MDK21 - Déshumidificateur Wood's - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis MDK21 Wood's á PDF sniði.
Spurningar notenda um MDK21 Wood's
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Déshumidificateur á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína MDK21 - Wood's og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. MDK21 vörumerkisins Wood's.
NOTENDAHANDBÓK MDK21 Wood's
Eldfim efni. Þetta tæki inniheldur R290/Própan, eldfimt kælimiðill. R290 kælimiðillinn uppfyllir evrópskar umhverfisreglur. Þetta tæki inniheldur um það bil 70g/75g af R290 kælimiðli. Ekki stinga eða brenna. Viðhald og viðgerðir sem krefjast aðstoðar annarra viðurkenndra starfsmanna verða að fara fram undir eftirliti sérfræðinga í notkun kælimiðla í kælibúnaði.

Notendahandbók.

Lesið tæknihandbók.

Lesið notendahandbók.
ÖRYGGISUPPLÝSINGAR

Áður en þú setur upp tækið og byrjar að nota það skaltu lesa meðfylgjandi leiðbeiningar vandlega. Framleiðandi er ekki ábyrgur ef röng uppsetning og notkun valda meiðslum og tjóni. Geymdu leiðbeiningarnar með tækinu til að geta skoðað þær.
Hætta á meiðslum eða varanlegri fötlun.
Börn 8 ára og eldri og einstaklingar með skerta líkamlega getu, skynjun eða andlega getu, eða skort á reynslu og þekkingu geta notað þetta
tæki undir eftirliti eða eftir að hafa fengið leiðbeiningar varðandi notkun tækisins á öruggan hátt og ef þau gera sér grein fyrir þeirri áhættu sem því fylgir. Leyfið ekki börnum að leika sér með tækið.
Börnum yngri en 3 ára skal haldið frá tækinu nema undir stöðugu eftirliti.
Geymið allar umbúðir fjarri börnum.
Börn skulu ekki annast hreinsun og viðhald án umsjónar.
Almennt öryggi
Þetta tæki er ætlað til nota á heimilum og álíka stöðum, svo sem: kjöllurum, starfsmannaeldhúsum í búðum, skrifstofum og öðrum vinnusvæðum. Flokkunarplatan er staðsett á bak við vatnsgeyminn á rakaeyðinum. Haldið aðskotahlutum fjarri loftopum.
Notið ekki vélbúnað eða aðrar aðferðir til að hraða afísingu en þær sem framleiðandi mælir með. Ekki skal geyma tækið í herbergi þar sem neistagjafar eru í gangi (opnir logar, gastæki, rafmagnshitarar). Ekki stinga eða brenna.
Hafið í huga að kæliefni geta verið lyktarlaus. Notið ekki vatnsúða eða gufu til að hreinsa tækið. Hreinsið tækið með rökum mjúkum klút. Notið aðeins hlutlaus hreinsiefni. Notið ekki slípivörur, slípiefnasvampa, leysiefni eða málmhluti.
Ef rafmagnssnúran er skemmd þarf að skipta um hana hjá framleiðanda, viðurkenndum
viðgerðaraðila eða sambærilegum aðila til að forðast að hættulegar aðstæður skapist.
ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
Uppsetning VIÐVÖRUN

Aðeins hæfur aðili skal annast uppsetningu tækisins.
Fjarlægið allar umbúðir.
Setjið ekki upp eða notið skemmt tæki. Tækið skal ekki setja upp, nota og geyma í herbergi sem er með stærri gólfflöt en 4m². Fylgja skal leiðbeiningum um uppsetningu sem fylgir tækinu. Sýnið ávallt aðgát þegar tækið er fært því það er þungt. Klæðist ávallt öryggishönskum.
Gangið úr skugga um að loft leiki óhindrað umhverfis tækið.
Bíðið í að minnsta kosti 4 klukkustundir áður en tækið er tengt við rafmagn. Þetta er til að leyfa olíunni að renna til baka í pressuna.
Setjið ekki tækið nálægt ofnum eða öðrum hitagjöfum.
Ekki setja tækið í beint sólarljós. Þetta tæki er aðeins til notkunar innandyra. Gætið þess að einingin sé staðsett á stöðugu og flötu yfirborði. Ef yfirborðið er ekki stöðugt er hætta á að einingin geti verið óstöðug og valdi of miklum titringi og að vatn geti farið að leka. Gangið úr skugga um að tækið sé staðsett á stöðugu og sléttu yfirborði. Ef yfirborðið er ekki stöðugt er hætta á að tækið verði óstöðugt og það geti valdið titringi og vatnsleka. Raftenging
VIÐVÖRUN

Hætta á bruna og raflosti. Tækið skal tengja við jarðtengda innstungu.
Ganga skal úr skugga um að rafupplýsingar á flokkunarmerkinu séu í samræmi við raftengi. Ef ekki, skal hafa samband við rafvirkja.
Notið ávallt rétt uppsetta höggpétta innstungu.
Notið ekki fjöltengi og framlengingarsnúrur.
Gætið þess að valda ekki skemmdum á rafhlutum (t.d. tengjum, snúrum).
Hafið samband við viðurkennda þjónustumiðstöð eða rafvirkja til að skipta um rafhluta.
Snúran verður að vera fyrir neðan innstunguna/klóna.
Tengið ekki klóna við innstunguna fyrr en uppsetningu er lokið.
Gangið úr skugga um að hægt sé að komast að klónni eftir uppsetningu.
Dragið ekki í rafmagnssnúruna til að aftengja tækið. Togið alltaf í klóna sjálfa.
Notkun
VIÐVÖRUN

Hætta á meiðslum, bruna, raflosti eða eldsvoða.
Breytið ekki eiginleikum tækisins.
Gætið þess að valda ekki skemmdum á kælihringrásinni.
Hún inniheldur própan (R290), náttúrulegt gas með háa umhverfissamhæfni. Þetta gas er eldfimt.
Ef skemmdir eiga sér stað í kælihringrásinni skal ganga úr skugga um að engir logar eða neistagjafar séu í herberginu.
Loftræstið herbergið.
Setjið ekki eldfimar vörur eða vörur sem eru bleyttar með eldfimum efnum nálægt tækinu eða ofan á það.
Förgun
VIÐVÖRUN

Hætta á meiðslum.
Takið tækið úr sambandi. Klippið rafmagnssnúruna af og fleygið henni.
Kælihringrásin í þessu tæki er ósónvæn. Hafðu samband við viðkomandi aðila í þínu landi til að fá upplýsingar um hvernig þú fargar tækinu á réttan hátt.
Valdið ekki skemmdum á þeim hluta kælieiningarinnar sem er nálægt hitabreytinum. Sjáið til þess að tækinu sé ávallt haldið hreinu. Hyljið ekki tækið.
TÆKNILÝSING
| MDK21 MDK26 | ||
| Ham, vinnusvæði 70m | 2 | 120m 3 |
| Loftflæði stig 1 132m3/klst 134m | 3 /klst | |
| Loftflæði stig 2 170m3/klst 174m | 4 /klst | |
| Rakaeyðing við 30°C og 80% RH 20 l/24klst 25 l/24klst | ||
| Orka við 30°C og 80% RH 275 W 320 W | ||
| Rúmmal geymis 4 litrar 4 litrar | ||
| Kæliefni | R290 (70g) R290 (75g) | |
| Spenna | 230 V | 230 V |
| Tiðni | 50 Hz | 50 Hz |
| Straumur | 1,25 A 1,4 A | |
| IP-kóði | IPX1 | IPX1 |
| Mál i mm, L x B x H | 346x242x596 | 346x242x596 |
* Tæknilegar breytingar og endurbætur geta orðið. Öll gildi eru viðmiðanir og geta verið breytileg vegna utanaðkomandi aðstæðna s.s. hitastigs, loftræstingar og raka.

| VANDAMÁL ORSÖK LAUSN | ||
| Rakaeyðirinn virkar ekki | Ekki í sambandi við rafmagn | - Gangið úr skugga um að rakaeyðirinn sé í sambandi og að öryggi sé ekki sprungið- Ef viðvórunarljósíð er kveikt, athuglð hvort vatnsgeymirinn sé tómur og rétt isettur i rakaeyðinn. |
| Eyðir ekki raka - Vatnsgeymirinn er fullur.- Vatnsgeymirinn er ekki rétt isettur.- Loftsian er stifluð.Hitastig eða rakastig í herberginu þarsem tækið er staðsett er of lågt. | - Tæmið vatnið úr geyminum.- Setjið vatnsgeyminn í rétta stöðu.- Hreinsið loftsiuna.- Gangið úr skugga um að loft flæði óhindrað í gegnum rakaeyðinn. Grillið og loftsian eiga að vera hrein og rakaeyðirinn ætti að standa um 20-30 cm frá vegg- Gætið að því hvort að þykk ising hafí myndast á kælispiralnum. | |
| Rakaeyðirinn virkar enrakaeyðing er ófullnægjandi. | - Herbergið er of stört.- það eru of margar uppsprettur raka.- Of mikil loftræsting. | - Mælt er með því að nota rakaeyðir með meiri afkastagetu.- Mælt er með því að nota rakaeyðir með meiri afkastagetu.- Dragið úr loftræstingu (t.d. með því að loka gluggum og hurðum.) |
Ef ekkert af ofangreindu virkar skal hafa samband við næsta söluaðila fyrir athugun og hugsanlega viðgerð.
Rakaeyðar frá Wood hafa verið leiðandi á markaðnum í mörg ár. Þurrktækin henta til notkunar í kröfuhörðum aðstæðum þar sem afkastagetan er góð jafnvel við lágt hitastig og rakastig. Þau eru notuð með góðum árangri á stöðum þar sem raki er, s.s. í kjöllurum, bílskúrum eða sumarbústöðum. Þær henta einnig mjög vel til að þurrka þvott, háaloft, sundlaugasali o.fl. Skilvirkni og sparneytni. Þeir slíta ekki fötum.
Magn raka sem þurrktækið fjarlægir fer eftir hitastigi, rakastigi og staðsetningu tækisins. Ytri veðurskilyrði geta einnig haft áhrif á afköst rakaeyðisins. Í köldu veðri lækkar algildisraki og þess vegna minnka afköst þurrktækisins. (Rakastig gæti samt verið hátt.) Rakaeyðirinn hentar til notkunar við hitastig á bilinu + 5°C til + 35°C.
Rakaeyðarnir frá Wood eru öruggir í notkun og endast árum saman.
MJÖG HÁTT RAKASTIG - HÆTTA
Þétting verður þegar vatnsgufa í lofti kemst í snertingu við kalt yfirborð, s.s. kaldan glugga eða vegg. Þegar vatnsgufa kólnar verður þétting og vatnsdropar myndast. Í lofti þar sem rakastig er mjög hátt getur orðið fúki og myglumyndun sem getur valdið skemmdum á húsnæði og húsgögnum. Þannig umhverfi getur valdið veikindum hjá íbúum. Maurar og köngulær þrífast einnig betur í röku umhverfi. Afkastamikið rakataeki skapar gott, heilsusamlegt rakastig. Til þess að afköst séu sem mest ættu gluggar og hurðir í herbergjum þar sem rakaeyðir eru notaðir að vera lokaðir. Eyðir lykt, þurrkar og fjarlægir raka frá útivistarbúnaði. Rakaeyða má nota í kjallara, þvottahúsum, bílskúrum, skúmaskotum, hjólhýsum, sumarbústöðum og í bátum. Ef rakaeyðirinn er geymdur í köldu umhverfi ætti að lesa ábendingarnar aftast í handbókinni.
STADSETNING ÞURRKTÆKISINS
Auðvelt er að flytja rakaeyðinn. Það eina sem þarf er 220/240V rafmagnstenging, en hafa skal eftirfarandi í huga:
- Rakataekinu ætti ekki að koma fyrir nálægt ofnum eða öðrum hitagjöfum eða undir beinu sólarljósi þar sem slíkt getur haft áhrif á afköst þess.
- Það er gagnlegt að nota ofn eða hitaviftu til að halda hitastigi fyrir ofan +5 °C.
- Til að hámarka loftflæði ætti þurrktækið að vera í a.m.k. 20-30 cm fjarlægð frá öllum hindrunum.
- Best er að koma því fyrir í miðju herbergis/svæðis.

ATH: Þegar tækinu er komið fyrir í sturtuaðstöðu eða baðherbergi ætti þurrktækið að vera fast í stað. Það er skylda að athuga og virða staðbundnar reglugerðir um raftengingar á baðherbergjum áður en tækið er notað.
NOTKUN ÞURRKTÆKISINS
Ef þurrktækið er flutt í láréttri stöðu gæti olía hafa runnið úr þéttingum og inn í lokaða leiðslukerfið. Í slíku tilfelli skal láta þurrktækið standa í nokkrar klukkustundir fyrir notkun. Það er mjög mikilvægt að olían fái að renna til baka í pressuna því annars gæti rakaeyðirinn skemmst alvarlega.
- Athugið hvort að vatnsgeymirinn sé rétt ísettur.
- Tengdu þurrkarann við jarðtengingu.
- Veldu viftuhraða.
- Stilltu viðeigandi rakastig með rakastýringunni. Sjá kaflann um rakastýringu.
ATH: Þegar slökkt er á rakaeyðinum líða 5 mínútur þar til hann endurræsist. Innbyggðu sjálfvirku aðgerðirnar eru óvirkar á meðan.
GEYMIR FULLUR
Þegar flotið nær ákveðinni hæð bregst rakaeyðirinn við og slekkur sjálfkrafa á sér til að koma í veg fyrir að flæða fari úr geyminum.
Þegar vatnsgeymirinn hefur verið tæmdur og honum komið fyrir á sínum stað.
- Ýtið vatnsgeyminum inn á sinn stað.
RAKASTÝRING
Wood rakatækið er með innbyggða rakastjórnun þar sem hægt er að stilla á æskilegt rakastig. Hann mælir rakastig hverju sinni og tryggir að rakaeyðirinn slökkvi og kveiki á sér sjálfvirkt.

ATH: Einfaldast er að mæla rakastig með Wood rakamæli og besta rakastigið er á milli 50% og 60%.
SJÁLFVIRK SLOKKNUN
Þegar vatnsgeymirinn er fullur slekkur rakaeyðirinn sjálfkrafa á sér. Gaumljósið framan á þurrktækinu skiptir yfir í rautt til að sýna að tæma skuli vatnsgeyminn.
- Tengdu þurrktækið við rafmagn.
- Tæmið vatnsgeyminn.
- Setjið tóma vatnsgeyminn aftur á sinn stað.
- Tengdu þurrktækið við rafmagn.
LOFTSÍA
Loftsían aftan á þurrktækinu tryggir að kælispíralarnir séu lausir við ryk. Mikilvægt er að síunni sé haldið hreinni svo að loft geti flætt óhindrað í gegnum rakaeyðinn. Hreinsa skal síuna eftir þörfum.
SJÁLFVIRK AFÍSING
Purrktækin frá Wood eru búin stjórneiningu sem tryggir að kælispíralarnir afpýðist sjálfkrafa þegar þörf krefur. Stjórneiningin slekkur á bjöppunni sem veldur því að kælingin á spírulunum stöðvast. Viftan heldur áfram að soga loft undir stofuhita í gegnum rakaeyðinn og bræðir þannig ísinn og vatnið rennur niður í vatnsgeyminn. Þessi afísingarbúnaður hefur í för með sér að rakaeyðirinn starfar við hitastig alveg niður að +5°C.
VIFTA
Viftan tryggir að loft streymi í gegnum rakatækið. Rakt loft er dregið inn að aftan og í gegnum kælispíralinn og eimirinn og kemur síðan út ofan á rakaeyðinum. Rakaeyðarnir frá Wood eru með tvo viftuhraða.
- Staða II – hefur í för með sér mikið loftflæði með hámarks rakaeyðingu.
- Staða I – hefur í för með sér lægra loftflæði og minni hávaða og nokkuð lægri afköst.
HREINSUN OG VIÐHALD
Rakaeyðana frá Wood þarf að hreinsa og skipta um síu í þeim til að viðhalda hámarks afköstum við rakaeyðingu.
- Best er að hreinsa kælispíralinn varlega með klút og heitu vatni.
- Viftumótorinn er varanlega smurður og þarf ekki viðhalds.

ATH: Alltaf skal aftengja snúruna áður en hún er þrifin.
ÁBENDINGAR:
- Stundum getur verið ráðlegt að nota frostvörn til að ganga úr skugga um að hitastigið fari ekki undir +5°C.
- Fyrir hámarks rakaeyðingu er mælt með að loftflæði að utan og frá aðliggjandi herbergjum sé sem minnst. Lokið hurðum og loftopum.
- Komið tækinu fyrir í miðju herbergisins.
- Aukið hitastigið fyrir hraðari rakaeyðingu (hlýtt loft flytur meira vatn).
- Notið frostvörn ef hitastig fer niður fyrir +5°C.
- Meiri rakaeyðing á haustin/sumrin vegna þess að loftið utanhúss er heitt og rakt. (Algildisraki er yfirleitt meiri).
ÞEGAR ÞURRKTÆKIÐ KREFST VIÐHALDS
Ef þurrktækið krefst viðhalds þarftu fyrst að hafa samband við söluaðila. Sönnun á innkaupum er krafist fyrir alla ábyrgðarkröfur.
ÁBYRGÐIR
2 ára ábyrgð á framleiðslugöllum. Athugið að ábyrgðin gildir aðeins með sönnun um kaup.

ATH! Fáðu 3 ára ábyrgð! Skráðu tækið á warranty-woods.com. Frekari upplýsingar er að finna á woods.se.
Ráðlögð mörk fyrir notkun
Hitastig: +5°C til +35°C Rakastig: 30% til 90% Ráðlagt rakastig: U.þ.b. 50% RH
MIKILVÆGT! - Wood rakaeyða verður að tengja við jarðtengdan orkugjafa. Rafspenna skal vera 220V-240V 50Hz

EIGINLEIKAR & NÖFN HELSTU KNAPPA
1. On/Off: Kveikt og slökkt á tækinu. 2. Hraði: Ýtið til að stilla viftuhraða. 3. Fatapurrkun: Ýtið til að stilla fatapurrkun. 4. Rakastilling: Ýtið til að velja æskilegt rakastig. 5. Tímastillir: Tímastilling fyrir slokknun. 6. Sveifla: Ýtið til að kveikja eða slökkva á sveiflu. 7. Næturstilling, barnalæsing: Ýtið einu sinni til að fara í næturstillingu. Ýtið stöðugt í 3 sekúndur til að kveikja eða slökkva á barnalæsingunni sem læsir stjórnborðinu.
NOTKUN TÆKISINS
- Þegar tækið er tengt við rafmagn er tækið í biðstöðu. Ýtið á On/Off-knappinn ⏻ til að kveikja á tækinu. Þá opnast úttakið. Ýtið aftur á hnappinn til að slökkva á tækinu. 2 Ýtið á "SPEED" til að velja viftuhraða. 3 Fatapurrkun. Tækið vinnur á mesta hraða til að þurrka föt hraðar. Rakastilling er ekki í boði í þessari stillingu. Ath: Þegar tækið skynjar ≤ 40% RH, stöðvast pressan sjálfkrafa en viftan heldur áfram að blása á mesta hraða.
Þegar tækið skynjar ≥ 45% RH, endurræsist pressan.

4 Rakastilling: Hægt er að stilla rakastigið á: 50%-55%-60%-65%-70%-Co-40%-45%. Þessi aðgerð er aðeins tiltæk í standard rakaeyðingarstillingu. Athugið: þegar raki nær því stigi sem stillt hefur verið á, þá stöðvast pressan og viftan í 1 klukkustund. Eftir 1 klukkustund fer viftan í gang í 3 mínútur til að skapa lofthringrás. Ef rakastig er hærra en valin stilling, fer tækið í gang aftur. Ef raki er lægri en valin stilling, stöðvast pressan og viftan í eina klukkustund í viðbót.

5 Tímastillir. Þegar kveikt er á tækinu, ýtið á tímastillinn 1H/2H/4H/8H til þess að ákveða tíma. Tímatáknið birtist á LCD skjánum.

6 Sveifla. Ýtið á hnappinn til að stöðva útblásturssveifluna.

7 Næturstilling (barnalæsing) Ýtið á hnappinn til að komast í næturstillinguna. Sjá virkjanir fyrir barnalæsingu hér að ofan
FULLUR VATNSGEYMIR
Þegar geymirinn er fullur slekkur tækið sjálfkrafa á sér og viðvörun heyrist 10 sinnum. Ljós fyrir "Vatnsgeymir fullur" lýsir einnig. Þegar geymirinn hefur verið tæmdur fer tækið sjálfkrafa í gang samkvæmt síðustu stillingu. Athugið: pressan fer ekki í gang fyrr en eftir 5 mínútur. (Sjá Vörn fyrir pressu).
VÖRN FYRIR PRESSU
Tækið er með vörn fyrir pressuna. Tækið fer ekki í gang aftur fyrr en 5 mínútum eftir að kveikt hefur verið á því.
VÖRN FYRIR PRESSU
Þetta tæki er útbúið með vörn fyrir pressuna, sem seinkar gangsetningu í 5 mínútur. (Eftir að slökkt hefur verið á því og sett í gang aftur.)
STÖÐUG TÆMING
Tæmingarslanga 15mm. Setjið slönguna í úttakið og hinn endann í niðurfall (vask, sturtu o.s.frv.). Vatnsgeymirinn verður þá ekki í notkun. Tækið vinnur stöðugt og mun ekki stöðvast. Þegar tæming er stöðug skal afrennslisslangan ávallt vera fyrir neðan útblásturinn. Slangan skal vera bein, ekki beygð eða brotin. Annars er hætta á flæði við úttakið.
SJÁLFVIRK ENDURRÆSING EFTIR RAFMAGNSLEYSI
Tækið slekkur sjálfkrafa á sér og starfar aftur í síðustu stillingu þegar rafmagn kemur á aftur.