MRD10G - Humidificateur Wood's - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis MRD10G Wood's á PDF sniði.

Wood's MRD10G - Raka
📄 180 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice Wood's MRD10G - page 172
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um MRD10G Wood's

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Netfangið þitt er áfram einkamál: það er aðeins notað til að láta þig vita ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Humidificateur á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína MRD10G - Wood's og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. MRD10G vörumerkisins Wood's.

NOTENDAHANDBÓK MRD10G Wood's

Rakaeyðar frá Wood hafa verið leiðandi á markaðnum í mörg ár. Rakaeyðarnir henta til notkunar í kröfuhörðum aðstæðum þar sem afkastagetan er góð jafnvel við mismunandi hita- og rakastig. Þá er hægt að nota með góðum árangri á stöðum þar sem gjarnan er raki, s.s. í kjöllurum, bílskúrum eða sumarbústöðum. Þær henta einnig mjög vel til að þurrka þvott, háaloft, sundlaugasali o.fl. Skilvirkni og sparneytni. Þeir slíta ekki fötum.

Það magn raka sem rakaeyðirinn fjarlægir fer eftir hitastigi, rakastigi og staðsetningu tækisins. Ytri veðurskilyrði geta einnig haft áhrif á afköst rakaeyðisins. Rakaeyðar frá Wood's eru öruggir í notkun og eru ætlaðir til notkunar árum saman.

MJÖG HÁTT RAKASTIG - HÆTTA

Þétting verður þegar vatnsgufa í lofti kemst í snertingu við kalt yfirborð, s.s. kaldan glugga eða vegg. Þegar vatnsgufa kólnar verður þétting og vatnsdropar myndast. Í lofti þar sem rakastig er mjög hátt getur orðið fúkki og myglumyndun sem getur valdið skemmdum á húsnæði og húsgögnum. Þannig umhverfi getur valdið veikindum hjá íbúum. Maurar og köngulær þrífast einnig betur í röku umhverfi. Afkastamikið rakataeki skapar gott, heilsusamlegt rakastig. Til þess að afköst séu sem mest ættu gluggar og hurðir í herbergjum þar sem rakaeyðir er notaður að vera lokaðar. Eyðir lykt, þurrkar við og eyðir raka úr útivistarbúnaði.

1. ÖRYGGISVIÐVARANIR

Wood's MRD10G - ÖRYGGISVIÐVARANIR - 1

Wood's MRD10G - ÖRYGGISVIÐVARANIR - 2

Vísað er í þessa handbók varðandi öryggisupplýsingar.

Wood's MRD10G - ÖRYGGISVIÐVARANIR - 3

Lesa tæknihandbók Lesa notandahandbók.

Wood's MRD10G - ÖRYGGISVIÐVARANIR - 4

ÖRYGGISUPPLÝSINGAR

Áður en þú setur upp tækið og byrjar að nota það skaltu lesa meðfylgjandi leiðbeiningar vandlega. Framleiðandi er ekki ábyrgur ef röng uppsetning og notkun valda meiðslum og tjóni. Geymdu leiðbeiningarnar með tækinu til að geta skoðað þær.

Hætta á meiðslum eða varanlegri fötlun.

Börn 8 ára og eldri og einstaklingar með skerta líkamlega getu, skynjun eða andlega getu, eða skort á reynslu og þekkingu geta notað þetta tæki undir eftirliti eða eftir að hafa fengið leiðbeiningar varðandi notkun tækisins á öruggan hátt og ef þau gera sér grein fyrir þeirri áhættu sem því fylgir. Leyfið ekki börnum að leika sér

með tækið.

Börnum yngri en 3 ára skal haldið frá tækinu nema undir stöðugu eftirliti.

Geymið allar umbúðir fjarri börnum.

Börn skulu ekki annast hreinsun og viðhald án umsjónar.

Almennt öryggi

Þetta tæki er ætlað til nota á heimilum og álíka stöðum svo sem: kjöllurum, skúmaskotum, starfsmannaeldhúsum í búðum, skrifstofum og öðrum vinnusvæðum. Flokkunarplatan er staðsett aftan á eða á hlið rakaeyðisins.

Haldið aðskotahlutum fjarri loftopum.

Notið ekki vélbúnað eða aðrar aðferðir til að hraða afísingu en þær sem framleiðandi mælir með. Ekki skal geyma tækið í herbergi þar sem neistagjafar eru í gangi (opnir logar, gastæki eða rafmagnshitarar). Gatið ekki eða brennið.

Hafið í huga að kæliefni geta verið lyktarlaus. Notið ekki vatnsúða eða gufu til að hreinsa tækið. Hreinsið tækið með rökum mjúkum klút. Notið aðeins hlutlaus hreinsiefni. Notið ekki slípivörur, slípiefnasvampa, leysiefni eða málmhluti.

Ef rafmagnssnúran er skemmd þarf að skipta um hana hjá framleiðanda, viðurkenndum viðgerðaraðila eða sambærilegum aðila til að forðast að hættulegar aðstæður skapist.

ÖRYGGISLEIÐBEININGAR

Uppsetning

VIÐVÖRUN

Wood's MRD10G - ÖRYGGISLEIÐBEININGAR - 1

Aðeins hæfur aðili skal annast uppsetningu tækisins.

Fjarlægið allar umbúðir.

Setjið ekki upp eða notið skemmt tæki. Tækið skal ekki setja upp, nota og geyma í herbergi sem er með stærri gólfflöt en 2 m². Fylgja skal þeim leiðbeiningum um uppsetningu sem fylgja tækinu. Sýnið ávallt aðgát þegar tækið er fært því það er þungt. Klæðist ávallt öryggishönskum.

Gangið úr skugga um að loft leiki óhindrað umhverfis tækið.

Bíðið í að minnsta kosti 4 klukkustundir áður en tækið er tengt við rafmagn. Þetta er til að leyfa olíunni að renna til baka í pressuna.

Setjið ekki tækið nálægt ofnum eða öðrum hitagjöfum.

Staðsetjið ekki tækið í beinu sólskini.

Rafmagnstenging VIÐVÖRUN

Wood's MRD10G - Rafmagnstenging VIÐVÖRUN - 1

Hætta á bruna og raflosti.

Tækið skal tengja við jarðtengda innstungu.

Gangið úr skugga um að rafmagnsupplýsingarnar á merkiplötunni séu í samræmi við rafveituna. Ef ekki, hafið samband við rafvirkja.

Notið ávallt rétt uppsetta höggþolna innstungu.

Notið ekki fjöltengi eða framlengingarsnúrur.

Gætið þess að valda ekki skemmdum á rafhlutum (t.d. tengjum, snúrum).

Hafið samband við viðurkennda þjónustumiðstöð eða rafvirkja til að skipta um rafhluta.

Snúran verður að vera fyrir neðan innstunguna/klóna.

Tengið ekki klóna við innstunguna fyrr en uppsetningu er lokið.

Gangið úr skugga um að hægt sé að komast að klónni eftir uppsetningu.

Dragið ekki í rafmagnssnúruna til að aftengja tækið. Togið alltaf í klóna sjálfa.

Notkun

VIÐVÖRUN

Wood's MRD10G - VIÐVÖRUN - 1

Hætta á meiðslum, bruna, raflosti eða eldsvoða.

Breytið ekki eiginleikum tækisins.

Gætið þess að valda ekki skemmdum á kælihringrásinni.

Hún inniheldur própan (R290), náttúrulegt gas með háa umhverfissamhæfni. Þetta gas er eldfimt.

Ef skemmdir eiga sér stað í kælihringrásinni skal ganga úr skugga um að engir logar eða neistagjafar séu í herberginu.

Loftræstið herbergið.

Setjið ekki eldfimar vörur eða vörur sem eru bleyttar með eldfimum efnum nálægt tækinu eða ofan á það.

Förgun

VIÐVÖRUN

Wood's MRD10G - VIÐVÖRUN - 1

Hætta á meiðslum.

Takið tækið úr sambandi.

Klippið rafmagnssnúruna af og fleygið henni. Kælihringrásin í þessu tæki er ósónvæn. Hafið

samband við viðkomandi aðila í þínu landi til að fá upplýsingar um hvernig þú fargar tækinu á réttan hátt.

Valdið ekki skemmdum á þeim hluta kælieiningarinnar sem er nálægt hitaskiptinum.

STADSETNING RAKAEYDIS VID UPPSETNINGU

MIKILVÆGT:

2. Uppsetning

FYRIR FYRSTU NOTKUN

Látið tækið standa í 4 klst fyrir notkun

Val á staðsetningu

Mikilvægt

  1. Rakaeyðinn skal nota í lokuðu rými til þess að afköstin verði sem best. Lokið öllum hurðum, gluggum og öðrum utanaðkomandi loftopum herbergisins. Afköst rakaeyðisins er háð þeim hraða sem rakt loft kemur inn í herbergið.
  2. Staðsetjið rakaeyðinn þannig að loftflæði sé óhindrað inn um framhlið tækisins.
  3. Rakaeyðir sem starfar í herbergi mun hafa lítil sem engin áhrif í þurrkun aðliggjandi lokaðra geymslurýma, svo sem skápa, nema það sé nægjanlegt loftflæði inn og út úr rýminu. Það getur verið nauðsynlegt að setja upp annað lofthreinsitæki í lokaða rýminu fyrir viðunandi þurrkun.
  4. Gangið úr skugga um að tækið sé staðsett á stöðugu og sléttu yfirborði. Ef yfirborðið er ekki stöðugt er hætta á að tækið verði óstöðugt og það valdi of miklum titringi og að vatn geti farið að leka.
  5. Rakaeyðirinn verður að hafa að minnsta kosti 20 cm laust pláss umhverfis allt tækið.

VÖRULÝSING

3. Vörulýsing

A

  1. Handfang
  2. Stjórnborð
  3. Topplúga
  4. Handvirkt loftúttak verður að vera opið þegar varan er í notkun
  5. Framhluti

G

  1. Ef þess er óskað er hægt að tengja afrennslisrör við tækið fyrir stöðugt afrennsli vatns.

B

  1. Sía
  2. Vatnsrör fyrir stöðugt afrennsli
  3. Rafmagnssnúra
  4. Bakhluti
  5. Vatnsgeymir

C

  1. Stjórnborð

D

  1. Kveikja/slökkva á tækinu.
  2. Tímastillir: Stilla tíma/slökkva á tíma
  3. Stilling rakastigs
  4. Afísing virk
  5. Vatnsgeymir fullur

E

Stjórnborð

  1. Rakaeyðirinn verður að hafa að minnsta kosti 20 cm laust pláss umhverfis allt tækið.

STADSETNING RAKAEYDISINS

- Rakataekinu ætti ekki að koma fyrir nálægt ofnum eða öðrum hitagjöfum eða undir beinu sólarljósi þar sem slíkt getur haft áhrif á afköst þess.

- Best er að staðsetja það í miðju herbergis/rýmis.

Wood's MRD10G - STADSETNING RAKAEYDISINS - 1

ATH: Þegar honum er komið fyrir í sturtu- eða baðaðstöðu ætti rakaeyðirinn að vera festur. Það er skylda að athuga og virða staðbundnar reglugerðir um raftengingar á baðherbergjum áður en tækið er notað.

NOTKUN RAKAEYDISINS

Ef rakaeyðirinn er fluttur láréttur skal láta hann standa í 4 klukkustundir áður en hann er tekinn í notkun. Það er mjög mikilvægt að olían fái að renna til baka í pressuna því annars gæti rakaeyðirinn skemmst alvarlega.

  1. Athugið hvort að vatnsgeymirinn sé rétt ísettur.
  2. Tengdu purrkarann við jarðtengingu.
  3. Stilltu viðeigandi rakastig með rakastýringunni. Sjá kaflann um rakastýringu.

Wood's MRD10G - NOTKUN RAKAEYDISINS - 1

ATH: Rakastig umhverfisins má einfaldlega mæla með rakaeyðinum.

NOTANDAHANDBÓK

  1. Aðalhnappur: Þessi hnappur kveikir og slekkur á tækinu.
  2. Rakahnappur: Val á æskilegu rakastigi
  3. Rakastigsstillingar: Opnið loftúttakið og stillið rakastig á bilinu 40%, 50%, 60% eða stöðugan ham.
  4. Tímastillir: Þegar kveikt er á tækinu,

ýtið á tímastillinn 2H/4H/6H til þess að stilla tímann.

VATNSTÆMING

Þegar vatnsgeymirinn er fullur slekkur rakaeyðirinn sjálfkrafa á sér. Þegar vatnsgeymirinn hefur verið tæmdur endurræsist tækið sjálfkrafa.

  1. Takið rakaeyðinn úr sambandi.
  2. Tæmið vatnsgeyminn.
  3. Setjið tóma vatnsgeyminn til baka og gætið að því að flotið hreyfist óhindrað.
  4. Setjið rakaeyðinn í samband.

Bein vatnstæming

Tengið vatnsslöngu við rörið aftan á rakaeyðinum. Setjið hinn endann í niðurfall. Gangið úr skugga um að vatnið geti runnið niður.

LOFTSÍA

Loftsían kemur í veg fyrir að ryk og óhreinindi fari inn í tækið og eykur þannig endingartíma þess. Mikilvægt er að hreinsa síuna reglulega. Hreinsun síu:

  1. Fjarlægið síuna.
  2. Skolið hana með heitu vatni og mildu hreinsiefni. Einnig er hægt að ryksuga síuna.
  3. Látið síuna þorna og setjið hana aftur á sinn stað.

AFÍSING

Á meðan að á afísingu stendur getur verið gert hlé á rakaeyðingu.

Slökkvið ekki á rakaeyðinum eða takið hann úr sambandi á meðan afísing er í gangi. Þessi rakaeyðir hentar ekki til að viðhalda mjög lágu hitastigi.

Tilgangurinn með þessum rakaeyði er að losna við óþægilegan raka og þurrka blauta hluti. En það er ekki hægt að nota hann við mjög lágt hitastig.

Hitinn í herberginu eykst við rakaeyðingu.

Þessi rakaeyðir er ekki með kælivirkni. Hann

gefur frá sér hita við notkun og eykur hitastig í herberginu um 1 til 4°C. Auk þess getur hitastigið í herberginu hækkað vegna þess að hurðir og gluggar eru lokaðir, og vegna annarra tækja í herberginu sem geta gefið frá sér hita og vegna sólargeisla.

VIÐHALD

  • Hreinsið tækið með mjúkum rökum klút. Forðist að nota leysiefni eða sterk hreinsiefni þar sem það getur skemmt yfirborð tækisins.
  • Best er að hreinsa kælispíralinn með klút og heitu vatni.

Skekkjumörk rakastillisins eru u.þ.b. +/- 5-10%. Við lægra hitastig gætu skekkjumörk verið enn meiri.

Fyrir hámarks þurrkun í herbergi er mælt með að loftflæðið að utan og frá aðliggjandi herbergjum sé með sem minnsta móti. Lokið hurðum og loftopum.

Gera má ráð fyrir aukinni afkastagetu við rakaeyðingu á haustin/sumrin þegar hiti utanhúss er hærri og rakastig hærra.

ÞJÓNUSTA

Ef rakaeyðirinn þarfnast viðhalds skal fyrst hafa samband við söluaðila. Sönnun fyrir kaupum er krafist fyrir allar ábyrgðarkröfur.

Áður en tækið er sett í geymslu skal fylgja eftirfarandi skrefum:

  1. Gangið úr skugga um að vatnsgeymirinn sé tómur. Þegar kveikt er á tækinu skal ganga úr skugga um að það starfi í loftræstistillingu í að minnsta kosti 30 mínútur til að fjarlægja vatnið inni í tækinu.
  2. Vindið upp snúruna.
  3. Hreinsið síuna.
  4. Geymið á hreinum og þurrum stað.

Sönnun fyrir kaupum er krafist fyrir allar ábyrgðarkröfur.

ÁBENDINGAR

Þegar rakaeyðirinn er notaður í mjög miklum raka eða þar sem hitastig er lægra en +5°C getur það hætt vinnslu. Mikið af ís safnast upp á kælispíralnum. Slökkvið á rakaeyðinum og staðsetjið hann aðeins yfir gólfhæð svo ísinn bráðni.

Stundum getur verið ráðlegt að nota frostvörn eða hitablásara til að tryggja að hitastigið fari ekki undir +10°C. Jafnvel þótt MRD10/14 vinni niður að hitastigi allt að +5°C er afkastageta þess meiri við hærra hitastig þar sem heitt loft flytur meira vatn.

VANDAMÁL ORSÖK ÚRRÆDI
Rakaeyðirinn virkar ekkiEkki í sambandi við rafmagn Gangið úr skugga um að rakaeyðirinn sé í sambandi og að öryggi sé ekki sprungið.Ef viðvörunarljósið er kveikt, athugið hvort vatnsgeymirinn sé tómur og rétt ísettur í rakaeyðinn.
Eyðir ekki raka Vatnsgeymirinn er fullur.Vatnsgeymirinn er ekki rétt ísettur.Loftsían er stífluð. Hitastig eða rakastig í herberginu þar sem tækið er staðsett er of lágt.Tæmið vatnið úr geyminum.Setjið vatnsgeyminn í á réttan hátt.Hreinsið loftsíuna.Gangið úr skugga um að loft flæði óhindrað í gegnum rakaeyðinn. Grillið og loftsían eiga að vera hrein og rakaeyðirinn skal standa um 20cm frá vegg.
Rakaeyðirinn virkar en rakaeyðing er ófullnægjandi.Herbergið er of stórt.Pað eru of margar uppsprettur raka.Of mikil loftræstingMælt er með því að nota rakaeyðir með meiri afkastagetu.Mælt er með því að nota rakaeyðir með meiri afkastagetu.Dragið úr loftræstingu (t.d. með því að loka gluggum og hurðum.)
Ef vandamál koma upp með rakaeyðinn; skoðið neðangreind atríði fyrir bilanagreiningu. Ef ekkert af neðangreindum ùrræðum virka skaltu hafa samband við sóluaðila til að fá þjónustu fyrir rakaeyðinn.

Ábyrgðir

2 ára ábyrgð neytenda gagnvart framleiðslugöllum. Vinsamlegast athugið að ábyrgðin gildir aðeins gegn framvísun kvittunar. Ábyrgðin gildir aðeins ef varan er notuð í samræmi við þær leiðbeiningar og öryggisviðvaranir sem eru að finna í þessari handbók. Ábyrgðin nær ekki til tjóns sem stafar af óviðeigandi meðferð vörunnar.

ATH: 2 ára ábyrgðin á aðeins við um neytendur og er ekki fyrir notkun tækisins í atvinnuskyni.

Wood's MRD10G - Ábyrgðir - 1

ATH!

Skráðu þig á www.warranty-woods.com og lestu um hvernig þú færð aukna ábyrgð. Frekari upplýsingar er að finna á woods.se.

Ráðlögð mörk fyrir notkun

Hitastig +5°C til +35°C

TÆKNILÝSINGMRD10
Hám. vinnusvæði 40m2
Loftflæði 90m3klst
Rakaeyðing við 30°C og 80% rakastig, 10l/24klst
Orka við 30°C og 80% rakastig, 183 W
Rümmál geymis 2 litrar
Kæliefni R290
Hleðsla R290 38 g
Spenna 220-240V
Hávaðastig í desíbel 44dB
Pyngd 11,2 kg
Mál i mm, L x B x H 290x240x476
MRD14
Hám. vinnusvæði 60m2
Loftflæði 105m1/klst
Rakaeyðing við 30°C og 80% rakastig. 12l/24klst
Orka við 30°C og 80% rakastig. 183 W
Rúmmål geymis 2 litrar
Kæliefni R290
Hleðsla R290 47 g
Spenna220-240V
Hávaðastig í desibel 44dB
Pyngd 11,3 kg
Mál í mm, L x B x H 290x240x476

*Tæknilegar breytingar og endurbætur geta átt sér stað. Öll gildi eru viðmiðanir og geta verið breytileg vegna utanaðkomandi aðstæðna s.s. hitastigs, loftræstingar og rakastigs.

Wood's MRD10G - Ráðlögð mörk fyrir notkun - 1

*Þetta merki gefur til kynna að ekki skuli farga tækinu með öðru heimilissorpi innan ESB. Til að koma í veg fyrir mögulegt umhverfis- eða heilsutjón vegna rangrar förgunar skal koma tækinu í endurvinnslu þannig að förgun efna fari fram ábyrgan og sjálfbæran hátt. Þegar þú skilar tækinu skaltu nota skila- og söfnunarkerfi eða hafa samband við söluaðila tækisins. Þeir geta tekið á móti tækinu og komið því í endurvinnslu.

Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : Wood's

Líkan : MRD10G

Flokkur : Raka