PRAKTLYSING 705.142.37 - Store roulant IKEA - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis PRAKTLYSING 705.142.37 IKEA á PDF sniði.

IKEA PRAKTLYSING 705.142.37 - Rúllugardína
📄 152 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice IKEA PRAKTLYSING 705.142.37 - page 29
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um PRAKTLYSING 705.142.37 IKEA

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Netfangið þitt er áfram einkamál: það er aðeins notað til að láta þig vita ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Store roulant á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína PRAKTLYSING 705.142.37 - IKEA og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. PRAKTLYSING 705.142.37 vörumerkisins IKEA.

NOTENDAHANDBÓK PRAKTLYSING 705.142.37 IKEA

Börn frá 8 ára aldri og fólk með skerta skynjun, líkamlega eða andlega getu, geta notað þetta tæki ef þau eru undir eftirliti eða hafa fengið leiðbeiningar frá einstaklingi, sem er ábyrgur fyrir öryggi þeirra, um hvernig á að nota tækið á öruggan hátt og að þau skilji hætturnar sem því fylgja. Börn eiga ekki að leika sér með tækið.

Börn eiga ekki að sjá um þrif og viðhald nema undir eftirliti.

VIÐVÖRUN!

Fylgdu öllum leiðbeiningum, röng uppsetning getur valdið skaða.

Geymdu leiðbeiningarnar.

Pakkningarnar innihalda eina þráðlausa gardínu (1), eina fjarstýringu (2), einn magnara (3), einn aflgjafa (4) og einn rafhlöðupakka (5).

Gardína (1) Fjarstýring (2) Magnari (3) Aflgjafi (4) Rafhlöðupakki

Vörurnar hafa þegar verið paraðar saman, þú þarft því aðeins að tengja aflgjafann við magnarann og svo í innstungu. Settu síðan gardínurnar upp í gluggann og settu rafhlöðupakkann í hana til að hefjast handa.

Notkunarleiðbeiningar

IKEA PRAKTLYSING 705.142.37 - Notkunarleiðbeiningar - 1

Stingdu aflgjafanum í samband og tengdu við magnarann.

Notaðu aðeins USB snúrur sem mælt er með fyrir tækið þitt til að hlaða og skiptu út gölluðum snúrum samstundis.

Notkun á fjarstýringu

IKEA PRAKTLYSING 705.142.37 - Notkun á fjarstýringu - 1

Ýttu til að hækka þráðlausu gardínuna.

IKEA PRAKTLYSING 705.142.37 - Notkun á fjarstýringu - 2

Niður:

Ýttu til að lækka þráðlausu gardínuna.

IKEA PRAKTLYSING 705.142.37 - Niður: - 1

Pörun: Notað til að bæta IKEA Home smart vörum við snjallkerfið.

MIKILVÆGT: Kveikt þarf að vera á magnaranum og hann í sambandi svo hægt sé að stýra gardínunni með fjarstýringunni.

Notkun á magnara

IKEA Home smart vörurnar ná betri tengingu með TRÅDFRI magnaranum.

Notkun á þráðlausri gardínu

Lækka gardínu í neðstu stöðu:

Ýttu einu sinni á niður-hnappinn (stutt) á fjarstýringunni.

Hækka gardínu:

Ýttu og haltu niðri upp-hnappinum á fjarstýringunni eða gardínunni.

Gardínan hækkar á meðan þú heldur inni hnappinum. Slepptu hnappinum þegar gardínan hefur náð æskilegri hæð eða hámarkshæð.

Lækka gardínu:

Ýttu og haltu niðri niður-hnappinum á fjarstýringunni eða gardínunni.

Gardínan lækkar á meðan þú heldur inni hnappinum. Slepptu hnappinum þegar gardínan hefur náð æskilegri lengd eða lágmarkshæð.

Stillt á æskilega lágmarkshæð:

Aðeins er hægt að nota hnappana á gardínunni til að stilla hæðina.

Færðu gardínuna í æskilega lengd. Ýttu svo tvisvar stutt á annað hvort upp- eða niður-hnappinn á gardínunni til að vista stöðuna sem nýja lágmarkshæð.

Gardínan færist örlítið upp og niður til að staðfesta stillinguna.

Lágmarkshæð endurstillt:

Ef þú vilt breyta lágmarkshæð gardínunnar eða fara aftur á sjálfgefna lágmarkshæð skaltu byrja á því að færa gardínuna í efstu stöðu. Ýttu síðan annað hvort á upp- eða niður-hnappinn á gardínunni tvisvar.

Gardínan færist örlítið upp og niður til að staðfesta stillinguna.

Endurtaktu skrefin að ofan til að stilla nýja lágmarkshæð.

Jafna skakka gardínu

IKEA PRAKTLYSING 705.142.37 - Lágmarkshæð endurstillt: - 1

Ef gardínan festist á meðan hún lækkar gæti hún orðið skökk. Hækkaðu gardínuna í efstu stöðu til að jafna hana.

Bæta tækjum við fjarstýringuna

IKEA PRAKTLYSING 705.142.37 - Bæta tækjum við fjarstýringuna - 1

Pörun: Notað til að bæta IKEA Home smart vörum við snjallkerfið.

IKEA PRAKTLYSING 705.142.37 - Bæta tækjum við fjarstýringuna - 2

Fylgdu þessum skrefum til að bæta þráðlausum gardínum við kerfið. Gættu þess að kveikt sé á þráðlausu gardínunni.

  1. Opnaðu bakhliðina á fjarstýringunni og finndu pörunarhnappinn.
  2. Ýttu stutt á báða hnappana á gardínunni. Það ræsir kerfið sem er nú reiðubúið fyrir pörun í tvær mínútur.
  3. Haltu fjarstýringunni nálægt þráðlausu gardínunni sem þú vilt bæta við: Ekki í meira en 5 cm fjarlægð frá (1).
  4. Ýttu og haltu niðri pörunarhnappinum í minnst 10 sekúndur.
  5. Rautt LED ljós lýsir á fjarstýringunni. Hvítt LED ljós byrjar að blikka hægt á þráðlausu gardínunni þar til tækin hafa náð pörun.

Hægt er að para allt að 10 þráðlausar gardínur við 1 fjarstýringu.

Gættu þess að para aðeins eina gardínu í einu. Ef þú rekst á einhver vandamál við að para margar gardínur skaltu slökkva á þeim sem hafa þegar verið paraðar með því að aftengja rafhlöðupakkann í gardínunum í smá tíma. Það hjálpar til með pörunarferlið.

Skipt um rafhlöður í fjarstýringuIKEA PRAKTLYSING 705.142.37 - Bæta tækjum við fjarstýringuna - 3

Þegar fjarstýringin er notuð reglulega, mun rafhlaðan endast í um það bil tvö ár.

Þegar það er kominn tími á að skipta um rafhlöður blikkar rautt LED-ljós þegar þú notar fjarstýringuna. Opnaðu lokið að aftan og skiptu um rafhlöðu með nýrri CR2032 rafhlöðu.

VIÐVÖRUN!!

Hætta á sprengingu ef rafhlöðunni er skipt út fyrir ranga tegund. Fargaðu notuðum rafhlöðum samkvæmt leiðbeiningum.

Rafhlöðupakki hlaðinnIKEA PRAKTLYSING 705.142.37 - VIÐVÖRUN!! - 1

Hægt er að hlaða rafhlöðupakkann sem fylgir þráðlausu gardínunum með magnaranum. Notaðu meðfylgjandi USB-snúru til að hlaða. Við eðlilega notkun ætti að hlaða rafhlöðupakkann á sex mánaða fresti. LED stöðuvísir á rafhlöðupakkanum sýnir stöðu.

LED stöðuvísir:

Hleðsla í gangi: Kveikt á LED ljósi.

Hleðslu lokið: Slökkt á LED ljósi.

Villa: LED ljósið blikkar.

Endurstilla á grunnstillingu

Þegar þú hefur endurstillt magnarann verður þú að para fjarstýringuna við magnarann og para síðan aftur fjarstýringuna við þráðlausu gardínurnar.

Magnari:

Ýttu á prjóninn í gatinu undir magnaranum í a.m.k. 5 sekúndur.

IKEA PRAKTLYSING 705.142.37 - Magnari: - 1

Innan við 5 sek. Rautt LED ljós blikkar, sem gefur til kynna að hún sé endurstillt.

Þráðlaus gardína:IKEA PRAKTLYSING 705.142.37 - Magnari: - 2

Ýttu og haltu niðri báðum hnöppunum í minnst 5 sekúndur.

Hvítt LED ljós blikkar fjórum sinnum, sem gefur til kynna að gardínan sé endurstillt.

Gott að vita

  • Hægt er að nota aflgjafann til að hlaða rafhlöðupakkann í þráðlausu gardínunum.
  • Lengd USB snúrunnar og gæði hafa áhrif á hleðsluhraða og getu.
  • Búnaðurinn gæti hitnað þegar hann er í hleðslu. Það er eðlilegt og hann kólnar aftur þegar hann er fullhlaðinn.
  • Taktu aflgjafann úr sambandi fyrir þrif og þegar hann er ekki í notkun.
  • Rafhlöðupakkinn má ekki vera án hleðslu í langan tíma.
  • Rafhlöðupakkann má ekki hlaða þegar hann er í snertingu við eldfim efni á borð við vefnað.
  • Aðeins er hægt að nota rafhlöðupakkann með IKEA vörum.

MIKILVÆGT!

Þráðlausar gardínur:

  • Meðfylgjandi búnaður er aðeins ætlaður til notkunar innandyra og má nota við 0°C til 40°C (32°F til 104°F).
  • Hitastig við geymslu: -20°C til 25°C (4°F til 77°F).
  • Ekki skilja búnað eftir þar sem hann kemst í snertingu við beint sólarljós eða nálægt hitagjöfum, þar sem hann gæti ofhitnað.
  • Drægi milli sendi- og móttökubúnaðar er mælt í opnu rými.
  • Mismunandi byggingarefni og staðsetning skynjarans geta haft áhrif á svið þráðlausrar tengingar.

VIÐVÖRUN!

Aflgjafi:

  • Innstungan þarf að vera nálægt búnaðinum og aðgengileg.
  • Farga þarf öllum búnaði sem skemmist.
  • Notið tækin ekki í bleytu, raka eða miklu ryki þar sem það gæti valdið skemmdum.
  • Aldrei nota skemmda eða gallaða USB-snúru til að hlaða, það getur valdið skaða á búnaðinum og tækinu þínu.

Varúðarráðstafanir og tæknilegar upplýsingar má sjá á bakhlið aflgjafans.

VIDVÖRUN

Rafhlöðupakki:

  • Ekki má breyta, taka í sundur, opna, missa, kremja, gera gat á eða tæta rafhlöðuna.
  • Rafhlaðan má aldrei komast í snertingu við rigningu eða vatn.
  • Eld- og brunahætta. Rafhlaðan má ekki vera í 60° hita eða meira og ekki má brenna hana.
  • Haltu rafhlöðunni fjarri opnum loga og sólargeislum til að koma í veg fyrir uppsöfnun hita.
  • Haltu rafhlöðunni í fjarlægð frá háspennutækjum.
  • Varan er ekki leikfang, geymdu þar sem börn ná ekki til. Gættu þess að allir sem nota vöruna hafi lesið leiðbeiningarnar og fylgi þeim.
  • Ekki valda skammhlaupi í rafhlöðunni.
  • Ef rafhlaðan lekur, má vökvinn ekki komast í snertingu við húð eða augu.

Viðgerð á vöru

Ekki reyna að gera við vörurnar upp á eigin spýtur þar sem hætta er á raflosti og annarri hættu þegar lokin eru opnuð eða fjarlægð.

Tæknilegar upplýsingar

Tegund: E2102PRAKTLYSINGE1746 práðlaus magnari E1766 fjarstýring
Inntak: 7,2V DC, 2,0A 5,0V DC, 1,0A 3,0V, CR2032 rafhlaða
Drægi 10m í opnu rými
Aðeins til notkunar innanhúss
Vinnslutíðni: 2400-2483,5 MHz
Aflsafköst: 9,6 dBm (EIRP) 9,6 dBm (EIRP) 7,3 dBm (EIRP)

Aflgjafi

Tegund: ICPSW5-5EU-1A

ICPSW5-5GB-1

Inntak: 100-240 VAC, 50/60 Hz, 0,2A

Úttak: 5,0V DC

Hámarksspenna: 1,0A, 5,0W

Virk afkastageta að meðaltali: 78,3 %

Afkastageta undir litlu álagi: (10 %): 66,9 %

Orkunotkun undir engu álagi: 0,03 W

Rafhlöðupakki

Módel: BRAUNIT rafhlöðupakki

Tegund: ICBL7,2-18-USB-A1

Rúmtak: 2600mAh/18,72Wh

Inntak:

5,0V DC, 1,0A (Micro USB)

8,4V DC, 2,0A (4 pinna tengi)

Úttak: 7,2V DC, 2,0A

Endurhlaðanlegar litíumrafhlöður innan í.

Aðeins fyrir notkun innandyra

Táknið með mynd af ruslatunnu með krossi yfir þýðir að ekki má farga vörunni með venjulegu heimilissorpi. Vörunni þarf að skila í endurvinnslu eins og lög gera ráð fyrir á hverjum stað fyrir sig. Með því að henda slíkum vörum ekki með venjulegu heimilissorpi hjálpar þú til við að draga úr því magni af úrgangi sem þarf að brenna eða nota sem landfyllingu og lágmarkar möguleg neikvæð áhrif á heilsu fólks og umhverfið. Þú færð nánari upplýsingar í IKEA versluninni.

Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : IKEA

Líkan : PRAKTLYSING 705.142.37

Flokkur : Rúllugardína