ARL 8781 - Réfrigérateur IGNIS - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis ARL 8781 IGNIS á PDF sniði.

IGNIS ARL 8781 - Kælir
📄 8 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice IGNIS ARL 8781 - page 1
Skoða handbókina : Íslenska IS Italiano IT
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um ARL 8781 IGNIS

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Netfangið þitt er áfram einkamál: það er aðeins notað til að láta þig vita ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Réfrigérateur á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína ARL 8781 - IGNIS og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. ARL 8781 vörumerkisins IGNIS.

NOTENDAHANDBÓK ARL 8781 IGNIS

IGNIS ARL 8781 - 1

Notandahandbók

NOTANDAHANDBÓK

ATRÍDASKRÁ

Leiðbeiningar um notkun og umhirðu 3

Kæliskápsljós 3

LED-ljósaperan fjarlægð (eftir gerð)....3

Hillur 3

Hurð....3

Hvernig nota á búnaðinn 4

FYRSTA NOTKUN....4

Kæliskápshólf og geymsla matvæla....4

Hvernig geyma á fersk matvæli og drykki 4

Matargeymsla frystihólfs 5

Geymslutímar fyrir heimafrystan mat 5

Hvernig afísa skal frystihólfið 6

Vinnsluhljóð 6

Ráðleggingar ßegar tækið er ekki í notkun....6

Prif og viðhald 7

Skipt um péttingar....8

Kæliskápsljós

Ljósabúnaðurinn innan í kæliskápsrýminu notar LED-ljós sem veita betri lýsingu en hefðbundnar perur auk þess að nota mjög litla orku. Hafið samband við tæknibjónustu ef skipta þarf um.

Mikilvægt: Pað kviknar á ljósi kæliskápsrýmisins pegar hurð kæliskápsins er opnuð.

LED-ljósaperan fjarlægð (eftir gerð)

Takið tækið alltaf úr sambandi frá rafmagni áður en skipt er um ljósaperuna. Fylgið síðan leiðbeiningunum fyrir þá tegund ljósaperu sem tækið notar. Skiptið um ljósaperuna með peru af sömu eiginleikum sem fæst hjá tæknipjónustunni og viðurkenndum söluaðilum.

Ljósagerð 1)

Til að fjarlægja ljósaperuna skal losa hana með því að snúa rangsælis eins og synt á myndinni. Bíðið í 5 mínútur áður en tækið er tengt.

LED-ljósapera (hámark 25 W)

IGNIS ARL 8781 - LED-ljósaperan fjarlægð (eftir gerð) - 1

IGNIS ARL 8781 - LED-ljósaperan fjarlægð (eftir gerð) - 2

Ljósagerð 2)

Ef tækið er með LED-ljós, eins og sýnd eru á myndunum að neðan, hafíð þá samband við tækníbjónustu ef skipta þarf um. LED-ljós endast lengur en hefðbundnar ljósaperur, auka sýnileika að innan og eru umhverfisvæn.

IGNIS ARL 8781 - LED-ljósaperan fjarlægð (eftir gerð) - 3

IGNIS ARL 8781 - LED-ljósaperan fjarlægð (eftir gerð) - 4

IGNIS ARL 8781 - LED-ljósaperan fjarlægð (eftir gerð) - 5

Hillur

Hægt er að fjarlægja allar skúffur, hillur og hurðarhillur.

Hurð

Viðsnúanleiki hurðar

Til athugunar: Hægt er að breyta því í hvaða stefnu hurðin opnast. Ef þessi aðgerð er framkvæmd af viðgerðarþjónustu þá fellur hún ekki undir ábyrgð.

Fylgdu leiðbeiningunum í uppsetningarleiðbeiningar.

Hvernig nota á búnaðinn

FYRSTA NOTKUN

Bíðið í a.m.k. tvær klukkustundir eftir uppsetningu áður en tækið er tengt við rafmagn. Tækið fer sjálfkrafa í gang pegar það er tengt við rafmagn. Tilvalið geymsluhitastig fyrir matvælin er forstillt í verksmiðjunni.

Pegar kveikt hefur verið á tækinu verður að bíða í 4-6 klukkustundir til að náð sé réttu geymsluhitastigi fyrir tæki sem sett hefur verið venjulegt magn í. Staðsetjið bakteríuvarnar og lykteyðandi síuna í viftuna eins og sýnt er á pakkningu síunnar (ef við á). Ef hljóðmerkið heyrist þýðir það inngrip hitastigsviðvörunarinnar: Ýtið á hnappinn til að slökkva á hljóðviðvöruninni.

Kæliskápshólf og geymsla matvæla

Kæliskápsrýmið er til að geyma fersk matvæli og drykki. Kæliskápsrýmið afísar sig á fullkomlega sjálfvirkan hátt. Tilfallandi vatnsdropar innan á afturvegg rýmisins eru merki um sjálfvirka afísingarfasann. Leysingavatnið er leitt með rás í niðurfall og síðan safnað í ílát, þar sem það gufar upp.

Til athugunar: Umhverfishiti, hversu oft hurðirnar eru opnaðar og staðsetning tækisins geta haft áhrif á innra hitastigið í báðum rýmunum. Stillið hitastigið eftir þessum þáttum. Við aðstæður þegar raki er mikill getur rakapétting myndast í kæliskápsrýminu, sérstaklega á glerhillunum. Í þessu tilfelli er mælt með að loka ílátum með vökva (t.d. pottur með soði), pakka matvælum sem hafa mikið vatnsinnihald (t.d. grænmeti) og kveikja á viftunni, ef hún er til staðar. Hægt er að fjarlægja allar skúffur, hurðarhillur og aðrar hillur.

Loftræsting

Loftræsting gerir mögulega betri dreifingu hitastigsins innan í rýminu og, þar af leiðandi, betri varðveislu matvælanna og dregur úr umframraka. Hindrið ekki loftræstisvæðið.

Hvernig geyma á fersk matvæli og drykki

Matvæli sem gefa af sér mikið magn af etýlengasi (epli, apríkósur, perur, ferskjur, lárperur, fíkjur, sveskjur, bláber, melónur, baunir) ættu alltaf að vera aðskilin frá þeim sem eru viðkvæm fyrir þessu gasi, eins og ávextir, grænmeti og salat, eða pakka þeim inn til að minnka ekki geymslupolið; til dæmis skal ekki geyma tómata með kíví ávöxtum eða káli. Geymið ekki matvæli of þétt saman svo nægileg hringrás lofts verði möguleg. Notið endurvinnanleg ílát úr plasti, málmí, áli og gleri og matarfilmur til að pakka inn matvælum.

Ef verið er með lítið magn af matvælum til geymslu í kæliskáp er ráðlagt að nota hillurnar fyrir ofan ávaxta- og grænmetisskúffuna þar sem þetta er kaldasta svæðið í rýminu. Notið alltaf lokuð ílát fyrir vökva og fyrir matvæli sem geta gefið frá sér lykt eða mengast af flutningi lyktar og bragðefna eða hyljið þau. Til að hindra að flöskur velti um koll skal nota flöskuhaldarann (fáanlegur á völdum gerðum).

IGNIS ARL 8781 - Hvernig geyma á fersk matvæli og drykki - 1

Skýring

TEMPRAĐ SVÄDI

Mælt með til að geyma suðræna ávexti, dósir, drykki, egg, sósur, súrar gúrkur, smjör, sultu

IGNIS ARL 8781 - TEMPRAĐ SVÄDI - 1

KALT SVÄDI

Tilvalið fyrir geymslu osta, mjólkur, daglegs matar, sælkeravara, jógúrts

IGNIS ARL 8781 - KALT SVÄDI - 1

KALDASTA SVÆDI

Tilvalið fyrir geymslu á áleggi, eftirréttum, kjöti og fisk

IGNIS ARL 8781 - KALDASTA SVÆDI - 1

ÁVAXTA- & GRÆNMETISSKÚFFA

**

Fyrir gerðir með „0 ° ZONE“-hólf (svæði með 0°) er „kaldasta svæðið“ það sem er auðkennt í skýringunum

Matargeymsla frystihólfs

* *** í frystihólfinu er hægt að geyma matvæli til langs tíma og frysta fersk matvæli. Hversu mikið magn af ferskum matvælum er hægt að frysta á 24 klukkustunum stendur skrifað á merkiplötuna. Raðið ferskum matvælum á frystisvæðið innan í frystihólfinu og skiljið eftir nægilegt pláss í kringum matarpakkningarnar til að hringrás lofts sé óhindruð. Ráðlagt er frysta ekki aftur matvæli sem hafa verið þídd niður að hluta. Mikilvægt er að pakka matvælunum inn á þann hátt að innkoma vatns, raka eða rakaþéttingar sé hindruð.

ísmolar

Fyllið 2/3 af klakabakkanum með vatni og setjið hann aftur í frystihólfið. Notið ekki undir neinum kringumstæðum beitta eða oddhvassa hluti til að fjarlægja klakana.

Skúffurnar fjarlægðar

Togið skúffurnar út eins langt og hægt er, lyftið þeim upp og fjarlægið þær. Til að fá meira pláss er hægt að nota frystihólfíð án skúffanna. Verið viss um að hurðin lokist almennilega eftir að matvælin eru sett aftur á grindurnar/hillurnar.

IGNIS ARL 8781 - Skúffurnar fjarlægðar - 1

***

Skýring
IGNIS ARL 8781 - Skúffurnar fjarlægðar - 2
FRYSTISKÚFFA

IGNIS ARL 8781 - Skúffurnar fjarlægðar - 3
FRYSTISVÆDIISSKÚFFA

(HÁMARKS KULDASVÆDI) Mælt með til að frysta ferskan/eldaðan mat.

***

Aðeins fyrir gerðir CB310 e CB380 (sjá merkispjaldið sem er staðsett við hlið ávaxta- og grænmetisskúffunnar)

Geymslutímar fyrir heimafrystan mat

VaraFRYSTIGEYMSLUHÓLF
Geymslutími (-12 °C)Ráðlagður geymslutími (-18°C)Geymslutími (-24 °C)
Smjör eða smjörlíki1 mánuður6 mánuðir9 mánuðir
Fiskur1 mánuður1-3 mánuðir6 mánuðir
Ávextir (nema sítrus) og grænmeti1 mánuður8-12 mánuðir12 mánuðir
Kjöt
Skinkupylsa1 mánuður2 mánuðir12 mánuðir
Steikur (naut-svín-lamb)8 -12 mánuðir
Steikur eða kótilettur (naut-lamb-svín)4 mánuðir
Mjólk, ferskur vökvi, ostur, rjómaís eða frauðís1 mánuður1-3 mánuðir5 mánuðir(ekki mælt með fyrir ís)
Fuglakjöt (kjúklingur-kalkúnn)1 mánuður5-7 mánuðir9 mánuðir

RÝMI FYRIR ÓFROSIN MATVÆLI

VaraGeymslutími (0-3 °C)Geymslutími (3-6 °C)Geymslutími (6-8 °C)
Dósir, drykkir, egg, sósur, súrsað grænmeti, smjör, sulta3-4 vikur3-4 vikur3-4 vikur
Suðrænir ávextirEkki ráðlagt2-4 vikur3-4 vikur
ostur, mjólk, mjólkurmatur, sælkeravara, jógúrt2-5 dagar2-5 dagar2-5 dagar
Álegg, eftirréttir, kjöt og fiskur og heimalagaður matur3-5 dagar1-2 dagarEkki ráðlagt
Geymið grænmeti og ávexti (fyrir utan suðræna ávexti og sítrus)15 dagar10-12 dagar4-7 dagar

Hvernig afísa skal frystihólfið

  1. Ráðlagt er að stilla á lægra hitastig eða kveikja á hraðfrystingu/hraðkælingu* a.m.k. fjórum klukkustundum áður en matvælin eru fjarlægð úr frystihólfinu, til að matvælin varðveitist lengur í afísingarfasanum.
  2. Til að afísa skal slökkva á tækinu og fjarlægja skúffurnar. Setjið froosnu matvælin á kaldan stað. Hafíð hurðina opna til að ísingin bráðni. Til að hindra að vatn leki meðan á afísingunni stendur er ráðlagt að setja íseygan klút í botn frystihólfsins og vinda hann reglulega.
  3. Prífið innan úr frystihólfinu og Þurrkið það vandlega.
  4. Kveikið aftur á tækinu og setjið matvælin aftur inn.

Vinnsluhljóð

  1. Suð sem þjappan myndar er eðlilegt þegar tækið er að vinna.

IGNIS ARL 8781 - Vinnsluhljóð - 1

  1. Þegar kælimiðilsgasið fer í gegnum kælirásina myndast gutl- og snarkhljóð, Þetta eru því eðlileg hljóð.

IGNIS ARL 8781 - Vinnsluhljóð - 2

  1. Mögulegt er að „heyra“ marr Þegar Þjappan er virk og óvirk: Þetta er eðlilegt hljóð sem stafar af Því hvernig tækið er byggt upp.

IGNIS ARL 8781 - Vinnsluhljóð - 3

  1. Athugið að hillurnar innan á kæliskápshurðinni, hillurnar og skúffurnar í kæliskápsrýminu séu festar og staðsettar á réttan hátt, til að koma í veg fyrir mögulegan titring.
  2. Setjið ekki glerílát (flöskur, krukkur o.s.frv.) í beina snertingu hvert við annað, til að hindra titring.
  3. Petta tæki er búið þjöppu sem vinnur við besta hraða til að lágmarka orkunotkun. Í sumum tilfellum getur það gerst (á sumrin eða ef mikið magn matvæla er sett inn) að þjappan eykur hraðann og er þess vegna háværari en venjulega.

Ráðleggingar pegar tækið er ekki í notkun

Í pví tilfelli sem tækið er ekki notað

Aftengið tækið frá rafveitu, tæmið það (ef þarf) og þrífið.

Haldið hurðunum opnum í hálfa gátt til að leyfa hringrás lofts innan í rýmunum. Með því er komið í veg fyrir að mygla og slæm lykt myndist.

Í tilfelli rafmagnstruflunar

Haldið hurðunum lokuðum þannig að matvælin haldist köld eins lengi og mögulegt er. Frystið ekki aftur matvæli sem hafa verið þídd niður að hluta. Ef það er langvarandi rafmagnsleysi gæti rafmagnsleysisviðvörunin einnig virkjast (í tækjum með rafeindabúnaði).

Prif og viðhald

Áður en Þrif- eða viðhaldsaðgerðir eru hafnar skal taka tækið úr sambandi frá rafveitu eða aftengja frá rafmagni. Notið aldrei svarfandi efni. Prífið aldrei kæliskápshluta með eldfimum vökvum.

Notið ekki gufuhreinsitæki.

Ekki skal þrífa hnappana og skjá stjórnborðsins með alkóhóli eða efnum sem leidd eru af alkóhóli, heldur með þurrum klút.

Prífið tækið af og til með klút og lausn af heitu vatni og hlutlausu hreinsiefni sérstaklega fyrir Þrif á innri hluta kæliskápsins.

Til að tryggja stöðugt og rétt flæði leysingavatnsins skal þrífa reglulega innan úr niðurfallinu sem staðsett er á afturvegg kæliskápsrýmisins nálægt ávaxta- og grænmetisskúffunni með því að nota áhaldið sem fylgir með.

IGNIS ARL 8781 - Prif og viðhald - 1

Skipt um péttingar

IGNIS ARL 8781 - Skipt um péttingar - 1

Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : IGNIS

Líkan : ARL 8781

Flokkur : Kælir