Þegar um létta hindrun er að ræða, er hurð sem er að lokast lyft upp eða opin hurð stöðvuð þegar hún er að lokast, ef manneskja sem er stödd á hurðarsvæðinu rýfur geisla skynjarans. - FJÖLVIRKA HURÐARSTJÓRNTÆKIÐ (valkvæmt) Ýttu á þrýstistöngina (1) til að opna eða loka hurðinni. Ýttu aftur til að stöðva hurðina. Ljósavirkni Þrýstu á ljóshnappinn (2) til að kveikja eða slökkva á ljósi opnarans. Hann stjórnar ekki opnaraljósinu þegar hurðin er á hreyfingu. Ef þú kveikir á því og virkjar svo opnarann, er áfram kveikt á ljósinu í 2-1/2 mínútu. Þrýstu aftur á til að slökkva á því fyrr. Það kviknar á opnaraljósinu í eftirtöldum tilvikum:
3. Í hvert skipti sem er kveikt á hurðaopnaranum.
Það slokknar sjálfkrafa á ljósinu eftir 2 1/2 mínútu. Festu varúðarmerkingar (sjá mynd 28) is 08/13 Þrif og viðhald Fyrir allt viðhald, þrif og skylda viðhaldsvinnu, ætti að kippa rafmagnssnúrunni úr sambandi. Hætta vegna raflosts! Viðhald hurðaopnarans Rétt uppsetning tryggir bestu afköst hurðaopnarans með sem minnstu viðhaldi. Ekki er þörf á viðbótarsmurningu. Mikil uppsöfnun óhreininda á stýribrautinni getur komið niður á virkninni og þau verður að fjarlægja. Þrif Þrífðu drifhausinn, veggrofann og lófasenditækið með mjúkum og þurrum klút. Notaðu ekki vökva. Viðhald Farðu oft yfir kerfið, sérstaklega kapla, fjaðrir og festingar, til að finna merki um slit, skemmdir eða skort á jafnvægi. Notaðu opnarann ekki ef hann þarfnast viðgerðar eða stillingar, vegna þess að villa í búnaðinum eða ranglega jafnvægisstillt hurð getur valdið meiðslum. Mánaðarlega:
- Athugaðu sjálfvirkan öryggisbakkbúnað aftur og endurstilltu ef þörf krefur.
- Notaðu hurðina handvirkt. Sé hurðin ekki jafnvægisstillt eða föst, vinsamlegast hafðu samband við þjónustumiðstöð.
- Gangið úr skugga um að hurðin opnist og lokist að fullu. Þar sem það á við, skal endurstilla endamarkaskiptingu og / eða afl. Tvisvar á ári:
- Athugaðu tannreiminnispennu. Til að gera það skaltu fyrst aftengja sleðann frá drifinu. Stilltu spennu ef þess þarf. Árlega (við hurðina):
- Smurðu hurðavalsa, legur og liðamót. Ekki er krafist frekari smurningar á hurðaopnaranum. Stilling endamarkaskiptingar og átaksstjórnun: Þessar stillingar þarf að athuga og þær framkvæmdar rétt á meðan á uppsetningu opnarans stendur. Veðrun getur valdið því að minniháttar breytingar eigi sér stað við notkun opnarans sem þarf að leiðrétta með nýrri stillingu. Sérstaklega er hætta á þessu á fyrsta ári notkunar. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir stillingu endamarkaskiptinga og dráttarafls út í ystu æsar og endurskoðaðu sjálfvirka öryggissleppibúnaðinn eftir hverja endurstillingu.
27Að skipta um rafhlöður í fjarstýringunni Rafhlaða fjarstýringarinnar: Rafhlöðurnar í fjarstýringunni hafa sérstaklega langan líftíma. Ef sendidr-ægni minnkar, verður að skipta um rafhlöðurnar. Ábyrgðin nær ekki til rafhlaða. Vinsamlegast farðu eftir eftirtöldum leiðbeiningum fyrir rafhlöður: Ekki ætti að meðhöndla rafhlöður sem heimilissorp. Lög krefjast þess að allir neytendur fargi rafhlöðum á réttan hátt á útnefndum förgunarstöðum. Reyndu aldrei að endurhlaða rafhlöður sem ekki er ætlast til að séu endurhlaðnar. Sprengihætta! Haltu rafhlöðum fjarri börnum, ekki valda skammhlaupi í þeim og taktu þau ekki í sundur. Leitaðu læknis tafarlaust ef rafhlaða er gleypt. Ef þess þarf skaltu þrífa tengin á rafhlöðum og búnaði fyrir hleðslu. Fjarlægðu tómar rafhlöður úr búnaðinum tafarlaust! Aukin hætta á leka! Láttu rafhlöðurnar aldrei verða fyrir of miklum hita, eins og sólskini, eldi eða álíka! Það er aukin hætta á leka! Forðastu snertingu við húð, augu og slímhimnur. Skolaðu þá hluta sem hafa komist í snertingu við rafgeymasýru með miklu magni af köldu vatni og leitaðu læknis tafarlaust. Skiptu alltaf um allar rafhlöður á sama tíma. Notaðu einungis rafhlöður af sömu tegund; notaðu aldrei mismunandi tegundir né blandaðu saman notuðum og nýjum rafhlöðum. Fjarlægðu rafhlöðurnar ef búnaðurinn hefur ekki verið notaður í langan tíma. Skipt um rafhlöðu: Til að skipta um rafhlöðu skal opna fjarstýringuna að aftanverðu með skrúfjárni. Lyftið lokinu og takið út stýringuna sem liggur undir því. Ýtið rafhlöðunni til hliðar og fjarlægið hana. Gætið þess að víxla ekki plús- og mínusskautunum þegar nýjar rafhlöður eru settar í. Setjið fjarstýringuna aftur saman. TAKTU EFTIR! Sprengihætta ef ranglega er skipt um rafhlöðu. Einungis má skipta um rafhlöðu með sömu eða jafngildri tegund (10A20-WH. Ljós hurðaopnara LED-ljós hurðaopnarans hefur afar langan líftíma og er viðhaldsfrítt. Ekki er hægt að fjarlægja hylkið utan um ljósið.
Förgun Umbúðirnar eru gerðar úr umhverfisvænu efni. Hægt er að skila þeim í söf- nunargáma fyrir endurvinnslu á hverjum stað. Samkvæmt Evróputilskipun 2002/96/EB um rafbúnaðarúrgang verður að farga tækinu með viðeigandi hætti þegar notkun þess er hætt til að tryggja endurnýtingu efnanna sem notuð voru í tækið. Upplýsingar um förgun og söfnunarstöðvar fást hjá yfirvöldum á hverjum stað.
1. Hurðaopnari virkar ekki með fjarstýringu:
- Er opnarinn tengdur við rafmagn? Ef það kviknar ekki á lampa sem tengdur er við rafmagnsinnstunguna, skaltu athuga öryggi eða aflrofa. (Sumar innstungur er virkjaðar með veggrofa).
- Eru allar hurðarlæsingar afvirkjaðar? Sjá öryggisleiðbeiningar!
- Prófaðu að nota opnarann með nýrri rafhlöðu.
- Hafir þú tvö eða fleiri senditæki, þar sem aðeins eitt virkar, skaltu athuga forritun móttakarans.
- Er snjór / klaki undir hurðinni? Ef já, gæti hurðin verið frosin við jörðina. Fjarlægðu allar hindranir.
- Hurðarfjöðrin gæti verið biluð. Það verður að skipta um hana af sérfræðingi.
2. Sendidrægni búnaðarins er of lítil:
- Er ný rafhlaða til staðar? Settu nýja rafhlöðu í.
- Prófaðu fjarstýringuna í bílnum annars staðar.
- Það dregur úr sendidrægninni þegar um er að ræða stálhurðar, ál- eða málmplötur.
3. Hurð fer til baka af engri augljósri ástæðu:
- Er hurðin hindruð af einhverju? Togaðu í handvirkan sleppibúnað og notaðu hurðina handvirkt. Sé um að ræða ójafnvægisstillt eða fast hlið, vinsamlegast hafðu samband við þjónustudeildina.
- Endurforritaðu vinnsluafl og teygju opnarans.
- Hreinsaðu klaka eða snjó burt af lokunarsvæði hurðarinnar.
- Ef hurðin fer til baka þegar hún kemst í stöðuna 'Lokuð’, verður að stilla endamarkaskiptingu fyrir þessa hurðarstöðu. Eftir að lokið hefur verið við hverja stillingu, verður að kanna sjálfvirka sleppibúnaðinn aftur:
- Endurstilling endamarka endrum og eins er ekki óvenjuleg. Sérstaklega getur veðrun fært hurðargáttina til.
4. Bílskúrshurðin opnast og lokast af sjálfsdáðum:
- Eyddu út af öllum senditækjum og endurforritaðu þau svo öll. Sjáðu “Forritun annarra lófasenditækja”.
- Er hnappurinn á fjarstýringunni fastur í "ON" (Kveikt) stöðu?
- Notaðu aðeins upprunalegar fjarstýringar! Notkun á vörum frá þriðja aðila leiðir til truflana.
- Stutt var á hnappinn á fjarstýringunni fyrir slysni (í vasa).
- Kapall veggrofans er skemmdur (fjarlægðu til að hægt sé að prófa).
- Aukabúnaður sem tengdur er við opnarann veldur virkjun drifsins (fjarlægðu til að hægt sé að prófa).
5. Hurð lokast ekki að fullu:
- Endurforritaðu teygju opnarans. Leitaðu eftir breytingum á vélrænum hlutum, t.d. hurðarörmum og tengibúnaði. Eftir hverja nýja stillingu á hurðarstöðunni "Lokuð", ætti að skoða virkni sjálfvirka sleppibú naðarins.
- Það ætti að athuga léttu hindrunina, sé hún uppsett. Ef díóðan við léttu hindrunina blikkar, ætti að athuga leguna.
- Athugaðu virkni senditækisins eða veggrofans.
7. Það kviknar ekki á opnaraljósinu:
- Opnaðu eða lokaðu hurð. Það er áfram kveikt á ljósinu í 2,5 mínútur.
- Taktu opnara úr sambandi við stofnleiðslu og settu aftur í samband. Það kviknar á ljósinu í nokkrar sekúndur.
8. Það slokknar ekki á opnaraljósinu:
- Taktu úr sambandi við rafmagn í stuttan tíma og reyndu aftur.
- 2,5 mínúta er ekki liðin enn.
9. Mótor suðar og gengur í mjög stuttan tíma, en starfar ekki:
- Fjaðrir bílskúrshurðarinnar eru gallaðar. Lokaðu hurðinni og taktu þær úr sambandi við opnarann með því að toga í handfangið á sleðanum (handvirk losun). Opnaðu og lokaðu hurð handvirkt. Sé hurðin rétt jafnvægisstillt, halda hurðafjaðrirnar einar og sér henni á hvorum stað fyrir sig. Ef það gerist ekki, skaltu hafa samband við þjónustumiðstöð þína.
- Geri þetta vandamál vart við sig við fyrstu notkun, getur verið að hurðin sé læst. Afvirkjaðu hurðarlæsingu.
- Aftengdu opnarann frá hurðinni og reyndu án hurðarinnar. Sé hurðin í lagi, skaltu endurforrita vinnsluátak og teygju.
10. Opnarinn virkar aðeins í eina átt:
- Hurðafjaðrir geta verið bilaðar eða þá að hurðin er stíf í aðra áttina.
- Sé hurðin í lagi, skaltu endurforrita vinnsluafl og teygju opnarans.
11. Tannreimin skröltir á brautinni:
- Stilltu tannreiminspennuna. Orsökin er vanalega mjög strekkt. Fjöðrinni á klemmubúnaði brautarinnar má ekki vera þrýst saman að fullu.
- Hurðin rennur ójafnt og gerir það að verkum að drifið hristist. Lagaðu rennsli hurðar.
12. Opnari fer ekki í gang vegna rafmagnsleysis:
- Aftengdu opnarann með því að toga í handfangið á sleðanum (handvirk losun). Nú er hægt að opna og loka hurðinni handvirkt. Sé opnarinn endurvirkjaður, er sleðinn einnig tengdur á ný.
- Bjóði uppsetningin upp á slíkt, er sleðinn losaður frá drifinu, ef það kemur til rafmagnsbilunar, af ytri neyðarsleppibúnaði utan frá bílskúrnum.
13. Hurð fer til baka eftir að átakið hefur verið forritað:
- Athugaðu hvort brautin bognar. Opnarinn þarf mikið afl til að hreyfa hurðina. Gerðu við eða settu hurð upp á réttan hátt.
- Hurðin er mjög þung eða er í slæmu ásigkomulagi. Hafðu samband við sérfræðing.
14. Brautin bognar á opnaranum:
- Hurðin er þung, mjög þung, stíf eða í slæmu ásigkomulagi. Hafðu samband við sérfræðing.
- Sveiflist brautin til á meðan hurðin hreyfist, er það merki um að ójafnvægi sé á virkni hurðar sem hefur í för með sér síbreytilegar rafmagnsþarfir. Hafðu samband við sérfræðing, og það gæti verið að það þyrfti að smyrja hurðina. Styrking á upphengingu brautarinnar gæti verið ráðleg.
15. Opnarinn “keyrir” (mótorinn starfar svo það heyrist) en sleðinn
- Sleðinn hefur losnað frá opnaranum.
- Á nýrri uppsetningu: Við samsetningu mótors og brautar, var hin forsamsetta tengimúffa á milli mótorskaftsins og brautarinnar ekki sett upp. Múffan er forsamsett í verksmiðjunni, en hana má fjarlægja. Standirðu fyrir aftan opnarann geturðu séð hvort tannhjólið snýst á brautinni eða bara mótorinn.
- Á nýrri uppsetningu: Tannreimin hefur losnað af tannhjólinu á brautinni. Standirðu fyrir aftan opnarann, geturðu séð tannhjólið.
- Eftir áralanga notkun: Er sleppibúnaðurinn bilaður eða alltaf óvirkur?
- Eftir áralanga notkun: Múffan milli brautar og mótors er biluð eða stýribúnaður mótors.
16. Hurðin losnar frá sleðanum og stöðvast:
- Ytri sleppibúnaður sem hefur verið settur upp í rafmagnsleysi skal athugaður til að athuga hvort það teygist á honum og hann sleppi við opnun hurðarinnar. Fylgstu með gangverkinu og endurstilltu ef þess gerist þörf.
- Handfangið á sleppibúnaðinum ætti ekki að festast í öðrum hlutum.
17. Stilling á átaki
Undir lokinu aftan á hurðaopnaranum má finna stillingarhnapp fyrir átak. Með átaksstillingunni er stillt inn það átak sem nauðsynlegt er fyrir opnun og lokun hurðarinnar.
1. Opnið lokið á bakhlið opnarans.
2. Ýtið tvisvar á gula samstillingarhnappinn til að fara í átaksstillinguna.
LED-ljósið og UPP-hnappurinn blikka. Ýtið á UPP-hnappinn. Hurðin hreyfist í opna endastöðu og lærir þannig að þekkja nauðsynlegt átak. Þegar hurðin er komin í opnu endastöðuna byrja LED-ljósið og NIÐUR- hnappurinn að blikka. Ýtið á NIÐUR-hnappinn. Hurðin hreyfist í lokaða endastöðu og lærir þannig að þekkja nauðsynlegt átak. Þegar átakið hefur verið stillt inn í minni hætta LED-ljósið og NIÐUR- hnappurinn að blikka. Hurðin verður að fara heila lotu af OPNA/LOKA-aðgerð til að læra að þekkja rétta átakið. Ef hurðaopnarinn getur ekki opnað eða lokað hurðin ni að fullu skal skoða hurðina til að kanna hvort rétt hefur verið gengið frá henni með tilliti til jafnvægisstillingar og ganga úr skugga um að hún sé hvorki beygluð né föst. Stilla verður átakið til að tryggja að rétt endas- taða festist í minni.is 11/13
TAFLA FYRIR BILANAGREININGU
Bílskúrshurðaopnarinn er með greiningaraðgerð fyrir bilanir. UPP- og NIÐUR-hnapparnir blikka. Teljið fjölda blikka fyrir viðkomandi hnapp á milli tveggja blikkhléa. Síðasta atvik sem kom upp er alltaf sýnt á skjánum. MERKI Hnappar Hnappar
EINKENNI Opnarinn lokar ekki og ljósið á honum blikkar. Opnarinn lokar ekki og ljósið á honum blikkar. Veggrofinn virkar ekki. Bílskúrshurðaopnarinn lokar ekki og ljósið á honum blikkar. Hurðin hreyfist aðeins nokkra cm, stöðvar eða snýr við. Engin hreyfing, aðeins smellur. Suð heyrist í opnaranum en engin hreyfing á sér stað. Hurðin hreyfist hægt í aðra stöðu eftir að slokknað hefur á opnaranum. Engin hreyfing. Ekki er hægt að festa OPNA/LOKA- stöðuna í minni. Hurðin færist ekki að fullu í þá end- astöðu sem fest hefur verið í minni. Hurðaopnarinn hreyfist aðeins nokkra cm og stöðvar eða snýr við. Hurðin lokast ekki að fullu og snýr við. LAUSN Ljóshliðin (aukabúnaður) voru fjarlægð, eru rofin eða tengd á rangan hátt. Tengt ljóshlið er með bilaða kapla eða þeir eru rangt tengdir. Bilaður kapall í veggrofa eða röng tenging. Prófið að skipta um kapal ef ekki er hægt að finna bilunina. Einhver hindrun er í vegi ljóshliðsins eða það er ekki rétt stillt. Rauðu LED-ljósin á ljósh- liðum blikka því rétt virkni hefur ekki verið tryggð. Hurðin er stíf eða í ólagi. Opnið eða lokið hurðinni með handafli og tryggið með aðstoð fagmanns (viðgerð) að hún virki rétt. Vélræn hindrun er í hurðinni, hún er lokuð eða gormar hennar eru í ólagi. Takið hurðina úr lás á opnaranum og kannið virkni hans. Eins og að framan Hurðin er í ólagi, stíf eða jafnvægi hennar er vanstillt og þörf er á viðgerð Stjórnbúnaður í ólagi. Hafið samband við fagmann. Sjá „Algengar spurningar“, 15. lið. Hurð í ólagi eða mjög stíf. Takið hurðina úr lás og prófið. Færið inn nýja brautarlengd. Sjá „Algengar spurningar“, 15. lið. Ljóshliðin eru ekki rétt stillt eða þau voru rofin í stuttan tíma af einhverri hindrun. Hindrun gerir mögulega aðeins vart við sig þegar hurðin hreyfist.is 12/13 MERKI Hnappar Hnappar
EINKENNI Skammhlaup í tengjum 1+2 fyrir veg- grofann stendur lengur en í 4 sekún- dur. Of lítil spenna. Hámarksfjölda fjarstýringa er náð. LAUSN Kapalbilun í leiðslunni. Ekki leggja kapalinn við hlið 230 volta eða í gegnum sama rör. Prófið að leggja nýjan kapal. Rafspenna er/var of lág. Tengd rafhlaða er tóm. Ekki er séð fyrir nægu rafmagni. Of margar fjarstýringar eru stilltar inn og stýribúnaðurinn hefur eytt fyrstu stillingunni og skipt henni út fyrir fjarstýringuna sem var stillt inn síðast. Valfrjáls aukabúnaður
4. 128EV - 2 rása þráðlaus veggrofi
5. 747EV - þráðlaus kóðalæsing
13. 770EV - ljóshlið
34is 13/13 Varahlutir / Ábyrgð Sjá vefsíðuna www.liftmaster.eu eða hafið samband við næsta söluaðila. Sjá einnig í ábyrgðarbók, sem er fáanleg.
Tæknilýsing Inngangsspenna . . . . . . . . . . .230-240 VAC, 50 Hz Hámarkstogkraftur . . . . . . . . . .600 N (LM60), 800 N (LM80), 1000 N (LM100) Biðstaða (þegar hurðin er lokuð) . . . . . .0,8 W Mótor Gerð mótors . . . . . . . . . . . . . .Gírmótor sem gengur fyrir jafnstraumi (DC) og er með varanlegri smurningu Hávaðastig . . . . . . . . . . . . . . .54 dB Gerð drifs . . . . . . . . . . . . . . . .Tannreim Brautarlengd . . . . . . . . . . . . . .Stillanleg Opnunarhraði, allt að . . . . . . .160 mm/s (LM60), 200 mm/s (LM80, LM100) Ljós . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .Kviknar þegar opnarinn fer í gang, slokknar 2-1/2 mínútu eftir að hann stöðvast. Liða og armabúnaður hurðar .Stillanlegur hurðararmur, togstrengur til að taka sleða úr lás Öryggi Persónulegt . . . . . . . . . . . . . . .Stutt á hnapp og sjálfvirk stöðvun þegar hurð fer niður / stutt á hnapp og sjálfvirk stöðvun þegar hurð fer upp. Rafeindabúnaður . . . . . . . . . . .Sjálfvirk átaksstilling Rafbúnaður . . . . . . . . . . . . . . .Yfirálagsvörn spennubreytis og lágspennu- raflagnir fyrir veggeiningu. Stilling markrofa . . . . . . . . . . . .Sjónræn greining á snúningshraða og stöðu hurðar. Stilling markrofa . . . . . . . . . . . .Vélrænn snúningsskynjari / Passpoint-nemi Stilling á endastöðum . . . . . . .Rafræn Mjúkræsing/mjúkstöðvun . . . .Allar gerðir Mál Heildarlengd . . . . . . . . . . . . . .3200 mm Nauðsynleg fjarlægð frá lofti . . . . . . . . . . . .30 mm Þyngd í upphengdri stöðu . . . .~ 12 kg Móttakari Atriði í minni . . . . . . . . . . . . . .180 Vinnslutíðni . . . . . . . . . . . . . . .6 rásir (433 MHz / 868 MHz) ATHUGIÐ: Chamberlain mælir eindregið með því að sett séu upp ljóshlið af gerðinni „The Protector System“ fyrir alla bílskúrshurðaopnara!
FYLGISKÍRTEINI/SKJAL FYRIR ÞJÓNUSTUAÐILA Vinsamlegast fyllið út skýrt og greinilega með prentstöfum og látið afrit af reikningi fylgja með! Nákvæm lýsing á bilun (Látið fylgja með villuboð, ef við á, sem og myndir á aðskildum blöðum) Ábyrgð Í grundvallaratriðum ábyrgist söluaðilinn vöruna samkvæmt lögum innan ábyrgðartímabilsins sem gildir í 24 mánuði frá kaupum hennar (ábyrgðartími fyrir rafhlöður er 6 mánuðir). Lögbundin réttindi kaupandans skerðast ekki með þessari framleiðendaábyrgð. Lögum samkvæmt verndar ábyrgðin kaupandann í viðskiptum sínum við söluaðilann og henni má ekki breyta neytandanum í óhag. Ábyrgðin tekur gildi á þeim degi þegar varan er keypt. Chamberlain GmbH ábyrgist, gagnvart fyrsta kaupandanum sem keypt hefur þessa vöru í smásöluverslun („smásöluneytanda“), að varan sé laus við hvers konar efnis- eða framleiðslu- galla frá og með kaupdegi hennar (upplýsingar um mögulega lengri ábyrgðartíma má finna í vörulýsingunni eða á umbúðunum). Kassakvittunin gildir sem staðfesting á kaupunum! Ábyrgðin tekur eingöngu til viðgerða eða skipta á þeim hlutum vörunnar sem reynast gallaðir. Ábyrgðin tekur ekki til skemmda sem rekja má til rangrar notkunar eða notkunar sem ekki samræmist leiðbeiningum og á við um uppsetningu, notkun og umhirðu vörunnar sem og skemmda sem rekja má til þess að nauðsynlegu viðhaldi og stillingum hafi ekki verið sinnt. Auk þess nær hún ekki yfir skemmdir af völdum ósamþykktra breytinga á vörunni eða notku- nar á aukabúnaði sem Chamberlain hefur ekki mælt með. Ábyrgðin nær ekki yfir viðgerðakostnað sem hlýst af því að taka í sundur og endurbyggja tæki sem gert hefur verið við eða skipt út, né heldur kostnað við rafhlöðuskipti þess. Endursendingar til Chamberlain Ef óskað er eftir að senda vöruna til viðgerðar beint til Chamberlain í stað söluaðilans skal fyrst útvega RGA-númer (endursendingarnúmer). Númerið má fá í síma +49 1805 466 368 79* eða á vefsíðunni www.chamberlain.de. Endursendingar sem ekki hafa verið skráðar fyrir- fram geta tafið afgreiðslutímann eða leitt til þess að þær verði ekki afgreiddar! Vinsamlegast notið endursendingareyðublaðið. Ef bilunarlýsingin er greinargóð styttist afgreiðslutíminn. Endursendingar eru ekki í boði frá öllum löndum. Aukabúnaður og varahlutir Oft er mögulegt að fá varahluti eða aukabúnað fyrir vöruna eftir að gildistími ábyrgðarinnar er runninn út. Hafið samband við söluaðilann eða þjónustudeild okkar og spyrjist fyrir. Einnig má fá upplýsingar á slóðinni: www.chamberlain.eu Vandamál leyst á eigin spýtur! Vinsamlegast lesið notkunarleiðbeiningarnar fyrir vöruna og listann yfir algengar spurningar (FAQ, Frequently Asked Questions). Að baki ýmsum bilunum liggur enginn eða aðeins smávægilegur tæknigalli sem hægt er að lagfæra fljótt og á eigin spýtur. Hægt er að fá leiðbeiningar eða tæknilega aðstoð í gegnum þjónustusímann, á vef- síðunni eða á tæknispjallrásinni á netinu. RGA-Nr.: Vara, gerð vöru / þjónustunr. Fornafn, eftirnafn Póstnúmer, staður Sími Varan var keypt hjá (söluaðili) Kaupdagur Gata, húsnúmer
Notice-Facile