NOTENDAHANDBÓK AC Milan 9K Wood's
Vörumerkið Wood's fæddist með Wood's-fjölskyldunni fyrir rúmum 70 árum í kanadísku borginni Guelph, Ontario. Par hóf Wood's að þróa og framleiða rakaeyða árið 1950. Síðan þá hefur Wood aðstoðað nokkur hundruð þúsund heimila við að koma í veg fyrir skemmdir vegna myglu og anda að sér hreinu lofti. Færanlegi loftkælirinn okkar er hentugur til notkunar í flestum tegundum loftslags, þar sem afkastageta hans er mikil, einnig við mismunandi hita- og rakastig. Þau eru notuð með góðum árangri á stöðum þar sem raki er, s.s. í dagstofum, skrifstofum og svefnherbergjum. Það magn heits lofts sem loftkælirinn fjarlægir fer eftir hitastigi, rakastigi og staðsetningu tækisins. Ytri veðurskilyrði geta einnig haft áhrif á afköst loftkælisins.
Loftkælarnir frá Wood's eru öruggir í notkun og endast árum saman við stöðuga notkun.
HVERNIG VINNUR LOFTKÆLINGARBÚNAÐURINN?
Lágur þrýstingur framleiðir kalt loft
Aðal búnaður loftkælisins er kælivökvi sem
undir lágum þrýstingi er breytt í gas. Ferlið
„býr til kulda“, sem er sendur inn samtímis
sem að heitu lofti er haldið úti.
Fljótandi kælivökvi fer í gegnum
þensluloka og í rör þar sem þrýstingur er
lágur.
Kælivökvinn gufar upp og verður að gasi.
Ferlið sogar að sér hita frá umhverfinu og
rörið kælist. Viftur blása köldu loftinu inn í
herbergið. Gasið fer í gegnum þjöppu sem
eykur þrýstinginn og breytir gasinu í vökva.
Í þessu ferli, er hita sleppt út, hann leiddur
í rör yfir í gagnstæða hlið og síðan er hann
blásinn út með viftu.
Hitastillir slekkur á tækinu þegar
innanhússhiti hefur kólnað nægilega.
1. ÖRYGGISVIÐVARANIR

Notið þessa handbók til að sjá öryggisupplýsingar

tæknihandbók

notkunarhandbók.
ÖRYGGISUPPLÝSINGAR
Áður en þú setur upp tækið og byrjar að nota það skaltu lesa meðfylgjandi leiðbeiningar vandlega. Framleiðandi er ekki ábyrgur ef röng uppsetning og notkun valda meiðslum og tjóni. Geymdu leiðbeiningarnar með tækinu til að geta skoðað þær síðar.
Hætta á meiðslum eða varanlegri fötlun.
Börn 8 ára og eldri og einstaklingar með skerta líkamlega getu, skynjun eða andlega getu, eða skort á reynslu og þekkingu geta notað þetta tæki undir eftirliti eða eftir að hafa fengið leiðbeiningar varðandi notkun tækisins á öruggan hátt og ef þau gera sér grein fyrir þeirri áhættu sem því fylgir.
Leyfið ekki börnum að leika sér
með tækið.
Börnum yngri en 3 ára skal haldið frá tækinu nema undir stöðugu eftirliti.
Geymið allar umbúðir fjarri börnum.
Börn skulu ekki annast hreinsun og viðhald án umsjónar.
Almennt öryggi
Þetta tæki er ætlað til nota á heimilum og svipuðum rýmum, svo sem: dagstofum, alrýmum, starfsmannaeldhúsum í verslunum, skrifstofum og öðru vinnuumhverfi. Flokkunarplatan er staðsett aftan á eða á hlið loftkælisins. Haldið aðskotahlutum fjarri loftopum.
Notið ekki vélbúnað eða aðrar aðferðir til að hraða afísingu en þær sem framleiðandi mælir með. Ekki skal geyma tækið í herbergi þar sem neistagjafar eru í gangi (opnir logar, gastæki eða rafmagnshitarar). Gatið ekki eða brennið.
Hafið í huga að kæliefni geta verið lyktarlaus. Notið ekki vatnsúða eða gufu til að hreinsa tækið. Hreinsið tækið með rökum mjúkum klút. Notið aðeins hlutlaus hreinsiefni. Notið ekki slípivörur, slípiefnasvampa, leysiefni eða málmhluti.
Ef rafmagnssnúran er skemmd þarf að skipta um hana hjá framleiðanda, viðurkenndum viðgerðaraðila eða sambærilegum aðila til að forðast hættur.
ÖRYGGISLEIÐBEININGAR Uppsetning
VIÐVÖRUN

Aðeins hæfur aðili skal annast uppsetningu tækisins. Fjarlægið allar umbúðir. Setjið ekki upp eða notið skemmt tæki. Tæki skal uppsett, notað og geymt í herbergi með sem er með gólfflatarmál sem er stærra en 4,2m2 (7k), 7,7m2 (9k), 9,6m2 (12k). Fylgja skal þeim leiðbeiningum um uppsetningu sem fylgja tækinu. Sýnið ávallt aðgát þegar tækið er fært því það er þungt. Klæðist ávallt öryggishönskum. Hafið í huga að kæliefni geta verið lyktarlaus.
Gangið úr skugga um að loft leiki óhindrað umhverfis tækið. Bíðið í að minnsta kosti 4 klukkustundir áður en tækið er tengt við rafmagn. Þetta er til að leyfa olíunni að renna til baka í pressuna. Setjið ekki tækið nálægt ofnum eða öðrum hitagjöfum. Staðsetjið ekki tækið í beint sólskin.
Rafmagn
VIÐVÖRUN

Hætta á bruna og raflosti. Tækið skal tengja við jarðtengda innstungu. Gangið úr skugga um að rafmagnsupplýsingarnar á flokkunarmerkinu séu í samræmi við orkugjafann. Ef ekki, skal hafa samband við rafvirkja. Notið ávallt rétt uppsetta höggpétta innstungu. Notið ekki fjöltengi og
framlengingarsnúrur. Gætið þess að valda ekki skemmdum á rafíhlutum (t.d. tengjum, snúrum). Hafið samband við viðurkennda þjónustumiðstöð eða rafvirkja til að skipta um rafíhluti. Snúran verður að vera fyrir neðan innstunguna/klóna. Tengið ekki klóna við innstunguna fyrr en uppsetningu er lokið. Gangið úr skugga um að hægt sé að komast að klónni eftir uppsetningu. Dragið ekki í rafmagnssnúruna til að aftengja tækið. Togið alltaf í klóna sjálfa.
Notkun
VIDVÖRUN

Hætta á meiðslum, bruna, raflosti eða eldsvoða.
Breytið ekki eiginleikum tækisins.
Gætið þess að valda ekki skemmdum á kælihringrásinni. Hún inniheldur própan (R290), náttúrulegt gas með háa umhverfissamhæfni. Þetta gas er eldfimt.
Ef skemmdir eiga sér stað í kælihringrásinni skal ganga úr skugga um að engir logar eða neistagjafar séu í herberginu. Loftræstið herbergið.
Setjið ekki eldfimar vörur eða vörur sem eru bleyttar með eldfimum efnum nálægt tækinu eða ofan á það.
Förgun
VIDVÖRUN

Hætta á meiðslum.
Takið tækið úr sambandi.
Klippið rafmagnssnúruna af og fleygið henni.
Kælihringrásin í þessu tæki er ósonvæn. Hafið samband við viðkomandi aðila í þínu landi til að fá upplýsingar um hvernig þú fargar tækinu á réttan hátt.
Valdið ekki skemmdum á þeim hluta kælieiningarinnar sem er nálægt hitaskiptinum.
FYRSTA UPPSETNING LOFTKÆLIS
2. Uppsetning
FYRIR FYRSTU NOTKUN
Látið tækið standa í 2 klst fyrir notkun. Val á staðsetningu
Mikilvægt
- Loftkælinn má auðveldlega færa til innandyra. Halda skal tækinu í uppréttri stöðu þegar það er fært. Staðsetja skal loftkælinn á sléttu yfirborði.
Ekki skal setja tækið upp eða nota það í baðherbergi eða öðru blautu umhverfi.
Par sem að færanlegi loftkælirinn er á hjólum er auðvelt að færa hann. Þegar hitinn hækkar er færanlegi loftkælirinn einfaldlega færður inn í herbergið og getur um leið farið að kæla niður rýmið.
Loftkælinn skal nota í lokuðu rými til þess að afköstin verði sem best. Lokið öllum hurðum, gluggum og öðrum utanaðkomandi loftopum herbergisins. Afköst loftkælisins fara eftir hita- og rakastigi.
- Staðsetjið loftkælinn þannig að loftflæði sé óhindrað inn um framhlið tækisins.
- Loftkæling sem starfar í herbergi mun hafa lítil eða engin áhrif á þurrkun í aðliggjandi lokuðu geymslusvæði, svo sem skáp, nema fullnægjandi dreifing lofts sé til staðar í og út af svæðinu. Færanlegur loftkælir flytur hitann frá tækinu með loftbarka út um glugga eða loftræstiop.
- Halda skal a.m.k. 30 cm fjarlægð milli loftkælisins og nærliggjandi hluta. Sjá mynd til viðmiðunar.

- Mynd af framhlið tækisins
C
- Stjórnborð
- Úttak fyrir kalt loft
- Merkismóttakari
- Fjarstýring
- Flutningshandfang
- Loftúttaksbarki
- Loftinntak fyrir eimi
- Aðal niðurfallsgátt
D
- Mynd af tækinu séðu að ofan
E
- Tírnastillir / Hnappur fyrir hitastig upp
- Tímastillir / Hnappur fyrir hitastig niður
- Sjálfvirk kæling
Hamur fyrir rakaeyðingu og viftu
- WIFI
- Svefn- og barnalæsingarhnappur
- Sveifla
- Tírnahnappur
- Hahnappur
- Hraðahnappur
- Aðalhnappur
- Lágur, hár viftuhraði
- Orkuvísir / Barnalæsing
F
- Skýringarmynd af hreinsun á síugrilli
G
- HNAPPUR
Straumur á/af
- HNAPPUR
Ýttu á þennan hnapp til að velja aðgerðarham.
- HNAPPUR
Notaður til að velja hraðastig fyrir viftu.
- STILLIHNPPAR
notaðir til að stilla herbergishita og tíma.
- HNAPPUR
Notaður til að setja í eða hætta við aðgerð í ham.
- HNAPPUR
Notaður til að stilla sjálfvirkt tíma fyrir AF og Á.
- HNAPPUR
Notaður til að stilla sjálfvirka sveiflu.
H
- Snúið báða enda útblástursbarkans inn í barkatengið.
- Uppsetning á útblástursbarka
J
- Uppsetning á útblástursbarka
K
- Uppsetning á gluggarennusetti
L
Eftir upppökkun skal athuga hvort ofangreindir fylgihlutir séu innifaldir og athuga tilgang þeirra í uppsetningarkynningunni í þessari handbók.
J. Útlit og virkni fjarstýringar.
Athugið: - Látið ekki fjarstýringuna detta. Staðsetjið ekki fjarstýringuna í beinu sólskini.
M. Aðgerðakynning
Áður en aðgerðir eru hafnar í þessum hluta:
1) Veljið stað nálægt innstungu.
2) Setjið útblástursbarkann upp og stillið hann vel í glugganum.
3) Tengið afrennslisslönguna vel (aðeins til að nota fyrir hitagerðir);
4) Setjið rafmagnssnúruna í jarðtengda AC220~240V/50Hz innstungu;
5) Ýtið á POWER-hnappinn til að kveikja á loftkælinum.
K&L. Uppsetning á útblástursbarka
A) Uppsetning til bráðabirgða
- Snúið báða enda útblástursbarkans inn í barkatengið.
- Settu ferköntuðu festismelluna inn í loftúttakið aftan á loftkælinum
- Settu hinn endann á útblástursbarkanum á nálæga gluggakistu.
N. Uppsetning á gluggarennusetti
Uppsetningarháttur gluggarennusettsins er að mestu í „lárétt” og „lóðrétt“. Eins og sýnt er á mynd 5 og mynd 5a, athugið lágm. og hám. stærð gluggans fyrir uppsetningu.
- Uppsetning á gluggarennusetti;
- Stillið lengd gluggarennusettsins í samræmi við gluggabreidd eða hæð og festið það með stýringunni;
- Setjið gluggatengibarkann í gatið á gluggasettinu.
O. Viðvörunareiginleiki fyrir fullan innri tank
tank
Innri vatnstankurinn í loftkælinum er með öryggisrofa sem stýrir vatnshæðinni. Þegar vatnshæð nær æskilegri hæð, kviknar á ljósinu fyrir fullt vatn. Villukóði „E4“ birtist á skjánum. (Ef vatnsdæla er skemmd, Þegar tækið er fullt af vatni, fjarlægið gúmmítappann neðst á tækinu og allt vatn rennur út.)
Það er mjög mikilvægt að hreinsa síuna reglulega; annars getur dregið úr afkastagetu loftkælisins og hann jafnvel skemmst alvarlega.
H. Atriði varðandi viðhald:
1) Gangið úr skugga um að tækið sé aftengt frá öllu rafmagni áður en þrif eru framkvæmd; 2) Notið ekki bensín eða önnur efni til að þrífa tækið; 3) Þvoið ekki tækið beint; 4) Ef kælirinn er skemmdur, vinsamlegast hafið samband við söluaðila eða viðgerðarverkstæði.
- Loftsía
- Ef loftsía stíflast með ryki/óhreinindum, skal hreinsa loftsíu á tveggja vikna fresti.
- Sundurtekning
Opnið loftinntaksgrillið og fjarlægið loftsíuna.
- Þrif
Hreinsið loftsíuna með hlutlausu volgu þvottaefni (40°C) og látið hana þorna í skugga.
- Uppsetning
Settu loftsíuna aftur inn í loftinntaksgrillið og setjið hlutina á sinn stað.
- Hreinsið fyrst yfirborðið með hlutlausu þvottaefni og blautum klút og þurrkið síðan af með þurrum klút.
E. Fyrir notkun
Gakktu úr skugga um að útblástursbarkinn sé rétt uppsettur.
Varúðarráðstafanir fyrir kæli- og rakaeyðingaraðgerðir: -Þegar kæling og
rakaeyðing er notuð skal hafa að minnsta kosti 3 mínútur á milli þess sem straumur er settur á.
-Innstungan er fyrir AC-notkun.
-Deilið ekki einni innstungu með öðrum tækjum.
-Aflgjafi er AC220-240V, 50Hz
- Kveikja á tækinu
a) Setjið í samband og þá gefur tækið frá sér hljóðmerki einu sinni, ljós kviknar á orkuvísinum.
b) Ýttu á „Ⓧ“-hnappinn og þá er kveikt á tækinu.
c) Ljósdíóðan sýnir herbergishita í sjálfvirkum ham.
- Kæliaðgerð
-Ýtið á hnappinn „Mode“ (Hamur) þangað til táknið „Cool“ (Kæling) birtist.
-Ýtið á “+” eða “-” hnappinn til að velja æskilegan herbergishita. (15°C -31°C)
-Ýtið á hnappinn „Fan Speed“ (Viftuhraði) til að velja blásturshraða.
- Rakaeyðingaraðgerð: Ýttu á hnappinn „Mode“ (Hamur) þar til táknið
„Dehumidify“ (Rakaeyða) birtist. Stillið sjálfvirkt valið hitastig við núverandi stofuhita mínus 2°C.
Stillið sjálfkrafa viftumótor á LÁGAN blásturshraða.
- Viftuaðgerð
Ýtið á hnappinn „Mode“ (Hamur) þar til táknið „Fan“ (Vifta) birtist.
Ýtið á hnappinn „Fan Speed“ (Viftuhraði) til að velja blásturshraða.
- Upphitunaraðgerð (þessi aðgerð er ekki tiltæk fyrir einfalda kalda einingu): Ýttu á hnappinn „Mode“ (Hamur) þar til táknið „Heat“ (Hiti) birtist.
Ýtið á hnappinn „+“ eða „-“ til að velja æskilegan herbergishita. (15°C - 31°C)
Ýtið á hnappinn „Fan Speed“ (Viftuhraði) til að velja blásturshraða.
LÝSING Á AÐGERÐARHÁMUM OG UPPSETNINGU
6. Tímastilling
a) Ýttu á hnappinn „Timer“ (Tímastillir) til að stilla tíma fyrir sjálfvirkt AF á meðan tækið er í gangi.
b) Ýttu á hnappinn „Timer“ (Tímastillir) til að stilla tíma fyrir sjálfvirkt AF á meðan tækið er tilbúið.
c) Hægt er að stilla tímann á bilinu 1 klukkustund til 24 klst. Ýttu á hnappinn
fyrir hita upp „+“ eða hita niður „-“ til að auka eða minnka tímann um 1 klukkustund með því að ýta einu sinni.
7. Aðgerð
a) Aðgerðin er virk þegar tækið er í ✉ ham.
b) Ýtið á hnappinn í svefnham og þá mun tækið starfa í svefnham og viftan fara sjálfkrafa í lágan hraða. Stillihitinn hækkar um 1°C eftir eina klukkustund og hækkar um 2°C eftir tvær klukkustundir. Eftir sex tíma slekkur tækið á sér.
8. Aðgerð
Þegar sveifluhnappurinn er virkjaður sveiflast sveiflublaðið upp og niður sjálfkrafa. Ef þú vilt stöðva skaltu ýta aftur á hnappinn.
Viðhald
Hreinsaðu tækið með mjúkum rökum klút. Forðist að nota leysiefni eða sterk hreinsiefni þar sem það getur skemmt yfirborð tækisins.
Þjónusta
Ef loftkælirinn krefst viðhalds þarf fyrst að hafa samband við söluaðila. Sönnun fyrir kaupum er krafist fyrir allar ábyrgðarkröfur.
Geymsluleiðbeiningar
Geymsla við lok árstíða
1) Skrúfið frárennslislokið af og takið vatnstappann úr til að tæma þéttivatn að fullu.
2) Hafið tækið í hamnum fyrir viftu í gangi í hálfan dag til að þurrka tækið alveg að innan til að koma í veg fyrir myglu.
3) Slökkvið á tækinu, takið það úr sambandi og vefjið snúrunni í kringum snúruhaldarann, setjið klóna í festinguna á bakhlið tækisins og setjið vatnstappann og lokið á sinn stað.
4) Fjarlægið útblástursbarkabúnaðinn, þrifið hann og geymið á góðum stað. Athugasemdir:
Haldið í búnaðinn fyrir útblástursbarkann með báðum höndum þegar hann er fjarlægður.
Ýtið festingunum á loftúttökunum til hliðar með þumalfingrunum og dragið síðan útblástursbarkabúnaðinn út.
5) Pakkið loftkælinum vandlega inn í mjúkan plastpoka og setjið hann á þurran stað með viðeigandi rykvörn og haldið tækinu fjarri börnum.
6) Takið rafhlöðurnar úr fjarstýringunni og geymið þær á góðum stað.
Ath:
Tryggið að tækið sé geymt á þurrum stað. Vernda skal alla fylgihluti tækisins tryggilega saman.
Snúruhaldari og innstungur verja snúruna tryggilega.
Há staða úttaks fyrir útblástur, auðveld samsetning og hröð loftræsting.
Smart, umhverfisvænn og orkusparandi með sjálfvirku kælikerfi.
24 tíma tímavirkni, einstök á/af áminningartónlist.
3-mínútna seinkun á ræsingu til varnar þrýstingi og ýmsir aðrir verndunareiginleikar.
WiFi-eiginleikar
1. Sækja og setja upp forrit
Sækja Woods Connect App frá App Store eða Google Play
- Nýskráning/Innskráning/gleymt lykilorð
Skrá
Ef þú ert ekki með app-reikning skaltu skrá þig á reikning eða skrá þig inn með staðfestingarkóða með SMS. Þessi síða lýsir skráningarferlinu.
- Snertu til að opna skráningarsíðu. 2. Kerfið þekkir sjálfkrafa land þitt/svæði. Einnig er hægt að velja landskóða. Sláðu inn farsímanúmerið/netfangið og ýttu á „Next”. 3. Ef þú slærð inn farsímanúmerið, sláðu þá inn staðfestingarkóðann í skilaboðunum og ýttu á „Confirm” til að ljúka skráningunni. 4. Ef þú slærð inn tölvupóstinn, sláðu þá inn lykilorðið og ýttu á „Confirm” til að klára skráninguna.
2. Skráðu þig inn með notandanafni og lykilorði eða staðfestingarkóða í gegnum SMS
Skráðu þig inn með notendanafni og lykilorði
1. Kerfið þekkir sjálfkrafa land þitt/svæði. Einnig er hægt að velja landskóða. Sláðu inn farsímanúmerið/tölvupóstinn og ýttu á „Next“
- Sláðu inn skráð farsímanúmer þitt eða tölvupóst og lykilorð til að skrá þig.
Skráðu þig inn með staðfestingarkóða
- Ýttu á „Sign in with SMS verification“ á nýja síðu. 2. Kerfið þekkir sjálfkrafa land þitt/svæði. Einnig er hægt að velja landskóða.
Gleymt lykilorð
Ef þú gleymdir aðgangsorðinu þínu skaltu fylgja þessu ferli:
- Ýttu á „Forgot password“. 2. Kerfið þekkir sjálfkrafa land þitt/svæði. Þú getur einnig sjálfur valið þinn landskóða. Sláðu inn farsímanúmerið/netfangið og ýttu á „Next”. 3. Sláðu inn staðfestingarkóðann í skilaboðunum/tölvupóstinum og ýttu á „Confirm“ til að ljúka skráningunni.
WiFi Woods Connect styður neðangreindar aðgerðir:
Kveikja/Slökkva
Kælistilling
Rakaeyðistilling
Viftustilling
Sparnaðarstilling
Hitastillingar
Hraði: Lágur, meðal og hár
Tímastillir: 1-24 klst.
Svefn: Á/Af
Sjálfvirk hreinsun: Á/Af
Celsius/Fahrenheit
Sveifla: Á/Af
3. Fylgdu ferlinu í FORRITINU til að nota WiFi.
Smart Home
Ef þú ert með Smart Home vöru skaltu framkvæma skref 1 til 3.
Þjónustuaðgangur þriðja aðila: Ýttu á táknið fyrir raddþjónustu þriðja aðila til að sjá hvernig á að tengjast þjónustunni. Þú finnur þessi tákn
Smart Home Woods Connect styður neðangreindar aðgerðir með raddskipun:
Kveikja/Slökkva
Hitastillingar
Starfa stillingar
Fan Modes
Nánari upplýsingar er að finna á:
| VANDAMÁL ORSÖK ÚRRÆDI | |
| Tækið fer ekki í gang ßegar ÿtt er á on/off -hnappinn | Ekki í sambandi / Innstunga eða kló skemmd. Setjið í samband eða skiptið um straumaðfærslu eða innstungu. |
| Öryggi brunnið Skiptið um öryggi (3,15A/250AC) | |
| Herbergishitastig er lægra en stillingarhitastigið. (Kælistilling) Endurstillið hitann |
| Ekki nógu kalt | Hurðir eða gluggar eru ekki lokaðir. | Gakktu úr skugga um að allir gluggar og hurðir séu lokaðar. |
| Pað eru hitagjafar inni í herberginu. Fjarlægið hitagjafa ef hægt er | |
| Útblástursbarki ekki tengdur eða stíflaður. Tengdu eða hreinsaðu útblástursbarkann. |
| Hitastilling er of há. Endurstillið hitann | |
| Loftinntak stíflað. Hreinsið loftinntakið. | |
| Tækið er hávært | Undirlag er óslétt eða hallandi | Setja eininguna á slétt lárétt yfirborð, ef hægt er |
| Hljóðið kemur úr frá kælivökvanum inni í loftkælingunni Pað er eðlilegt. | |
| | |
| Ef vandamál koma upp með flyljanlegur loftkælir; skoðið neðangreind atriði fyrir bilanaleit. Ef ekkert af neðangreindum ùrræðum virka, vinsamlegast hafið samband vlð söluaðila til að fá viðhaldspjónustu. |
| BILANAKÓĐAR | ORSÖK ÚRRÆDI | |
| E2 Kóði | Bilun eða skemmdir á herbergishitaskynjara. | Skiptið um herbergishitaskynjara |
| E3 Kóði | Bilun í hitaskynjara fyrir eimi. | Skiptið um hitaskynjara fyrir eimi |
| E4 Kóði | Vatnstankur fullur | Tæmið vatnstankinn. |
Ábyrgðir
2 ára ábyrgð neytenda gagnvart framleiðslugöllum. Vinsamlegast athugið að ábyrgðin gildir aðeins gegn framvísun kvittunar. Ábyrgðin gildir aðeins ef varan er notuð í samræmi við þær leiðbeiningar og öryggisviðvaranir sem eru að finna í þessari handbók. Ábyrgðin nær ekki til tjóns sem stafar af óviðeigandi meðferð vörunnar.
ATHUGID: 2 ára ábyrgðin á aðeins við um neytendur og er ekki fyrir notkun tækisins í atvinnuskyni.

ATHUGID!
Skráðu þig á www.warranty-woods.com og lestu um hvernig þú færð framlengda ábyrgð. Frekari upplýsingar er að finna á woods.se.
Ráðlögð mörk fyrir notkun
Besti umhverfishiti fyrir kælingu er 17-35 °C og ákjósanlegur umhverfishiti fyrir upphitun er 8-25 °C. Tækið getur unnið við hita upp að +43 °C. Öryggisupplýsingar: φ5,0x20mm 3,15A, 250Vac.
| TÆKNILÝSING | AC Milan 7K WIFI AC Milan 9K WIFI AC | Como 12K WIFI | |
| Kæligeta 2000 W 2600 W 3500 W | | | |
| Orkunotkun 750 W 950 W 1250W | | | |
| Loftflæði: 350 m3/klst 350 m3/klst 380 m3/klst | | | |
| Orkuflokkur A A A | | | |
| Rakaeyðing | 191 / 24klst | 241 / 24klst | 28,81/24klst |
| Hitastilling | 15-31°C | 15-31°C | 15-31°C |
| Vinnuhti | 16-43°C | 16-43°C | 16-43°C |
| EER | 2,6 | 2,6 | 2,6 |
| Lengd afrennslisslöngu | 1,0 m | 1,0 m | 1,0 m |
| Pvermál slöngu | 10mm 10mm 10mm | | |
| Kæliefni | R290/100g R290/160g | R290/220g | |
| Håvaðastig i desibel | 61dB | 61dB | 52dB |
| Pyngd | 22kg | 24kg | 25kg |
| Mál í mm, L x B x H | 355x350x700 | 355x350x700 | 355x350x700 |
*Tæknilegar breytingar og endurbætur geta átt sér stað. Öll gildi eru um það bil og geta verið breytileg vegna utanaðkomandi aðstæðna s.s. hitastigs, loftræstingar og rakastigs.

*Þetta merki gefur til kynna að ekki skuli farga tækinu með öðru heimilissorpi innan ESB. Til að koma í veg fyrir mögulegt umhverfis- eða heilsutjón vegna rangrar förgunar skal koma tækinu í endurvinnslu þannig að förgun efna fari fram ábyrgan og sjálfbæran hátt. Þegar þú skilar tækinu skaltu nota skila- og söfnunarkerfi eða hafa samband við söluaðila tækisins. Þeir geta tekið á móti tækinu og komið því í endurvinnslu.

*Notuðum rafhlöðum skal ekki fargað með hefðbundnu heimilissorpi, þar sem þær gætu innihaldið eiturefni og þungmálma sem geta haft skaðleg áhrif á umhverfið og heilsu manna. Farðu með tómar rafhlöður til viðeigandi endurvinnslustöðvar.
WOOD'S TAGAB PUHTA JA TERVISLIKU SISEÕHU
*Þetta merki gefur til kynna að ekki skuli farga tækinu með öðru heimilissorpi innan ESB. Til að koma í veg fyrir mögulegt umhverfis- eða heilsutjón vegna rangrar förgunar skal koma tækinu í endurvinnslu þannig að förgun efna fari fram ábyrgan og sjálfbæran hátt. Þegar þú skilar tækinu skaltu nota skila- og söfnunarkerfi eða hafa samband við söluaðila tækisins. Þeir geta tekið á móti tækinu og komið því í endurvinnslu.
