Airmaster WOZ4000 - Générateur Wood's - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis Airmaster WOZ4000 Wood's á PDF sniði.
Spurningar notenda um Airmaster WOZ4000 Wood's
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Générateur á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína Airmaster WOZ4000 - Wood's og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. Airmaster WOZ4000 vörumerkisins Wood's.
NOTENDAHANDBÓK Airmaster WOZ4000 Wood's
- Handfang
- Síuhaldari
- Á/AF hnappur
- Nettenging
- Hólf fyrir öryggi
- Stafrænn skjár
- Stillihnappar
B.
- Tenging fyrir slöngunippil
- USB-gátt
- Tenging við aðfærsluloftsíu (Valfrjáls aukabúnaður)
C.
Stafræn stýring
- Stafrænn skjár
- Áfram (auka)
- Stilla (valmynd)
- Aftur á bak (minnka)
D.
Slithlutir
- Forsía
- Ósonrör
E.
Aukabúnaður (fylgir ekki)
- Slöngunippill með 2 metra silíkonslöngu
- Ósonmælir (ekki með WOZ400)
- Aðfærsluloftsía (ekki WOZ400)
- Kveikjarasnúra (aðeins WOZ400)
- Loftræstistútur 400 mm
F.
- Vifta
- Loftdæla
- Háspennueining
- Ósonrör
- Göt fyrir upphengingu (Skráargat)
PAKKA PÉR FYRIR AÐ VELJA WOOD'S AIRMASTER - ÖFLUGT SÆNSKT GÆÐA ÓSONTÆKI
Wood's Airmaster er ósontæki til lofthreinsunar smíðað í Svíþjóð úr ryðfríum hlutum og stenst erfiðar rekstraraðstæður árum saman. Ósontækið eyðir sýklum, veirum og óþef af t.d. raka, myglu, sorpi, skólpi, reyk og gæludýrum bæði hratt og örugglega.
Wood's Airmaster WOZ400/500 tækin henta mjög til að fjarlægja óþef af heimili, skrifstofu, bíl, bát, hjólhýsi, sorpgeymslum og bað- og þvottaherbergjum. Alls staðar þar sem þú vilt hafa heilbrigt og ferskt umhverfi.
Ósonið þrengir sér líka inn í vefjarefni og yfirborð innréttinga og veggfóðurs.
Wood's Airmaster WOZ2000/4000 tækin henta til erfiðustu hreinsiverkefna eftir bruna- og vatnstjón og í útblástur og hreinsun lofts í loftræstingu og eldhúsviftum.
WOOD'S TRYGGIR HREINT OG HEILBRIGT INNILOFT
Wood's hefur í rúm 60 ár framleitt áreiðanlegar hágæðavörur með mikilli afkastagetu og minnstu mögulegu orkunotkun. Tækin frá Wood's eru nú á boðstólum í um 20 löndum en höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Alingsås.
MEÐLIMUR Í EUROPEAN OZONE TRADE ASSOCIATION (EUOTA) OG ÞÁTTTAKANDI Í OZONE-DOSSIER EUOTA UM VIRK SÆFIEFNI.
Þess vegna er Wood's Airmaster öruggur búnaður til framtíðar litið og búinn undir síðari löggjöf og reglusetningu um sæfiefni.

HVERNIG VIRKAR ÓSONEYÐANDI TÆKI?
Óson er svokallað virkt súrefni og myndast með aðkomu raforku inni í ósontækinu. Óson virkar með því að oxa lífræn efni og fjarlægir þannig á skilvirkan hátt framandi lyktarefni en einnig sýkla og veirur. Í langflestum tilvikum myndast aðeins koltvísýringur og vatn.
Í útilofti er styrkur ósons á bilinu frá 0,001 - 0,040 hlutar á hverja milljón (ppm). Vinnuverndareftirlitið hefur sett mörkin við 0,1 ppm óson við 8 klukkustunda váhrif við vinnu. Við styrk á bilinu 0,015 - 0,020 ppm skynjar fólk ósonið sem hreint ferskt loft (eins og eftir þrumuveður). Við 0,050 ppm fer ósonlyktin að vera óþægileg og við 0,1 ppm fer fólk að fá ertingu í augu og háls.
MIKILVÆGT!

Finndu og bregstu við því sem veldur óþefnum áður en loftið er hreinsað, annars kemur hann bara aftur.
Það er hættulegt að anda að sér óson og því ætti aðeins að nota ósontækið af varkárni.
Má ekki nota lengi þar sem fólk eða dýr halda til. Skammvinn váhrif eru skaðlaus, svo sem í ruslageymslum og þess háttar.
Ekki skal farið inn í rýmið á meðan loftið er hreinsað.
Lestu leiðbeiningar um notkun vandlega fyrir notkun.
ÖRYGGISVIÐVARANIR

Sjá þessa handbók varðandi öryggisupplýsingar.

Lestu meðfylgjandi leiðbeiningar vandlega áður en þú setur tækið upp og tekur það í notkun. Framleiðandinn tekur ekki á sig neina ábyrgð vegna rangrar uppsetningar sem veldur meiðslum á fólki og efnislegum skemmdum. Ávallt skal varðveita leiðbeiningarnar með tækinu til skoðunar síðar.
Hætta á líkamstjóni eða varanlegri skerðingu.
Ekki leyfa börnum að leika sér með tækið.
Geymið allar umbúðir þar sem börn ná ekki til.
Börn mega hvorki annast þrif né viðhald tækisins.
Ósontæki skal nota af varúð og ekki lengi í einu í umhverfi þar sem fólk dvelur, t.d. á heimilum eða skrifstofum. Skammvinn váhrif eru skaðlaus, svo sem í
ruslageymslum og þess háttar (WOZ400/500).
Ekki skola búnaðinn með vatni eða setja hann upp þannig að hann komist í snertingu við vatn.
Virða skal ráðlagðar stærðir rýma þegar tækið er notað í húsnæði þar sem fólk dvelur.
Við alla þjónustu og viðgerðir þarf að rjúfa rafstraum í tækið. Tækið skal að öllu leyti notað í samræmi við handbók þessa.
Engin ábyrgð er tekin á allri annarri notkun.
ÖRYGGISRÁÐSTAFANIR
Uppsetning
VIÐVÖRUN

Fjarlægðu allar umbúðir og gættu að því hvort tækið sé óskemmt. Ekki nota/setja upp tækið ef það er skemmt.
Tenging við rafkerfið
VIÐVÖRUN

Hætta á bruna og rafhöggi við ranga notkun.
Tækið verður að vera tengt við jarðtengda innstungu.
Gættu þess að rafmagnsupplýsingar á merkiplötu samsvari aflgjafa. Ef ekki, hafðu þá samband við rafvirkja.
Notaðu alltaf rétt uppsetta og höggvarða innstungu.
Notaðu aldrei skemmt fjöltengi eða framlengingarsnúru.
Gættu þess að rafhlutir séu óskemmdir (t.d. kló og rafleiðsla). Hafðu samband við viðurkennda þjónustumiðstöð eða rafvirkja til að skipta um rafmagnsíhluti.
Settu klóna ekki í samband við rafmagn fyrr en uppsetningu er lokið.
Gættu þess að auðvelt sé að komast að klónni eftir uppsetningu.
Kipptu ekki í snúruna til að aftengja tækið. Taktu alltaf um klóna þegar þú tekur snúruna úr sambandi.
Förgun
VIÐVÖRUN

Taktu tækið úr sambandi við rafmagn.
Notaðu förgunar- og sorpþjónustu sveitarfélagsins til að láta endurnýta tækið.
Leitaðu ráða hjá sveitarfélaginu um hvernig farga skuli tækinu rétt.

NOTKUN OG VIÐHALD ÓSONTÆKISINS
MIKILVÆGT!
Finndu og bregstu við því sem veldur óþefnum áður en loftið er hreinsað, annars kemur hann bara aftur.
Það er hættulegt að anda að sér óson og því ætti aðeins að nota ósontækið af varkárni.
Ekki nota ósontækið þegar fólk er í rýminu.
Váhrif af notkun Wood's Airmaster WOZ400/500 í minna en 5 mínútur eru hættulaus.
Alls ekki má fara inn í rými þar sem Wood's Airmaster WOZ2000/4000 er í gangi.
Meðferð með Wood's Airmaster
1. Undirbúningur:
Þrífðu herbergið vandlega, ryksugaðu það og þurrkaðu af öllum fötum og/eða lagfærðu/fjarlægðu vandamálið sem veldur ólyktinni.
2. Gættu þess að öruggt sé að ósonhreinsa svæðið:
Fjarlægðu gæludýr og plöntur. Fjarlægðu verðmætan hátæknibúnað, svo sem fartölvur, og verðmæt olíumálverk. Gættu þess að enginn sé í herberginu.
3. Ósonmeðferð:
Settu ósontækið upp í miðju herbergisins (helst á nokkuð hækkað yfirborð, t.d. borðplötu). Settu meðfylgjandi rafmagnssnúru í samband við rafmagn (a4). Nú er hægt að ræsa ósontækið með Á/Af hnappinum (A3) og stilla tímastilli (C) á þá tímalengd sem óskað er eftir (gerðir með tímastilli). Það getur tekið allt að um 5 mínútur áður en fullur kraftur næst.
4. Tímalengd meðferðar:
2 - 72 klst., allt eftir styrkleika lyktar. Meðalmeðferðartími er 24 klst. Best er að byrja með 4 - 8 klst. og endurtaka svo eftir þörfum.
5. Eftir ósonmeðferðina:
Slökktu á ósontækinu og opnaðu glugga. Að meðferð lokinni verða eftir leifar af ósoni í loftinu en það lyktar líkt og klór. Loftaðu út því sem eftir er af ósoninu. Kannaðu herbergið vel. Sé enn ólykt þarf að endurtaka ferlið. Meðhöndla þarf hvert og eitt herbergi sérstaklega.
Uppsetning með festingu
Hægt er að festa ósontækið á vegg með „skráargatslausn" (F5) undir tækinu.
Settu meðfylgjandi rafmagnssnúru í samband við rafmagn (a4). Nú er hægt að ræsa ósontækið með Á/Af-hnappinum (A3).
Tenging silíkonslöngu (E1)
Fylgihlutirnir nippill og silíkonslanga (E1) eru festir í tengiróna (B1) og ósonið leitt þangað sem því er ætlað að virka, t.d. í lofthreinsibúnað, milliveggi, loftræstirásir og vatnshreinsibúnað.
Ósonmælirinn (E2) er aukabúnaður sem tengdur er við USB-gáttina (B2) aftan á tækinu.
NOTKUN OG VIDHALD ÓSONTÆKISINS
Notkun
Settu ósontækið á þurran stað með góðri loftræstingu, helst hátt uppi um 1,5 m yfir gólfi. Mikilvægt er að ekkert hindri flæði lofts að viftunni.
Tengdu meðfylgjandi rafmagnssnúru við innstungu (A4).
Nú er má ræsa ósontækið með Á/Af-hnappinum (A3). Ósontækið byrjar af fullri orku (100%).
Það getur tekið allt að um 5 mínútur áður en fullur kraftur næst.
Að ræsa vélina
- Að ræsa ósontækið. Ýttu á afltakkann (A3) á ON/Á.
- Að slökkva á ósontækinu. Ýttu á afltakkann (A3) á AF.
Stafræn stýring með tímastilli
(Á við um Wood's Airmaster WOZ500/2000/4000) Hægt er að stilla ósonmagnið/aflið á bilinu 0-100%. Tímastillingar: Tímastillir fyrir gang allan sólarhringinn, tímabil og stöðvun. Sjá nánari leiðbeiningar „Stafræn stýring” á næstu síðu.
Að nota silíkonslöngu
Fylgihlutirnir nippill og silíkonslanga (E1) eru festir í tengiróna (B1) og ósonið leitt þangað sem því er ætlað að virka, t.d. í lofthreinsibúnað, milliveggi, loftræstirásir og vatnshreinsibúnað.
Tenging við loftræstirás
Þegar tengt er við loftræstirás er loftræstitúðan (E5) fest með hnoðnagla. Ósontækið er svo tengt við með slöngunippli og silíkonslöngu (E1).
Viðhald
ATHUGADU!
Alltaf skal aftengja rafmagnssnúruna áður en þjónusta/viðhald hefst.
Að skipta um forsíu
Skipt skal um forsíu á tveggja til fjögurra mánaða fresti eftir því hvernig umhverfið er.
- Losaðu síuhaldarann (A2) með höndunum.
- Settu nýja síu í.
- Festu síuhaldarann á ný (A2).
Að skipta um ósonrör
Þegar háspennu er hleypt á ósonrörið myndast óson. Ef ósonstyrkurinn minnkar eða hverfur þarf að skipta um ósonrör.
A. Ef ósontækið er búið fjórum grindarskrúfum á hverri langhlið:
- Losaðu skrúfurnar átta á langhliðum grindarinnar.
- Lyftu upp hlíf tækisins.
- Farðu í lið C.
B. Ef ósontækið hefur engar sýnilegar grindarskrúfur:
- Losaðu skrúfurnar tvær sem halda handfanginu.
- Snúðu tækinu á hvolf.
- Losaðu skrúfurnar fjórar sem halda fótum tækisins.
- Fjarlægðu grindarhlífina með því að toga/prýsta henni fram.
- Farðu í lið C.
C. Að skipta um ósonrör:
- Fjarlægðu gætilega loftslöngurnar tvær af ósonrörinu (F4).
- Losaðu báðar leiðslurnar á milli háspennukeflanna (F3) og ósonrörsins (F4).
- Skrúfur sem halda ósonrörinu eru losaðar neðan frá (F4).
- Tækið er sett saman í þessari sömu röð, öfugri.
ATHUGIÐ! Ósonrörið og forsían eru slithlutir og falla ekki undir ábyrgðina. Öll önnur þjónusta en sú sem hér var lýst skal fara fram hjá framleiðanda eða viðurkenndum þjónustuaðila.
Þjónusta
Ef viðhalda þarf ósontækinu skal hafa samband við söluaðilann. Kvittun þarf að sýna í tengslum við allar ábyrgðarkröfur.
Leiðbeiningar um geymslu
Geymdu ósontækið við stofuhita á bilinu +1°C til +35°C.
Mikilvægt er að skipt sé um forsiu með reglulegu millibili og að ósonrörinu sé skipt út reglulega. Annars getur afkastageta ósontækisins versnað og það hugsanlega skemmst.
AÐ NOTA ÓSONTÆKIÐ
Stafræn stýring
Á við um Wood's Airmaster WOZ500/2000/4000
| Pur 100%TimerOff | Venjuleg gangstillingNotaðu hnappana áfram (C2) og aftur á bak (C4) til að stilla ósonframleiðsluna á það gildi sem óskað er eftir 1-100%. Slökkt er á timastilli. |
| Menu | ValmyndPrýstu á Set (C3) til að fara inn í valmynd. Flettu síðan með hnappinumáfram (C2) þar til þú finnur aðgerðina sem þú vilt breyta.(Þú getur alltaf farið úr valmyndinni með þvi að halda niðri hnappinum Set.) |
| Timer Settings | TímamælirPrýstu áSet(C3), valin tímastilling birtist. Yttu einu sinni enn áSet(C3), textinn fer að blikka. Skrunaðu áfram(C2) þar til þú finnur réttu timastillinguna. Prýstu áset(C3) til að velja aðgerð. |
| Mode Off | Tímastilling óvirk (verksmiðjustilling) |
| Mode Once | LokunartímastillingWood’s Airmaster vinnur í tilgreindan tíma og slekkur siðan á sér.Prýstu ááfram(C2), skjár sýnir „Set Timer”. Prýstu áSet(C3), textinn blikkar, stilltu tilgreindan tíma með áfram(C2) / aftur ábak(C4) (t.d. 15 min 00:15). Prýstu áSet(C3) til að staðfesta tímann (hættir að blikka). Haltu hnappinumSet(C3) inni til að ræsa tækið með tímastillingu og farðu út úr valmyndinni.Eftir að timanum lýkur birtist „TimedOut” Haltu hnöppunum áfram(C2) og aftur ábak(C4) inni samtimis og tímamælir fer í gang á ný. |
Stilltu tímann í eftirfarandi tímastillingum eins og lýst er í Lokunartímastillir.
| ModeInterval | Tímastilling fyrir tímabil af og áWood's Airmaster getur verið í gangjí ákveðln tímabil en haft slökkt á milli.Veldu fyrst gangtíma „Step On“, Prýstu á áfram (C4). Stilltu tímann sem slökkt er á tækninu „Step off”. |
| ModeDaytimer | SólarhringstímamælirWood's Airmaster gengur á tilgreindum tímum. ATHUGAĐUI Stilltu klukkuna fyrst! (sjá klukku)Stilltu á ræsitíma 1 „Step on 1“. Prýstu á áfram (C2), stilltu á lokunartíma 1 „Step off 1“.Stilltu á ræsitíma 2 „Step on 2“. Prýstu á áfram (C2), stilltu á lokunartíma 2 „Step off 2“.Stilltu á ræsitíma 3 „Step on 3“. Prýstu á áfram (C2), stilltu á lokunartíma 3 „Step off 3“.Ef eitthvert prepið (t.d. 3) er skilið eftir tömt p.e. 00:00 er pað prep övirkt. |
| SetClock00:00 | KlukkaHér stillirðu klukkuna sem notuð er af sólarhringstímastillinum.Prýstu áSet(C3), tölurnar blikka. Stilltu á umbeðinn tíma með áfram(C2) og aftur á bak(C4). Prýstu áSettil að staðfesta. (24 tíma öryggisafritun ef rafmagnið fer) |
| B.lightOn | BakgrunnslýsingHægt er að kveikja og slökkva á bakgrunnslýsingu skjásins. |
| ExtInputsettings | Gátt fyrir utanáliggjandi tæki (USB)Inntak ytri tækja (t.d. ósonmælis), hægt er að slökkva eða kveikja á pví.Velja má gangstillingu:Ósonstýring- Tengt ósontæki getur stjórnað ósonmynduninni til að fá stöðuga ósonpéttni. Ósonviðvörun - Ef tengdur ósonmælir skynjar leka, slekkur tækið á sér og gefur hljóðmerki. |
| Factoryreset | VerksmiðjustillingEndurstillt á verksmiðjustillingar. ATH! Öllum stillingum verður eytt. |
| KEYSLOCKED | HnappalásHnöppunum er læst með pví að halda inníSet(C3) og áfram(C2) samtimis þar til „KEYS LOCKED“ birtlist á skjá. Hnöppunum er aflæst á sama hátt. |
Úrræðaleit
| VANDAMÁL ÁSTÆDA ÚRRÆDI | ||
| Tækið fer ekki í gang og ekki er ljós á straumrofa. | Bilun í aflgjafa. | Tengdu tækið við rafúttak sem virkar og kveiktu á því. |
| Öryggi er bilað (WOZ3000/6000). Skiptu um öryggi. | ||
| Spennir er bilaður (WOZ400). | Reyndu annan spenní (gakktu úr skugga um að tæknilýsing hans sé rétt). | |
| Tækið gengur en framleiðir ekki óson. | Ósonrörið er úr sér gengið eða bilað. | Skiptu um ósonrör. |
| Hávær vifta. Forsía óhrein/stifluð. Skiptu um síu. | ||
| Tækið hegðar sér undarlega. Hugbúnaðurinn hefur brenglast. | Endurstilltu það á verksmiðjustillingu.. | |
| Tækið er ranglega stillt (t.d. tímastillir) Stillingum tækisins var óvart breytt. |
Hafðu samband við söluaðila á staðnum þegar þú hefur farið í gegnum ofangreinda úrræðaleit eða ef þjónusta þarf tækið.
Ábyrgðir
2 ára verksmiðjuábyrgð á framleiðslugöllum. Vinsamlegast athugaðu að ábyrgðin gildir því aðeins að lögð sé fram kvittun. Ábyrgðin gildir því aðeins að tækið sé notað í samræmi við leiðbeiningar og öryggisviðvaranir í handbók þessari. Ábyrgðin nær ekki til tjóns af völdum rangrar meðferðar vörunnar.

ATHUGADU!
Skráðu tækið á www.warranty-woods.com og nýttu þér þau tilboð sem Wood's býður einmitt fyrir þitt tæki.
Farðu inn á www.woods.se til að fá frekari upplýsingar.
ÞJÓNUSTA VIÐ VIÐSKIPTAVINI
Notaðu alltaf upprunalega íhluti. Þegar þú hefur samband við þjónustuver okkar skaltu hafa eftirfarandi við höndina: Gerðarnúmer, kvittun og raðnúmer.
Vinsamlegast athugaðu að allar öryggisreglur og tæknilegar upplýsingar í handbókinni gætu breyst.

TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
| UPPLYSINGAR | ||||
| Airmaster WOZ400 Airmaster WOZ500 Airmaster WOZ2000 Airmaster WOZ4000 | ||||
| Ösonmyndun 500 mg/klst. 0-500 mg/klst. | 0-2000 mg/klst. 0-4000 mg/klst. | |||
| Afkastageta viftu 116 m | 3 /klst. 116 m | 3 /klst. 116 m | 3 /klst. 116 m | 3 /klst. |
| Tækni Ósonrör (kvartsgler) Ósonrör (kvartsgler) Ósonrör (kvartsgler) Ósonrör (kvartsgler) | ||||
| Tímastillir - Já Já Já | ||||
| Slöngutenging Já Já Já Já | ||||
| USB-gått | - Já Já Já | |||
| Orkunotkun | 20 W/12 V DC(100-240V spennir fylgir) | 20 W/100-230 V | 45 W/100-230 V | 85 W/100-230 V |
| Hitastlig á bilinu | +1°C - +35°C | +1°C - +35°C | +1°C - +35°C | +1°C - +35°C |
| Umfang (LxBxH) | 270x180x160 mm | 270x180x160 mm | 270x180x160 mm | 270x180x160 mm |
| Kennislærðir öryggja | - | 630mAT 250v | 630mAT 250v | 630mAT 250v |
| Pyngd | 2,1 kg 2,1 kg 3,0 kg 3,2 kg | |||
| Efni | Ryðfritt stål | Ryðfritt stål | Ryðfritt stål | Ryðfritt stål |
| Aukabúnaður | Slöngunippill, silikonslanga,kveikjarasnúra | Slöngunippill, silikonslanga,ósonmælir | Slöngunippill, silikonslanga,ósonmælir, loftræstisia | Slöngunippill, silikonslanga,ósonmælir, loftræstisia |
| Slithlutir | ForsíaÓsonrör | ForsíaÓsonrör | ForsíaÓsonrör | ForsíaÓsonrör |
*Tæknilegar breytingar og úrbætur geta orðið á tækinu. Öll gildi eru áætluð og geta verið breytileg eftir ytri aðstæðum eins og hitastigi og rakastigi.