KULINARISK - Matelas IKEA - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis KULINARISK IKEA á PDF sniði.

IKEA KULINARISK - Madrass
📄 68 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice IKEA KULINARISK - page 52
Skoða handbókina : Français FR Dansk DA Suomi FI Íslenska IS Norsk NO Svenska SV
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um KULINARISK IKEA

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Netfangið þitt er áfram einkamál: það er aðeins notað til að láta þig vita ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Matelas á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína KULINARISK - IKEA og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. KULINARISK vörumerkisins IKEA.

NOTENDAHANDBÓK KULINARISK IKEA

Hvað á að gera ef... 59

Tækniupplýsingar 60

Umhverfissjónarmið 61

IKEA ÁBYRGD 62

Öryggisupplýsingar

Fyrir notkun í fyrsta sinn

Þetta er tákn fyrir aðvörun sem varðar öryggi sem vekur athygli notandans á hugsanlegum áhættum gagnvart honum sjálfum eða öðrum. Á undan öllum öryggisviðvörunum birtist þetta aðvörunartákn og eftirfarandi orð:

HÆTTA: gefur til kynna hættuástand sem leiðir til alvarlegs líkamstjóns, sé því ekki sinnt.

ADVÖRUN: Gefur til kynna hættuástand sem gæti leitt til alvarlegs líkamstjóns, sé því ekki

sinnt.

Allar öryggisviðvaranir gefa upp nánari atriði um hugsanlegt hættu-/varúðarástand og tilgreina hvernig hægt er að draga úr hættu á slysum, skemmdum og raflosti vegna óviðeigandi notkunar raftækisins. Farið nákvæmlega eftir þessum leiðbeiningum.

Varúðarráðstafanir og almenn ráð

  • Verk vegna uppsetningar og tenginga við rafmagn þurfa að vera unnin af þjálfuðum tæknimönnum í samræmi við leiðbeiningar framleiðanda og samkvæmt öryggisreglum á hverjum stað. Ekki skal gera við eða skipta um neinn hlut tækisins nema það sé sérstaklega tekið fram í notendahandbókinni.
  • Taka þarf tækið úr sambandi við straumgjafann áður en verk við uppsetningu eru unnin.

VIÐVÖRUN: Skrúfur eða festibúnaður sem er ekki settur upp í samræmi við þessar

leiðbeiningar getur leitt til hættu á raflosti.

  • Áskilið er að jarðtengja tækið. (Ekki mögulegt fyrir eldhúsviftur í flokki II sem bera táknið á auðkennisplötunni).
  • Togið ekki í rafmagnssnúruna til að taka hana úr sambandi.
  • Rafrænir hlutar mega ekki vera aðgengilegir fyrir notandann eftir uppsetningu. Snertið ekki tækið með rökum líkamshluta og notið það ekki ef þið eruð berfætt. Börn sem eru 8 ára og eldri og aðilar sem hafa skerta líkamlega, skynræna eða andlega hæfni eða skortir reynslu og þekkingu mega nota tækið ef þau hafa fengið aðstoð eða leiðbeiningar varðandi örugga notkun þess og gera sér grein fyrir hættunum sem því geta fylgt. Látið ekki börn leika sér að tækinu. Börn mega ekki sinna þrifum og viðhaldi á tækinu án eftirlits.
  • Allri annarri viðhaldsþjónustu skal sinnt af sérhæfðum tæknimönnum. Við borun í vegginn þarf að gæta þess að skemma ekki rafleiðslur og/eða.
  • Loftop þurfa alltaf að opnast út undir bert loft.
  • Framleiðandinn hafnar allri ábyrgð vegna skemmda sem er

Með viðeigandi viðhaldi og þrifum er tryggt að tækið sé í góðu ástandi til notkunar og nái sem bestum árangri. Þrifið reglulega öll föst óhreinindi af yfirborðinu til að koma í veg fyrir fitusöfnun. Takið síuna úr reglulega og þrifið hana eða skiptið um. Þetta skal gera í samræmi við meðfylgjandi leiðbeiningar um „Hreinsun og viðhald". - Ekki skal eldsteikja (flambera) undir tækinu. Opinn eldur getur valdið íkveikju. - Ef ekki er farið eftir leiðbeiningum um þrif á háfnum og útskiptum á síum getur það valdið íkveikju. - Útblásturslofti má ekki veita í gegnum lofrás sem er ætluð til að færa burt gufur frá gasbrennurum eða öðrum eldfimum efnum en þarf að hafa sérstaka útrás. Fara skal að í samræmi við allar innlendar reglugerðir varðandi fráveitu á gufum. Nauðsynlegt er að hafa fullnægjandi loftræstingu ef nota á háfinn um leið og önnur tæki sem brenna gasi eða öðrum eldfimum efnum. Neikvæður þrýstingur rýmisins skal ekki vera meiri en 4 Pa (4x

10-5 bör). Þess vegna þarf að tryggja að rýmið sé vel loftræst. Ef vafamál koma upp skal vinsamlegast hafa samband við vottaða þjónustumiðstöð eða hæfan aðila.

Látið steikarpönnur ekki vera án eftirlits meðan steikt er því kviknað gæti í steikarfeitinni. Gætið þess að ljósaperurnar séu orðnar kaldar áður en þær eru snertar. Notið ekki háfinn eða farið frá honum án þess að ljósaperan sé sett í rétt því annars gæti það valdið raflosti. Háfurinn er ekki vinnuborð og þess vegna skal ekki láta neina hluti standa ofan á honum eða þyngja hann um of. Við uppsetningu og viðhald þarf að nota viðeigandi vinnuhanska. - Þetta tæki hentar ekki fyrir notkun utanhúss.

ADVÖRUN: meðan eldavélin er í notkun geta aðgengilegir hlutar háfsins hitna.

Ef vafamál koma upp skal hafa samband við vottaða þjónustumiðstöð. Til að koma í veg fyrir skemmdir skal fjarlægja tækið úr umbúðunum þegar það er sett upp.

Undirbúningur fyrir uppsetningu

ADVÖRUN: Þetta er þungur hlutur; við uppsetningu hans ætti að nota tvo eða fleiri til að lyfta honum og setja hann upp. Minsta fjarlægð milli eldavélarinnar og næsta hluta hafsins skal ekki vera minni en 65 cm fyrir eldavélar sem brenna gasi eða öðru eldsneyti og 50 cm fyrir rafmagnseldavélar. Áður en uppsetning er hafin þarf einnig að athuga lágmarksfjarlægðir sem tilgreindar eru í handbók eldavélarinnar. Ef leiðbeiningar um uppsetningu eldavélarinnar tilgreina meiri fjarlægð milli eldavélarinnar og hafsins þarf að fara eftir þeim fyrirmælum.

Raftengingar

Gætið þess að rafspenna sem tilgreind er á merkiplötu tækisins sé sú sama og í rafveitukerfinu. Þessar upplýsingar er hægt að finna innan á hafnum, undir fitusiunni. Ef skipta þarf um rafmagnskapal (gerð H05 VV-F) þarf löggiltur rafvirki að vinna verkið. Hafið samband við viðurkenndan þjónustuaðila. Ef rafmagnskló er á hafnum skal stinga henni í samband við innstungu sem samrýmist reglugerðum um spennu og er staðsett á hentugum stað.

ADVÖRUN: Ef engin rafmagnskló er til staðar (beintenging í rafmagn) eða ef innstungan er á óaðgengilegum stað þarf að láta löggiltan rafvirkja setja upp hefðbundinn tveggja póla rafmagnsrofa svo hægt sé að

aftengja háfinn algerlega frá rafmagni ef yfirspenna af flokki III á sér stað, í samræmi við reglur um raflagnir.

Notkun

Viftan hefur verið hönnuð til uppsetningar sem annaðhvort "útsogsuppsetning" eða sem "hringrásaruppsetning".

Útsogsuppsetning (sjá táknið í bæklingnum um uppsetningu)

IKEA KULINARISK - Útsogsuppsetning (sjá táknið í bæklingnum um uppsetningu) - 1

Gufur frá eldamennsku sogast upp og eru leiddar út undir bert loft gegnum útloftunarrás (fylgir ekki með) sem er tengd við útblástursop hafsins.

Gætið þess að útloftunarrásin sé rétt tengd við útblástursopið með viðeigandi tengingu.

Mikilvægt: Ef viðarkolasían/-síurnar eru þegar settar í þarf að taka þær úr.

Hringrásaruppsetning (sjá táknið í bæklingnum um uppsetningu)

IKEA KULINARISK - Hringrásaruppsetning (sjá táknið í bæklingnum um uppsetningu) - 1

Lofti síast í gegnum eina eða fleiri viðarkolasíur og síðan hleypt aftur út í herbergið.

Mikilvægt: Gætið þess að fullnægjandi loftræsting sé umhverfis háfinn.

Mikilvægt: Ef hafurinn er afhentur án viðarkola þarf að setja þau í áður en hægt er að nota hann. Síur eru tiltækar í IKEA-verslunum.

Setjið hafinn upp fjarri mjög hreinum svæðum, gluggum, hurðum og hitagjöfum. Aukahlutirnir til festingar á vegg fylgja ekki með vegna þess að veggir eru úr mörgum ólíkum efnum og því þarf mismunandi gerðir af festingum. Notið festingar sem henta fyrir veggina heimilinu og þyngd tækisins. Nánari upplýsingar fást hjá söluaðila.

Geymið þennan bækling til samræmis síðar.

Lýsing á tækinu

IKEA KULINARISK - Lýsing á tækinu - 1

1 Reykhafur. 2 Stjórnborð. 3 LED-ljós. 4 Fitusía.

Stjórnborð

AIKEA KULINARISK - Stjórnborð - 1

1

BIKEA KULINARISK - Stjórnborð - 1

CIKEA KULINARISK - Stjórnborð - 2

1IKEA KULINARISK - Stjórnborð - 3

A Veltirofi motorsins til að KVEIKJA (ON)/SLOKKVA Á (OFF) viftunni B Valhnappur soghraða (afls)

IKEA KULINARISK - Stjórnborð - 4

Lágur soghraði (afl)

IKEA KULINARISK - Stjórnborð - 5

Meðalmikill soghraði (afl)

IKEA KULINARISK - Stjórnborð - 6

Mikill soghraði (afl)

IKEA KULINARISK - Stjórnborð - 7

Mesti soghraði (afl)

Ath: Viftan helst í sömu stöðu þegar kveikt/slökkt er á henni með veltirofanum.

IKEA KULINARISK - Stjórnborð - 8

Veltirofi til að kveikja/slokka á ljósi.

Þrif og viðhald

ADVÖRUN:

  • Notið aldrei gufuhreinsibúnað.
  • Takið viftuna úr sambandi.

MIKILVÆGT: Notið ekki tærandi eða slípandi hreinsiefni. Ef slík efni komast í snertingu við tækið þarf að þrífa þau af með rökum klút.

Þrifið yfirborðið með rökum klút. Ef mikil óhreinindi eru til staðar má setja nokkra dropa af þvottaefni í vatnið. Þurrkið með þurrum klút.

MIKILVÆGT: Notið ekki grófa svampa, málmskófur eða skrúbbur. Yfirborð gæti skemmst með þeim.

Notið hreinsiefni sem eru sérstaklega ætluð til að hreinsa tækið og farið eftir leiðbeiningum framleiðanda.

MIKILVÆGT: Hreinsið fitusíur a.m.k. einu sinni í mánuði til að fjarlægja allar fituleifar.

Viðhald á viðarkolasíu (ef háfurinn er settur upp sem hringrásarháfur)

  1. Togið í klóna eða aftengið aflveitu.
  2. Fjarlægið fitusíuna
  3. Ef kolefnasíur eru þegar til staðar (tvær síur sem hylja hlífðargrindur hreyfihjóls mótorins) og nauðsynlegt er að skipta þeim út, skal snúa handföngunum rangsælis til að losa þær.
  4. Opnið síuhúsin tvö.
  5. Fjarlægið hringlaga púðana.
  6. Gerðu aðgerðina á öfugan máta til að setja nýju síurnar í.
  7. Setjið fitu síuna aftur í.

Þessa kolefnasíu er hægt að hreinsa og setja í gang á ný, þó svo að slíkt sé ekki hægt þegar um er að ræða hefðbundnar kolefnasíur. Ef notkun viftunnar telst eðlileg skal hreinsa síuna einu sinni í mánuði. Best er að hreinsa síuna með því að þvo hana á háu hitastigi í uppþvottavél með hefðbundnum uppþvottalegi fyrir uppþvottavélar. Til að koma í veg fyrir að matarleifar eða óhreinindi festist í síunni við þvott og valdi ólykt mælum við með að sían sé þvegin sér í lagi. Til að virkja síuna á ný eftir þvott þarf að þurrka hana í ofni við 100°C í 10 mínútur. Síun heldur eiginleikum sínum til að gleypa í sig lykt í þrjú ár en eftir þennan tíma þarf að skipta henni út fyrir nýja.

IKEA KULINARISK - Viðhald á viðarkolasíu (ef háfurinn er settur upp sem hringrásarháfur) - 1

Viðhald á peru

Háfurinn er með ljósakerfi sem byggir á LED-ljósum.

LED-ljósin gefa bestu birtuna, endast 10 sinnum lengur en venjulegar perur og spara 90% af raforku.

Ef skipta þarf um tæki skal hafa samband við viðurkenndan þjónustuaðila.

Hvað á að gera ef...

VandamålHugsanleg orsökLausn
Tækið virkar ekkiEkkert rafmagn er til staðarAthugið hvor rafmagn sé á.Slökkvið á tækinu og enduræsið pað til að athuga hvort bilunin haldi áfram.
Tækið er ekki tengd við rafmagnAthugið hvort tækið sé tengt við rafmagn.Slökkvið á tækinu og enduræsið pað til að athuga hvort bilunin haldi áfram.
Sogkraftur háfsins er ekki nógu mikillSoghraðinn er of lágurAthugið sognhraðann oglagfærìð eftir börfum.
Fitusírnnar eru Óhreinar 4Athugið hvort siurnar séuhreinar Ef ekki barf að pvo βær i upþvottavélinni.
Lyktareyðandi siurnar eru ÓhreinarAthugið hvort lyktareyðandi siurnar séru rétt bvegnar eins og mælst er til
Loftopin eru stíflóAthugið loftopin vegna hindrana og fjarläeigið eftir börfum.
Ljósin virka ekkiLED-peran er onyt 3Ef skipta barf um tæki skal hafasamband við viðurkenndanbjónustuaðila.

Áður en haft er samband við viðurkenndan þjónustuaðila:

Ef tækið vinnur enn ekki rétt eftir að búið er að framkvæma þær athuganir sem tilgreindar eru í kaflanum um bilanagreiningu og kveikja aftur á tækinu þarf að hafa samband við þjónustuaðila og útskýra fyrir þeim vandamálið og gefa eftirfarandi upplýsingar:

  • gerð bilunarinnar;
  • tegund tækisins;
  • gerð og raðnúmer tækisins (sjá á merkiplötunni);
  • þjónustunúmer (númerið sem er á eftir orðinu SERVICE á merkiplötunni innan í tækinu).

Tækniupplýsingar

Gerð afurðarHljí á vegg
MálstærðirBreiddmm598
Dýptmm458
Hæð lágmarkmm745
Hæð hámarkmm1142
HeildarorkaW217
Perur uppl.TegundLED
Fjöldi og aflW1x7W
Perustæðistrip led
Uppsetting, minsta hæð gaseldavélcm65
Uppsetting, minsta hæð rafmagnsellavélcm50
Pyngd vöruKg11,6
Viðbótarupplýsingar um vöru és somræmi við framseda reglugerð (ESB) nr. 66/2014
Auðkenni gerðarMATTRADITION 70368801MATTRADITION 60368811MATTRADITION 00368809MATTRADITION 20368808MATTRADITION 40368812MATTRADITION 70389144MATTRADITION 70392330MATTRADITION 40392299MATTRADITION 50392147MATTRADITION 30393968MATTRADITION 40389145MATTRADITION 50392331MATTRADITION 00392300MATTRADITION 00392164MATTRADITION 10393969
Ársnotkun orkukWh/a42,9
Timapátur aukHz0,9
Hagkvæmni flæðishreyfinga%31,6
Orkunyntristuðull52,1
Mælt loftstreymi á hagkvæmasta punktim3/h314,0
Mældur loftfråstingur á hagkvæmasta punktiPa416,0
Hámarks loffflæðim3/h550
Mælt inlag rafspennu á hagkvæmasta punktiW115,0
Mälspenna ljósøW7
Meðallysing ljósabúnaðar á eldunarborðlux203,0
Orkunotkun i biðhaettiWNA
Orkunotkun með slökntWNA
Vegin hávaðamyndun á hasta hrðadB(A)65

Tækniupplýsingarnar eru til staðar á merkiplötunni innan á tækinu.

IKEA KULINARISK - Áður en haft er samband við viðurkenndan þjónustuaðila: - 1

Umhverfissjónarmið

Förgun umbúða

  • Þetta tæki er merkt í samræmi við tilskipun Evrópusambandsins um rafrænan úrgang 2012/19/EB, (WEEE).
  • Með því að tryggja förgun þessa tækis á réttan hátt stuðlar þú að því að fyrirbyggja hugsanlega neikvæð áhrif á umhverfið og heilsu manna sem gæti annars orsakast af óviðeigandi meðferð á úrgangi úr tækinu.

Táknið á tækinu eða á meðfylgjandi gögnum þess gefur til kynna að það skuli ekki meðhöndlað sem heimilisúrgangur heldur þarf að fara með það á viðeigandi söfnunarstöð fyrir endurvinnslu á rafmagns- og rafeindabúnaði.

Úrelding heimilistækja

  • Þetta tæki er framleitt úr endurvinnanlegum eða endurnýtanlegum efnum. Fargið því í samræmi við staðbundnar reglur um förgun úrgangs. Fyrir úreldingu þarf að klippa rafmagnskapalinn af.
  • Nánari upplýsingar um meðferð, endurnýtingu og endurvinnslu á heimilisraftækjum fást með því að hafa samband við lögbert staðaryfirvald, viðtökubjónustu fyrir heimilisúrgang eða verslunina þar sem tækið var keypt.

Hvaða tæki falla ekki undir skilmála fimm (5) ára ábyrgðar IKEA?

Vörulína sem ber vöruheitið LAGAN og öll tæki sem keypt voru hjá IKEA fyrir 1. ágúst 2007.

Hver mun framkvæma þjónustuna?

IKEA þjónustuaðili mun veita þjónustu í eigin þjónustuaðstöðu eða í gegnum viðurkennt kerfi þjónustuaðila.

Hvað fellur undir þessa ábyrgð?

Ábyrgðin nær yfir bilun á tæki sem til komin er vegna galla í samsetningu eða efnisgalla sem koma fram eftir kaupdag frá IKEA. Ábyrgðin gildir einungis ef um heimilisnotkun er að ræða. Undantekningar eru tilgreindar undir kaflanum „Hvað fellur ekki undir þessa IKEA ábyrgð?" Innan þess tíma sem ábyrgðin tekur til fellur allur kostnaður, s.s. viðgerðir, varahlutir, vinnu- og ferðakostnaður á þjónustuaðilann, að því tilskildu að tækið sé aðgengilegt til viðgerðar án sérstakra útgjalda. Um þessa skilmála gilda viðmiðunarreglur Evrópusambandsins (Nr. 99/44/ESB) svo og staðbundnar reglur. Allir hlutir sem teknir eru úr tækjum og skipt er um eru eign IKEA.

Hvað gerir IKEA til að bæta úr vandamálinu?

Þjónustuaðili á vegum IKEA skoðar tækið og ákvarðar hvort það fellur undir ákvæði ábyrgðarinnar. Ef það fellur undir ákvæði hennar mun þjónustuaðili á vegum IKEA, eða viðurkenndur samstarfsaðili hans, samkvæmt ákvörðun hans eingöngu, sinna viðgerð eða skipta tækinu út með samskonar eða svipaðri vöru.

Hvað fellur ekki undir þessa IKEA ábyrgð?

  • Eðlilegt slit vegna notkunar.
  • Skemmdir sem eru af völdum ásetnings eða hirðuleysis, skemmdir sem verða vegna þess að ekki er farið eftir notkunarleiðbeiningum, skemmdir vegna rangrar uppsetningar eða tengingar við ranga spennu, skemmdir vegna rafefnafræðilegra efnahvarfa, ryðs, tæringar, vatnsskemmda svo sem ofmettunar kalks í vatni en takmarkast ekki þar við svo og skemmdir vegna óeðlilegra umhverfisáhrifa.
  • Rekstrarvörur svo sem rafhlöður og perur. Aukahlutir og skrautmunir sem hafa ekki áhrif á eðlilega notkun tækisins svo og rispur og hugsanlegur litamismunur.
  • Óhöpp sem verða vegna aðskotahluta eða efna sem notuð eru við hreinsun og losun á stíflum úr síum, frárennsliskerfum eða sápuskúffum.
  • Skemmdir á eftirfarandi hlutum: postulíni, aukahlutum, leirvöru- og hnífaparakörfum, að- og frárennslum, þéttingum, perum og ljósakúplum, skermum, hólkum, hlífum og hlutum af hlífum. Þetta á við nema hægt sé að sanna að þessar skemmdir séu vegna framleiðslugalla.
  • Tilfelli þar sem enginn galli finnst meðan á heimsókn tæknimanns stendur. Viðgerðir sem ekki eru framkvæmdar af tilnefndum þjónustuaðilum og/eða viðurkenndum samningsbundnum þjónustuaðilum eða ef upprunalegir varahlutir hafa ekki verið notaðir. Viðgerðir sem framkvæmdar eru vegna rangrar ísetningar eða samrýmist ekki tæknilýsingu.
  • Notkun tækis utan heimilis, t.d. í atvinnuskyni.
  • Skemmdir í flutningi. Ef viðskiptavinur flytur vöruna heim til sín eða annað heimilisfang, er IKEA ekki ábyrgt fyrir neins konar skemmdum sem geta orðið meðan á flutningi stendur. Ef IKEA afhendir vöruna hins vegar á heimilisfang viðskiptavinarins mun IKEA bæta skemmdir sem hafa orðið meðan á afhendingu vörunnar stóð.

Kostnaður vegna fyrstu uppsetningar IKEA tækisins. Ef tilnefndur þjónustuaðili IKEA eða viðurkenndur samningsaðili þess gerir hins vegar við eða skiptir um tækið samkvæmt ábyrgðarskilmálunum mun þjónustuaðilinn eða hinn viðurkenndi samningsaðili setja tækið sem gert var við aftur upp eða setja upp nýtt tæki ef með þarf.

Þessar takmarkanir eiga þó ekki við um gallalaust verk sem unnið er af þjálfuðum sérfræðingi sem notar upprunalega varahluti frá okkur til að aðlaga tækið að tæknilýsingu annars ESB-ríkis.

Beiting landslaga

IKEA ábyrgðin veitir kaupanda lögboðinn rétt sem nær til allra krafna samkvæmt í landslögum eða gengur lengra en þau. Þessir skilmálar takmarka þó ekki á neinn hátt rétt neytandans sem kveðið er á um í landslögum.

Gildissvæði

Vegna tækja sem keypt eru í einu ESB-landi og flutt yfir í annað ESB-land verður þjónusta veitt í samræmi við ábyrgðarskilyrði sem teljast eðlileg í nýja landinu.

Skuldbinding til að veita þjónustu innan ramma ábyrgðarinnar er aðeins fyrir hendi ef tækið samræmist og er sett upp samkvæmt:

  • tæknilýsingu landsins þar sem ábyrgðarkrafan er sett fram;
  • leiðbeiningum um samsetningu og öryggishandbók tækisins.

Ábyrgð eftirþjónusta fyrir IKEA tæki

Hafðu samband við viðurkenndan eftirþjónustuaðila til að:

  • leggja fram þjónustubeiðni samkvæmt ábyrgð þessari;
  • fá nánari skýringar á uppsetningu á IKEA tækinu í sérstakri IKEA eldhúsinnréttingu;
  • fá skýringar á aðgerðum IKEA tækja.

Til að tryggja bestu mögulegu þjónustu þarf að lesa þessar leiðbeiningar um samsetningu og/eða notendahandbókina áður en haft er samband við þjónustuaðilann.

Hvernig er haft samband við okkur ef þjónusta er nauðsynleg

IKEA KULINARISK - Hvernig er haft samband við okkur ef þjónusta er nauðsynleg - 1

Aðiustu síður þessarar handbókar er heiðarlisti yfir viðurkennda þjónustuaðila IKEA og símanúmer þeirra hvers í sínu landi.

IKEA KULINARISK - Hvernig er haft samband við okkur ef þjónusta er nauðsynleg - 2

Til að veita sem skjótasta þjónustu mælum við með því að nota sérstök símanúmer sem tiltekin eru í þessari handbók. Notið alltaf þau númer sem vísað er til í sérstökum notendaleiðbeiningum fyrir það tæki sem aðstoð er þörf fyrir.

Einnig þarf alltaf að vísa til IKEA hlutarnúmersins (8-stafa talnakóða) og 12-stafa þjónustunúmers sem er á merkiplötu tækisins.

IKEA KULINARISK - Hvernig er haft samband við okkur ef þjónusta er nauðsynleg - 3

GEYMIÐ SÖLUKVITTUNINA!

Hún er sönnun fyrir kaupunum og er nauðsynleg þegar sótt er um ábyrgð. Sölukvittunin gefur einnig upp IKEA heiti og hlutarnúmer vörunnar (8-stafa talnakóða) fyrir hvert tæki sem þið hafið keypt.

Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : IKEA

Líkan : KULINARISK

Flokkur : Madrass