ARL 6601 - Réfrigérateur IGNIS - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis ARL 6601 IGNIS á PDF sniði.
Spurningar notenda um ARL 6601 IGNIS
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Réfrigérateur á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína ARL 6601 - IGNIS og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. ARL 6601 vörumerkisins IGNIS.
NOTENDAHANDBÓK ARL 6601 IGNIS

Notandahandbók
NOTANDAHANDBÓK
ATRÍDASKRÁ
Leiðbeiningar um notkun og umhirðu 3
Kæliskápsljós 3
LED-ljósaperan fjarlægð (eftir gerð)....3
Hillur 3
Hurð....3
Hvernig nota á búnaðinn 4
FYRSTA NOTKUN....4
Kæliskápshólf og geymsla matvæla....4
Hvernig geyma á fersk matvæli og drykki 4
Matargeymsla frystihólfs 5
Geymslutímar fyrir heimafrystan mat 5
Hvernig afísa skal frystihólfið 6
Vinnsluhljóð 6
Ráðleggingar ßegar tækið er ekki í notkun....6
Prif og viðhald 7
Skipt um péttingar....8
Kæliskápsljós
Ljósabúnaðurinn innan í kæliskápsrýminu notar LED-ljós sem veita betri lýsingu en hefðbundnar perur auk þess að nota mjög litla orku. Hafið samband við tæknibjónustu ef skipta þarf um.
Mikilvægt: Pað kviknar á ljósi kæliskápsrýmisins pegar hurð kæliskápsins er opnuð.
LED-ljósaperan fjarlægð (eftir gerð)
Takið tækið alltaf úr sambandi frá rafmagni áður en skipt er um ljósaperuna. Fylgið síðan leiðbeiningunum fyrir þá tegund ljósaperu sem tækið notar. Skiptið um ljósaperuna með peru af sömu eiginleikum sem fæst hjá tæknipjónustunni og viðurkenndum söluaðilum.
Ljósagerð 1)
Til að fjarlægja ljósaperuna skal losa hana með því að snúa rangsælis eins og synt á myndinni. Bíðið í 5 mínútur áður en tækið er tengt.
LED-ljósapera (hámark 25 W)


Ljósagerð 2)
Ef tækið er með LED-ljós, eins og sýnd eru á myndunum að neðan, hafíð þá samband við tækníbjónustu ef skipta þarf um. LED-ljós endast lengur en hefðbundnar ljósaperur, auka sýnileika að innan og eru umhverfisvæn.



Hillur
Hægt er að fjarlægja allar skúffur, hillur og hurðarhillur.
Hurð
Viðsnúanleiki hurðar
Til athugunar: Hægt er að breyta því í hvaða stefnu hurðin opnast. Ef þessi aðgerð er framkvæmd af viðgerðarþjónustu þá fellur hún ekki undir ábyrgð.
Fylgdu leiðbeiningunum í uppsetningarleiðbeiningar.
Hvernig nota á búnaðinn
FYRSTA NOTKUN
Bíðið í a.m.k. tvær klukkustundir eftir uppsetningu áður en tækið er tengt við rafmagn. Tækið fer sjálfkrafa í gang pegar það er tengt við rafmagn. Tilvalið geymsluhitastig fyrir matvælin er forstillt í verksmiðjunni.
Pegar kveikt hefur verið á tækinu verður að bíða í 4-6 klukkustundir til að náð sé réttu geymsluhitastigi fyrir tæki sem sett hefur verið venjulegt magn í. Staðsetjið bakteríuvarnar og lykteyðandi síuna í viftuna eins og sýnt er á pakkningu síunnar (ef við á). Ef hljóðmerkið heyrist þýðir það inngrip hitastigsviðvörunarinnar: Ýtið á hnappinn til að slökkva á hljóðviðvöruninni.
Kæliskápshólf og geymsla matvæla
Kæliskápsrýmið er til að geyma fersk matvæli og drykki. Kæliskápsrýmið afísar sig á fullkomlega sjálfvirkan hátt. Tilfallandi vatnsdropar innan á afturvegg rýmisins eru merki um sjálfvirka afísingarfasann. Leysingavatnið er leitt með rás í niðurfall og síðan safnað í ílát, þar sem það gufar upp.
Til athugunar: Umhverfishiti, hversu oft hurðirnar eru opnaðar og staðsetning tækisins geta haft áhrif á innra hitastigið í báðum rýmunum. Stillið hitastigið eftir þessum þáttum. Við aðstæður þegar raki er mikill getur rakapétting myndast í kæliskápsrýminu, sérstaklega á glerhillunum. Í þessu tilfelli er mælt með að loka ílátum með vökva (t.d. pottur með soði), pakka matvælum sem hafa mikið vatnsinnihald (t.d. grænmeti) og kveikja á viftunni, ef hún er til staðar. Hægt er að fjarlægja allar skúffur, hurðarhillur og aðrar hillur.
Loftræsting
Loftræsting gerir mögulega betri dreifingu hitastigsins innan í rýminu og, þar af leiðandi, betri varðveislu matvælanna og dregur úr umframraka. Hindrið ekki loftræstisvæðið.
Hvernig geyma á fersk matvæli og drykki
Matvæli sem gefa af sér mikið magn af etýlengasi (epli, apríkósur, perur, ferskjur, lárperur, fíkjur, sveskjur, bláber, melónur, baunir) ættu alltaf að vera aðskilin frá þeim sem eru viðkvæm fyrir þessu gasi, eins og ávextir, grænmeti og salat, eða pakka þeim inn til að minnka ekki geymslupolið; til dæmis skal ekki geyma tómata með kíví ávöxtum eða káli. Geymið ekki matvæli of þétt saman svo nægileg hringrás lofts verði möguleg. Notið endurvinnanleg ílát úr plasti, málmí, áli og gleri og matarfilmur til að pakka inn matvælum.
Ef verið er með lítið magn af matvælum til geymslu í kæliskáp er ráðlagt að nota hillurnar fyrir ofan ávaxta- og grænmetisskúffuna þar sem þetta er kaldasta svæðið í rýminu. Notið alltaf lokuð ílát fyrir vökva og fyrir matvæli sem geta gefið frá sér lykt eða mengast af flutningi lyktar og bragðefna eða hyljið þau. Til að hindra að flöskur velti um koll skal nota flöskuhaldarann (fáanlegur á völdum gerðum).

Skýring
TEMPRAĐ SVÄDI
Mælt með til að geyma suðræna ávexti, dósir, drykki, egg, sósur, súrar gúrkur, smjör, sultu

KALT SVÆDI
Tilvalið fyrir geymslu osta, mjólkur, daglegs matar, sælkeravara, jógúrts

KALDASTA SVÆDI
Tilvalið fyrir geymslu á áleggi, eftirréttum, kjöti og fisk

ÁVAXTA- & GRÆNMETISSKÚFFA
**
Fyrir gerðir með „0 ° ZONE“-hólf (svæði með 0°) er „kaldasta svæðið“ það sem er auðkennt í skýringunum
Matargeymsla frystihólfs
* *** í frystihólfinu er hægt að geyma matvæli til langs tíma og frysta fersk matvæli. Hversu mikið magn af ferskum matvælum er hægt að frysta á 24 klukkustunum stendur skrifað á merkiplötuna. Raðið ferskum matvælum á frystisvæðið innan í frystihólfinu og skiljið eftir nægilegt pláss í kringum matarpakkningarnar til að hringrás lofts sé óhindruð. Ráðlagt er frysta ekki aftur matvæli sem hafa verið pídd niður að hluta. Mikilvægt er að pakka matvælunum inn á þann hátt að innkoma vatns, raka eða rakaþéttingar sé hindruð.
ísmolar
Fyllið 2/3 af klakabakkanum með vatni og setjið hann aftur í frystihólfið. Notið ekki undir neinum kringumstæðum beitta eða oddhvassa hluti til að fjarlægja klakana.
Skúffurnar fjarlægðar
Togið skúffurnar út eins langt og hægt er, lyftið þeim upp og fjarlægið þær. Til að fá meira pláss er hægt að nota frystihólfíð án skúffanna. Verið viss um að hurðin lokist almennilega eftir að matvælin eru sett aftur á grindurnar/hillurnar.

***
Skýring

FRYSTISKÚFFA

FRYSTISVÆDIISSKÚFFA
(HÁMARKS KULDASVÆDI) Mælt með til að frysta ferskan/eldaðan mat.
***
Aðeins fyrir gerðir CB310 e CB380 (sjá merkispjaldið sem er staðsett við hlið ávaxta- og grænmetisskúffunnar)
Geymslutímar fyrir heimafrystan mat
| Vara | FRYSTIGEYMSLUHÓLF | ||
| Geymslutími (-12 °C) | Ráðlagður geymslutími (-18°C) | Geymslutími (-24 °C) | |
| Smjör eða smjörlíki | 1 mánuður | 6 mánuðir | 9 mánuðir |
| Fiskur | 1 mánuður | 1-3 mánuðir | 6 mánuðir |
| Ávextir (nema sítrus) og grænmeti | 1 mánuður | 8-12 mánuðir | 12 mánuðir |
| Kjöt | |||
| Skinkupylsa | 1 mánuður | 2 mánuðir | 12 mánuðir |
| Steikur (naut-svín-lamb) | 8 -12 mánuðir | ||
| Steikur eða kótilettur (naut-lamb-svín) | 4 mánuðir | ||
| Mjólk, ferskur vökvi, ostur, rjómaís eða frauðís | 1 mánuður | 1-3 mánuðir | 5 mánuðir(ekki mælt með fyrir ís) |
| Fuglakjöt (kjúklingur-kalkúnn) | 1 mánuður | 5-7 mánuðir | 9 mánuðir |
RÝMI FYRIR ÓFROSIN MATVÆLI
| Vara | Geymslutími (0-3 °C) | Geymslutími (3-6 °C) | Geymslutími (6-8 °C) |
| Dósir, drykkir, egg, sósur, súrsað grænmeti, smjör, sulta | 3-4 vikur | 3-4 vikur | 3-4 vikur |
| Suðrænir ávextir | Ekki ráðlagt | 2-4 vikur | 3-4 vikur |
| ostur, mjólk, mjólkurmatur, sælkeravara, jógúrt | 2-5 dagar | 2-5 dagar | 2-5 dagar |
| Álegg, eftirréttir, kjöt og fiskur og heimalagaður matur | 3-5 dagar | 1-2 dagar | Ekki ráðlagt |
| Geymið grænmeti og ávexti (fyrir utan suðræna ávexti og sítrus) | 15 dagar | 10-12 dagar | 4-7 dagar |
Hvernig afísa skal frystihólfið
- Ráðlagt er að stilla á lægra hitastig eða kveikja á hraðfrystingu/hraðkælingu* a.m.k. fjórum klukkustundum áður en matvælin eru fjarlægð úr frystihólfinu, til að matvælin varðveitist lengur í afísingarfasanum.
- Til að afísa skal slökkva á tækinu og fjarlægja skúffurnar. Setjið froosnu matvælin á kaldan stað. Hafíð hurðina opna til að ísingin bráðni. Til að hindra að vatn leki meðan á afísingunni stendur er ráðlagt að setja íseygan klút í botn frystihólfsins og vinda hann reglulega.
- Prífið innan úr frystihólfinu og Þurrkið það vandlega.
- Kveikið aftur á tækinu og setjið matvælin aftur inn.
Vinnsluhljóð
- Suð sem þjappan myndar er eðlilegt þegar tækið er að vinna.

- Þegar kælimiðilsgasið fer í gegnum kælirásina myndast gutl- og snarkhljóð, Þetta eru því eðlileg hljóð.

- Mögulegt er að „heyra“ marr Þegar Þjappan er virk og óvirk: Þetta er eðlilegt hljóð sem stafar af Því hvernig tækið er byggt upp.

- Athugið að hillurnar innan á kæliskápshurðinni, hillurnar og skúffurnar í kæliskápsrýminu séu festar og staðsettar á réttan hátt, til að koma í veg fyrir mögulegan titring.
- Setjið ekki glerílát (flöskur, krukkur o.s.frv.) í beina snertingu hvert við annað, til að hindra titring.
- Petta tæki er búið þjöppu sem vinnur við besta hraða til að lágmarka orkunotkun. Í sumum tilfellum getur það gerst (á sumrin eða ef mikið magn matvæla er sett inn) að þjappan eykur hraðann og er þess vegna háværari en venjulega.
Ráðleggingar pegar tækið er ekki í notkun
Í pví tilfelli sem tækið er ekki notað
Aftengið tækið frá rafveitu, tæmið það (ef þarf) og þrífið.
Haldið hurðunum opnum í hálfa gátt til að leyfa hringrás lofts innan í rýmunum. Með því er komið í veg fyrir að mygla og slæm lykt myndist.
Í tilfelli rafmagnstruflunar
Haldið hurðunum lokuðum þannig að matvælin haldist köld eins lengi og mögulegt er. Frystið ekki aftur matvæli sem hafa verið þídd niður að hluta. Ef það er langvarandi rafmagnsleysi gæti rafmagnsleysisviðvörunin einnig virkjast (í tækjum með rafeindabúnaði).
Prif og viðhald
Áður en Þrif- eða viðhaldsaðgerðir eru hafnar skal taka tækið úr sambandi frá rafveitu eða aftengja frá rafmagni. Notið aldrei svarfandi efni. Prífið aldrei kæliskápshluta með eldfimum vökvum.
Notið ekki gufuhreinsitæki.
Ekki skal þrífa hnappana og skjá stjórnborðsins með alkóhóli eða efnum sem leidd eru af alkóhóli, heldur með þurrum klút.
Prífið tækið af og til með klút og lausn af heitu vatni og hlutlausu hreinsiefni sérstaklega fyrir Þrif á innri hluta kæliskápsins.
Til að tryggja stöðugt og rétt flæði leysingavatnsins skal þrífa reglulega innan úr niðurfallinu sem staðsett er á afturvegg kæliskápsrýmisins nálægt ávaxta- og grænmetisskúffunni með því að nota áhaldið sem fylgir með.

Skipt um péttingar
