STENKOL 904.969.54 - Chargeur de piles IKEA - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis STENKOL 904.969.54 IKEA á PDF sniði.

IKEA STENKOL 904.969.54 - Rafhlaða fyrir rafhlöður
📄 152 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice IKEA STENKOL 904.969.54 - page 31
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um STENKOL 904.969.54 IKEA

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Netfangið þitt er áfram einkamál: það er aðeins notað til að láta þig vita ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Chargeur de piles á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína STENKOL 904.969.54 - IKEA og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. STENKOL 904.969.54 vörumerkisins IKEA.

NOTENDAHANDBÓK STENKOL 904.969.54 IKEA

Börn frá 8 ára aldri og fólk með skert skynbragð, líkamlega eða andlega getu, geta notað þetta tæki ef þau eru undir eftirliti eða hafa fengið leiðbeiningar frá einstaklingi, sem er ábyrgur fyrir öryggi þeirra, um hvernig á að nota tækið á öruggan hátt og að það skilji hætturnar sem því fylgir. Börn eiga ekki að leika sér með tækið.

Börn eiga ekki að sjá um þrif og viðhald nema undir eftirliti.

Hleðslueiginleikar

  • Hlaða má 1 til 4 HR6/AA og/eða 1 til 4 HR03/AAA hleðslurafhlöður í tækinu.
  • 4 hleðslurásir. Tengdar rafhlöður eru hlaðnar hver fyrir sig
  • Hleðslan er mæld með dV-skynjurum (-dV/dT eða 0dV/dT).
  • Öryggi fylgir tímastilli og hitaskynjara.
  • Tækið skynjar ónýtar rafhlöður og rafhlöður sem ekki á að endurhlaða.
  • LED stöðuvísir með tveimur litum gefur til kynna stöðuhleðslu fyrir hverja rás.

Notkunarleiðbeiningar

  • Settu rafhlöðurnar í tækið og gættu þess að þær snúi rétt (+/-). Sjá mynd 1.
  • Stingdu hleðslutækinu í samband við rafmagn. • LED stöðuvísir:

Hvítt LED blikkar: Hleðsla í gangi hvítt LED ljósi lýsir stöðugt: Hleðslu lokið Rautt LED ljós blikkar : Villa

- Rautt LED ljósið blikkar ef óhlaðanlegar eða skemmdar rafhlöður eru óvart settar í tækið, eða tendrar rafhlöður eru of heitar.

Gott að vita

  • Glænýjar rafhlöður þarf að hlaða og nota tvisvar til þrisvar áður en þær sýna hámarksafköst.
  • Það er eðlilegt að rafhlöður hitni við hleðslu. Þær kólna fljótt eftir hleðslu.
  • Hleðslutími getur verið misjafn eftir rafhlöðum.
  • Hleðslutími getur verið misjafn eftir því hversu mikil hleðsla er eftir, aldri rafhlöðunnar og hitastigi.
  • Geymsluhitastig rafhlöðu: 0°C til 40°C.

VIÐVÖRUN

  • Taktu hleðslutækið úr sambandi áður en það er þrifið og þegar það er ekki í notkun.
  • Notaðu rakan klút þegar tækið er þrifið. Ekki setja það á kaf í vatn.
  • Slysahætta. Hætta á raflosti. Aðeins ætlað til notkunar innandyra.
  • Notaðu aðeins til að hlaða Ni-MH rafhlöður sem eru minnst 500mAh (AAA) eða 1000mAh (AA).
  • EKKI REYNA AÐ HLAÐA ÓHLAÐANLEGAR RAFHLÖÐUR.

Geymdu bæklinginn til að fletta upp í síðar.

Viðhald

Ekki reyna að gera við vöruna sjálf/ur. Með því að opna eða fjarlægja hlífar getur þú komist í snertingu við rafstrauma eða aðra hættu.

TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR

Módel: E2020 STENKOL

Úttak: 1,5V/ hleðslurás

Straumur 4 stk 3stk 2stk 1stk

AA/HR6 0.35A 0.46A 0.70A 0.70A

AAA/HR03 0.20A 0.275A 0.40A 0.40A

Æskilegar rafhlöðutegundir:

LADDA hleðslurafhlöður AA,

LADDA hleðslurafhlöður AAA

STENST UL STD.1310 VOTTAD AF CSA STD. C22.2 Nr. 223-M91.

Táknið með mynd af ruslatunnu með krossi yfir þýðir að ekki má farga vörunni með venjulegu heimilissorpi. Vörunni þarf að skila í endurvinnslu eins og lög gera ráð fyrir á hverjum stað fyrir sig. Með því að henda slíkum vörum ekki með venjulegu heimilissorpi hjálpar þú til við að draga úr því magni af úrgangi sem þarf að brenna eða nota sem landfyllingu og lágmarkar möguleg neikvæð áhrif á heilsu fólks og umhverfið. Pú færð nánari upplýsingar í IKEA versluninni.

Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : IKEA

Líkan : STENKOL 904.969.54

Flokkur : Rafhlaða fyrir rafhlöður