AC CORTINA SILENT 12K WiFi A+ - Climatiseur Wood's - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis AC CORTINA SILENT 12K WiFi A+ Wood's á PDF sniði.

Wood's AC CORTINA SILENT 12K WiFi A+ - Loftkæling
📄 156 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice Wood's AC CORTINA SILENT 12K WiFi A+ - page 147
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um AC CORTINA SILENT 12K WiFi A+ Wood's

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Netfangið þitt er áfram einkamál: það er aðeins notað til að láta þig vita ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Climatiseur á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína AC CORTINA SILENT 12K WiFi A+ - Wood's og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. AC CORTINA SILENT 12K WiFi A+ vörumerkisins Wood's.

NOTENDAHANDBÓK AC CORTINA SILENT 12K WiFi A+ Wood's

Vörumerkið Wood fæddist með Wood-fjölskyldunni fyrir rúmum 65 árum í kanadísku borginni Guelph, Ontario. Par hóf Wood að þróa og framleiða rakaeyða árið 1950. Síðan þá hefur Wood aðstoðað nokkur hundruð þúsund heimila við að koma í veg fyrir skemmdir vegna myglu og anda að sér hreinu lofti. Færanlegi loftkælirinn okkar er hentugur til notkunar í flestum tegundum loftslags, þar sem afkastageta hans er mikil, einnig við mismunandi hita- og rakastig. Þau eru notuð með góðum árangri á stöðum þar sem raki er, s.s. í dagstofum, skrifstofum og svefnherbergjum. Það magn heits lofts sem loftkælirinn fjarlægir fer eftir hitastigi, rakastigi og staðsetningu tækisins. Ytri veðurskilyrði geta einnig haft áhrif á afköst loftkælisins.

Loftkælarnir frá Wood eru öruggir í notkun og endast árum saman við stöðuga notkun.

HVERNIG VINNUR LOFTKÆLINGARBÚNAÐUR?

Lágur þrýstingur framleiðir kalt loft Aðal búnaður loftkælisins er kælivökvi sem undir lágum þrýstingi er breytt í gas. Ferlið „býr til kulda“, sem er sendur inn samtímis sem að heitu lofti er haldið úti. Fljótandi kælivökvi fer í gegnum þensluloka og í rör þar sem þrýstingur er lágur.

Kælivökvinn gufar upp og verður að gasi. Ferlið sogar að sér hita frá umhverfinu og rörið kælist.

Viftur blása köldu loftinu inn í herbergið. Gasið fer í gegnum þjöppu sem eykur þrýstinginn og breytir gasinu í vökva. Í þessu ferli er hita sleppt út, hann leiddur í rör yfir í gagnstæða hlið og síðan er hann blásinn út með viftu.

Hitastillir slekkur á tækinu þegar innanhússhiti hefur kólnað nægilega.

1. ÖRYGGISVIÐVARANIR

Wood's AC CORTINA SILENT 12K WiFi A+ - ÖRYGGISVIÐVARANIR - 1

Notið þessa handbók til að sjá öryggisupplýsingar

Wood's AC CORTINA SILENT 12K WiFi A+ - ÖRYGGISVIÐVARANIR - 2

tæknihandbók

Wood's AC CORTINA SILENT 12K WiFi A+ - ÖRYGGISVIÐVARANIR - 3

notkunarhandbók.

ÖRYGGISUPPLÝSINGAR

Áður en þú setur upp tækið og byrjar að nota það skaltu lesa meðfylgjandi leiðbeiningar vandlega. Framleiðandi er ekki ábyrgur ef röng uppsetning og notkun valda meiðslum og tjóni. Geymdu leiðbeiningarnar með tækinu til að geta skoðað þær síðar.

Hætta á meiðslum eða varanlegri fötlun.

Börn 8 ára og eldri og einstaklingar með skerta líkamlega getu, skynjun eða andlega getu, eða skort á reynslu og þekkingu geta notað þetta tæki undir eftirliti eða eftir að hafa fengið leiðbeiningar varðandi notkun tækisins á öruggan hátt og ef þau gera sér grein fyrir þeirri áhættu sem því fylgir.

Leyfið ekki börnum að leika sér með tækið.

Börnum yngri en 3 ára skal haldið frá tækinu nema undir stöðugu eftirliti.

Geymið allar umbúðir fjarri börnum.

Börn skulu ekki annast hreinsun og viðhald án umsjónar.

Almennt öryggi

Þetta tæki er ætlað til nota á heimilum og svipuðum rýmum svo sem: Dagstofum, alrýmum, starfsmannaeldhúsum í verslunum, skrifstofum og öðru vinnuumhverfi. Flokkunarplatan er staðsett aftan á eða á hlið loftkælisins.

Haldið aðskotahlutum fjarri loftopum.

Notið ekki vélbúnað eða aðrar aðferðir til að hraða afíisingu en þær sem framleiðandi mælir með. Ekki skal geyma tækið í herbergi þar sem neistagjafar eru í gangi (opnir logar, gastæki eða rafmagnshitarar). Gatið ekki eða brennið.

Hafið í huga að kæliefni geta verið lyktarlaus. Notið ekki vatnsúða eða gufu til að hreinsa tækið. Hreinsið tækið með rökum mjúkum klút. Notið aðeins hlutlaus hreinsiefni. Notið ekki slípivörur, slípiefnasvampa, leysiefni eða málmhluti.

Ef rafmagnssnúran er skemmd þarf að skipta um hana hjá framleiðanda, viðurkenndum viðgerðaraðila eða sambærilegum aðila til að forðast að hættulegar aðstæður skapist.

ÖRYGGISLEIÐBEININGAR Uppsetning

VIÐVÖRUN

Wood's AC CORTINA SILENT 12K WiFi A+ - VIÐVÖRUN - 1

Aðeins hæfur aðili skal annast uppsetningu tækisins. Fjarlægið allar umbúðir. Setjið ekki upp eða notið skemmt tæki. Tækið skal ekki setja upp, nota og geyma í herbergi sem er með stærri gólfflöt en 12,5 m². Fylgja skal þeim leiðbeiningum um uppsetningu sem fylgja tækinu. Sýnið ávallt aðgát þegar tækið er fært því það er þungt. Klæðist ávallt öryggishönskum. Hafið í huga að kæliefni geta verið lyktarlaus.

Gangið úr skugga um að loft leiki óhindrað umhverfis tækið. Bíðið í að minnsta kosti 4 klukkustundir áður en tækið er tengt við rafmagn. Þetta er til að leyfa olíunni að renna til baka í pressuna. Setjið ekki tækið nálægt ofnum eða öðrum hitagjöfum. Setjið ekki tækið í beint sólarljós.

Rafmagnstenging

VIDVÖRUN

Wood's AC CORTINA SILENT 12K WiFi A+ - VIDVÖRUN - 1

Hætta á bruna og raflosti. Tækið skal tengja við jarðtengda innstungu. Gangið úr skugga um að rafmagnsupplýsingarnar á flokkunarmerkinu séu í samræmi við orkugjafann. Ef ekki, skal hafa samband við rafvirkja. Notið ávallt rétt uppsetta höggþétta innstungu. Notið ekki fjöltengi og

framlengingarsnúrur. Gætið þess að valda ekki skemmdum á rafíhlutum (t.d. tengjum, snúrum). Hafið samband við viðurkennda þjónustumiðstöð eða rafvirkja til að skipta um rafíhluti. Snúran verður að vera fyrir neðan innstunguna/klóna. Tengið ekki klóna við innstunguna fyrr en uppsetningu er lokið. Gangið úr skugga um að hægt sé að komast að klónni eftir uppsetningu. Dragið ekki í rafmagnssnúruna til að aftengja tækið. Togið alltaf í klóna sjálfa.

Notkun

VIDVÖRUN

Wood's AC CORTINA SILENT 12K WiFi A+ - VIDVÖRUN - 1

Hætta á meiðslum, bruna, raflosti eða eldsvoða. Breytið ekki eiginleikum tækisins.

Gætið þess að valda ekki skemmdum á kælihringrásinni. Hún inniheldur própan (R290), náttúrulegt gas með háa umhverfissamhæfni. Þetta gas er eldfimt.

Ef skemmdir eiga sér stað í kælihringrásinni skal ganga úr skugga um að engir logar eða neistagjafar séu í herberginu. Loftræstið herbergið. Setjið ekki eldfimar vörur eða hluti sem eru bleyttir með eldfimum efnum nálægt tækinu eða ofan á það.

Förgun

VIDVÖRUN

Wood's AC CORTINA SILENT 12K WiFi A+ - VIDVÖRUN - 1

Hætta á meiðslum. Takið tækið úr sambandi. Klippið rafmagnssnúruna af og fleygið henni. Kælihringrásin í þessu tæki er ósónvæn. Hafið samband við viðkomandi aðila í þínu landi til að fá upplýsingar um hvernig þú fargar tækinu á réttan hátt. Valdið ekki skemmdum á þeim hluta kælieiningarinnar sem er nálægt hitaskiptinum.

FYRSTA UPPSETNING LOFTKÆLIS

MIKILVÆGT:

2. Uppsetning

FYRIR FYRSTU NOTKUN

Látið tækið standa í 4 klst fyrir notkun.

Val á staðsetningu

Mikilvægt

  1. Loftkælinn má auðveldlega færa til innandyra. Halda skal tækinu í uppréttri stöðu þegar það er fært. Staðsetja skal loftkælinn á sléttu yfirborði. Ekki skal setja tækið upp eða nota það í baðherbergi eða öðru blautu umhverfi. Þar sem færanlegi loftkælirinn er á hjólum er auðvelt að færa hann. Þegar hitinn hækkar er færanlegi loftkælirinn einfaldlega færður inn í herbergið og getur um leið farið að kæla niður rýmið. Loftkælinn skal nota í lokuðu rými til þess að afköstin verði sem best. Lokið öllum hurðum, gluggum og öðrum utanaðkomandi loftopum herbergisins. Afköst loftkælisins byggjast á hita- og rakastigi.
  2. Staðsetja skal loftkælinn þannig að loftflæðið inn um framhlið tækisins sé óhindrað.
  3. Loftkælir sem starfar í herbergi hefur lítil sem engin áhrif til þurrkunar í lokuðum geymslurýmum svo sem skápum nema að loftflæði sé inn og út úr rýminu. Færanlegur loftkælir flytur hitann frá tækinu með loftbarka út um glugga eða loftræstiop.
  4. Það ætti að vera að lágmarki 50 cm fjarlægð milli loftkælisins og nærliggjandi hluta. Sjá mynd.

Wood's AC CORTINA SILENT 12K WiFi A+ - Mikilvægt - 1

  1. Loftkælir séður frá hlið

C.

  1. Framhlið
  2. Móttökugluggi fyrir fjarstýringu
  3. Stjórnborð
  4. Topphluti
  5. Lárétt lúga
  6. Hægri skrautborð
  7. Efri síubúnaður á bakhlið
  8. Hólf fyrir fjarstýringu
  9. Vinstra skrautborð
  10. Rafmagnssnúra með kló
  11. Snúruhaldari
  12. Lægri síubúnaður á bakhlið
  13. Frárennslislok
  14. Hjól
  15. Síubúnaður á hlið
  16. Hlífðargrill
  17. Festingar
  18. Handfang
  19. Beygjutengi fyrir útblástursbarka
  20. Útblástursbarki
  21. Millistykki á útblástursbarka
  22. Gluggasett

D

  1. Bakhlið aðal kælitækisins

E

  1. Loftúttak
  2. Stjórnborð

F

  1. Stjórnborð

G

  1. Tímahnappur
  2. Hraðahnappur
  3. Upp-hnappur
  4. Niður-hnappur
  5. Stillingahnappur
  6. Aðalhnappur
  7. Vísir fyrir kælistillingu
  8. Vísir fyrir rakaeyðistillingu
  9. Vísir fyrir viftustillingu
  10. Vísir fyrir orkusparnaðarstillingu
  11. Vísir fyrir WiFi
  12. Vísir fyrir sjálfvirka sveiflun
  13. Vísir fyrir sjálfvirka hreinsun
  14. Vísir fyrir fullan vatnstank
  15. Vísir fyrir svefnstillingu
  16. Vísir fyrir viftuhraðastillingu
  17. Vísir fyrir tímastillingu
  18. Vísir fyrir tíma á tímastillingu
  19. Vísir fyrir hita
  1. Hvernig síurnar eru teknar úr
  1. Takið í síuhandfangið og dragið það varlega út í rétta átt.
  2. Hreinsið agnir úr síunni með hreinsiefni ef það er nauðsynlegt.
  3. Dýfið síunni og þvoið hana varlega í volgu vatni (um 40 °C) blönduðu með hlutlausu þvottaefni, og skolið hana síðan vandlega og þurrkið í skugga.
  4. Festingar
  5. Hólf
  6. Útblástursbarkabúnaður
  1. Fjarstýringarhólf
  2. Fjarstýring
  3. Stefna fjarstýringar
  1. Upp og niður-hnappur
  2. Viftuhraðahnappur
  3. Tímahnappur
  4. Svefnhnappur
  5. LCD-skjár
  6. Aðalhnappur
  7. Stillingahnappur
  8. Hnappur fyrir sjálfvirka sveiflun
  9. Hnappur fyrir sjálfvirka hreinsun

M

  1. Áður en fjarstýring er tekin í notkun skal setja AAA-rafhlöður í fjarstýringuna.

N

  1. Frárennslislok
  2. Frárennslisslanga

O

  1. Frárennslislok
  2. Frárennslistappi
  3. Vatn út

P

  1. Takið annan enda útblástursbarkans, skrúfið endann rangsælis á beygjutengið með a.m.k. þremur snúningum.
  2. Takið annan enda útblástursbarkans, skrúfið millistykkið rangsælis á hann með a.m.k. þremur snúningum.
  3. Útblástursbarkabúnaður

Q

  1. Haldið tveimur endum gluggapéttisplatnanna þannig að þær leggist vel að gluggaköntunum til að þær þétti vel.

R

  1. Kælitæki tilbúið til notkunar

LÝSING Á STILLINGUM OG UPPSETNINGU

Uppsetning

Ef tækið hefur verið flutt lárétt skal hafa það í uppréttri stöðu í 4 klukkustundir áður en það er tekið í notkun.

Staðsetjið tækið á slétt og stöðugt yfirborð. Ekki skal setja tækið upp í baðherbergi eða í öðru blautu umhverfi.

Gangið úr skugga um að loftflæðið sé óhindrað, hafið ávallt a.m.k. 50 cm fjarlægð til annarra flata.

UPPSETNING ÚTBLÁSTURSBARKA

  1. Takið annan enda útblástursbarkans, skrúfið endann rangsælis á beygjutengið með a.m.k. þremur snúningum.
  2. Takið annan enda útblástursbarkans, skrúfið millistykkið rangsælis á hann með a.m.k. þremur snúningum.
  3. Takið útblástursbarkann og leiðið hann út um hurð eða glugga.

NOTKUN GLUGGASETTSINS

  1. Þegar gluggasettið er notað skal opna gluggann og staðsetja gluggasettið annað hvort lárétt eða lóðrétt eftir því hvernig glugginn er.
  2. Stillið lengd gluggasettsins og festið það með skrúfum.
  3. Lokið glugganum og tengið millistykki útblástursbarkans við gluggasettið.

NOTKUN GLUGGASETTSINS

Áður en fjarstýring er tekin í notkun skal setja AAA-rafhlöður í fjarstýringuna.

  1. Þrýstið á og rennið rafhlöðuhlífinni og fjarlægið hana síðan.
  2. Setjið tvær nýjar Alkaline AAA-rafhlöður í rafhlöðuhólfið og gætið þess að þær snúi rétt.
  3. Setjið rafhlöðuhlífina aftur á og gangið úr skugga um að hún lokist á réttan hátt með smell.

Notið eingöngu Alkaline rafhlöður. Notið ekki endurhlaðanlegar rafhlöður. Þegar skipt er um rafhlöður skal alltaf skipta um báðar rafhlöður með nýjum rafhlöðum, blandið ekki saman gömlum og nýjum rafhlöðum.

Ef loftkælirinn er ekki í notkun í lengri tíma skal taka rafhlöðurnar úr fjarstýringunni.

Notkunarleiðbeiningar

  1. Ræsing tækisins. Ýtið á POWER-hnappinn til að ræsa og stöðva tækið.
  2. Velja stillingu. Tækið hefur 4 mismunandi stillingar: kælingu, rakaeyðingu, orkusparnað og viftustillingu. Ýtið á MODE á stjórnborðinu eða fjarstýringunni til að velja stillingu.
  3. Kælistilling: Stillið æskilegan hita með örvunum á stjórnborðinu eða fjarstýringunni. Stilltur hiti er sýndur á skjánum.
  4. Rakaeyðing. Í rakaeyðingarstillingunni snýst viftan aðeins á litlum hraða. Ekki er hægt að stilla hitastig.
  5. Viftustilling. Þrýstingurinn stöðvast og aðeins viftan snýst. Ekki er hægt að stilla hitastig.
  6. Orkusparnaðarstilling. Lítil orkunotkun í orkusparnaðarstillingu. Þegar umhverfishitastigið er hærra en stillt hitastig, vinnur tækið í kælistillingu. Þegar umhverfishitastigið hefur náð stilltu hitastigi, stöðvast þrýstingurinn og efri viftan stöðvast einnig. Eftir 2 mínútur og 30 sekúndur mun efri viftan snúast á lágum hraða í 30 sekúndur. Ef þrýstingurinn fer ekki í gang (það er, umhverfishitastig er lægra en stillt hitastig), mun efri viftan ítrekað starfa í þessum ham (stöðva í 2 mínútur og 30 sekúndur/lítill blástur í 30 sekúndur).
  7. Tímastilling.
  8. Til að stilla slökkvitíma skal ýta á TIMER-hnappinn þegar tækið er í gangi.
  9. Til að stilla slökkvitíma skal ýta á TIMER-hnappinn þegar tækið er í gangi. Stilltu tímann með upp- og niður örvunum á stjórnborðinu eða fjarstýringunni. Þegar tímastillingin er virkjuð birtist ljós á stjórnborðinu.
  10. Stilla viftuhraða. Ýtið á SPEED-hnappinn á stjórnborðinu til að velja viftuhraða. Á

fjarstýringunni, ýtið á FAN-hnappinn til að velja viftuhraða.

  1. Celsius/Fahrenheit. Á stjórnborðinu, ýtið á upp og niður örvar samtímis til að skipta á milli Celsius og Fahrenheit.
  2. Svefnstilling. Notið svefnstillingu á nóttunni og þá truflar tækið ekki svefninn. Þegar tækið er í kælistillingu er ýtt á TIMER og UP samtímis til að velja svefnstillingu. Á fjarstýringunni er ýtt á SLEEP-hnappinn. Ýtið aftur til að slökkva.
  3. Sjálfvirk sveifluvirkni. Ýtið á TIMER og SPEED-hnappinn samtímis til að virkja sveifluvirkni. Á fjarstýringunni er ýtt á Auto-Swing-hnappinn. Ýtið aftur til að slökkva.
  4. Sjálfvirk hreinsun. Ýtið á AUTO-CLEAN-hnappinn á fjarstýringunni til að þrífa tækið að innanverðu. Tækið þrífur í 3 mínútur áður en það slekkur á sér.

Tækið afísast sjálfkrafa þegar þörf krefur. Í afísingarham sýnir skjárinn E4 og engir hnappar nema POWER-hnappurinn er virkur.

Vörn fyrir pressu

Tækið er búið pressuvörn sem veldur 3-mínútna töf þegar tækið hefur verið endurræst.

Viðvörun fyrir fullan vatnstank

Þegar vatnstankurinn er fullur hættir tækið að virka. Vísbending um fullan vatnstank birtist með ljósi á skjá og viðvörunarhljóði. Tæmið vatnstankinn og endurræsið tækið.

LÝSING Á STILLINGUM OG UPPSETNINGU

Leiðbeiningar um vatnsfrárennsli

Tæming vatnsgeymis

Skrúfið frárennslislokið af og fjarlægið vatnstappann. Tæmið vatnstankinn og setjið vatnstappann og lokið á sinn stað.

Athugasemdir:

  • Færið tækið varlega til að forðast leka.
  • Hallið tækinu örlítið afturábak við tæmingu.
  • Lokið frárennslisopinu eins fljótt og auðið er áður en bakkinn er fullur ef hann getur ekki rúmað allt vatnið til að hindra vatnsleka á gólf eða gólfteppi.
  • Vatnstappann og lokið skal setja vandlega í til að hindra að nýtt þéttivatn leki á gólfið eða teppið þegar tækið fer aftur í gang.

Tenging vatnsslöngu fyrir stöðugt afrennsli

Skrúfið frárennslislokið af og takið vatnstappann úr. Tengið 13 mm vatnsslöngu við pípuna á tækinu. Setjið hinn enda barkans í niðurfall. Gangið úr skugga um að vatnið geti runnið niður.

Athugasemdir:

  • Frárennslisslangan skal sett í þegar ekkert vatn er í bakkanum.
  • Ekki er ráðlagt að nota stöðugt frárennsli þegar tækið er í COOL-stillingu, til að tryggja nægilega vatnshringrás í tækinu til að auka afköst kælikerfisins.
  • Setjið frárennslislönguna á óaðgengilegan stað, ekki hærra en frárennslisopið og hafið frárennslisslönguna beina.
  • Geymið lokið og tappann vel á meðan stöðugt frárennsli er notað.

Loftsían

Loftsían kemur í veg fyrir að ryk og óhreinindi fari inn í tækið og eykur þannig endingartíma þess. Mikilvægt er að sían sé hreinsuð reglulega, annars getur tækið skemmst alvarlega. Því skal þrífa síur að minnsta kosti á tveggja vikna fresti.

Hreinsun á síu

  1. Fjarlægið síuna.
  2. Skolið hana með heitu vatni og mildu hreinsiefni. Einnig er hægt að ryksuga síuna.
  3. Látið síuna þorna og setjið hana aftur á sinn stað.

Ísetning síu

Beinið enda síunnar inn að hólfinu og ýtið henni varlega inn.

Athugasemdir:

  • Gangið úr skugga um að sían sé sett að hliðinni og síðan að bakhliðinni.
  • Setjið síuna í öfugt við það þegar hún var tekin úr.
  • Setja skal síuna varlega á sinn stað til að forðast skemmdir á henni.

Það er mjög mikilvægt að hreinsa síuna reglulega; annars getur dregið úr afkastagetu loftkælisins og hann jafnvel skemmst alvarlega.

Geymsluleiðbeiningar

Geymsla fjarstýringar

  1. Setjið fjarstýringuna í innbyggða hólfið í vinstri hlið tækisins.
  2. Ýtið varlega á neðri hluta innbyggða hólfsins til að opna það og taka út fjarstýringu.

Geymsla við lok árstíða

  1. Skrúfið frárennslislokið af og takið vatnstappann úr til að tæma þéttivatn að fullu.
  2. Hafið tækið í stillingu fyrir viftu í gangi í hálfan dag til að þurrka tækið alveg að innan til að koma í veg fyrir myglu.
  3. Slökkvið á tækinu, takið það úr sambandi og vefjið snúrunni í

kringum snúruhaldarann, setjið klóna í festinguna á bakhlið tækisins og setjið vatnstappann og lokið á sinn stað.

  1. Fjarlægið búnaðinn fyrir hitaútblástursbarkann, þrífið hann og geymið á góðum stað.

Athugasemdir:

  • Haldið í búnaðinn fyrir útblástursbarkann með báðum höndum þegar hann er fjarlægður.
  • Ýtið festingunum á loftúttökunum til hliðar með þumalfingrunum og dragið síðan útblástursbarkabúnaðinn út.
  • Pakkið inn loftkælinum vandlega inn í mjúkan plastpoka og setjið hann á þurran stað með viðeigandi rykvörn og haldið tækinu fjarri börnum.
  • Takið rafhlöðurnar úr fjarstýringunni og geymið hana á góðum stað.

Ath:

  • Tryggið að tækið sé geymt á þurrum stað.
  • Vernda skal alla fylgihluti tækisins tryggilega saman.

Viðhald

Lesið nánar um hvernig á að þrífa tækið á woods.se. Þrífið tækið með mjúkum rökum klút. Forðist að nota leysiefni eða sterk hreinsiefni þar sem það getur skemmt yfirborð tækisins.

Þjónusta

Ef loftkælirinn krefst viðhalds þarf fyrst að hafa samband við söluaðila. Sönnun fyrir kaupum er krafist fyrir allar ábyrgðarkröfur.

VANDAMÁL ORSÖK ÚRRÆDI
Tækið fer ekki í gang Ekkert rafmagn að tækinuVatnstankur fullur og táknid fyrir pað logarUmhverfishitastig of lågt eða of háttHitastig herbergisins er lægra en stillt hitastig í kælistillingu eða hærra hitastig í kælistillinguTengið tækið við virka innstungu og kveikið á pvíTæmið vatnið úr tækinu.Mælt er með að nota pessa einingu á bilinu 8-35Breyta hitastillingu
Kælir illa pað er beint sóarljósHurðir og gluggar eru opnir, herbergið er fjölmennt eða pað eru aðrar hitagjafarÓhrein síaLoftúttak eða loftinntak stíflaðDragið gluggtjöld fyrirLokið hurðinni og glugganum og fjarlægið aðra hitagjafaHreinsið eða skiptið um síuFjarlægið hindranir
Tækið er håværtTækið hefur verið sett á ójafnt yfirborð.Setjið tækið á sléttan og stöðugan stað (getur dregið úr håvaða)
Pressan virkar ekkiYfirhitavörn hefur virkjastBiðið þar til hitinn lækkar, pá mun tækið fara sjálfkrafa í gang aftur
Fjarstýringin virkar ekkiOf langt fråFjarstýringunni ekki miðað að móttakara.Rafhlöðurnar tómarFærið fjarstýringuna nær loftkælinum og beinið henni að móttakaranum.Skiptið um rafhlöður
Ef vandamál koma upp með loftkælinn; skoðið neðangreind atríði fyrir bilanaleit. Ef ekkert af neðangreindum úrræðum virka, vinsamlegast hafið samband við söluaðila til að lá viðhaldspjónustu.
Bilanakóðar
CH01 Bilun í herbergishitaskynjara Athugið herbergishitaskynjara og tengingar
CH02 Bilun í rörhitaskynjara Athugið rörhitaskynjara og tengingar
E4 Frostvörn Endurheimtir aðgerðir sjálfkrafa ßegar frostvarnaraðgerð er lokið.
FLVatnstankur í tæki er fullurTæmið péttivatnið og ræsið tækið aftur

Ábyrgðir

2 ára ábyrgð neytenda gagnvart framleiðslugöllum. Vinsamlegast athugið að ábyrgðin gildir aðeins gegn framvísun kvittunar. Ábyrgðin gildir aðeins ef varan er notuð í samræmi við þær leiðbeiningar og öryggisviðvaranir sem eru að finna í þessari handbók. Ábyrgðin nær ekki til tjóns sem stafar af óviðeigandi meðferð vörunnar.

ATH: 2 ára ábyrgðin á aðeins við um neytendur og er ekki fyrir notkun tækisins í atvinnuskyni.

Wood's AC CORTINA SILENT 12K WiFi A+ - Ábyrgðir - 1

ATH!

Skráðu þig á www.warranty-woods.com og lestu um hvernig þú færð aukna ábyrgð. Frekari upplýsingar er að finna á woods.se.

Ráðlögð mörk fyrir notkun

Besti umhverfishiti fyrir kælingu er 17-35 °C. Tækið getur unnið við hita upp að +43°C. Öryggisupplýsingar: φ5,0x20mm 3,15A, 250Vac.

TÆKNILÝSING

AC Cortina Silent 12K WiFi A+
Kæligeta 3.500 W
Orkunotkun 1.120 W
Loftflæði 360m3 / klst.
Orkuflakkur A+
Rakaeyðing 33,6 l/24klst
Hitastilling 17-30 °C
Vinnuhiti 17-43 °C
EER 3,1
Lengd utblåstursbarka 1,5 m
Pvermål utblåstursbarka 15 cm
Kæliefni R290/250g
Håvaðastig í desibel 56dB / 64dB
Pyngd 29,5 kg
Mål i mm, L x B x H 850x471x355

*Tæknilegar breytingar og endurbætur geta átt sér stað. Öll gildi eru viðmiðanir og geta verið breytileg vegna utanaðkomandi aðstæðna s.s. hitastigs, loftræstingar og rakastigs.

Wood's AC CORTINA SILENT 12K WiFi A+ - Ráðlögð mörk fyrir notkun - 1

*Þetta merki gefur til kynna að ekki skuli farga tækinu með öðru heimilissorpi innan ESB. Til að koma í veg fyrir mögulegt umhverfis- eða heilsutjón vegna rangrar förgunar skal koma tækinu í endurvinnslu þannig að förgun efna fari fram ábyrgan og sjálfbæran hátt. Þegar tækinu er skilað til förgunar skal nota viðeigandi skila- og söfnunarkerfi eða hafa samband við söluaðila tækisins. Þeir geta tekið á móti tækinu og komið því í endurvinnslu.

Wood's AC CORTINA SILENT 12K WiFi A+ - Ráðlögð mörk fyrir notkun - 2

*Notuðum rafhlöðum skal ekki fargað með hefðbundnu heimilissorpi, þar sem þær gætu innihaldið eiturefni og þungmálma sem geta haft skaðleg áhrif á umhverfið og heilsu manna. Farðu með tómar rafhlöður til viðeigandi endurvinnslustöðvar.

WiFi-eiginleikar

1. Sækja og setja upp forrit

Sækja Woods Connect App frá App Store eða Google Play

  1. Nýskráning/Innskráning/gleymt lykilorð

Skrá

Ef þú ert ekki með App-reikning skaltu skrá þig á reikning eða skrá þig inn með staðfestingarkóða með SMS. Þessi síða lýsir skráningarferlinu.

  1. Snertu til að opna skráningarsíðu
  2. Kerfið þekkir sjálfkrafa land þitt/ svæði. Einnig er hægt að velja landskóða. Sláðu inn farsímanúmerið/ netfangið og ýttu á „Next“.

3. Ef þú slærð inn farsímanúmerið, sláðu þá inn staðfestingarkóðann í skilaboðunum og ýttu á „Confirm“ til að ljúka skráningunni.

4. Ef þú slærð inn tölvupóstinn, sláðu þá inn lykilorðið og ýttu á „Confirm“ til að klára skráninguna.

2. Skráðu þig inn með notandanafni og lykilorði eða staðfestingarkóða í gegnum SMS

Skráðu þig inn með notendanafni og lykilorði

  1. Kerfið þekkir sjálfkrafa land þitt/svæði. Einnig er hægt að velja landskóða. Sláðu inn farsímanúmerið/tölvupóstinn og ýttu á „Next“
  2. Sláðu inn skráð farsímanúmer þitt eða tölvupóst og lykilorð til að skrá þig.

Skráðu þig inn með staðfestingarkóða

  1. Ýttu á „Sign in with SMS verification“ á nýju síðunni

2. Kerfið þekkir sjálfkrafa land þitt/svæði.

Einnig er hægt að velja landskóða.

Gleymt lykilorð

Ef þú gleymdir aðgangsorðinu þínu skaltu fylgja þessu ferli:

  1. Ýttu á „Forgot password“

2. Kerfið þekkir sjálfkrafa land þitt/svæði. Þú getur einnig sjálfur valið þinn landskóða. Sláðu inn farsímanúmerið/netfangið og ýttu á „Next“.

3. Sláðu inn staðfestingarkóðann í skilaboðunum/tölvupóstinum og ýttu á „Confirm“ til að ljúka skráningunni.

WiFi Woods Connect styður neðangreindar aðgerðir:

Kveikja/Slökkva

Kælistilling

Rakaeyðistilling

Viftustilling

Sparnaðarstilling

Hitastillingar

Hraði: Lágur, meðal og hár

Tímastillir: 1-24 klst.

Svefn: Á/Af

Sjálfvirk hreinsun: Á/Af

Celsius/Fahrenheit

Sveifla: Á/Af

3. Fylgdu ferlinu í FORRITINU til að nota WiFi.

Smart Home

Ef þú ert með Smart Home vöru skaltu framkvæma skref 1 til 3.

Pjónustuaðgangur þriðja aðila: Ýttu á táknið fyrir raddþjónustu þriðja aðila til að sjá hvernig á að tengjast þjónustunni. Þú finnur þessi tákn

Smart Home Woods Connect styður neðangreindar aðgerðir með raddskipun:

Kveikja/Slökkva Hitastillingar

Nánari upplýsingar er að finna á: https://woods.se/en/

Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : Wood's

Líkan : AC CORTINA SILENT 12K WiFi A+

Flokkur : Loftkæling