IKE74441IB - Cuisinière AEG - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis IKE74441IB AEG á PDF sniði.
Spurningar notenda um IKE74441IB AEG
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Cuisinière á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína IKE74441IB - AEG og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. IKE74441IB vörumerkisins AEG.
NOTENDAHANDBÓK IKE74441IB AEG
Þakka þér fyrir að velja þessa AEG vöru. Við höfum framleitt þessa vöru til að starfa fullkomlega í mörg ár og við höfum notað nýstárlega tækni sem gerir lífið einfaldara með aðgerðum sem ekki er víst að séu til staðar á venjulegum heimilistækjum. Vinsamlegast lestu þér til í nokkrar mínútur til að geta nýtt tækið sem best.
Fá leiðbeiningar um notkun, bæklinga, bilanaleit, þjónustu- og viðgerðarupplýsingar. www.aeg.com/support

Skráðu vöruna þína til að fá enn betri þjónustu: www.registeraeg.com

Kaupa aukahluti, rekstrarvörur og upprunalega varahluti fyrir heimilistæki þitt: www.aeg.com/shop
ÞJÓNUSTA VIÐ VIÐSKIPTAVINI
Notaðu alltaf upprunalega varahluti.
Þegar þú hefur samband við viðurkennda þjónustumiðstöð skaltu tryggja að þú sért með eftirfarandi gögn tiltæk: Gerð, vörunúmer, raðnúmer.
Upplýsingarnar má finna á merkiplötunni.
⚠️ Viðvörun / Aðvörun - Öryggisupplýsingar
i Almennar upplýsingar og ráð
Umhverfisupplýsingar
Með fyrirvara á breytingum.
EFNISYFIRLIT
- ÖRYGGISUPPLÝSINGAR.... 121
- ÖRYGGISLEIDBEININGAR....123
- UPPSETNING....125
- VÖRULÝSING....127
- DAGLEG NOTKUN.... 129
- GÓD RÁD 133
- UMHIRDA OG HREINSUN.... 136
- BILANALEIT....136
- TÆKNIGÖGN....138
- ORKUNÝTNI.... 138
- UMHVERFISMÁL.... 139
1. ⚠ ÖRYGGISUPPLÝSINGAR
Fyrir uppsetningu og notkun heimilistækisins skal lesa meðfylgjandi leiðbeiningar vandlega. Framleiðandinn ber ekki ábyrgð á neinum meiðslum eða skemmdum sem leiða af rangri uppsetningu eða notkun. Geymdu alltaf
leiðbeiningarnar á öruggum stað þar sem auðvelt er að nálgast þær til síðari notkunar.
- Börn, 8 ára og eldri og fólk með minnkaða líkamlega-, skyn-eða andlega getu, eða sem skortir reynslu og þekkingu, mega nota þetta tæki, ef þau eru undir eftirliti eða hafa verið veittar leiðbeiningar varðandi örugga notkun tækisins og ef þau skilja hættuna sem því fylgir. Halda skal börnum yngri en 8 ára gömlum og fólki með mjög miklar og flóknar fatlanir frá heimilistækinu, nema þau séu undir stöðugu eftirliti.
- Hafa ætti eftirlit með börnum til að tryggja að þau leiki sér ekki með heimilistækið.
- Haltu öllum umbúðum frá börnum og fargaðu þeim á viðeigandi hátt.
- VIÐVÖRUN: Haltu börnum og gæludýrum fjarri heimilistækinu þegar það er í gangi eða þegar það kólnar. Aðgengilegir hlutir verða heitir meðan á notkun stendur.
- Ef heimilistækið er með barnalæsingu ætti hún að vera virkjuð.
- Börn eiga ekki að hreinsa eða framkvæma notandaviðhald á heimilistækinu án eftirlits.
1.2 Almennt öryggi
- VIÐVÖRUN: Búnaðurinn og aðgengilegir hlutar hans verða heitir meðan á notkun stendur. Auðsýna ætti aðgát til að forðast að snerta hitaelementin.
- VIÐVÖRUN: Eldun án eftirlits með fitu eða olíu á eldunarhellu getur verið hættuleg og leitt til eldsvoða.
- Reyndu ALDREI að slökkva eld með vatni, heldur skaltu slökkva á heimilistækinu og hylja logann t.d. með loki eða eldvarnarteppi.
- VIÐVÖRUN: Ekki má veita rafmagni að heimilistækinu gegnum utanáliggjandi skiptibúnað, eins og tímastilli, eða tengja það við rafrás sem veitir kveikir og slekkur reglulega á.
- VARÚÐ: Eldunarferlið verður að vera undir eftirliti. Stutt eldunarferli verður stöðugt að vera undir eftirliti.
- VIÐVÖRUN: Hætta á eldsvoða: Geymið ekki hluti á eldunaryfirborðinu.
- Málmhluti eins og hnífa, gaffla, skeiðar og lok skal ekki leggja ofan á helluborðið því þeir geta orðið heitir.
- Ekki má nota heimilistækið fyrr en innbyggða virkið hefur verið uppsett.
- Notaðu ekki gufuhreinsibúnað til að hreinsa heimilistækið.
- Eftir notkun skal slökkva á helluborðselementinu með stýringunni og ekki treysta á pönnunemann.
- Ef sprungur eru í keramíkglerfletinum / glerfletinum skal slökkva á heimilistækinu og taka það úr sambandi við rafmagn. Ef heimilistækið er tengt beint við stofnæð með tengidós skal fjarlægja öryggið til að aftengja heimilistækið frá aflgjafanum. Í báðum tilfellum skal hafa samband við viðurkennda þjónustumiðstöð.
- Ef rafmagnssnúran er skemmd verður framleiðandi, viðurkennd þjónustumiðstöð eða álíka hæfur aðili að endurnýja hana til að forðast hættu.
- VIÐVÖRUN: Notaðu aðeins helluborðshlífar sem hannaðar eru af framleiðanda eldunartækisins eða framleiðandi heimilistækisins bendir á í notkunarleiðbeiningunum sem hentugar, eða helluborðshlífar sem innfelldar eru í heimilistækið. Notkun óviðeigandi hlífa getur valdið slysum.
2. ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
2.1 Uppsetning

ADVÖRUN!
Einungis til þess hæfur aðili má setja upp þetta heimilistæki.

ADVÖRUN!
Hætta á meiðslum eða skemmdum á heimilistækinu.
• Fjarlægðu allar umbúðir.
- Ekki setja upp eða nota skemmt heimilistæki.
- Fylgdu leiðbeiningum um uppsetningu sem fylgja með heimilistækinu.
- Haltu lágmarksfjarlægð frá öðrum heimilistækjum og einingum.
- Alltaf skal sýna aðgát þegar heimilistækið er fært vegna þess að það er þungt. Notaðu alltaf öryggishanska og lokaðan skóbúnað.
- Innsigla skal skorna fleti með þéttiefni til að koma í veg fyrir að raki valdi þenslu.
- Verndaðu botn heimilistækisins gegn gufu og raka.
- Settu heimilistækið ekki upp við hliðina á hurð eða undir glugga. Það kemur í veg fyrir að heit eldunarílát falli af heimilistækinu þegar dyrnar eða glugginn eru opnuð.
- Hvert heimilistæki er með kæliviftum neðst.
- Ef heimilistækið er sett upp fyrir ofan skúffu: – Ekki geyma litla hluti eða pappírsblöð sem hægt væri að toga í þar sem slíkt getur skemmt kælivifturnar eða skert kælikerfið. – Hafðu að minnsta kosti 2 cm fjarlægð á milli botns heimilistækisins og hluta sem eru geymdir í skúffunni.
- Fjarlægðu öll aðgreiningarspjöld sem eru sett upp í skápnum fyrir neðan heimilistækið.
2.2 Rafmagnstenging

ADVÖRUN!
Hætta á eldi og raflosti.
- Allar rafmagnstengingar skulu fara fram af viðurkenndum rafvirkja.
- Heimilistækið verður að vera jarðtengt.
- Áður en einhver aðgerð er framkvæmd skal ganga úr skugga um að heimilistækið sé aftengt frá aflgjafanum.
- Gakktu úr skugga um að færibreyturnar á merkiplötunni séu samhæfar við rafmagnsflokkun aðalæðar aflgjafa.
- Gættu þess að heimilistækið sé rétt uppsett. Laus eða röng rafmagnssnúra eða kló (ef við á) getur valdið því að tengillinn verði of heitur.
- Notaðu rétta rafmagnssnúru.
- Ekki láta raflagnir flækjast hverja um aðra.
- Gakktu úr skugga um að búið sé að setja upp vörn gegn raflosti.
- Notaðu álagsminnkandi klemmu á snúruna.
- Gakktu úr skugga um að rafmagnssnúran eða klóin (ef við á) snerti ekki heitt heimilistækið eða heit eldunaráhöld þegar þú tengir heimilistækið við innstungu.
- Notaðu ekki fjöltengi eða framlengingarsnúrur.
- Gakktu úr skugga um að rafmagnsklóin (ef við á) og snúran verði ekki fyrir skemmdum. Hafðu samband við viðurkennda þjónustumiðstöð eða rafvirkja til að skipta um skemmda rafmagnssnúru.
- Vörn lifandi og einangraðra hluta gegn raflosti verður að vera fest þannig að ekki sé hægt að fjarlægja hana án verkfæra.
- Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við rafmagnsinnstunguna í lok uppsetningarinnar. Gakktu úr skugga um að rafmagnsklóin sé aðgengileg eftir uppsetningu.
- Ef rafmagnsinnstungan er laus, skal ekki tengja rafmagnsklóna.
- Ekki toga í snúruna til að taka tækið úr sambandi. Taktu alltaf um klóna.
- Notaðu aðeins réttan einangrunarbúnað: Línuvarnarstraumloka, öryggi (öryggi með skrúfgangi fjarlægð úr höldunni), lekaliða og spólurofa.
- Rafmagnsuppsetningin verður að vera með einangrunarbúnað sem leyfir þér að aftengja tækið frá stofnæð á öllum pólum. Einangrunarbúnaðurinn verður að hafa að lágmarki 3 mm snertiopnunarvídd.
2.3 Notkun

AÐVÖRUN!
Hætta á meiðslum, bruna og raflosti.
- Fjarlægðu allar umbúðir, merkingar og verndarfilmu (ef við á) áður en notkun hefst.
- Þetta heimilistæki er eingöngu ætlað til heimilisnota (innanhúss).
- Breytið ekki forskrift tækisins.
- Gangið úr skugga um að loftræstiop séu ekki stífluð.
- Látið heimilistækið ekki vera án eftirlits á meðan það er í gangi.
- Setjið eldavélina á „off“ eftir hverja notkun.
- Ekki setja hnífapör eða pottlok á hellurnar. Pau geta orðið mjög heit.
- Notið ekki heimilistækið með blautar hendur eða þegar það er í snertingu við vatn.
- Notið ekki heimilistækið sem vinnusvæði eða geymslusvæði.
- Ef yfirborð heimilistækisins er sprungið skal samstundis aftengja það frá aflgjafa. Þetta er til að koma í veg fyrir raflost.
- Notendur sem eru með gangráð verða að vera í að lágmarki 30 cm fjarlægð frá spanhellum þegar heimilistækið er í gangi.
- Heit olía getur skvettst þegar þú setur mat í hana.

ADVÖRUN!
Hætta á eldsvoða og sprengingu
- Fita og olíur geta losað eldfimar gufur þegar þær eru hitaðar. Haltu eldi eða hituðum hlutum fjarri fitu og olíu þegar þú notar þær við matreiðslu.
- Gufur sem mjög heit olía losar geta valdið fyrirvaralausum bruna.
- Notuð olía sem getur innihaldið matarleifar getur valdið eldsvoða við lægra hitastig en olía sem er notuð í fyrsta skipti.
- Setjið ekki eldfim efni eða hluti bleytta með eldfimum efnum í, nálægt, eða á heimilistækið.

ADVÖRUN!
Hætta á skemmdum á heimilistækinu.
- Ekki geyma heit eldunarílát á stjórnborðinu.
- Ekki setja heitt pönnulok á gleryfirborð helluborðsins.
- Ekki láta eldunaráhöld sjóða þangað til þau borna.
- Gættu þess að láta hluti eða eldunarílát ekki detta á heimilistækið. Það getur skemmt yfirborðið.
- Ekki kveikja á eldavélinni ef á henni eru tóm eldunarílát eða engin eldunarílát.
- Ekki setja álpappír á heimilistækið.
- Eldhúsáhöld úr steypujárni, áli eða með skaddaðan botn geta valdið rispum á glerinu/glerkeramík. Lyftu alltaf þessum hlutum upp þegar þú þarft að hreyfa þá til á eldunaryfirborðinu.
- Þetta heimilistæki er eingöngu ætlað til matreiðslu. Ekki má nota það í öðrum tilgangi, til dæmis til að hita herbergi.
3. UPPSETNING

ADVÖRUN!
Sjá kafla um Öryggismál.
2.4 Umhirða og hreinsun
- Hreinsaðu heimilistækið reglulega til að yfirborðsefnin á því endist betur.
- Slökktu á heimilistækinu og láttu það kólna fyrir hreinsun.
- Notaðu ekki vatnsúða og gufu til að hreinsa heimilistækið.
- Hreinsaðu tækið með rökum og mjúkum klút. Notaðu aðeins hlutlaus þvottaefni. Notaðu ekki rispandi efni, stálull, leysiefni eða málmhluti.
2.5 Þjónusta
- Hafðu samband við viðurkennda þjónustumiðstöð til að gera við heimilistækið. Notaðu eingöngu upprunalega varahluti.
- Varðandi ljósin inn í þessari vöru og ljós sem varahluti sem seld eru sérstaklega: Þessi ljós eru ætluð að standast öfgakenndar aðstæður í heimilistækjum eins og hitastig, titring, raka eða til að senda upplýsingar um rekstrarstöðu tækisins. Þau eru ekki ætluð til að nota í öðrum tækjum og henta ekki sem lýsing í herbergjum heimila.
2.6 Förgun

ADVÖRUN!
Hætta á meiðslum eða köfnun.
- Hafðu samband við viðeigandi yfirvöld fyrir upplýsingar um hvernig farga skuli heimilistækinu.
- Aftengdu tækið frá rafmagni.
- Klipptu rafmagnssnúruna af upp við heimilistækið og fargaðu henni.
3.1 Fyrir uppsetninguna
Áður en þú setur upp helluborðið skaltu skrifa niður upplýsingarnar á merkiplötunni.
Merkiplatan er neðan á heimilistækinu.
Serial number (raðnúmer) ....
3.2 Innbyggð helluborð
Notaðu innbyggða helluborðið eingöngu eftir að þú hefur sett helluborðið upp með réttum hætti sem innbyggðan búnað og að yfirborð vinnusvæðisins uppfylli staðla.
3.3 Tengisnúra
• Helluborðinu fylgir rafmagnssnúra. - Notaðu eftirfarandi snúrutegund þegar skipt er um skemmdar rafmagnssnúrur: H05V2V2-F sem þolir 90 °C hita eða hærra. Hafðu samband við viðurkennda þjónustumiðstöð. Aðeins viðurkenndum rafvirkja er heimilt að skipta um rafmagnssnúruna.
3.4 Péttingin sett upp - Niðurfelld uppsetning
- Hreinsaðu fræsinguna í innréttingunni.
- Skerðu meðfylgjandi 3x10 mm péttilista í fjórar lengjur. Lengjurnar verða að vera jafn langar og fræsingin.
- Skerðu 45° horn á enda péttingarinnar. Þær ættu að passa nákvæmlega í hornin á fræsingunni.
- Festu péttinguna í fræsinguna. Ekki strekkja á péttingunni. Ekki láta enda péttingarinnar liggja hver ofan á öðrum. Þegar þú hefur sett saman helluborðið skaltu loka fyrir opið á milli keramikglersins og innréttingarinnar með sílikoni. Gakktu úr skugga um að sílikonið fari ekki undir keramikglerið.
3.5 Samsetning
Ef þú setur helluborðið upp undir gufugleypinum skaltu ráðfæra þig við leiðbeiningar fyrir uppsetningu á gufugleypinum er varðar lágmarksfjarlægð milli heimilistækjanna.

Ef heimilistækið er sett upp yfir skúffu kann að vera að útblástur helluborðsins muni hita upp hluti sem geymdir eru í skúffunni á meðan eldun stendur.


Þú finnur kennslumyndbandið „Hvernig á að setja upp niðurfellt AEG spanhelluborð“ með því að slá inn fullt heiti sem tilgreint er á myndinni hér að neðan.

YouTube
www.youtube.com/electrolux www.youtube.com/aeg
1 Spanhella 2 Stjórnborð
4.2 Hönnun stjórnbúnaðar spjalds

Notaðu skynjarareitina til að beita heimilistækinu. Skjáir, vísar og hljóð gefa til kynna hvaða aðgerðir eru í gangi.
| Skyn-jarareit-ur | Aðgerð Athugasemd | |
| 1 | ➊ | KVEIKJA/SLÖKKVA Til að kveikja og slökkva á helluborðinu. |
| 2 | Lás / Öryggisbúnaður fyrir börn Til að læsa / aflæsa stjórnborðinu. | |
| 3 | || | Hlé Til að kveikja og slökkva á aðgerðinni. |
| 4 | Bridge Til að kveikja og slökkva á aðgerðinni. | |
| 5 | - Hitastillingarskjár Til að sýna hitastillingu. | |
| 6 | - Tímastillisvísar á eldunarhellum Til að sýna fyrir hvaða hellu pú stillir tímann. | |
| 7 | - Tímastillisskjár Til að sýna tímann í mínútum. | |
| 8 | Hob 2 Hood Til að kveikja og slökkva á handvirkri stillingu aðgerðar-innar. | |
| 9 | - Til að velja eldunarhellu. | |
| 10 | +/- | - Til að auka eða minnka tímann. |
| 11 | P | PowerBoost Til að kveikja á aðgerðinni. |
| 12 | - Stjórnstika Til að stilla hitastillinguna. | |
4.3 Skjár fyrir hitastillingu
| Skjár Lýsing | |
| 0 | Slökkt er á eldunarhellunni. |
| 1 - 14 | Eldunarhellan gengur. |
| u | Hlé gengur. |
| A | Sjálfvirk hitun gengur. |
| P | PowerBoost gengur. |
| E + tala | Pað er bilun. |
| = / 7 - | OptiHeat Control (3 stiga stöðuljós fyrir afgangshita): halda áfram að elda / halda heitu / afgangshiti. |
| L | Lás / Öryggisbúnaður fyrir börn gengur. |
| F | Rangt eða of lítið eldunaráhald eða ekkert eldunaráhald á eldunarhellunni. |
| - | Sjálfvirk slokknun gengur. |
4.4 OptiHeat Control (3 stiga stöðuljós fyrir afgangshita)

ADVÖRUN!


Hætta er á bruna frá
hitaeftirstöðvum svo lengi sem kveikt er á vísi.
Spansuðuhellur framleiða nauðsynlegan hita fyrir eldunarferlið beint í botninn á eldunaráhaldinu. Glerkeramíkið er hitað með hita eldunaráhaldsins.
Vísarnir ☐ / ☐ kvikna þegar eldunarhella er heit. Þeir sýna stig
afgangshita fyrir eldunarhellurnar sem þú ert að nota í augnablikinu.
Vísirinn kann einnig að kvikna:
- fyrir nálægar eldunarhellur, jafnvel þótt þú sért ekki að nota þær,
- þegar heitt eldunarílát er sett á kalda eldunarhellu, • þegar helluborðið er afvirkjað en eldunarhella er enn heit.
Vísirinn slokknar þegar eldunarhellan hefur kólnað.
5. DAGLEG NOTKUN

ADVÖRUN!
Sjá kafla um Öryggismál.
Snertu Ⓛ1 sekúndu til að kveikja eða slökkva á helluborðinu.
5.2 Sjálfvirk slokknun
Aðgerðin slekkur sjálfkrafa á helluborðinu ef:
• allar eldunarhellur eru óvirkar, - þú stillir ekki hitastillinguna eftir að þú kveikir á helluborðinu, - þú hellir einhverju niður eða setur eitthvað á stjórnborðið lengur en í 10 sekúndur (panna, klútur o.s.frv.). Hljóðmerki heyrist og helluborðið slekkur á sér. Fjarlægðu hlutinn af stjórnborðinu eða þrífðu það. - helluborðið verður of heitt (t.d. þegar pottur sýður þangað til ekkert er eftir). Leyfðu eldunarhellunni að kólna áður en þú notar helluborðið aftur. - þú notar rangt eldunarílát. Það kviknar á tákninu Fog eldunarhellan slokknar sjálfkrafa eftir 2 mínútur. - þú slekkur ekki á eldunarhellunni eða breytir hitastillingunni. Eftir ákveðinn tíma kviknar á og það slokknar á helluborðinu.
Tengslin á milli hitastillingar og tímans eftir að slokknar á helluborðinu:
Hitastilling Það slokknar á helluborðinu eftir
| u, 1 - 3 | 6 klst. |
| 4 - 7 5 klst. | |
| 8 - 9 4 klst. | |
| 10 - 14 1,5 klst. |
5.3 Hitastillingin
Til að stilla eða breyta hitastillingunni:
Snertu stjórnstikuna við rétta hitastillingu eða færðu fingurinn meðfram stjórnstikunni þar til þú nærð réttri hitastillingu.

5.4 Eldunarhellurnar notaðar
Settu eldunarílátin á miðju eldunarhellnanna. Spanhelluborð aðlagar sig sjálfkrafa að málum á botni eldunarílátanna.
Þú getur eldað með stærra eldunaríláti á tveimur eldunarhellum samtímis. Eldunarílátið
verður að ná yfir miðju beggja hellnanna en ekki ná út fyrir merkt svæðið. Ef eldunarílátið er staðsett á milli miðjanna tveggja mun Bridge aðgerðin ekki virkjast.

Aðgerðin er í gangi þegar potturinn nær yfir miðju tveggja hellna.
Aðgerðin tengir tvær eldunarhellur vinstra megin og þær virka sem ein.
Stilltu fyrst hitastillinguna fyrir aðra eldunarhelluna vinstra megin.
Til að virkja aðgerðina: snertu ■]. Til að stilla eða breyta hitastillingunni skaltu snerta einn af stjórnskynjurunum.
Til að afvirkja aðgerðina: snertu Eldunarhellurnar virka aðskilið.
5.6 Sjálfvirk hitun
Virkjaðu þessa aðgerð til að fá æskilega hitastillingu til styttri tíma. Þegar kveikt er á henni starfar hellan á hæstu stillingu í upphafi og heldur síðan áfram að elda við æskilega hitastillingu.

Eldunarhellan verður að vera köld til að virkja aðgerðina.
Til að virkja aðgerðina fyrir eldunarhellu: ýttu á P (kviknar). ýttu strax á æskilega hitastillingu. Eftir 3 sekúndur kviknar á
Til að óvirkja aðgerðina: breyttu hitastillingunni.
5.7 PowerBoost
Þessi aðgerð færir viðbótarafl til spanhellanna. Aðeins er hægt að kveikja á aðgerðinni fyrir spanhellurnar í takmarkaðan tíma. Eftir þann tíma fara spanhellurnar sjálfkrafa aftur í hæstu hitastillingu.

Sjá kaflann „Tæknigögn“.
Til að virkja aðgerðina fyrir eldunarhellu: snertu P kviknar.
Til að óvirkja aðgerðina: breyttu hitastillingunni.
5.8 Tímastillir
• Niðurteljari
Þú getur notað þessa aðgerð til að stilla lengdina á stakri eldunarlotu.
Fyrst skal stilla hitastillingu eldunarhellunnar og síðan aðgerðina.
Til að stilla eldunarhelluna: snertu ítrekað þangað til vísirinn fyrir eldunarhellur birtist.
Til að virkja aðgerðina: snertu tímastillinum til að stilla tímann (00 - 99 mínútur). Þegar vísir eldunarhellunnar byrjar að blikka telur tímastillirinn niður.
Til að sjá tímann sem eftir er: snertu til að velja eldunarhellu. Vísirinn fyrir eldunarhelluna byrjar að blikka. Skjárinn sýnir hversu langur tími er eftir.
Til að breyta tímanum: snertu ⚫l að velja eldunarhelluna. Snertu teða .
Til að slökkva á aðgerðinni: snertu Ⓡl að velja eldunarhelluna og snertu svo .Tíminn sem eftir er telur niður í 00. Vísirinn fyrir eldunarhellu slokknar.
i
Þegar tíminn endar heyrist hljóðmerki og 00 blikkar. Eldunarhellurnar afvirkjast.
Til að stöðva hljóðið: snertu
- CountUp Timer
Þú getur notað þessa aðgerð til að fylgjast með hve lengi eldunarhellan er í gangi.
Til að stilla eldunarhelluna: snertu ítrekað þangað til vísirinn fyrir eldunarhellur birtist.
Til að virkja aðgerðina: snertu — á tímastillinum. UB birtist. Þegar vísir eldunarhellunnar fer að blikka telur tíminn upp. Skjárinn skiptist á milli UB og talinn tíma (í mínútum).
Til að sjá hversu lengi eldunarhellurnar eru í gangi: snertu ⓣ til að stilla eldunarhelluna. Vísirinn fyrir eldunarhelluna byrjar að blikka. Skjárinn sýnir hversu lengi hellan er virk.
Til að afvirkja aðgerðina: snertu og snertu svo eða. Vísirinn fyrir eldunarhelluna hverfur.
- Mínútumælir
Þú getur notað þessa aðgerð þegar helluborðið er virkt og eldunarhellurnar eru ekki í gangi. Skjár hitastillingar sýnir
Til að virkja aðgerðina: snertu ① og snertu svo eða á tímastillinum til að stilla tímann. Þegar tíminn endar heyrist hljóðmerki og 00 blikkar.
Til að stöðva hljóðið: snertu
i
Aðgerðin hefur engin áhrif á starfsemi eldunarhellanna.
5.9 Hlé
Aðgerðin setur allar eldunarhellur sem eru í gangi á lægstu orkustillingu.
Þegar aðgerðin er í gangi eru öll önnur tákn á stjórnborðinu læst.
Aðgerðin stöðvar ekki tímastillisaðgerðirnar.
Ýttu á | til að virkja aðgerðina.
kviknar. Hitastillingin er lækkuð í 1.
Til að slökkva á aðgerðinni: ýttu á ||Fyrri hitastilling kviknar.
5.10 Lás
Þú getur læst stjórnborðinu og á meðan eldunarhellurnar eru í gangi. Það kemur í veg fyrir að hitastillingunni sé breytt fyrir slysni.
Stilltu hitastillinguna fyrst.
Til að virkja aðgerðina: snertu 📋. 📁 kviknar í 4 sekúndur. Áfram er kveikt á tímastillinum.
Til að slökkva á aðgerðinni: snertu Fyrri hitastilling kviknar.
i
Þegar þú slekkur á helluborðinu slekkur þú einnig á aðgerðinni.
5.11 Öryggisbúnaður fyrir börn
Þessi aðgerð kemur í veg fyrir notkun helluborðsins fyrir slysni.
Til að virkja aðgerðina: virkjaðu helluborðið með ①. Ekki framkvæma neina hitastillingu. Snertu í 4 sekúndur. Kviknar. Slökktu á helluborðinu með ①.
Til að afvirkja aðgerðina: virkjaðu helluborðið með ⏆. Ekki framkvæma neina hitastillingu. Snertu í 4 sekúndur. 0 kviknar. Slökktu á helluborðinu með ⏆.
Til að ógilda aðgerðina í aðeins eitt eldunarskipti: virkjaðu helluborðið með ⚠. Kviknar. Snertu í 4 sekúndur. Stilltu hitastillinguna á 10 sekúndum. Þú getur
notað helluborðið. Þegar þú afvirkjar helluborðið með ① virkar aðgerðin aftur.
5.12 OffSound Control (Að kveikja og slökkva á hljóðmerkjum)
Slökktu á helluborðinu. Snertu ① í 3 sekúndur. Skjárinn kviknar og slokknar.
Snertu í 3 sekúndur. eða kviknar. Snertu á tímastillinum til að velja eitt af eftirfarandi:
- Slökkt á hljóðmerkjum
- Kveikt á hljóðmerkjum
Til að staðfesta val þitt skaltu bíða þangað til slokknar sjálfkrafa á helluborðinu.
Þegar þessi aðgerð er stillt á b1 heyrir þú hljóðið aðeins þegar:
• þú snertir ① - Mínútumælir slokknar • Niðurteljari slokknar • Þú setur eitthvað á stjórnborðið.
5.13 Orkustýring
Ef margar hellur eru í gangi og notuð orka fer yfir takmarkanir aflgjafa, skiptir þessi aðgerð tiltækri orku á milli eldunarhellanna.
Helluborðið stjórnar hitastillingu til að vernda öryggin í húsinu.
- Eldunarhellur eru flokkaðar í samræmi við staðsetningu og fjölda fasa í helluborðinu. Hver fasi er með hámarks rafmagnshleðslu upp á 3700 W. Ef helluborðið nær hámarki fyrir tiltæka orku innan einstaks fasa, kemur orkan til eldunarhellanna að minnka sjálfkrafa.
- Hitastilling síðast valdrar eldunarhellu er alltaf í forgangsröð. Það sem eftir er af orkunni skiptist á milli eldunarhellanna sem áður voru settar í gang í öfugri valröð.
- Skjár fyrir hitastillingu minnkaðra hellna skiptir á milli upphaflega hitastillingunnar og minnkuðu hitastillingunni.
- Bíddu þangað til skjárinn hættir að blikka eða minnkaðu hitastillinguna á eldunarhellunni sem síðast var valin. Eldunarhellurnar halda áfram að virka með minnkaðri hitastillingu. Breyttu hitastillingunni handvirkt fyrir eldunarhellurnar ef þörf krefur.
Skoðaðu myndina fyrir mögulegar samsetningar þar sem orkunni er dreift á milli eldunarhellanna.

Þetta er háþróuð, sjálfvirk aðgerð sem tengir helluborðið við sérstakan gufugleypi. Bæði helluborðið og gufugleypirinn eru með innrautt samskiptamerki. Hraði viftunnar er sjálfkrafa skilgreindur á grundvelli stillingar og hitastigs heitustu eldunarílátanna á helluborðinu. Einnig er hægt að stjórna viftunni frá helluborðinu handvirkt.

Fyrir flesta gufugleypa er fjarskiptakerfið upphaflega óvirkt. Virkjaðu það áður en þú notar aðgerðina. Skoðaðu notandahandbók gufugleypisins fyrir frekari upplýsingar.
Sjálfvirk notkun aðgerðarinnar
Til að nota aðgerðina sjálfkrafa skal stilla sjálfvirku stillinguna við H1 – H6. Helluborðið er í upphafi stillt á H5. Gufugleypirinn bregst við þegar þú notar helluborðið. Helluborðið skynjar hitastig eldunarílátsins sjálfkrafa og stillir hraða viftunnar.
Sjálfvirkar stillingar
| Sjálfvirkt | Suða1) | Steik-ing2) |
| ljós |
Kveikt Viftuhraði 1 Viftuhraði 1
Sjálfvirkt
ljós
Suða1)
Steiking2)
Stilling H3 Kveikt Slökkt Viftuhraði 1
Stilling H4 Kveikt Viftuhraði 1 Viftuhraði 1
Stilling H5 Kveikt Viftuhraði 1 Viftuhraði 2
Stilling H5 Kveikt Viftuhraði 2 Viftuhraði 3
1) Helluborðið greinir suðuferlið og virkjar viftuhraðann í samræmi við sjálfvirka stillingu. 2) Helluborðið greinir steikingarferlið og virkjar viftuhraðann í samræmi við sjálfvirka stillingu. 3) Þessi stilling virkjar viftuna og ljósið og treystir ekki á hitastigið.
Sjálfvirkri stillingu breytt
- Afvirkjaðu heimilistækið.
- Snertu í 13 sekúndur. Skjárinn kviknar og slokknar.
- Snertu í 3 sekúndur.
- Snertu kokkrum sinnum þar til kviknar.
- Snertu á tímastillinum til að velja sjálfvirka stillingu.
i
Til að nota gufugleypinn í stjórnborði þess skal afvirkja sjálfvirka stillingu aðgerðarinnar.
i
Þegar lokið hefur verið við eldun og slökkt er á helluborðinu kann vifta gufugleypis enn að vera í gangi í ákveðinn tíma. Eftir þann tíma slokknar sjálfkrafa á viftunni og komið er í veg fyrir virkjun viftunnar fyrir slysni næstu 30 sekúndurnar.
6. GÓD RÁD

ADVÖRUN!
Sjá kafla um Öryggismál.
Handvirk stýring á viftuhraða
Einnig er hægt að stýra aðgerðinni handvirkt. Snertu ñegar helluborðið er virkt til að gera það. Þetta slekkur á sjálfvirkri stjórnun aðgerðarinnar og greiðir fyrir að hægt sé að breyta viftuhraðanum handvirkt. Þegar þú ýtir á ñ, fær viftuhraðinn aukinn um einn. Þegar þú nærð áköfu stigi og ýtir aftur á ñ, stillist viftuhraðinn á 0 sem slekkur á viftu gufugleypis. Til að ræsa viftuna aftur á viftuhraða 1 skal snerta
i
Afvirkjaðu helluborðið og virkjaðu það aftur til að virkja sjálfvirka stjórnun aðgerðarinnar.
Virkjun ljóssins
Þú getur stillt helluborðið þannig að það kveiki sjálfkrafa á ljósinu þegar þú virkjar helluborðið. Þá er sjálfvirk stilling stillt við H1 – H6.
i
Ljósið á gufugleypinum slokknar 2 mínútum eftir að slökkt er á helluborðinu.
6.1 Eldunarílát
i
Á spanhelluborðum búa sterk rafsegulsvið til hitann mjög hratt í eldunarílátum.
Notaðu spanhelluborð með viðeigandi eldunarílátum.
- Botninn á eldunarílátinu verður að vera eins þykkur og flatur og mögulegt er.
- Gakktu úr skugga um að botnar á pottum og pönnum séu hreinir og þurrir áður en þeir eru settir á yfirborð helluborðsins.
- Til að forðast rispur skaltu ekki renna eða nudda pottum á keramikglerinu.
Efni eldunaríláta
- rétt: steypujárn, stál, glerhúðað stál, ryðfrítt stál, marglaga botn (með réttum merkingum frá framleiðanda).
Eldunarílát virka fyrir spanhelluborð ef:
- vatn sýður mjög fljótlega á hellu sem stillt er á hæstu hitastillingu.
- segull togar í botninn á eldunarílátinu.
Mál eldunaríláta
- Spanhelluborð aðlaga sig sjálfkrafa að málum á botni eldunarílátanna.
- Skilvirkni eldunarhellunnar er tengd málum eldunarílátanna. Eldunarílát með minna þvermál en uppgefið lágmark fær aðeins hluta af aflinu sem eldunarhellan framkallar.
- Af öryggisástæðum og til að ná fram ákjósanlegri útkomu eldunar skaltu ekki nota eldunarílát sem eru stærri en gefið er upp í „Upplýsingar um eldunarhellur“. Forðastu að hafa eldunarílát nálægt stjórnborðinu á meðan eldun stendur. Þetta gæti haft áhrif á virkni stjórnborðsins eða virkja óvart aðgerðir í helluborðinu.

Sjá „Tæknilegar upplýsingar“.
6.2 Hljóðin sem þú heyrir við notkun Ef þú heyrir:
- brakandi hljóð: eldunarílát er samsett úr mismunandi efnum (samlokusamsetning).
- flautandi hljóð: þú ert að nota eldunarhellu með miklu afli og eldunarílátið er samsett úr mismunandi efnum (samlokusamsetning).
- suð: notkun með miklu afli.
- smellir: rafskipting fer fram.
- hvæsandi, suðandi: viftan er í gangi.
Hljóðin eru eðlileg og gefa ekki til kynna neina bilun.
Til að spara orku slekkur hitari eldunarhellunnar á sér áður en hlóðmerki niðurteljarans heyrist. Mismunur á notkunartíma veltur á því hvaða hitastig er stillt á og tímalengd eldunar.
6.4 Dæmi um eldunaraðferðir
Það er ekki línuleg fylgni á milli hitastillingar á eldunarhellu og aflnotkunar hennar. Þegar þú eykur hitann er það ekki hlutfallslega jafn mikil aukning á aflnotkun. Þetta þýðir að eldunarhella með miðlungshita notar minna en helming afls hennar.

Gögnin í töflunni eru aðeins til viðmiðunar.
| Hitastilling Nota til: Tími | Ráðleggingar (mín) | |
| - 1 | Haltu elduðum mat heitum. eins og | Settu lok á eldunarílátin. |
| pörf er á | ||
| 1 - 3 Hollandaise sósa, brætt: smjör, súkkul-aði, matarlím. | 5 - 25 Hrærðu til af og skiptis. | |
| 1 - 3 Storkna: dúnkenndar eggjakökur, bökuð egg. | 10 - 40 Eldaðu með lokið á. | |
| 3 - 5 Látu hrísgrjón og rétti úr mjólk malla, hitaðu upp tilbúnar máltíðir. | 25 - 50 Bættu við að minnsta kosti tvöfalt meiri vökva en hrísgrjón og hrærðu mjól-kurréttum saman við pegar aðgerðin er hálfnuð. | |
| 5 - 7 Gufusjóddu grænmeti, fisk, kjöt. 20 - 45 Bættu við nokkrum matskeiðum af vö-kva. | ||
| 7 - 9 Gufusjóddu kartöflur. 20 - 60 Notaðu að hámarki 1⁄4 L af vatni fyrir | 750g af kartöflum. | |
| 7 - 9 Eldaðu meira magn af mat, kássum og súpum. | 60 - 150 Allt að 3L af vökva ásamt hráefnum. | |
| 9 - 12 Hæg steiktu: lundir, ungnauta cordon bleu, kótelettur, kjötbollur, pylsur, lifur, smjörbollur, egg, pönnukökur, kleinuhr-ingi. | eins og pörf er á | Snúðu pegar tíminn er hálfnaður. |
| 12 - 13 Djúpsteikingar, kartöfluklattar, lundir, steikur. | 5 - 15 Snúðu pegar tíminn er hálfnaður. | |
| 14 Sjóddu vatn, eldaðu pasta, snöggbrenndu kjöt (gúllas, pottsteik), djúpsteiktu kartöfluflögur. | ||
P
Sjóddu mikið magn af vatni. PowerBoost er virkjað.
6.5 Ábendingar og ráð fyrir Hob²Hood
Þegar þú notar helluborðið með aðgerðinni:
- Verndaðu stjórnborð gufugleypisins fyrir beinu sólarljósi.
- Ekki beina halogen ljósi á stjórnborð gufugleypisins.
- Ekki hylja stjórnborð helluborðsins.
- Ekki trufla merkið á milli helluborðs og gufugleypis (t.d. með hendi, handfangi eldunaríláts eða háum potti). Sjá myndina.
Gufugleypirinn á myndinni er aðeins sýndur í dæmaskyni.

Önnur fjarstýrð heimilistæki kunna að trufla merkið. Ekki nota slík heimilistæki nærri helluborðinu á meðan kveikt er á Hob²Hood.
Gufugleypar eldavéla með Hob²Hood aðgerðinni
Til að sjá úrvalið af gufugleypum fyrir eldavélar sem virka með þessari aðgerð skaltu heimsækja vefsíðuna okkar fyrir
7. UMHIRÐA OG HREINSUN
⚠️ AÐVÖRUN!
Sjá kafla um Öryggismál.
7.1 Almennar upplýsingar
- Hreinsið helluborð eftir hverja notkun.
- Notaðu alltaf eldunarílát með hreinum botni.
- Rispur eða dökkir blettir á yfirborði hafa engin áhrif á það hvernig helluborðið virkar.
- Notið sérstakt hreinsiefni sem hentar fyrir yfirborð helluborðsins.
- Notið sérstaka rispur fyrir glerið.
7.2 Helluborðið hreinsað
- Fjarlægðu tafarlaust: bráðið plast, plastfilmu, sykur og mat með sykri því
annars geta óhreinindin valdið skemmdum á helluborðinu. Farðu varlega til að forðast bruna. Notaðu sérstaka sköfu fyrir gleryfirborð helluborða með skörpu horni og hreyfðu blaðið á yfirborðinu.
- Þegar helluborð hefur kólnað nægjanlega skaltu fjarlægja: kalksteinshringi, vatnshringi, fitubletti, skínandi upplitun málma. Hreinsaðu helluborðið með rökum klút og hreinsiefni sem ekki rispar. Eftir að hreinsun er lokið skaltu þurrka helluborðið með mjúkum klút.
- Skínandi upplitun á málmum fjarlægð: notaðu vatn blandað með ediki og hreinsaðu glerið með klút.
8. BILANALEIT
⚠️ AÐVÖRUN!
Sjá kafla um Öryggismál.
8.1 Hvað skal gera ef...
Vandamál Mögulega ástæða Úrræði
| Ekki er hægt að virkja eða nota helluborðið. | Helluborðið er ekki tengt við rafmagn eða það ekki rétt tengt. | Gakktu úr skugga um að helluborðið sé rétt tengt við rafmagn. |
| Rafmagnsörygginu hefur slegið út. Gakktu úr skugga um að öryggið sé | ástæða bilunarinnar. Ef örygginu slær út ítrekað skal hafa samband við rafvirkjameistara. | |
| Þú stillir ekki hitastillinguna í 10 sek-úndur. | Kveiktu aftur á helluborðinu og stilltu hitann á innan við en 10 sekúndur. | |
| Þú snertir tvo eða fleiri skynjarafleti samtímis. | Ekki snerta fleiri en einn skynjaraflöt. | |
| Hlé gengur. Sjá „Dagleg notkun“. | ||
| Það eru vatns- eða fitublettir á stjórnborðinu. | Þrífðu stjórnborðið. | |
| Vandamál Mögulega ástæða Úrræði | ||
| Hljóðmerki heyrist og helluborðið slekkur á sér.Hljóðmerki heyrist pegar hellub-orðið slekkur á sér. | Pú settir eitthvað á einn eða fleiri skynjaraflöt. | Fjarlægðu hlutinn af skynjarafletinum. |
| Pað slokknar á helluborðinu. Pú settir eitthvað á skynjaraflötinn Fjarlægðu hlutinn af skynjarafletinum.1 | ||
| Vísirinn fyrir afgangshita kviknar ekki. | Svæðið er ekki heitt þar sem það var aðeins í gangi í stutta stund eða skynjarinn er skemmdur. | Ef svæðið var nægilega lengi í gangi til að hitna skaltu hafa samband við við-urkennda þjónustumiðstöð. |
| Hob2Hood virkar ekki. Pú huldir stjörnborðið. Fjarlægðu hlutinn af stjörnborðinu. | ||
| Pú notar mjög háan pott sem hindrar merkið. | Notaðu minni pott, skiptu um eldunar-hellu eða stýrðu gufugleypinum hand-virkt. | |
| Sjálfvirk hitun virkar ekki. Svæðið er heitt. Leyfðu svæðinu að kólna nægilega. | ||
| Stillt er á hæstu hitastillingu. Hæsta hitastilling hefur sama afl ogaðgerðin. | ||
| Hitastillingin breytist milli tveggja stiga. | Orkustýring gengur. Sjá „Dagleg notkun“. | |
| Skynjaraflöturinn verður heitur. Eldunarílát eru of stór eða þú settir þau of nærri stýringunum. | Settu stór eldunarílát á aftari hellurnar ef hægt er. | |
| Páð kemur ekkert hljóðmerki þegar skynjarafletir á borðinu eru snertir. | Slökkt er á hljóðmerkjunum. Kveiktu á hljóðmerkjunum. Sjá „Dagleg notkun“. | |
| Lvkviknar. | Öryggisbúnaður fyrir börn eða Lás gengur. | Sjá „Dagleg notkun“. |
| Fkviknar. | Páð eru engin eldunarílát á svæðinu. Láttu eldunarílát á svæðið. | |
| Eldunarílátið hentar ekki. Notaðu hentugt eldunarílát. Sjá kaflann„Ábendingar og ráð“. | ||
| Þvermál botnsins á eldunarílátinu erof lítið fyrir svæðið. | Notaðu eldunarílát með rétt þvermál. Sjá „Tæknilegar upplýsingar“. | |
| Eog númer birtist. | Páð er villa í helluborðinu. Slökktu á helluborðinu og virkjaðu þaðaftur eftir 30 sekúndur. Ef hviknar aftur skaltu aftengja helluborðið frá raf-magni. Tengdu helluborðið aftur eftir 30 sekúndur. Ef vandamálið heldur áfram skaltu hafa samband við viður-kennda þjónustumiðstöð. | |
| Pú heyrir sífellt píp-hljóð. Rafmagnið er ekki rétt tengt. Aftengdu helluborðið frá rafmagnsgjaf-anum. Hafðu samband við viðurkennd-an rafvirkja til að fara yfir uppsetning-una. | ||
8.2 Ef þú finnur ekki lausn...
Ef þú getur ekki sjálf(ur) fundið lausn á vandamálinu skaltu hafa samband við
söluaðila eða viðurkennda þjónustumiðstöð.
Gefðu upp upplýsingar á merkiplötunni.
Gefðu líka þriggja stafa stafakóða fyrir
glerkeramikið (það er í horni gleryfirborðsins) og villuskilaboð sem kvikna. Passaðu að nota helluborðið rétt. Ef ekki er þjónusta tæknimanns eða söluaðila ekki gjaldfrjáls, einnig á ábyrgðartímabilinu. Upplýsingar um
ábyrgðartíma og viðurkenndar þjónustumistöðvar eru í ábyrgðarbæklingnum.
9. TÆKNIGÖGN
9.1 Merkiplata
Gerð IKE74441IB PNC 949 597 601 00
Tegund 62 C4A 01 AA 220 - 240 V / 400 V 2N 50 - 60 Hz
Span 7.35 kW Framleitt í Pýskalandi
Raðnr. 7.35 kW
AEG

9.2 Lýsing á eldunarhellum
| Eldunarhella Málafí (hámarks hitastilling) [W] | PowerBoost [W] | PowerBoost há-markstímalengd [mín] | Þvermál eldunar-íláts [mm] |
| Vinstri framhlið 2300 3200 10 125 - 210 | |||
| Vinstri afturhlið 2300 3200 10 125 - 210 | |||
| Miðja framhlið 1400 2500 4 125 - 145 | |||
| Hægri afturhlið 2300 3600 10 205 - 240 |
Afl eldunarhellnanna getur verið frábrugðið gögnum í töflunni á litlum sviðum. Það breytist með efni og stærðum á eldhúsáhöldum.
Notaðu eldunaráhöld sem eru ekki stærri en þvermálin í töflunni til að fá sem bestan matreiðsluárangur.
10. ORKUNÝTNI
10.1 Vöruupplýsingar*
| Auðkenni tegundar IKE74441IB | ||
| Gerð helluborðs Innbyggt helluborð | ||
| Fjöldi eldunarhella 4 | ||
| Hitunartækni | Span | |
| Þvermál hringlaga eldunarhella (∅) | Vinstri framhlið | 21,0 cm |
| Vinstri afturhlið | 21,0 cm | |
| Miðja framhlið | 14,5 cm | |
| Hægri afturhlið | 24,0 cm | |
| Orkunotkun hverrar eldunarhellu (EC electric cooking) | Vinstri framhlið | 179,6 Wh / kg |
| Vinstri afturhlið | 177,0 Wh / kg | |
| Miðja framhlið | 180,2 Wh / kg | |
| Hægri afturhlið | 174,6 Wh / kg | |
Orkunotkun helluborðsins (EC electric hob) 177,9 Wh / kg
* Fyrir Evrópusambandið í samræmi við ESB 66/2014. Fyrir Hvíta-Rússland í samræmi við STB 2477-2017, viðauka A. Fyrir Úkraínu í samræmi við 742/2019.
EN 60350-2 - Rafmagnseldunartæki til heimilisnota - 2. hluti: Helluborð - Aðferðir til að mæla afköst
Orkumælingar sem vísa til eldunarsvæðisins eru auðkenndar með merkjunum á viðkomandi eldunarhellum.
10.2 Orkusparnaður
Þú getur sparað orku við daglega eldamennsku ef þú fylgir neðangreindum ábendingum.
- Þegar þú hitar vatn skaltu aðeins nota það magn sem þú þarfnast.
- Ef mögulegt er skaltu alltaf setja lokin á eldunaráhöldin.
- Áður en þú virkjar eldunarhellu skaltu setja eldunaráhöld á hana.
- Settu minni eldunaráhöld á minni eldunarhellur.
- Settu eldunaráhöld beint á miðjuna á eldunarhellunni.
- Notaðu afgangshitann til að halda matnum volgum eða til að bræða hann.
11. UMHVERFISMÁL
Endurvinna þarf öll efni merkt tákninu. Setjið umbúðirnar í viðeigandi sorpílát til endurvinnslu. Leggið ykkar að mörkum til verndar umhverfinu og heilsu manna og dýra og endurvinnið rusl sem fylgir raftækjum og raftrænum búnaði. Hendið ekki
heimilistækjum sem merkt eru með tákninu
í venjulegt heimilisrusl. Farið með vöruna í næstu endurvinnslustöð eða hafið samband við sveitarfélagið.